Forvarnardeild lögreglunnar í Reykjavík – upphaf og lok
Eftirfylgjandi er svolítill fróðleikur um „Forvarnadeild lögreglunnar í Reykjavík“ til handa þeim er fátt vita, en gætu samt sem áður haft svolítið gaman af því sem lítið hefur verið skrifað um:
„Forvarnadeild Lögreglunnar í Reykjavík var formlega stofnuð í ágústmánuði árið 1988. Stofnun hennar markaði ákveðin tímamót í íslenskri löggæslusögu þar sem í stað þess að einblína eingöngu á hefðbundin viðbrögð og rannsóknir afbrota, var settur aukinn kraftur í markvissar og skipulagðar afbrotavarnir með það að markmiði að reyna að draga úr þörfinni á nauðsynlegum viðbrögðum.
Helstu atriðin um upphaf og fyrstu ár deildarinnar, þ.e. hlutverk og fyrstu verkefni höfðu verið ákveðin. Yfirmaður og forstöðumaður deildarinnar frá upphafi var Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann hafði þá lokið námi hjá FBI-National Academi (FBINA), fyrstur Íslendinga, þar sem áherslan var m.a. lögð á fyrirbyggjandi starfsemi löggæslustofnana.
Meginmarkmið Forvarnadeildarinnar frá upphafi var að vinna að öflugum forvörnum og koma í veg fyrir afbrot áður en þau ættu sér stað. Helstu viðfangsefni deildarinnar á fyrstu árunum skiptust í nokkra lykilflokka.
Unglingadrykkja á framhaldskólasamkomum
Skemmtanir framhaldsskólanna þóttu keyra fram úr hófi. Fregnir bárust um sérstaka „Dauðaklefa“ ofdrukkina. Farið var í saumana á vandanum. Niðurstaðan var að lögreglan heimilaði ekki lengur fleiri slíkar „skemmtanir“ framhaldsskólanna. Fulltrúar þeirra brugðust reyndar illa við, en eftir nokkra fundi með hlutaðeigandi náðist samkomulag um nauðsynlegar úrbætur – til mikilla betrumbóta.
Úrbætur til handa útigangsfólki
Lögreglan þurfti á þessum tíma að hafa regluleg afskipti af útigangsfólki í borginni. Það annars ágæta fólk gisti jafnan fangageymslurnar að kvöld og næturlagi. Sérhvern morgun voru þessir einstaklingar teknir í viðtal hjá áfengis- og forvarnafulltúa lögreglunnar með það að markmiði að leiðbeina þeim til betri staða. Það voru því ófáar ferðirnar á áfangaheimilin, sem þá stóð þessu fólki til boða.
Almannatengsl og fræðsla
Að efla samskipti lögreglu við almenning, standa fyrir fræðslufundum og gefa út efni um mikilvægar afbrotavarnir. Gefnir voru t.d. út bæklingar til starfsfólks verslana um aðgerðir og viðbrögð við búðarhnupli (sem þá þótti verulegt vandamál). Annar bæklingur fylgdi í kjölfarið til eigenda slíkra verslana varðandi æskilegar aðgerðir til að fyrirbyggja vandann með tilteknum aðgerðum.
Gefnir voru út bæklingar til íbúðareigenda um æskilegan læsingarbúnað hurða og glugga til að minnka líkur á innbrotum (sem þá voru veruleg vandamál). Sérstakur forvarnarfulltrúi aflaði sér upplýsinga um það besta sem markaðurinn bauð upp á og miðlaði þeim fróðleik markvisst í húseigenda.
Fíkniefna- og áfengisvarnir: Mikil áhersla var lögð á barna- og unglingamálefni með vísan til vaxandi áfengisneyslu, einkum landaneyslu (sem var í raun verulegt vandamál). Foreldrar voru hvattir til að virða útivistartíma barna sinna. Hverfafundir voru haldnir. Vandamál höfðu m.a. skapast í Efra-Breiðholti varðandi skemmdarverk og áfengisneyslu ungmenna. Í framhaldinu opnaði lögreglan nýja lögreglustöð í Eddufelli, í fyrrum húsnæði Landsbankans. Valdir voru til starfans útvaldir lögreglumenn er höfðu haft lag á að umgangast ungmenni. Þeim tókst á undraverðum tíma að uppræta vandan, reyndar með góðum stuðningi skóla-, félagsmála- og íbúarsamtakanna, auk þess sem þeir upplýstu fleiri „bruggmál“ en áður hafði þekkst.
Eftirminnilegur er fundur hlutaðeigandi aðila í aðdraganda verkefnisins; sest var niður og fulltrúi lögreglu spurði: „Hvaða einstaklingar eru valdir að vandanum?“ Svarið var: „Við erum bundnir trúnaði, getum ekki svarað því“. Fulltrúinn dró þá úr pússi sínu nafnalista og lagði á borðið. Eftir að aðrir viðstaddir höfðu litið yfir listann var niðurstaðan; „Bregðumst við!“
Deildin tók virkan þátt í víðtæku samstarfi við skóla og félagasamtök gegn vaxandi vímuefnaneyslu. Nágrannavarsla að ískri fyrirmynd var tekin upp í nokkrum hverfum borgarinnar með góðri þátttöku hlutaðeigandi íbúasamtaka. Árangurinn þótti fljótt umtalsverður. Glæður slíkrar nágrannagæslu lifir enn í sumum hverfum höfuðborgarsvæðisins.
Miðborgin
„Lögreglan var nánast viðvarandi um allar helgar með verulega aukin mannskap á aukavöktum við gæslu í miðborginni vegna mikillar drykkju og skrílsláta, með tilheyrandi kostnaði. Forvarnadeildin bauð forsvarsfólki veitingafólks til fundar. Niðurstaðan var að efna til námskeiðs fyrir dyravarði og efla samstarf beggja aðila til skilvirkari viðbragða, auk þess að efna til funda með borgaryfirvöldum um uppsetningu eftirlitsmyndavéla á miðborgarsvæðinu. Hið síðastnefnda féll í grýttan jarðveg hjá viðkomandi í fyrstu, en eftir að hafa sýnt fram á að gjörningurinn gæti ekki gert neitt annað en að auka öruggi bæði borgaranna á svæðinu sem og lögreglumanna við gæslustörf var samþykkt að setja upp eftirlitsmyndavélar á nokkrum mikilvægum stöðum. Borgin kostaði uppsetninguna, en lögreglan annaðist umsjón og eftirlit. Niðurstaðan varð sú í framhaldinu að þörf á auknum mannskap lögreglu í miðborginni reynist óþarfur.
Slysavarnir og umferðaröryggi
Unnið var að forvörnum í umferðarmálum og slysavörnum almennt. Athyglinni var markvisst beint að ungum ökumönnum. Umferðarlögunum var breytt í kjölfarið líkt og nú þekkist með það að markmiði að efla vitund og ábyrgð hlutaeigenda þegar út í umferðina var komið. Þetta verkefni tók á, enda skiptar skoðanir á málefninu, en þegar upp var staðið voru nánast allir hlutaðeigandi sammála um nauðsynlegar aðgerðir. Samgöngustofa var í framhaldinu stofnuð í grunni fyrrum Umferðarráðs.
Áhrif og breytingar í samfélaginu
Forvarnadeildin vann náið með öðrum stofnunum (svo sem Barnaverndarstofu) og átti meðal annars þátt í baráttu og undirbúningi fyrir stórar áhrifaríkar samfélagsbreytingar. Á þessum árum var til dæmis unnið að því að hækka og lögbinda sjálfræðisaldurinn í 18 ár, koma á opinberri ökurferilsskrá ásamt punktakerfi í umferðarlögum og grípa inn í þegar ástandið á framhaldsskólaskemmtunum þótti keyra úr hóf fram vegna áfengisdrykkju, sem fyrr greinir. Deildin bannaði m.a. skemmtanir framhaldsskóla er höfðu þótt ámælisvarðar og efndi til funda um nausðnynlegar úrbætur.
Unglingaheimili ríkisins var og síðar breytt frá því sem áður var í Barnaverndarstofu með þáttöku lögreglu.
Skipulagsbreytingar
Í upphafi heyrði forvarnadeildin undir rannsóknardeild lögreglunnar. Við miklar skipulagsbreytingar á löggæslumálum þáverandi stjórnvalda sem tóku gildi þann 1. júlí árið 1997 var deildin hins vegar færð yfir í almenna deild lögreglunnar. Við þau tímamót urðu einnig yfirmannabreytingar þegar Ómar Smári færði sig yfir í fíkniefna- og síðar auðgunarbrotadeild og starfsemin breyttist.
Í dag, eftir sameiningu lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu, er þessu sérhæfða forvarnastarfi viðhaldið í gegnum breytt skipulag. Með því hvarf reyndar grunnurinn að kerfisbundinni fræðslu og samfélagslöggæslu á vegum lögreglunnar sem hófst haustið 1988 – illu heilli.
Framangreint er einungis örlítil frásögn af starfi og umfangi forvarnadeildarinnar fyrrum – til upplýsinga fyrir þá/þær er ekki þekkja söguna. Ekki hefur þó t.d. verið þar getið um starfsmennina, s.s. Börk Skúlason, Björn Ágúst Einarsson, Jón Arnar Guðmundsson, Ólaf Guðmundsson, Arnar Jenson, Axel Kvaran o.fl.. Þessir starfsmenn báru uppi starfsemina á þessum tíma, auk m.a. dugnaðar starfsmanna Breiðholtsstöðvar, Einars Ásbjörnssonar og Péturs Sveinssonar. Þeim þætti forvarnastarfsins verður gerð nánari skil síðar…
Framangreint er einungis stutta sagan af starfi Forvarnadeildar lögreglunnar í Reykjavík og starfsmanna hennar, til fróðleiks áhugasamra um efnið, enda einungis gerð til að halda henni til haga í áframhaldandi stafrænu formi. Ekki eru birtar myndir af einstökum áföngum, enda starfaði hún fyrir tíma stafrænna myndbirtinga.









