Skógarkot

Skógarkot

Gunnar Grímsson, starfsmaður Þingvallaþjóðgarðs, tók saman eftirfarandi fróðleik um „Skógarkot“ við Þingvelli:

Gunnar Grímsson

Gunnar Grímsson.

„Skógarkot er eyðibýli í skóginum fyrir austan Þingvelli. Það er staðsett um miðja vegu á milli Almannagjár og Hrafnagjár og upp við gamla sýsluveginn um Þingvallasveit.
Skógarkot var ein af hjáleigum Þingvallabæjar en þótti njóta allnokkurs sjálfstæðis frá heimajörðinni á síðari tímum. Skógarkot komst í alfaraleið á 19. öld og blómstraði í kjölfar mikillar jarðræktar, svo það þótti með bestu sauðfjárjörðum sveitarinnar þar til bærinn fór í eyði árið 1936. Nú er Skógarkot einna þekktast sem miðpunktur fjölmargra gönguleiða í Þingvallahrauni.

Hraunfólkið í Skógarkoti
Ekki er vitað með vissu hvenær byggð hófst í Skógarkoti, en þess er fyrst getið í visitasíu Þórðar biskups Þorlákssonar frá 1679. Býlinu er lýst sem einni af hjáleigum Þingvallabæjar í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711.
SkógarkotBóndinn hét þá Halldór Magnússon, en munnmæli voru þá í sveitinni um að fornbýlið „Þórallastaðir“ hafi áður verið þar sem Skógarkot er nú.
Nafnið tengist að öllum líkindum Þórhalli „ölkofra“ úr Ölkofra sögu sem bruggaði öl handa þingmönnum til forna og brenndi óvart Goðaskóg. Bæjarnafnið Þórhallastaðir er nú notað yfir annað eyðibýli um 500 metrum suðaustan Skógarkots. Þar var síðan stekkur frá Skógarkoti.

Skógarkotsbærinn á 19. öld
SkógarkotLitlar sögur fara af ábúendum Skógarkots á átjándu öld, en við upphaf þeirrar nítjándu bjó þar Elka Sæmundsdóttir (1749–1835) ásamt börnum sínum tveimur. Önnur dóttir Elku hét Sigríður Eyjólfsdóttir (1780–1837); kvæntist hún Kristjáni nokkrum Magnússyni (1777–1843) skömmu eftir árið 1800 og tóku þau svo við búrekstrinum.
Skógarkotsbærinn gekk undir miklar endurbætur á fyrri hluta 19. aldar. Sagt er að timburhús með afþiljaðri stofu hafi verið reist í Skógarkoti milli 1820–1830 og verið eina timburhús sveitarinnar þar til núverandi Þingvallakirkja var reist 1859. Björn Th. Björnsson getur þess í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (bls. 144) að Ófeigur Jónsson, þúsundþjalasmiður frá Heiðarbæ, hafi verið fenginn til að skreyta stofuna, sem var „blámáluð innan og skreytt rósastrengjum umhverfis efst á veggjum, en loftbitar dökkblárri og einnig rósamálaðir, svo og hurðir innan.“
SkógarkotKristján var kjörinn hreppstjóri Þingvallasveitar og sinnti þeirri stöðu um langa hríð. Hann lét meðal annars lagfæra alfaraveginn fram hjá Skógarkoti og austur yfir Hrafnabjargaháls, sem og Norðlingaveginn á milli Öxarár og Bolaklifs. Þá lét Kristján lagfæra stíga yfir Hrafnagjá og gera Langastíg í Stekkjargjá færan klyfjahestum.
Kristján og Sigríður eignuðust alls sjö börn, en auk þess eignaðist Kristján átta börn til viðbótar með einni af vinnukonum bæjarins, Guðrúnu Þorkelsdóttur. Barneignarmál Kristjáns eru meðal viðfangsefna í sögulegu skáldsögunni Hraunfólkinu eftir Björn Th. Björnsson sem kom út árið 1995.
Jón Kristjánsson (1811–1895) tók við Skógarkoti að föður sínum látnum 1843 og réð þar búi fram til 1890. Jón var þríkvæntur; fyrst Guðrúnu Ófeigsdóttur (1808–1835), síðan Kristínu Eyvindsdóttur (1813–1868) og loks Vilborgu Þórðardóttur (1836–1881). Jón hlaut góðan orðstír fyrir bústörf sín, stækkaði túnið til muna og reisti svo virðuleg húsakynni að hjáleigan Skógarkot þótti með bestu bæjum Þingvallasveitar.

Skógarkot á 20. öld

Skógarkot

Jóhann Kristjánsson frá Skógarkoti – Á Skógarkotsvegi.  Jóhann Kristjánsson með aðföng á hestvagni sínum. Kaupstaðaferðir voru farnar á hverju vori og hausti og nauðsynjavörur keyptar í miklu magni. Einnig var farið fyrir jólin.

Næstu ábúendur Skógarkots á eftir Jóni Kristjánssyni voru hjónin Hannes Guðmundsson (1836–1913) og Margrét Eyjólfsdóttir (1826–1899). Tóku þau við búinu 1890. Á eftir þeim bjuggu þau Halldór Ólafsson (1866–1908) og Þóranna Árnadóttir í Skógarkoti árin 1907–1908 og Ólafur Björnsson og Steinunn Björnsdóttir 1908–1909.
Lýsing er til af torfbænum í Skógarkoti við lok búsetu Ólafs og Steinunnar. Úr bæjargöngunum var gengið inn í eldhús með moldargólfi, þar sem borð var og stólar auk eldavélar með bakaraofni sem gekk fyrir kolum og viði. Úr eldhúsinu var gengið inn í hlóðaeldhús og geymslu. Úr geymslunni var síðan gengið inn í fjósið. Eldhúsið leiddi einnig inn í fjögurra stafgólfa baðstofu með timburgólfi og fimm rúmum. Smærra, tveggja stafgólfa rými var inn af baðstofunni. Ofnar voru í húsinu og olíulampar lýstu það upp, en útikamar var fyrir utan geymsluna. Rigningarvatni var safnað af þakinu ofan í tunnu.

Skógarkot

Skógarkot Teikning af Skógarkoti frá 1960, byggð á ljósmynd af bænum frá 1917. Þröstur Pétursson (1938–2000) teiknaði myndina árið 1960, en faðir hans ólst upp í Skógarkoti.

Timburhús var reist á hlaðinu andspænis bænum árið 1907, sama ár og núverandi turn Þingvallakirkju var byggður. Húsið var með einum sexrúðuglugga á framhliðinni og öðrum smærri á risinu og á þakinu var vindhani með ártalinu 1907. Húsið var kallað gestastofa og notað handa næturgestum. Var full þörf á því, enda var gestagangur ávallt mikill á bænum.
Árið 1917 samanstóð bærinn í Skógarkoti af þremur burstum með timburgöflum sem sneru fram á hlaðið. Innsta burstin var geymsla með sérinngangi, en miðburstin var baðstofa með átta rúmum upp við langveggina. Inngangengt var úr baðstofunni í eldhúsið í fremstu burstinni. Matjurtagarður var reistur upp við bæinn og við hlið hans var hrísköstur.

Fjárhús og fjós voru áföst við bæinn að aftanverðu; þau sneru hornrétt á íbúðarhúsin og við innganga þeirra var lítill hænsnakofi. Gamla hlóðaeldhúsið var staðsett mitt á milli fjóssins og eldhússins og innangengt í það úr báðum byggingum.

Skógarkot

Skógarkot – ljósmynd frá 1917.

Skógarkotsbærinn var að miklu leyti endurbyggður árin 1920–1921. Járnklætt timburhús var þá reist upp við hlaðið, með þremur sexrúðugluggum á framhliðinni og inngangi nyrst. Þar var eldhús, baðstofa og stofa, ásamt tveimur gestasvefnherbergjum sem höfðu sérinnganga á austurhliðinni. Hluti af gamla bænum fékk að halda sér við afturhlið timburhússins.
Gestastofan á hlaðinu var þá færð upp að nýja íbúðarhúsinu og notuð sem viðbygging. Inngangur var á framhlið hennar og í henni voru stofa og svefnherbergi. Í háalofti gestastofunnar var birgðageymsla fyrir hveiti, sykur og aðrar hrávörur og andspænis geymslunni var kompa þar sem börn voru látin sofa þegar gestagangur var mikill. Steyptur kjallari var reistur ofan í fjárhúsinu, líklega fyrir safnhaug.

Skógarkot

Skógarkot – málverk.

Í nýja eldhúsinu var stór kolaeldavél sem hitaði upp vatn í áföstum vatnskassa til daglegra nota. Einn balinn í herberginu var notaður til uppþvotta en annar til þess að baða börnin. Hægt var að rúma allt að fjórtán einstaklinga á bekkjunum við matarborðið. Skápar voru upp við annan langvegginn og annar hornskápur upp við gluggann; hjá honum var gengið niður í óupphitaðan kjallara þar sem matvæli voru geymd við lágan hita. Lítill gluggi hleypti ljóstíru þangað inn.
Úr eldhúsinu var þá innangengt í hlóðaeldhúsið þar sem slátur var m.a. soðinn, kjöt reykt og þvottur þveginn í stórum suðupotti. Fyrir framan bæjarhlaðið var veglegur matjurtagarður reistur, þar sem kartöflur og rófur voru ræktaðar í miklu magni handa ábúendum og gestum.

Börnin í Skógarkoti

Skógarkot

Skógarkotsbærinn á 3. áratug 20. aldar. Horft er til norðurs frá Vaðmálsbala að bæjarhúsunum. Fyrir aftan þau er Sjónarhóll og á honum eru tvö útihús. Hið vinstra er sagt vera hlaða með áföstum hrútakofa og hesthúsi, en það hægra hefur verið langhús fyrir kindur.

Börn Jóhanns og Ólínu hétu Kristján (1908–1986), Jón (1909–1950), Pétur Júlíus (1911–1991), Herdís (1913–2015) og Greta María (1916–2006). Bræðurnir Pétur og Kristján skilja eftir sig ómetanlegar örnefnaskrár sem urðu grundvöllur þekktra leiðarbóka um þjóðgarðinn á Þingvöllum, líkt og Þingvellir – staðir og leiðir eftir Björn Th. Björnsson og Þingvallabók – handbók um helgistað þjóðarinnar eftir Björn Þorsteinsson. Bræðurnir hlúðu einnig að minningarreit um Jón bróður þeirra í svokölluðum Jónslundi.

Staðhættir í Skógarkoti

Skógarkot

Skógarkot 1913.

Skógarkotsbærinn var reistur suðaustan undir hól sem kallast Sjónarhóll eða Balinn, innan í fimm hektara túni sem er afgirt með grjótgarði. Traðir liggja inn að bæjarrústunum úr suðri, og framan við þær og hlaðið er stór matjurtagarður.
Við norðausturhlið bæjarins er lág upphækkun sem virðist að einhverju leyti manngerð og gæti samsvarað örnefninu Hlöðuhól. Þar fyrir austan er uppgróinn hraunbali sem nefnist Harðhaus, þar sem hrísköstur bæjarins var oft geymdur á veturna, og nokkuð austan hans er djúp laut sem nefnist Möngudalur. Sunnan við bæjarhúsin og matjurtagarðinn eru nokkrar samhliða rákir sem kunna að vera leifar mannvirkja.

Skógarkot

Skógarkot – brunnur. Brunnurinn er um tveggja metra djúpur og tiltölulega heillegur. Þar sem grunnvatn var með öllu óaðgengilegt í hrauninu var einungis hægt að safna úrkomuvatni. Af þeim sökum þornaði brunnurinn oft upp, og þurfti þá að sækja neysluvatn í brunninn á Þórhallastöðum eða ofan í Ölkofradal. Í þurrkatímum þurfti jafnvel að sækja vatn niður í Tjarnir, fyrir ofan Vatnsvik, eða í gjárnar hjá Þingvöllum. Skepnum var ýmist brynnt í Þingvallavatni eða í smápollum í næsta nágrenni bæjarins, og þvottur var þveginn við Þingvallavatn eða við bakka Öxarár. Í frosthörkum þurfti þá að bræða snjó til drykkjar.

Brunnurinn í Skógarkoti er í túninu rúmum 100 metrum austan bæjarins. Hann er vel hlaðinn og djúpur en vatn hélst aðallega í honum í votviðratíð. Þegar hann þornaði upp þurfti að sækja neysluvatn til Þórhallastaða eða niður að Tjörnum, sem eru skammt fyrir ofan Vatnsvik í Þingvallavatni. Stöðull Skógarkots var austan við brunninn sem og fjárhús með lítilli hlöðu upp við túngarðinn.
Árið 1925 er getið um fjögur fjárhús, tvær heyhlöður og eitt hesthús í Skógarkoti. Leifar útihúsa sjást meðal annars uppi á Sjónarhól, ofan bæjarins, og er eitt þeirra með grjóthlöðnum kjallara. Efst á hólnum kallast Réttarhóll; þar er sprunga með grjóthleðslum í og austan undir hólnum er tvískipt fjárrétt.
Eitt helsta kennileiti Skógarkots er mikill, grjóthlaðinn garður sem umlykur túnið og hluta Sjónarhóls. Hann er afrakstur mikilla jarðabóta á 19. og 20. öld, þar sem túnið var nær tvöfaldað að flatarmáli. Túnið var fært út í mörgum áföngum með færikvíum, og steinar voru hreinsaðir úr jarðveginum og notaðir sem hleðslugrjót. Aðflutt mold var þá lögð ofan á berar hraunhellur.

Skógarkot

Skógarkot – loftmynd.

Eldri túngarður er vel sjáanlegur innan í túninu. Hann er hringmyndaður og mælist um 200 metrar í þvermál. Ekki liggur fyrir hvenær hann var reistur. Syðsti hluti túnsins var ræktaður upp á síðari hluta 19. aldar og kallast Gerði; þar má finna útihúsaleifar á tveimur stöðum. Líklega hefur stækkun túnsins til norðurs farið fram eftir árið 1920, sbr. túnakort frá því ári. Þar hefur gamalt, rétthyrnt garðlag lent innan hins nýræktaða túns, og innan þess má finna smátóft og manngerða dæld.
Við suðurenda traðanna, rétt fyrir utan túngarðinn, er hraunhella sem kallast Vaðmálsbali og var notuð til að þurrka vaðmál og ull.

Ítök og nytjar

Skógarkot

Skógarkot – örnefni

Skógarkot var hjáleiga frá Þingvöllum og deildi óskiptu beitarlandi með heimajörðinni og öðrum hjáleigum í landi Þingvalla. Grasnytjar utan túns voru á ýmsum slægjublettum í hrauninu og í fjallhögum, ásamt Brúsastaðamýri á tímabili. Í harðindum fékk Skógarkotsfólkið að heyja á Hofmannaflöt eða jafnvel austur á Laugardalsvöllum.
Skógarhögg var norðan og austan bæjarins, þar á meðal í Magnúsarklettsskógi. Mörkin á milli skóglendis Þingvalla og Skógarkots voru dregin í línu á milli Helluholts, Jafningjavörðu og Eyvindarhóls, og mörkin á milli Skógarkots og hjáleigunnar Hrauntúns voru ákvörðuð við Markavörðu, hér um bil mitt á milli bæjanna tveggja.
Skógarkot átti veiðirétt í Þingvallavatni milli Langatangahólma og Hallviks. Bátalægi og netaveiðar voru við Öfugsnáða og þvottastaður í Hlóðavík skammt austar. Silungur var geymdur lifandi í þró í vatninu þar til honum var slátrað.

Skógarkot

Skógarkot – teikning 1913.

Tveir stekkir tilheyrðu Skógarkoti. Annar þeirra hét Gamli-Stekkur og stóð hann við eyðibýlið Þórhallastaði. Þar áttu Skógarkotsbændur einnig fjárhús, kálgarð og ræktaðan túnblett. Hinn stekkurinn hét Nýi-Stekkur og er staðsettur nálægt Ámundahólum fyrir ofan Vatnsvik.
Fjárhelli góðan áttu Skógarkotsbændur á Hellishæð, beint austur af bænum. Annar fjárhellir fannst sunnan bæjarins í upphafi 20. aldar. Engar áreiðanlegar upplýsingar hafa varðveist um sel Skógarkotsbænda, en þeim er eignuð selstaða norðvestan Sigurðarsels í sóknarlýsingu Þingvallaprestakalls 1840. Líklega hefur hún verið nálægt örnefninu Selhólum.

Samgöngur

Konungsvegur

Konungsvegur að Skógarkoti um Þingvallahraun.

Frá Skógarkoti liggja leiðir til allra átta. Flestar eru þær stikaðar og auðveldar yfirferðar. Fjölfarnasta leiðin heitir Skógarkotsvegur eða Gjábakkavegur og liggur meðfram sunnanverðum túngarðinum á milli Þingvalla og Hrafnagjár. Vegurinn varð sýsluvegur sveitarinnar á 19. öld eftir að gamla leiðin um ós Öxarár spilltist í jarðskjálftahrinu, og var síðan ein fjölfarnasta leiðin um Þingvallahraun þar til svokallaður Konungsvegur var lagður nálægt bökkum Þingvallavatns árið 1907.
„Svo sem allir vegir lágu til Róms suður í álfu, þannig liggja allar leiðir í austanverðu Þingvallahrauni um Skógarkot“ segir í Þingvallabók Björns Th. Björnssonar.
Önnur og eldri leið klofnar frá Gjábakkavegi austan Skógarkots. Hún kallast Klukkustígsleið og liggur fram hjá Þórhallastöðum, upp Hábrún og yfir Klukkustíg á Hrafnagjá. Munnmæli í sveitinni herma að hún hafi verið ein elsta þjóðleiðin til Þingvalla, en síðan var hún innansveitarleið á milli Skógarkots og bæjarins Gjábakka. Leiðarkaflinn sem nú er stikaður milli Skógarkots og Þórhallastaða var stekkjargata frá Skógarkoti.

Skógarkot

Skógarkot – heimtröðin.

Þrjár innansveitarleiðir liggja til suðurs frá tröðunum í Skógarkoti. Sú fyrsta kallast Gönguvegur og liggur til suðvesturs að Þingvöllum; hana fóru ábúendur Skógarkots er þeir sóttu messur í Þingvallakirkju. Næst kemur Vatnskotsgata, sem liggur beint suður að hjáleigunni Vatnskoti. Gatan kallast hins vegar Skógarkotsgata þegar hún er farin til norðurs. Þriðja gatan nefnist Veiðigata og liggur suður að veiðistað bæjarins við Öfugsnáða.
Hrauntúnsgata kallast leiðin á milli Skógarkots og hjáleigunnar Hrauntúns. Hún liggur til norðurs frá bæjarrústunum í Skógarkoti, fram hjá brunninum í túninu og þaðan eftir Brúnum. Önnur leið, er nú kallast Nýja-Hrauntúnsgata, var lögð vestan og samhliða þeirri gömlu á fyrri hluta 20. aldar. Hún liggur eftir vestari hluta túngarðsins í Skógarkoti norður að Hrauntúni og heldur svo áfram norður að Ármannsfelli.

Þingvellir

Þingvellir – kort.

Frá Skógarkoti liggja tvær leiðir norðvestur að Leirum. Önnur þeirra er Krókhólagata, sem krækir fram hjá Krókhólum og fer svo um Sandhólastíg hjá samnefndum hólum. Hin leiðin nefnist Miðhólagata og er óstikuð. Hún liggur til norðurs frá Skógarkoti, tekur svo mið á Miðhóla og fer þaðan um Leirastíg inn á Leira.
Tvær nafngreindar götur liggja til austurs og norðausturs frá Skógarkoti. Báðar eru þær óstikaðar. Hellisgata liggur austur að fjárhelli bæjarins á Hellishæð og er merkt með gömlum vörðum á stöku stað. Hin heitir Gapahæðagata og liggur um Mosalág norðaustur að Gapahæðum og Raftviðarhlíð.“ – Gunnar Grímsson tók greinina saman.

Heimild:
-https://www.thingvellir.is/fraedsla/ornefni/s/skogarkot/

Þingvellir

Þingvellir – í Skógarkoti.