Urriðakot

Urriðavatn er grunnt vatn vestan Urriðaholts í Garðabæ. Vatnið er einnig nefnt Urriðakotsvatn eða Urriðakotstjörn. Urriðavatn myndaðist fyrir um 7300 árum þegar Búrfellshraun rann og hraun rann inn í dalverpi til móts við Urriðakot og stíflaði vatnið. Flatarmál vatnsins er um 13 hektarar, meðaldýpt þess er 0,70 m og mesta dýpi 0,90 m. Urriðavatn og aðliggjandi hrauðjaðar eru á náttúruminjaskrá.

Urriðakot

Urriðavatn – Sýlingarhella.

Urriðakot er (var)  jörð í Garðabæ. Bærinn stóð suðvestan í Urriðakotsholti norðaustan við Urriðakotsvatn. Bærinn stóð nálægt miðju túninu. Suður frá bænum lágu traðir, hlaðnar úr torfi og grjóti.
Kvíaflöt heitir allmikið barð norðvestan við túngarðinn og ofan við veginn, sem lá norðvestur frá bænum. Kvíaflöt var gerð að túni skömmu áður en Urriðakot fór í eyði. Vegurinn, sem hér um ræðir, er Urriðakotsvegurinn nýrri. Hann var lagður um 1930 norðvestur úr túninu, yfir mýrina, yfir Vesturvik og um Hrauntangann, gegnum túnið á Setbergi á Setbergsveg vestan við bæinn á Setbergi. Hann var lagður sem bílvegur og var þá hætt að nota Urriðakotsveg eldri, sem lá til austurs frá bænum, en sá vegur var ekki bílfær.

Urriðakot

Urriðakotsvatn – loftmynd 1954.

Sá hluti hraunsins, sem skagar út í Urriðakotsvatn, kallast Hrauntangi, og er hluti af honum í Setbergslandi. Sá hluti Hrauntanga, sem skagar lengst út í vatnið til suðurs, heitir Mjóitangi. Réttartangi skagar austur úr Hrauntanga nokkru sunnan við mitt Vesturvik. Í Hrauntanga rétt norðvestan við Mjóatanga er stór klettur með sýlingu í. Hann kallast Sýlingarhella og er á mörkum Urriðakots og Setbergs.
Úr Sýlingarhellu lá markalínan í uppmjóan háan klett með Klofavörðu upp á Stórakrók (nú fast við nýlega stækkun IKEA). Klofavarða var eyðilögð við framkvæmdirnar, algerlega að ástæðulausu.

Heimildir:
-Örnefnalýsing fyrir Urriðakot, Gísli Sigurðsson.

Urriðakot

Urriðakot – Klofavarða á Stórakrókshól.