Uppvaxtarárin

Ómar Smári

Ómar Smári Ármannsson gaf fyrr á árinu (2024) út bókina „Uppvaxtarárin„.

Þórkötlustaðir

Þórkötlustaðabæirnir um 1960.

Áður hafði hann m.a. gefið út bókina „Glettur – lífsins saga„, sem er söguleg skáldsaga byggð að hluta á eigin upplifun í annars dæmigerðu  útvegsbyggðalagi við suðurströndina – sjá HÉR og HÉR.

Uppvaxtarárin eru hins vegar svolítið meira en söguleg skáldsaga drengs á aldrinum 6-16 ára í þéttbýlisbyggðarlagi á höfuðborgarsvæðinu. Hún er reynslusaga.

Uppvaxtarárin

Uppvaxtarárin – bókakápa.

Í sögunni er lögð áhersla á nokkra hversdagslega þætti æskunnar; uppvextin, umhverfið, stritið, frjálsræðið, umgengni um náttúruna, skólaárin í barnaskóla, gagnfræðiskóla og menntaskóla sem og samtíðarfólkið, en hinum fáu lesendum er að öðru leyti leyft frjálst að leggja út frá efninu við lesturinn. Gerð er þó krafa um að lesandinn reyni a.m.k. að setja sig í spor drengsins á þessum tíma, hugsi jafnvel út fyrir eigin skynjun og upplifun, enda ekki ólíklegt að hann hafi mögulega sjálfur upplifað sumt af því sem fram kemur í sögunni – ekki síst ef hann hefur alist upp við takmarkaða möguleika til lífsviðurværis.
Á uppvaxtarárunum var framtíðarsýnin önnur en hún er í dag. Framtíðin bíður þá oftar en ekki upp á annað en líðandi stundin gefur jafnan til kynna. Spurningin snýst þó yfirleitt um að kunna að nýta sér það sem reynslan hefur upp á að bjóða hverju sinni. Meginþættirnir eru þó ávallt hinir sömu í lífi hvers manns (og konu), hverjar svo sem aðstæðurnar á hverum tíma.

Fjóla Eiðsdóttir

Móðirin og börnin sex.

Miklar samfélagsbreytingar urðu á skömmum tíma á sjöunda áratug síðustu aldar. Hér hefur móðir sex ungra barna takið sig upp með litlar veraldlegar eigur og flutt með þau í annað byggðalag – að gefnu tilefni. Sú ákvörðun hafði ekki einungis áhrif á hennar líf til langrar framtíðar, heldur og barnanna hennar sex. Móðirin þurfti bæði að berjast fyrir eigin tilverurétti sem og þeirra. Þetta var barátta mæðra hér á landi á þeim tíma.

Bókin, enn sem komið er, eru 52 bls. og hefur verið gefin út í 5 árituðum eintökum. Sérhverju eintaki var sérstaklega vel varið með það því að markmiði að gefa hlutaðeigendum a.m.k. einhverja innsýn í líf nokkurrra ættingja þeirra er á undan komu í von um að fræin falli ekki algerlega í grýttan jarðveg…

Ómar Smári

Höfundur með bókina á gamals aldri.