Þvottahellir – skilti

Þvottahellir

Við Þvottahelli í Botnsdal, skammt frá gönguleiðinni að Glym, er skilti með yfirskriftinni „Þvottahellir„. Á því eru eftirfarandi upplýsingar:

Þvottahellir

Þvottahellir.

„Þjóðsagan segir að nafn fossins Glyms sé þannig til komið að álfkona hafi breytt manni sem sveik hana í tryggðum í hvalinn Rauðhöfða. Þá hafi Rauðhöfði tekið að granda bátum á Faxaflóa. Í Hvalfirði fórust með einum bátnum tveir synir prestsins í Saurbæ. Þá hafi presturinn, sem var orðinn gamall og blindur, gengið með hjálp dóttur sinnar niður að sjávarmáli og tyllt staf sínum í sjóinn. Þá kom Rauðhöfði syndandi og teymdi presturinn hann inn í Botnsvog og upp eftir Botnsá.

Þvottahellir

Í Þvottahelli.

Þegar komið var í glúfrið þar sem fossinn fellur á að hafa verið svo þröngt að jörðin hafi hrist og drunur hljómað, og af því dragi Glymur nafn sitt. Rauðhöfði endaði í Hvalvatni og er sagt að hann hafi sprungið að áreynslunni.“

Í örnefnalýsingu fyrir Stóra Botn segir: „Austan við Gamlastekk í árgljúfrinu er Þvottahellir. Stór steinn á gljúfurbarminum vísar veginn að hellisopinu. Í þessum helli var stundum í ótíð þurrkaður þvottur“. Hellisins er ekki getið í fornleifaskráningu af svæðinu.

Þvottahellir

Í Þvottahelli.