Faldar hnitaskrár á FERLIRssíðunni

FERLIR

FERLIRssíðunni berast jafnan margar fyrirspurnir frá bæði kurteisu og öðru miður kurteisu fólki. Flestir segjast kunna að meta upplýsingarnar og fróðleikin sem í boði er. Margir biðja en einstaka frekjudallar heimta þó á stundum um hnit af einstökum stöðum.

Hnitaskrá

Hnitaskrá.

Þegar kurteisislegar ábendingar og beiðnir berast er þeim jafnan svarað samdægurs. Beiðendur fá þá jafnan nákvæm hnit af tilteknum eftirsóknarverðum, jafnvel áður ókunnum, stöðum, send. Frekjudallarnir fá engin svör. Þeir eru einfaldlega hunsaðir.
Málið er að baki FERLIRsferðunum rúmlega 3000 um sögu og minjastaði Reykjanesskagans liggur veigamikil „Hnitaskrá“. Skráin sú hefur ekki verið birt á vefsíðunni af a.m.k. tvennum ástæðum; í fyrsta lagi hefur síðan hingað til ekki boðið tæknilega upp á slíka birtingu og í öðru lagi felast í skránni viðkvæmar upplýsingar um einstaka staði, sem aldrei áður hafa verið birtar…

Ferlir

Hellirinn Ferlir í Brennisteinsfjöllum.