Seltjörn – íshús og náttúruvætti

Seltjörn

Flestir sem koma að Seltjörn (fyrrum nefnt Seljavatn í örnefnalýsingum) á mörkum Njarðvíkur og Grindavíkur veita athygli steinsteyptu húslíki við tjörnina.
Jón Steinar Sæmundsson skrifaði eftirfarandi þann 13. mars 2022 um þetta fyrirbæri, þ.e. „Íshúsið við Seltjörn„:

Seltjörn

Seltjörn – íshús.

„Við Seltjörn stendur gamalt, steinsteypt hús sem byggt var 1941 af útgerðamönnum [á Suðurnesjum og í Grindavík]. Húsið var notað sem íshús, ísinn sem tekinn var úr Seltjörn var notaður til kælingar á fiski í farskipum, skipum sem sigldu með fisk erlendis á stríðsárunum.
Seltjörn er nokkuð stór tjörn í sigdæld sunnan við Kvíguvogastapa ekki langt frá Stapanum, vegamótum Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar.

Seltjörn

Seltjörn – íshús.

Segja má að Seltjörn sé falin náttúruperla [reyndar en í fleiri en einum skilningi] þó svo að hún liggi þarna fyrir allra augum sem leið eiga um Grindavíkurveg. Búið er að leggja göngustíg umhverfis tjörnina svo gönguþyrstir geti svalað þorsta sínum.
Rétt norðan við tjörnina er Sólbrekkuskógur sem er lítill, skjólsæll í fallegum brekkum með góðum göngustígum. Þar má einnig finna rjóður með bekkjum, borðum og einnig grill.“

Seltjörn

Seltjörn – íshús.

Færri vita að fyrrum, einkum um og eftir aldarmótin 1900, sóttu íbúar sveitarfélaganna ísinn af tjörninni, vöfðu klumpana í strigapoka og báru þá á bakinu til síns heima. Vegur Grindvíkinga var lengri því þeir þurftu að fara um Skipsstíginn. Í þá daga var ísinn brytjaður niður er heim var komið í þeim tilgangi að lengja bæði svolítið líftíma ferskmetisins sem og beitunnar.

Seltjörn – náttúruminjar

Seltjörn

Seltjörn – náttúruvætti.

Seltjörn, Snorrastaðatjarnir og hluti Hrafnagjár, Grindavík, Reykjanesbæ (áður Njarðvík), Vatnsleysustrandarhreppi, Gullbringusýslu. Svæði frá Seltjörn til Snorrastaðatjarna, ásamt skógarreitum. Einnig syðsti hluti Hrafnagjár. Gróskumikill gróður í Snorrastaðatjörnum. Gróðursælir skógarreitir undir Háabjalla og í Sólbrekkum. Mikilvægur áningarstaður farfugla vor og haust. Hrafnagjá er misgengissprunga með fjölbreyttum gróðri. Kjörið útivistarsvæði.

Seltjörn

Seltjörn – göngustígur.

Svæðið er á opinberri náttúruminjaskrá Umhverfisstofnunar undir númerinu 109 vegna ríkrar náttúru, fjölbreytts gróðurs og jarðfræðilegs mikilvægis. Svæðið teygir sig yfir mörk nokkurra sveitarfélaga á Reykjanesskaga, þar á meðal Grindavíkur, Reykjanesbæjar (Njarðvíkur) og Voga (áður Vatnsleysustrandarhrepps). Gróðursælir skógarreitir finnast í Sólbrekkum  [Selbrekkum/Seltjarnarbjalla] og undir Háabjalla, og mikill gróðursæld einkennir Snorrastaðatjarnir. Svæðið er mjög mikilvæg viðkomustöð fyrir farfugla á vorin og haustin. Hluti Hrafnagjár, sem er mikilfengleg misgengissprunga (siggengi), afmarkar svæðið og hýsir sömuleiðis fjölbreyttan gróður.
Ekkert er minnst á þekktar fornleifar á svæðinu þrátt fyrir að hafa verið sett á náttúruminjaskrá árið 1996.

Heimildir:
-https://www.vf.is/pistlar/ishusid-vid-seltjorn
-https://ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/fridlyst-svaedi/

Seltjörn

Seltjörn og nágrenni – Minjar og örnefni (ÓSÁ).