Tag Archive for: Hallberuhellir

Guðrúnartóft

Jón Svanþórsson, fyrrum lögreglu- og útivistarmaður, skrifaði um gömlu leiðina um Gömlubotna að Lækjarbotnum og áfram að Draugatjörn neðan Kolviðarhóls:

Jón Sbanþórsson

„Frá Ármótakvísl liggur leið í Gömlubotna. Er þá stefnt norðan grágrýtishóls sem kallaður er Höfuðleðurshóll og svo hjá Silungapolli norðanverðum þar sem ferðamenn áðu oft. Áfram liggur leiðin að austanverðum pollinum og að brún Hólmshrauns lll. Gatan hefur verið hlaðin upp dálítinn spöl í gegnum hraunið þar sem Silungapollurinn liggur alveg að því. Hér á bakka Silungapolls byggði Oddfellowreglan barnaheimili á árunum 1928-1930. Síðar rak Reykjavíkurborg barnaheimili í húsunum og síðast var hér meðferðarheimili SÁÁ á árunum 1979 til 1984 Það ár voru húsin rifin.
Þegar yfir hraunhaftið er komið er haldið til austurs inn gróið vik í hraunið. Sunnan götunnar er beitarhúsatóft frá Hólmi. Gatan er frekar ógreinileg í fyrstu en þegar komið er að eystri brún hraunsins og að norðurenda Gráhryggs eystri er mikið úrkast úr götunni. Sumarhús stendur hér undir brún Gráhryggs.

Lækjarbotnar

Lækjarbotnar – Arnarhreiðrið.

Héðan er ekki hægt að rekja götuna með öryggi í Gömlubotna vegna trjágróðurs og vegalagna en hún hefur líklega legið upp með hraunbrúninni og Botnalæknum sem rennur milli hraunsins og Selhóla úr botnunum.
Á hraunbrúninni litlu sunnar er áberandi hraundrangur, út frá honum hefur verið hlaðið virki, þrír metrar á kannt í brjósthæð. Að sögn eiganda sumarbústaðarins við hraunbrúnina var þarna varðstöð á stríðsárunum því herkampur var undir hraunbrúninni. Er virkið kallað Arnarhreiðrið. Innar með hraunbrúninni er sumarbústaður, suðaustan við hann eru tóftir Bessastaðasels.

Viðeyjarsel

Viðeyjar-, Bessastaðasel.

Í Lækjarbotnum sem síðar var kallað í Gömlubotnum er talið að selstaða fyrir Örfirseyjasel hafi verið um aldir eða þar til byggð lagðist af í eynni eftir hin miklu sjávarflóð 1799 sem kennd voru við Básenda. Síðan er talið að Lækjarbotnabærinn hafi verið byggður á selstöðunni.
Með útvistunargjörð 22.júlí 1865 fékk Þorsteinn Þorsteinsson land til yrkingar er nefnist Lækjarbotnar. 11. febrúar 1868 fékk hann nýbýlisrétt af Lækjarbotnum en 4.október 1866 voru gerð skipti milli Þorsteins og Hallberu Jónsdóttur sem einnig átti heima að Lækjarbotnum, og skyldi Hallbera halda hálfu kotinu að húsum og öðru.

Hólmshraun

Hólmshraun – upptök.

Hallbera hafði búið að Hólmi, gift bóndanum þar, en Þorsteinn verið vinnumaður þeirra. 5. ágúst 1886 seldi Þorsteinn, Benedikt sýslumanni Sveinssyni á Elliðavatni, Lækjarbotna alla. Benedikt ætlað nú að krefja Hallberu um leigu fyrir alla Lækjarbotna og stefndi henni fyrir dóm. Í aukarétti Gullbringu og Kjósarsýslu var hún dæmd til að greiða Benedikt eftirgjald fyrir 13 fardagaárin 1870/71 til 1882/83 og greiða 18 krónur í málskostnað. Hallbera áfrýjaði málinu fyrir Yfirdóm. Þar fékk Hallbera eignarétt sinn að ½ Lækjarbotnum staðfestan fyrir dómi og var henni gert að greiða Benedikt hæfilegt eftirgjald af hálflendunni frá fardögum 1870 til fardaga 1883 og málskostnaður látinn falla niður.

Lögberg

Lögberg – loftmynd 1954. Hér var um tíma birgðastöð hersins. Bærinn fór undir núvernandi Suðurlandsveg.

Um 1870 hefur Lækjarbotnabærinn verið færður norður fyrir Selhóla að Fossvallaklifi og byggður upp á svokölluðum Túnhól. Líklega hefur ferðamannaleiðin færst um þessar mundir frá Lækjarbotnum í Fossvallaklif. Greiðasala var í Lækjarbotnum enda síðasti mannabústaður á leið að Kolviðarhóli og á miðri leið þangað 15 km frá Reykjavík.
Árið 1888 brennur bærinn á Lækjarbotnum. Tryggingin er sögð 4000 kr. Sem var stórfé í þá daga. Þá stóðu þar fyrir búi Soffia dóttir Hallberu og sambýlismaður hennar, Sigurbjörn, fyrrum sæluhúsvörður á Kolviðahóli.

Lögberg

Leiði Guðmundar á Lögbergshól.

Árið 1908 var bærinn fluttur á ný norður fyrir hólinn og byggt þar mikið hús, bær og gistihús sem nefnt var Lögberg. Stóð Guðmundur H. Sigurðsson nýr eigandi Lækjarbotna fyrir því og á sama tíma voru Lækjarbotnar lagðir í eyði.
Í Gömlubotnum var byggður skátaskáli árið 1929 kallaður Væringjaskálinn. Var hann svo rifinn og fluttur á Árbæjarsafn og endurreistur þar árið 1962. Nýr skáli var svo byggður og hefur skátafélagið Garðbúar umsjón með honum. Rétt ofan (suðaustan) við skálann er tóft sem er talin eru Gömlubotnar. Tóftin er hringlaga tviskipt með göngum á milli um níu metrar á annan veginn og rúmlega ellefu á hinn. Vestan við skátaskálann er tóft beitarhúss, mikið nýlegri.
Gatan austur frá Gömlubotnum liggur upp og suður fyrir grunnt gil. Í brún þess austanverðri er hellir. Í helli þessum sem er um 16 fermetra eru hleðslur og bálkur inni.

Lækjarbotnar

Lækjarbotnar – hellisopið.

Í hellinum voru útilegumennirnir Margrét Jónsdóttir og Eyvindur Jónsson handsömuð 20. október 1677. Hellirinn hefur líklega verið notaður sem fjárhellir á búskaparárum í Lækjarbotnum. Í Áföngum ferðahandbók hestamanna hafa Þorkell Jóhannesson og Óttar Kjartansson kallað hann Hallberuhelli.
En haldið skal áfram og nú hverfur gatan undir girðingu um sumarbústaðarland. Að sögn eiganda sumarbústaðarins fer gatan svo út úr landi hans nokkru ofar en gatan er ekki rekjanleg vegna Lúpínu. Úr því að svona háttar til er best að stefna að suðurhorni sumarbústaðargirðingarinnar og þaðan er stefnt í suðaustur á gamlan bílveg og síðan eftir honum að mikilli vegfyllingu vegar að Waldorfsskólanum sem er litlu nær Selfjalli þar sem heitir Seldalur. Uppi á Selfjalli er grágrýtisklettur mikill sem Klifkista heitir. Þegar yfir veginn er komið er stefnt að girðingu um Lögbergstún. Þar er príla yfir girðinguna.

Lögberg

Lögberg – stríðsminjar norðan Suðurlandsvegar.

Góðar götur liggja suður og austur fyrir túnið. Leiðin liggur út úr túninu skammt ofan við Fossvallarétt/Lögbergsrétt og yfir Suðurlandsveg eitt, tvö og þrjú. Hér er girðing þvert á leið og þarf að fara niður að Fossvallarétt til að komast fyrir girðingarendann ef fólk getur ekki prílað yfir girðinguna. og síðan milli hóla að stökum hól með litlu vörðubroti í toppi sem er við farveg Syðri-Fossvallaár.

Leiðin liggur sunnan við hólinn og að árfarveginum. Á tveim stöðum eru djúp spor mörkuð í klöppina með stuttu millibili og er efra sporið dýpra. Hér er allt þakið í stórgrýti og umbylt eftir vatnsflóð og þræðir leiðin á milli hnullunganna.

Suðurlandsvegur

Suðurlandsvegur.

Stefnt er að Suðurlandsvegi en áður en komið er að honum eru ógreinileg gatnamót til hægri þarna er leið austur um Sandskeið. Áfram er haldið yfir Suðurlandsveginn sem liggur þvert yfir leiðina og austan við litla vörðu síðan yfir varnargarð sem byggður var til að varna Nyrðri-Fossvallaá sem einnig er nefnd Heiðarbrúnakvísl að renna farveg sinn en nú er hún látin renna fram af heiðarbrúnunum niður á Fossvellina. Samkvæmt örnefnalýsingu fyrir Elliðakot og Vilborgarkot heitir svæðið norðan við ána Fossvallaheiði en aðalheiti heiðarinnar er Elliðakotsheiði. Svo er farið yfir farveginn og er þá komið á götur sem liggja upp frá Fossvallaklifi og þeim fylgt eftir sameiginlegri götu upp með árfarveginum norðanverðum hjá vörðu.

Fóelluvörn

Fóelluvötn – Lyklafell fjær.

Upp úr Völlunum rís Vatnaás sem skiptir Vötnunum í Efri-vötn ofan við ásinn (austan) og Neðri-vötn neðan við ásinn (vestan). Engidalsá breytir um nafn við Lyklafell og kallast nú Lyklafellsá og rennur suður um Efri-vötn og suður fyrir Vatnaásinn að Suðurlandsvegi og síðan norður um Neðri-vötnin að Heiðarbrúnum og saman við uppsprettur þar og kallast eftir það Nyrðri Fossvallaá eða Heiðarbrúnarkvísl. Leið okkar liggur um slakkann sem verður á milli Vatnaáss og Eystri-Vatnaáss sem er heiðarbrúnin þar sem hún sveigir til norðausturs. Rétt austan við götuna undir lágum ás kúrir Guðrúnartóft. þarna ætluðu Guðmundur Guðmundsson og kona hans Guðrún Hákonardóttir á Lágafelli í Mosfellssveit að stofna nýbýli og sóttu um það 1822 en var hafnað um leyfið. Var þarna haft í seli í nokkur sumur og hefur Guðrún líkleg verið selráðskona. Ölfusingar kvörtuðu undan þeim við Sýslumann Gullbringusýslu og sögðu þau t.d.reka hross þeirra vestur af afréttinum. Litlu norðar er Stakur hóll með vörðu í toppi sem kallast Stangarhóll. Sunnan undan honum er Nautapollur sem er hornmark á milli Mosfellsbæjar og Kópavogs.

Austurleið

Austurleiðin, gamla þjóðleiðin, við Lyklafell.

Við Fóelluvötn var áningarstaður og náttstaður margra sem fóru hér um og eru til sögur af þeim t.d. Ólafi ráðsmanni í Skálholti sem líklega hefur farið Dyraveg. Margar leiðir liggja síðan upp af völlunum í allar áttir en við fetum okkur í austur upp Vatnaöldur á götu og síðan upp á öldu sem er efst Vatnaaldanna en er líka kölluð neðsta Bolaalda. Eftir það tekur hraunstraumur úr Svínahraun við og er nú stefnt að vörðu á suðurenda á hraunhrygg og erum við þá á Miðöldu/Sýsluöldu. Héðan er stefnt yfir óbrynnishólma að vegi sem lagður var vegna lagningar heitavatnslagnar frá Hellisheiðarvikjun til Reykjavíkur en hann liggur ofan á gömlu leiðinni á kafla. Nú er hraunbrún framundan en undir henni er Efri/efsta Bolaaldan og er stefnt á smá skarð í hraunbrúnina. Hraunið er hér slétt á milli úfnari strauma. Héðan er síðan farið með þéttum vörðum að Draugatjörn eða Kolviðarhóli.

Svínahraunsleið

Svínahraunsleið.

Ef halda skal í Þrengsli eða Lágaskarðsveg er skilið við vörðurnar sem liggja að Kolviðarhóli og síðan er Svínahraunsbruna fylgt spöl lengra suður og síðan er stefnt um slétt hraun að Litla-Reykjafelli og hjá húsi frá Orkuveitunni sem byggt hefur verið um þjóðbraut þvera og er heimreiðin prýdd með bannskilti að öll umferð sé þar bönnuð. Er það nú viðeigandi á gamalli þjóðleið?
Áður en hraunin sem mynda Brunan runnu úr Nyrðri Eldborg um árið 1000 gæti þessi leið upp af Vötnunum hafa legið beint í Þrengsli eða Hveradalabrekkuna. Allavega hefur undirritaður fundið þar gamlar vörður austan við Brunann.“ – Jón Svanþórsson.

Kolviðarhóll

Kolviðarhóll.

Lækjarbotnar

Í rannsókn á „Dysjum hinna dæmdu – Rannsókn á Hallberuhelli í Lækjarbotnum„, sem fram fór árið 2019, má t.d. lesa eftirfarandi:

Rannsókn

Hallberuhellir

Forsíða rannsóknarinnar um Hallberulelli.

Þann 7. ágúst 2019 fór fram rannsókn á Hallberuhelli í Lækjarbotnalandi. Í hellinum er talið að Margrét Símonardóttir og Eyvindur Jónsson hafi haldið til um tíma en þau voru tekin af lífi á Öxarárþingi árið 1677 fyrir útileguþjófnað og hórdómsbrot. Rannsóknin á hellinum er þáttur í verkefninu Dysjar hinna dæmdu sem miðar að því að afla upplýsinga um einstaklinga sem teknir voru af lífi á Íslandi á árunum 1550 til 1830, bæði með tilliti til brota þeirra og dóma en einnig til bakgrunns þeirra, samfélagsstöðu og búsetu. Tilgangur rannsóknarinnar á Hallberuhelli er að varpa ljósi á aðstæður og lifnaðarhætti einstaklinga sem lifðu á flakki hér á landi og hlutu síðar dauðarefsingu fyrir þjófnað og fleiri brot. Rannsóknin á hellinum fólst fyrst og fremst í úttekt á innréttingu hans og voru gólf og veggir hans því ljósmyndaðir og teiknaðir en auk þess var gerður prufuskurður í gólf hellisins og þaðan tekin sýni.

Forsaga rannsóknar
Hallberuhellir
„Á Íslandi fóru fram um 240 aftökur á tæplega þremur öldum, frá siðaskiptum, þegar rétturinn til refsinga færðist úr höndum kirkjunnar til veraldlegra valdhafa, til ársins 1830 þegar síðustu dauðadómunum var framfylgt hér á landi. Dauðadómar féllu fyrst og fremst fyrir morð, galdra, þjófnað, dulsmál og blóðskömm.

Lækjarbotnar

Lækjarbotnar – hellisopið.

Árið 2018 hófst vinna við rannsóknarverkefnið „Dysjar hinna dæmdu“ en markmið þess er að varpa ljósi á dauðadæmda einstaklinga á íslenskri árnýöld með tilliti til brota þeirra og dómsmeðferðar sem og félagslegs bakgrunns þeirra, kyns, aldurs, stöðu, fjölskyldurhags og búsetu. Rannsóknarverkefni þetta hefur leitt í ljós að dauðadómar á Íslandi féllu oftar fyrir þjófnað en nokkra aðra tegund brota og fleiri en 70 þjófar voru teknir af lífi á árunum 1584–1758. Svo virðist sem að flestir þessara þjófa hafi verið heimilislausir einstaklingar sem lifðu á flakki og stálu sér til viðurværis. Rannsóknin á Hallberuhelli í Lækjarbotnum, þar sem talið er að útilegufólkið Margrét Símonardóttir og Eyvindur Jónsson hafi haft aðsetur á síðari hluta 17. aldar, er liður í áðurgreindu verkefni en tilgangur hennar er að kanna aðstæður og lífshætti flakkara og dæmdra afbrotamanna.
HallberuhellirMargrétar Símonardóttur og Eyvindar Jónssonar er getið í fjölmörgum rituðum heimildum og eru mál þeirra gjarnan kölluð Eyvindarmál hin fyrri til þess að greina þau frá málum Fjalla-Eyvindar og Höllu sem lögðust út tæpri öld síðar (Ólafur Briem 1983, bls. 28).
Í annálum kemur fram að Margrét og Eyvindur, sem var þá þegar giftur annari konu, hafi tekið saman og hlaupið úr Ölfusi. Fyrst um sinn munu þau hafa haldið til vestur undir Snæfellsjökli (Fitjaannáll, bls. 427; Hestsannáll, bls. 512). Síðar földu þau sig í helli sunnan við Örfiriseyjarsel sem Árni Magnússon nefnir Hraunhelli en hefur á síðari árum verið kenndur við Hallberu Jónsdóttur sem bjó á Lækjarbotnum á síðari hluta 19. aldar (Árni Magnússon, bls. 60; ferlir.is). Þann 20. október 1677, þegar Margrét og Eyvindur höfðu legið úti í meira en tvö ár, voru þau handtekin við Hallberuhelli og þýfi þeirra, sem samanstóð af nautakjöti og öðrum hlutum, gert upptækt (Alþingisbækur VII, bls. 403 – 405).

Engidalur

Tóftir útilegumanna í Engidal.

Á Bakkárholtsþingi þá um haustið voru Margrét og Eyvindur dæmd sek um hórdómsbrot með barneign, burthlaup úr héraði sem og foröktun sakramentis og heilagrar aflausnar. Í þetta sinn sluppu þau við dauðadóm en áttu að hljóta þrjár húðlátsrefsingar hvort um sig. Í dómsskjalinu kemur þó fram að sýslumaðurinn, Jón Vigfússon, mætti milda dóm Margrétar ef honum sýndist „vegna hennar nú sýnilegra vesalburða.“ Degi síðar var fyrsta refsingin lögð á þau. Eftir að hafa tekið út allar refsingarnar voru fangarnir svo sendir til Kjalarnessýslu þar sem þjófnaðarmál þeirra var tekið fyrir en samkvæmt lögum átti að dæma í slíkum málum í þeirri sýslu sem þjófnaðurinn fór fram (ÞÍ. Sýslumaðurinn í Árnessýslu 0000 GA/1-2-1).

Engidalur

Engidalur – bæli.

Á Kópavogsþingi voru Margrét og Eyvindur dæmd til líkamlegrar refsingar fyrir þjófnað en eftir að hafa staðið hana og meðtekið sakrament í Skálholtsdómkirkju voru þau aðskilin og tók eiginkona Eyvindar, Ingiríður, hann aftur til hjónabands. Refsingin dugði þó skammt því „þessar vandræðapersónur“ tóku fljótt upp útilegusamvistir á ný og fundust saman í rekkju í hreysi undir bjargskúta við Ölfusvatn með þýfi sitt. Voru þau fangelsuð á heimili valdsmannsins Stórólfshvoli og svo færð í járnum á Öxarárþing þar sem þau voru dæmd til dauða fyrir ítrekuð hórdómsbrot og útileguþjófnað. Þann 3. júlí 1678 var dauðadómnum framfylgt og eftir að hafa meðtekið kristilegar fortölur „til sannrar viðurkenningar, huggunar og trúarstyrkingar í herrans Kristí blessaðri forþénustu” var Eyvindur Jónsson hálshöggvinn en Margréti Símonardóttur drekkt – allt samkvæmt fyrirmælum Stóradóms (Alþingisbækur VII, bls. 403–405).
HallberuhellirEkki er vitað hversu lengi nákvæmlega Margrét og Eyvindur dvöldu í Hallberuhelli, þar sem þau voru handtekin, þann 20. október 1677. Hallberuhellir virðist þrátt fyrir allt ekki alslæmur felustaður; á þessum tíma var enginn bær nálægt hellinum en hann lá þó sennilega ekki algjörlega úr alfaraleið því rétt vestan við hann er talið að Örfirisey hafi átt sel átti til ársins 1799. Hugsanlega nýttu Margrét og Eyvindur sér þetta og stálu fé seljanna til viðurværis.

Viðeyjarsel

Viðeyjar (Örfiriseyjar-) Bessastaðasel).

Sem áður segir rak Örfirisey sel á Lækjarbotnum til ársins 1799. Árið 1868 fékk Þorsteinn Þorsteinsson svo nýbýlaleyfi fyrir landinu og lét Hallberu Jónsdóttur, sem Hallberuhellir er kenndur við, helming jarðarinnar. Á fyrri hluta 20. aldar gaf Guðmundur H. Sigurðsson, sem þá var bóndi að Lækjarbotnum, Skátasambandi Reykjavíkur land á jörðinni. Síðan þá hefur verið starfræktur skátaskáli á Lækjarbotnum (ferlir.is; gardbuar.com).
Fornleifarannsókn hefur ekki áður farið fram í Hallberuhelli en í rannsókn á seljum í Reykjavík, þar sem fjallað er um Örfiriseyjarsel, er hellirinn merktur á kort og hann er því ekki óþekktur. Hellirinn hefur auk þess verið nefndur í ferðahandbókum, t.a.m. í Árbók Ferðafélag Íslands (Egill J. Stardal 1985).“

Niðurstöður

Lækjarbotnar

Hellisopið.

„Sagnir af útilegumönnum eru gjarnar sveipaðar dulúðlegum og þjóðsagnakenndum blæ. Mál Fjalla-Eyvindar og Höllu er sennilega eitt besta dæmi þess. Sem áður segir var útilega og flakk þó raunveruleiki fjölda einstaklinga á íslenskri árnýöld og Eyvindarmálin tvö eru engan veginn einstök. Því er ekki ólíklegt að mannvistarleifar eftir útileguþjófa finnist í hellum þótt sjaldan sé minnst á það í hellarannsóknum.

Lækarbotnar

Lækjarbotnar – Hallberuhellir.

Hallberuhellir er hraunhellir og er hvelfing hans því náttúrusmíð. Þó eru hlutar hellisins greinilega manngerðir; við hellismunnann hefur grjóti verið hlaðið og set hafa verið útbúin upp við norðurvegginn þar sem hægt er að tylla sér og horfa út um hellismunnann. Þó er eftitt að ákvarða hvenær innréttingarnar voru gerðar í hellinum og ekki hægt að fullyrða að þær séu frá tíma Margrétar og Eyvindar. Raunar fannst ekkert í hellinum sem beint var hægt að rekja til dvalar Margrétar og Eyvindar enda voru þar hvorki gripir né jarðlög sem unnt var að aldursgreina. Áhugavert væri þó að framkvæma skordýra- og/eða frjókornagreiningar á jarðvegssýnunum sem tekin voru og í framhaldinu og m.a. nýta þær til kolefnisaldursgreininga.“

Hallberuhellir

Hallberuhellir – teikning.

[FERLIRsfélögum er þrátt fyrir allt framangreint ómögulegt að skilja hvers vegna umræddur hellir hefur fengið nafngiftina „Hallberuhellir“ í  framangreindri rannsókn!?]. Með fullri virðinu fyrir nefndri Margréti, ætti skjólið það arna, fremur að draga nafn sitt af þeirri „mætri“ manneskju. Öll höfum við þurft að takast á við misjafnar aðstæður um lífsins skeið; stundum tekst vel til, stundum ekki. Ef ekki tekst vel til, er og hefur alltaf verið til fólk hér á landi, og jafnvel utan þess, sem er tilbúið að dæma, hvernig til tókst – að þess mati…

Heimild:
-Dysjar hinna dæmdu – Rannsókn á Hallberuhelli í Lækjarbotnum, Reykjavík 2019.

Lækjarbotnar

Hellirinn í Lækjarbotnum.