Selvogsskilti – endurnýjun

Strandarkirkja

FERLIRsfélagar gáfu Selvogsbúum og Selvogskirkju þetta sögu- og minjaskilti fyrir mörgum árum.

Selvogur

Fulltrúi FERLIRs fer yfir uppdráttinn með Þórði Sveinssyni.

Efnið var m.a. unnið í nánu samstarfi við Þórarinn Snorrason á Vogsósum, Kristófer Bjarnason og Þórð Sveinsson, barnfæddum og uppöldum í Selvogi. Biskup samþykkti að kosta prentunina, en félagarnir greiddu fyrir undirstöðuna.
Veður og veðrun eiga það til að setja mark sitt á allt handverk mannsins. Það gerist bara smám saman. Það er þó fáum til gagns og gleði að sjá uppsett upplýsingaskilti afmást, eins og svo víða má sjá. Þegar frumkvöðlarnir hverfa á braut virðist engin/n hirða um að halda skiltunum við.
Nú er komið að endurnýjun endurnýjunnar í Selvogi. Biskup hefur samþykkt að kosta prentunina og FERLIRsfélagar munu annast framkvæmdina…

Ölfus

Selvogur – Minja- og örnefnaskilti (ÓSÁ).