Vilborgarkot

Vilborgarkot

Það ber ekki mikið á tóftum Vilborgarkots í landi Mosfellsbæjar, einni vestasta bæjarstæði sveitarinnar auk Elliðakots (Hellsikots) og Hólms. Bæjarstæðið var norðan núverandi Gunnarshólma, jarðar byggð út frá Geithálsi, sem fyrrum var byggt upp úr jarðnæði Vilborgarkots er þar áður var byggt út frá Elliðakoti.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – loftmynd.

Í „Örnefnaskrá fyrir Elliðakot og Vilborgarkot“ sem Guðlaugur R. Guðmundsson skráði, segir m.a.:
„Ég fór með Karli Nordahl að Elliðakoti 18. júlí 1978. Þar eru aðeins húsarústir eftir. Húsgrunnurinn stendur enn, en húsið brann 1949. Karl segir, að afi hans hafi byggt það 1887. Það var timburhús, en Elliðakot hafði þá verið í eyði. Krakkar, sem þar gistu, kveiktu í húsunum. Ósinn, sem Tryggvi nefnir Dugguós, kallar Karl Gudduós. Það er lækurinn, sem rennur frá Selvatni í Hólmsá og ræður merkjum Elliðakots til vesturs. Á herforingjaráðskortinu [1903] er lækur, nefndur Urðarlágarlækur. Karl segir, að enginn lækur hafi verið til með því nafni. Lækurinn hafi alltaf heitað (svo) Sellækur, en Urðarlágar eru upp með læknum.

Elliðakot

Elliðakot – uppdráttur ÓSÁ.

Ég ók með K[arli] Nordahl upp veginn fyrir ofan Elliðakot, ásinn, sem farinn er, heitir Dyngja. Vegurinn var hroðalegur, og komumst við ekki lengra en upp á háhrygginn og snerum þar við. Þegar ekinn er vegurinn að Elliðakoti, þá er til vinstri Elliðakot og Vilborgarkot, Gudduós og síðan Nónholtið og Miðmundahóll. [(Miðmundarhóll á teikningu.)]
Hann sagðist muna eftir Vilborgarkoti í byggð. Vilb[orgarkot] fór úr byggð 1905. Síðast bjó þar Pétur Ólafsson, flutti að Elliðakoti og bjó þar í 10 ár, síðan í Þormóðsdal.“

Vilborgarkot

Vilborgarkot og nágrenni – herforingjaráðskort 1903.

Í „Tímarit Hins íslenska bókmenntafélags“ árið 1886 segir m.a. um Vilborgarkot:
„Forn eydejörd, og hefur í eyed leigid fram yfir allra þeirra manna mine, sem nú eru á life, og hefur land þessarar eydejardar brúkad verid til beitar efter leife Bessastadamanna, bæde frá Hólme sem liggur í Gullbringusýslu, og lika frá Hellirskote, sem í þessare sýslu liggur, og er næste bær vid þessa eydejörd. Líka hafa þar stundum ábúendur á Hólme, heiskap haft og torfskurd En Hellerskots ábúendur hafa þar fyr er fáum árum efter ord-lofe Bessastadamanna uppbygdt fjárhús.

Vilborgarkot

Vilborgarkot 2026.

Nú á næst umlidnum vetre kom til greina, hvort brúkun þessa eydekots skylde ad meire riette Hólms edur Hellerskots ábúendum tilheyra meiga, og vard sú ending þess efter ellstu og bestu tnara underrietting, þeirra er hier í nálægd voru og til vissu, ad Vilborgarkot heyre til þessare sveit, en ecke Seltjarnarnesshrepp, og kyne því ekki Hólme ad fylgja, so sem eignarland þeirrar jardar. Jardardýrleika vita men ecke. Eigande er Kóngl. Majst. Ábúande er eingm sier i lage og eingm landskuld af sier í lage, en í þess stad brúka Hellerskots ábúendur grasnautn alla ásamt med sínum leigumála.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – fjárhús.

Jördin meina menn upp aptur byggjast mætte, þó med ervide og bágendum til tödu slægna fyrst um nockra tíma, og þyrfte þá greinelega ad skodast, hvad vidt landeign þessarar jardar ádr verid hafasem kunuger men meina ecke sie all-lítid, og i því vída líklegt til útheya slægna.
Jörð þessi, sem bygð hefir verið úr eyði fyrir rúmum 20 árum, er ekki talin í hinni síðustu jarðabók. Hún er enn í byggingu og er nú bæði bændaeign og þjóðeign. Hinn núverandi ábúandi heitir Björn Kaprasíusson. Peningr er: 1 kýr, 1 kvíga, 18 ær lembdar, 12 lömb, 1 hestr taminn, i hryssa. Allt eptirgjald 32 krónur; gelzt í peningum. Jörðin engjalítil og torfristulaus.“

Vilbrogarkot

Vilborgarkot – beðasléttur.

Fram hefur komið að Vilborgarkot hafi verið „forn eyðijörð“ fyrir tíma minni manna uns hún var byggð að að nýju fyrir 1866, en farið í eyði árið 1905.

Í dómsmáli nr. 31/1883 Umboðssjóðs Gullbringu- og Kjósarsýslu gegn Þorsteini Jónssyni er fjallað um Vilborgarkot:
„Með dómi, sem kveðinn var upp i aukarjetti Gullbringu og Kjósarsýslu 23. júní þ.á. af bæjarfógeta E. Th. Jónassen sem setudómara með tilkvöddum meðdómsmönnum, var hinn stefndi, Þorsteinn Jónsson, dæmdur sýkn af kærum og kröfum umboðsmannsins yfir þjóðjörðum Kjósar og Grullbringusýslu, en honum dæmdur málskostnaður frá áfrýjanda með 12 krónum.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – tóft.

Þessum dómi er að tilhlutun landshöfðingjans yfir Íslandi skotið til yfirdómsins með stefnu, dagsettri 15. ágúst þ. á., og hefur af hendi áfrýjanda
verið krafizt, að hinn stefndi verði dæmdur til að sleppa við umboðsmanninn yfir þjóðjörðum Kjósar og Grullbringusýslu og undir hans umráð svo sem eign landssjóðs þeim hluta Vilborgarkots, er því var útmældur úr landi þjóðjarðarinnar Hólms hinn 7. septbr. 1863, og telst 4 hdr. að nýju mati, svo og til að borga málskostnað fyrir báðum rjettum með einhverju nægilegu eptir yfirdómsins mati.

Vilbrogarkot

Vilborgarkot – fjárhús.

Tildrög þessa máls eru þau, að um vorið 1863 beiddi Jón Bjarnason nokkur amtmanninn í suðurumdæminu um leyfi að mega stofna nýbýli á eyðijörðinni Vilborgarkoti í Mosfellssveit. Amtmaðurinn bauð þá sýslumanninum í Gullbringu og Kjósarsýslu, þar sem nefnd eyðijörð lá, að gjöra áreið á staðinn til upplýsingar um takmörkin milli Vilborgarkotslands og næstu jarða, Hólms, Helliskots og Miðdals.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – Hólmsá og Gunnarshólmi fjær.

Þessa áreiðagjörð framkvæmdi og sýslumaður 21. júlí sama ár, en þar voru að eins við staddir, fyrir utan sýslumanninn, eigendur Helliskots og Miðdals, ábúandinn á Hólmi og hreppstjórinn í Mosfellssveit. En nefndur Jón Bjarnason var þar eigi við staddur, virðist hann og eigi hafa verið þar til kvaddur. Það, sem nefndir menn sögðu um landamerki Vilborgarkots, virðist mjög ógreinilegt, er meðfram kann að koma til því, að áreiðargjörðin öll er bókuð á dönsku máli, er þeir varla munu hafa skilið; eptir þvi, sem þar segir, eiga þeir og að hafa sagt, að Vilborgarkotsland hefði í ómunatíð verið notað frá Hólmi og Helliskoti til slægna og mótaks; það mundi rýra Hólmsland, ef þar yrði aptur sett byggð, en þó mundi við hið nýja jarðamat eigi hafa verið haft tillit til þessara afnota af Vilborgarkotslandi, er Hólmur var metinn til dýrleika.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – uppdráttúr ÓSÁ.

Amtmaður skipaði nú sýslumanni að gjöra nýja áreið á landið, því Jón Bjarnason væri farinn að yrkja það og byggja þar bæ, en auðsjeð væri, að Vilborgarkot yrði að vera afbýli en ekki nýbýli; eptir tilskipun 15. apríl 1776 væri slík áreiðargjörð nauðsynleg bæði til að ákveða afgjaldið, og land það er þessu koti ætti að fylgja.
Sýslumaður gjörði þá aptur áreið á landið með 4 tilkvöddum mönnum til að mæla út land handa Jóni Bjarnasyni úr Vilborgarkotslandi, og mætti þar oft nefndur Jón Bjarnason og eins eigandi Helliskots. Mennirnir úthlutuðu nú landi til handa Jóni með ummerkjum, og möttu það 8 hdr. að dýrleika, 4 hdr. frá Hólmi og 4 hdr. frá Helliskoti, og landskuld 2 vættir, aðra til Hólms, en hina til Helliskots.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – tóft.

Sýslumaðurinn, sem og var umboðsmaður kongsjarðanna í Kjósar- og Grullbringusýslu — en ein af þeim jörðum er Hólmur — áskildi sjer rjett til að gefa út byggingarbrjef handa Jóni að því helming hins útmælda lands snerti; en Jón Bjarnason kvaðst álíta, að sjer bæri rjettur til þess að heimta sjer landið ritmælt með nýbýlisrjetti samkvæmt tilskipun 15. apríl 1776, og mótmælti, að Hólmur hefði torfristu í landi þvi, er sjer væri útvísað, en það hafði sýslumaðurinn áskilið. Amtið bar nú málið undir dómsmálastjómarherrann, og skýrði frá, að Jón Bjarnason hefði krafizt sjer landið ílagt sem nýbýli til óðals og eignar, en hann áliti, að það ætti að skoðast sem afbýli frá Hólmi og Helliskoti, og á þessa skoðun amtmanns fjellst dómsmálaráðherrann.

Vilborgarkot

Vilborgarkot – tóftir.

Jón Bjamason skeytti samt þessu ekki neitt, byggði á sinn eiginn kostnað bæ á landinu og borgaði ekkert eptir; leið svo og beið unz umboðsmaður kongsjarðanna í Kjósar og Grullbringusýslu 1872 höfðaði mál gegn Jóni Bjamasyni, sem, með því Jón andaðist meðan á málinu stóð, var haldið áfram gegn ekkju hans til lúkningar á landskuld af kotinu að helmingi. En það mál lyktaði þannig, að ábúandi Vilborgarkots var dæmdur sýkn af kærum og kröfum umboðssjóðs í þessu máli.
Nú er í þessu máli, eins og áður sagt, krafizt af áfrýjanda, að umráðamaður Vilborgarkots sleppi helmingi landsins við umboðssjóðinn.

Vilborgarkot

Vilborgarkot 2026.

Það er nú að vísu svo, að Jón Bjarnason mun ekki hafa fengið slíka tilvísun á landinu, sem tilskipun 15. april 1776 ræðir um, og að því engin sönnun er fram komin fyrir eignarrjetti hans eða eptirkomenda hans til Vilborgarkots eins og það var útmælt 7. septbr. 1863, en hinsvegar virðist það viðurkennt í áður nefndum amtsbrjefum, að Vilborgarkot hafi verið eyðijörð fyrir 1863 með sjerstakri landareign, og í áreiðargjörðinni 21. júlí 1863 er þess getið, að til sjeu landamerki fyrir Vilborgarkoti gagnvart Helliskoti og Miðdal og að nokkru leyti gagnvart Hólmi. Að vísu má álita sannað, að nokkur hluti af landi því, er Vilborgarkoti var útmælt 7. septbr. 1863, hafi um langan tíma verið notaður frá Hólmi, en það er ekki sannað, að hann hafi verið notaður sem Hólms eign, heldur virðist liggja nær, að hann hafi verið notaður þaðan sem almenningur af því að Vilborgarkotið var i eyði, sbr. tilskip. 15. apríl 1776, 2. og 5. gr.

Hólmur

Hólmur og nágrenni.

Það er þannig engin sönnun fram komin fyrir því, að Hólmur eigi eignartilkall til nokkurs hluta af landi því, sem Vilborgarkoti var tilmælt 7. septbr. 1863, og því síður fyrir því, hver eða hve mikill hluti af þessu landi það sje, sem Hólmur getur gjört eignartilkall til, enda hefur áfrýjandinn ekki í rjettarkröfum sinum tilgreint með landamerkjum, hver hluti úr hinu nú verandi Vilborgarkotslandi það sje, sem hann heimti sjer dæmdan, heldur að eins, að landssjóðnum verði dæmd þau 4hdr. úr Vilborgarkotslandi, sem því hafi verið útmælt úr Hólmslandi 7. septbr. 1863. En við það er athugandi, að menn þeir, sem gjörðu útmælingu þessa, að eins höfðu umboð til að ákveða takmörkin fyrir landi því, sem skyldi fylgja Vilborgarkoti, en alls ekki til að ákveða neitt um, hvort Hólmur ætti nokkuð eða hve mikið af landi þvi, sem þeir mældu út handa Vilborgarkoti.

Vilborgarkot

Vilborgarkot 1954 – loftmynd.

Útmælingin 7. septbr. 1863 sannar þannig ekkert um, hvort nokkuð, eða hve mikið land hafi verið útmælt handa Vilborgarkoti úr Hólmslandi, og rjettarkrafa áfrýjans er því svo óákveðin, að þó að Hólmur álitist að eiga einhvern hluta af hinu núverandi Vilborgarkotslandi, þá yrði áfrýjandanum þó ekki dæmt það, sem hann fer fram á undir þessu máli.

Það ber því að staðfesta hinn áfrýjaða dóm að því aðalefni málsins snertir. Málskostnað fyrir báðum rjettum virðist áfrýjandi eiga að greiða hinum stefnda, og þykir hann hæfilega metinn 25 krónur.

Elliðakot

Elliðakot 1954 – loftmynd.

Því dæmis rjett að vera: Hinn áfrýjaði aukarjettardómur á að vera óraskaður. Áfrýjandi, umboðsmaður þjóðjarða í Kjósar- og Grullbringusýslu fyrir hönd umboðssjóðsins greiði hinum stefnda, Þorsteini Jónssyni, málskostnað fyrir báðum rjettum með 25 krónum innan 8 vikna frá Iðglegri birtingu dóms þessa.“ – Mánudaginn 19. nóvbrmán. Nr. 39/1883. Hið opinbera gegn skipstjóra Th. J. Skylv.

Í Jarðarbók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá árinu 1703 er reyndar getið, þrátt fyrir framangreint, um Vilborgar Kot undir „Kjósarsýslu“:

Vilborgarkot

Vilborgarkot 2008.

„Vilborgar Kot: Forn eyðijörð og hefur í eyði legið fram yfir allra þeirra manna minni, sem nú eru á lífi, og hefur land þessarar eyðijarðar brúkað verið til beitar eftir leyfi Bessastaðamanna bæði frá Hólmi, sem liggur í Gullbringusýslu, og líka frá Hellirskoti, sem í þessari sýslu og er næsti bær við þessa eyðijörð. Líka hafa þar stundum ábúendur á Hólmi heyskap haft og torfskurð, en Hellirskots ábúendur hafa þar fyrir fáum árum eftir orðlofi Bessastaðamanna uppbyggt fjárhús…
Jörðin meina menn upp aftur byggjast mætti, þó með erfiði og bágindum til töðuslægna fyrst um nokkra tíma, og þyrfti, þá greinilegast að skoðast, hvað vítt landeign þessarar jarðar áður verið hefur, sem kunnugir menn meina ekki sje alllítið, og í því víða líklegt til útheyja slægna.“
Næst til lýsingar í Jarðabókinni er jörðin Hellirskot.

Vilborgarkot

Vilborgarkot 2008.

Í „Fornleifaskráningu vegna deiliskipulags athafnasvæðis á Hólmsheiði“ frá árinu 2018 segir:
„Hólmur var í alfaraleið fyrir þá sem voru áttu leið um Suðurland og þegar nýr vagnavegur var gerður á árunum 1886-1892 var hann lagður norðan við Hólmsá. Nýbýlið og gistihúsið Geitháls var svo byggt við veginn árið 1907 úr landi Vilborgarkots á gatnamótum Suðurlandsvegar og Þingvallavegar sjá mynd 4. Enginn búskapur er á Hólmi lengur. Bakkakot var byggt í landi Hólms árið 1950 auk sumarhúsabyggðar sem er á bökkum Hólmsár og Suðurár.“

Í „Fornleifaskráning vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar frá gatnamótum við Vesturlandsveg austur að Hólmsá“ frá árinu 2010 segir:

Geitháls

Geitháls 1920.

„Nýbýlið Geitháls var byggt árið 1907 úr jörðinni Vilborgarkoti, en það kot lagðist þá í eyði. Guðmundur Magnússon (f. 1843) byggði upp Geitháls en hann bjó áður í Elliðakoti. Býlið var byggt við gatnamót Þingavallavegar og Suðurlandsvegar (Austurvegar). Húsið var tvílyft á steinhlöðnum kjallara. Miklir kálgarðar voru sunnan við bæinn og túnin sunnan við þáverandi Suðurlandsveg að Hólmsá. Á Geithálsi var bæði búskapur og greiðasala. Þar var símstöð frá 1909.

Geitháls

Geitháls 1954 – loftmynd.

Geitháls varð vinsæll áningarstaður og voru þar oft mikil læti eins og fram kemur í blaðagrein frá 1927: ,,Mér er kunnugt um það, að sá veitingamaður, sem nú rekur veitingar á Geithálsi, kysi ekkert fremur en að honum væri veitt aðstoð til að bægja ölvuðum óþjóðalýð burt frá staðnum, svo að honum gæti veist næði til að reka þar veitingar fyrir friðsama gesti. Geitháls er sérlega vel fallinn til sunnudagaheimsókna Reykvíkinga, bæði sökum góðs húsrúms og einnig vegna fegurðar þar í kring, og þá ekki síst fyrir ríðandi fólk, því að þar er gnægð góðrar hagbeitar og vatns fyrir hesta.“

Vilborgarkot

Vilborgarkot um 1905.

Árið 1940 var gamla bæjarhúsið á Geithálsi rifið, en það hafði þá verið í niðurníðslu í nokkurn tíma. Nýtt hús var byggt á sama stað, ein hæð með lágu risi, en það var rifið skömmu eftir að Olíuverslun Íslands reisti þar veitingaskála 1963. Staðurinn var áfram vinsæll áningarstaður en var lagður niður sem slíkur árið 1972 þegar Suðurlandsvegurinn var færður sunnar og Geitháls fór úr alfaraleið. Engin hús eru í dag á Geithálsi, en leifar eru þar af steinhlöðnum vegg sem hefur verið í porti norðan við gamla húsið. Hólmsá sem rann rétt sunnan við bæjarstæðið var færð sunnar þegar nýi vegurinn var gerður. Á stríðárunum voru braggahverfin Camp Aberdeen og birgðageymslan Geitháls Dump við Geitháls.“

Heimildir:
-Örnefnaskrá fyrir Elliðakot og Vilborgarkot.
-Tímarit Hins íslenska bókmenntafélags, 7. árg. 01.07.1886, bls. 220-221.
-https://urlausnir.is/urlausnir_lyr/lyrd_1883-31%20[bls.%201883-255].pdf
-Fornleifaskráning vegna deiliskipulags athafnasvæðis á Hólmsheiði, Reykjavík 2018.
-Fornleifaskráning vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar frá gatnamótum við Vesturlandsveg austur að Hólmsá, Reykjavík 2010.
-Jarðarbók ÁM og PV 1703, Vilborgarkot.

Vilborgarkot

Vilborgarkot og nágrenni.