Grindvíkingar fá ósalt neyzluvatn 1951
Í Nýi tíminn árið 1951 er sagt frá því að „Grindvíkingar fá ósalt vatn„:
„Reykjanesskaginn er einn þeirra fáu staóa á Íslandi sem frægur er fyrir vatnsleysi, en hann er þó ekki eins vatnslaus eins og hann sýnist, vatnið er einungis niðri í hrauninu.
Jarðboranir ríkisins hafa á undanförnum árum borað eftir vatni, með ágætum árangri, á nokkrum stöðum á Suðurnesjum. Þjóðviljinn hafði í gær tal af Eggert Ísdal og skýrði hann svo frá að vatnið hefði komið kl. 10 í gærmorgun þegar komið var niður á 26 metra dýpi, þar sem verið er að bora fyrir vatni fyrir Grindvíkinga suðaustur af Þorbirni [Þorbjarnarfelli], skammt frá veginum. Eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir Grindvíkinga.
Jarðboranir ríkisins eru nýbúnar að bora tvær holur (20 og 23 metra) í Garðinum. Á sínum tíma var frá því sagt er Keflvíkingum var útvegað vatn með sama hætti. Næst mun verða borað eftir vatni í Sandgerði.“
Vatnstankurinn, sem byggður var á staðnum í framhaldinu ofan Járngerðarstaðahverfis, er nú horfinn. Það verður að þykja miður því hann var eitt af kennimerkjum bæjarins. Sama má segja um innsiglingarvörðurnar, sem nú eru óðum að hverfa, en af þeim ber bærinn nafn sitt; grindunum á þeim mörgu landvörðum er leiddu sjómennina fyrrum til lands í misjöfnum veðrum.
Heimild:
-Nýi tíminn, 25. tbl. 12.07.1951, Grindvíkingar fá ósalt vatn, bls. 1.












