Entries by Ómar

Sagnakvöld III – Sel og selstöður á Vatnsleysustrandarheiði

Eftirfarandi er úr erindi ÓSÁ um sel og selstöður á Vatnsleysustrandarheiði, sem flutt var á Sagnakvöldi í Kálfatjarnarkirkju 19. janúar 2006: „Ætlunin er að reyna að gefa svolitla innsýn í 10 alda sögu seljanna ofan við Kálfatjörn og Ströndina á innan við 20 mínútum. Stikklað verður á stóru. Byggðin á Vatnsleysuströnd var frá upphafi svo […]

Búrfell – Ólafsskarðsvegur – Hlíðarendasel – Geitafell

Genginn var slóði upp á Búrfell í Ölfusi. Þegar upp var komið var gengið inn á þjóðleiðina, sem nú er merkt sem slík um Ólafsskarðsveg vestan fellsins og honum fylgt áleiðis að Geitafelli. Í örnefnaskrá segir hins vegar að „um [Ólafsskarð] liggur Ólafsskarðsvegur, og áfram suður með Bláfjöllum, um Þúfnavelli norðan við Geitafell, niður hjá […]

Maístjarnan – Húshellir – Aðventan

Hríðarbylur var þegar lagt var af stað í fylgd jeppamanna á stórum dekkjum um Djúpavatnsveg að Hrútargjárdyngju. Ætlunin var að skoða Húshelli og Maístjörnuna, tvo af fallegri hellunum hér á landi. Talsverður snjór var á veginum sem og mikill skafrenningur til að byrja með. Reyndar sást enginn vegur. Ekið var þar um sem vegstæðið hafði verið […]

Virkishólar – Virkið – Loftskúti – Grænudalir

Gengið var frá Reykjanesbraut upp að Virkishólum og Grænudölum þar sem Loftskúti var skoðaður. Virkishólarnir sjást vel frá Reykjanesbrautinni skammt ofan við og norðan nýju gatnamótanna að Hvassahrauni. Þeir standa þrír saman og eru áberandi klettahólar með djúpum sprungum þvert og endilangt. Á milli þeirra er jarðfall með fyrirhleðslum, sem nefnist Virkið og var notað […]

Beitarhús (Jónsbúð/Jónsvörðuhús) – Krýsuvíkurheiði – íveruhús

Gengið var frá Arnarfelli í Krýsuvík til austurs yfir Krýsuvíkurheiði. Farið var yfir gróið þýfi, stigið yfir Eystrilæk og ekki staðnæmst fyrir en við stóra tóft efst á heiðinni; Jónsvörðuhús eða Jónsbúð, eins og hún er stundum nefnd. Þá var haldið yfir að öðru húsi skammt sunnar, þar sem heiðin tekur að halla undan áleiðis […]

Villingavatn í Grafningi

Þorgeir Magnússon, fæddur að Villingavatni 27. 3. 1896, og bjó þar frá 1925 til 1948. Þar bjó áður faðir hans, Magnús Magnússon, fæddur að Villingavatni 1. 6. 1858, frá 1887 til 1925. Þar áður Magnús Gíslason, fæddur að Villingavatni 21. 7. 1813 frá 1850 til l887. Þar áður Gísli Gíslason, fæddur á Þúfu í Ölfusi […]

Rauðhóll – Hellnahraun – Kapelluhraun

Gengið var frá íþróttahúsinu á Ásvöllum yfir að Rauðhól, síðan um Hellnahraunin yfir að Kapelluhrauni og hraunið skoðað milli iðnaðarsvæðisins og gasstöðvar Álversins. Þar er lægð í hrauninu, Leynir, sléttari en umhverfið og ef vel er að gáð má sjá þar mannvistarleifar á nokkrum stöðum. Rauðhóll er, eða öllu heldur var, sunnan undir Hvaleyrarholti. Þar […]

Vogsósasel – Hlíðarborg – Hlíðarsel – Hlíðargata – Hlíð

Gengið var frá Selvogsréttunum austan við Hlíðarvatn og upp í Selbrekkur neðst í svonefndu Rofi. Þar voru skoðaðar tóftir Vogsósasel við Stekkjardældir, sem sumir hafa álitið vera Hlíðarsel. Tóftirnar eru innan marka Vogsósa. Þórarinn, bóndi, staðfesti að um sel frá þeim bæ væri að ræða. Gengið var áfram austur Rofið og stefnan tekin á einn […]

Borgarhraunsrétt – Þórkötlustaðarétt

Núverandi Þórkötlustaðarétt í Þórkötlustaðahverfi var hlaðin af Grindavíkurbændum um aldamótin 1900. Grjótið var að að einhverju leyti tekið úr Vatnsheiðinni, auk þess sem kom upp úr túnsléttun í hverfinu og úr hraunhellunni umhverfis réttina. Hún var síðan endurbætt skömmu fyrir árið 2000. Réttin hefur ávallt þótt góð til síns brúks. Fyrrum var fé Grindvíkinga vel […]

Rauðhóll – Rauðhólssel – Þráinsskjaldarhraun

Gengið var frá Höskuldarvallavegi, til suðurs með gígum og yfir að Rauðhól, að Rauðhólsseli. Að því búnu var gengið um norðanverðan Þráinsskjöld að Þórustaðastíg og skoðuð ummerki í heiðinni norðan Keilis. Eins og svo víða á Reykjanesskaganum hafa sammsýnir menn dundað við að krafla utan af fallegum hraungígum og eldvörpum. Þannig hefur smám saman verið […]