Kálfatjarnarvöllur – skilti

Kálfatjörn

Á vesturgafli golfskálans á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysuströnd er skilti. Á því má lesa eftirfarandi:

Kálfatjörn

Kálfatjarnarbáturinn í blómabreiðu, án yfirbreiðslu, líklega 1980-1990. Kálfatjarnarkirkja er í bakgrunni, ein stærsta sveitakirkja á landinu.

„Upphaflega voru þrjár kirkjur í hreppnum, hálfkirkjur í Kvíguvogum (vogum) og Vatnsleysu, en aðalkirkja á Kálfatjörn sem líklega hefur verið kirkjustaður frá upphafi kristins siðar hér á landi. Hálfkirkjurnar hafa lagst niður fyrir löngu, líkleg aum siðaskipti. Aðalkirkjan á upphaflega að hafa staðið á Bakka en vegna landbrots af sjávargangi var hún flutt að Kálfatjörn. Fram til 1824 var torfkirkja á Kálfatjörn. Var þá reist ný kirkja með torfveggjum, en timburþaki. Rigningarvatn rann þó af þakinu inn í kirkjuna svo innviðir að sunnanverðu fúnuðu. Varð kirkjan því endingarlítil. Árið 1844 var komin þar timburkirkja sem ekki heldur stóðst tímans tönn, var rifin og ný timburkirkja reist á árunum 1863-64. Kirkjan sem nú stendur var reist árið 1893 og er með stærstu sveitakirkjum landsins.

Kringum stórjarðir og kirkjustaði mynduðust oft hverfi af smábýlum (kot), sem fengu kýrgrasvöll (túnblett). Þau sem ekki nutu þeirra hlunninda voru kölluð þurrabúðir eða tómthús. Smábýli í landi Kálfatjarnar voru Fjósakot, Móakot, Hátún, Goðhóll og Naustakot og utan golfvallarsvæðis Hlið, Litlibær, Bakki, Bjarg, Borgarkot, Hólakot, Árnahús og Bakkakrókur.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – örnefni.

Hlutverk grjóthleðslanna var að verja tún ágangi búfjár. Heiðargarðurinn náði utan um stóran hluta hverfisins og var ætlað það hlutverk að verja túnin þeim megin er að heiðinni snúa. Sum kotanna höfðu svo grjóthleðslur um sína túnparta. Grjóthleðslur við og utan um kotbýlin sjálf voru svo í flest öllum tilfellum til að verja matjurtagarða. Gamla sjóvarnagarða til varnar túnum má líka finna í Kálfatjarnarhverfi.

Bærinn á Kálfatjörn stóð því sem næst í miðju túni á allstórum bala vestan kirkjunnar. Allt umhverfis kirkjuna er grafreiturinn eða kirkjugarðurinn, þó aðallega austan megin. Umhverfis grafreitinn er hlaðinn garður úr grjóti og sniddu sem hefur þjónað því tvíþætta hlutverki að verja grafreitinn ágangi búfjár, en einnig og ekki síður sem aðhald og brún þeirra moldarfyllingar, sem gera þurfti sökum þess hversu jarðvegurinn er grunnur.

Golföllurinn fyrr og nú
1. braut – Margrétarflöt
KálfatjörnÁ Hátúnshæðinni hefst golfhringurinn. Slegið er með og yfir Heiðargarðinn, hægra megin við Fjóaskot á Margrétarflöt en svo heitir túnið austan við kotið. Fjósakot sem var með hæstu bæjarstæðum allra bæja í Vatnsleysustrandarhreppi var lítið grasbýli frá kirkjujörðinni og fór í eyði um 1920. Þar sér nú aðeins fyrir grjóthrúgu en moldin úr rústunum var tekin til uppfyllingar í kirkjugarðinn á Kálfatjörn. Fyrsta og áttunda flötin liggja við svonefndar Kotagirðingar. En Kotagirðingar Móakots og Fjósakots voru hlaðnir garðar umhverfis dálitla móa, er næstir voru túnum, ætlaðir til kúabeitar.

2. braut – Utangarðs
KálfatjörnAustan við fremri teiginn við heiðargarðin er vatnsstæði í sprungu á Stóru-Klöpp, kallast vatnsstæðið Gjáin eða Gjáarvatnsstæði. Skammt suðvestur frá því, nær Fjósakoti, var fiskbyrgi, kallað Baráttubyrgi. Þar sér nú aðeins í undirstöðuna en gróið svæðið í kringum er eflaust vegna þess fiskúrgangs sem fallið hefur til og verið góður áburður. Slegið er yfir þar sem Heiðargarðurinn lá og er flötin nú þar sem áður var grýtt moldarflag.

3. braut – Klöpp
Við teiginn á Klöpp er stórgrýtt hrúga, líklega einhver hleðsla, við hestaslóð sem lá þarna fyrir löngu síðan og sást móta vel fyrir. Hestaslóðin lá upp með Hátúnshæðinni að sunnanverðu, við klöppina og það inn eftir að Stefánsvörðu. Nú hefur breytt nýting á landi [af]máð þessi ummerki.

4. braut – Kría
KálfatjörnBrautin öll liggur vel fyrir ofan Heiðargarðinn og þar af leiðiandi athafnasvæði bóndans hér áður fyrr sem var í fjörunni og á túnum. Því er lítið af örnefnum á brautinni því eðlilega tengjast þau þeim svæðum þar sem mest var starfað. Við brautina var áður mikið kríuvarp.

5. braut – Goðhóll
Þegar farið er yfir Goðhólsrásina og Heiðargarðinn er komið á stórt tún sem heitir Land, einnig kallað Suðurtún, slétt og hólalaust fyrir utan eina hólbungu, allmikla um sig sem heitir Hallshóll, Hóllinn skilur að Landið og Naustakotstúnið. Sagt var að alltaf gerði rigningu þegar búið var að slá Hallshól. Um mitt Landið lá Kirkjugatan frá Hliði til Kálfatjarnar. Rétt ofan við götuna lá grjótstétt þvert yfir Goðhólstúnið, kölluð Kirkjubrú.

Kálfatjörn

Kirkjubrúin við Kálfatjörn.

Líklegt er að Kirkjubrúin hafi verið gerð til þess að auðvelda kirkjufólki för yfir Goðhólsrásins sem gat orðið hinn versti farartálmi í leysingum. Aftur er slegið yfir Heuðargarðinn og á Goðhóstúnið. Á klapparhól nyrst í túninu er Sundvarðan sem notuð var sem mið í Keili og gaf til kynna að rétt væri róið um Kálfatjarnarsund fyrir Markklettinn inná Leguna. Þar mátti láta litla dekkbáta liggja við ból. Úr Legunni var svo róið uppí Kálfatjarnarvör. Flötin liggur fyrir neðan Goðhól, við eitt útihúsanna. Goðhóll stóð á mörgum hólum, sem einu nafni heita Goðhólar. Goðhóll sem fór í eyði árið 1933 var tómthús frá kirkjujörðinni en hafði grasnyt. Þar mun síðast hafa verið búið í torfbaðstofu í Vatnsleysustrandarhreppi. Á kampinum fyrir neðan flötuna má svo sjá grunn af uppsátrinu, þar sem bátarnir voru teknir á land, skiparéttinni og neðar í fjörunni er Golhólsvör.

6. braut – Kirkjubraut
KálfatjörnÁ sjötta teig er gott útsýni yfir það athafnasvæði er tengist sjávarútvegi á Kálfatjörn. Þar má sjá hæstan og mestan úti í sjó, markklett, landamerki milli Þórustaða og Kálfatjarnar.
Við enda sóvarnargarðsins við teig var sjávarbyrgi Kálfatjarnar. Þar norður af er Snoppa (Hausaklöpp) þar sem þorskhausar voru hertir. Í Naustakoti (í byggð 1703) voru fjárhúsin eftir búsetu. Sunnan við Naustakot var fjárrétt og fast við hana að sunnan grasigróið gerði, kallað Hausarétt. Þar voru þurrkaðir þorskhausar í seinni tíð uns það lagðist niður með öllu á árum seinni heimstyrjaldarinnar.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – Sjóbúðin (Hólkot/Hóll).

Næst kampinum, mun lægra en túnið umhverfis, er Síkið sem nær sunður undir Sjávargötu. Í Síkið flæddi sjór í miklum flóðum um Rásina allt uppí Kálfatjarnarbrunn. Fast sunnan við Kálfatjörnina er Sjóbúðin. Þar eru rústir sjóbúðar er séra Stefán Thorarensen lét byggja, er hann var prestur og bóndi á Kálfatjörn 1857-1886. Sagt var að sjóbúð þessi rúmaði tvær skipshafnir, alls 16 menn. Þar mun býlið Hólkot (Hóll) hafa staðið en síðast er getið um búsetu þar í lok 17. aldar. Í seinni tíð mun búðin hafa verið notuð sem fjárhús. Aftur er leikið á Landinu og þegar á flöt er komið má finna lága hleðslu austan megin við hana sem eru leifar af Hestarétt þar sem kirkjugestir geymdu hesta sína.

7. braut – Krosshóll

Goðhóll

Goðhóll 1933.

Slegið er yfir Austurtún að grjótgörðum þeim er umlykja Móakotstúnið. Áður en farið er yfir garðinn, sunnarlega í Króknum, er dálítil lægð eða pollur sem kallaður var Víti. Þar mun býlið Árnahús líklega hafa staðið nærri en gárungarnir svo fært nafnið af pollinum yfir á kotið eins og sögnin um biskup og séra Hallgrím Pétursson bendir til: „Sagt er, að Brynjólfur biskup hafi eitt sinn vísiterað á Kálfatjörn og haft spurnir af manni er bjó þar í þurrabúð í túninu, Árnahúsi (Víti). Ekki þótti hann kirkjurækinn og reri til fiskjar á helgidögum. Biskup hafði tal af honum og fylgir það sögunni, að hann hafi veitt honum leyfi til þessara helgidagsbrota, er honum varð ljós fátækt hans og ómegð. Er séra Hallgrímur frétti þetta, orti hann:

KálfatjörnBiskupinn blessar hjalla
bila ei upp frá því,
krosshús og kirkjur allar
og karlinn, sem býr Víti í.“

Sunnan við tóftirnar af Móakoti er langur og hár hóll, Klapparhóll. Þar var talið að mikið af huldufólki byggi og því var hann einnig kallður Álfhóll. Móakot var grasbýli frá kirkjujörðinni og fór í eyði um 1940. Hverju sem það sætti var orðrómur um að enginn mætti búa þar lengur en 9 ár. Nær sjó er svo Móakotstjörn sem var mýrartjörn. Í fjörunni neðan Rásarinnar er Móakotsklöpp sem áður var landföst en þar eru fjörumörk Kálfatjarnar og Móakots.

8. braut – Móakot

Kálfatjörn

Kálfatjarnarvöllur – loftmynd.

Þegar horft er af Móakotsbakka til sjávar er stórt lón út af kampinum sem heitir Búðarlón og grandarnir sitt hvoru megin við, þara vaxnir, Búðarlónsgrandinn Syðri og Búðarlónsgrandinn Nyrðri. Þar er jafnan mikið fuglalíf. Slegið er yfir Móakotstún, á flötuna þar sem Kotagirðingar voru.

9. braut – Harðhaus
Slegið er yfir Harðhaus inná Fjóakotstún og þá á Hátúnstún. Nafnið Harðhaus er tilkomið vegna þess hve illa hóllinn fór illa með ljá bónda á Kálfatjörn í seinni tíð. Í miðju Hátúnstúni sem girt var grjótgörðum stóð Hátún sem var grasbýli frá kirkjujörðinni en fór í eyði um 1920. Árið 1941 var þar byggður sumarbústaður en föst búseta tekin upp aftur um 1960. Húsið hefur verið jafnað við jörðu. Litlu sunnar við flötina liggur Heiðargarðurinn sem áður hefur verið minnst á.“

Kálfatjörn

Kálfatjarnarvöllur -skilti.