Jarðeldar á Reykjanesskaga – Björn Hróarsson

Fagradalsfjall

Eftirfarandi er lýsing Björns Hróarssonar, jarðfræðings, á jarðfræðikorti ISOR af Reykjanesskaganum:

Búri

Björn Hróarsson í Búra fyrsta sinni.

„Meðfylgjandi kort (stolið frá Ísor) af hraunum úr síðustu gliðnunar/eldgosa tímabilum á Reykjanesskaganum gefa sterkar vísbendingar um lengd núverandi gliðnunar/eldgosa tímabils í árum:
Fyrir 3100 – 3500 árum = um 400 ár (frekar ónákvæmt)
Fyrir 1900 – 2500 árum = um 600 ár (frekar nákvæmt)
Fyrir 800 – 1240 árum = um 440 ár (mjög nákvæmt)
Því auðvelt að álykta sem svo að núverandi eldvirkni-tímabil muni standa í 400 til 600 ár og gliðnunin deilast á virku hrinurnar á þessum árum.
Núverandi hrina virðist í andarslitrunum, líklega eitt eldgos fljótlega en síðan líklega hlé í marga áratugi þótt ómögulegt sé að segja til um það.
Kortið sýnir einnig vel hvað hraunin úr núverandi hrinu þekja fáa ferkílómetra miðað við eldvirkni-tímabilin fyrir 1900-2500 árum og 800-1240 árum.
Líklegt má telja að eftir um 500 ár muni hraun úr núverandi eldvirkni-tímabili þekja álíka marga ferkílómetra á skaganum og fyrri hrinur skildu eftir sig – það er guli liturinn þeki stærra svæði en sá bleiki og appelsínuguli.“

Jarðfræðikort ISOR

ISOR – jarðfræðikort af Reykjanesskaga.