Suðurkotsskóli – Brunnastaðaskóli – Norðurkotsskóli – Vatnsleysuskóli – Kirkjuhvolsskóli
Í Faxa árið 1982 og í Víkurfréttum 2022 er m.a. fjallað um „Sögu skólana í Vatnsleysustrandarhreppi„:
„Í Vatnsleysustrandarhreppi hafa verið byggð mörg hús fyrir barnaskóla og grunnskóla og öll bera þau nafnið skóli. Fyrstan má nefna Thorkilliibarnaskólann, sem fékk fljótt nafnið Suðurkotsskóli. Það hús var stækkað úr 54 m2 í 82 m2 árið 1886 og endurbyggt á sama grunni 1907, án þess að nafnið breyttist. Í dag, 2025, stendur grunnur skólans einn eftir.
Suðurkotsskóli/Brunnastaðaskóli
Suðurkotsskóli (Brunnastaðaskóli) var settur á laggirnar 1. október 1872. Hann var byggður á Suðurkotslandi í
Brunnastaðahverfi og átti þar hálflenduna. Tildrög að því að skólinn var byggður á Suðurkotslandi voru þau að uppboð var haldið á svokallaðri Brunnastaðatorfu og voru kaupendur þrír: Guðmundur Ívarsson sem keypti helming og Egill Hallgrímsson og Jón Breiðfjörð sinn fjórðung hvor. Hálflenduna gáfu þeir skólanum.
Séra Stefán Thorarensen prestur á Kálfatjörn var aðalhvatamaður að stofnun skólans. Hann stóð að samskotum til byggingar hans og einnig var haldin hlutavelta. Þó fór svo að samskotin nægðu ekki alveg og þá var tekið það ráð að fá lán úr svonefndum Thorcillissjóði, sem var stofnaður eftir lát Jóns Þorkelssonar fyrrum Skálholtsrektors 1759. Sjóðurinn hafði það markmið að kosta fræðslu fátækra og munaðarleysingja í átthögum Jóns. Brunnastaðaskóli hlaut árlegan styrk úr sjóðnum.
Maðurinn sem byggði skólann hét Stefán og var hann kallaður snikkari, þá bóndi í Minni-Vogum, Vogum. Það var mikið verk og erfitt, kaupið var 2-3 krónur á dag. Verkið hófst í júní og lauk sama ár eða 1. október 1872. Allt timbur var aðkomið frá Reykjavík. Skólahúsið var hin myndarlegasta bygging í þá daga. Það var byggt úr timbri, 16 álnir á lengd og 14 álnir á breidd og var það loftbyggt. Í norðurenda þess á neðri hæð var kennt í stórri stofu. Fyrsti kennari skólans var Oddgeir Guðmundsen lengst af prestur í Vestmannaeyjum.
Skólinn var einskonar miðstöð sveitarinnar, þangað var t.d. sendur allur póstur svo börn gætu farið heim til sín með hann.
Skólaárið í Suðurkots/Brunnaststaðaskóla var flest árin fullir 6 mánuðir en sum árin styttra í hverfisskólunum, enda var farkennsla til sveita oft ekki nema 2 mánuðir á ári á hverjum stað – langt fram á 20. öld! Veturinn 1909 -‘10 var Haraldur Sigurðsson, stúdent, frá Sjónarhóli, eini kennarinn, kenndi 3 daga vikunnar í Suðurkoti (16 börnum) og 3 í Norðurkoti (19 börnum). Þetta hefur ekki verið auðvelt, Haraldur sagður heilsulítill, var með stúdentspróf og aðeins ráðinn þetta eina skólaár.
Næstu 4 skólaár voru 2 kennarar, einn á hvorum stað, og kennt 6 mánuði 6 daga vikunnar. Haustið 1918 var engin kennsla 14. nóv. – 11. des. meðan spænska veikin greisaði grimm. Það kom oftar fyrir að loka þurfti skólanum í nokkra daga vegna inflúensu.
Í bréfi Ögmundar Sigurðssonar prófdómara frá 1909 er Suðurkotsskóli nefndur Brunnastaðaskóli, enda er Suðurkot í Brunnastaðahverfi. Einhvern tíma nálægt 1930 tekur Brunnastaðaskólanafnið alveg yfir. Árið 1944 var byggt nýtt og stærra skólahús, um 50 m frá því eldra, og áfram talað um Brunnastaðaskóla. Það er nú íbúðarhúsið Skólatún.
Árið 1979 var var skólinn fluttur úr Brunnastaðahverfi í Voga, byggt þar nýtt 700 m2 skólahús sem síðan var tvöfaldað að stærð 1998 og aftur 2005. Það hús er byggt í túni höfuðbólsins Stóru-Voga og heitir því Stóru-Vogaskóli.
En þar með er ekki öll nafna- og húsasagan sögð, því tvívegis var byggt annað minna skólahús í barnmörgu hverfi, fyrst Norðurkotsskóli í Kálfatjarnarhverfi 1903 og síðan Vatnsleysuskóli í samnefndu hverfi 1912. Það má lengi deila um hvort þetta sé allt sami skólinn eða hvort þetta séu 3, 4, eða 5 skólar!
Þ
ó að í Vatnsleysustrandarhreppi væru fjölmenn hverfi var hreppurinn í heild það strjálbýll að erfitt var að stefna öllum börnum á einn stað áður en skólaakstur kom til. Mörg börn þurftu að ganga í hálftíma, jafnvel klukkutíma í skólann, í vetrarveðrum! Börn úr fjarlægustu hverfunum þurftu annað hvort að búa í skólarisinu eða fá inni á nálægum bæjum. Njarðvíkingar gáfust fyrstir upp á því og stofnuðu eigin skóla, fyrst 1875. Síðar var tekin upp eins konar farkennsla í Kálfatjarnarhverfi, þaðan sem var um 40 mín. gangur í Brunnastaðahverfið. Kennt var í stofunni á Þórustöðum 1893 – 1900, síðan í Landakoti 1900 – 1903. Var til þess ráðinn annar kennari, Jón Gestur Breiðfjörð og síðan Magnús Jónsson, eftir að Jón Gestur tók við Suðurkotsskóla. Reyndar virðast oft hafa starfað tveir kennarar samtímis frá 1884 og ekki ljóst hvort báðir kenndu í skólahúsinu eða hvort annar gat hafa verið farkennari á einhverjum bæjum.
Norðurkotsskóli
En þetta þótti ekki fullnægjandi og árið 1903 var slegið lán hjá Thorkilliisjóði (öðru sinni) og ráðist í að byggja annað skólahús, í Norðurkoti í Kálfatjarnarhverfi, 25 m2, 9 x 7 álna bárujárnsklætt timburhús. Skólinn átti neðri hæðina, en í risinu var íbúð. Þar hófst kennsla um haustið í Norðurkotsskóla auk móðurskólans í Suðurkoti í Brunnastaðahverfi. Þann vetur kenndi Þórður
Erlendsson 28 börnum 7-14 ára í Suðurkoti og Sigurgeir Sigurðsson 19 börnum 8-14 ára í Norðurkoti.

Norðurkot er hjáleiga úr landi kirkjujarðarinnar Kálfatjarnar. Fyrir aldamótin 1900 bjuggu í Norðurkoti hjónin Erlendur Jónsson og kona hans, Oddný Magnúsdóttir. Árið 1903 var Norðurkot byggt upp eins og það er í dag. Það var skólanefnd og hreppurinn sem létu gera það og var húsið notað sem skólahús fyrir „Innstrendinga“. Húsið var úr timbri, ein hæð og portris. Barnakennsla var aflögð í Norðurkoti árið 1910 og snemma á árinu 1911 keypti Guðmundur í Landakoti Norðurkotið af hreppnum og leigði Birni þá allt húsið.
Það voru afkomendur Erlendar Magnússonar, bónda á Kálfatjörn, sem gáfu Minjafélagi Vatnsleysustrandarhrepps Norðurkotshúsið á síðasta ári og stóð félagið fyrir flutningi þess að Kálfatjörn með styrk frá Alþingi.
Var kennt í þessu nýja húsi í 7 ár, til vors 1910, og nemendafjöldinn allt upp í 20 – í 15 m2 skólastofu! Veturinn 1908-9 voru þar 12 stúlkur og 7 drengir, öll á eldra stigi, og Árni prestur kennari, kenndi m.a. song og leikfimi.
Minjafélag Vatnsleysustrandar bjargaði húsi Norðurkotsskóla 2008, flutti á nýjan grunn að Kálfatjörn, gerði vandlega upp og rekur þar lítið skólasafn og tekur á móti hópum.
Börnin í Kálfatjarnarhverfi uxu úr grasi og þetta vor var kennslu þar hætt, Norðurkotshúsið selt sem íbúðarhús. Samkv. kaupsamningi dags. 27.1.1911 selur skólanefndin „Guðmundi Guðmundssyni hreppstjóra á Landakoti þann hluta (neðri hlutann) úr íbúðarhúsinu í Norðurkoti við Þórustaði, sem er eign barnaskólans hér í hreppi og, sem notað hefur verið til barnakennslu nokkur undanfarin ár…“ Efri hæðin mun hafa verið íbúð – hugsanlega fyrir kennara – og liklega í einkaeigu, en 26. 10. 1910 er Haraldur Sigurðsson kennari krafinn bréflega um að fjarlægja þaðan hey!
Vatnsleysuskóli
Þá um haustið 1910 var hafin kennsla á Vatnsleysu, en þá voru þar barnmörg, fátæk heimili. Var steinsteypt þar lítið skólahús 1911 og kennt þar til 1914. Þar kenndi Kristmann Runólfsson frá Hlöðversnesi; og síðan Ingvar Gunnarsson frá Skjaldarkoti, en hann varð síðar kennari í Hafnarfirði. Einnig kenndu við skólann Guðmundur Magnússom frá Dysjum og Skúli Guðmundsson. Eftir áratugs hlé var kennt þar samfellt árin 1925–1943, en þá hófst skólaakstur og eftir það var öllum börnum kennt á einum stað, í Brunnastaðahverfi.
Viktoría Guðmundsdóttir sem var kennari og skólastjóri við Brunnastaðaskóla kenndi á Vatnsleysu í tvo mánuði og voru börnum í Brunnastaðaskóla sett fyrir verkefni á meðan. Í skóla þennan gengu börn frá Hvassahrauni, Stóru- og Minni-Vatnsleysu og Flekkuvík.
Rústir þessa skólahúss standa enn. Það mun hafa verið notað fyrir fjárhús á seinni árum en nýttist ekki til neins eftir að þak þess hrundi.
Kirkjuhvolsskóli
Á árunum 1934-38 var kennt á þremur stöðum. Auk Vatnsleysuskóla og Brunnastaðaskóla var yngstu börnunum kennt í nýbyggðu félagsheimili, Kirkjuhvoli, og einnig kennd þar leikfimi – og kennt unglingum – vegna plássleysis í Brunnastaðaskóla, en aðeins er 10 mínútna gangur þar á milli. Kenndi Stefán Hallson þau ár til skiptis á Vatnsleysu og í Kirkjuhvoli, um 3 mánuði á hvorum stað. 1938 var kennaraíbúð í skólahúsinu breytt í kennslurými fyrir yngstu börnin.
Brunnastaðaskóli hinn nýrri
Byrjað var á grunninum að þeim skóla 1940 eða þar um bil. Smíðinni var lokið 1942. Jón G. Benediktsson þáverandi oddviti stjórnaði byggingu skólans.
Í skólanum eru þrjár kennslustofur og ein stofa til afnota fyrir kennara. Húsið kostaði lítiö og var enginn íburður í því, vegna þess hve knapþur fjárhagur hreþpsins var. Engir styrkir fengust til byggingar skólans frá ríkinu. Öll lán sem tekin voru til byggingarinnar voru lánuð til ársins 1942. Lán sem tekið var hjá Landsbanka Íslands nægði rétt til efniskaupa.
Engin borð, stólar eða aðrir hlutir voru nýtanlegir úr gamla skólanum og því þurfti að kaupa alla innanstokksmuni til skólans, svo og kennslutæki. Húsið var hlaðið úr steini og var það Trésmíðafélagið Akur úr Reykjavík sem framleiddi steininn. Seinna kom í ljós að húsið var hriplekt og var lekinn mestur í austurgafli hússins ofan við gluggana. Nokkrum árum síðar var sett plast eða álklæðning utan um allt húsið. Nú er þessi skóli aðallega notaður fyrir handavinnukennslu.“
Heimildir:
-Mest greinar í Faxa 1990 og skrif St. Thorarensen í Þjóðólf, einnig handskrifuð skjöl.
-Faxi, 4. tbl. 01.05.1982, Ágrip af skólasögu Vatnsleysustrandarhrepps 1872-1982, Sigurður Hallmann Ísleifsson, bls. 86-87.
-Mannlíf og mannvirki á Vatnsleysuströnd, Guðmundur Björgvin Jónsson, 1987.
















