Færslur

Gíslhellir

Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa gefið út gönguleiðabæklinginn Árnastígur/Skipsstígur.
BæklingurÁður hafa komið út sambærilegir bæklingar fyrir Garðsstíg og Sandgerðisveg. Um bæklinginn segir m.a. á innkápu: “Árnastígur og Skipsstígur eru fornar þjóðleiðir milli Grindavíkur og Njarðvíkur. Stígarnir eru víða markaðir í harða hraunhelluna. Aldur þeirra er óljós.
Upphaf Árnastígs er við Húsatóftir í Staðarhverfi (austan við golfvöllinn) og Skipsstígs við gatnamót Nesvegar og Bláalónsvegar ofan Járngerðarstaðahverfis í Grindavík. Leiðirnar koma saman ofan við Rauðamel og enda við Fitjar í Njarðvík.
Í opnu bæklingsins má

sjá kort af leiðunum. Árnastígur liggur með Sundvörðuhrauni, um Eldvarpahraunin, misgengi Klifgjár að Þórðarfelli og Stapafelli að gatnamótum Skipsstígs. Skipsstígur hefst í norðurjaðri byggðakjarna Grindavíkur og liggur með Lágafelli, um Skipsstígshraun, með Illahrauni, yfir Eldvarpahraun, fram hjá hverasvæði við Lat, yfir Vörðugjá, um Gíslhellislágar, yfir Rauðamel og áfram áleiðis að Fitjum í Njarðvík.
Leiðarlýsingin í bæklingnum byggir m.a. á númeruðum stikum sem Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa haft forgöngu um að setja upp með gömlu þjóðleiðunum. Jafnframt hafa þau gefið út hnitsett myndkort, AF STAÐ, með helstu þjóðleiðum á Reykjanesskaga.
Gönguleiðirnar eru tiltölulega greiðfærar, að mestu á sléttu hrauni. Áætlaður tími, sem tekur að ganga Árnastíg að Skipsstíg, er um 4 klst. Vegalengdin er um 12 km. Skipsstígur er um 18 km langur og tekur gangan um 6 klst.
SJF og ÓSÁ unnu bæklinginn fyrir Ferðamálasamtökin og VF úlitshannaði og prentaði.