Entries by Ómar

Sjórinn brýtur land á Reykjanesskaganum

Ólafur við Faxafen, eins og höfundur nefnir sig, skrifaði um „Hæð sjávarborðs við strendur Íslands“ í tvö tbl. Náttúrufræðingsins árið 1947: „Landið stendur ekki kyrrt, það hækkar og lækkar undir fótum vorum. Það gerir það nú, það gerði það fyrir hundrað árum, fyrir tvö hundruð árum, og hefur sennilega gert það frá landnámstíð, ef það […]

Fagradalshraun – rangnefni

Í 12. lið fundargerðar Bæjarráðs Grindavíkur þann 5. maí 2021 má lesa eftirfarandi um örnefnanefnu í Fagradalsfjalli: „Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall – 2103090. Lögð fram umsögn Örnefndanefndar á heiti á nýju hrauni og gígum í mótun við Fagradalsfjall. Með vísan til laga nr. 22/2015 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að nýtt […]

Hellarnir á Lyngdalsheiði – Vilmundur Kristjánsson

Á Mbl.is þann 10.01.1999 er fjallað um „Hellana í Lyngdalsheiði„. „Á Lyngdalsheiði eru nokkrir afar merkilegir hellar sem vert er að kíkja á og fara ofan í sé gát höfð á. Vilmundur Kristjánsson fór í skoðunarferð og segir að meðal nauðsynja í slíka ferð séu hjálmar, ljós, hlýr fatnaður, reipi eða stigi og félagar. Upphaflegi […]

Mosfell – fornleifarannsókn við bílaplan

Árið 2018 fór fram fornleifarannsókn vegna framkvæmda við bílaplan við Mosfellskirkju. Í framhaldinu var skrifuð skýrsla; „Mosfell í Mosfellsdal – Framkvæmdir við bílaplan austan við kirkjuna„. Höfundur var Ragnheiður Traustadóttir. „Saga Mosfells Í skýrslunni „Skráning fornleifa í Mosfellsbæ„, sem var gefin út árið 2006 er rakin saga Mosfells og er bæjarstæðið skráð ásamt kirkjunni sem […]

Bergsprungur og misgengi í nágrenni Reykjavíkur – Jón Jónsson

Jón Jónsson, jarðfræðingur, skrifaði um „Bergsprungur og misgengi í nágrenni Reykjavíkur“ í Náttúrufræðinginn árið 1965: „Inngangur Grein sú sem hér fer á eftir er byggð á athugunum, sem segja má að hali byrjað með jarðfræðilegri kortlagningu af nágrenni Reykjavíkur, sem við Tómas Tryggvason unnum að sumarið 1954. Fékk ég þá í minn hlut suðurhluta svæðisins, […]

Kvikuhólf/kvikuþró í gosbeltum Íslands – Ágúst Guðmundsson

Í Náttúrufræðingnum árið 1987 fjallar Ágúst Guðmundsson um „Kvikuhólf í gosbeltum Íslands„. „Inngangur Jarðeðlisfræðilegar rannsóknir á síðustu árum benda til þess að möttullinn undir Íslandi sé að hluta bráðinn niður á nokkur hundruð kílómetra dýpi (Beblo & Axel Björnsson 1980, Kristján Tryggvason o. fl. 1983). Víðast er kvikan aðeins fáeinir hundraðshlutar af rúmmáli möttulsins, stærstur […]

Árnahellir – friðlýsing

Í Dagblaðiðinu Vísi árið 2002 er fjallað um friðlýsingu „Árnahellis“ í Ölfusi. „Árnahellir í Ölfusi friðlýstur: „Einstakar dropasteinsmyndanir á heimsvísu – segir Árni B. Stefánsson sem fann hellinn fyrir 17 árum. Umhverfisráðherra undirritaði í gær friðlýsingu Árnahellis í Leitarhrauni í Ölfusi. Árnahellir er annar hellir landsins sem er friðlýstur með sérstakri friðlýsingu. Árni B. Stefánsson […]

Litli Ratleikur Hafnarfjarðar 2021

Litli Ratleikur Hafnarfjarðar er ætlaður sem hvatning til útiveru í og við byggðina í Hafnarfirði. Litli Ratleikur 2021 hefur 15 nýja áhugaverða staði sem m.a. vekja athygli á sögunni. Leikurinn er samvinnuverkefni Fjarðarfrétta og Hafnarfjarðarbæjar. Guðni Gíslason lagði leikinn. Hann er á vefsíðu Fjarðarfrétta og er aðgengilegur hvenær sem er. Þú ræður hvernig þú nýtir […]

Litli Ratleikur Hafnarfjarðar 2020

Litli Ratleikur Hafnarfjarðar er nýr ratleikur sem fór af stað í miðjum kórónafaraldri árið 2020 og er ætlaður til að hvetja fólk til að njóta útivistar um leið og það lærir um fróðlega staði í útjaðri bæjarins og í bænum sjálfum. Leikurinn er samvinnuverkefni Fjarðarfrétta og Hafnarfjarðarbæjar. Guðni Gíslason lagði leikinn. Litli Ratleikur er frábrugðinn […]

Um Kjós – „Talir þú gott, þá lýgur þú“

Í Alþýðublaðinu, helgarblaði, segir m.a. um Kjós; „Talir þú gott, þá lýgur þú„. „Kjósin lætur ekki mikið yfir sér, þegar maður virðir hana fyrir sér af þjóðvegjnum. En hún er ekki öll þar sem hún er séð. Hún leynir á sér. Og þetta er falleg sveit og búsældarleg, þótt hér verði hvorki tíunduð fegurð hennar […]