Ölfusárbrú – skilti

Ölfusárbrú

Sunnan Ölfurárbrúar er upplýsingaskilti. Á því má lesa eftirfarandi:

Ölfusárbrú

Ölfusárbrú – skilti.

„Árið 1891 var byggð hengibrú yfir Ölfusá. Það var fyrir forgöngu Tryggva Gunnarssonar, síðar alþingismanns og bankastjóra, sem húsið Tryggvaskáli heitir eftir. Brúin var þá stærsta mannvirki á íslandi. 5. september 1944 slitnuðu eystri burðarstrengirnir, en brúin hafði þá þjónað Sunnlendingum í 53 ár. Brúnni var lyft og hún notuð til ársoka 1945. Núverandi hengibrú var byggð árið 1945, og opnuð fyrir almenna umferð 21. september það ár. Tók smíði hennar aðeins fimm og hálfan mánuð. Brúin er 84 metrar að lengt milli brúarstólpa auk 50 metra landbrúar. Breiddin er 8.47 metrar. Þyngd brúarinnar er um 2.150 tonn. Þar af er steypan 1.900 tonn en járnbrúin 253 tonn. Gamla járnbrúin var aðeins um 50 tonn.“

Ölfusárbrú

Ölfusárbrú 1911.