Grindavíkurstríðið 1532 – blóðug barátta um skreiðina
Í „Sjómannadagsblaði Grindavíkur 2026“ er umfjöllun um „Grindavíkurstríðið 1532“ undir fyrirsögninni „Blóðug barátta um skreiðina„. Engendingar sáu að staða þeirra við Ísland var orðin veik og óttuðust að missa síðustu bækistöð sína á Suðurnesjum [hafa ber þó í huga við lesturinn að Grindabvík er ekki á Suðurnesjum]:
„Vorið 1532 varð Grindavík vettvangur átaka sem sjaldan eru nefnd í almennri Íslandssögu en höfðu engu að síður mikil áhrif á verslun, sjósókn og samskipti Íslands við umheiminn. Þar mættust Englendingar, Þjóðverjar, Danir og Íslendingar í harðri baráttu um eina verðmætustu auðlind landsins, skreiðina.
Þessi átök voru síðar kölluð Grindavíkurstríðið. Þau stóðu aðeins í skamman tíma en voru hluti af lengri samkeppni um fiskimið Íslands og verlsun við landsmenn. Átökin sem hófust á Básendum en lauk með blóðugri árás í Grindavík mörkuðu tímamót í sögu verslunar og sjósóknar við Ísland.
Kapphlaup um gull hafsins
Á 15. og 16. öld var íslensk skreið mjög eftirsóptt útfluningsvara. Hún var flutt til Englands og meginlands Evrópu og seld með miklum hagnaði.
Erlendir kaupmenn sigldu hingað á hverju vori og reyndu að tryggja sér sem mestan fisk. Samkeppnin var svo hörð að kaupmenn hlupu stundum um og merktu sér fiskistafla um leið og þeir komu til landsins. Fiskurinn var brennimerktur með stöfum kaupmannsins, jafnvel áður en kaup höfðu farið fram. þannig reyndu menn að „helga“ sér aflann áður en aðrir næðu til hans.
Þetta leiddi til sífelldra deilna. Kaupmenn töldu sig eiga fisk sem aðrir höfðu merkt. Sumir höfðu samninga frá fyrra ári en aðrir voru fyrstir á staðinn. Erfitt gat reynst að leysa ágreining sem upp kom og oft enduðu mál með hótunum eða ofbeldi.
Samkeppnin var ekki tilviljun. Skreiðin var einfaldlega gulls ígildi. Einn skipsfarmur frá Íslandi gat skilað svo miklum verðmætum að hann greiddi allan kostnað við ferðina og skildi jafnvel eftir verulegan hagnað. Það er því ekki undarlegt að kaupmenn hafi verið tilbúnir að taka áhættu og jafnvel berjast um fiskinn.
Englendingar höfðu lengi verið ráðandi í Íslandsverslun. Þeir fiskuðu einnig sjálfir við landið og höfðu bækistöðvar víða. Þegar þýskir Hansakaupmenn, einkum frá Hamborg og Bremen, fóru aðs ækja hingað í auknum mælii harnaði samkeppnin enn frekar. Árið 1532 var svo komið að Englendingar höfðu missr flestar hafnir síðinar við Ísland. Þeir héldu þó enn Grindavík og Vestmannaeyjum og á hvorum stað voru miklir hagsmunir í húfi.
Hamborg og Bremen
Vorið 1532 kom þýski kaupmaðurinn Ludtkin Smith til Básenda. Samkvæmt venju fékk sá sem fyrstur kom í höfn rétt til verslunar og ætlaði Smith sér að halda höfhninni. Skömmu síðar komu tvö ensk skip með fjölmennari áhafnir. Englendingar vildu fá að leggja í höfninni og versla þar. Smith neitaði og spennan jókst.
Engendingarnir undurbjuggu árás, en Smith fékk liðsauka frá Þjóðverjum og Íslendingum sem voru á svæðinu. Snemma morguns 2. apríl hófst bardagi. Þrátt fyrir að vera færri höfðu Þjóðverjar betur. Englendingar töpuðu, menn féllu og skip voru gerð upptæk.
Orrustan á Básendum varð upphaf Grindavíkurstríðsins. Englendingar sá að staða þeirra við Ísland var orðin veik og óttuðust að missa síðustu bækistöð sína á Suðurnesjum.
Vígi reist
Enska skipið Peter Gibson var í Grindavík þegar fregnir bárust af átökunum á Básendum. Skipstjórinn John Breye, sem íslendingar kölluðu Jáhann breiða, ákvað að vígbúast. hann lét reisa virki við búðir sínar og safnaði mönnum sínum saman.
Samkvæmt heimildum komu Englendingar stundum hart fram við heimamenn og reyndu að knýja fram viðskipti og Grindvíkingar kvörtuðu til fógeta Danakonungs á Bessastöðum, Diðriks frá Minden.
Fógetinn sá við þetta tækifæri til að bregðast við. Hann safnaði liði Þjóðverja og Íslendinga á Suðurnesjum og fékk einnig stuðning kaupmanna í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum náðist að safna saman um 189 manna liði. Ætlunin var að ráðast óvænt á Englendinga í Grindavík.
Blóðug nótt í Grindavík
Aðfaranótt 11. júní 1532 lagði liðið af stað. Englendingar höfðu ekki fengið fregnir af liðssöfnunni og voru margir þeirra við fiskveiðar en aðrir sváfu í búðum sínum [á Gerðavöllum]. Um klukkan tvö um nóttina hófst árásin. Menn fógetans réðust á Englendinga og bardaginn varð stttur en harður þar sem Englendingarnir náðu ekki að skipuleggja sig.
Um fimmtán Englendingar voru drepnir, þar á meðal Jóann Breiði. Aðrir flúðu til skipa sinna. Fimm ensk skip lágu á legunni fyrir utan Grindavík. Fjórum tókst að flýja en eitt strandaði og fórst. Árásarmenn náðu skipinu Peter Gibson og hlóðu herfanginu um borð. Grindavík var komin á vald árásarmanna og þar með lauk í raun Grinsarvíkurstríðinu. Það sem hafði byrjað sem kapphlaup um fiskstafla hafði endað með vopnaðir árás og mannfalli.
Aleiðingar og minjar
Þótt átökin hefðu verið stutt urðu afleiðingarnar langvarandi. Englendingar misstu síðustu bækistöð sína á meginlandi Íslands og staða þeirra virtist veikjast verulega. Á næstu árum dró mjög úr enskum siglingum til landsins. Þjóðverjar styrktu hins vegar stöðu sína, sérstaklega í Hafnarfirði, og verslun þeirra jókst. Danakonungur sá einnig tækifæri til að efla vald sitt og þróunin leiddi síðar til einokunarverslunar Dana á Íslandi.
Á þessum tíma var Grindavík mikilvægasta verslunarhöfn landsins. þar komu erlendi kaupmenn og fiskur var verkaður og fluttur út. Enn í dag má sjá minjar sem tengdar eru þessum atburðum, m.a. ofan við Stóru-Bót þar sem hóll er sagður leifar af virki Englendinga. Vestar má sjá garða sem tengdir eru við búðir Þjóðverja.
Þessi svæði minna á þann tíma þegar Grindavík var alþjóðleg verslunarhöfn og vettvangur átaka milli stórvelda. Skreiðin var gull Íslands og erlendir kaupmenn voru tilbúnir að leggja mikið í söurnar til að ná henni.
Með Grindavíkurstríðinu lauk ensku öldinni við Ísland og nýtt tímabil hófst.“
Heimild:
-Sjómannadagsblað Grindavíkur 2026, Grindavíkurstríðið 1532 – Blóðug barátta um skreiðina, bls. 75-76.

















