Ratleikur Hafnarfjarðar – sagan
Ratleikur Hafnarfjarðar er árlegur útivistar- og fróðleiksleikur þar sem þátttakendur leysa þrautir víðs vegar um bæinn og upplandið og kynnast sögu, náttúru og menningu Hafnarfjarðar á skemmtilegan hátt.
Ratleikurinn er áhugaverður leikur fyrir alla fjölskylduna og stendur yfir allt sumarið. Upphafsmaður ratleiksins var Pétur Sigurðsson en hann kynntist svipuðum leik á ferð sinni um Noreg. Eftir að Pétur kynnti hann til sögunnar, fór hann af stað með Ratleikinn í samvinnu við ferðamálayfirvöld í Hafnarfirði. Lovísa Ásbjömsdóttir sá um gerð fyrstu ratleikskortanna. Ratleikurinn hefur síðan vakið mikla lukku og breytingar verða jafnan á honum frá ári til árs.
Hið merkilega er, þegar leitað er eftir „Ratleik Hafnarfjarðar“ í leitarvélum eða á „Timarit.is“ finnst reyndar fróðleikur um Ratleikinn, en engar þeirra virðast hafa að geyma mynd af frumkvöðlinum Pétri.
Pétur Sigurðsson
Pétur Sigurðsson var einstakur hugsjónamaður sem lét til sín taka á mörgum sviðum í Hafnarfirði, en hann er án efa þekktastur sem „faðir Ratleiks Hafnarfjarðar“.
Pétur kom með hugmyndina frá Noregi, sem fyrr sagði, og kynnti hana í framhaldi fyrir ferðamálayfirvöldum í Hafnarfirði, sem leist vel á hana. Hann setti fyrsta Ratleik Hafnarfjarðar á laggirnar árið 1996. Hugmyndin var einföld en snjöll: að fá fólk út í náttúruna, kynna því bæjarlandið og söguna í gegnum skemmtilega leit að merktum skiltum eða póstum. Í þá daga var fátt um fjölmiðla; bæjarblöð og -landsmála.
Pétur sá um leikinn af mikilli ástríðu í sjö ár, undirbjó, valdi staðsetningar, samdi vísbendingar, málaði lykilsspjöldin og fór sjálfur með þau út í hraun. Leikurinn varð fljótt að einum vinsælasta sumaratburði bæjarins og hefur verið haldinn árlega síðan – með sívaxandi vinsældum.

Fyrstu ratleiksskiltin voru handmáluð græn og hvít árlega og síðan bætt við „lyklum“, sem þátttakendur þurftu að skrá á ratleikskortin, líkt og í dag. Undirbúningurinn krafðist því mikillar vinnu af hálfu útleggjarans.
Pétur var menntaður járnsmiður og starfaði lengi hjá Vélsmíðaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar. Hann var þekktur fyrir mikla handverkskunnáttu og var raunverulegur „þúsundþjalasmiður“. Hann brann fyrir því að kenna ungu fólki að meta náttúruna og bera virðingu fyrir umhverfinu. Ratleikurinn var í raun framlenging á þessari lífsskoðun hans – að tengja bæjarbúa við „Hafnarfjarðarhraunið“ sem hann elskaði svo heitt. Hann var hafsjór af fróðleik um örnefni og staðhætti í Hafnarfirði og nágrenni. Í gegnum ratleikinn tókst honum að miðla þessari þekkingu til áhugasamra bæjarbúa. Margir Hafnfirðingar hafa í framhaldinu lært að rata um sitt eigið heimaland, eingöngu vegna þess að þeir fóru að „leita að póstum frá Pétri“.
Þrátt fyrir skamman tíma við stýringu Ratleiks Hafnarfjarðar á hann mikið lof skilið – bæði fyrir hugmyndina sem og þrautseigju upphafsins.
Jónatan Garðarsson hafði uppgötvað leikinn 2002, tók við honum af Pétri árið 2003 og lagði hann í framhaldinu til 2006. Auk þess tók hann saman fróðleiksmola á útgefið ratleikskortið sem tengdust felustöðum ratleiksspjaldanna. Þá setti hann þar inn fróðlega samantekt um helstu þjóðleiðir í hraununum ofan Hafnarfjarðar. Flest það er varðaði minjar og sögu Hafnarfjarðar var honum hugleikið. Hann var og iðinn við að kynna ratleikinn fyrir bæjarbúum sem og fyrir öðrum mögulega áhugasömum um efnið í fjölmiðlum.
Jónatan lagði út leikinn til 2007, en árið áður hafði Guðni Gíslason tekið að sér endurhönnun ratleikskortsins. Markmiðið með ratleiknum varð þó enn það sama og áður hafði verið, auk framangreinds, að efla áhuga almennings á útivist og vekja athygli á þeim náttúruperlum sem finna má í Hafnarfirði og í upplandi bæjarsins.
Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarfrétta (fyrrum Fjarðarpóstsins), smiður, skáti, svo eitthvað sé nefnt, sem og eigandi Hönnunarhússins ehf, gefur nú út Ratleik Hafnarfjarðar. Hann hefur undirbúið, annast og/eða lagt Ratleik Hafnarfjarðar frá 2006 eða í 20 ár. Frá árinu 2007 hefur hann alfarið séð um ratleikinn í samstarfi við ferðamálayfirvöld í Hafnarfirði, utan ársins 2019 er bæjaryfirvöld misstu kjarkinn um stund vegna Covid.
Af árafjöldanum má dæma að Guðni hafi bæði reynst staðfastur og þrautseigur í eindreginni viðleytni sinni til að viðhalda bæði ratleiknum í upprunalegri mynd og þróa hann samtímis til nútímahorfs. Verður það bæði að þykja virðingar- og aðdáunarvert. Slíkur maðurinn hefði hingað til hlotið sérstaka viðurkenningu fyrir minni afrek.
Guðna til aðstoðar síðustu árin við ábendingar og textaskrif hefur verið Ómar Smári Ármannsson, fornleifafræðingur, leiðsögumaður og fv. aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann hefur löngum haldið úti upplýsingasíðunni FERLIR um minjar, sögu og náttúru Reykjanesskagans, en sjálfur jafnan látið lítið fyrir sér fara.
Ómar hefur þó bæði ritað fjölda greina um verðmæti sögulegra minja í og við Hafnarfjörð og á Reykjanesskaganum, auk þess sem hann hefur fundið aðrar allnokkrar slíkar, áður óþekktar og unnið að fornleifaskráningum. Afrakstur þessa hefur löngum reynst notadrjúkt í ratleiknum.
Heimasíða ratleiksins er RATLEIKUR HAFNARFJARÐAR, en auk þess má finna hann á facebooksíðunni RATLEIKS HAFNARFJARÐAR.
Ratleikskort og fróðleikur
Vönduð útivistarkort eru gefin út árlega og innihalda staðsetningar, leiðbeiningar og fróðleiksmola. Þau eru afhent ókeypis á helstu stöðum í bænum, m.a. í Bókasafni Hafnarfjarðar, í sundlaugum bæjarins, í Fjarðarkaup, á bensínstöðvum, í Upplýsingamiðstöð Hafnarjarðarbæjar og á skrifstofu Fjarðarfrétta (Hönnunarhússins) við Bæjarhraun.
Til að sem flestir geti nú tekið þátt í þessum skemmtilega útivistarleik, sem byrjar í lok maí eða byrjun júní, er honum þrískipt: Léttfeti – 9 merki, Göngugarpur – 18 merki, Þrautakóngur – öll 27 merkin. Á hverjum stað þarf að finna leyniorð á spjaldi, skrifa það á yfirlitsseðil í bæklingnum. Þegar lokið hefur verið við leikinn að hluta eða í heild þarf að skila inn lausnum. Uppskeruhátíð verður haldin í lok september, þar sem dregið er úr öllum sem skila inn a.m.k. 9 merkjum.
Létti leikurinn sem hugsaður er fyrir byrjendur, en er jafnframt kjörið verkefni fyrir fjölskyldur eða hópa. Garpagangan reynir meira á úthald þátttakenda og hæfni við að nota landakort og erfiðasti hlutinn þrautseigju þeirra sömu. Ekki er um kapphlaup við tímann að ræða og kjósa margir að krydda gönguferðir fjölskyldunnar með þessum skemmtilega leik allt sumarið og nýta ferðirnir til að skoða annað merkilegt sem umhverfið hefur upp á að bjóða.
Lausnir verða að berast fyrir auglýstan skiladag í septembermánuði og eru veglegir vinningar í boði fyrir heppna þátttakendur.
Ratleikskortið nýtist jafnframt sem almennt útivistarkort. Leikurinn er ætlaður öllum aldurshópum, bæði íbúum og gestum, og er vinsæll hjá fjölskyldum sem vilja sameina hreyfingu og fróðleik.
Ratleikur Hafnarfjarðar 2026
Ratleikurinn 2026 er í fullum undirbúningi. Í ár verður ratleikurinn lagður út þrítugasta sinni. Þemað að þessu sinni eru „Hraunin ofan Hafnarfjarðar„, sbr:
-27 ratleiksmerki verða lögð út á fjölbreytta staði í Hafnarfirði og upplandi bæjarins.
-Leikurinn mun standa frá maílokum til seinni hluta septembermánaðar.
-Þrír erfiðleikaflokkar verða áfram í boði; Léttfeti, Göngugarpur, Þrautakóngur.
-Þátttakendur safna bókstöfum og tölum af merkjunum og skila inn lausnum, að lágmarki 9 talsins, til að geta tekið þátt í útdrætti.
-Uppskeruhátíð verður haldin í lok september eða byrjun október þar sem heppnir þátttakendur eiga möguleika á veglegum vinningum.
NJÓTIÐ, bæði bæjarbúar (þ.m.t. frambjóðendur á listum til komandi sveitarstjórnarkosninga) og gestir bæjarins…














