Leiðtogafundurinn í Höfða í okt. 1986

Höfði

Leiðtogafundurinn í Höfða var fundur milli Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtoga Sovétríkjanna sem haldinn var í Höfða 11. til 12. október 1986.

Höfði

Höfði – skipulagsuppdráttur vegna öryggisgæslu fundarins í Höfða 1986.

Tilgangur fundsins var undirbúa fund leiðtoganna í Washington ári síðar en þar átti að ræða um takmörkun á vígbúnaði og deilu- og mannréttindamál.

Um tíma kom til greina að halda fundinn á Hótel Sögu eða jafnvel Kjarvalsstöðum en þar hittust Pompidou forseti Frakklands og Nixon forseti Bandaríkjanna árið 1973.

Viðbúnaður
Mikil öryggisviðbúnaður var við komu leiðtogana, sem dæmi má nefna að skotheldar bifreiðar voru fluttar til landsins, hús í nágrenni við Höfða voru rýmd á meðan á fundinum stóð og var eftirlit með farþegum til landsins hert en fundurinn var ákveðin með aðeins 10 daga fyrirvara. Í fylgdarliði leiðtogana voru alls um 400 manns en einnig heimsóttu um 1.000 blaðamenn landið vegna fundarins.

Höfði – Niðurstaða

Höfði

Uppdráttur vegna öryggisgæslunnar við Ægisgarð vegna leiðtogafundarins 1986.

Fundinum var slitið án niðurstöðu en þrátt fyrir það er talið að hann hafi gegnt gífurlega mikilvægu hlutverki í þróun afvopnunarmála og verið mikilvægur þáttur í undirritun INF-sáttmálans í desember 1987.

Leiðtogafundurinn frægi í Reykjavík var haldinn 11.-12. október 1986. Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mikhaíl Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, funduðu í Höfða og Íslandi var kastað inn í hringiðu nútímans. Heimssögulega markar leiðtogafundurinn líka upphafið á endalokum kalda stríðsins.

Leiðtogafundurinn í Höfða árið 1986 var ákveðinn með örskömmum fyrirvara. Fæstir sem um aðdragandann hafa fjallað í tilefni þessx að 40 ára eru liðin frá fundinum virðast hafa hina minnstu hugmynd um hvað gekk þá á, en fleiri virðast hafa gert sér grein fyrir árangrinum – sem slíkum.

Meðfylgjandi öryggisgæsluuppdrættir á helstu stöðum leiðtoganna gerði ÓSÁ. Hafa ber í huga að öll undirbúningsvinnan var gerð fyrir tilkomu tölvutækninnar…

Heimild:
-https://is.wikipedia.org/wiki/Lei%C3%B0togafundurinn_%C3%AD_H%C3%B6f%C3%B0a
-https://www.mbl.is/mogginn/bladid/innskraning/?redirect=%2Fmogginn%2Fbladid%2Fgrein%2F1921993%2F%3Ft%3D811948899&page_name=grein&grein_id=1921993

Höfði

Öryggisgæsluuppdráttur í kringum Hótel Sögu í aðdraganda leiðtogafundarins 1986.