Kambarétt – Drangaborg

Drangaborg

Kambarétt er í Kömbunum skammt neðan við undirgöng á Gamla Kambaveginum undir Nýja Kambaveginn. Drangaborg er í lágri hólaþyrpingu millum Núpa og Hveragerðis.

Kambarétt

Kambarétt

Kambarétt.

Um 1880 var ákveðið að leggja nýjan veg yfir Svínahraun og Hellisheiði og niður kamba. Vegavinnustjóri var Eiríkur Ásmundsson í Grjóta í Reykjavík og hefur vegurinn verið kenndur við hann, ýmist nefndur Eiríksvegur eða Eiríksbrú. Vegurinn var steinlagður og einkenni hans var að hann var lagður þráðbeinn yfir hæðir og lautir. Í Kömbunum gat vegurinn því orðið nokkuð brattur. Vegna þessa og að sjaldan var borið í hann var vegurinn sjaldan notaður og fékk Eiríkur á sig nokkra gagnrýni fyrir.

Eiríksvegur

Eiríksvegur (Eiríksbrú).

Enn sést móta fyrir Eiríksvegi þar sem hann liggur þráðbeinn ofan af Kömbunum. Segja má að vegurinn hafi verið aflagður 1895 þegar Gamli (1895) og síðar Nýi Kambavegur (voru í notkun til 1972) voru lagði um Kambana samhliða nýjum vegum yfir Hellisheiði og um Svínahraun.
Líklegt má telja að réttin sé frá þeim tíma er Eiríksvegur var lagður, eða frá því um 1880 og síðar.

Drangaborg

Drangaborg

Drangaborg.

Í Örnefnalýsingu fyrir Kröggólfsstaði segir: „“Helluvað: Er á Hengladalaánni sunnan Smjörþýfis, áður en hún fer að renna í gljúfrin niður fjallsbrekkuna. Vaðið er 5 km norðan við bæ og 2,8 km norðan við Drangaborg. Hengladalsá rennur nokkuð þröngt á þessum slóðum, við efstu brekkuna á Þjóðvegi 1 í Kömbum. Ekki er vitað á hvaða leið vaðið var notað.Árfarvegur árinnar er mjög grýttur og djúpir pyttir við suma steinana. Áin er fremur straumhörð og erfitt að fara yfir hana. Ekki sér til gatna á þessum slóðum.

Drangaborg

Drangaborg.

Þjóðsaga sem ég hefi heyrt hér í Ölfusi hermir. Þegar Karl þræll Ingólfs strauk frá honum af því að hann neitaði að byggja útsker það, sem guðirnir settu Ingólf á (Landnáma). Hann fannst þar, sem nú eru Reykir í Ölfusi. Hann bjó þar síðar. Þegar hann fór huldu höfði átti hann í mestu kröggum. Þá fæddi „kona hans“ son, sem þau nefndu Kröggólf. Hann byggði Kröggólfsstaði.“
Drangaborgin, sem er fremur lítil, er annars á gróinni lítilli upphleyptri hraunspildu, Drangahólum.

Heimild:
-Kröggólfsstaðir, örnefnalýsing.

Kambarétt

Kambarétt.