Systkinalundur
Gunnlaugur Kristmundsson kennari og Sandgræðslustjóri var einn af stofnendum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Hann fæddist á Þverá í Núpsdal í Vestur-Húnavatnssýslu 1880, tók gagnfræðapróf og kennarapróf frá Flensborg 1905. Hann kynnti sér sandgræðslumál í Danmörku og kenndi á vetrum en sinnti sandgræðslu á sumrin frá 1907.
Gunnlaugur kenndi við Barnaskóla Hafnarfjarðar 1914 til 1942 er hann var skipaður Sandgræðslustjóri við stofnun embættisins. Því starfi gegndi hann til 1947, en hann andaðist 1949.
Þegar ljóst var vorið 1947 að ekki yrði hægt að hefja ræktunarstarf við Hvaleyrarvatn stakk Gunnlaugur upp á því að hefja gróðursetningu í skjólsælum hraunbollum í norðanverðu Gráhelluhrauni, sem var fyrsta ræktunarsvæði félagsins.
Guðmundur bróðir Gunnlaugs var bóndi í Sveinskoti á Hvaleyri til 1949 er hann lést. Ingibjörg systir þeirra var ráðskona Guðmundar um árabil og eini erfingi bræðra sinna sem voru báðir ókvæntir. Þegar Ingibjörg andaðist 1952 lét hún eftir sig erfðaskrá og gaf stóran hluta eigna sinna til að stofna „Skógræktarsjóð Guðmundar og Gunnlaugs Kristmundssona og Ingibjargar Kristmundsdóttur“ til að efla skógrækt í Hafnarfirði eða í nágrenni kaupstaðarins.
Sumarið 1989 var afhúpaður minningarsteinn um systkinin í Systkinalundi í suðurhlíðum Húshöfða.
Heimild:
-Fjarðarfréttir 1. okt. 2026, Systkinalundur.











