Þorbjarnastaðarauðamelur

“Ekki alllangt sunnan við Straum í Garðahreppi [svæðið tilheyrði ekki Hafnarfirði fyrr en 1967] og skammt vestan við Kapelluhraun eru forn eldvörp. Þar hefur Vegagerð ríkisins tekið rauðamöl til ofaníburðar í vegi, og það er mest þeirri starfsemi að þakka, að hægt er nú að fullyrða að hér er um eldvörp að ræða.
Thorbjarnarstadaraudamelur-2014-21Ekki er mér kunnugt um, hvernig þarna leit út áður en byrjað var að taka þar efni, en svo lítið ber á þeim hluta gíganna, sem enn er eftir óhreyfður, að líklegt má teljast, að þeim hefði alls ekki verið veitt eftirtekt, hefði þarna ekki verið grafið með stórvirkum tækjum. Nú er þarna umrót mikið og ýmislegt fróðlegt að sjá. Gígir þeir, sem hér er um að ræða, eru á línu með stefnu NA—SV, eins og gígaraðir á Reykjanesi yfirleitt eru.

Yngri hraun hylja nú þetta svæði nær alveg, og hafa þau fært hina fornu gígaröð að mestu í kaf. Þau hraun eru komin sunnan að af svæðinu milli Sveifluháls og Vesturháls [Núpshlíðarháls]. Af því að yngri hraun hafa runnið yfir umhverfi gíganna, verður ekki með vissu sagt, hversu mikið hraun hefur frá þeim komið. Það er þó ljóst að eitthvað hraun hefur runnið í þessu gosi, og er það auðþekkt frá hraununum í kring.
Mikill fjöldi hnyðlinga er í þessu hrauni og sumir þeirra nokkuð stórir, eða um 5—7 cm í þvermál. Þeir virðast líkir þeim, sem áður hefur verið getið í þessu riti (Jónsson 1963). Slíkir hnyðlingar hafa nú fundizt víða um land, m. a. í Skaftáreldahrauni frá 1783, Fonti á Tungnáröræfum (heimild Elsa Vilmundardóttir), í Þórsmörk, við Grindavík og nú alveg nýlega fann Jens Tómasson, jarðfræðingur, hnyðlinga í Surtsey.
Thorbjarnarstadaraudamelur-2014-22Í gígnum í Selhrauni fannst ennfremur um fimm cm stór feltspatkristall, sem reyndist vera ólígóklas (An 30). Hann var mjög illa farinn, sennilega mest vegna hita, og liggja jafnvel hárfínar basaltæðar í gegnum hann. Oligóklas á ekki heima í basalthrauni eins og þessu og verður því að telja líklegast, að um sé að ræða kristall, sem brotnað hefur úr eldra bergi nokkuð ólíku þessu að samsetningu og borizt með hrauninu á leið þess upp á yfirborð. Þess má geta að Jens Tómasson fann líka einn ólígóklaskristall í Surtsey.

Hraunið, sem runnið hefur umhverfis gígina og að nokkru leyti yfir þá, hefur ékki runnið fyrr en nokkru eftir, kannske löngu eftir að þeir gusu, því sums staðar má sjá að gjallið í þeim hefur verið farið að veðrast dálítið.
Telja má víst, að þeir hafi verið orðnir mosagrónir, og á einstaka stað vottar fyrir jarðvegsmyndun. Víða í hólunum má greinilega sjá að hraunið hefur orðið fyrir snöggri kælingu, t. d. finnur maður á nokkrum stöðum þunnar basaltæðar í gjallinu og eru þær með svartri glerhúð. Einnig vottar fyrir hólstramyndun á stöku stað. Þetta vekur grun um, að hér hafi gosið í vatni, og við nánari athugun kemur í ljós að svo hefur verið. Á a.m.k. tveim stöðum í stálinu má sjá að hraunið hefur brotist upp í gegnum leirlög, sem nú eru sem vænta má mjög umturnuð og brennd hið næsta hrauninu, er brotizt hefur í gegnum þau. Aragrúi af skeljum hefur verið í leirnum og tekur það af allan efa um að hér hefur gosið í sjó. Sjálfar eru skeljarnar farnar veg allrar veraldar, en mótin eftir þær eru afar greinileg. Það er augljóst, að um allmargar mismunandi tegundir hefur verið að ræða, en mjög erfitt er nú að greina þær með vissu, því allt er þarna í einum hrærigraut og svo laust í sér að það fellur sundur ef við er komið.
Thorbjarnarstadaraudamelur-2014-245Örugglega má þó þarna greina leifar af hrúðurkörlum (Balanus). Smyrslingur (Mya truncata) er þarna líka og líklega rataskel (Saxicava arctica), og nokkrar fleiri tegundir. Diatomeur (kísilþörunga) má og finna í leirnum, en sama máli gegnir um þá, að skeljarnar eru mjög illa farnar og örðugt að ákvarða þær með vissu. Aðeins sárafáar heilar skeljar hefur tekizt að finna. Langmest ber á brotum úr Coscinodiscus og nokkrum öðrum sjávartegundum. Örugglega má ákvarða Biddulphia aurita og Navicula peregrina, en báðar lifa í söltu vatni. Af ferskvatnstegundum reyndist mögulegt að ákvarða Eunotia sp., Pinnularia
sp. og Tabellaria feneslrata.
Það virðist því líklegt, að þarna hafi gosið í sjó, en líklega hefur það verið nálægt strönd og hafa ferskvatnstegundirnar borizt út í sjó með lækjum.
Skammt vestan við Straum er Rauðimelur, en þar hefur rauðamöl verið tekin í mörg ár, og er nú búið að grafa þar niður fyrir grunnvatnsborð. Vafalaust er Rauðimelur leifar af eldvarpi, sem líka hefur myndazt í sjó á sama hátt og e. t. v. á svipuðum tíma og eldvörpin í Selhrauni.”
Raunar sleppir Jón hér tveimur mikilvægum, enn ósnertum sambærilegum gersemum; Litla-Rauðamel norðan hins raskaða Rauðamels og Litla-Þorbjarnarstaðarauðamel skammt sunnan þess aðalumnefnda.
Hafa ber í huga að ef verulega vel væri á málum haldið – og enn verulegri áhugi væri fyrir hendi – myndi umhverfisnefnd Hafnarfjarðar fyrir löngu síðan hafa látið hreinsa Þorbjarnarstaðarauðmelinn af rusli svo nýta mætti svæðið fyrir áhugasama ferðamenn um jarðfræði Íslands. Þarna má nú t.d. sjá fornar gígmyndanir, bergganga, gígtappa, hraun og gjóskumyndanir í sjó, skeljaleifar sem og landmótunina fyrir tugþúsundunum ára.

Heimildarrit – References Jónsson, Jón. Hnyðlingar íslenzku bergi. Náttúrufræðingurinn 88. árg. bls. 9-22.
Tröger IV. E. 1959. Tabellcn zur optischen Bestimmung der gesteinbildenden Mineralen, Stuttgart.

Heimild:
Náttúrufræðingurinn. 35. árg. 1965-1966, 1. tbl. bls. 1-4.

Rauðamelur

Í Þorbjarnastaðarauðamel.

Orkuverið Jörð

Íslenskir fjárbændur fara víðast hvar um landið gjörvallt. Þegar þeir smala á haustin er hugur og augu þeirra nær eingöngu á fénu – sjá ekkert annað – veita ekki öðru athygli.
ReykjanesvirkjunÞegar þeir hinir sömu eru spurðir um hvort ekki hafi einhverjar áhugaverðar minjar læðst inn í sjónarholin þeirra í leiðinni kviknar þó jafnan dauflega á perunni. “Jú, undir fjallsöxlinni sá ég einhverjar hleðslur, en veitti þeim ekki frekari athygli”. Þar gat þá, er betur var að gáð, leynst seltóft frá því fyrr á öldum.
Svo er og komið með aðra er jafnan einblína á eigin hagsmuni, t.d. Hitaveitu Suðurnesja. Hagsmunir hennar felast í virkjun jarðvarma og sölu vatns og rafmagns. Umhverfið hefur á stundum liðið fyrir hina blindu hagsmuni. Að vísu hefur fyrirtækið reynt að markaðssetja sig sem “vistvænt”, s.s. með slagorðinu “í sátt við umhverfið”, en það hefur ekki blekkt neinn með sæmilega vitund. Ganga má út frá a.m.k. tvennu sem nokkurn veginn vísu; nýting orkulinda er nauðsynleg, en jafnframt að líftími virkjanamannvirkja er takmarkaður.

Orkuverið jörð

Hver er þá sýn framkvæmdaraðila á virkjanasvæðin að líftímanum loknum? Verður hið dýrmæta ósnortna umhverfi landssvæðisins afturkræft – og þá í hve miklum mæli? Allflestir, utan þrengsta virkjanageirans, gera sér glögga grein fyrir að ósnortin náttúra landsins verður allra arðbærasta fjárfesting þess til lengri framtíðar litið. Samt sem áður hafa forstjórar HS jafnan lagst gegn hvers kyns friðun eða friðlýsingum á Reykjanesskaganum, sbr. bréf þeirra 2. júlí 2003.
Hitaveita Suðurnesja gefur út Fréttaveituna. Í því blaði hafa birst margur fróðleikurinn um Reykjanes og Reykjanesskagann.
Hér skal getið þess helsta varðandi uppruna og þróun Reykjanesvirkjunnar er hófst í maí 2006 eftir prufukeyrslu og ýmsar prófanir.

Orkuverið

Fyrri vélin fór í rekstur um miðjan maí og sú seinni í lok maí. Orkuverið er hannað með tilliti til þess að því sé almennt stjórnað með fjargæslu frá stjórnstöð í Svartsengi.
Reykjanesvirkjun er eingöngu raforkuver sem samanstendur af 2 x 50 MW tvístreymishverflum með sjókældum eimsvölum sem er nýjung á Íslandi og nota samtals allt að 2 x 2000 l/s, aðskilin dælukerfi (sem er álíka magn og meðalrennsli Elliðaánna). Þá eru sér kerfi fyrir hverja samstæðu það er forskiljur, rakaskiljur, sjólokar og hljóðdeyfar, gufulokar og gufuháfar, gufuholur og gufuveita, þéttivatnskerfi, sjó- og þéttivatnsfráveita, rafmagns- og stjórnkerfi, þessi kerfi eru öll aðskilin. Síðan er sameiginleg fráveita í lokuðum stokk til sjávar fyrir kælisjó, jarðsjó og þéttivatn en það mannvirki kallast bunustokkur.

Merki

Aðdragandi að arðbærri og raunverulegri nýtingu jarðhitans á Reykjanesi er orðinn mjög langur. Fyrsta rannsóknarholan var boruð árið 1956 og á árunum 1968 til 1969 voru boraðar sjö rannsóknarholur til viðbótar. Hola 8 var þeirra umfangsmest og eina sem var nýtt en hún varð 1.754 metra djúp og var aðal vinnsluhola svæðisins um árabil með heildarupptekt upp á tæplega 21 milljón tonna, en vegna skemmda var steypt í hana árið 1993.
Stöðvarhúss virkjunarinnar er mest áberandi hluti framkvæmdarinnar og er um 4.313 fermetrar að grunnfleti, kjallari er 2.291 fermetrar og önnur hæðin 1.088 fermetrar þannig að heildar flatarmál er 7.692 fermetrar og rúmmálið 65.268 rúmmetrar. Á annari hæð er aðstaða fyrir starfsmenn og einnig aðstaða til móttöku gesta og kynningar á fyrirtækinu og svæðinu. Aðveitustöð er með kjallara sem er 280 fermetrar og fyrsta hæðin er 1.280 fermetrar eða samtals 1.560 fermetrar og rúmmál 19.869 rúmmetrar. Skiljustöð er að flatarmáli 924 fermetrar og rúmmál um 8.579 rúmmetrar og tengivirki á Rauðamel er um 485 fermetrar og rúmmál 5.604 rúmmetrar. Heildarflatarmál allra bygginga sem tengjast framkvæmdinni er 12.705 fermetrar og rúmmál 110.769 rúmmetrar.
ReykjanesvitiGufuveitan þarf að anna flutningi frá holum sem í magni til er um 1.000 kíló á sekúndu og eru æðarnar um 5 kílómetrar að lengd og vídd þeirra er 350 til 450 millimetrar. Frárennslið í heild sinni samsvarar meðalrennsli Elliðaánna. Nú hafa verið boraðar 15 holur vegna virkjunarinnar sem samtals eru 33,4 kílómetrar að lengd.

Gagnvirk sýning í Reykjanesvirkjun

Orkuverið

Sýningin hefur nú verið sett upp í stöðvarhúsi Reykjanesvirkjunnar. Sem slík er hún bæði innsýn í nýtingu jarðvarmans en jafnframt algjör sjónhverfing hins gagnstæða. Hönnun og hugmyndafræði sýningarinnar gengur út frá stóra hvelli og upphafi sólkerfisins allt aftur til okkar tíma.  Farið er meðal annars  í gegnum uppfinningar sem breytt hafa lífi okkar til þess vegar sem það er í dag en það ætti að vera okkur öllum ljóst hversu mikilvægur þáttur orkan er í lífi okkar. Fjallað verður um mismunandi orkunýtingu á jörðinni og hvaða möguleika við höfum á orkunýtingu bæði hér heima á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Nokkur sýnishorn eru á staðnum en segja má að jarðvarmavirkjunin sjálf sé eitt það stærsta. Sýningin er að nokkrum hluta gagnvirk og geta gestir því tekið virkan þátt í henni.
Sýningin hefur síðan verið hönnuð af Janvs International í London og Ara Trausta Guðmundssyni sem sá um að semja texta sýningarinnar. Á spjöldum og gagnvirkum skjám er að finna ógrynni upplýsinga um orku, plánetur og himingeiminn. Nokkur gagnvirk tæki er að finna á sýningunni þar á meðal jarðskjálftahermir þar sem sýningargestir geta upplifað raunverulega jarðskjálfta á mismunandi richterskala. [Reyndar var eftirhermurinn ekki mjög nákvæmur er betur var að gáð. Tekið var dæmi frá jarðskjálftunum 17. júní árið 2000. Þá riðu tveir jarðskjálftar um Reykjanesskagann; annars vegar Suðurlandsskjálftinn svonefndi, og hins vegar Kleifarvatnsskjálftinn. Í a.m.k. 3 ár rifust sérfræðingar um hvort um hafi verið að ræða einn eða tvo skjálfta. FERLIR vissi betur því hann var staddur á Sveifluhálsi þegar skjálftarnir tveir riðu yfir.

Heimildir m.a.:
-www.hs.is

Í orkuverinu

Tyrkjabyrgi

Gengið var með Eldvörpum að nýfundnum “Tyrkjabyrgjum” (fundust 2006), skoðað í “útilegumannahelli” (fannst 2004), leitað að hlöðnu byrgi við Rauðhól skv. ábendingu Kristjáns Sæmundssonar, jarðfræðings, og gígurinn í Sandfellshæðardyngju skoðaður. Þá var skoðað í “útilegumannahelli” (fannst 1982) við Eldvörp. Eldvörp eru um 10 km löng gígaröð í stefnu suðvestur – norðaustur.

Eldvörp

Jarðhiti er í Eldvörpum og voru þar stundum bökuð brauð. Þegar Hitaveita Suðurnesja lét bora við Eldvörp um sumarið brotnaði hraunið undan jarðýtu sem vann við frágang í kringum holuna. Í ljós kom hellir með greinilegum mannvistarleifum, beinum og hleðslum.
Fyrst var þó haldið um Sundvörðuhraunið (sem reyndar er eitt Eldvarpahraunanna) að áður þekktum “Tyrkjabyrgjunum” (fundust 1872). Ætlunin var m.a. að skoða alla þá staði er tengja má vangaveltum manna í meira en hundrað ár um tilgang og tengsl þeirra.
Byrgin, sem fundust 1872, eru í einum krika þess mót vestri og fundust fyrir tilvikjun þenna vetur, líkt og þær nýrri, sem einnig fundust í Eldvörpum fyrir tilviljun 134 árum síðar. Á fyrrnefnda staðnum eru 10 tóftir (sú 11. fannst reyndar í þessari ferð), en á þeim síðari eru þær tvær. Tóftirnar eru mjög svipaðar á báðum stöðum. Stærsta tóftin í hraunkrikanum er t.d. 4.0 m að lengd og stærri tóftin í Eldvörpum er 4.2 m á lengd. Sum byrgjanna eru mun minni og er eitt þeirra t.a.m. þrískipt.
Stígur liggur nú úr Eldvörpum suður yfir Sundhnúkahraunið, niður af því að sunnanverðu og áfram áleiðis að Húsatóftum. á leiðinni má berja augum fallið byrgi, sennilega refaskyttu, og hlaðinn leiðigarð.
“Tyrkjabyrgin” eru skammt norðaustan við stíginn eftir að komið er út úr apalúf Sundhnúkahrauns og niður á sléttari öldung Eldvarpahraunanna. Þetta eru 10 tóftir, en tvær þeirra eru uppi á hraunbrúninni. Þetta eru allmikil mannvirki, misstórar en sú stærsta þeirra er um það bil 4.0 x 1,5 m á stærð. Hæðin er um 1.3 m. Engar heimildir hafa fundist um þessar rústir og hafa því verið uppi getgátur um tilvist þeirra. Þær fundust fyrir tilviljun veturinn 1872 og elstu lýsingu á þeim er að finna í Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen en hann skoðaði þær árið 1883.
EldvörpÍ Sögu Grindavíkur (1994) segir á bls. 118 (I) að “Það var vetur inn 1972, að rústir af mörgum smáum kofum, hlöðnum úr grjóti, fundust af tilviljun í hraunkvos skammt vestur af Sundvörðuhrauni… Sumarið 1902 kom Brynjúlfur Jónnson frá Minna-Núpi til Grindavíkur (bjó m.a. í Klöpp) og skoðaði þá rústirnar. Hann brirti lýsingu á þeim í skýrslu sinni í árbók Fornleifafélagsins árið 1903 og taldi tóttirnar vera alls sjö, en of litlar til að menn gætu hafa dvalið þar nema skamman tíma í einu. Löngu síðar rannsakaði Ólafur Briem rústirnar, og taldi hann alls tíu tóttir, auk þess sem hann fann í hraunviki skammt frá þeim manngert aðhald, augljóslega til að handama fé. Lýsing Ólafs af tóttunum er ýtarleg, en ekki kemst hann, fremur en Brynjúlfur og Þorvaldur, að ákveðinni niðurstöðu um það, til hvers kofarnir hafai verið notaðir. Þar virðast einkum tveir möguleikar koma til greina; að þarna hafi útilegumenn hafst við skamma hríð, eða að byggðamenn hafi útbúið þarna fylgsni, sem flýja mætti í ef ófrið eða ræningja bæri að höndum. Væri þá trúlegast að kofarnir hafi verið hlaðnir á 17. öld, eftir Tyrkjaránið.´”Útilegumannabælið” í Sundvörðuhrauni er á Fornleifaskrá, sem friðlýstar fornleifar.
Hér verður ekki reynt að skera úr um tilgang þeirra, sem kofana hlóðu í öndverðu, en bent skal á, að árið 1982 fannst hellir við Eldvörp, skammt vestur af Þorbirni, og virðst svo sem þar hafi útilegumenn átt fylgsni. Frá þessum helli að rústunum í sundvörðuhrauni er aðeins um 1 km, og er ekki loku fyrir það skotið að sambadn hafi verið á milli þessara tveggja felustaða.”
EldvörpEkki er að sjá að Þorvaldur, Brynjúlfur eða Ólafur hafi skoðað hlaðna, mosagróna, refagildru, sem þarna er örskammt frá rústunum. Þá má sjá vörðu ofan við byrgin, skófvaxna líkt og veggir byrgjanna. Enn ofar í úfnu og óárennilegu hrauninu má sjá a.m.k. enn eitt byrgi, fallið saman, en með greinilegu hleðslulagi. Ekki er ólíklegt að ætla að fleiri slík kunni að leynast þar efra – ef grannt væri skoðað.
Ef rústirnar eru skoðaðar – hver af annarri – má sjá að fjórar þeirra eru með sama lagi (þrjár í krikanum og ein á hraunbrúninni). Þær eru og svipaðar að stærð þó ein sé sýnum stærst (4.0 m á lengd). Gluggaop eru á neðri byrgjunum, en ekki því efra. Inngangsopin snúa að hraunkantinum eða hrauninu. Hleðsluhæð veggja er svipuð á þeim öllum. Ekki hefur verið lögð áhersla á að þakið héldi vatni, a.m.k. benda sléttar þunnar hraunhellur í gólfum til þess að þær hafi einungis verið lagðar yfir og væntanlega mosi ofan á þær. Þó skal bent á að þrátt fyrir friðlýsingu og vangaveltur um notkun húsanna hefur engin vísindaleg rannsókn farið fram á þeim, ekki einu sinni á gólfum þeirra, sem mögulega gætu gefið vísbendingu um tilgang þeirra og jafnvel aldur.
Tvö lítil byrgi eru sunnar með vestanverðum hraunkantinum. Annað er þrískipt þar sem öll rýmin eru lítil, innan við 0.6 m, og hitt hefur annað lag en fyrrnefnd byrgi. Það er líkara húslagi, en miklu mun minna í sniðum.
Eldvörp Upp á hraunbrúninni er, auk byrgisins, sem fyrr er lýst, er hringlaga lítið skjól. Í fyrstu virðist þar vera um skjól fyrir mann að ræða er gæti hafa verið þar á “útkikki”, en ef betur er að gáð virðist þar fremur hafa verið einhvers konar geymsla. Norðar er fallna byrgið, sem fyrr er lýst, og varðan.
Önnur mannvirki þarna eru norðan og norðvestan við byrgin þrjú í krikanum. Eitt þeirra er gerðið fyrrnefnda og síðan má sjá hleðslur með kantinum, sem virðast hafa verið lítil gerði eða aðhald, t.d. fyrir fé.
Refagildran vestan við byrgin tvö í suðvestanverðum hraunkrikanum, er svo til alveg heil. Fallhellan er fyrir opinu. Stuðningssteinarnir eru enn á sínum stað. Gangurinn á gildrunni er heill og þakhellurnar á sínum stað. Hið eina, sem ekki fyllir heildarmyndina er að sá, sem síðastur fjarlægði dauðan ref úr gildrunni, setti hana ekki upp að nýju, þ.e. hann lét fallhelluna á sinn stað, en setti ekki farg á þakið. Steina, sem til þess hafa verið ætlaðir, eru í mosanum við hliðina á gildrunni. Gildran gæti hvort sem er verið jafngömul byrgjunum eða jafnvel yngri – allt eftir því til hvers þau hafa verið notuð. Ef þau hafa verið ómannaðar birgðastöðvar vegna yfirvofandi árásar ræningja er gildran væntanlega jafngömul byrgjunum. Ef um útilegumannaskjól hefur verið að ræða gæti gildran verið yngri – eða jafngömul.
Ein kenning, sem ekki hefur verið skráð, er sú að þarna gætu hafa verið um mjög skamman tíma hugmynd í framkvæmd um varasjóð Húsatóftahreppstjóra í tengslum við þurfamannahjálp þess tíma. Fleiri hugmyndir og tillögur um tilvist byrgjanna haf og komið fram, en einungis sem vangaveltur.
Eldvörp Þá skal um stund horfið frá byrgjunum í “Sundvörðuhraunskrika” og velt vöngum yfir umhverfinu og svæðinu sem merkilegu jarðfræðifyrirbæri.
Reykjanes er framhald Reykjaneshryggjarins – ofanjarðar. Flest sjávargos á sögulegum tíma hafa verið undan Reykjanesi. Eldvörpin eru afraksturs stórbrotinnar jarðsögu um langan tíma. Þau eru í raun afleiðingar dæmigerða gosa á sprungurein Norður-Atlantshafshryggjarins þar sem hann gengur fyrst á land á sunnanverðu landinu. Sambærilegar gígaraðir eru Stampar (Hörsl) skammt vestar, gígaröð Ögmundarhrauns (Afstapahrauns og Nýjahrauns), gígaröð eldborga í Brennisteinsfjöllum, Bláfjöllum og Hengli, auk eldri systkina þar sem eru Fagradalsgígaröðin (Festisfjall, Vatnsfellin og Keilir), Núpshlíðarhálsin og Sveifluhálsin sem og Geitarhlíð, Sandfell, Vörðufell, Kistufell og Draugahlíðar er urðu til fyrir nútíma, þ.e. undir jökli).
Dyngjurnar Skálafell, Háleyjarbunga og Sandfellshæð mynda undirstöðu Reykjanesskagans að vestanverðu. Gos úr þeim urðu eftir að jökla leysti, eða fyrir og eftir 10.000 f.Kr.
Ævagamlar heimildir segja að árið 1000 hafi mest allt Reykjanes sokkið í sjó og Geirfuglasker komið upp. Þá átti landið að hafa legið langt út fyrir Eldey í norðvestur en Eldey og drangar við hana hafi áður verið fjöll á Reykjanesskaganum.
Annálar greina frá eldsumbrotum með stuttum hléum, á og úti fyrir Reykjanesi á 12. og 13. öld. Samkvæmt þeim hefur gosið á Reykjanesi árið 1118, og a.m.k. 13 sinnum á 13. öld. Sagt er að sumum eldgosum hafi fylgt miklir landskjálftar og þess getið að svartamyrkur hafi verið um annars hábjartan dag (1226) og að Reykjanesið hafi brunnið (1210 og 1211). Í hamförum á fyrri hluta 13. aldar er talið að byggð hafi eyðst á Reykjanesi en merki um hana sjást m.a. við Skjótastaði norðan Stóru-Sandvíkur. Í annál er þess getið að 18 manns hafi farist á Reykjanesi í landskjálfta og eldi árið 1118.
Eldvörp Næsta lítið er vitað um sögu Hafna á 14. og fram á síðari hluta 16. aldar eins og margra annarra staða á landinu, m.a. vegna þess að kirkjubækur, sem geymdar voru í Viðey, eyðilögðust í bruna. Þó munu vera til heimildir um mikinn landsskjálfta 1389 og að 1390 hafi hálft Reykjanesið brunnið. Til mun vera heimild um að eldur hafi komið upp í hafi fyrir Reykjannesi 1420 og að þá hafi skotið upp landi. Einnig er getið um eld fyrir Reykjanesi 1422 og aftur 1584. Í annál er greint frá eldi í ,,Grindavíkurfjöllum” árið 1661 og hafi sést oft, fyrir og eftir jól, á Norðurlandi. Til er heimild um að árið 1706 hafi komið upp eldur í sjó fyrir Reykjanesi og einnig 1783 fyrir sunnan Geirfuglasker: Kom þá upp land sem sökk aftur (Nýey). Síðasta gos sem minnst er á í annálum, á eða fyrir Reykjanesi, á að hafa verið árið 1830 en þá sigu Geirfuglasker í sjó. Síðustu eldsumbrot sem heyrst hefur um, fyrir Reykjanesi, eiga að hafa átt sér stað í kringum 1930. Á þá að hafa gosið á sjávarbotni nálægt Eldey.
Skoðaðir voru nokkrir gígar Eldvarpanna. Einn þeirra er dýpri en aðrir, sem jafnan standa hátt sem “hörsl” (ójöfnur). Stiga þarf til að komast niður í hann, en dýptin niður á botn virðist verða ca. 8.0 m. Þegar staðið er upp á einhverjum gíganna má vel sjá hvernig gígarnir hafa raðað sér á sprungureinina. Þeir eru áþreifanlegur vottur um uppstreymisop hraunkvikunnar er myndað hafa hraunin umhverfis, sem ýmist hafa storknað þunnfljótandi (helluhraun) eða seigfljótandi (apalhraun). Af ummerkjum er ljóst að hraunflæðin hafa orðið með einhverju millibili og gosið varað í nokkurn tíma, jafnvel nokkur ár. Grindavíkureldarnir eru t.a.m. taldir hafa orðið á árabilinu 1220-1240, þótt mesta virknin muni hafi verið á árinu 1226.
Út frá gjall- og klepragígum Eldvarpa eru víða miklar og fallegar hrauntraðir, auk hraunæða.
Eldvörp “Tyrkjabyrgin” í vestanverðum Eldvörpum eru mjög svipuð hinum fyrrnefndu. Um km er á milli byrgjasvæðanna. Um tvö byrgi virðist vera að ræða, en þó gætu fleiri reynst þarna í þykku gamburmosahrauninu. Efra byrgið er stærra, eða 1.2 m x 4.2 m. Hitt er 3.0 m x 1.2 m. Hæð á veggjum niður á núverandi gólf er 1.3 m Gólfin eru gróin, en undir eru sléttar hellur, sem notaðar hafa verið fyrir þak. Sumar liggja upp með veggjum.
Umhverfi byrgjanna er sérstakt. Byrgin, sem eru þarna í mjög góðu skjóli, eru þakin þykkum mosa að utanverðu svo mjög erfitt er að koma auga á þau. Þegar betur er að gáð má vel sjá hversu heilleg þau eru; veggir standa heilir og þakhellur liggja við veggi eða eru undir mosa í gólfum. Ekki voru ummerki um að maður hafi stigið þarna niður fæti um langan tíma.
Opið á efra byrginu snýr í norður (á langvegg). Opið á því neðra snýr hins vegar í vestur (á endavegg).
Þar sem byrgin hafa að öllum líkindum verið ósnert í langan tíma má ætla að mögulegt væri að áætla aldur þeirra með vísindalegri rannsókn. t.a.m. með því að athuga gólfin. Í þeim gætu falist upplýsingar um notkun byrgjanna og jafnvel áætlaður aldur. Sú niðurstaða gæti einnig varpað ljósi á tilgang og aldur byrgjanna í hraunkrika Sundvörðuhraunsins.
Og þá var komið að “útilegumannahellinum” við Eldvörp. Sá er einungis nokkra tugi metra frá síðastnefndum byrgjum. Þótt FERLIR hafi komið þar að og skoðað hellinn nokkrum sinnum virðist alltaf jafnerfitt að finna opið. Það tókst þó að þessu sinni, líkt og áður, eftir nokkra leit.
Opið er lítið. Það er beint niður í hraunhelluna í hraunbrekku traðar. Æðar eru allt um kring. Í miðju opinu er þverhleðsla, mosavaxin, um 0.6 m há og um 0.8 m breið. Ef farið er niður á við (í vestur) er komið inn í rýmilega hraunrás. Í henni er hlaðið hringlaga bæli. Megintilgangur hennar virðist hafa verið tvíþættur; annars vegar að veita skjól umhverfis bæli og hins vegar að fela “innra rýmið”, þ.e. skúta er skýlt gæti hafa einum eða tveimur mönnum. Sá, sem af einhverri einskærri heppni eða tilviljun, liti inni í rásina gæti því ekki (ljóslaus) hafa séð þann eða þá, sem þar leyndust.
Tyrkjabyrgi Í efri hluta rásarinnar er fyrirhleðsla og síðan hlaðið undir bæli. Sama fyrirkomulag er þar og í neðri hlutanum; ef einhver leit þar upp að tilviljun gat hann ekki séð ef einhver leyndist þar efra.
Óneitanlega er hægt að setja fyrrnefnd byrgi og þetta skjól í ákveðið samhengi. Og þegar við bætast mannvistarleifar (svipaðar hleðslur) í helli nokkur norðar aukast líkur á ákveðinni niðurstöðu (sem þarf alls ekki að vera rétt).
Frá “Tyrkjabyrgjunum” vestan Eldvarpa var haldið eftir Reykjavegi að Prestastíg. Prestastígur (Hafnaleið) er gömul þjóðleið á milli Húsatótta í Grindavík og Kalmanstjarnar. Þessi leið er greinileg og vel vörðuð. Henni var fylgt um hraunið norðan Rauðhóls þar sem víða má sjá hana djúpt markaða í slétta hraunhelluna.
Frá Rauðhól hefur runnið hraun til suðurs og suðvesturs og er Prestastígur milli hrauns og hlíðar, þ.e. liggur um slakkann þar sem Rauðhólshraunið rennur upp að Sandfellshæð. Rauðhólshraun er 2000-3000 ára.
Gengið er framhjá Rauðhól. Norðan við hann eru mosagróin og nokkuð slétt apalhraun. Það er yngsta hraunið á svæðinu og rann um 1226. Þá opnaðist fyrrnefnd 10 km löng gossprunga. Meðal jarðfræðinga er hraunið nefnt einu nafni Eldvarpahraun en í tali heimamanna hétu einstök svæði þess ýmsum nöfnum, m.a. Sundvörðuhraun. Gígarnir í Eldvörpum eru fjölmargir og margir þeirra fallegir. Flestir eru gjall- eða klepragígar og eru nær allir óskertir og er gígaröðin ein af fáum á Reykjanesskaganum sem hefur verið hlíft við efnistöku.
Eldvörp Stefnt var á Sandfellshæð. Á toppi Sandfellshæðar (sem er dyngja) er gríðarlega stór gígur sem er um 450 m í þvermál og að minnsta kosti 20 m djúpur og vel þess virði að ganga upp á hæðina. Talið er að hæðin sé um 12500 ára gömul. Hraun hennar þekja um 120 km2. Til samanburðar má geta þess að Þráinsskjöldur er talinn vera 13000 ára og þekur um 130 km2 svæði. Þótt Sandfellshæð sé ekki nema um 90 m y.s. er gríðarlega víðsýnt af henni. Í norðri blasa við fellin Sandfell, Lágafell, Þórðarfell, Súlur og Stapafell sem reyndar er að mestu horfið vegna efnistöku. Í austri blasa Eldvörpin við og lengra Þorbjarnarfell.
Þá var stefnan tekin til austurs, áleiðis að Eldvörpum. Gengið var yfir tiltöluelag slétt apalhraun. Sums saðar var fyrrum skriðdrekaslóða fylgt, enda svæðið verið æfingarsvæði fyrir varnarlið um áratuga skeið. Víða má sjá rafmagnsþræði og lágreist skyttuskjól.
Komið var að Eldvörpum rétt vestan við borholuna. Þar undir er “útilegumannahellir”. Þegar Hitaveita Suðurnesja lét bora eftir gufu þarna sumarið 1982 brotnaði hraunið undan jarðýtu sem vann við frágang í kringum holuna. Í ljós kom hellir með geinilegum mannvistarleifum, beinum og hleðslum. Ekki er vitað hver eða hverjir höfðust þarna við. Hellirinn er alllangur eða 25-30 m en hvergi hærri en 1,5 m og víðast hvar mun lægri eða 40-50 sentímetrar.
Í hellinum er hlaðið lítið skjól, eða (að sumra áliti) umgjörð brauofns. Þarna var til skamms tíma allnokkur hiti, en það breyttist þegar borðar var á svæðinu. Líklegt má telja, vegna nálægðar við fyrrum mannvistarleifar, að þar hefðu einhver tengsl verið á millum, einkum minjanna sunnar með vestanverðum Eldvörpum. Um 1.0 km er á milli minjasvæðanna. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri minjar kunni að leynast þarna á millum.
Eldvörp Eldvörp eru um 10 km löng gígaröð í stefnu suðvestur – norðaustur. Talið er að síðast hafi gosið þar fyrir meira en 2000 árum. Jarðhiti er í Eldvörpum og voru þar fyrrum stundum bökuð brauð sem vafalítið hefur komið sér vel í eldiviðarskorti. Örstutt vestan við borholuna er hellir í hrauninu. Þegar Hitaveita Suðurnesja lét bora eftir gufu þarna sumarið 1982 brotnaði hraunið undan jarðýtu sem vann við frágang í kringum holuna. Í ljós kom hellir með geinilegum mannvistarleifum, beinum og hleðslum. Ekki er vitað hver eða hverjir höfðust þarna við. Hellirinn er alllangur eða 25-30 m en hvergi hærri en 1,5 m og víðast hvar mun lægri eða 40-50 sentímetrar.
Eldvörðin eru í raun einstakt jarfræðifyrirbæri. Á Íslandi eru einstök skilyrði til að sjá og rannsaka flest sem varðar jarðfræði, eldvirkni og jarðhita því landi er ungt og enn í mótun. Hér á Íslandi eru stærstu jöklar og þar með jökulár Evrópu, mestu há – og lághitasvæðin, óvenjumikið eld- og jarðskjálftavirkni auk stórbrotinnar náttúru. Talið er að Ísland hafi myndast eins og Surtsey sem er suðvesturundan Vestmannaeyjum. Gosið uppgötvaðist 14. nóvember 1963 þegar gosmökkur myndaðist og reis í 3.500 m hæð. Slíkur gosmökkur er að mestum hluta vatnsgufa og mismunandi stór gjóskukorn sem þeytast upp í loftið. Mestur hluti gjóskunnar fellur niður við gosopið og þar myndast stórt hrúgald sem smám saman nær upp fyrir sjávarmál. Strax á öðrum degi gossins náði gjóskuhrúgan 10 m upp fyrir sjávarflötinn og Surtsey var fædd. Það var þó ekki fyrr en 4. apríl 1964, sem gosopið var orðið nægilega vel lokað fyrir innrennsli sjávar.
Virkt gosbelti Íslands liggur eftir flekaskilunum endilöngum. Landið vestan megin við flekaskilin tilheyrir Ameríkuflekanum en landið austan megin tilheyrir Evrópuflekanum.
Flekana rekur í sundur frá flekaskilunum um það bil 1 cm á ári þannig að bergið sem einu sinni myndaðist þar hefur flust austur og vestur á firði.
Eldvörp Á Íslandi gýs að meðatali á 5 ára fresti og verða eldgos eingöngu á virka gosbeltinu.
Smám saman dragast Eldstöðvarnar út af gosbeltinu þannig að það gýs æ sjaldnar úr þeim þar til þær deyja að lokum.
Síðasta stóra umbrotahrinan undan var á árunum 1724-1729.
Á síðustu árþúsundum hafa gengið yfir gostímabill með rúmlega 1000 ára millibili. Síðast gekk goshryna yfir Reykjanesskagann fyrir 800-1000 árum. Orkuverið í Svartsengi stendur á einu af yngstu hraununum.
Þegar Reykjanesskaginn er athugaður má lesa þar ákveðna jarðsögu. Greinilega má sjá hvar Reykjaneshryggurinn kemur í land hjá Reykjanestá en þar er stór sigdalur sem sýnir hvar flekaskilin eru.
Ennfremur gefa stórar sprungur til kynna hvernig landið rifnar í sundur. Flest gos á Reykjanesskaga, og raun á Íslandi öllu, verða þannig að fyrst opnast sprunga og gýs hún öll í byrjun. Síðan takmarkast eldvirknin við einstaka staði þar sem gígbarmar hlaðast smám saman upp. Gos getur varað allt frá nokkrum klukkustundum upp í nokkrar vikur.
Reykjanes er á plötuskilum. Sjálf skilin eru á yfirborði mörkuðu eldvirkni og háhita. Háhitasvæðin verða til þar sem mest er um innskot ofarlega í jarðskorpunni.
Á síðustu árþúsundum hafa gengið yfir gostímabil með rúmlega 1000 ára millibili. Svæðin eru jafnan virk í um 300 ár, en síðan hjaðnar virknin næstu 700 árin. Segja má því, út frá tölfræðinni, að kominn sé tími á nýja goshrinu á virka gosbeltinu í gegnum landið.
Á Reykjanesskaga eru umfangsmikil jarðhitasvæði. Þau öflugustu liggja eftir skaganum frá Reykjanestá um Eldvörp, Svartsengi, Trölljadyngju og Krýsuvík og síðan má segja að í beinu framhaldi þvert yfir landið til norðaustuhornsins, séu hitasvæði, þar á meðal Nesjavellir við Þingvallavatn þar sem Hitaveita Reykjavíkur hefur virkjað.
Eldvörp Ef velta ætti fleiri vöngum yfir áætluðum aldri byrgjanna í Sundhnúkahrauni og við Eldvörp má telja víst að þau séu eldri en frá 13. öld því eldvirknin á svæðinu þar á undan hefði annað hvort komið í veg fyrir byggingu þeirra eða fært þau að hluta til í kaf í ösku. Og ef einhver byrgi hafa verið á þessu svæði fyrr væru þau nú komin undir hraun og öllum ósýnileg. Þessi byrgi eru hins vegar vel sýnileg – og heilleg. Það bendir til þess að þau séu ekki mjög gömul, varla eldri en frá 17. öld. Mosi er á hleðslunum og í gólfi og skófir á veggjum. Það gefur til kynna að byrgin séu a.m.k. aldar gömul.
Um meintan tilgang “tyrkjabyrgja” og “útilegumannaskjóla” er erfitt að fjölyrða. Þegar hafa komið fram kenningar um tilgang þeirra, þ.e. annað hvort hafi þau verið hlaðin af útilegumönnum eða sem skýli fyrir fólk er þyrfti að forða sér undan endurkomu Tyrkjanna og þá væntanlega til skemmri dvalar.
Báðar framangreindar tilgátur gætu komið til greina. Mikil hræðsla var á meðal fólks í Grindavík og víðar við aðsteðjandi árás Tyrkja (sjóræningja) og því ekki óraunhæft að ætla að það hafi viljað getað flúið með engum fyrirvara ef sú yrði raunin. Þá var gott að geta átt sér skjól á stað, sem erfitt var að finna. Þá kemur vel til greina að ætla að í byrgjunum hafi verið einhverjar nauðsynjar, s.s. vatn, geymslumatur og skjólflíkur. Ef byrgin hafa verið ætluð til þessara nota er ólíklegt að þau hafi nokkrun tímann verið notuð því Tyrkirnir sneru ekki aftur til Grindavíkur. Þó gæti fólk hafa hræðst aðkomuskip fyrst á eftir og talið sig öruggt þarna upp frá uns upplýstist um erindi þeirra.
Eldvörp Og þá eru það útilegumannatilgátan. Fjögur húsanna í Sundvörðuhrauni gæti hafa hýst einn mann hvert, jafnvel tvo það stærsta (með gluggunum). Sama á við um byrgin við Eldvörp. En ef svo hafi verið þá hefur það verið í skamman tíma. Við Eldvörp eru mannvistarleifar í a.m.k. tveimur hellum. Reyndar fundust hleðslur í þeim þriðja í þessari ferð.
Í helli vestan við byrgin við Eldvörp er hlaðið hringlaga skjól og einnig veggur ofan við opið. Þar mótar og fyrir bæli. Í helli austan við byrgin eru hleðslur í helli, líkar byrgjunum en miklu mun minni. Hafa ber í huga að þarna var mikill jarðhiti fyrrum svo um getur verið að ræða aðhald utan um brauðbakstur enda herma gamar sagnir að fólk frá Húsatóftum hafi bakað þarna brauð.
Ljóst er að fólk hefur séð ástæðu til að hlaða þarna mannvirki. Það þurfa þó ekki að hafa verið útilegumenn heldur gætu þessar hleðslur átt að þjóna sama tilgangi og byrgin, þ.e. skýla fólki í skamman tíma. Mjög erfitt hefur verið að finna opin. Til marks um það þá fannst austari hellirinn ekki fyrr en jarðýta braut niður hluta af þakinu. Opið á vestari hellinum er alltaf jafnerfitt að finna, hversu oft sem farið er á svæðið.
Enn ein tilgáta um byrgin í Sundvörðuhrauni og vestan við Eldvörp hefur og komið fram. Hún er sú að byrgin hafi verið hlaðin af “njósnurum”. Hvaða?, kann einhver að spyrja. Jú, árin fyrir hinn afdrifaríka atburð er varð ofan við Stóru bót í Grindavík aðfararnótt 11. júní 1532 er 15 fullir Englendingar voru drepnir þar á nokkrum mínútum fylgdust Þjóðverjar og Bessastaðavaldið vel með ástandi mála í Grindavík vegna sífelldra kvartana íbúanna um yfirgang enskra.
Eldvörp Foringi þeirra, Jóhann breiði, hafi tekið konur traustataki til eigin nota, flutt þær í skip sitt, misboðið eiginmönnum þeirra, tekið hross heimamanna til eigin brúks og sýnt af sér alls kyns hroka og mikilmennsku. Fyrrgreindir, stoltir menn, reyndu því eðlilega að sæta lagi til að færa hlutina til betra horfs. Færið gafst loks 10. júní er Englendingar ætluðu að gera sér glaðan dag í Virkinu ofan við Bótina. Um nóttina réðust Hafnfirðingar, Njarðvíkingar, menn frá Básendum og Bessastöðum auk fleiri að þeim með fyrrgreindum afleiðingum. Fimmtán lágu dauðir, þ.á.m. Jóhann breiði. Ekki var einu sinni talin ástæða til að skifa skýrslu um málið – svo sjálfsögð þótti afgreiðslan og er það til marks um undangengnar þrengingar Grindvíkinga. Afleiðingarnar snérust því ekki um atvikið heldur um það hver skyldi hreppa hvaða herfang. En meira um aðdragandann.
Áður en hinn mikli liðsafnaður, er kom saman við Þórðarfell skv. sögunni, hélt til Grindavíkur hafa forkólfarnir vafalaust viljað hafa öruggar spurnir af ferðum Englendinga því að öllu óbreyttu gátu þeir búist við mikilli mótspyrnu og þar með mannfalli. Ekki er því ólíklegt að svo stór atlaga hafi verið vandlega undirbúin. Einn þáttur hennar gæti hafa verið að hafa menn til að fylgjast með ferðum Englendinga. Þeir gætu hafa haft dvalarstaði á fyrrnefndum stöðum, þ.e. í Sundvörðuhrauni og við Eldvörp, þaðan sem mannaferða var síst að vænta. Þegar staðið er í gíg Eldvarpa ofan við byrgin má vel sjá niður að Stóru bót og reyndar um svo til allt Grindarvíkursvæði Járngerðarstaða. Gígskálin er sú eina í gígaröðinni, sem nú er gróin.
Ef þessi tilgáta er rétt eru byrgin margnefndu a.m.k. frá því um 1532.
Um fleiri möguleika kanna að vera að ræða varðandi tilurð og tilgang byrgjanna sem og annarra mannvistarleifa við Eldvörp.
Frábært veður. Gangan tók 4 klst og 4 mín.

Heimildir m.a.:
-Ólafur Briem (1883); Útilegumenn og auðar tóttir, 161.
-Saga Grindavíkur I (1994), 119.
-Brynjúlfur Jónsson (1903), 45-46.
-Þorvaldur Thoroddsen (1913), ferðabók I, 174.
-Um rústirnar og kenningar um tilgang þeirra og notkun, Ólafur Briem (1983), 163-169.
-Markviss leit – FERLIR.
-Árni Hjartarson – vorráðstefna JÍ 2003,

Gígur

Hóp

Gengið var með Tómasi Þorvaldssyni, útgerðarmanni í Grindavík, um Hóp og Nes.
Fyrst var farið að Fornuvör neðan Járngerðarstaða. Vörin sést enn vel og er skammt vestan við Brimbrjótinn (neðan við fjárhúsin). Þá leið fóru m.a. Tyrkir þegar þeir komu til Grindavíkur 1627 og hnepptu allt heimilsfólkið á Járngerðastöðum í fjötra. Fólkið var rekið niður sjávargötuna og niður í Fornuvör. Þá var litið á lifrapressuna úr lifrabræðslu Einars í Einarsbúð, en hún stendur undir gafli eins húsanna niður við sjó.

Hóp

Hóp – minjar gamla bæjarins.

Við Hóp eru gömul hús og fornar tóttir. Talið er að einn sona landsnámsmanns Moldar-Gnúps hafi sest þar að og þá nefnt staðinn Hof, sem síðan hafi breyst í Hóp. Í nágrenni staðarins má sjá margt minja. Þar eru t.d. tóttir forns átrúnaðar, auk þess sem gamla austurleiðin er þar vel mörkuð á kafla. Reyndar eru leiðirnar tvær, svo til hlið við hlið, sem bendir til að þar hafi verið talsverð umferð um tíma. Gróið er yfir göturnar, en þær sjást þó vel.

Hóp

Hópsvörin.

Neðan við Hóp sést enn móta fyrir gamalli bryggju, sem þar var gerð við Hópsvörina innri. Bátar komust inn yfir eiðið, Barnasundið, á flóði og var þessi vör þá notuð. Ofan við vörina er tótt af gömlu fiskhúsi.

Í Nesi var býli. Enn má sjá sjóbúð, bátarétt og mjög heilleg hús – svo heilleg að nægilegt væri að refta yfir og setja framgafl á þau til að koma þeim í gagnið aftur. Svæðið býður upp á mikla möguleika. Þarna eru mjög heillegar minjar svo til inni í miðjum bæ er auðvelt væri að endurgera. Búið er þó að þrengja verulega að svæðinu með greftri og jarðraski hingað og þangað, auk þess sem búið er að sturta möl og rusli svo til alveg að minjunum. Ofar eru heilir þurrkgarðar og byrgi. Utar var Hópsvörin ytri. Enn markar fyrir henni utan við varnargarðinn.

Grindavík

Varðan Sigga austan Síkis.

Öllum sjóbúðum, sem voru uppi á kampinum, hefur verið rutt um kolli. Notað var tækifærið og svæðið rissað upp eftir lýsingu Tómasar.
Sigga, eða Digra-Sigga, var skoðuð. Hún er varða er þótti mikil um sig hér áður fyrr. Nú er hún ekki svipur hjá sjón. Sigga og varða nær kampinum, Sundvarðan, voru merki skipverja, sem komu að austan, að nú væri komið inn á djúpsundið og venda ætti að leiðinni inn. Þá tóku við Svíravarða og Stamphólsvarða, en þær hafa báðar verið vel varðveittar.
Frábært veður.

Hóp

Hóp – uppdráttur ÓSÁ.

“Nógu flókið getur verið að meta varðveislugildi fornleifa sem engin mannaverk eru á þótt ekki séu jafnframt áhöld um hvort viðfangsefnið sé hið rétta [RT].”

Ofeigskirkja-21Ófeigskirkju, hraunkletti í Gálgahrauni, er eftir því sem næst verður komist fyrst getið í örnefnaskrá Ara Gíslasonar um Garðahverfi sem var vafalítið tekin saman á 6. áratug síðustu aldar. „Framan við Flatahraun var klettur, sem hét Ófeigskirkja, en hann fór í veginn. Hann var þar sem gjóturnar byrjuðu.“
Í örnefnaskrá Gísla Sigurðssonar árið 1964 segir: „ÓFEIGSKIRKJA: Svo hét klettur á Flatahrauni austarlega. Gegnum hann var farið með Álftanesveginn fyrri.“
Örnefnaskráning Kristjáns Eiríkssonar frá árinu 1976 til 1977 styðst m.a. við lýsingu Gísla „og var hún borin undir kunnuga í hverfinu og síðan samin ný lýsing að fyrirsögn þeirra“.
„Ófeigskirkja nefndist klettur, sem brotinn var, þegar Ofeigskirkja-22Álftanesvegurinn var lagður 1910. Hefur nafnið færzt á gervigíg aðeins norðan við Álftanesveginn. Íbúðarhúsið Hraun er skammt vestan við hann.“
Í bók Guðlaugs Rúnars Guðmundssonar um Örnefni og leiðir í landi Garðabæjar segir um þennan stað – og enn vísað til Gísla: „Álftanesstígur lá frá Garðaholtsenda austur yfir Flatahraun sunnan Ófeigskirkju í Engidalshorn.“  Og: „Ófeigskirkja var klapparhyrna í Flatahrauni.“
Ritaðar heimildir um Ófeigskirkju benda til að hún hafi þegar árið 1910 horfið undir Álftanesveginn.
„Handrit Gísla, sem varðveitt er á Örnefnastofnun, var á sínum tíma yfirfarið og leiðrétt af Úlfhildi Kristjánsdóttur frá Dysjum. Gísli nefnir heimildarmennina Magnús Brynjólfsson á Dysjum, Guðmann Magnússon hreppstjóra, Valgeir á Hausastöðum og Ólafíu systur hans, Tryggva í Gjóta og Gísla Guðjónsson í Hlíð. Örnefnaskráin var einnig lesin fyrir þau eftir að hún var fyrst skráð og létu þau sér vel líka. Er því undarlegt að enginn þeirra hafi tekið eftir því sem Gísli ritar um Ófeigskirkju.“

Galgahraun-kort-2Ritaðar heimildir um Ófeigskirkju eru innan við 100 ára gamlar en örnefnið kann að vera umtalsvert eldra en það. Þess er hvorki getið í örnefnaskrá Ara Gíslasonar né Gísla Sigurðssonar að nokkurs konar helgi umljúki hana. Þó má telja öruggt að slík athugasemd hefði verið látin fylgja, væri því trúað að í henni hefðu búið álfar.
Heimildakönnun bendir tvímælalaust til þess að álfasögur voru ekki tengdar Ófeigskirkju fyrr en nýlega, en árið 2009 var örnefninu komið yfir á formfagran klettastand inni í Gálgahrauni, u.þ.b. 100 m norðan við staðinn þar sem Ófeigskirkja stóð áður en hún var brotin undir Álftarnesveginn. Ástæðan var sennilega tvíþætt; að viðhalda horfnu örnefni og nýta það til að reyna að koma í fyrir fyrir lagningu fyrirhugaðs vegs um Gálgahraun.

Garðahraun

Kjarvalsklettur í Garðahrauni.

Grindavík

Þrætur um landamerki eru alþekktar hér á landi. Reykjanesskaginn er þar alls ekki undanskilinn.
FERLIR forvitnaðist nýlega [2010] um eina slíka, þ.e. þrætur Vatnsleysustrandarmanna Trolladyngja-2gagnvart ómeðvituðum Krýsvíkingum (ríkinu) og Grindavík. Þessar tilbúnu deilur, settar fram af ein-drægnum ásetningi, virðast hafa þann eina tilgang að reyna að hnyka til áður staðfestum og viðurkenndum landamerkjum milli jarða með það fyrir augum að fá þeim breytt þannig að land viðkomandi aukist á kostnað annars. Tilgangurinn virðist við fyrstu sýn frekar léttvægur ef ekki kæmu til mögulegur gróðaávinningur. Vitað er að undir yfirborði svæðisins kraumar jarðhiti sem ætlunin er að reyna að nýta til raforkuframleiðslu. Reyndar er gjörningurinn sem slíkur alls ekki nýr af nálinni því Vatnsleysustrandarbændur hafa um aldir ásælst hluta af Grindavíkurlandi, að þessu sinni Hrauns, þrátt fyrir fyrirliggjandi skýr samþykkt jarða- og hreppamörk er jafnan hafa ráðið úrslitum í deilum sem þessum.
Í þessari tilbúnu “deilu” virtist öllu máli skipta að staðsetja örnefnið “Selsvallafjall”, sem á löngum að hafa verið á Dagonreiki og langt frá því að hafa verið verið staðfest í seinni tíð. Á kortum má hins vegar sjá að örnefnið nær yfir hæsta hrygginn á Núpshlíðarhálsi næst Sogadal, auk þess sem augljóslega viðurkennd landamerkjavarða stendur enn í minni Sogadals gegnt Sogagíg til marks við Trölladyngjurætur. Þrætan sem slík er þó allrar athygli verð og er bara skemmtileg, ekki síst í ljósi annarra slíkra tilgangslausra þrætna í gegnum tíðina.
Landamerki Hrauns samkvæmt landamerkjabréfi dagsettu 17.06.1890 og þinglýstu hinn 20.06.1890 er sem hér segir: “… úr miðjum ,,markabás” (punktur nr. 1) í fjöru er mark á klöpp er aðskilur land jarðarinnar frá landi jarðarinnar Þórkötlustaðir, þaðan liggja mörkin til heiðar vestan til við Húsafell (punktur nr. 3) og yfir Vatnsheiðin (/punktur nr. 4), þaðan sem sjónhending ræður að Vatnskötlum (punktur nr. 5) fyrir norðan Fagradalsfjall, þaðan til austurs á Selvallafjall (punktur 6) upp af Sogaselsdal, þá eftir Selsvallafjalli til suðurs samhliða landamerkjum jarðarinnar Krýsuvíkur þar til að mið suður-öxl á Borgarfjalli ber í merktan klett (punktur nr. 7) við götuna á Móklettum (punktur nr. 8) .

Festarfjall-23

Skal sú sjónhending ráða merkjum frá landi jarðarinnar Ísólfsskála, þaðan til suðurs fram yfir festargnípu (punktur 9) í fjöru … ” Landamerkjabréfið er áritað fyrirvaralaust um samþykki m.a. af Kálfatjarnar-prestinum Árna Þorsteinssyni fyrir Kálfatjarnar-kirkjuland. Samþykki hans bendir eindregið til að Strandarmenn hafi almennt talið merkjum Hrauns rétt lýst í landamerkjabréfinu.
Punktur nr. 2 á landakorti er ekki nefndur í landamerkjabréfinu 1890, en við hann hefur verið miðað svo lengi sem elstu menn muna og er hann í svokölluðum Leitishól, en merki milli Hrauns og Þórkötlustaða hafa svo lengi sem elstu menn muna og lengur verið miðuð við hól þennan. Þetta álitaefni skiptir þó ekki máli hér. enda ljóst hvar hóll þessi er á Efra-Leiti.

Hreppamork-1

Í úrskurði óbyggðanefndar er tilvísun í greinargerð í fasteignamati Gullbringusýslu 1916, að finna lýsingu á merkjum Hrauns. Þar segir: “Landamerki að vestanverðu, svonefndur markabás á Slokatá þaðan beina línu vestan í Vatnsheiði í Kálffell, þaðan í Vatnskatla (steinker) fyrir norðan Fagradalsfjall, þaðan að Sogaseli fyrir norðan Selsvelli í Selsvallafjalli, þaðan til suðurs eftir háfjallinu í göngumannaskarð á Núp[s]hlíð, þaðan í götuna hjá móklettum, þaðan yfir há-Festarfjall á sjó út.” Höfundur þessarar lýsingar hefur ekki haft landamerkjabréf  jarðarinnar við höndina en lýsingunum ber að mestu saman.
Landamerkjabréf Hrauns á sér stuðning í eldri gögnum. Á manntalsþingi Gullbringusýslu 31. maí 1920 mótmælti bóndinn á Hrauni, Hafliði Magnússon, landamerkjalýsingu fyrir Auðnahverfi 12. júní 1886 og þinglesinni yfirlýsingu um landamerki fyrir Knarrarnes, Breiðagerði, Auðna, Landakot, Þórustaði, og Kálaftjörn frá maí 1920, en það eru einkum eigendur þessara jarða, sem gera tilkall til eignarréttinda yfir landi innan þinglesinna merkja jarðarinnar Hrauns, þ.e. norðurhluta landsins.

Sveitarfelagsmork

Og þá að landamerkjum Krýsuvíkur. Í landamerkjaskrá fyrir Krýsuvík dags. 14. maí 1890 lesinni á manntalsþingi fyrir Grindavíkurhrepp að Járngerðarstöðum hinn 20. júní 1890 segir: “Landamerki Krýsuvíkur eru: “1. að vestan: sjónhending úr Dágon (Raufarkletti), sem er klettur við flæðarmál á Selatöngum, í Trölladyngjufjallsrætur að vestan, sem er útbrunnið eldfjall norðanvert í Vesturhálsi; þaðan bein stefna í Markhelluhól, háan steindranga við Búðarvatnsstæði. 2) að norðan: Úr Markhelluhól sjónhending norðanvert við Fjallið Eina, í Melrakkagil (=Markrakkagil) í Undirhlíðum og þaðan sama sjónhending að vesturmörkum Herdísarvíkur, eða sýslumörkum Gullbringu- og Árnessýslu. 3) að austan: Samþykkt og þinglýst vesturmörk Herdísarvíkur: sjónhending úr Kóngsfelli sem er lág mosavaxin eldborg umhverfis djúpan gíg á hægri hönd við þjóðveginn úr Selvogi til Hafnarfjarðar, örskammt frá veginum, í Seljabótarnef, klett við sjó fram. 4) að sunnan nær landið allt að sjó.” Landamerkjabréfið er samþykkt  af  Hvassahraunshverfi með einni athugasemd um Markhellu-/Markhelluhól.

Reykjanesskagi-kort

Merkin eru samþykkt m.a. af eigendum  Vatnsleysulands, Þórustaða, Auðnarhverfis, Knarrarness, Ásláksstaða, Hlöðunestorfunnar, Kálfatjarnarkirkju-lands og Brunnastaða-torfunnar.”
Á þessum tíma hefur því ekki neinn vafi á því leikið, að land Krýsuvíkur næði í  Trölladyngjurætur að vestan og er lýsingin afar skýr og ótvíræð að þessu leyti og engin hætta á að Strandarmenn hafi misskilið merkjalýsinguna. Hafa ber í huga að örnefnið “Markhelluhóll” við Búðarvatnsstæði og “Markhella” eru sitthvað. Skeikar þar tæplega kílómetra til vesturs m.v. núverandi línu. Merki jarðarinnar eru nú einnig samkvæmt lögbundnum gerðardómi uppkveðnum 4. nóvember 1936 og afsali íslenska ríkisins á landi Krýsuvíkurtorfunnar til sýslunefndar Gullbringusýslu  dags. 29. september 1941 og þinglýstu 18. nóvember 1941, svo og samkvæmt dómi landamerkjadóms Gullbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfjarðar í málinu nr. 329/1964 uppkveðnum 14. desember 1971, sem hér segir: “Að vestan eru landamerkin sjónhending úr Dágon, (punktur 1) sem er klettur við sjó á Selatöngum, og í rætur Trölladyngju (punktur 2) að vestan og  þaðan í Markhelluhól (punktur 3) svonefndan við Búðarvatnsstæði.

Kongsfell-2

Þaðan að norðan sjónhending norðanvert við Fjallið eina í Melrakkagil í Undirhlíðum (punktur 4) og þaðan sjónhending að vesturmörkum Herdísarvíkur í punkt, sem ákveðinn er í dómi landamerkjadóms 14. desember 1971 (punktur 5).  En að austan vesturmörk Herdísarvíkur, og eru þau sjónhending úr Kóngsfelli í Seljabótarnef (punktur 7), sem er klettur við í sjó fram. Að sunnan nær landið að sjó. [Síðastgreind lína er nú á korti dregin frá punkti 5 í svonefndan Sýslustein (punktur 6) og þaðan í Seljabótarnef (punktur 7).”

Sogadalur

Samkvæmt fyrrgreindu afsali er undanskilið land, sem íslenska ríkið afsalaði Hafnarfjarðarkaupstað með afsalsbréfi dags. 20. febrúar 1941 og er þannig afmarkað: “Að vestan, beina stefnu í norður úr Hælsvík (punktur 8)  í Borgarhól (punktur 9), þar sem hann er hæstur, úr Borgarhóli eftir Sveifluhálsi í vestustu vík Kleifarvatns (punktur 10), að bera í ysta odda Hvammholtstanga. Að norðan  ræður Kleifarvatn, í syðsta odda víkur þeirrar, er gengur úr vatninu vestan við Geithöfða (punktur 11) og að austan þaðan beina stefnu í réttvísandi suður til sjávar, í Keflavík (punktur 12). Að sunnan ræður sjór þó þannig, að óhindraður umferðarréttur áskilst Gullbringusýslu fyrir búpening og til annarrar umferðar, um svæði upp frá sjó, er sé a.m.k. 60 metrar á breidd, enda séu engar girðingar eða umferðarhindranir á þeirri leið.”

Selsvallafjall

Landamerki þessi voru ákveðin af matsnefnd skv. lögum nr. 11/1936, sem skipuð var til að meta jarðirnar Krýsuvík og Stóra-Nýjabæ. Ríkisstjórnin, sýslunefnd Gullbringusýslu og bæjarstjórinn í Hafnarfirði óskuðu eftir því að nefndin ákvæði merki milli lands þess í Krýsuvík, sem féll til Hafnarfjarðar og þess sem féll til sýslunnar. Var það gert á fundi nefndarinnar 1. nóvember 1939. Merkjunum er lýst með orðum nákvæmlega eins og í fyrrgreindu afsali. Jafnframt afmarkaði nefndin merkin á kort, sem fylgir fundargerð fundarins. Eins og kort þetta ber með sér ber að draga beina línu úr Borgarhóli í vestustu vík Kleifarvatns (punktur 10). Merki lands sýslunefndarinnar  gagnvart landi Hafnarfjarðar er því ranglega dregið að þessu leyti og leiðréttist þar með.
Landamerki Krýsuvíkur til vesturs eru skýr og ótvíræð og ókleift að draga legu þeirra í efa. Krýsuvíkurlandið hefur því verið talið víðlendara og um það verið heimildir, en presturinn hefur talið affarasælast að fara sáttaleið í stað þess að gæta ýtrustu réttinda jarðarinnar.
Sveitarfélögin Vatnsleysu-strandahreppur og Grindavík eiga sér sameiginleg mörk og eru Krýsuvík og Hraun austan merkjanna. Mörkin eru á landamerkjum jarða Hrauns og Vatnsleysu, en svo sem alkunna er eru hreppamörk dregin þannig að hver jörð um sig eigi einungis land innan eins sveitarfélags. Hreppamörk eru því ekki dregin um lönd jarða heldur um ytri merki jarða og falla því saman sveitarfélagamörk og landamerki aðliggjandi jarða.
Hraun-220Kröfur Strandarmanna um land í Krýsuvík og Hraunslandi eru afar ósannfærandi því vitað er hvar mörk sveitarfélaganna liggja. Í landamerkjabréfum jarða Strandarmanna eru iðulega sagt að land þeirra nái svo langt sem land Vatnsleysustrandahrepps nær eða að land jarðanna nái að landi Krýsuvíkur í Grindavíkurhreppi. Hreppamörk ráða því merkjum Strandarjarðanna gagnvart jörðum Grindvíkinga og Krýsvíkinga. Óþarfi er því að leita staðfestingar á sveitamörkum.
Sveitarfélagamörk eru mikilsvert sönnunargagn um landamerki jarða. Þegar svo stendur á að gögn um hreppamörk og landamerki jarða falla  saman er því sem næst útilokað að hnekkja landamerkjabréfum jarðanna. Minnt er á að merkjum jarða Krýsuvíkur og Hrauns til austurs er ekki lýst í landamerkjabréfum jarðanna, heldur er látið nægja að treysta á merki jarða sem við taka. Merki Hrauns og Krýsuvíkur og sveitarmörk ráða því merkjum jarðanna.
Um  eignarrétt héraðsnefndar Suðurnesja að jörðinni Krýsuvík má segja þetta: Íslenska ríkið tók jarðirnar Kýsuvík og Stóra-Nýjabæ eignarnámi skv. heimild í l. nr. 11/1936.
Skipuð var matsnefnd til að ákveða bætur og er mat hennar dagsett 4. nóvember 1936. Segir þar mSelsvellir.a. að afhenda skuli Gullbringusýslu beitiland jarðarinnar (þ.e. lítt ræktanlegt land jarðarinnar) sem afréttaland. Matsnefndin mat það land sértaklega til kaupverðs kr. 5.000. Hinn 20. febrúar 1941 seldi ríkið Hafnarfjarðarbæ úrskiptan hluta jarðarinnar ofl.  Hinn 29. september 1941 afsalaði ríkið sýslunefnd Gullbringusýslu öllu beitilandi Krýsuvíkur og Stóra-Nýjabæjar að undanskildu landi sem afsalað hafði verið Hafnarfirði. Tekið er fram að afsalað sé landi. Sýslunefndin greiddi fullt verð fyrir landið skv. mati matsnefndar. Um heimild til sölunnar er vísað til l. nr. 101/1940, sbr. l. nr. 11/1936. Tekið er fram í afsali að sýslan ,,greiði alla skatta og skyldur af landinu sem falla í gjalddaga eftir 1. janúar 1941.“ Undanskilin sölunni til sýslunnar voru ítök og ýmis hlunnindi. Stefndi, Héraðsnefnd Suðurnesja, hefur tekið við réttindum og skyldum sýslunefndar Gullbringusýslu, þar á meðal eignarráðum yfir Krýsuvíkurjörðinni.

Krysuvik

Afsalinu var þinglýst 18. nóvember 1941 og hlaut það sömu meðferð og önnur afsöl fyrir landareignum og greidd voru þinglýsingar- og stimpilgjöld í samræmi við það.  Héraðsnefndin er talin eigandi landsins skv. veðmálabókum. Hið afsalaða land er talið eign sýslunnar í Fasteignabók 1942-43.
Í landamerkja-dóminum frá 1971 fara bæði Jarðeignadeild ríkisins og sýslusjóður Gullbringusýslu með fyrirsvar fyrir Krýsuvíkurjörðina. Íslenska ríki hafði mikilsverðara hagsmuna að gæta sem eigandi hlunninda innan marka jarðarinnar og sýslunefndin sem handhafi grunneignarréttarins. Í landamerkjabréfi frá 16. febrúar 1980, og undirritaða af íslenska ríkinu er skýrt tekið fram að sýslunefndin er eigandi Krýsuvíkurlandsins, en íslenska ríkið er eigandi ýmissa réttinda í Krýsuvíkurlandinu. Því er ljóst að íslenska ríkið fer ekki með hlutdeild í grunneignarréttinum að Krýsuvíkurlandinu.

Hraunssel

Um sönnunargildi landamerkjabréfa og landakort má geta þess að  eigendur jarða í Vatnsleysustrandar-hreppi búa ekki yfir landamerkjabréfum fyrir jarðir sínar né öðrum sönnunargögnum,  sem styðja kröfur um aukið land á kostnað Krýsvíkinga og Grindvíkinga. Þeir eiga því ekkert eignartilkall til lands innan þinglesinna landamerkja jarðanna Hrauns og Krýsuvíkur. Austurmörk jarðanna eru í engu tilviki staðsett t.d. með tilvísun í þekkt örnefni. Ýmist er vísað til þess að jarðirnar nái jafnt langt og land hreppsins er talið eða að landi Krýsuvíkur. Meðal sönnunargagna sem vitnað hefur verið til eru landakort af þrætusvæðinu frá ýmsum tímum, en þó öll yngri en landamerkjabréfin fyrir Hraun og Krýsuvík.  Sönnunargildi þeirra er lítið sem ekkert í þeim tilvikum, þar sem þau eru í andstöðu við viðtekin og lögbundin sönnunargögn eins og þinglesin landamerkjabréf, sem gerð eru skv. fyrirmælum laga undir eftirliti sýslumanns. Sjaldnast er vitað eftir hvaða heimildum mörk milli sveitarfélaga eru dregin á landakort. Sönnunargildi þeirra um slík mörk eru því afar takmörkuð. Þrátt fyrir það er rétt að vekja athygli á því að á fjölmörgum þeirra landabréfa, sem vitnað hefur  verið til eru vesturmörk Grindavíkur og Krýsuvíkur dregin fyrir vestan Trölladyngju, svo sem landamerkjum Krýsuvíkur er lýst í landamerkjabréfinu  frá 14. maí 1890.
Yngri landakort geta Selsvellir-21ekki hrundið þinglýstum landamerkjabréfum. Hæstiréttur hefur fjallað um sönnunargildi landamerkjabréfa með þessum hætti í málinu nr. 48/2004: “Við mat á gildi landamerkjabréfa og því hvert sé inntak eignarréttar á svæði, sem þar er lýst, skiptir almennt máli hvort um er að ræða jörð eða annað landsvæði, en þekkt er að landamerkjabréf hafa ekki eingöngu verið gerð fyrir jarðir, heldur einnig til dæmis afrétti, sem ekki tengjast sérstaklega tiltekinni jörð. Felur landamerkjabréf fyrir jörð í sér ríkari sönnun fyrir því að um eignarland sé að ræða þótt jafnframt verði að meta gildi hvers bréfs sérstaklega.” Samkvæmt þessu sjónarmiði Hæstaréttar er þarf mikið til að koma til að landamerkjabréfi um jörð verði hnekkt sem sönnun um merki jarðar. Að því er best er vitað hafa dómstólar ekki vikið landmerkjabréfi til hliðar á grundvelli upplýsinga á landabréfum. Hafna verður t.d. með öllu niðurstöðum Ágústs Guðmundssonar, sem eru beinlínis rangar. Síðari tíma landmerkjabréf eru ekki samþykkt af eigendum og umráðamönnum Hrauns og Krýsuvíkur. Þau eru einunngis þinglesin á manntalsþingi Vatnsleysustranda-hrepps.
Fram hefur komið að málsástæður séu að mestu sóttar í skrif Sesselja Guðmundsdóttur. Sjónarmið hennar voru og borin fram í óbyggðanefndarmáli nr. 1/2004. Sesselja telur að Grindvíkingar hafi verið að eigna sér hluta hreppslands Vatnsleysustrandarhrepps. Hún segir m.a. um Selsvelli ,,… þar með ein fegursta náttúruperla Reykjanesskagans, Selsvellir.“  Gengur  Sesselja út frá því, að líklegt sé, að Krýsuvíkurbréfið sé fullgilt ,,… því allir aðilar skrifuðu undir það“.

Sogin

Á bls. 5-6 vísar Sesselja til þess að umráðamenn tiltekinna jarða stefnenda láti í ljósi álit (,,teljum vjer“) sitt á merkjum gagnvart Krýsuvík. Þar er því ranglega haldið fram að landamerkjabréf greindra jarða hafi verið þinglesin í Grindavíkurhreppi og að séra Árni Gíslason í Krýsuvík hafi staðfest þessi merki. Þetta er allt rangt. Ennfremur því að Knarrarnes sé fyrsti bærinn á Ströndinni sem eigi land að Krýsuvíkurlandi en ekki Hraunslandi. Hugleiðingar hennar ganga í berhögg við landamerkjabréf Hrauns og Krýsuvíkur.  Þær eru því bæði rangar og þýðingarlausar hvað varðar merki Strandarmanna að landi Krýsuvíkur og Hrauns (Grindavíkur). Sama er að segja um aðrar framlagðar greinargerðir hennar hvað þetta varðar.
Ekki verður heldur byggt á seinni tíma landamerkjabréfum Strandarmanna þar sem í þeim er endimörkum jarðana ekki lýst sjálfstætt. Þá er á því byggt að þinglesin landamerkjabréf Hrauns og Krýsuvíkur séu einhliða yfirlýsingar eigenda jarðanna, sem hafi ekki hlotNupshliðarhalsið samþykki allra eigenda jarða stefndu. Krýsuvíkurbréfið er samþykkt af  öllum eða flestum umráðamönnum jarða í Vatnsleysustrandar-hreppi. Hraunsbréfið er staðfest af sóknarpresti Strandarmanna og hefur upphaflega verið litið svo á af Hraunsmönnum, að hann væri í fyrirsvari fyrir þá að þessu leyti og því ekki talin ástæða til að afla fleiri áritana. Sú kenning að landamerkjabréfin fyrir Hraun og Krýsuvík séu óskuldbindandi á sér ekki stoð í réttarreglum. Því betur sem bréfin eru úr garði gerð því meira verður sönnunargildi þeirra. Sönnunargildi landamerkjabréfa Strandarmanna er hins vegar nánast ekkert samkvæmt þessu þar sem þau eru ekki samþykkt af nokkrum manni í Grindavíkurhreppi. Landeigendur geta ekki aukið við land sitt með einhliða landamerkjabréfum, sem fari í bága við eldri heimildir. Landmerkin eru ekki einhliða ákveðin heldur með samþykki Strandarmanna og þau eru ekki í andstöðu við eldri heimildir sem sönnunargildi hafa.
Bent hefur verið á að taka þurfu tillit til eldri heimilda og landfræðilegra aðstæðna og örnefna. Ekki hefur verið sýnt framá að merki jarða Krýsuvíkur og Hrauns styðjist ekki við eldri heimildir og örnefni. Og þar sem réttindin styðjast við þinglesin og samþykkt merki hafa Strandarmenn sönnunarbyrðina um að þau lýsi ekki réttilega merkjum milli jarðanna.

Keilir-220

Gildi vitnisburða þeirra sem sönnunargagna er ekkert þegar ekki er tekið fram hverjir hagsmunir þeirra eru eða hversu kunnugir þeir eru (voru) staðháttum. Þannig eru t.d. afrit af vitnisburðum frá 1603/4 og 1790 eru með öllu ólæsileg. Þannig má auðveldlega mótmæla hugleiðingu um Dyngju sem Grænudyngju. Sama er að segja um túlkanir á öðrum örnefnum og staðsetningu þeirra i því skyni að færa merki Krýsuvíkur til austurs og auka þannig land Strandarmanna.
Sú röksemd að miða beri landamerkin við hæsta hnjúkinn á Grænavatnseggjum skv. landmerkjabréfi Þórustaða er ekki á rökum reist. Orðrétt segir: ,,… þaðan beina stefnu alla leið að landi Krýsuvíkur í Grindavíkurhreppi, eftir sjónhendingu úr Hrafnafelli í hæsta hnjúkinn á Grænavatnseggjum.“ Hér er lýst stefnu merkjalínu en tekið fram að hún endi þar sem land Krýsuvíkur tekur við. Hnjúkurinn er ekki landamerkjapunktur.

Spakonuvatn

Upplýsingar um selstöðu breytir engu um landamerki milli jarða, enda geta menn átt rétt til selstöðu í annars manns landi t.d skv. samningi. Jarðabókin hefur ekki sönnunargildi um að Sogasel hafi verið í landi Stóru-Vatnsleysu, enda var hún upphaflega í Krýsuvíkurlandi.
Rétt er að vekja athygli á að landamerkjabréf Hrauns er lesið á manntalsþingi Grindavíkurhrepps, en ekki á manntalsþingi Vatnsleysustrandar-hrepps. Sama á við um landamerkjabréf fyrir Krýsuvík. Landamerkjabréf fyrir jarðirnar í Vatnsleysustrandarhreppi eru þinglesin á manntalsþingi fyrir hreppinn að Brunnastöðum. Almennt var látið nægja að þinglýsa landamerkjum á manntalsþingi þess hrepps, sem jörð tilheyrði. Ekki var algengt að afla samþykkis á merkjum hjá eigendum í öðrum hreppum, enda þótt jarðir lægju saman á hreppsmörkum. það var þó gert í tilviki Krýsuvíkur og að hluta í tilviki Hrauns.  Strandarmenn öfluðu ekki samþykkis eigenda jarða í Grindavíkurhreppi, enda þótt jarðir lægju saman. Veikir þetta mjög sönnunargildi landamerkjabréfa Strandarmanna, en styrkir að sama skapi sönnunargildi bréfa Hrauns og Krýsuvíkur.

Vordubrot

Dregið er í efa réttmæti þeirra orða í landamerkjabréfi Hrauns þar sem segir: “… þaðan til austurs á Selsvallafjall, upp af Sogaselsdal“. Stefnendur gera ágreining um hvaða fjall beri heitið Selsvallafjall. Vilja þeir flytja fjallið til suðurs og auka þannig verulega við land sitt úr landi Hrauns. Strandarmenn hafa jafnan ásælst Selsvelli og með staðhæfingum um legu fjallsins sunnar falla Selsvellir utan merkja Hrauns. Á Selsvallafjalli eru landamerkin klöppuð í stein. Ekki er ágreiningur um hvar Sogaselsdalur eða Sogin eru. Eina fjallið upp af Sogunum sem til greina kemur er Selsvallafjall. Annað fjall kemur ekki til greina. Útilokað er með öllu að lýsa stað fjalls þess, sem Strandarmenn telja vera Selsvallafjall, sem ,,upp af  Sogaselsdal“. Engin tengsl eru milli fjallsins sem Strandarmenn nefna til sögunnar og Sogaselsdal. Það fjall er langt suður af Sogaselsdal.  Af landamerkjabréfi Hrauns er ljóst við hvaða fjall landamerkin miðast. Sogaselsdalur stendur mun lægra en Selsvallafjall og því er eðlilegt að segja að fjallið sé upp af dalnum. Ekki er um áttatilvísun að ræða.
Með öllu er útilokað að minnst hefði verið á Sogaselsdal í Selsvallafjall-3merkjalýsingunni, ef verið var að lýsa Selsvallafjalli á þeim stað. Þar sem þeir telja Selsvallafjall vera er ekkert fjall, heldur Núpshlíðarháls, sem nefnist Selsvallaháls þegar norðar dregur.
Með öllu er óljóst hvar Framfell er réttilega. Þó er ljóst að Vesturfell frá Vigdísarvöllum er eitt og hið sama fellið.
Staðhæfingar um að það, að Hraunsmenn hafi haft í seli í Hraunsseli en ekki á Selsvöllum bendi til að Selsvellir hafi ekki verið innan merkja Hrauns eru ekki réttar og val á selstöðu Hrauns getur átt sér búskaparlegar skýringar.
Merki Krýsuvíkur liggja ekki um Trölladyngju helur í rótum hennar vestan til. Landssvæði Hrauni og Krýsuvík hafa verið nýtt frá jörðunum svo lengi sem vitað er og lengur en hefðartíma fullan. Ekkert hefur verið gert til að slíta hefðartímann með málssókn og er það nú of seint.
Landamerki nefndra jarða er rétt lýst í 120 ára gömlum landaSelsvallafjall-4merkjabréfum. Hafi einhver haft einhvern tíma réttmæta ástæðu og þar með rétt til að véfengja merkin, þá hafi aðgerðarleysis þeirra þau réttaráhrif, að hafna beri kröfum þeirra til landvinninga af þeirri ástæðu. Merkjum jarðanna er skýrlega lýst í þinglesnum landamerkjabréfum og öðrum gögnum og leikur því ekki vafi á legu merkjanna. Þá hafi merkin verið samþykkt af öllum eða  a.m.k. flestum forverum gagnvart Krýsuvík og sóknarprestinum á Ströndinni að því er merki Hrauns varðar. Engum hefur hingað til tekist að sanna að landamerkjabréfin um Krýsuvík og Hraun  séu röng og að þeir hafi óyggjandi betri rétt til annarrar rökfærslu. Öðrum hefur a.m.k. ekki tekist að framvísa landamerkjabréfum til sönnunar um austurmerki jarða þeirra gagnvart Hrauni og Krýsuvík séu annars staðar en landamerkjabréf þeirra jarða segja til um, enda séu ekki sjálfstæðar lýsingar á austurmerkjum jarðanna í landamerkjabréfum þeim, sem gerðar voru fyrir jarðirnar skv. landamerkjalögum.

Hrutar

Ekki nægir að hugleiða um óljósar líkur þess að landmerkin kunni að liggja annars staðar en greint er frá í landamerkjabréfum og þeim uppdráttum sem vísað er til og lýsa legu merkjanna. Sönnunarkröfur á hendur þeim sem vill véfengja landamerkjabréf jarða gagnvart nágrannajörðum er afar ströng. Auk þess er erfitt að draga í efa hefð á landi innan merkja með útilokandi afnotum landsins.
Hér að framan er hvorki tekin afstaða til eignarhalds landsins né tekin afstaða til réttmætis fyrirliggjandi krafna, enda óþarfi. Hins vegar verður ekki hjá því komist, í umfjöllun um landamerki, að geta um augljós kennileiti sem enn eru til staðar með hliðsjón af fyrri umfjöllun og tilvísun til fyrirliggjandi gagna er áður hafa verið lögð til grundvallar staðfestum landamerkjum.

Heimildir m.a.:
-Dómsmál.
-Þjóðlendur.is
-Örnefnalýsingar fyrir Vatnsleysu, Hraun og Krýsuvík.
-Landamerkjabréf.
-Vitnisburður SG, ÁG og fleiri.
-Vettvangsathuganir.

Markhelluhóll

Búðarvatnsstæði og Markhelluhóll. Á honum er mosavaxin varða.

 

Hreiðrið

Haldið var að Kaldárseli. Hraunið, þar sem það er hæst, á milli vegarins með Sléttuhlíð og með Fremstahöfða, heitir Gjár. Vestarlega í því er Gjáahellir. Gengið var að honum. Opið er nokkuð rúmgott. Fyrir innan blasir við rúmgóð hraunrás. Hún lækkar svolítið eftir að komið er inn, en hækkar og vítkar síðan á ný, uns hún endar. Þessi hluti rásarinnar er um 15 metrar. Mold er í botninum og grjótið hefur verið lagað til innan við munnann. Líklegt er að hellir þessi hafi um tíma verið notaður sem fjárskjól. Tiltölulega stutt er í fjárhellana í Kaldárseli, en þeir eru þarna austan við. Hálfhlaðið fjárhús undir Fremstahöfða er einnig þarna skammt suðvestar.

Kaldársel

Gerði í Gjánum ofan Kaldárssels.

Beðið var í nátthaganum norðan Kaldársels uns Þórarinn Björnsson, guð- og hellafræðingur, bættist í hópinn. Leiddi hann hópinn fyrst að náttúrulegum hraunkofa ofarlega á hraunhrygg norðvestan við Kaldársel. Kofinn er í rauninni toppurinn á lóðréttri hraunrás. Dyragat þess snýr á móti suðri, eins og góð dyragöt eiga að gera. Falleg náttúrusmíð.
Þá var haldið til vesturs að Kaðalhelli. Hann er í nokkuð stóru jarðfalli er hallar niður til norðvesturs. Þar uppi í bergveggnum er lág hraunrás, sem nefnd er þessu nafni. Krakkar á vegum KFUMogK í Kaldárseli höfðu þarna afdrep og nefndu hellinn. Kaðal þarf til að komast upp í rásina. Hún er 5-6 metra löng. Ef farið er með hraunveggnum til austurs er komið inn í rúmgóðan sal. Þar uppi er sylla og lág rás, fremur stutt. Ef hins vegar er farið vestur með hraunveggnum er komið inn í skúta. Úr honum liggja göng niður á við og síðan spölkorn inn undir hraunið. Neðst í honum er kristaltær ís, sem aldrei þiðnar fullkomlega. Myndast í honum regluleg og falleg ljósbrot.

Hreiðrið

Í Hreiðrinu.

Loks var haldið áfram til vesturs. Þar í miðri hraunbreiðunni er lítið gat, ca. 60 c, í þvermál, beint niður á við. Hrunið hefur þarna niður í hraunrás. Dýpið er um mannhæð. Þórarinn fann helli þennan á sínum tíma og nefndi hann Hreiðrið. Fleiri virðast ekki hafa komið þar niður ef marka má heilan mosann á börmunum og sporlausa moldina á botninum.
Rásin er alveg heil og liggur bæði til norðurs og suðurs. Norðurleiðin, um 15 metrar, er nokkuð þröng með mold á botni. Suðurleiðin er hins vegar eins og kona – góð á milli. Hún lækkar, en hækkar síðan aftur eftir u.þ.b. 10 metra. Botninn er grófur sem og barmarnir. Rauðleitt grjótið er hrjúft og því þörf að vera með bæði vettlinga og hnjáhlífar.

Hreiðrið

Í Hreiðrinu.

Þegar komið er vel innfyrir birtist gildi hellisins. Á steinum, í lofti og á víðar má sjá mikið af misstórum gasbólum, nokkurs konar eggjum. Bólurnar eru gráleitar og virðast hafa sprottið út úr berginu. Fyrirbæri þetta má sjá í öðrum hellum, en varla í þessum mæli á einum stað. Hægt væri að skríða innar því hraunið virðist vera lagskipt. Botninn er hins vegar mjög grófur. Ætla má að Hreiðrið geti verið um 100 metrar. Hellirinn er vandfundinn. Tekinn var punktur á hann til öryggis.
Þegar út var komið blasti við stjörnubjartur himininn, norðurljós og sindrandi máninn yfir Helgafelli. Blankalogn. Fegurra getur það varla orðið.

Hreiðrið

Jarðmyndanir í Hreiðrinu.

Ölfusvatn

Við Ölfusvatn er letursteinn með áletruninni VES + 1736.
Steinninn, sem er friðlýstur, er kominn Olfusvatn-3undir gras, en í Fornleifaskrá 1977 segir m.a. um hann: “Jarðfastur grágrýtsisteinn með áletruninni VES + 1736 er í túninu suðaustan við gamla fjárhústóft, nærri hulinn jarðvegi,” segir í örnefnalýsingu. Steinninn er aðeins norðar en beint vestur af heimreiðinni sem gengur þvert yfir bæjarhólinn. Hann er alveg í brekkurótum, um 3 m S við allmikla grjóthrúgu sem einnig er í brekkurótunum neðan við fjárhústóftina. Steinninn er nær alveg hulinn sinu og mosa. Steinninn var friðlýstur 1927. Hann er a.m.k. 60×50 cm, heldur ávalur og er áletrunin ofaná honum, á eystri helmingi, er steinninn snýr uppí brekkuna, A-V og snýr áletrunin í norður.”
olfusvatn-5Á skilti við tóftir bæjarins Ölfusvatns stendur m.a.: “Ölfusvatn hefur verið í eyði frá 1947. Bæjarins er getið í fornum heimildum og því má ætla að hér hafi verið búið óslitið allt frá því á landnámsöld. Bæjarstæði Ölfusvatns er einstakur minjastaður og óskaddaður að mestu leyti. Bærinn fór í eyðu áður en byrjað var að beita stórvirkum vinnuvélum við sléttun túna og byggingar. Á Ölfusvatni er því óskemmdur bæjarhóll – upphlaðnar leifar af bæjarhúsum síðustu 1000 ára og útihúsatóftir og garðleifar sem gefa hugmynd um forna búskaparhætt. Bæjarstæðpið eða bæjarhóllinn er mjög greinlegur og má enn greina í honum herbergja- og húsaskipan síðasta bæjarins. Enn fremur sjást leifar nokkurra útihúsa í túninu. Uppbyggð heimreið liggur heim að bænum en framan eða austan við hann voru kálgarðar.
Ölfusvatn var stórbýli á miðöldum og þar var komin sóknarkirkja um 1200. Ölfusvatnskirkja átti hálfa jörðina og Sandey í Þingvallavatni. Hún stóð fram undir 1600 en eftir það lagðist sóknin til Úlfljótsvatnskirkju. Í byrjun 18. aldar sáust enn merki kirkjugarðs og leiða. Í brekkurótum í túninu vestan við bæjarstæðið er steinn sem var friðlýstur af þjóðminjaverði 1927. Á honum er krossmark, áletrunin VES og ártalið 1736. Ekki er ljóst fyrir hvað áletrunin stendur, hugsanlega er hún fangamark einhvers.”
Yfir 80 letursteinar eru þekktir á Reykjanesskaganum.

Heimild:
-Fornleifaskrá 1997.
-Örnefnalýsing fyrir Ölfusvatn.
-Skilti við Ölfusvatn.

Ölfusvatn

Ölfusvatn – letursteinn.

Hreindýr

“Það mun hafa verið árið 1771, að hreindýrum var hleypt á land á Reykjanesskaga og sleppt í hraunin fyrir sunnan Hafnarfjörð. Voru hreindýr þessi fengin frá Finnmörku. Hreindýrin munu hafa þrifizt þar vel og talsvert fjölgað. Er þeirra oft getið á skaganum síðan, og hafa stundum Hreindýrveiðst þar til muna. Þorvaldur Thoroddsen hyggur, að þau hafi flest fallið harða veturinn 1880—1881, en eftir það hafi þeim nokkuð fjölgað aftur. Segir hann, að 1890 hafi sézt 15—20 hreindýr í einum hóp nærri Bláfjöllum. (Lýsing Islands II, bls. 457—58).
Síðar munu eigi hafa komið svo harðir vetur, að hreindýrunum hafi stafað veruleg hætta af. Þó er nú svo komið, að hreindýrin munu vera orðin afar fágæt hér á skaganum, ef ekki alveg horfín. Síðustu sumrin hefi eg farið mjög víða um fjalllendin og hraunin á Reykjanesskaga, gengið upp á flest fjöllin, og notið útsýnis með góðum sjónauka yfir héruðin umhverfis þau; en hvergi hefi eg getað komið auga á hreindýr, og ekki heldur fundið horn eða bein af hreinum. Ýmsa kunnuga menn, sem fengizt hafa við smalamennsku, hefi eg líka spurt um hreindýrin, og kváðust þeir ekki hafa séð þau síðustu árin.
Guðmundur Jónsson, frá Setbergi í Hafnarfirði, er manna kunnugastur í hraununum og f jöllunum suður og austur frá Kaldárseli. Hann hefir sagt mér, að hann hafi séð 35 hreindýr í hóp uppi á Lönguhlíðarfjöllum fyrir vestan Brennisteinsfjöll. Það var um haustið í réttum, árið 1880. Um aldamótin síðustu sá hann hreindýr seint í maímánuði; var það bæði kýr og tarfur, og fylgdi þeim kálfur. Það var fyrir neðan Skörðin, fyrir vestan Þrívörðuhnúk. Smalahundur Guðmundar hljóp á eftir hreinunum, og flýðu dýrin upp brekkuna; varð þar brattur skafl á leið þeirra. Runnu þau upp skaflinn, en þar varð kálfurinn seinfærari og hrataði niður skaflinn aftur. Sótti þá hundurinn að honum. Snéru þá fullorðnu dýrin í skyndi aftur. Réðist tarfurinn móti hundinum með miklum ofsa og reyndi að stanga hann. En kýrin lagði af stað með kálfinn upp skaflinn á meðan; lét hún hann ganga við hlið sér, brekkumegin, svo að hann hefði stuðning af sér, meðan þau sneiddu fönnina. Loks tókst Guðmundi að aftra hundinum. Tók þá tarfurinn á rás eftir hinum dýrunum. — Guðmundur kveðst sjálfur ekki hafa séð hreindýrin hér á skaganum eftir þetta.
Á árunum 1885—’90 voru tvö hreindýr skotin hjá Sandfelli, fyrir vestan Vífilsfell; hafði veiðimaðurinn hitt þau í Kristjánsdölum og elt þau þvert yfir brunahraunin unz hann náði færi á þeim við Sandfell. Síðla vetrar um 1890 komu 9 hreindýr í hóp, niður undir Smalaskála hjá Kaldárseli. Þá var heldur harður vetur og knappt um haga. Hreinar þessir urðu fyrir styggð af hundum og flýðu norður fyrir Búrfell.
Ólafur Þorvaldsson, sem nú er bóndi í Herdísarvík, kveðst hafa séð 4 hreindýr í október 1910. Lágu þau á hæð upp á Lönguhlíðarfjöllum norðaustur af Vörðufelli, er hann sá þau fyrst. Komst hann mjög nærri þeim og gat um stund athugað þau í næði. Loks urðu þau vör við hann og tóku á rás. Hlupu þau stóran hring umhverfis hann og fóru á brokki, en stukku eigi; en við og við stönzuðu þau til að athuga hvað manninum liði. Síðan héldu þau áfram í enn stærri hring, unz þau hurfu austur fyrir Brennisteinsfjöll.
HreindýrDr. Bjarni Sæmundsson hefir sagt mér, eitt hreindýr hafi sézt nærri sjó, skammt fyrir vestan Grindavík, að vorlagi um 1877. Þótti það nýlunda, því að þau voru víst mjög fágæt svo utarlega á skaganum.
Guðmundur Einarsson, listamaður, frá Miðdal, kveðst hafa séð tvö hreindýr í maí 1918 eða 1919. Voru þau suður hjá Bláfföllum. I september 1926 sá hann eitt ungt hreindýr nálægt Lyklafelli. Er það síðasta hreindýr, sem eg veit til að hafi sézt hér nærlendis. Hann kveðst og hafa séð spor eftir hreindýr að vetrarlagi upp á Heiðinni-há, fyrir 3—4 árum síðan.
Þórður Eyjólfsson frá Vindheimum hefir sagt mér að all-mikið hafði verið af hreindýrum á austur hluta skagans, einkum kringum Bláfjöll og á Heiðinni-há, þegar hann var drengur, rétt fyrir 1880. Sáu menn stundum 50 dýr saman í hóp. Voru þau þá talsvert veidd. Vorið 1908 sá hann 9 í hóp sunnan við Grindaskörð, og á þeim árum kom það fyrir að nokkur hreindýr komu niður að sjó í Selvognum. Var þá fannþungt og hagleysur til fjalla. Meðan hreindýrin voru algengari, var það oft að menn fundu hreinahorn í smalamennskum og fjallleitum þar efra.
HreindýrGuðmundur Hannesson, sem eitt sinn bjó á Vigdísarvöllum, hafði oft veitt hreindýr hér á fjöllunum. Mér hefir líka verið sagt, að skotmaður nokkur hafi komið að hreindýrahóp í Marardal, vestan vert við Hengilinn. Er dalurinn girtur klettum á allar hliðar, nema einstígi út úr honum að vestan. Maðurinn komst í einstigið og sat fyrir dýrunum. Þau leituðu fast á að komast út, en hann skaut þau niður hvert af öðru. Hann hafði afturhlaðna byssu, og var það mesta þrekraun fyrir hann, að verja dýrunum útgöngu, meðan hann hlóð byssuna. Segja sumir, að hann hafi að lokum orðið að gefa upp vörnina, og sleppa miklu af hópnum, en hafði þó fengið góða veiði. Aðrir segja að hann hafi fellt öll dýrin. Eigi hefi eg getað grafið upp hvaða ár þetta var eða hver þessi skotmaður var.
HreindýrÞætti mér vænt um, ef einhver gæti frætt mig um það. Af þessum strjálu upplýsingum má ráða það, að aðalheimkynni hreindýranna hafi verið í f jöllunum á austanverðum Reykjanesskaga. Þó hefi eg heyrt þess getið, að þau hafi stundum sézt á Mosfellsheiði og Strandaheiði. Þau munu hafa verið mjög algeng eftir miðja síðustu öld, fram til 1880, en hafa víst týnt mjög tölunni harða veturinn 1880—’81, eins og Þorv. Thoroddsen skýrir frá. Þau hafa líka verið mikið veidd árin þar á undan. Ef til vill hefir þeim fjölgað nokkuð aftur. En síðustu tvo áratugi hefir þeim farið sí fækkandi og eru nú að mestu eða öllu leyti horfin héðan af skaganum.
Ástæðan til þessarar síðustu fækkunar hreinanna hér um slóðir geta margar verið, t. d. aukin veiði, að stofninn hafi verið genginn úr sér og orðinn ver fær til þess að bjarga sér, eða það að þau hafi flutt sig af skaganum lengra til norðausturs upp í hálendið, vegna sí-vaxandi umferðar og ónæðis á hinum fornu stöðvum sínum.
HreindýrEigum vér að láta hér við sitja og gera eigi neitt til að koma upp hreindýrastofni á Reykjanesskaga aftur? Í Norður-Ameríku hefir Vilhjálmur Stefánsson landkönnunarmaður beitt sér fyrir því, að hin köldu og óræktanlegu haglendi nyrzt í Ameríku, yrðu gerð að arðbæru landi, með því að koma upp hreinahjörðum, er gengu þar sjálfala, en hefðu aðhald af girðingum, svo að smala mætti þeim saman, reka í kvíar, og velja úr hópunum dýr til slátrunar. — Þetta er þegar að nokkru komið í framkvæmd, og þykir bera ákjósanlegan árangur. Austurf jöllin á Reykjanesskaga virðast ágætlega fallin fyrir hreindýr. Á Lönguhlíðarfjöllum, Heiðinni-há og hálendinu þar í grennd, er gnægð af fléttugróðri (skófir, hreindýramosi o. fl.) og allmikið af öðrum kjarngróðri, sem góður ætti að vera til beitar handa hreindýrum.
HreindýrNú er komin fjárgirðing úr Selvogi alla leið norðaustur á Hellisheiði. Með lítilli endurbót ætti hún að nægja til að hindra það, að hreindýr af skaganum reikuðu austur. Til viðbótar vantaði girðingu, er stæði fyrir þeim að norðan, svo eigi töpuðust þau þá leið af skaganum. — Ef til vill gætu og hreindýrin þrifist í þrengri girðingum, þar sem hægra væri við þau að ráða, gefa þeim í harðindum og velja úr þeim til slátrunar. Hreindýrahjarðir hér á skaganum ættu að geta veitt nokkurn arð, ef að svo væri frá girðingum gengið að hafa mætti hemil á þeim, og reka þau saman á haustin til að velja úr þeim slátursdýr. Verði byrjað á slíku, væri öruggast að fá nýjan og hraustan stofn frá Finnmörku, ala hann fyrst í girðingu, svo hafa mætti eftirlit með dýrunum fyrstu árin. Hagagirðingin á Straumi fyrir sunnan Hafnarfjörð væri hafandi til slíks. Þar er víðlendi nokkuð mikið innan girðingar, og góður gróður, sem hreindýr mundi geta þrifist á, og girðingin sögð traust. Ef til vill mundi og hagagirðing Hafnarfjarðarkaupstaðar, með lítilli viðbót, geta orðið hentug handa slíkum hreindýrum.”

Heimild:
-Náttúrufræðingurinn 01.02.1932.

Eldvörp
Enn og aftur var gerð leit að Hamrabóndahelli nálægt Eldvörpum. Samkvæmt lýsingu Helga Gamalíassonar frá Stað, sem nú er um sjötugt og sá hellinn er hann var á fermingaraldri er hann var á ferð með föður sínum og bróður á leið upp frá Húsatóttum að Þórðarfelli, á hellirinn að vera á sléttu hraunssvæði norðan við Sundvörðuhraun skammt austan við Eldvörp. Leitað var gaumgæfulega á svæðinu á meðan birtu naut, en allt kom fyrir ekki. (Sjá ófundið).

Eldvörp

Eldvörp.

Næst þegar farið verður á svæðið verður leiðin, sem farin var á sínum tíma, gengin í fylgd Helga. Þá verður gengið frá Sundvörðuhrauni á móts við Sundvörðuna og slóðanum fylgt að hraunkantinum þar sem hann endar utan í Sandfellshæð. Gamli slóðinn sést ágætlega í hrauninu þrátt fyrir tilkomu nýja vegarins út í Eldvörp. Vitað er að hellirinn er í lægð skammt frá slóðanum og á opið að snúa á mót suðri. Bræðurnir höfðu hlaupið frá dráttarvélinni þegar hlé var gert á akstrinum og þá séð hellisopið. Hlaðið er fyrir það og er dyragatið reglulegt. Hellirinn var notaður af bóndanum á Hömrum er hann skyrraðist við hreppstjórann á Húsatóttum er meinaði honum fjörubeit. Hamrabóndi fór þá með sauði sína inn á hraunið og fóðraði þá þar um veturinn. Alls ekki er útilokað að nýi Eldvarparvegurinn hafi verið lagður yfir hellisopið – annað eins hefur gerst í vegagerð hér á landi.
Frábært veður þrátt fyrir takmarkaðan árangur. Hafa ber þó í huga að “mottó” FERLIRs er að “læra meira og meira, meira í dag en í gær”.

Árnastígur

Árnastígur.