Arnarfell

Eftirfarandi frásögn af varpstöðum arna á Reykjanesskaganum birtist í dagblaðinu Vísi árið 1922:
orn-23“Í Árnessýslu verpti örn í Stórhöfða á Reyðarbarmi til þess fyrir 2 árum, og í Dráttarhlíð við Sogið til þess fyrir 7 árum. Í Ölfusi urpu tvenn arnarhjón; 1905, önnur í Núpafjalli, hin í Þverárhnúk, en eru horfin fyrir nokkrum árum og í Selvogi verpti örn til þess fyrir 4 árum.
Í Gullbringusýslu verpti örn um síðustu aldamót á einum stað í hrauni milli Krýsuvíkur og Grindavíkur, en nú ekki, og örn sást í Grindavíkurhreppi haustið 1920.
Örn verpti um langan aldur í Illahrauni í Járngerðarstaðalandi, en mun nú hætt því; sést þar örn við og við þar enn.
Í Hafnahreppslandi hefir örn ekki verpt, svo menn viti, síðustu 40 ár, og ekki sjest nema örsjaldan á því tímabili, þó síðastliðinn vetur. Fyrir 3 árum verpti örn í Arnarkletti í mörkum milli Njarðvíkur og Voga, en venjulega sést ein og ein á hverju vori í þeim bygðarlögum.
— Í Bessastaðahreppi sást örn áður, en varla nú.
Í Kjósarsýslu verpti örn í Lágafellshömrum þangað til fyrir 4 árum, og sést örsjaldan í Kjalarneshreppi. í Arnarnípu í Meðalfellsfjalli í Kjós hefir örn verpt síðan fyrir aldamót og verpir þar enn og sést árlega.”

Heimild:
-Vísir 21. apríl 1922, bls. 2.

Arnarþúfa

Arnarþúfa á Arnarhól í Ögmundarhrauni.