Leiran

Í Lesbók Jólalesbókar Morgunblaðsins árið 1984 segir Guðmundur A. Finnbogason frá „Leirunni„:

Morgunblaðið

Jólalesbók Morgunblaðsins árið 1984.

„Sjávarpláss á Suðurnesjum, sem eitt sinn slagaði uppí Keflavík — þyrping fátæklegra býla með ofurlitlar grasnytjar, en lífsbjörgin kom umfram allt úr sjónum. Nú býr þar enginn, — bærinn á Stórhólmi stendur einn eftir, en þotur koma í lágflug inn yfir þessa grænu vin, þar sem Suðurnesjamenn koma nú saman í frístundum til að leika golf.
Þegar nútímafólk ekur veginn úr Keflavík og vestur í Garð eða útá Garðskaga blasir Leiran við á hægri hönd. Hér var áður fyrr sjávarpláss með útræði og mörgum smábýlum, sem stóðu á undirlendinu, sem verður þarna. Nú er fátt til minja um þá hörðu lífsbaráttu, sem þar var lifað. Engin kot standa þar lengur; ekki heldur bátar í vörum, en þess í stað má sjá vel búna kylfinga leika kúlum sínum fram og aftur um golfvöllinn, sem Keflvíkingar hafa lagt og ræktað með miklum glæsibrag í Leirunni. Þetta er tímanna tákn. Þar fyrir er óþarft að gleymist, að í sumum af þessum lágu kotum, sem nú sést ekkert eftir af, uxu dugandi menn úr grasi.

Tryggvi Ófeigsson

Tryggvi Ófeigsson (1896 – 1987).

Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður til dæmis og bræður hans. Menn komu þangað langt að fótgangandi til sjóróðra og fátæktin var fylginautur þeirra sem kusu sér búsetu þar.
Sjaldan er logn í Leiru — og þegar hann blæs að norðan, hellast brimskaflarnir uppá klappirnar og inní vörina og sýna hvað lendingin gat verið varasöm. Um miðja síðustu öld voru meira en 100 manns, sem töldust eiga heimili í Leiru og kotin stóðu engan veginn öll á graslendinu hjá Stóra-Hólmi, heldur á víð og dreif um grýtta fláka, sem verða vestur af Leirunni og standa tóftirnar eftir. Af lífsbaráttunni þar fara litlar sögur.

Landnám Steinunnar gömlu
Leiran
Leiran var á landnámsöld einn þeirra staða við sunnanverðan Faxaflóa, sem Ingólfur landnámsmaður Arnarson skenkti Steinunni gömlu frænku sinni. Hún hafði átt Herlaug bróður Skalla-Gríms, sem land nam á Mýrum og hún bjó í Leiru, þar sem hét Hólmur og síðar Stóri-Hólmur eða Stokkhólmur.

Stóri-Hólmur

Stóri-Hólmur 2024.

Síðan fer engum sógum af búskap í Leiru þar til 1703, að manntalið fór fram, en þá voru 4 býli í Leiru og íbúar samtals 51. Á Stóra-Hólmi tóldust 23 til heimilis; þar af fern hjón í húsmennsku. Á Litla-Hólmi voru 6 manns í heimili, sjö í Hrúðunesi og 15 á Gufuskálum. Í bændatali á Suðurnesjum 1735 eru skráðir 6 bændur í Leiru, en 13 býli voru þar árið 1801 og íbúarnir 74. Eitthvað hefur árferðið í Leiru ekki verið sem best á fyrriparti síðustu aldar, því býlum fór fækkandi og voru aðeins 6 eftir í byggð árið 1836. Þá brá svo við, að nýtt líf færðist í plássið; býlin urðu 12 og íbúarnir 82. Þessi býli voru í byggð: Hrúðunes (heimajörð), Melbær (tómthús), Stóri-Hólmur (heimajörð), Ráðagerði, Garðhús, Kötluhóll, Nýlenda, Bakkakot og Litli-Hólmur, er öll voru hjáleigur frá Stóra-Hólmi, Gufuskálar (heimajörð) og Vestur-kot, hjáleiga frá Gufuskálum.
Stóri-Hómlur
Fjölmennasta heimilið var sem áður Stóri-Hólmur. Tíu árum síðar hafði íbúum í Leirunni fjölgað og voru þeir nú orðnir 103 og nú voru bæjarnöfnin orðin 13 og tvö þeirra ný, Krossabrekka skammt frá Nýlendu og Kóngsgerði skammt frá Gufuskálum.

Leiran

Hrúðurnesbrunnur.

Næstu árin stendur íbúatalan í Leirunni næstum í stað frá því sem hún var 1845. Voru tveir búendur á sumum býlunum og enn var mannflest á Stóra-Hólmi.
Árið 1855 voru Keflavíkurbúar 153 að tölu og höfðu þá 47 manns yfir Leirubúa. Upp frá því fer Keflvíkingum fækkandi en Leirubúum fjölgandi. Árið 1870 eru Keflvíkingar 130 en Leirumenn 138 og þá voru bændabýlin í Leirunni 16 að tölu frá Hólmsbergi talið út Leiruna.
Á Hólmsbergi (Leirubergi) hafa með vissu 15 manns orðið úti á tímabilinu 1785 til 1894, í allflestum tilfellum karlmenn, sem voru á ferð frá Keflavík út í Leiru eða Garð að kvöld- eða næturlagi, oft í vondum veðrum og margir undir áhrifum áfengis.
Þegar ég var unglingur heyrði ég um það talað að reimt væri í Berginu og eitthvað hefur hinn landsþekkti Símon Dalaskáld vitað um draugana á Hólmsbergi, eða Leirubergi er hann nefnir svo. Bendir eftirfarandi vísa hans til þess.
Þó að æði eldingar
og ramskæðir smádjöflar
ég mun hræðast ekki þar
úti á svæði Leirunnar.

Nær allir áttu fleytur
Leiran
Leiran var á sínu blómaskeiði eitt af allra bestu fiskiþorpum við sunnanverðan Faxaflóa. Þaðan var róið sem víða annars staðar svo til árið um kring. Vetrarvertiðirnar voru þó almesti sjósóknartíminn og oftast allra besti fiskitíminn.

Leiran

Leiran – Gamli barnaskólinn.

Úr Leirunni var oft á tíðum hægt að sækja til fiskjar á bæði borð, þegar frá landi var á flot komið og þá ekki síður mátti sækja fram af landsteinunum út í Leirusjóinn, sem einatt var gjöfull þegar netafiskur gekk inn á grunnmiðin á vetrarvertíðum frá mars til maí. Eins gátu Leirumenn sótt innar í Flóann, inn á Njarðvíkurleir og Njarðvíkurbrúnir, inn undir Stapa, Voga og Strandarbrúnir. Var það helst þegar fiskur var genginn hjá í Leirusjó og lagstur þar inn á leir og brúnum. Svo var það Garðsjórinn, hinn næstum því ótæmandi aflasjóður (áður en erlendu togararnir komu), er einatt mátti leita til jafnt vetur, sumar, vor og haust.

Leiran
Hann hafði oftast eitthvað gott að gefa þótt misjafnt væri að magni. Voru gæðin einatt þau sömu, glæný ýsa, koli, lúða, steinbítur og svo framvegis.
Á árabilinu 1631 til 1910 hafa svo vitað sé 14 skip og bátar farist er gengu úr Leirunni.

Leiran

Litla-Hólmsvör.

Á þessum fleytum fórust 68 menn, þar af tvær konur. 23 menn fórust á þessu tímabili af Gufuskálaskipunum, 15 af Litla-Hólmsskipunum og 8 af Stóra-Hólmsskipunum en færri af öðrum. Leirubændur og hjáleigumenn áttu nær allir árafleytur til sjósóknar — þó ekki allir vertíðarskip. Voru þeir er smærri fleyturnar áttu þá vetrarvertíðarsjómenn á stærri skipunum. Einstöku réru þó árið um kring á sínum bátum, 2—4 manna förum.
Innnesingar voru þeir nefndir er komu suður í Leiru í byrjun vetrarvertíðar með skipshafnir sínar til að róa þaðan. Það mun hafa verið á síðustu tugum sl. aldar, að stærri útvegsskip af Álftanesi og Seltjarnarnesi fóru að heiman suður í Leiru. Þar var oft á tíðum meiri aflavon og styttra að sækja á fiskimiðin. Þessir bændur áttu sín fiskibyrgi og sumir verbúðir í Leirunni (ef verbúðir skyldi kalla). Sumir hverjir fengu inni með sig og sína skipshöfn á bæjunum þar í Leirunni. Meðal þeirra er hýstu Innnesinga á vetrarvertíð voru hjónin í Ráðagerði, þau Gísli Halldórsson og Elsa Dórothea Jónsdóttir, foreldrar hins landsþekkta hagyrðings Ísleifs Gíslasonar, kaupmanns á Sauðárkróki.

Sofið á þangi milli rúmanna
Leiran
Dóróthea Gísladóttir, dóttir þeirra hjóna, sem fæddist í Ráðagerði 1886 og ólst þar upp, varð háöldruð kona, dó á miðjum tíræðisaldri, gáfuð og minnug. Hún sagði mér að þegar hún var telpa í foreldrahúsum hefði skipshöfn af Innnesjum haft viðlegu á heimili foreldra hennar í Ráðagerði. Þar svaf heimilisfólkið í baðstofu í rúmum sitt til hvorrar handar en dálítið gangpláss á milli rúmanna. Á því gangplássi- fékk aðkomuskipshöfnin svefnpláss. Ekki var um annað pláss að ræða á þeim bæ. Þang var látið á gólfið á milli rúmanna. Sváfu sjómennirnir á þanginu en höfðu teppi eða brekán ofan á sér. Á daginn var svo þanginu ýtt með fótunum undir rúmin — tekið svo fram að nýju á kvöldin.

Leiran

Leiran – uppdráttur ÓSÁ.

Stóra-Hólmsbændur fengu oft góða hrognkelsaveiði í Hólmósnum. Þar fékkst og síld í lagnet. Allur reki undir Hólmsberginu tilheyrði Stóra-Hólmi. Var Helguvík besti rekastaðurinn. Rak þar oft mikið á stríðsárunum og lengur. Fuglatekja var og nokkur í berginu — mest svartfugl.

Leiran

Leiran – örnefni; ÓSÁ.

Árið 1930 voru aðeins 5 bændabýli eftir í Leirunni í byggð, en það voru: Bakkakot, Litli-Hólmur, Stóri-Hólmur, Lindarbær og Vesturkot og íbúarnir alls ekki nema 33. Síðan fór býlunum enn fækkandi þar til eftir var orðið aðeins eitt. Var það hið forna býli Stóri-Hólmur er þar stóð enn í byggð 1960.
Síðasti bóndinn í Leirunni bjó á Stóra-Hólmi sem og hinn fyrsti. Aldir, ár og dagar voru á milli Steinunnar gömlu sem fyrst var ábúandi og Kjartans Bjarnasonar sem var þeirra síðastur og margt hafði gerst í Leirunni á því tímabili, bæði til sjós og lands og aldrei fékk hún Steinunn að fylgjast með golfmóti á heimatúninu sínu.
Kjartan Bjarnason síðasti bóndinn á Stóra-Hólmi er Dýrfirðingur að ætt og er nú 86 ára að aldri. Hann og kona hans tóku við búskap á jörðinni 1936 og bjuggu góðu búi í röska tvo áratugi.
Í dag eiga tveir synir Kjartans heima á Stóra-Hólmi en hafa engan búskap þar.“

Heimild:
-Lesbók Morgunblaðsins, 34. tbl. Jólalesbók 22.12.1984, Leiran, Guðmundur A. Finnbogason, bls. 33-34.
Leiran

Herdísarvík

Þorvaldur Thoroddsen fjallar um „Ferðir sínar á Suðurlandi sumarið 1883“ í Andvara árið 1884. Hér segir af aðbúnaði vermanna í sjóbúðum í Selvogi og víðar á sunnanverðurm Reykjanesskaganum, sem og ágangi tófunnar, sem fæstir virtust sýna athygli þrátt fyrir ærið tilefni:

Sjóbúð

Sjóbúð á sunnanverðurm Reykjanesskaganum.

„Selvogur er allmikið fiskipláss, þó æði sje þar brimasamt og skerjótt fyrir landi; graslendi er sáralítið, en beit allgóð í heiðunum; sandfok gjörir mikinn skaða, enda er lítið gjört til að hepta það.

Fornigarður

Fornigarður í Selvogi.

Nei, þvert á móti, melgrasið er rifið upp og notað í meljur, og lyngið og víðirinn í heiðunum er rifinn í eldinn, og svo blæs náttúrlega hinn sendni jarðvegur allur í sundur, og þaðan fýkur svo yfir betri blettina. Það er hjer sem víða annarstaðar á Íslandi, þar sem land gengur úr sjér, að það er mest mönnunum að kenna; hugsunarleysi og stundarhagnaður hafa gjört landinu mikinn skaða. Víða má sjá, að miklu meiri byggð hefir verið í Selvogi fyrrum; stórkostlegar garðhleðslur sjást því nærri alstaðar í sandinum, en nú er þar allt blásið upp, og ekkert stingandi strá; mest kveður að þessum garðhleðslum fram með ströndinni milli Strandakirkju og Vogsósa, og nálægt kirkjunni eru rústir og garðar af bænum Strönd, sem fyrir löngu er kominn í eyði.

Strandarkirkja

Strandarkirkja 1884.

Strandakirkja, sem svo margir heita á, stendur nú ein fjarri byggð á kringlóttum grasfleti (kirkjugarði), sem vindurinn hefir rifið sandinn frá, svo hátt er niður af honum til allra hliða, en enginn garður í kring.

Hlíðarvatn

Horft á Hlíðarvatn úr Hlíðarskarði.

Fyrir framan Hlíðarvatn er sandrif og fellur sjór inn í vatnið um ósa hjá Vogsósum, en í útsynningi skefur sandinn svo upp af grandanum, að ósinn fyllir, svo þar verður þurrt; vatnið er því alltaf að grynnka að framanverðu og að austanverðu, en vestanmegin jetur það sig alltaf meir og meir inn í hraunið; tveir hólmar kváðu hafa verið í því, Hlíðarhólmi og Strandarhólmi, sem eru nú horfnir.

Á Vogsósum er töluverð selveiði. Bygging er mjög ljeleg í Selvogi, eins og í Grindavík, og allt öðruvísi en í verstöðunum norðan á nesinu. Í sjóplássum þessum sunnanfjalls liggja vermenn í sjóbúðum, og eru flestar þeirra miklu líkari peningshúsum en mannahíhýlum.

Herdísarvík

Herdísarvík – sjóbúðir.

Vanalega eru stein- og torfbálkar beggja megin, og á þeim reistar stoðir upp í ræfrið; milli stoðanna hafa sjómenn flet sín, en á stoðirnar hengja þeir skinnklæðin. Sumstaðar er lítil skvompa fyrir endanum, og er hún kölluð »kór«. Þar hvílir vanalega einhver hálfdrættingurinn. Mismunur er náttúrlega á því, hve hreinlega er um gengið í búðum þessum, en sumstaðar er það fremur sóðalegt, eins og við er að búast, þar sem svo mörgum mönnum er kasað saman; gluggar eru vanalega engir, nema lítil vindaugu með rúðubroti í; verður loptið því eigi gott. ef ekki er haft því meira hreinlæti, þar sem allt hlandast saman: svitalyktin af fólkinu og lyktin af grútmökuðum skinnklæðum. Betur færi, að menn færi að leggja þessar sjóbúðir niður, en höguðu heldur til eins og í sjóplássunum norðan á nesinu.

Tófa

Tófa.

Það stendur sauðfjárrækt mjög fyrir þrifum í þessum byggðarlögum, hve tóur eru fjarska algengar; í hraununum eru svo óteljandi holur, að mjög illt er að vinna grenin, enda er víðast lítið gjört að því.

Þrætugreni

Hleðslur við Þrætugrenin millum Grindavíkur og Ölfuss.

Frá Vogsósum hefir nú á seinni árum verið töluvert unnið af grenjum, on það er til lítils gagns, úr því nábúarnir ekkert gjöra. Í sumum sveitum á Reykjanesi drepur tóan nærri hvert lamb, þannig t. d. í Höfnum, og þó eru menn svo rænulausir, að engin samtök oru gjörð til að eyða þessum ófögnuði.
Tvisvar í sumar reið jeg á förnum vegi fram á tóur, sera voru að drepa kind. Tóurnar eru líka víða svo spakar, að þær hlaupa um eins og hundar, og horfa grafkyrrar á ferðamenn, sem um voginn fara.“

Heimild:
-Andvari, 1. tbl. 01.04.1884, Ferðir á Suðurlandi sumarið 1883, Þorvaldur Thoroddsen, bls 21-24.

Selvogur - örnefna- og minjakort

Selvogur – örnefna- og minjakort – ÓSÁ.

Vífilsfell

Þeir Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson fjölluðu um Vífilsfell í Fréttablaðinu árið 2020 undir fyrirsögninni „Gáð til veðurs á Vífilsfelli„:

Vífilsfell

Vífilsfell.

„Eitt tignarlegasta fjall í nágrenni Reykjavíkur er Vífilsfell (655 m) en margir líta á það sem nyrsta hnjúk Bláfjalla. Fjallsins er getið í Landnámu þar sem sagt er frá Vífli, sem ásamt Karla var þræll Ingólfs Arnarsonar, fyrsta landnámsmannsins.

Vífilsfell

Vífilsfell.

Þeir voru sendir frá Ingólfshöfða vestur með sjó að leita öndvegissúlna Ingólfs og fundu þær loks reknar í Reykjavík. Ingólfur kættist við fundinn og segir svo í Landnámu: „Vífli gaf Ingólfur frelsi, og byggði hann að Vífilstóftum [Vífilsstöðum]; við hann er kennt Vífilsfell; þar bjó [hann] lengi, varð skilríkur [áreiðanlegur] maður.“ Vífill virðist hafa verið í fantaformi því sagt er að hann hafi skotist frá Vífilsstöðum upp á Vífilsfell til að gá til veðurs og ef veðurútlit var gott hélt hann út á Gróttu og reri til fiskjar. Vífilsfell er talið hafa myndast í að minnsta kosti tveimur gosum á mismunandi jökulskeiðum ísaldar. [Þá hvíldi um 700 m þykk íshellan yfir svæðinu.] Langmest ber á móbergi en um mitt fjallið er stallur sem skartar blágrýti og er því talinn stapi eins og Herðubreið og Hlöðufell. Efst á Vífilsfelli er sérlega fallegt móberg úr síðara gosinu og minnir veðrað bergið á abstrakt listaverk.

Vífilsfell

Á Vífilsfelli.

Ganga á Vífilsfell er frábær skemmtun og flestum fær. Hefðbundin gönguleið liggur að norðanverðu, upp á öxl sem gengur út úr fjallinu. Þarna eru malarnámur og má leggja bílum fyrir framan þær, en stikuð leið liggur alla leið upp á hátindinn.

Vífilsfell

Vífilsfell.

Þetta eru 6 km báðar leiðir og má reikna með að gangan taki 3-4 tíma. Meira krefjandi gönguleiðir liggja að vestanverðu upp gil sunnan tindsins eða úr Jósepsdal að austanverðu. Á hefðbundnu gönguleiðinni er stíg fylgt upp á áðurnefndan stall, en síðan taka við móbergsklettar sem yfirleitt eru auðveldir uppgöngu nema á veturna. Því er skynsamlegt að hafa með mannbrodda og ísöxi í vetrarferðum á Vífilsfell. Í efstu klettabeltunum eru kaðlar á tveimur stöðum sem auðvelda uppgönguna og á tindinum er útsýnisskífa sem Ferðafélag Íslands setti upp. Útsýnið yfir höfuðborgina er frábært og sést til Gróttu í 25 km fjarlægð, þar sem Vífill stundaði útræði. Einnig blasa við Esja, Móskarðshnjúkar, Skjaldbreiður og Hengill. Flestir ganga sömu leið niður, en sprækt göngufólk getur þrætt endilöng Bláfjöllin í suður að lyftusvæðinu, 15 km leið, sem Vífli hefði þótt þrælléttur göngutúr.“

VífilsfellFjallað er um ferð á Vífilsfell í Morgunblaðinu 1979 í dálkinum „Spölkorn út í buskann„:
„Eitt þeirra fjalla, sem blasa við augum manna héðan frá höfuðborginni, er Vífilsfellið. Það er ekki stórfenglegt að sjá úr fjarskanum, en þegar nær er komið, breytir það um svip og ýtir undir þá löngun, að ganga þangað upp. Og í dag skulum við framkvæma það verk.
Hægt er að ganga á fjallið frá öllum áttum, en stysta leiðin er úr skarðinu í mynni Jósefsdals og þar skulum við hefja gönguna. Frá kaffistofunni, sem er á mótum hins nýja og gamla vegar um Svínahraunið, ökum við afleggjarann sem liggur inn í Jósefsdal. Við ökum um Sauðadali, meðfram Draugahlíðum og Þórishamri og brátt erum við komin í skarðið, en það er suð-austan undir Vífilsfelli. Hér skulum við skilja bílinn eftir, og hefja gönguna.

Framundan er brött skriða þakin lausum jarðvegi. Best er að velja leiðina milli tveggja grunnra vatnsrása, sem liggja þar niður, ofan frá brún, eða ganga eftir annarri hvorri rásinni, því þar er fastara undir fæti.

Vífilsfell

Vífilsfell.

Þegar komið er upp á brúnina fyrir ofan, tekur við sléttur melur. Hann er kærkominn, því brekkan er erfið og hefur komið mörgum hraustum kappanum til að blása og svitna örlítið. Við hvílum okkur nokkra stund á brúninni og litumst um, því landslagið hefur breytt um svip og útsýnið aukist að miklum mun. Síðan tekur við annar áfangi. Handan melsins rís móbergsklettur allbrattur, sem fer lækkandi til austurs. Okkur finnst hann óárennilegur í fyrstu, en tökum samt stefnuna á hann og fikrum okkur upp eftir honum. Er á reynir, er hann auðveldari viðfangs en okkur sýndist. Þegar efstu brún klettsins er náð, blasir við útsýnið til vesturs yfir Bláfjöllin og út á Flóann. En ekki höfum við enn náð efsta tindi. Einn stallur er eftir og sá brattasti. Hér hefur Ferðafélagið komið fyrir kaðalspotta, þeim til styrktar, sem smá aðstoð þurfa, en flestir hlaupa upp án nokkurrar aðstoðar. Þegar við höfum klifið stallinn, er „hæsta tindi náð“ og ekki annað eftir en „rifja upp og reyna að muna, fjallanöfnin, náttúruna“ með aðstoð útsýnisskífunnar, sem Ferðafélagið lét setja hér upp árið 1940. (Tilvitnanir eru úr Fjallgöngunni, kvæði eftir Tómas Guðmundsson.)

Vífilsfell

Vífilsfell.

Meðan við dveljum hér við útsýnisskoðun og fleira, rifjast upp sagan un nafn fjallsins. Í þjóðsögu segir, að Ingólfur Arnarson hafi gefið Vífli þræli sínum bústað, sem síðan var nefndur Vífilsstaðir. Á miðju Álftanesi er Sviðsholt. Þar bjó Sviði. Vífill og Sviði stunduðu mjög sjó, og segir sagan, að þeir hafi tveir einir róið til fiskjar á áttæringi.

Vífilsfell

Vífilsfell – ofan byggðar.

Í þjóðsögunni segir síðan: „Langt fyrir ofan Vífilsstaði er fell eitt, sem Vífilsfell heitir. Þó það sé snöggt um lengri vegur upp að felli þessu frá Vífilsstöðum, en til sjávar, gekk Vífill allt um það á hverjum morgni upp á fellið, til að gá til veðurs, áður en hann fór að róa, og reri ekki, ef hann sá nokkra skýskán á lofti af fellinu, og tók því fellið nafn af honum. En ef honum leist róðrarlega á loftslag gekk hann til skips og reri með Sviða.“ Og nú stöndum við á sömu steinunum og Vífill forðum, hér uppi á fellinu, ef marka skal sannleiksgildi sögunnar. En tæplega myndu margir á okkar öld geta leikið það eftir honum, að skjótast þessa leið frá Vífilsstöðum fram og aftur, áður en hann ýtti frá landi. En nú skulum við huga að heimferð. Sjálfsagt er að leggja smá lykkju á leiðina og skjótast niður í Jósefsdalinn. Þá förum við til hægri þegar við erum komin ofan fyrir efstu klettana, og göngum vestur brúnirnar.

Vífilsfell

Vífilsfell.

Gott er að komast niður gilið, sem merkt er leið A á kortinu, eða ganga alla leið vestur fyrir dalbotninn og þar niður í dalinn (leið B). Jósefsdalur er mjög sumarfagur, fjöllum luktur, en rennisléttur í botninn. Suður úr honum er Ólafsskarð, kennt við Ólaf bryta í Skálholti, sem ég sagði frá, þegar við gengum á Lyklafellið.

Vífilsfell

Vífilsfell – móbergsmyndun.

Fyrrum var alfaraleið um Ólafsskarð og sjást götuslóðirnar enn. Dalurinn dregur nafn af Jósef bónda, sem þar bjó fyrrum. Hann var góður smiður, en forsmáði guð svo með blóti og formælingum, að bærinn sökk og Jósef með. En líklega hefur verið bætt fyrir brot Jósefs, því til skamms tíma voru hér aðalskíðalönd Ármenninga, skíðaskáli þeirra og fleiri byggingar og gekk vel.
Við göngum austur úr dalnum, fram hja Grettistaki, stórum stökum steini við veginn og upp í skarðið. Þar bíður bíllinn okkar.“

Ganga á Vífilsfell er krefjandi og um fleiri en eina leið að ræða. Mikilvægt er þó áður þekktum stígum, hvort sem gengið er upp eða niður.

Heimildir:
-Fréttablaðið, 231. tbl. 29.10.2020, Gáð til veðurs á Vífilsfelli, Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson, bls. 16.
-Morgunblaðið, 196. tbl. 30.08.1979, Spölkorn út í buskann – Vífilsfell, bls. 11.

Vífilsfell

Vífilsfell.

Ölfusá

Á skilti neðan við brúna yfir Ölfusá að sunnanverðu má lesa um „Sérstæða hraunbolla„:

Selfoss

Selfoss – hraunbollar.

„Á syðri bakka Ölfusár, nálægt stöplum brúarinnar, eru sérstæðar jarðmyndanir. Þetta eru hringlaga hraunbollar, um 1-2 metrar í þvermál og nálægt hálfum metra á dýpt. Hér er líklega um að ræða fara eftir stórar grasfylltar loftbólur sem stigu upp í bráðnu hrauninu og storknuðu veggir bollanna áður en bólurnar sprungu á yfirborðinu. Hér er hugsanlega á ferðinni forstig hraundrýlis eða gervigígs. Jarðmyndanir þessar eru á náttúruminjaskrá. Vesturbrún Þjórsárshrauns hin mikla myndar bakka Ölfusár á þessu svæði. Hraunið er hið stærsta sem runnið hefur á jörðinni frá lokum síðasta jökulskeiðs ísaldar. Hraunið er um 8.700 ára gamalt. Sjá einnig skilti um endimörk hraunsins skammt austan við byggðina á Stokkseyri.“

Selfoss

Selfoss-hraunbollar.

Jóra

Í „Íslenskum þjóðsögum og ævintýrum“ er safnað hefir Jón Árnason og gefin voru út í Leipzig 1862 segir af „Jóru í Jórukleyf„:

Jóra í Jórukleyf – (Eptir sögn manna í Árnessýslu og Gullbringusýslu)

Jóra

Jóra í Jórukleyf – Mynd; Ásgrímur Jónsson.

„Jórun hét stúlka ein; hún var bóndadóttir einhverstaðar úr Sandvíkurhrepp í Flóanum; úng var hún og efnileg, en heldur þókti hún skapstór.

Þingvellir

Hestaat var stundað til forna. t.d. við Þingvelli.

Hún var matselja hjá föður sínum. Einhvern dag bar svo við, að hestaat var haldið skamt frá bæ Jórunar; átti faðir hennar annan hestinn, er etja skyldi, og hafði Jórun miklar mætur á honum. Hún var viðstödd hestaatið og fleiri konur; en er atið byrjaði, sá hún, að hestur föður hennar fór heldur halloka fyrir. Varð Jórun svo æf við það og tryllt, að hún óð að hinum hestinum og reif undan honum lærið; hljóp hún þegar með það, svo ekki festi hönd á henni upp að Ölfusá hjá Laxfossi, þreif þar upp hjarg eitt mikið úr hömrunum við ána, og kastaði því nálega út á miðja á; síðan hljóp hún yfir á stillum þessum og mælti um leið:
Mátulegt er meyarstig
mál mun vera að gipta sig.

Ölfusá

Jórusteinn í Ölfusá (Jóruhlaup/Tröllkonuhlaup).

Heitir þar síðan Tröllkonuhlaup, aðrir segja Jóruhlaup. Þar hélt hún upp Ölfus, austan undir Ingólfsfjalli, og upp í Grafníng, uns hún kom að hamragili því, sem liggur vestur úr Grafníngi, skamt frá Nesjum; eptir því fór hún, og linti ekki á, fyrr en hún kom upp í Heingil.

Jóruhellir

Jóruhellir.

Þar tók hún sér bólfestu, og er þar síðan kallaður Jóruhellir, og varð hið versta tröll, og grandaði bæði mönnum og málleysingum. Þegar Jóra var sezt að í Heinglinum, var það siður hennar, að hún gekk upp á hnjúk einn í Heinglafjöllum, og sat laungum þar, sem síðan heitir Jórusöðull; er hann skamt frá sjónarhól hennar á háfjallinu. Af sjónarhól skygndist hún um eptir ferðamönnum, sem um veginn fóru, bæði um Grafning fyrir vestan Þingvallavatn, og um Dyraveg norðan undir Heinglinum, sem liggur skamt frá hamragili því, sem áður er nefnt og heitir enn í dag Jórukleyf, af því Jórun lá þar opt fyrir ferðamönnum til að ræna þá eða drepa, eptir það hún var búin með hestlærið. Þar með gjörðist hún svo ill og hamröm, að hún eyddi bygðina í nánd við sig, en vegirnir lögðust af. Þókti bygðamönnum svo mikið mein að þessari óvætt, að þeir gjörðu mannsöfnuð til að ráða hana af dögum; en eingu feingu þeir áorkað að heldur.

Jórutindur

Jórutindur (Jórusöðull).

Nú þegar í þessi vandræði var komið, og eingin ráð feingust til að vinna Jóru, því svo var hún kölluð eptir það hún trylltist, né heldur til að stökkva henni á burtu varð til úngur maður einn, sem var í förum landa á milli, og var um vetur í Noregi. Hann gekk fyrir konúng einn dag, og sagði honum frá meinvætti þessum, sem í Heinglinum byggi, og bað konúng kenna sér ráð, til að ráða tröllið af dögum.

Jórutindur

Jórutindur.

Konúngur segir, að hann skuli fara að Jóru um sólar uppkomu á hvítasunnumorgun; „því ekki er svo vond vættur, né svo hamramt tröll til, að ekki sofi það þá,“ segir konúngur. „Muntu þá koma að Jóru sofandi, og mun hún liggja á grúfu. Er hér öxi, er eg vil gefa þér,“ segir konúngur, og fékk bonum um leið öxi silfurrekna, ,,og skaltu höggva henni milli herða tröllsins. Mun þá Jóra vakna, er hún kennir sársaukans, snúa sér við og segja: „Hendurnar fastar við skaptið“. “Þá skaltu segja: „Fari þá öxin fram af. “Mun hvorttveggja verða að áhrínsorðum, og mun Jóra velta sér niður í vatn það, sem þar er ekki lángt frá, er hún liggur í Jórukleyf, með axarblaðið milli herðanna. Mun axarblaðið síðan reka upp í á þá, sem við hana mun kend verða, þar munu Íslendíngar síðan velja sér þíngstað.“ Svo mælti konúngur; en maðurinn þakkaöi honum ráðin og axargjöfina. Fór hann síðan út til Íslands, og fór að öllu, sem konúngur hafði fyrir hann lagt, og banaði Jóru. Rættist öll spá konúngs, og rak axarblaðið í á þá, sem síðan heitir Öxará, þar sem Íslendingar settu alþíng sitt.

Elliðakot

Elliðakot (Helliskot) – uppdráttur ÓSÁ.

Ath. Jóhannes Lund í Gullbringum hefir sagt svo frá, að Jórun hafi búið í Helliskoti í Mosfollssveit, og hafi hún átt hest bleikan að lit, og látið etja honum á hestaþíngi austur í Flóa. En sökum annríkis komst hún ekki til að fylgja hestinum sjálf, og lét því búskarl sinn, er Barði er nefndur, fara með hestinn austur. En er hann kom aptur, spurði hún Barða, hvernig Bleikur hefði bitizt. Hann sagði, að brúnn hestur úr Flóanum hefði bitizt betur. Þá átti Jórun að hafa orðið æf, þrifið Barða og kœft hann í skyrkeraldi sínu, er hún skamtaði úr veturinn eptir, en trylltist gjörsamlega, er hún sá bóla á honum á útmánuðum, og úr því er eptir frásögn Jóhannesar mjög blandað málum um Jóru og Kötlu í Kötlugjá.“

Heimild:
-Íslenskar þjóðsögur og ævintýri – safnað hefir Jón Árnason, Leipzig 1862, Jóra í Jórukleyf, bls. 182-184.

Jóra

Jóra – teikning Ásgríms Jónssonar.

Hengill

Í Vísi 1966 fjallar Þorsteinn Jósepsson um „Hengil – fjallbáknið við Hellisheiði„:

Hengill
„Um það bil 30 kílómetra í austur frá Reykjavík rís fjallsbákn mikið upp frá Hellisheiði og svæðunum þar í kring. Það heitir Hengill, en Henglafjöll er oft einu nafni nefndur fjallaklasinn sem umlykur það, að meira eða minna leyti á þrjá vegu.

Hengill

Hengill – Vörðu-Skeggi.

Hæsta gnípan á Hengli [Vörðu-Skeggi] er rösklega 800 metra há, og enda þótt þar sé ekki um ýkja mikla hæð að ræða, er útsýn það víð, og það sem meira er um vert, óvenjulega fögur.
Henglafjöllin eru sundurskorin af giljum og dalskorningum, þaðan koma lækir og ár, heitar uppsprettur, gufuhverir og ölkeldur. Við jarðborun sem gerð var á Hengilssvæðinu í sumar sem leið, mældist meiri jarðhiti en til þessa hefur fundizt hér á landi.
Hengill
Allt er landsvæði þetta fjölbreytilegra og forvitnilegra en önnur í jallasvæði í námunda við Reykjavík. Þar er tilvalinn vettvangur fyrir göngufólk og náttúruskoðendur, enda af miklu að taka því víðáttan er mikil, og hvarvetna eitthvað nýtt og nýstárlegt að sjá.

Hengill

Hengill.

Í allt aftan úr forneskju hefur varðveitzt þjóðsagan um kvenskassið Jóru sem lagðist út í Henglafjöll, lá fyrir ferðamönnum, rændi þá og drap og eyddi byggðina umhverfis sig. Þjóðsagan er á þessa leið:
Jórunn hét stúlka ein. Hún var bóndadóttir einhvers staðar úr Sandvíkurhrepp i Flóanum.
Ung var hún og efhileg, en heldur þótti hún skapstór. Hún var matselja hjá föður sínum. Einhvern dag bar svo við, að hestaat er haldið skammt frá bæ Jórunnar. Átti faðir hennar annan hestinn er etja skyldi og hafði Jórunn miklar mætur á honum. Hún var viðst. hestaatið og fleiri konur en er atið byrjaði sá hún að hestur föður hennar fór heldur halloka fyrir. Varð Jórunn svo æf við það og tryllt, að hún óð að hinum hestinum og reif undan honum lærið. Hljóp hún þegar með það, svo ekki festi hönd á henni upp Ölfusá hjá Laxfossi, þreif þar upp bjarg eitt mikið úr hömrunum við ána, og kastaði því nálega út í miðja á. Síðan hljóp hún yfir á stillum þessum og mælti um leið:
Mátulegt er meyjarstig
mál mun vera að gifta sig„.

Ölfusá

Jórusteinn í Ölfusá (Jóruhlaup/Tröllkonuhlaup).

Heitir þar síðan Tröllkonuhlaup, aðrir segja Jóruhlaup.

Jóra

Jóra – Ásgrímur Jónsson.

Þar hélt hún upp Ölfus, austan undir Ingólfsfjalli, og upp í Grafning, unz hún kom að hamragili því, sem liggur vestur úr Grafningi skammt frá Nesjum. Eftir því fór hún, og linnti ekki fyrr en hún kom upp í Hengil. Þar tók hún sér bólfestu, og er þar síðan kallaður Jóruhellir og varð hið versta tröll, og grandaði bæði mönnum og málleysingjum; Þegar Jóra var setzt að í Henglinum var það siður hennar, að hún gekk upp á hnjúk einn í Henglafjöllum, og sat löngum þar, sem síðan heitir Jórusöðull. Er hann skammt frá sjónarhól hennar á háfjallinu.

Jórutindur

Jórutindur (Jórusöðull).

Af sjónarhól skyggndist hún um eftir ferðamönnum, sem um veginn fóru, bæði um Grafning fyrir vestan Þingvallavatn, og um Dyraveg norðan undir Henglinum, sem liggur skammt frá hamragili því, sem áður er nefnt og heitir enn í dag Jórukleif, af því að órunn lá þar oft fyrir ferðamönnum til að ræna þá eða drepa eftir að hún var búin með hestlærið. Þar með gerðist hún svo ill og hamrömm að hún eyddi byggðina í nánd við sig, en vegir lögðust af. Þótti byggðamönnum svo mikið mein að þessari óvætt að þeir gerðu mannsöfnuð til að ráða hana af dögum, en engu fengu þeir áorkað að heldur.
Á þessa lund er þjóðsagan um kvenskassið mikla í Henglinum.

II.

Dyradalur

Dyradalur – dyrnar.

Vera má að framangreind þjóðsaga hafi fengið byr undir vængi er ferðamenn týndust eða urðu úti í vetrarveðrum bæði á Hellisheiðarleið og öðrum slóðum í námunda við Hengilinn. Þarna er villugjarnt, leiðirnar fjölfarnar, en menn oft af vanefnum útbúnir, bæði hvað fatnað og nesti snertir og urðu því hríðunum fyrr að bráð en ella.

Dyrafjöll

Dyrafjöll.

Á öndverðri 17. öld, eða nánar tiltekið 1621, var norðlenzkur prestur, Jón Gíslason að nafni, á leið suður til Bessastaða, en týndist á leiðinni. Jón þessi gekk ýmist undir nafninu Jón Maríulausi eða „gamli Adam“. Hann var lengi prestur á Melstað í Miðfirði og hafði Jón biskup Arason vígt hann sumarið 1550, enda þótt prestlingurinn hefði þá litla undirbúningsmenntun hlotið og var aðeins venjulegur „fatabúrspiltur“ á Hólum.

Sporhella

Sporhella ofan Dyradals.

En biskupi þótti þá í óefni komið með trúarbrögðin á Suðurlandi og vígði ýmsa til prests þótt ekki hefðu hlotið tilskilda menntun, og meðal þeirra var séra „gamli Adam“.

Þegar séra Jón týndist í Bessastaðaför sinni 1621 var hann orðinn farlama gamalmenni, 87 ára að aldri og í rauninni furðulegt að hann skyldi takast svo langa ferð á hendur án fylgdar. Séra Jón þurfti að reka einhver erindi á alþingi, en að því búnu hélt hann frá Þingvöllum suður til Bessastaða. Þangað komst hann þó aldrei, en nokkru síðar fannst reiðhestur hans mannlaus í Dyrfjöllum. Leit var gerð að presti, en gjörsamlega árangurslaust — hann hefur aldrei fundizt.
Þjóðtrúin var ekki í neinum vafa um hvað af presti hafði orðið, því enda þótt hann væri seigur undir tönn, sakir elli, hafði hann samt orðið kvenskassinu Jóru að bráð.

III.

Hengill

Hengill – útilegumannaskjól.

Þjóðsaga er til um það, enda þótt hún fái ekki við neitt að styðjast, að Halla fylgikona Fjalla-Eyvindar hafi borið bein sín í Henglafjöllum. Sú munnmælasögn hermir að þegar Halla náðist síðast og átti að setja hana með öðrum þjófum í Reykjavíkurtukthús, hafi hún verið svo illa á sig komin að ekki þótti fært að loka hana inni og hafi henni þess vegna verið gefið frelsi. Var hún sett niður á kot eitt í Mosfellssveit, en dag nokkurn er hausta tók og Höllu varð litið til Hengilsins, vaknaði hjá henni fjallaþráin að nýju og nóttina eftir hvarf hún.

Engidalur

Engidalur – bæli.

Nokkrum árum seinna fannst konulík uppi í Henglafjöllum og tveir sauðaræflar hjá, sem hún hafði krækt á hornunum undir styttuband sitt. Gizkuðu menn á að það væri lík Höllu, enda hafði veður spillzt skömmu eftir að hún hvarf úr byggð.

IV.
En hvað sem öllum þjóðsögum um útilegumannabyggð í Henglafjöllum líður, er það stað reynd að þar héldust útilegumenn við, meira að segja oftar en einu sinni.
Í Fitjaannál er getið um mann að nafni Eyvindur. Var hann kvæntur, en hefur sennilega ekki geðjazt að konu sinni, því austur í Ölfusi tældi hann stúlku til samlags við sig. Fluttu þau vestur á land og létust vera hjón. Þetta tiltæki þeirra þótti samt af einhverjum ástæðum ekki gott, voru skötuhjúin því leituð uppi, handtekin og flutt til sýslumanns. Þar voru þau bæði húðstrýkt og að því loknu stíað súndur og send sitt í hvora áttina.

Engidalur

Tóftir útilegumanna í Engidal.

Árangurinn varð þó ekki betri en það, að þau náðu saman aftur, og til þess að ekkert yfirvald stíaði þeim í sundur á nýjan leik, lögðust þau út í Hengli og lifðu um stund á hnupli. Hvort dvöl þeirra þar varð löng eða skömm er ekki vitað ,en 1678 náðust þau, og voru flutt til Alþingis og réttuð á þinginu. Þannig sameinuðust þau í dauðanum.
Annálar geta þess ennfremur að árið 1703 höföu 3 útileguþjófar verið gripnir í Henglinum. Voru 2 þeirra settir án frekari umsvifa í snöruna á Þingvöllum enda stutt að fara. Sá þriðji var kagstrýktur, en látið þar við sitja vegna þess hve ungur hann var.
Í Píslarsögu sinni kemst séra Jón þumlungur þannig að orði, að sá sem fóstrast í Henglafjöllum mun ekki haldinn vitnisbær, því þar er þjófabæli.
Þetta skrifar maður lengst norður á Vestfjörðum og bendir það því ótvírætt til að það orð hafi legið á Henglafjöllum að þar héldu sig þjófar og illþýði.

V.

Marardalur

Marardalur.

Á seinni hluta 18. aldar voru hreindýr flutt frá Finnmörk og sleppt á Reykjanesi. Þar tímguðust þau vel og rásuðu vítt og breitt um Reykjanesskagann, Hellisheiði og Mosfellsheiði og m.a. í Henglafjöll.

Marardalur

Marardalur.

Í 2. árgangi „Náttúrufræðingsins“ lýsir Guðmundur G. Bárðarson náttúrufræðingur hreindýraveiðum í Marardal nokkru fyrir miðja 19. öld. Marardalur liggur norðan Hengilsins, hann er klettum girtur á allar hliðar en graslendi í botninum og þar er oft hin ákjósanlegasta beit. Einstigi er inn í dalinn gegnum gildrag sem úr dalnum fellur.
Á árunuum 1830-40 bjó bóndi sá á Elliðavatni sem Guðmundur hét Jakobsson afkomandi Snorra prests Björnssonar á Húsafelli. Guðmundur var rammur að afli og skytta með ágætum. Lagði hann sig m.a. eftir hreindýraveiðum og var í frásögur fært að í einni slíkri veiðiferð hafi hann borið fullorðið hreindýr austan úr Bláfjöllum og heim til sín á Elliðavatni.
En frækilegasta veiðisagan af Guðmundi var þegar hann rakst á 11 hreindýr saman í Marardalnum. Það var í svartasta skammdeginu, rétt fyrir jól.

Marardalur

Marardalur – fyrirhleðslur.

Guðmundur varð á undan dýrunum að einstiginu og varði þeim undankomu úr dalnum. Féllu dýrin fyrir skothríð Guðmundar hvert af öðru, og í hvert skipti sem dýr féll fyrir skoti, hlupu hin dýrin hring í dalnum. Gafst Guðmundi á meðan gott tóm til að hlaða byssu sína og hafði hana jafnan hlaðna þegar dýrin bar að. Loks hafði hann skotið öll dýrin nema eitt, en það var mikill og stór tarfur með geysistór horn.

Bolasteinn

Bolasteinn.

Þegar tarfurinn sá sér ekki undankomu auðið réðist hann af heift á skyttuna, en hún kom byssunni ekki við og varð því að takast á við bola. Hvort sá bardagi verði lengur eða skemur lyktaði honum þó með sigri Guðmundar sem gekk af hreininum dauðum, enda var Guðmundur sagður hafa þriggja manna afl.
Fram til 1918-20 sáust hreindýr á ferð bæði í Henglafjöllum og víðar um Reykjanesskaga, en þá tekið að fækka til muna, enda sóttust skyttur mjög eftir þeim, ekki aðeins vegna kjötsins heldur og einnig vegna skinnanna og skrautlegra horna. En á þessum árum gerði mjög harða vetur og þá er sennilegt að flest dýranna, sem eftir lifðu, hafi fallið úr harðrétti og hor, a.m.k. sást lítið til þeirra eftir það. Þó er um það vitað, að síðasta hreindýrið sem sást á Suðvesturlandi, var unnið á svokölluðum Bolavöllum, skammt frá Hengli rétt fyrir 1930. Það var vesæl kýr, aflóga af elli, tannlaus og kollótt. Hafði einhver riðið hana uppi og handsamað. Þar fór síðasti útvörður þessara tígulegu og reisulegu dýra á Hengilssvæðinu og Reykjanesskaganum öllum.

VI.

Jórugil

Í Jórugili.

Á síðustu árum 18. aldar var maður sá ráðinn til póstferða milli Reykjavíkur og Árnessýslu sem Klemenz Þorsteinsson hét. Þann 29. desember 1791 lagði Klemenz upp í síðustu póstferð sína austur yfir fjall og hafði þá m.a. meðferðis 300 sendibréf, þar af var meira en helmingurinn konungleg afsalsbréf fyrir seldum Skálholtsjörðum. Þetta var í allra svartasta skammdeginu, þung færð af snjó og allra veðra von.

Jórugil

Jórugil – salur neðan Jóruhellis.

En samgöngur voru þá allar aðrar en nú og enda þótt ferðalangar kæmu ekki á tilteknum tíma á ákvörðunarstað, var sjaldnast undrazt um þá fyrr en á síðustu stundu.
Og þannig var það í þetta skipti. Enginn vissi í rauninni hvernig Klemenz póstur ætlaði að haga ferðum sfnum né hvar hann myndi fyrst bera niður austur í Árnessýslu. En þegar Klemenz var ekki kominn til sýslumanns Ámesinga, sem þá bjó í Oddgeirshólum um miðjan janúar, taldi sýslumaður að ekki gæti verið einlelkið um ferðir hans og hófst þá handa um eftirgrennslanir og síðan leit.

Jórutindur

Jórutindur.

Leitað var víðs vegar um allan Reykjanesskagann og tók fjöldi manns þátt í henni. En þegar hún hafði engan árangur borið var henni hætt, enda þýðingarlaus talin, þar sem snjóað hafði meira og minna frá því er pósturinn lagði upp.
Í maímánuði um vorið var leit hafin að nýju og fannst þá lík Klemenzar pósts í Jórugili við rætur Hengilsins. Fannst það í djúpri gjá fullri af vatni, en pósttaskan var horfin. Vakti þetta þegar grun um að dauðdaga Klemenzar hafi ekki borið að með felldu, heldur mundi hann hafa verið rændur og myrtur. Þetta þótti og þeim mun grunsamlegra, sem líkið var algerlega nakið þegar það fannst. En aldrei vitnaðist neitt frekar í því máli.

VII.

Henglafjöll

Henglafjöll.

Og að lokum er hér saga um Jón tófuspreng, sem var eins konar dæmigervi af Vellygna-Bjarna eða Munchausen barón hinum þýzka. Jón hafði róið suður í Garði og í einum róðrinum brast á snarvitlaust veður svo að bátnum hvolfdi í lendingunni og allir bátsverjar drukknuðu. Jón tófusprengur líka. Líkið af honum hafði rekið upp á malarrif, en litlu seinna skolaði sálinni úr Jóni þar framhjá svo að hann gat ekki á sér setið að gleypa hana og þar með lifnaði hann við á ný.

Henglafjöll

Henglafjöll.

Þegar Jón var lifnaður við, tók hann seil með 20-30 fiskum og lagði á bak sér, en ár notaði hann fyrir göngustaf, tók síðan stefnu á Henglafjöll og ætlaði heim til sín austur í Gnúpverjahrepp. Blindhríð var alla leiðina og botnlaus ófærð, sem sí og æ versnaði og þegar Jón var kominn norður í Henglafjöll var snjórinn svo djúpur að hann botnaði ekki með árinni. Samt hélt hann áfram og vissi varla hvað hann fór því ekki sá hann út úr augunum. Loks hrapaði hann og þegar hann raknaði við eftir fallið, sá hann að hann hafði dottið niður um eldhússtromp móður sinnar austur í Hreppum.

VIII.
Og loks, lesandi góður ef þér kæmi til hugar að skreppa úr Reykjavík austur yfir fjall skaltu staldra við uppi í Svínahrauni og mæna litla stund á þetta tígulega fjall, sem við þér blasir og Hengill heitir. Og láttu það engin áhrif hafa á þig þótt ferðafélagar þínir haldi þig hengil-mænu fyrir bragðið. Það borgar sig samt.“

Heimild:
-Vísir, 214. tbl. 20.09.1966, Hengill – fjallbáknið við Hellisheiði, Þorsteinn Jósepsson, bls. 8-9 og 6.
-https://timarit.is/page/2387230?iabr=on#page/n7/mode/2up/search/hengill

Hengill

Hengill – ölkelda.

Hengifoss

Vefsíða Náttúrufræðistofnunar Íslands reynir að lýsa jarðsögunni með eftirfarandi hætti:

Möttull

Jörðin – að innan.

„Jörðin myndaðist ásamt öðrum reikistjörnum sólkerfisins fyrir um 4,6 milljörðum ára. Ystu lög jarðar mynda fleka sem reka til og frá.

Esjan

Esjan.

Á úthafshryggjum þar sem flekar reka hver frá öðrum myndast ný úthafsskorpa og við eyjaboga eyðist hún.
Í fellingafjöllum krumpast skorpan saman og lyftist. Fjöllin rofna síðan og mulningurinn sest til á láglendi eða í sjó og myndar setlög sem verða að setbergi.

Hraun

Myndun hrauns.

Sögu jarðar má lesa úr jarðlögum sem finnast við yfirborð jarðar. Þannig má segja að jarðlögin séu eins konar handrit sem varðveitir sögu jarðarinnar. Með rannsóknum á fornum jarðlögum má fá upplýsingar um umhverfisaðstæður og lífríki á þeim tíma þegar þau mynduðust.

Tekist hefur að setja saman nokkuð heildstæða mynd af sögu jarðar, sérstaklega síðustu 600 milljón árin eða svo. Tímatal jarðsögunnar skiptist í aldir, tímabil, tíma og skeið“.

Taka þarf fram að framangreint er ein ódýrasta útskýringin á jarðsögunni, hingað til a.m.k. (meðfylgjandi myndir af Jörðinni fylgdu ekki umsögninni).

Heimild:
-Vefsíða Náttúrufræðistofnunar Íslands – https://www.ni.is/jord/jardsaga

Möttull

Jörðin – að innan.

Leiðarendi

Á bílastæðinu við hellirinn „Leiðarenda“ við Bláfjallaveg er skilti. Á því stendur:

Jarðfræði

Leiðarendi

Leiðarendi – op.

„Hraunhellirinn Leiðarendi er í þjóðlendu milli Hafnarfjarðar og Grindavíkur innan Reykjanesfólkvangs. Auk þess njóta hraunhellar sérstakrar verndar samkvæmt náttúrverndarlögum (61, gr. laga nr. 60/2013) og allir dropsteinar í hellum landsins eru friðlýstir.

Leiðaendi

Í Leiðarenda.

Hraunhellar myndast þegar kvika rennur í hraunrás undir yfirborði, sem síðan nær að tæmast áður en kvikan storknar. Leiðarendi myndaðist í hraungosi úr Stórabolla í Grindarskörðum fyrir um 2000 árum. Yfir það hraun rann svo yngra hraun fyrir rúmlega 1000 árum sem kennt er við gígin Tvíbolla. Það hraun hefur náð að brjóta sér leið inn í hellinn á nokkrum stöðum. Leiðarendi er um það bil 900 metra langur, með fjölda viðkvæmra hraunmyndana eins og dropsteina, hraunstráa og hraunsepa, ásamt litríkum útfellingum.

Leiðarendi

Leiðarendi – dropsteinn.

Dropsteinar, hraunstrá og hraunsepar í hellum myndast við kónun hraunsins og eru fullmótuð fljótlega eftir að hraunið myndast. Þau halda ekki áfram að vaxa og t.d. dropsteinar í kalkhellum erlendis. Því er allt rask á þeim varanlegt.

Hraunin tvö við Leiðarenda nefnast eldra og yngra Hellnahraun þegar nær dregur byggð. Þau mynduðu Hvaleyrarvatn og Ástjörn sem eru hraunstífluð vötn.

Umgengisreglur

Leiðarendi

Leiðarendi – uppdráttur ÓSÁ.

-Leiðsögumenn eða fararstjórar skulu útvega sér leiðbeiningar um umgengisreglur hjá Hafnarfjarðarbæ áður en farið ermeð hópa inní hellinn.

Leiðarendi

Í Leiðarenda 2008.

-Hámarksstærð hópa eru 8 manns á hvern leiðsögumann.
-Ekki má snerta hraunstrá, dropsteina eða viðkvæmt hellaslím á veggjum og í lofti.
-Fararstjórar bera ábyrgð á að útvega nauðsynlegan búnað eins og hjálma og ljós.
-Ekki má kveikja eld inni í hellinum.
-Öll neysla matar og/eða drykkja er bönnuð.
-Landvörður er starfandi í fólkvanginu og brot á þessum reglum verða kærð til lögreglu.“

Svo virðist sem Hafnarfjarðarbær hafi tekið hellinn yfir, en hann er einungis að hluta til í landi bæjarins. Hinn hlutinn, og sá hluti hans sem tengist inngönguopunum er í Grindavíkurlandi.

Leiðarendi

Leiðarendi – skilti.

Hlíð

Í Örnefnalýsingu fyrir Hlíð í Selvogi (höfundur ónafngreindur) segir m.a.: „Hlíð var fyrr góðbýli og landnámsjörð í Selvogi. Var hún um aldaraðir eign Strandarkirkju og er það enn. Jörðin hefur verið í eyði nú um 60 ára skeið. Þar eru nú rústir einar.

Hlíð

Hlíð – loftmynd.

Bærinn stóð á Bæjarhól eða lágum hrygg, er lá fram í Hlíðarvatn.
Hlíðartún er nú óræktarskiki, en hafði verið mun stærra í eina tíð. Auk Bæjarhólsins eru í túninu Kirkjuhóll eða Bænhúshóll, en þar á hafa staðið bænhús í katólskri tíð. Fornmannshóll er í túninu norðaustan og ofan bæjarins.
Hlíðarvatn liggur undan túnfætinum og voru mikil hlunnindi að, enda galt Hlíðarbóndinn þangskurð og reka með silungi til annarra jarða í Selvogi.“

Hlíð

Hlíð – uppdráttur.

Síðan er örnefnum við vatnið lýst, en auk þess segir: „Vestast voru mörkin milli Hlíðar og Stakkavíkur um vik niður undan Urðarskarði. Innar eða fyrir miðri Urðinni er Bleikjunef; þar var góður veiðistaður. Handan við Vondavik er Réttartangi, og eru þar Selvogsréttir, með safngirðingu, almenningi og dilkum. Í Réttartanga skerst vik, sem sumir kalla Selvik, en suður frá réttunum eru Selbrekkur.

Hlíðarsel

Hlíðarsel – uppdráttur ÓSÁ.

Þar á að hafa verið sel frá Hlíð eða Hlíðarsel; ber þó ekki öllum saman.“ Þórarinn Snorrason á Vogsósum upplýsti FERLIR um að ofan við Selbrekkur hafi fyrrum verið heimasel frá Vogsósum, enda í þeirra landi. Selið hafi jafnan verið nefnt Vogsósastekkur, enda voru yfirleitt ekki önnur mannvirki í heimaseljum.
„Skútar nokkrir, sem fé leitaði skjóls í, voru uppi undir Hömrunum. Helgutorfa var flöt austan við Hlíðarskarð. Borgaskörð voru skörð í Hlíðarfjall austarlega. Á einum stað milli þeirra var Háhamar. Stekkatúnsbrekkur voru brekkur í fjallinu vestan við Háhamar, og þar hafði verið Stekkur [Hlíðarsel] og Stekkatún.“ Í Hlíðarseli eru greinilegar selminjar, nokkur hús, hlaðið smalaskjól og stekkur, sem stundum hefur verið nefnd Valgarðsborg, en hún ber öll einkenni stekks, þ.e. tvískipt aðhald. Skammt norðar er Hlíðarborgin, stekkkur, sem væntanlega hefur tekið við af selinu eftir að það lagðist af. Hlíðarsel er í landi Hlíðar. Þórarinn ók FERLIRsfélögum upp að Híðarborginni fyrir allnokkrum árum og benti þeim þá m.a. á seltóftirnar sunnan heiðargirðingarinnar.
„Hlíðargata lá frá Hlíð austur og inn með fjallinu.“

Hlíð

Hlíð, bæjarminjar.

Gísli Sigurðsson skráði örnefnalýsingu í landi Hlíðar. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram:
„Hlíð var fyrr góðbýli og landnámsjörð í Selvogi. Var hún um aldaraðir eign Strandarkirkju og er það enn. Jörðin hefur verið í eyði nú um 60 ára skeið. Þar eru nú rústir einar.
Bærinn stóð á Bæjarhól eða lágum hrygg, er lá fram í Hlíðarvatn.
Hlíðartún er nú óræktarskiki, en hafði verið mun stærra í eina tíð. Auk Bæjarhólsins eru í túninu Kirkjuhóll eða Bænhúshóll, en þar á hafa staðið bænhús í katólskri tíð. Fornmannshóll er í túninu norðaustan og ofan bæjarins. Hlíðargata lá frá Hlíð austur og inn með fjallinu.“
Gísli Sigurðsson skráði einnig örnefni á Selvogsafrétti.

Aðalskráning fornleifa í Selvogi 2015.Í „Aðalskráningu fornleifa í sveitarfélaginu Ölfusi – Áfangaskýrsla I“, sem Fornleifastofnun Íslands gerði 2015, segir m.a: um einstakar minjar í landi Hlíðar:
[Hafa þarf í huga að talsvert virðist vanta í skráninguna og hún lítt gaumgæfð. Svo virðist sem ef örnefna eða minja sé ekki getið í örnefnalýsingum þá eru þær ekki til. Lítið sem ekkert virðist hafa verið gert til að rýna svæðið á vettvangi, t.d. út frá heilbrigðri skynsemi].

Hlíð

Hlíð

Hlíð – uppdráttur ÓSÁ.

Í Jarðabók Árna og Páls 1706 segir: „Jarðardýrleiki xx að sögn manna, en engin geldst hjer tíund af.“ JÁM II, 463 Ekki til túnakort. Í Jarðabók Árna og Páls 1706 segir: „Lyngrif til eldiviðar bjarglegt. Silúngsveiðivon er góð og hefur oft að merkilegu gagni verið. Eggver í vatnshólmum hefur að nokkru gagni verið, en fer mjög til þurðar. Sölvafjöru og grasafjöruítak á jörðin fyrir Vogshúsalandi sem áður segir, vide Vogshús. Túnunum grandar fjallsskriður og landbrot, sem Hlíðarvatn gjörir að neðan. Engjar, sem áður voru litlar með vatninu, hefur sama vatn eyðilagt.“ JÁM II, 464

Bæjarhóll – bústaður

Ölfus

Hlíð- minnismerkií bæjarhólnum.

„Hlíð var fyrr góðbýli og landnámsjörð í Selvogi. Var hún um aldaraðir eign Strandakirkju og er það enn. Jörðin hefur verið í eyði nú um 60 ára skeið. Þar eru nú rústir einar. Bærinn stóð á Bæjarhól eða lágum hrygg, er lá fram í Hlíðarvatn,“ segir í örnefnalýsingu. Bærinn fór í eyði árið 1906.
Slétt grund sem nær allt frá vatnsborðinu og upp að fjallsrótum. Þjóðvegurinn liggur um túnið um 70 m norðan við bæjarrústirnar. Enn er nokkur rækt í túninu. Það er ekki slegið, ógirt og sækja kindur í það. Veiðihús stendur á vesturenda bæjarrústanna og hefur sennilega raskað þeim að litlum hluta en miklar rústir eru á hólnum austan við húsið. Hefur bæjarröðin legið frá austri til vesturs og bærinn snúið með framhlið í suður.

Kirkjuhóll – bænhús

Kirkjuhóll

Kirkjuhóll (Bænhúsahóll).

„Auk Bæjarhóls eru í túninu Kirkjuhóll eða Bænhúshóll, en þar á hafa staðið bænhús í katólskri tíð,“ segir í örnefnalýsingu. Nú er ekki vitað hvar Bænhúshóll var. Yfirleitt voru kirkjur og bænhús í næsta nágrenni við bæjarhóla og með hliðsjón af því er helst að giska á ávalan hól í túni fast austan við bæjarhól. Óslegið tún. Hóllinn er sporöskjulaga og nokkuð ávalur en ekkert rústalag á honum, 15-20 m í þvermál. Enginn annar hóll virðist líklegri.

Hlíðarsel – sel [Vogsósasel]

Vogsósasel

Vogsósastekkur  ofan við Selbrekkur (heimasel).

„…suður frá [Selvogs]réttunum eru Selbrekkur. Þar á að hafa verið sel frá Hlíð eða Hlíðarsel; ber þó ekki öllum saman,“ segir í örnefnalýsingu. Í annarri lýsingu segir: „Selbrekkur. Á þeim stað könnuðust þeir [heimildamenn í Stakkavík] við Stekkjardældir.“

Hlíðarborg

Hlíðarborg – uppdráttur ÓSÁ.

Engar dældir eru suður frá Selvogsréttum en hins vegar eru grösugar brekkur og dældir um 300 m austur af þeim og hlýtur að vera átt við þann stað. Þetta er rétt tæpan 1 km SA af bæjarhól. Vel grónar og fallegar valllendisbrekkur og -dældir mót vestri og gróin grund þar niður af.
Eina tóftin sem þekkt er á þessum slóðum er sú sem Þórarinn Snorrason í Vogsósum nefnir Vogsósastekk. Þess má geta að Ómar Smári Ármannsson hefur kallað aðrar tóftir Hlíðarsel. Sú túlkun er ekki útilokuð þótt tóftirnar teljist of langt í burtu til að passa við lýsingu örnefnaskrár.
[Þeir, sem lesið og metið hafa örnefnalýsingar, vita að þær eru takmarkandi, misvísandi og jafnvel rangar. Þær ber ávallt að taka með fyrirvara, þ.e. ekki allt of bókstaflega. Í heimildum eru framangreindar Selbrekkur nefndar Vatnsdalur upp af Selvik, ofan Réttartanga. Gísli minnist ekki á Hlíðarborg, einungis Hlíðafjallsbrekkur og Hlíðargil, sem þar eru efra. „Sunnan undir þeim eru Selbrekkur. Skammt suðaustar er Hlíðarsel“. Þ.S.]

Borgaskörð – fjárskýli

Borgarskarðsborg

Borgarskarðaborg – neðri fjárborgin.

„Borgaskörð voru skörð í Hlíðarfjall austarlega. Á einum stað milli þeirra var Háhamar,“ segir í örnefnalýsingu. Undir skörðunum er tóft sem skörðin gætu hafa dregið nafn sitt af, um 130 m austur af stekk. Hlíðarborg og Valgarðsborg eru sunnar.
Lyngmói, sumsstaðar með hraunnibbum og -hólum. Hlíðargata liggur áfram til austurs fast sunnan við tóftina.
Tóftin er í háum og gróskumiklum valllendishól sem er nokkuð áberandi og sést vel að. Hún er lítið uppbyggð en að mestu leyti grafin niður í hólinn. Hann sjálfur er nokkuð hringmyndaður en hólfið er aftur næstum ferkantað. Mögulegt er að byggingin hafi upphaflega verið fjárborg en síðan verið endurbyggð sem fjárhús.

Hlíð

Borgarskarðaborgin efri.

[Önnur fjárborg, miklu mun eldri, er skammt ofar, enda jafnan talað um Borgarskarðaborgir. Hún er nánast jarðlæg, en þó má enn sjá móta fyrir hringlaga hleðslum í henni.]

Stekkatúnsbrekkur – stekkur

Stekkur

Stekkur í Sekkjatúnsbrekkum.

„Stekkatúnsbrekkur voru brekkur í fjallinu vestan við Háhamar, og þar hafði verið Stekkur og Stekkatún,“ segir í örnefnaská. Stekkjartóft er einmitt á þessum stað, undir Hlíðarfjalli um 600 m ANA af bæjarhól. Smákvos í lyngmóa sem víða er grasi gróinn. Hraunnibbur stingast upp úr hér og þar og talsvert er um stórgrýti. Hraunhólar eru suðaustan við stekkinn. Varla er hægt að segja að túnblettur sé kringum stekkinn. Ljómandi falleg tóft, byggð utan í jarðfasta kletta. Hún er tvískipt og L-laga, alls um 9×8 m stór.
Rekið hefur verið inn að sunnanverðu í dálitla rétt sem er um 7×5 m stór frá norðri til suðurs að utanmáli. Klettarnir mynda norðurgafl réttarinnar. Úr henni er svo op til vesturs, nyrst við klettana, í heldur þrengri kró sem er rúmlega 4×3 m stór frá austri til vesturs. Mikið grjót sést í innanverðum veggjum sem eru mest um 1 m háir.

[Sagan segir að þarna hafi hokrað maður stuttan tíma og að Borgarskarðaborgirnar hafi tengst búrekstrinum – ÞS.]

Hlíðargata – leið

Hlíðargata

Varða við Hlíðargötu.

„Hlíðargata lá frá Hlíð austur og inn með fjallinu,“ segir í örnefnaskrá. Gatan sést enn vel austan túns, t.d. um 390 m austur af bæ en einnig fast við stekkjartóftina. Grónar valllendiskvosir eru næst fjallinu en síðan tekur við lyngmói í gömlu hrauni. Greinilegur kindatroðningur liggur til austurs inn með fjallinu og sést vel víðast hvar. Sennilega eru það leifar af gömlu Hlíðargötunni. Að sögn Þórarins Snorrasonar var ekki fært með hesta upp Hlíðarskarðið og því oft farið inn með fjallinu og síðan til norðurs.

Dísurétt

Dísurétt.

[Ofan við Borgarskörðin er Dísurétt í hraunkvos, fallega hlaðin og hefur haldið sér nokkuð vel frá árinu 1938. Erfitt er þó að finna réttina vegna legu hennar í hrauninu. Frá henni er ágætt útsýni upp Strandardal og yfir víðan Hliðardalinn vestan Svörtubjarga. Dísurétt var nefnd eftir stúlkubarni er fæddist í Torfabæ 2. október 1937 og síðar var skírð Eydís Eyðþórsdóttir. Hún lést í Reykjavík 2. apríl 2010. Faðir hennar var Eyþór Þórðarson í Torfabæ.]

Hlíðarborg – fjárskýli

Hlíðarborg

Hlíðarborg.

Hlíðarborg er fjárborg úti í hrauninu 1,7 km austan bæjarhóls. Hún er um 150 m norðan við girðingu sem liggur frá skilaréttinni við Hlíðarvatn og austur fyrir Urðarfell. Borgin er byggð vestan í hraunhól, sem er klofinn eftir endilöngu, og þjónar hraunið sem austurveggur. Umhverfis er hálfgróið hraun og sumstaðar valllendisblettir. Borgin sjálf er nokkurn veginn hringlaga, alls um 13×14-15 m að stærð. Veggir eru allir hrundir og mikið grjót í þeim, einna minnst þó að norðanverðu og þar er hleðslan best gróin. Ekki sjást dyr á borginni. Mannvirkið er mjög óvenjulegt að því leyti að tóft, sennilega af fjárhúsi, er inni í borginni og fyllir út í hana að mestu, alls um 6×5 m stór frá NA-SV. Sennilega er hún yngri en borgin og heldur meiri gróska er í veggjum hennar en borgarinnar. Hleðsla er fyrir húsdyrum, um 3 umför af stórum og þykkum hellum og er það að heita má eina heillega hleðslan í tóftinni. Hlaðið hefur verið frá norðausturhluta hústóftarinnar að klettinum sem er austar og er hleðslan um 3-4 m löng. Hvorki sést garði né jötur í fjárhúsinu og ekki hlaða heldur.

Valgarðsborg – sel [Hlíðarsel]

Valgarðsborg

Valgarðsborg í Hlíðarseli.

Tóftir eru tæpa 300 m suður af Hlíðarborg, á allgrösugum bletti vestan í klettahól. Sennilega eru þær nálægt mörkum móti Vogsósum en þau liggja úr Nefjavörðu austur í Hellholt. [Línan í Hellholt er mun sunnar]. Umhverfis er hálfgróið hraun og sumstaðar valllendisblettir. Milli Hlíðarborgar og umræddra tófta liggur girðing allt frá skilarétt við Hlíðarvatn og austur fyrir Urðarfell. Tóftirnar eru a.m.k. þrjár [dæmigert fyrir sel á þessu landssvæði] og ná yfir svæði sem er rúmlega 30×30 m stórt. Nyrst er greinileg en vallgróin tóft, dálítið grafin inn í brekkuna. Hún er einföld, um 7×5 m stór frá norðri til suðurs og dyr heldur sunnar en fyrir miðjum vesturvegg. Dýpt nemur allt að rúmum 1 m. Nokkrar dældir eru norðan og norðvestan við tóftina og gætu þar leynst fleiri mannvirki eða útbyggingar. Um 8 m austar, uppi á hól, er hleðsla, sem gæti verið yngri, sennilega refagildra. [Hleðslan ber engin einkenni refagildru]. Þetta er grunnur að hlöðnu hólfi sem er um 1,5 x 0,8 m stórt NA-SV og snýr op í SV. Hleðslan er aðeins eitt umfar og um 0,2 m há.

Hellir – fjárskýli [Áni]

Áni

Áni – fjárskjól.

Fjárhellir er úti í hrauni undir Borgarskörðum og um 1 km austur af bæjarhól. Hann er um miðja vegu milli Hlíðarfjalls og girðingar sem liggur frá Hlíðarvatni og austur fyrir Urðarfell. Hálfbert hraun. Hellisopið snýr mót norðaustri. Það er einfaldlega skúti, fyrst nánast beint niður og svo innundir hraunhelluna til suðvesturs. Laglega hefur verið hlaðið um munnann á allar hliðar en þó er hægt að komast að honum úr austri. Hleðslan er úr hraungrýti og myndar hólf sem er hér um bil ferkantað og um 4,5×3 m að stærð SV-NA. Hleðslan er hæst að suðvestan, allt að tæpur 1 metri. Lítil varðaer á hleðslunni að suðvestan og að auki liggur einföld hleðsla um 3 m til suðvesturs frá hólfinu. Ekki var farið niður í hellinn en hann sýnist manngengur.

Hellir

Fjárskjól ofan Ána.

[Annar svipaður fjárhellir er skammt norðar. Hleðslur eru við opið.]

[Hlíðardalur – tóft

Hlíðardalur

Tóft í Hlíðardal. Sagnir herma að þarna hefði fólk frá Hlíð dvalið sumarlangt til grasnytja.

Í heimildum er getið um Sælubunu við Selvogsgötuna (Suðurferðaveginn). Þar segir m.a.: „Hlíðardalur stendur Strandardal ofar mót hækkandi heiðlendi. Hann er hvammslaga og vel grösugur upp á brún. Efst í dalnum stóð eitt sinn bær Indriða lögréttumanns, Jónssonar.“
Í Hlíðardal er greinileg tóft. Sjá má móta fyrir grunnsteinhleðslum í grónum aflíðandi hvammi.]

Heimildir:
-Aðalskráning fornleifa í sveitarfélaginu Ölfusi – Áfangaskýrsla I, Fornleifastofnun Íslands 2015, bls 240-250.
-Selvogsafréttur, Árnessýsla – Selvogshreppur, Örnefnalýsing
-Hlíð – Örnefnalýsing.
-Hlíð í Selvogi, Gísli Sigurðsson, Örnefnalýsing.

Hlíðarsel

Hlíðarsel.

Hafnarfjörður

Leynidalir voru á norðausturmörkum Þorbjarnarstaða í Hraunum, vestan Ásbrautar og norðvestan Ásvallabrautar.

Hafnarfjörður

Leynidalir – loftmynd.

Í „Örnefnalýsingu Ara Gíslasonar um Þorbjarnarstaðir“ segir: „Suður af Hrauntungum er svo Fornasel, suður af því eru slakkar sem heita Vatnsstæði. Niður af þeim koma Kolbeinshæðir. Milli Hrauntungu og Kolbeinshæða heitir Brenna, þetta er skógardalur. Þar skammt niður af er svo
Rauðimelurinn fyrrnefndi. Svo tekur við hraunsvæði það sem heitir Kapelluhraun og í því er Kapella (Sjá árb. Fornleifafél.). Þetta er rétt ofan við gamla veginn, svo eru smákrókar norðan Kapellu sem heita Leynidalir“. Ari minnist ekki á fjárskjól í nefndum Leynidölum.

Alfaraleiðin

Í fornleifaskráningum hefur Alfaraleiðin (rauðlituð) millum Þorbjarnarstaða og Gerðis ekki verið skráð (einungis sögð „óljós“) – Herforingjarðaskort 1906.

Í „Örnefnalýsingu Gísla Sigurðsson um Þorbjarnarstaði“ segir: „Um Brúnaskarð eystra liggur alfaraleiðin upp á Kapelluhraun, en svo nefnist neðsti hluti Nýjahrauns, sem ofar kallast Bruninn og enn ofar Háibruni. Áður hefur verið getið um mosatekju í Kapelluhrauni. Landamerkjalínan liggur úr Þórðarvík suður og upp um Leynidali og síðan áfram upp austurbrún Brunans. Alfaraleiðin lá suðvestur eftir Brunanum“. Gísli nefnir heldur ekki fjárskjól í Leynidölum.

Hafnarfjörður

Leynidalir – fjárskjól 1.

Í „Fornleifaskráningu vegna mats á umhverfisáhrifum háspennulína frá Ölkelduhálsi á Helguvík í Reykjanesbæ„, sem Bjarni Einarsson skráði árið 2009 er getið um þrjú fjárskjól í Leynidölum, svonefnd Leynidalaskjól.
Um fyrstnefnda fjárskjóllið segir m.a.: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla í svokölluðum „dal“ um 160 m norðan við Krýsuvíkurveginn, 2,5×11 m (A – V). Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega [Ásbrautar]. Hlaðinn hefur verið 10 m langur tvískiptur garður úr hraungrjóti fyrir framan tæplega 11 m langan hraunskúta. Hleðslan er um 0,6 m breið og um 0,7 m há þar sem hún er hæst við inngang sem snýr mót NNA. Veggir eru mosavaxnir og gólf grasi gróið. Úr verður afmarkaður hellisskúti, tæplega 11 m langur, um 2,5 m djúpur og rúmlega 1 m hár, sem kjörið skjól fyrir hrakið fé. Í vestasta hluta skjólsins má greina leifar af þakhellum.“

Hafnarfjörður

Leynidalir – Leynidalaskjól 2.

Vitnað er í „Örnefnaskrá; Hraunin – Þorbjarnarstaðir, Gísli Sigurðsson skráði“, og „Fornleifaskráningu vegna tillögu að nýrri legu Krýsuvíkurvegar. Handrit; Byggasafn Hafnarfjarðar, maí 2004„.

Um annað fjárskjólið segir: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla (jarðfall), í svokölluðum „dal“, u.þ.b. 150 m norðan við Krýsuvíkurveginn. Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega, innra mál fjárskjólsins er 3×7 m (NA – SV). Hlaðinn hefur verið garður fyrir framan og til hliðar að SA-verðu við rúmlega 11 m langan slútandi hraunskúta. Þannig hefur verið myndaður hellisskúti eða fjárskjól. Hleðslur veggja eru u.þ.b. 0,6 m breiðar og rúmlega 1 m háar.

Hafnarfjörður

Leynidalir – fjárskjól 1.

Hæstar eru hleðslurnar við inngang sem snýr mót SV. Inngangur er tæplega 1 m á breidd. Veggir eru úr hraungrjóti sem eru orðnir áberandi mosavaxnir. Gólf skútans er allt gróið grasi. Athyglisvert er að unnar hellur hafa verið valdar til þess að mynda þak skútans að SA-verðu. Þar sem hraunskútinn er hvað hæstur er hæð hans rúmlega 1 m.“ Vitnað er til sömu heimilda og fyrr.

Um síðastnefnda fjárskjólið segir: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla (jarðfall), svokölluðum „dal“. Hugsanlega undir vegöxl sunnan við nýja Krýsuvíkurveginn eða mikilli mön úr timburflísum. Fjárskjólið er hugsanlega undir vegöxl sem nær upp að þaki skútans sem skjóli er í (eða undir mikilli mön). Lýsing þess hljóðar svo í „Fornleifaskráningu vegna hins nýja Krýsuvíkurvegar„:

Hafnarfjörður

Leynidalir – varða.

„Fjárskjól 8×2,5 m að stærð (NV – SA). Hlaðinn hefur verið grjótgarður um 8 m á lengd fyrir framan slútandi hraunskúta. Þannig hefur verið myndaður hellisskúti eða fjárskjól. Veggir eru mosavaxnir u.þ.b. 0,5 m breiðir og rúmlega 0,5 m háir. Dyr snúa líkast til mót austri. Gólf skjólsins er allt grasi vaxið. Athyglisvert er að á NV-verðu hefur verið hlaðið fyrir gjótu. Minjarnar eru hugsanlega enn til staðar undir öxlinni, þóó ástandi sé líklega orðið lélegt.“

Bjarni getur um Vörðu efst í Leynidölum: „Um 6 m norður af jarðstrengshrygg, rétt norðan við rafmagnslínu (Ísallínu), um 100 m sunnan við fjárskjól, á mosavaxinni hraunbungu. Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega, um 1 m í þvermál og um 1,2 m há. Úr hraungrjóti.“

Í „Fornleifaskráningu Hafnarfjarðar VIII – Ásland“ frá árinu 2021 er fjallað um tvö „Leynidalssskjól“.

Hafnarfjörður

Leynidalir – meint fjárskjól.

Um hið fyrra segir: „Fjárskýli; lengd: 4.7 m, breidd: 3.7 m, vegghæð: 0.7–1.2 m, breidd veggja: 0.8 m. Í grasivöxnum hraunbolla um 130m vestan við húsið Eskivelli 19. Tvær veglegar hleðslur framan við þokkalega rúmgóðan skúta. Inngangur fyrir miðju.
Þakhellur liggja innan í skútanum en þær stóðu enn þegar skýlið var skráð árið 2004. Skútinn er fullur af rusli. Veggjahæð er frá 0.7 – 1.2 m og veggjabreidd er að jafnaði um 0.8 m.“

Um síðara fjárskýlið segir: „Fjárskýli; lengd 6.7 m, breidd 0.4 m, vegghæð 0.1-1.1 m, breidd veggja 0.4 m. Fjárskjólið er í hraunbolla um 70 m sunnan við götuna Suðurhellu. Tvær hleðslur framan við grunnan skúta í hrauninu. Vestari hleðslan er verr farin. Inngangur fyrir miðju og mosavaxið. Veggjahæð er frá 0.1 – 1.1 m og veggjabreidd er að jafnaði um 0.4 m. Engin hætta.“

Heimildir:
-Þorbjarnarstaðir – Örnefnalýsing Ara Gíslasonar.
-Þorbjarnastaðir – Örnefnalýsing Gísla Sigurðssonar.
-Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum háspennulína frá Ölkelduhálsi á Helguvík í Reykjanesbæ, Bjarni F. Einarsson 2009.
-Fornleifaskrá Hafnarfjarðar VIII – Ásland, 2021.

Hafnarfjörður

Leynidalir – fjárskjól 1.