Hraunkot

Í þættinum „Gull og grænir skógar“ á Rás 1 (RÚV) þann 16. okt. 2026 var viðtal við Anton Helgi Jónsson (f. 1955) þar sem hann fjallar m.a. um hús, Hraunkot, sem hann ólst upp í á horni Hellisgötu og Skúlaskeiðs, áður Kirkjuvegur 12 (nú Hellisgata 12), og samskiptum móður hans við álfkonu búandi í klapparhól austan við húsið. Skammt norðar var húsið Breiðagerði, en það hefur nú verið rifið.

Hraunkot

Hraunkot á horni Skúlaskeiðs og Hellisgötu.

„Móðir mín hét Karlotta Þorsteinsdóttir, f. 1912. Hún bjó í húsinu, sem byggt var í kringum 1920, í 27 eða 28 ár. Mamma flytur þangað að vestan sem ung kona með föður sínum. Hún trúði á álfa og hulduverur.
Hraunkot var vel afmarkað frá girðingunni er var umleikis Hellisgerði. Á lóðinni var þessi klettaborg aftan við skjólpall. Móðir mín fékk snemma vitneskju um það að þetta væri álfaklettur og í honum byggi álfkona.
Krakkar voru varaðir við hólnum og ekki mátti vera með hávaða í nágrenni við hann. Mamma sagði mér frá álfakonunni þegar ég var 10 ára.

Hraunkot

Hraunkot – álfakletturinn.

Áður en ég fæddist var mamma oftlega ein í húsinu ásamt eldri systur minni. Eina nóttina vaknaði hún, eða dreymdi, að til hennar kemur kona. Hún segir að hún vilji aðstoða mömmu við að passa stelpuna því hún hafi litið svo vel eftir klettinum hennar. Ef hún þyrfti að bregða sér frá, t.d. út í búð, þá myndi hún líta eftir stelpunni.
Svo liðu nokkur ár. Þágerist það að álfkonan kemur til mömmu og segir: „Jæja, Karlotta, nú er ég að flytja“. Þær þökkuðu hvor annarri fyrir samveruna og kvöddust sáttar. Síðan hefur ekki borið á tilvist álfa í klettinum.“

Heimild:
Gull og grænir skógar, Rás 1, Anton Helgi Jónsson, 16. okt 2026.

Hraunkot

Álfakletturinn við Hraunkot, horft frá Hellisgötu.

Kaldársel

A.m.k. 145 fjárborgir eru þekktar á Reykjanesskaga; í fyrrum landnámi Ingólfs. Flestar eru borgirnar vel sýnilegar, en sumar þarf að gaumgæfa. Hinar fyrrnefndu rata jafnan inn í fornleifaskráningar, en hinar síðarnefndu ekki. Þannig er t.d. nokkurra fjárborga getið í fornleifaskráningu á Vatnsleysuströnd, en jafn margra er ógetið. Sama gildir um önnur svæði Skagans.

Birna Lárusdóttir skrifaði um „Fjárborgir“ í Árbók Hins íslenska fornleifafélags árið 2010:

Árbók Hins íslenska fornleifafélags 2010

Árbók Hins íslenska fornleifafélags 2010.

„Þótt fjárborgir séu oft hringlaga er það ekki algilt og bæði fornleifaskráning og heimildakönnun sýna að fleiri gerðir mannvirkja hafa verið kallaðar fjárborgir. Yfirleitt er hugtakið „borg“ þó notað um borghlaðin mannvirki, þ.e. hlaðin þannig að hleðslan dregst smám saman að sér, mjókkar upp á við, jafnvel svo hátt að hleðslur mætist í toppinn. Þau þurfa ekki endilega að vera hringlaga í grunninn þótt það sé algengt. Í slík hús á ekki að þurfa neitt timburverk ef vel er að verki staðið. Þetta skýrir sennilega af hverju fjárborgir undir þaki, eins og t.d. í Húsagarði, eru oft litlar, enda er væntanlega erfiðara að ná grjótinu saman í toppinn eftir því sem mannvirkið er stærra að grunnfleti. Opin hringlaga fjárskýli eru líka kölluð borgir eða fjárbyrgi, jafnvel þótt hleðslan halli ekki inn á við. Hugtakið fjárbyrgi er reyndar notað frjálslega í heimildum, um allskonar skýli fyrir fé, bæði þau sem eru náttúruleg, eins og t.d. hella, smáskúta og líka mannvirki eins og beitarhús og jafnvel stekki.

Birna Lárusdóttir

Birna Lárusdóttir.

Heimildir geta um ýmiss konar mannvirki önnur en fjárskýli sem hafa verið borghlaðin. Þar má nefna hlöður, fjós og sæluhús, þeirra frægast er líklega Hellukofinn á Hellisheiði. Fiskbyrgi eru oft borghlaðin en þau eru yfirleitt lítil, sjaldan meira en 2-3 m í þvermál og stundum aflöng. Þá eru til dæmi um mannvirki sem eru kölluð Borgir og hafa sjálfsagt verið borghlaðin en gegndu annars konar hlutverki en að skýla fé, t.d. Borgir við Apavatn í Grímsnesi sem eru sagðar veiðihús Skálholtsbiskupa. Því er ekki sjálfgefið að hugtakið borg vísi á fjárborg og reyndar eru dæmi um að þau vísi ekki einu sinni á hringlaga mannvirki eða borghlaðin. Þannig er t.d. fjárborg í landi Reykjavíkur ferköntuð en ekki hringlaga og á Núpsstað er fjárborgsporöskjulaga aðhald, eiginlega rétt sem er hlaðin upp við Borgarklett.

Stakkavíkurborg

Stakkavíkurborg í Selvogi.

Fram að þessu hefur umfjöllun um fjárborgir hér á landi aðallega snúist um hvort þær gætu átt keltneskar rætur. Eru þær vangaveltur sprottnar af byggingarlaginu og því að dreifing þeirra virðist fylgja útbreiðslu örnefna sem hafa keltneskan uppruna. Þótt hugmyndirnar séu áhugaverðar út af fyrir sig má líka skoða fjárborgirnar út frá öðru sjónarhorni. Þær eru vitnisburður um ákveðinn þátt í sauðfjárrækt og mikilvægar sem hluti af þróunarsögu mannvirkja sem hafa verið notuð fyrir sauðfé. Sauðfjárrækt hefur alltaf skipað mikilvægan sess fyrir afkomu Íslendinga en á hinn bóginn er margt á huldu um þróun hennar og áherslur frá landnámi til nútíma þótt margt, bæði ritaðar heimildir og fornleifar, bendi til að sauðfé hafi verið tiltölulega fátt fyrst eftir landnám en fjölgað eftir því sem á leið.

Fjárborg

Fjárborg í Borgarholtsbrekkum í Reykjavík – ferköntuð.

Áður en lengra er haldið er nauðsynlegt að leggja grunn að sögu fjárborga. Þannig var hjáleigan Borg á Barkarstöðum í Fljótshlíð talin reist þar sem áður var brúkuð fjárborg. Borgarkot, sem var hjáleiga Miðdals í Mosfellssveit var sögð reist á fornu fjárborgarstæði og Másstaðabyrgi var heiti á gamalli fjárborg í landi Hofstaða í Miklaholtshreppi. Þetta gefur til kynna að fjárborgir hafi verið þekktar nokkru áður en þeir félagar gerðu víðreist, sennilega á 17. öld og er að auki vísbending þess að sumir bæir með orðliðinn borg í nafni sínu kunni að vera reistir á gömlum fjárborgarstæðum þótt ekki sé hægt að útiloka að um örnefnaskýringar sé að ræða.

Djúpudalaborg

Djúpudalaborg – topphlaðinn fjárborg í Ölfusi.

Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson geta um fjárborgir í Skaftafellssýslum um miðbik 18. aldar og hæla þeim nokkuð: „Fjárborgir kallast strýtulaga skýli, hlaðin úr torfi og grjóti. Eru þau kringlótt að lögun og dyr á þeim niðri við jörðu, svo lágar, að maður getur aðeins skriðið inn um þær, en í toppi borgarinnar er gat eða ljóri. Á Síðunni og víðar láta menn fé liggja í borgum þessum í stað fjárhúsa, einkum útigangsfé, og þrífst það miklu betur með þeim hætti. Stærð borganna er mismunandi, en hæðin 4-6 álnir.

Viðeyjarborg

Viðeyjarborg ofan Skála.

Á Síðunni hefir jarðeldurinn sums staðar skapað lík skýli. Eru það holar hraunhvelfingar. Þegar þær eru notaðar fyrirfjárbyrgi, er brotið gat á hlið þeirra, og það er vafalaust, að menn hafa tekið sér þessar hraunhvelfingar til fyrirmyndar, er þeir tóku að gera fjárborgirnar.“ Í sömu heimild er minnst lauslega á að fé þrífist mjög vel í hellum og stórum fjárborgum á Rangárvöllum en ástandið í Árnes- og Rangárvallasýslum er þó almennt ekki beysið. Fé fellur þar oft hundruðum saman á vetrum, hirðingarlaust á útigangi.

Fjárborgir

Fjárborgir á Reykjanesskaga – 142 að tölu.

Ekki er einsdæmi að menn finni samsvörun milli eldvarpa og fjárborga eins og Eggert og Bjarni, því hið sama gerði Sveinn Pálsson í skýrslu um Mývatnselda nokkrum áratugum síðar. Hann lýsir atburðarásinni svo: „Á mörgum stöðum uppkomu nú smærri eldvörp eða borgir í hrauninu sjálfu, sem á eptir verða sem uppmjó, stærri og smærri fjárbyrgi, kringlótt í lögun, hol að innan og glasseruð með allra handa myndum og sléttu steingólfi að neðan og dyrum á sumum einhvers staðar út úr sjer.“
Í ferðabók sinni getur Sveinn auk þess um fjárborgir í Skaftafellssýslu og Landeyjum. Fjárborgir eru raunar eina húsaskjólið fyrir fé sem Sveinn minnist á og vekur það upp nokkrar spurningar, t.d. má velta fyrir sér hvort þær hafi verið nýjung í hans augum eða jafnvel hið gagnstæða, að þær hafi verið orðnar sjaldgæfar.
Á 18. öld var mikið talað fyrir umbótum í landbúnaði hér á landi. Útgáfa jókst mjög með tilkomu prentsmiðju í Hrappsey en fjöldi íslenskra rita var einnig prentaður í Kaupmannahöfn, m.a. mörg hagnýt uppfræðslurit. Búnaðarfræðsla var snar þáttur í þessum ritum, enda þótti mörgu ábótavant í íslenskum landbúnaði og ýmsir þeirrar skoðunar að það væri hægt að auka arðsemi sauðfjárræktar með tiltölulega lítilli fyrirhöfn. Með tilkomu Innréttinganna árið 1752 varð ullarframleiðsla mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Skúli Magnússon, fógeti, fékk sænskan mann, Hastfer nokkurn, til að reka sauðfjárbú á Elliðavatni. Þar áttu að fara fram skipulagðar kynbætur, einkum með tilliti til ullargæða. Hastfer gaf út leiðbeiningarrit um hirðingu sauðfjár þar sem hann gagnrýnir m.a. meðferð fjár á Suðurlandi. Hann minnist stuttlega á fjárborgir og telur þær ágætar til síns brúks. Því er ljóst að hann hefur séð þær eða heyrt af þeim í það minnsta. Helsti ókostur borganna þótti honum að þar var erfitt að fóðra fé vegna þess að moð vildi setjast í ullina og varð hún ekki hreinsuð nema með mestu erfiðismunum. Því mælir hann frekar með garðahúsum, eins og tíðkuðust norðanlands. Hafi menn gefið í borgum hefur heyið því ekki farið í þar til gerðar jötur eða garða og því viljað slæðast um gólfið.

Hlíðarborg

Hlíðarborg í Selvogi – síðar stekkur.

Magnús Ketilsson, sýslumaður í Dalasýslu og upplýsingarfrömuður, ritaði um flestar hliðar sauðfjárhirðingar næstur á eftir Hastfer í yfirgripsmiklu riti sem kom út árið 1778. Hann á varla til nógu mörg orð til að lýsa hrifningu sinni á fjárskýlum öðrum en húsum. Hann skilgreinir tvennskonar hringlaga skýli: fjárborgir og fjárbyrgi. Borgirnar eru skv. honum miklu sjaldgæfari og aðallega til á Austurlandi. Um þær segir hann að þær eigi að mjókka upp á við, það sé vandasamt að hlaða þær og aðeins á fárra manna færi.

Óttarsstaðaborg

Óttarsstaðaborg í Hraunum.

Fjárbyrgi, þ.e. opin hringlaga fjárskýli, staðhæfir hann hafi víða verið brúkuð til forna og sjáist ennþá rústir þeirra en þau séu nú víðast aflögð. „Þesse byrge brúkudu fornmenn til ad nýtaser þess betr vetrarbeitina, þvi vída er so landslage háttad, serdeiles á þeim jördum sem ega fialland, ad viss partr landsins verz lenge og slær þar úrþó annad af landinu legge under.“

Pétursborg

Pétursborg.

Skv. Magnúsi voru byrgin aðallega notuð framan af vetrinum og stundum fram yfir jól en þá var farið að gefa fénu. Magnús hvetur menn mjög til að hlaða slík byrgi, enda geti það allir og ekki þurfi viðarskortur að letja menn til verksins.

Heiðmörk

Fjárborg í Heiðmörk.

Þetta eru því viðarlaus mannvirki. Þau hafi marga aðra kosti, t.d. lofti þar vel um féð. Leiðbeiningar um hleðslu byrgja fylgja með kaflanum og eiga að henta sauðsvörtum almúganum sem ekkert kann í reikningslist skv. Magnúsi. Aðferðin er sú að búa til ferkantað líkan með því að raða upp steinvölum eða fiskbeinum og láta hvert stykki tákna tvær álnir, sem var rýmið sem ætla átti hverjum sauð. Á sama hátt skyldi mæla fyrir mannvirkinu sem átti að byggja, stinga svo hæl í miðju svæðisins og hnýta um hann snæri sem næði út í hornið á ferhyrningnum. Þá var auðveldlega hægt að marka fyrir hring með því að ganga með snærið kringum hælinn.

Þorbjarnarstaðaborg

Þorbjarnarstaðaborg í Hraunum.

Hér fylgir lýsing Magnúsar: „Af grióte skal byrged hlada ad innanverdu i midtlær, enn torf mábrúka ad utanverdu og er þó betra af grióte, því fe nýr sig opt vidþar sem þad finnur hentugleika þar til, og fer þá mold og sandr í ullina ef af torfe er hledslan utan. Þá hledslan er komen í midtlær ad utanverdu, er mer sagt ad á þeim gömlu Byrgium hafe vered ávalrbýngr, sem skagad hafe út allt í kríng, enn sídan hafe byrged vered uppdreged.

Borgarhólaborg

Borgarhólaborg.

Þessi býngr edr búnga á byrgiunum er ómissande, því þegar kafalded snakar í kríngum byrgid, þá hvirflar býngrinn því frá ser og slær því þá útfrá byrginu, so ei fýkr ofaní, og þó vilde eg hafa efst á byrginu kraga af hnaus, sem stæde allavega utaf, og ynne hann sama gagn og Býngrinn og munde alldrei inní slíkt byrge fenna. Byrgid skylde vera í þad minsta mannhæd og dyrnar í þá átt, semsíst stæde uppá. Dyrnar skyldu vera lágar med hurd fyrer. Þess vileg her um hurdina geta á öllum þvílíkum byrgium og hagahúsum og eins selhúsum, þá ei er í þeim vered, ad hún se fráteken, því eg hefe vitad skepnur svelta til dauds med því móte, ad þær hafainnfared af forvitne edr í óvedre og hurdin sidan aptrdotted, so eihafa útkomez. Þess háttar vott þikiast menn siá í þessum byrgium,sosem smalamadrinn hafe haft þar sitt adsetr og hægt er so um adbúa í byrginu ad hann hafe þar fullgott, enda má so opt ástanda adþetta se harla naudsynlegt, því opt kann þad til ad vilia ad hann ei heimkomez. Byrgid á ad vera flórad, so því verde hreinu halded, því under því er komed fiaarins haalfa líf ad þad verde ei óhreint.“

Hólmsborg

Hólmsborg.

Það er ekki ljóst hvort rit Magnúsar hafði mikil áhrif á bændur þótt landstjórnin hafi látið dreifa því ókeypis meðal alþýðu, hvort þeir kepptust nú við að hlaða borgir og byrgi. Þó má nefna að árið 1783, fimm árum eftir útkomu ritsins, voru fjárborgir enn taldar óvíða nema kannski helst á Austurlandi. Þó var vitað um þrjár slíkar heima við bæinn á Draghálsi í Svínadal: „Eru þær hladnar svo lángt upp og á sig, at seinastverdr eptir op-korn at eins í kolli þeirra; vandi er at hlada þær, og verdtat siá nettan ritlíng um þat,“ segir í ritgerð um hlöður eftir óþekktan höfund – og með ritlingnum er væntanlega átt við rit Magnúsar.

Garðahverfi

Fjárborg við Garðastekk.

Tíu árum eftir að þessi orð voru rituð lofar Sveinn Pálsson mjög dugnaðarbónda í Görðum á Álftanesi sem sumarið 1793 hafði nýlega látið gera nokkrar fjárborgir í grennd við bæ sinn. Fjárborgunum lýsir hann svo: „Þetta eru eins konar fjárhús, kringlótt og keilulaga og hlaðin þannig saman, að engin spýta er í þeim. Hver þeirra rúmar um 50 fjár.“ Virðist sem Sveinn sé hér að lýsa borgum sem hlaðnar voru alveg upp í topp.

Staðarborg

Staðarborg.

Árið 1837 sendi Hið íslenska bókmenntafélag út spurningalista til allra sóknarpresta á Íslandi til að fá upplýsingar um ýmislegt sem varðaði náttúrufar, örnefni og búskaparhætti. Ein spurninganna fjallaði um fjárborgir og beitarhús.
Stóra-Krossskjól

Stóra-Krossskjól á Njarðvíkurheiði.

Hvergi er getið um fjárborgir í Gullbringusýslu og kemur kannski ekki á óvart, enda er íbúum þar oft úthúðað í heimildum fyrir slæma meðferð á sauðfé, sem reyndar var ekki mjög margt á þessu svæði. Í Snæfells- og Hnappadalssýslu þekktust hvergi fjárborgir nema í Helgafellseyjum og á Vestfjörðum er næstum hvergi minnst á fjárborgir nema í Holtssókn, enþar eru þær nefndar hlöð.

Gvendarborg

Gvendarborg á Vatnsleysuheiði.

Aðeins einn sóknarprestur annar á Vestfjörðum minnist á borgir eða hlöð, í Rafnseyrarkirkjusókn. Þá voru mannvirkin aflögð en ekki vitað hvers vegna. Hvergi er minnst á fjárborgir í Húnavatnssýslum en í Skagafirði segir sóknarpresturinn í Goðdala- og Ábæjarprestakalli að fjárborgir kallist fremur „við sjósíðuna“ og er þar væntanlega að skýra hvers vegna þær þekkist ekki í hans sókn. Eyfirðingar minnast ekki á eina einustu fjárborg. Þegar komið er austur í Múlasýslur kannast prestarnir í Skeggjastaða- og Desjarmýrarsókn við fjárborgir á sjávarbæjum. Í Hólmasókn er getið um borgir á fáeinum bæjum á útsveit, en þær voru aðeins notaðar fyrri part vetrar, meðan ekki var farið að gefa.

Árnaborg

Árnaborg ofan Garðs.

Hér er rétt að nefna að fjárborgir á Melrakkasléttu og sennilega víðar á Norðausturlandi hafa verið fjölbreytilegri mannvirki en annarsstaðar er lýst.

Fjárborg

Fjárborg í Grafningi.

Í Ferðabók Olaviusar er sagt frá fjárborgum sem voru einhverskonar hús, gerð úr ótilhöggnum rekaviðartrjám sem voru reist upp á endann, þakið lagt flatt yfir og þakið með torfi.
Ef til vill voru þau svipuð og svonefndar sandborgir sem Guðmundur Þorsteinsson lýsti síðar á sama svæði, langar tóftir og afar mjóar, garðalausar. Mokað var út úr þeim jafnóðum og söfnuðust oft upp miklir sand- og taðhaugar á skömmum tíma. Þá mun hafa verið venja að taka niður þakið, gera nýja tóft til hliðar við þá gömlu og þekja hana. Heimildarmaður Guðmundar hefur bent honum á að raðir af slíkum tóftum séu víða hlið við hlið á Melrakkasléttu.

Stakkavíkurborg

Stakkavíkurborg.

Í lok 19. aldar ferðaðist Daniel Bruun víða um Ísland og kynnti sér fornar byggingarhefðir. Í umfjöllun um þaklaus hús minnist hann á tvær gerðir fjárborga:

Kaldársel

Kaldársel – fjárborg á Borgarstandi.

„Hér er átt við hinar kringlóttu fjárborgir, sem mest er af á Suðvesturlandi, en þar gekk féð fyrrum úti allt árið en leitaði skjóls í fjárborgunum í illviðrum. Einfaldastar eru skjólborgirnar, sem opnar eru að ofan, en hinar fullkomnari eru hlaðnar saman í eins konar hvelfingu, með loftgat á toppnum, sem hægt var að loka. Borgirnar eru hlaðnar úr torfi eða grjóti, en hvort sem er, gengur efra lag alltaf ögn lengra inn í borgina en hið neðra, þar til allt nær saman og lokast í toppnum.“
Þá segir Bruun frá kringlóttum fjárborgum á Reykjanesskaga sem voru ýmist opnar eða hlaðnar saman í toppinn. Uppruna byggingarstílsins telur hann mega rekja til Hjaltlands og Írlands.

Vogsósaborgir

Vogsósaborgir – „Borgirnar þrjár“.

Með tilkomu búnaðarrita á síðari hluta 19. aldar fæst nokkuð nýtt sjónarhorn á meðferð og aðbúnað fjár, en þar var yfirleitt lögð áhersla á að fóður væri til handa öllum búfénaði og ekki treyst á útigang einan og sér. Dýraverndarsjónarmið voru komin til sögunnar og ekki lengur talið eðlilegt að afföll yrðu af fé, jafnvel í slæmu árferði. „Að gefa á gadd“ þótti ekki viðunandi. Urðu þá fjárborgir hjá sumum tákn um fremur illa meðferð á fénaði, enda virðist hafa verið algengt að því fé sem haft var á borgunum hafi ekki verið ætlað fóður nema að takmörkuðu leyti enda óhentugt að gefa í þeim ef marka má orð Hastfers um 100 árum fyrr.

Borgarskörð

Fjárborg undir Borgarskörðum.

Í Búnaðarriti 1893 segir Sæmundur Eyúlfsson: „Það er margt, sem bendir til þess, að meðferð á kvikfje hafi aldrei verið svo ill sem hún var orðin á síðara hluta 18. aldar og fyrra hluta þessarar aldar. Þá var það mjög títt á suðurlandi, að engin hús voru til fyrir fullorðið fje nema fjárborgir; þar var fjenu hleypt inn í stórhríðum. Þá er langvinnar hagleysur gengu, og bersýnilegt var,að fjeð mundi deyja úr hungri, væri því engin björg veitt, var því gefið hey einhvers staðar úti á klakanum. – Því var „gefið á gadd“.“

Hringurinn

Fjárborgin Hringurinn á Vatnsleysuströnd.

Mönnum eins og Sæmundi, sem lýsa ófremdarástandi í landbúnaði á 19. öld er nokkuð tamt að líta á það sem afleiðingu hnignunar. Á söguöldinni hafi allir haft hey og hús, meira að segja fyrir sauði, en þeir voru annars í seinni tíð oftast hafðir á útigangi yfir veturinn meðan ær og lömb áttu víðast hvar von á húsaskjóli og einhverri gjöf. Sauðir voru harðgerðari en ær og lömb og líklegri til að lifa af veturinn. Af heimildum að dæma virðist langalgengast að borgirnar hafi verið notaðar fyrir þá þótt það sé auðvitað ekki alltaf tekið fram.“

Heimild:
-Árbók Hins íslenska fornleifafélags 2010, Fjárborgir – Birna Lárusdóttir, bls. 57-65.

Óbrennishólmi

Fjárborg eða fornt virki í Óbrennishólma.

Siggubær

Þegar Steinar Björgvinsson hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar var spurður um hvert væri, að hans áliti, merkilegasta eða sögufrægasta tré í Hafnarfirði, svaraði hann eftir stutta umfjöllun: „Heggurinn við Siggubæ“.

Siggubær

Siggubær – heggur.

Siggurbær er Kirkjuvegur 10. Um bæinn segir m.a.: „Siggubær er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns og sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar. Þar er hægt er að upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.

Í Siggubæ er dæmigerður og sýnir vel hvernig bárujárnsklæddu timburbæir litu út fyrrum.

Siggubær

Siggubær – heggur.

Erlendur Marteinsson sjómaður byggði Siggubæ árið 1902. Dóttir hans, Sigríður Erlendsdóttir, var tíu ára gömul þegar hún flutti í húsið og bjó þar allt til ársins 1978, þegar hún fluttist á elli- og hjúkrunarheimilið Sólvang.
Sigríður lést árið 1979 og arfleiddi Byggðasafn Hafnarfjarðar safnið að Siggubæ í erfðaskrá sinni með nokkrum skilyrðum.

Alþýðukonur og húsmæður í Hafnarfirði 1920–1940

Siggubær

Siggubær.

Alþýðukonur störfuðu við erfiðar aðstæður en náðu að búa til sinn eigin vettvang þegar Verkakvennafélagið Framtíðin var stofnað árið 1925. Félagið barðist fyrir réttindum kvenna og stofnaði dagvistun fyrir börn árið 1933 sem gerði fleiri konum kleift að vinna úti. Árið 1937 var Kvenfélag Alþýðuflokksins stofnað og tóku 155 konur þátt við stofnun þess.
Mikið var lagt á húsmæður á umbrotatímum fyrir seinni heimsstyrjöldina. Þær tryggðu að nóg væri að bíta og brenna, sáu um börnin og öfluðu tekna með saumaskap og þrifum. Á sama tíma voru Hafnfirskar húsmæður virkar í félagsstörfum.

Heggur

Hávaxið birkitré á milli Kirkjuvegar 8b og Hellisgötu 10 (Siggubæjar).

Í Þöll, blaði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, 8. árg. 2002, bls. 10, er fjallað „Tré í Vesturbænum„. Þar fjallar Steinar Björgvinsson m.a. um elsta tré Hafnarfjarðar:
„Elsta núlifandi tré bæjarins, sem heimildir greina frá, er heggurinn við Siggubæ að Kirkjuvegi 10. Í greininni „Trjárækt í Hafnarfirði“ sem birtist í Garðyrkjuritinu 1980 ritar Gísli Sigurðsson: „Heggurinn í garði Sigríðar Erlendsdóttur var gróðusettur árið 1913. Plantan var fengin frá Einari Helgasyni í Gróðrastöðinni. Einnig fékk hún reyniviðarhríslur en þær hafa ekki dafnað vel. Það var ekki fyrr en 1926 að hún setti niður lerkitrén, sem standa hvort sínum megin við gluggann á bænum.“

Siggurbær

Siggubær – heggur.

Heggurinn við Siggubæ er ekki hávaxinn í dag og ekki ósennilegt að það sem nú stendur af honum nú séu stofn- eða rótarskot upp af upprunalega trénu.
Heggur er af rósaætt og náskyldur ýmsum þekktum ávaxta- og berjatrjám eins og plómu og kirsuberjum. Hann er uprunninn í Evrópu og Norður-Asíu. Heggurinn laugast frekar snemma og blómgast hér í júní hreinhvítum, ilmandi blómum í klösum. Stundum þroskast hann hér svört ber á haustin. Rakaheldin, frjósamur jarðvegur á best við hann.

Heggur

Heggur í blóma.

Heggur getur orðið hér nokkrir metrar á hæð. Hann er tilvaldið garðtré og glæsilegur í blóma og er ekki eins plássfrekur og hávaxinn eins og t.d. alaskaösp og sitkagreni.
Heggurinn fær gula og rauðgula haustliti.“

Þegar FERLIRsfélagi ætlaði að taka viðtal við hegginn fyrrnefnda í lok októbermánaðar 2026 hafði hann lagst í vetrardvala svo viðtalið verður að bíða næsta vors.

Heimildir:
-Þöll, blaði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, 8. árg., „Tré í Vesturbænum“, Steinar Björgvinsson, bls. 10.
-https://byggdasafnid.is/syning/siggubaer/

Siggubær

Siggubær.

Mosfellsbær

Í Sunnudagsblaðinu árið 1957 er sagt frá „Hrakningum á Mosfellsheiði fyrir einni öld„:

„Fyrir réttum hundrað árum, eða 6. marz 1857, lögðu fjórtán menn upp á Mosfellsheiði frá Þingvöllum og Vatnskoti og ætluðu þeir til sjóróðra hér syðra. Þegar þeir höfðu skammt farið skall á stórhríð, og urðu sex af mönnum þessum úti, en hinir komust við illan leik til bæja, aðframkomnir af þreytu, kulda og vosbúð.

Mosfellsheiði

Leirvogsvatn og nágrenni.

Frá atburði þessum er skýrt í Þjóðólfi 18. apríl 1857, og er þar birt skýrsla séra Magnúsar Grímssonar á Mosfelli um hrakninga mannanna.

Fer hér á eftir skýrsla séra Magnúsar Grímssonar um þennan atburð, on hún ber yfirskriftina: „Skýrsla um hrakning og harðar farir hinna 14 sjóróðrarmanna er lögðu vestur á Mosfellsheiði 6. f.m.„

Illaklif

Í Illaklifi.

— Í skýrslu þessari eru að vísu ekki nafngreindir nema 13 menn.
Laugardaginn 6. marzmán. lögðu upp frá Þingvöllum og Vatnskoti, suður á leið á Mosfellsheiði, þessir menn: Egill Jónsson, bóndi á Hiálmsstöðum, Ísak bóndi á Útey. Þiðrik Þórðarson, vinnumaður á Útey, Guðmundur Pálsson bóndi á Hjálmsstöðum, Bjarni Bjarnason, vinnumaður úr Austurey, Gísli Jónsson, vinnumaður á Snorrastöðum, Jón Sigurðsson á Ketilvöllum — allir úr Miðdalssókn; úr Úthlíðarsókn: Einar Þórðarson, vinnumaður á Austurhlíð, Kristján Snorrason, vinnumaður á Anarholti, Sveinn Þorsteinsson, vinnumaður á Strillu; úr Haukadalssókn: Pétur Einarsson Jónsen og Guðmundur Jónsson vinnumenn á Múla; úr Torfastaðasókn Þorsteinn Guðmundsson, bóndason frá Kervatnsstöðum.

Mosfellsheiði

Leirvogsvatn og nágrenni.

Lögðu allir þessir 14 menn saman á heiðina og fóru frá Kárastöðum í Þingvallasveit um dagmál, í logni og sokkabandsdjúpri lausamjöll.

Illaklif

Illaklif – varða.

Héldu þeir síðan áfram og voru vissir um að vera óvilltir út að Þrívörðum. Úr því kom í Vilborgarkeldu, fengu þeir langan skafrenning vel ratljósan, en skall á með þreifandi bil á norðan, eða útnorðan, við Þrívörður. Ætluðu þeir þá að hitta sæluhúsið, en gátu ekki. Vissu þeir nú ekki hvar þeir voru, en héldu þó áfram nokkuð, Oft ætluðu sig komna suður undir Gullbringur. En af því þeir voru þá orðnir villtir og þreyttir, staðnæmdust þeir þar á flatri fönn, skjóllausri, og héldu þá vera um nón. Með ófærðinni tafði það ferð þeirra á heiðinni, að sumir fóru svo fljótt að gefast upp; Guðmundur Pálsson á Hjálmsstöðum gafst fyrst upp, þegar fyrir utan Moldbrekku, af máttleysi og fótakulda. Var þá enginn svo fær að geta borið bagga hins að neinum mun, nema Sveinn, sem bar hann mikið af leið. Hinir voru þá og að smá gefast upp: urðu við það biðir á og dvalir, sem mest olli því, að þeir týndu áttunum og villtust.

Þrívörður

Þrívörður – a.m.k. ein þeirra.

Þegar um kyrrt var sezt, stóðu þeir fyrst lengi, og væntu að lygna myndi veðrið og batna, en þegar það varð ekki, fóru flestir til og grófu sig niður í fönnna, og skýldu að sér með farangrinum.

Illaklif

Illaklif – skjól.

Um dagsetursbil um kvöldið héldu þeir að Þorsteinn frá Kvervatnsstöðum mundi hafa dáið í fönninni af kulda og þreytu. Flestir munu hafa sofnað; aldrei þó Guðmundur, og Pétur varla neitt. Að áliðinni nóttu var farið að reka þá á fætur, sem í fönninni lágu, og gekk Pétur bezt fram í því að grafa þá upp sem mest voru fenntir og dýpst lágu, og ekki voru sjálfbjarga. Kól hann þá og skemmdist á höndum, og allir þeir, sem að þessu voru með honum. Þegar allir voru komnir upp úr fönninni, nema Þorsteinn, gátu þeir staðið með veikan mátt sumir, og fóru þá að detta niður og urðu ekki reistir upp. Voru þeir frískari þá lengi að stumra yfir hinum, sem ekki gátu bjargað sér, þangað til loks að 9 tóku sig til að fara af stað og leita byggða, en vera ekki lengur yfir hinum 5, er þeir sáu þá ekkert lífsmark með. Þeir, sem hér urðu eftir við farangurinn, voru þeir: Þorsteinn, Egill, Ísak, Jón og Þiðrik.

Illaklif

Illaklif – hellisskjól.

Eftir að þeir höfðu lengi gengið eitthvað áfram í villunni, dó Guðmundur frá Múla í höndunum á þeim. Varð þá enn staða og töf, er þeir Pétur voru að stumra yfir honum og reyna að koma honum með sér áleiðis.

Illaklif

Illaklif – varða.

Þá tóku sig 5 frá og komust við veikan mátt ofan að Gullbringum til Jóhannesar Jónssonar Lúnd. Var þá enginn þeirra svo fær, að geta staðið upp hjálparlaust, þegar þeir duttu. Jóhannes tók þeim, sem föng voru á. Þegar hann frétti hvað um var, hljóp hann þegar, er hann hafði hjálpað þessum 5 úr fötunum, móti þeim 3, sem eftir voru: Pétri, Einari og Gísla á Snorrastöðum. Gekk. hann þá í braut þessara 5 inn á Geldingatjarnarhæðir, og tafðist honum að finna mennina bæði sökum kafalds, og þess, að þeir voru komnir í aðra átt en hann vænti, eftir brautinni. Loks kom hann auga á þá niður með Geldingatjarnarlæk. Stefndu þeir þá suður beint um austurhalann á Grímsmannsfelli. — Voru þeir þá mjög af sér komnir, er Jóhannes kom til þeirra, og varð hann að ganga undir Pétri heim til sín.

Illaklif

Illaklif – varða.

Af þeim 8, sem til Jóhannesar komust var Pétur lakast á sig kominn, hann var rænulaus þegar í bæinn kom, og þekkti þá ekki lagsmenn sína. Hjálpaði Jóhannes nú þessum úr fötunum, og setti þá niður í vatn og snjó að þörfum, og veitti þeim allan beina, sem hann gat. Að því búnu fór hann þegar ofan til bæja að fá menn og hesta, sem þurfti.
Um eða undir hálfbirtu á sunnudagsmorguninn lögðu mennirnir af stað þaðan sem þeir lágu um nóttina. Kl. nálega 6 komust þeir 5 til Jóhannesar, en kl. hér um bil 10 hinir 3, sem hann sótti, að því er hann segir sjálfur, en um hádegið kom hann ofan að Mosfelli.

Gamli Þingvallavegur

Sæluhúsið norðan við Þrívörður.

Allan þennan tíma, sem mennirnir voru á heiðinni, frá Þrívörðum, var hörku kafalsbilur með brunafrosti og ofsalegum vindi. Á laugardaginn sá lengi fram eftir öðru hverju til sólar, og til dags sást á sunnudagsmorguninn, þegar dagur var nokkuð hátt á loft kominn, en batnaði það, að ratljóst varð á heiðinni fram úr dagmálum. Síðan batnaði veðrið alltaf, og gjörði gott veður, nærri kafaldslaust og lygnt, fram úr hádeginu.

Illaklif

Illaklif – hellisskjól.

Undir miðmunda á sunnudag voru 8 manns neðan úr Mosfellsdalnum komnir með Jóhannesi upp í Gullbringur með 7 hesta, og þurr klæði til að sækja mennina, er þar voru. Voru þá þegar fluttir þaðan 6. Sveinn og Gísli voru langminnst kaldir; Sveinn varla neitt, Gísli helzt á kinn og eyra. Bjarni og Guðmundur þóttu ekki flutningsfærir og voru kyrrir um nóttina á Gullbringu. Á mánudaginn voru þeir fluttir til byggða.“

Gluggavarða

Gluggvarðan á gömlu leiðinni um Mosfellsheiðina.

Séra Magnús Grímsson skýrir því næst frá því í niðurlagi skýrslu sinnar að 3 Mosfellsdalsmenn hafi þegar á sunnudaginn verið sendir með duglega hesta frá Gullbringum til að finna hina látnu og farangurinn.

Mosfellssel

Mosfellssel við Leirvogsvatn.

Þeir hafi brátt „fundið lík Guðmundar frá Múla skammt frá Smalaskála hinum eystri“, þar næst hafi þeir fundið Ísak nokkru norðar „með mjög litlu lífsmarki; fluttu þeir hann strax að Stardal, því þangað var skemmst, en hann dó á leiðinni og varð ekki lífgaður“; því næst sneru þeir 3 byggðarmanna aftur upp á heiðina og fundu þá „farangurinn og hina fjóra mennina sunnan til við Leiruvogsvatn í Lómatjarnarlæk. Höfðu þeir lagzt rétt í lækinn“. Jón frá Ketilsvöllum var þá enn með lífsmarki, og „fluttu þeir hann að Stardal, en hann dó á leiðinni og var ekki lífgaður.“
— Séra M.G. skýrir loks frá hversu allar tilraunir hafi verið við hafðar eftir réttum lækna reglum til að meðhöndla líkin og reyna að kveikja aftur líf með með þeim — og frá greftrun þeirra.“

Heimild:
-Sunnudagsblaðið, 9. tbl. 03.03.1957, Hrakningar á Mosfellsheiði fyrir einni öld, bls. 129-130.

Bringur

Bringur – tóftir bæjarins.

Kind

Íslenska sauðkindin hefur verið á Íslandi frá landnámi og líklegast er að hún sé komin af norður-evrópska stuttrófukyninu.

Sauðfé

Íslenskt sauðfé.

Önnur fjárkyn í Evrópu eru með langa rófu. Mörg einkenni íslensku sauðkindarinnar eiga sér hliðstæðu í gamla, norska stuttrófukyninu. Í báðum kynjum koma fyrir litirnir grátt, golsótt, botnótt, svart og mórautt, stutt rófa eða dindill og horn. Sauðkindur eru yfirleitt félagslynd fjölkvænisdýr. Villt sauðfé er gjarnan í litlum hjörðum, færri en tíu, en þó eru dæmi um meira en hundrað kindur saman í hjörð. Hjarðir eru oft kynskiptar þannig að ær og lömb halda saman en hrútar mynda sérstakar hjarðir nema á fengitíma.

Sauðfé

Sauðfé.

Íslenska sauðkindin er eina sauðfjárkynið sem ræktað er að staðaldri á Íslandi. Hún er ein fárra búfjárkynja í heiminum sem hefur haldist nánast algjörlega hrein og óbreytt frá landnámstíma, þar sem hún einangraðist á eyjunni með víkingunum fyrir rúmum 1.000 árum. Kindin er mjög harðgerð, fljót að aðlagast erfiðum aðstæðum og hefur verið undirstaða lífsafkomu í landinu í gegnum aldirnar.

Helstu einkenni og hlutverk íslensku sauðkindarinnar

Sauðfé

Sauðfé.

• Útlit og líkamsbygging: Hún er meðalstór (ærnar vega um 68–73 kg og hrútar 91–100 kg) og tiltölulega smábeinótt. Bæði kynin geta verið hyrnd eða kollótt.
• Tvöfaldi ullarfeldurinn: Ullin er einstök og skiptist í tvö lög: þel (mjúk, fín og einangrandi innri ull) og tog (löng, gróf og vatnsfráhrindandi ytri ull). Þessi samsetning gerir hana fullkomna í hina hefðbundnu íslensku lopapeysu.
• Fjölbreyttir litir: Íslenska féð er þekkt fyrir mikla litadýrð. Litirnir og mynsturmöguleikarnir eru fjölmargir (svo sem hvítt, svart, mórautt, botnótt, grátt og flekkótt).
• Afurðir: Kindin er nýtt sem tvíþætt nytjadýr, bæði fyrir bragðgott og eftirsótt lambakjöt og fyrir hina sérstöku ull.

Sauðfé

Hrútur.

Kindur eru jórturdýr og klaufdýr. Karlinn heitir hrútur, stundum kallaður bekri eða dorri. Kvendýrið heitir ær eða kind. Afkvæmið heitir lamb, gimbur eða hrútur eftir því hvort kynið er. Landnámsmenn fluttu sauðkindina með sér ásamt öðrum húsdýrum þegar þeir settust að á Íslandi.
Íslenski fjárstofninn er harðger og sterkur. Kindur verða oft um 10 vetra gamlar og eignast yfirleitt tvö lömb á hverju vori. Þau geta þó verið fleiri, allt upp í 3-4 og dæmi eru um að kindur eignist sex lömb. Fé á Íslandi er ýmist hyrnt, hníflótt eða kollótt.

Sauðalitirnir

Sauðfé

Sauðfé.

Íslensku sauðalitirnir eru fjölmargir. Fjáreigendur, ekki síst yngri kynslóðin, hafa alla tíð haldið upp á mislitt fé og það hefur lifað góðu lífi hér á landi.
Á 19. öld fylltust bændur í Evrópu áhuga á því að hreinrækta stofna. Í því fólst meðal annars í að láta kindur verða sem allra líkastar hvorri annarri í útliti og vexti. Þetta varð til þess að víða erlendis var mislitum kindum nánast útrýmt. Þessi ræktunarstefna náði aldrei sömu fótfestu hér á landi. Íslendingar virðast alltaf verið veikir fyrir öllu sem er sérkennilegt og fallegt og því standa þeir betur að vígi hvað varðar litaúrval.

Uppruni litanna

Sauðfé

Svört kind.

Ef marka má þjóðsögur eru mislitar kindur komnar af hulduhrúti. Sá hrússi var bíldóttur og glæsilegur á velli. Hann kom að Náttfaravíkum í Þingeyjarsýslu þegar fengitími stóð sem hæst. Hrússi gaf sig að ám bóndans og um vorið gerðust þau undur að ærnar eignuðust mislit lömb. Fram að því hafði allt sauðfé hér á landi verið einlitt.
Bónda brá í brún, en hafði þó rænu á því að gefa litaafbrigðunum þau nöfn sem þekkjast enn í dag. Þetta fé, sem síðar dreifðist um allt land, reyndist einnig vera harðgerðara og með meira vit í kollinum en fólk átti að venjast. Þess vegna var það síðar kallað forystufé.

Sauðfé

Sauðfé.

Það var trú manna ef jörð var hvít um fengitímann að flest lömbin yrðu þá hvít um vorið. Ef hún var rauð urðu mörg lömb mórauð, grá og svört, en ef jörð var flekkótt mátti eiga von á mörgum mislitum lömbum.
Mórauði liturinn skipar sérstakan sess í þjóðsögum. Margar sagnir fjalla um mórautt fé og yfirnáttúruleg fyrirbæri. Grátt græðir, svart særir, hvítt gerir hvorugt en mórautt myrðir, segir máltækið. Draugar klæddust líka oft mórauðum fötum.

Nafngiftir

Sauðfé

Sauðfé.

Misjafnt er á milli manna hvort þeir nefna kindurnar sínar eða ekki. Þess eru dæmi að menn sem eigi mörg hundruð kindur gefi þeim öllum nöfn og þekki þær allar með nafni. Eins eru til sagnir um kindur sem hafa lært að hlýða kalli. Hitt er líka til og býsna algengt að menn láti sér nægja að tala um kind númer 949 og lamb númer 603 eða bara þessa flekkóttu þarna. Það þýðir þó engan veginn að þeim þyki eitthvað minna vænt um kindurnar sínar en þeim sem gefa þeim nafn.
Þegar bóndinn ákveður að finna gott nafn á kindina sína hefur hann úr mörgu að velja.

Sauðfé

Sauðfé – fjárhús.

Hægt er að nefna hana eftir lit, útliti, líkamlegum og andlegum eiginleikum, uppruna, atvikum úr ævi hennar, sveitungum, ættingjum, stjórnmálamönnum og mörgu öðru. Oftast er sú aðferð notuð að nefna kindina eftir lit, t.d. Flekka, Eygla, Móra eða Grána, og eftir útliti, t.d. Hyrna, Kolla eða Litla-Ljót.

Nafnavísur

Sauðfé

Sauðfé.

Það hefur lengi þekkst að menn geri það að gamni sínu að raða nöfnum kindanna sinna saman í vísur. Þessar nafnavísur birtust í Frey árið 1919:

Flegða, Héla, Frenja, Dröfn,
Flekka, Sauðarhyrna,
Gletta, Hnúða, Gráleit, Sjöfn,
Gullbrá, Fjóla, Birna.

Bláleit, Hekla, Blökk, Dilkhvít
Bjartleit, Ófríð, Næpa,
Svanhvít, Drífa, Sóley, Hít,
Selja, Bússa, Læpa.

Sauðfé

Sauðfé.

Brúða, Tása, Birta, Snör,
Blíða, Gæfa, Skrudda,
Þoka, Skvísa, Þúfa, Vör,
Þruma, Næla, Budda.

Bóla, Spíra, Bolla, Rösk,
Bylgja, Þota, Sletta,
Skotta, Krúna, Skeifa, Vösk,
Skrúfa, Fjöður, Bletta.

Bjalla, Frekna, Blesa, Grá,

Brúska, Gulla, Þribba,
Sóley, Toppa, Súla, Gná,
Sunna, Trilla, Gibba.

Sauðfé

Sauðfé.

Kríma, Grána, Krulla, Dís,
Krumpa, Hlóra, Svala,
Snotra, Perla, Snoppa, Flís,
Snerpa, Dimma, Vala.

Ófeig, Kisa, Ugla, Svört,
Elding, Rófa, Skella,
Móra, Freyja, Móleit, Björt,
Móbotna og Rella.

Ekki reyndist auðvelt mál
öllum koma í vísu
Eftir sitja Ögn og Nál
og yngri dóttir Skvísu.

Hrútar

Sauðfé

Hrútur.

Það er flestum bændum kappsmál að eiga sem allra besta hrúta, enda liggur mikið við í ræktunarstarfinu. Einn góður hrútur getur breytt fjárstofninum á bænum mjög til hins betra. Á tímabili voru hrútasýningar ómissandi þáttur í lífi margra bænda. Á mörgum stöðum hafa þær nú verið lagðar niður, aðallega í varúðarskyni vegna smithættu.
Sumir notuðu lambhrúta frekar til ánna, þótt búmönnum þætti það ekki ráðlegt. Víða héldu menn að lömbin yrðu stærri undan lambhrútum en fullorðnum.

Forystufé

Forystufé finnst hvergi í heiminum nema á Íslandi. Það er talið hafa meira vit í kollinum en aðrar kindur og áður fyrr var það tvöfalt dýrara en annað fé. Þetta fé getur leitt fjárhóp og stundum smalamenn í gegnum hríðarbyl, vatnsföll, snjóþekju og aðrar ófærur og er veðurglöggt með afbrigðum.

Sauðfé

Forystukind.

Ef forystuféð fer síðast frá húsi eða stendur innst í garðanum þegar kindurnar eru settar út er von á stormi, ef ekki er það fyrst út. Forystuféð er ákveðið og kjarkmikið og sagt er að það geti haldið stórum fjárhóp í einum hnapp þegar stormur skellur á, með því að hlaupa í kringum hópinn.

Flest forystufé er þægilegt í umgengni og meðfærilegt, en þó eru á því undantekningar. Sumt forystufé er svo skapmikið að það veldur vandræðum.
Forystufé hefur verið til hér um aldaraðir og alltaf verið í miklum metum. Það hefur það í eðli sínu að fara á undan fjárhópi í rekstri og aðrar kindur fylgja forystufénu. Stundum er forystuféð meira vexti en annað fé og fegurra.

Sauðfé

Sauðfé.

Góður forystusauður fór á undan í slæmri færð og fann bestu leiðina, hann rataði vel í hríðarbyljum og skilaði fé í hús heilu og höldnu. Einnig var forystufé talið veðurglöggt og var það oft tregt til að fara úr húsi ef von var á slæmum veðrum á vetrum.
Forystufé hefur verið órjúfanlegur hluti af sauð fjárhaldi Íslendinga allt frá upphafi byggðar hér á landi. Með harðfylgi sínu, vitsmunum og einstökum forystueiginleikum hefur það margsannað gildi sitt og not, þó sérstaklega við beitarbúskap fyrri tíma.

Sauðfé

Sauðfjárrekstur á 100 kr. seðlinum frá 1930.

Fullvíst er talið að fé með hegðunarmynstur íslenska forystufjárins sé hvergi þekkt í heiminum nú á dögum nema á Íslandi. Þessi eiginleiki er því afar fágætur.

Minjar tengjar sauðkindinni

Minjar tengdar sauðkindinni má t.d. nefna selstöðurnar, stekkina, kvíarnar, bólin, fjárgöturnar, fjárborgirnar, fjárskjólin  og fjárréttirnar sem og ótal annað, að ekki sé talað um öll örnefnin. eru meðal allra algengustu örnefna á Íslandi.

Stekkur

Stekkur – málverk Ásgríms Jónssonar.

Þar sem sauðfé hefur tryggt afkomu þjóðarinnar síðan á landnámsöld endurspeglast það ríkulega í landslaginu. Örnefnin eru ýmist kennd við dýrin almennt, kyn þeirra, aldur eða ákveðna eiginleika.

Helstu flokkar örnefna sem tengjast sauðkindinni
• Sauðafell / Sauðanes / Sauðárkrókur: Orðið sauður (sem í dag merkir oftast geltan hrút) var áður fyrr haft um sauðfé almennt og er mjög algengt í örnefnum.

Fjárrekstur

Fjárrekstur á 100 kr. seðlinum frá 1961.

• Fárfell / Fjárdalur: Vísar til orðsins fé í merkingunni sauðfé.
• Kindarhóll: Þótt orðið kind sé algengt í daglegu tali var það sjaldnar notað í eldri örnefnum en orðin sauður eða fé.

Hrútafell

Hrútafell.

• Hrútafjörður / Hrútafell: Kennt við fullorðna karlkyns kind (hrútinn). Oft tengt fjöllum eða landslagsþáttum sem þóttu minna á hrútshorn eða dýrið sjálft.

• Geldingadalir / Geldingafell: Flestöll örnefni á Íslandi sem kennd eru við geldinga vísa til geldra sauða (en ekki hesta eða nautgripa). Geldingar voru oft settir á sérstök beitilönd eða fjalladali yfir sumarið þar sem þeir þurftu minna eftirlit en ærnar.

Geldingadalir

Geldingadalur; fyrir eldgosið 2021; gönguleið.

• Ærlækur / Ærhóll: Vísar til fullorðinna kvenkyns kinda (áa).
• Gimluklettur / Gimbrahóll: Kennt við gimbur, sem er kvenkyns lamb.
• Lambafell / Lambhagi / Lambatungur: Lamb er gríðarlega algengt í örnefnum. Þetta eru oft svæði nálægt bæjum þar sem lömbum var haldið til beitar eftir sauðburð eða þar sem þau voru vönuð undan ánum.
• Stafn / Réttarholt / Smalaklettur: Mörg örnefni tengjast ekki dýrunum sjálfum beint heldur smölun þeirra, réttum eða afgirtum svæðum (t.d. Kvíaból, Stekkjarflöt – þar sem stökkt var undan ánum).

Heimildir:
-https://saudfjarsetur.is/almennt-um-kindur/
-https://mu.is/animal/islenska-saudkindin/
-https://www.forystusetur.is/is/forystufe/um-forystufe

Sauðfé

Fé  við sólsetur á Garðaholti.

Friðrik Bjarnason

Í blaðinu „Akranesi“ árið 1956, skrifar Friðrik Bjarnason um „Minningar“ sínar um allt og nánast ekki neitt. Hvað Garðahrepp og Hafnarfjörð varðar eru þær flestar því miður fánýtar í ljósi staðreynda sögunnar, en þær eru þó ekki alveg allar alvitlausar. Það er ávallt fróðlegt að sjá hvað öðrum finnst um hitt og þetta. Skoðum nokkrar þeirra Friðriks er varða Reykjanesskagann:

XXI.
Hraunin

Friðrik Bjarnason

Friðrik Bjarnason.

„Sunnan Hafnarfjarðar, sem og víðar kringum Fjörðinn eru víðlend hraun, úfin og ill yfirferðar. Þar gefur að líta háa og margvíslega lagaða hraunsnaga. Þar eru líka djúpar dældir, sumar mosavaxnar og með ýmsum gróðri, og einnig eru þar djúpar gjár og sprungur, er oft reynast illar yfirferðar og hættulegar. Hellar eru þar víða, margvíslegir að lögun og stærð Hraunkleprar, dropasteinar eru sums staðar. Þar eru einnig mannvirki, svo sem fjárhellar og aðrir, er líkastir eru því, sem þar hafi mannabústaðir verið.
Eitt sinn var bóndi af Hraunabæjum að huga að fé sínu suður í hrauni. Þetta var að vetri til, er snjór var á jörðu. Rakki fylgdi bónda, og rann hann á undan, sem hundum er títt. Er komið var langt út í hraunið, veitir bóndi því athygli, að hundurinn hverfur skyndilega, niður í hraunsprungu.

Sprungur

Hraunsprunga við Kaldársel ofan Hafnarfjarðar.

Bóndi hraðaði sér sem mest hann má að sprungunni, heyrir hljóð hundsins niður í gjánni, en smám saman veikara, þar til það hverfur með öllu. Bóndi heldur áfram för sinni og svo heim til bæjar aftur. Á sextánda degi frá atburði þessum, kom hundurinn heim, allur blóðrisa og kviðdreginn mjög.

Piltur og stúlka fóru eitt sinn yfir sama hraun, en á öðrum stað og höfðu hest með í förinni, sem stúlkan reið. Þegar þau voru því nær komin upp úr hrauninu, festist hægri framfótur hestsins í hraunsprungu og varð eigi losaður. Fer þá piltur heim til næsta bæjar, en það var löng leið, og fær mann með sér og sleggju, til þess að brjóta bergið frá fæti hestsins, og tókst það svo vel, að hesturinn kom alheill upp úr sprungunni. En á meðan pilturinn var fjarverandi lá stúlkan ofan á hestinum, svo að hann brytist ekki um, og mun það hafa verið nálægt þremur tímum.

XXII.
Eyðibýli

Þorgeirsstaðir

Þorgeirsstaðir.

Þorlákstún nefndist eyðibýli sunnan í Hvaleyrarholti. Býli þetta var lengi í eyði, en er nú aftur byggt og nefnist Þorgeirsstaðir eftir þeim, er reisti. Í fornum skrifum er getið um stórbýli eitt, að nafni Þorláksstaðir. Munnmæli herma að það hafi þarna verið. Sögusagnir segja, að þar hafi eitt sinn verið bænahús frá Hvaleyri og á því 18 hurðir á hjörum, með koparhúnum.

Straumssel

Straumssel – uppdráttur ÓSÁ.

Straumsel er eyðibýli upp af Hraunbæjum sunnan Hafnarfjarðar. Sagnir herma, að það hafi í byggð verið lengi vel. Fyrir rúmum mannsaldri bjó þar maður að nafni Jón Þorsteinsson.
Bærinn brann, og fórst Jón bóndi þar, og hefur þar eigi byggð verið síðan.

Bali

Vigdísarvellir – tóftir undir Bæjarfelli. Bali er vestar, undir hlíð Vesturfells.

Vigdísarvellir heitir eyðibýli norðvestur af Krýsuvík. Jörð þessi hefur í byggð verið nokkurn tíma, eða frá því um 1830 að sumra sögn.

Vigdísarvellir

Vigdísarvellir – Bali. (Uppdráttur ÓSÁ)

Oft var þar tvíbýli. Slægjur voru þar engar, nema túnið, en sauðbeit allgóð niður í Núpshlíð, og er þangað löng leið frá bænum. Sumarhagar em þar ágætir heima við.
Mór var notaður til eldsneytis og mosi. Vatnsból er gott. Ástæður fyrir því að jörðin lagðist í eyði, eru sagðar margar. Fyrir aldamótin síðustu hrundi bærinn þrisvar sinnum af jarðskjálftum á rúmum 30 árum. Ágangur var mikill af sauðfé og hrossum úr Grindavík og af Ströndinni. Örðugt er þar til aðdrátta og langt til vetrarbeitar, sem fyrr segir og býlið nokkuð afskekkt. Sá, er síðast bjó þar, hét Ívar.

Garðaflatir

Garðaflatir – óskilgreindar minjar.

Sagnir eru til um það, að í fyrndinni hafi byggð verið á Garðaflötum og síðar selstöð, einnig i Helgadal, Skúlatúni og víðar. Sumir draga þó í efa, að svo hafi verið, einkum vegna skorts á neyzluvatni. Gamlir menn, er bezt máttu um þetta vita, svo og rannsóknir, er fram hafa farið á þessu, benda ótvírætt í gagnstæða átt. Vatnsskortur hefur ekki valdið heldur aðrar orsakir.

Akranes, 7.-9. tbl. 01.07.1956, Minningar – Friðrik Bjarnason, bls. 99.

XXIV.
Vígslur

Hafnarfjarðarkirkja

Hafnarfjarðarkirkja.

Þjóðkirkjan í Hafnarfirði var byggð árið 1914 og vígð það ár, 20. desember. Vígsluna framkvæmdi Þórhallur Bjarnason biskup. Safnast var saman vígsludaginn við barnaskólahúsið og þaðan gengið til kirkju klukkan 12 á hádegi.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður um 1910 – væntanlegt kirkustæði fyrir miðri mynd.

Í broddi fylkingar fór biskup og sóknarpresur, síra Árni Björnsson, en næstir þeim voru prófastur, síra Kristinn Daníelsson og síra Bjarni Jónsson og þá þeir síra Árni Þorsteinsson og síra Janus Jónsson, allir hempuklæddir. Þar næst kom sóknanefnd og þar á eftir aðrir kirkjugestir einnig í skrúðgöngu. Þegar að kirkju kom var klukkum hringt og leikið preludium á orgelið og því næst hófst sálmasöngur. Þar á eftir flutti biskup vígsluræðu, frá háaltari, og svo hin venjulega messugerð. Stólræðuna flutti sóknarpresturinn, en prófastur tónaði.
Um tólf hundruð manns voru viðstaddir athöfn þessa, eftir því sem nánast var talið. Sagt er að kirkjan taki 450 manns í sæti.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður – Hafnarfjarðarkirkja; málverk frá sama sjónarhorni.

— Athöfnin fór virðulega fram, enda til hennar vandað eftir föngum.
Um kvöldið bauð Ágúst kaupmaður Flygenring og kona hans biskupi, prestunum, kirkjusmiðnum, svo og öllum starfsmönnum kirkjunnar til kvöldverðar að heimili sínu, og var þar veitt af mikilli rausn. — Kirkjuvígslunnar er hér getið, því ekki var hennar minnzt í blöðunum, sakir annríkis í prentsmiðjunum fyrir jólin.
Fyrstur manna var jarðsunginn frá kirkjunni Guðni Þorláksson, yfirsmiður hennar. Naumast var lokið smíði kirkjunnar, er hann tók sótt þá, er dró hanri til dauða.
Fyrstu hjónin, sem gefin voru saman í kirkjunni, voru Björn Árnason og Guðfinna Sigurðardóttir frá Ási.

Kirkjugarðsvígsla

Hafnarfjarðarkirkjugarður

Kirkjugarðurinn á Öldum.

Hinn nýi kirkjugarður Hafnarfjarðarkaupstaðar, uppi á svonefndum Öldum, var tekinn til notkunar og vígður 3. marz 1921 að viðstöddu miklu fjölmenni.

Hafnarfjarðarkirkjugarður

Hafnarfjarðarkirkjugarður á Öldum. Gamli garðurinn hægra megin.

Athöfnin fór fram kl. 3 í hinum nýja grafreit. Sunginn var viðeigandi sálmur, og að því loknu hóf prófasturinn, síra Árni Björnsson, vígsluræðu og þar á eftir var sunginn sálmur. Að því loknu var jarðsett lík Einars Jóhannessonar Hansen, hið fyrsta í grafreit þessum. Hann var moldu ausinn af presti sínum, síra Ólafi Ólafssyni, fríkirkjupresti, og loks var sálmur sunginn. Söngflokkar beggja kirknanna sungu við athöfn þessa. Bylslitringur var á, dimmviðri og vestangarri.

Hafnarfjarðarkirkjugarður

Kirkjugarður Hafnarfjarðar hefur þjónustað Hafnfirðinga og nærsveitunga frá víglsudegi, 3. mars 1921. Garðurinn var vígður að viðstöddu fjölmenni séra Árni Björnsson prófastur flutti vígsluræðuna og var Einar Jóhannesson Hansen jarðsettur. Einar er því vökumaður garðsins. Þjóðtrúin segir að sá sem er fyrst grafinn í kirkjugarði eigi að vaka yfir garðinum og taka á móti þeim sem eru greftraðir þar á eftir honum.

Hinn nýi grafreitur á svo nefndum öldum, stendur á þurru moldarbarði. Þegar nokkuð kemur niður í grafirnar tekur við deiglumór, svo að grafirnar eru þarna þurrar og þokkalegar. Steyptur garður er í kringum reitinn. Inni í honum er dálítið skýli, til afnota fyrir gæzlumann garðsins.“

Heimildir:
-Akranes, 4.-6. tbl. 01.04.1956, Minningar – Friðrik Bjarnason, bls. 59.
-Akranes, 7.-9. tbl. 01.07.1956, Minningar – Friðrik Bjarnason, bls. 99.
Friðrik Bjarnason

Gálgaklettar

Við hraunjaðar Garðahrauns, skammt frá Garðastekk, er skilti um Gálgahraun. Þar segir í texta:

Gálgahraun

Hraunmyndanir í Gálgahrauni.

„Gálgahraun tilheyrir víðáttumiklu hrauni sem rann frá Búrfellsgíg fyrir um 8.000 árum. Búrfellshraun ber nokkur mismunandi nöfn og heita nyrstu hlutarnir Flatahraun, Klettar og Gálgahraun en sameiginlegt nafn þeirra er Garðahraun. Gálgahraun var friðað  ásamt fjörum og grunnsvævi Skerjafjarðar 6. október 2009. Friðunin spannar 1.0815 km2 svæði sem samsvarar 108 kekturum.

Áhugaverðar gönguleiðir í Gálgahrauni:

Fógetagata (Álftanesgata)

Fógetagata

Fógetagata.

Gatan var alfaraleið Álftnesinga áður en vagnfær vegur var lagður snemma á 20. öld.

Fógetagata

Fógetagata – Bessastaðir fjær.

Þeir sem áttu erindi til Bessastaða kölluðu leiðina Fógetagötu á meðan fulltrúar konungs sátu staðinn.
Leiðin var greiðfær í björtu en gat verið þungbúin í dimmviðri og vetrarhríð. Gatan sést greinilega þar sem hún hefur grópast ofan í hraunhelluna í aldanna rás. Að austan liggur hún um grunnt skarð við Hraunvik og kvíslast í Nyrðri Fógetagötu og Syðri Fógetagötu við Litla Skyggni. Hún Sameinast á smákafla nærra Stóra Skyggni áður en hún skiptist aftur í Garðastíg sem tengist kirkjustaðnum Görðum og Álftanesgötu sem liggur út á Álftanesið.

Móslóði

Gálgahraun

Gálgahraun – kort.

Á meðan mór var notaður til að viðhalda glóðinni í eldstæðum þeirra sem bjuggu í kotnum á Álptaneshreppi hinum forn var hann tekinn í Hraunsholtsmýri, Lágumýri og Arnarnesmýri. Leiguliðar Garðakirkju sem bjuggu í Hafnarfirði og Garðahverfi fóru ófáar ferðir um Móslóða til að sækja mó í mýrarnar. Ennþá er hægt að sjá hvar vegslóðinn lá milli mýranna og Vegamóta við Álftanesveg. Þar komu leiðirnar frá Garðahverfi, Hafnarfirði og Álftanesi saman.

Gálgaklettsleið

Gálgaklettar

Gálgaklettar – horft af Gálgaklettsleið.

Gálgaklettsleið sveigir út af Fógetagötu í miðju Gálgahrauni skammt frá Stóra-Skyggni. Auðvelt er að rata með því að taka stefnuna til norðurs og miða við Bessastaði. Nokkrar djúpar götur eru sunna Gálgakletta og hægt að fara austan eða vestan þeirra áður en komið er að Gálgaflöt.

Sakamannastígur

Gálgaklettar

Gálgaklettar – meintur grafreitur.

Sakamannastígur er í hraunjaðrinum sunnan Lambhúsatjarnar. Leiðin var einnig nefnd Gálgastígur eða Aftökustígur og gefa nöfnin til kynna hvað þarna fór fram. Stígurinn virðist hafa verið fjölfarinn en hann liggur fram hjá Litla-Gálga áður en komið er að Gálgaklettum. Þokkaleg lending er við Gálgaflöt, líklega voru sakamenn stundum ferjaðir yfir Lambhústjörn frá Bessastöðum. Þeir sem hefja göngu við Hraunvik geta nálgast Gálgakletta með því að fylgja strandlengjunni. Leiðin liggur framhjá Eskinesi og smátjörnum Vatnagarða áður en komið er að Gálgaklettum.

Helstu staðir í Gálgahrauni:

Gálgaklettar

Gálgaklettar

Gálgaklettar.

Gálgaklettar sem heita allt eins Gálgar eru þrír talsins; Vestur Gálgi, Mið Gálgi og Austur Gálgi. þeir virðast vera dekkri yfirlitum en klettarir umhverfis þá og nafnið hefur nægt til að skjóta fólki skelk í bringu í aldanna rás. Staðkunnugir kölluðu klettana einu nafni Gálgaklofning þar sem þetta var upphaflega einn klettur sem klofnaði í þrjá hluta. Samkvæmt munnmælum voru sakamenn hengdir í Gálgaklettum, en ekki eru til ritaðar heimildir sem staðfesta þetta. Samt sem áður hafa mannabein fundist nærri Gálgaklettum. Þau styðja þessar sagnir.

Eskines

Eskines

Eskines – tóftir.

Eskines er sá hluti Búrfellshrauns sem lengst nær frá eldstöðinni Búrfelli. Ysti hluti Eskiness er í 12 km fjarlægð frá miðhluta Búrfellsgígs. Nærri hraunarðrinum er kofarúst frá seinni hluta 19. aldar þegar Þórarinn Böðvarsson prestur að Görðum ætlaði að koma þar upp æðarvarpi. Hann lét byggja kofann og fékk vinnuhjú til að búa þar með hænsni yfir sumartímann, en æðarvarpið misheppnaðist. Eskines er nánast flæðisker sem hefur sigið í aldanna rás og drukknuðu þar 40-50 kindur í eina tíð. Huga þarf að sjávarföllum ef farið er út á nesið, einkum á stórstraumi. Ofan Eskineseyra eru Eskinesklettar.

Garðastekkur

Garðastekkur

Garðastekkur.

Garðar var einn ríkasti kirkjustaður landsins um aldir og umhverfis prestsetrið var fjöldi hjáleiga sem nefndust einu nafni Garðahverfi. Garðakirkja átti miklar lendur. Á veturnar var búsmalanum haldið til beitar í Garðahrauni og Garðastekkur gegndi mikilvægu hlutverki. Vestur af honum eru hústóftir og á hraunrana hraunin fjárborg. Þessar minjar vitna um horfna búskaparhætti.

Kjarvalsklettar

Garðahraun

Kjarvalsklettur í Garðahrauni.

Listmálarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval var heillaður af hraunslandsagi og fór á sömu staðina á mismunandi árstímum til að mála. Ákveðnir drangar í Klettahrauni urðu honum hugleiknir en hann málaði einng aðra kletta sem finna má í grenndinni. Kjarvalsklettar í Garðahrauni koma fyrir í nokkrum tugum málverka meistarans. Kjarval nefndi þessi málverk ýmist „Hraun“, „Úr Gálgahrauni“, „Úr Bessastaðahrauni“ eða „Frá Álftanesi“.“

Taka þarf framangreindar lýsingar, sem og meðfylgjandi uppdrátt, með hæfilegum fyrirvara.

Gálgahraun

Fiskigarðar í Gálgahrauni.

Sjóslys

Í Ægi 1914 er yfirlit yfir „Botnvörpuskip sem strandað hafa við strendur Íslands 1896-1906„:

Ása

Kútterinn Ása 1902.

„Nítján eru þau, skipin sem liggja hingað og þangað með ströndum fram hjer við land, sem strönduðu á 10 árum, og fleiri eru komin síðan. Sum þessara skipa liggja rjett við land, sum eru á þurru landi og af þeim eru mörg óbrotin en sandorpin, og talið ógerningur að ná þeim út. Þau eru sem hjer segir:

Nafn skipsins:  Heimili: Strandár;
1. Thoyetme  Fleetwood  1896.
2. Präsident Herwig   Geestemünde   1898.
3. Richard Simpson  Hull  1899.
4. Oceanic Hull  »
5. Engjanes  Rvík(Vídalín)  »
6. Friedrich  Geestemünde  1900.
7. Spaniel  Hull  »
8. Cleopatra  Hull  1901.
9. Lindsey Grimsby »
10. Aulaby (Anglaby) Hull 1902.
11. Rriton Hull »
12. Jamesia Grimsby »
13. Africa Grimsby »
14. Adeline Hull 1903.
15. Spring Flower Hull »
16. Molops Hull »
17. St. George Grimsby »
18. Friedrich Albert Geestemünde »
19. Würtenberg Nordenham 1906.

Togari
Þetta er það sem liggur ónotað í fjörunum hjer, og vart hægt að færa sjer það í nyt, því flest skipin liggja á þeim stöðum, þar sem björgunartilraunir mundu vera afarörðugar og kostnaðarsamar.

Ægir 1914

Ægir 1914.

Til skýringar við þessa skipaskrá skal hjer tekið fram, að nr. 4 liggur við Skerjafjörð, nr. 11 við Stapa undir Jökli, nr. 12 við Bervík, nr. 17 við Ásmundarstaðavík á Melrakkasljettu, nr. 18 og 19 við Skeiðarársand, nr. 1, 2 og 6 við Skaftárós, nr. 3 og 9 við Mýrdalssand, nr. 16 við Rangársand, nr. 8 við Stokkseyri, nr. 5 og 10 milli Grindavíkur og Reykjaness, nr. 14 við Hafnarberg, nr. 7, 13 og 15 við Útskálaskaga.“

Í Ægir 1927 segir m.a. um tvö framangreindra sjóslysa:
-„„Engjanes“, botnvörpuskip frá Vídalínsútgerðinni í Hafnarfirði. Strandaði á flúðum utan við Járngerðarstaði, aðfaranótt 3. okt. 1899. Kent um óþektum straum og truflun á áttavita. Menn björguðust allir.“
-„„Anglaby“, enskur togari, strandaði á tanga austan við Karfabás 14. jan. 1902. Drukknuðu þar allir. Skipstjórinn var Nelson, hinn alþekti landhelgislagabrjótur.“

Í framangreindum Ægi 1927 er „Skýrsla um skipströnd í Grindavík á svæðinu frá Hraunsandi til Staðarbergs árin 1850-1927“ eftir Einar G. Einarsson, Garðhúsum í Grindavík:

Einar G. Einarsson

Einar G. Einarsson í Garðshúsum.

Skýrsla um skipströnd í Grindavík á svæðinu frá Hraunsandi til Staðarbergs árin 1850—1927.
1. „Delphin“, frönsk loggorta, strandaði á Kasalóni laust eftir 1850. Menn björguðust allir. Skip þetta var tekið út sumarið eftir. Keyptu það Sveinbjörn Ólafsson kaupmaður í Keflavík o. fl.
2. „Beta“, dönsk jakt lítil. Rak hún á land í Hrólfsvík, en skipshöfn mun hafa druknað í hafi. Var skipið á leið til Búða með vörur.
3. „Kapracius“, frönsk skonnorta, strandaði á Þorkötlustaðabót. Menn björguðust allir.
4. „Vega“ 30. apríl 1885, þýsk skonnerta, með saltfarm til Reykavíkur, strandaði á Þorkötlustaðnesi. Menn björguðust allir.
5. „Brise“, frönsk skonnerta, standaði á Arfadal. Skip þetta hafði orðið fyrir ásiglingu á hafi úti og sigldi upp vegna leka, um bjartan dag.
6. „Lonaine“, frönsk skonnerta. Strandaði 28. apríl 1885 á Hraunssandi og var leka um kent. Menn björguðust allir.
7. „Petit Jean“, frönsk skonnerta. Rak upp á Hraunsfjörur og varð ekki vart við neinn mann. Hafa því að líkindum allir drukknað áður en skipið kom að landi.
8. „Glitner“, norskur galeas. Rak á land á Járngerðarstaðvík 11. júlí 1896. Menn björguðust allir.
9. „Fortuna“, dönsk skonnerta. Rak á land á Járngerðarstaðavík 29. júlí 1897. Allir björguðust.
10. „Flora“, norskur galeas. Rak á land á Járngerðarstaðavík 7. júlí 1903. Menn björguðust.
11. „Oddur“, gufubátur frá Eyrarbakka. Rak á land á Járngerðarstaðavík. Menn björguðust.
12. „Minna“, þýsk skonnerta. Rak á land á Járngerðarstaðavík 17. júlí 1906. Mannbjörg.
13. „Henrij Rheid“, mótorbátur frá Hafnarfirði, Rak á land á Járngerðarstaðavík 16. febrúar 1907. Mannbjörg.
14. „Engjanes“, botnvörpuskip frá Vídalínsútgerðinni í Hafnarfirði. Strandaði á flúðum utan við Járngerðarstaði, aðfaranótt 3. okt. 1899. Kent um óþektum straum og truflun á áttavita. Menn björguðust allir.
15. „Rapid“, norskt flutningagufuskip strandaði á sama stað og nr. 14. Strandið kent, að sést hafi ljós í glugga, er yfirmenn álitu að væri Reykjanesviti, einnig skekkju á áttavita. Þetta skeði 15. nóv. 1899, kl.
3 árdegis. Menn björguðust.
16. „Anglaby“, enskur togari, strandaði á tanga austan við Karfabás 14. jan. 1902. Drukknuðu þar allir. Skipstjórinn var Nelson, hinn alþekti landhelgislagabrjótur.
17. „Sheldon Abbey“, ensk skonnerta, strandaði á Þorkötlustaðanesi. Var með salt og tunnufarm til Reykjavíkur. Menn björguðust.
18. „Varonell“, enskur togari, strandaði á flúðum, utan við Járngerðarstaði 20. janúar 1913. Þrír menn drukknuðu, en hinum tókst að bjarga.
19. „Karl Markmann“, þýskur togari. Rakst á sker, líklega Þorkötlustaðanes, en losnaði aftur og sökk skipið skammt undan landi 8. des. 1913. — Menn björguðust á skipsbátnum og náðu landi á Sandvík vestan við Reykjanesvita.
20. „Resolut“, mótorkútter frá Reykjavík, strandaði vestan við Hásteina 10. spet. 1916. Hafði stýri bilað. — Mannbjörg.
21. „Schlutrup“, þýskur togari. Strandaði við Stekkjarnef. Menn björguðust allir.
22. „Anna“, færeyskur kútter, strandaði austan við Staðarberg 3.—4. apríl 1924. Týndust allir menn 15 að tölu; ráku 9 á land og voru jarðsungnir hér í Reykjavík 11. apríl. („Anna“ hét áður „Sléttanes“ og var keypt héðan).
23. „Ása“, togari H. P. Duus-verslunar í Reykjavík. Strandaði á flúðum vestan við Járngerðarstaði. Áttavitaskekkju kent um. Allir björguðust.  (Skipið nýtt).
24. „Hákon“, mótorkútter frá Reykjavík. Strandaði við Skarfatanga 9. maí 1926. Sigldi á land í svörtum bil. Menn björguðust i skipsbátnum.

Þessa skýrslu um skipaströnd hefir hr. kaupmaður Einar G. Einarsson í Garðhúsum tekið saman eftir beiðni, og bætir eftirfarandi við:

Gufuskip

Reykvískt gufuskip.

„Til skýringar skýrslu þessari vil ég taka þetta fram, að hún er skrifuð eftir minni og ekki þar stuðst við nein heimildarrit eða minnisbækur og vegna þess er flestum ártölum slept, samt geri ég ráð fyr að hún sé í öllum aðalatriðum rétt og að ekki sé neitt skip rangtalið, sem hér hefir strandað á þessu timabili. En frekari upplýsingar um þetta má eflaust fá í Þjóðvinafélagsalmanakinu, yfir þann tíma, sem það nær, svo og í bókum Gullbringusýslu, því fram til síðustu tíma voru öll skipströnd meðhöndluð af sýslumönnum.
Ása

5 skip eða nr. 8—12 í skýrslunni, hafa slitnað upp á Járngerðarstaðavík. 2 skip, nr. 2 og 7 hafa sennilega rekið mannlaus á land, skipshafnir verið búnar að skilja við þau, eða hafa drukknað á rúmsjó, og 2 skipin, nr. 5 og 6, líklega siglt viljandi á land.
Öll hin skipin, 15 að tölu, hafa strandað af einhverjum atvikum, sem menn ekki hafa getað ráðið við, og þá líklega í mörgum tilfellum, að einhverju leyti, af skekkju á áttavitum. Í því sambandi mætti ef til vill geta sér til, að hraunið hér, sem alstaðar liggur út í sjó, kunni að vera mengað þeim efnum (járni), er hafi áhrif á áttavitana.“ – Garðhúsum 27. júní 1927. (Sign.) Einar G .Einarsson.

Togari

Hákon RE 113, áður kútter Haraldur MB 1 frá Akranesi sem kátir karlar voru á.

Skýrslan og skýringar þessar eru settar í „Ægi“ til þess að benda á, að hér muni eigi vanþörf að vitaverði hið bráðasta komið upp. Síðasta Alþingi hafði þetta með höndum og munu undirtektir hafa verið hinar bestu og að sögn vitamálastjóra, mun viti verða reistur á Hópsnesi [Þórkötlustaðanesi] á komandi sumri.
Til áréttingar því, sem hr. Einar G. Einarsson segir um áttavitaskekkju á þessum slóðum, sem sjómenn hafa orðið varir við, geta þar einnig verið óreglulegir straumar, sem bera skip úr leið.

Hópsnes

Hópsnesviti/Þórkötlustaðaviti. Vitin sá arna er í landi Þórkötlustaða og þar með á Þórkötlustaðanesi. U.þ.b. 120 metrar eru í landamerki Hóps frá vitanum.

Mönnum er það ekki hulið, að vegna jarðskjálfta, hefir komið fyrir að Reykjanesviti hefir ekki logað þegar hann átti að gjöra það. Er því brýn nauðsyn, að fyrirhugaður viti í Grindavík, sendi frá sér ljós, sem sé vel aðgreint frá Reykjanesljósinu, svo aldrei komi það fyrir, að skip, sem úr hafi koma, geti vilst á þeim. Hafi orðið að slökkva ljósið á Reykjanesvitanum í fyrra vegna jarðskjálfta, getur hið sama orðið í ár og önnur ár.

Sveinbjörn Egilsson

Sveinbjörn Egilsson.

Enginn segir fyrir, hvenær skip þurfi á Reykjanesvita að halda; getur það orðið jafnt í jarðskjálfta, þegar ekki er auðið að sýna ljós, og þegar alt er í lagi; en sökum þessa mikla ókosts Reykjaness fyrir sjófarendur, virðist svo, sem brýn nauðsyn heimti, að Grindavíkurvitinn verði góður viti vegna þess, að svo getur viljað til, að hann verði eini landtökuvitinn á þessum hættulegu slóðum.
(Ég hef bætt ártölum og mánaðardögum inn í skýrslu Einars eftir föngum). – Reykjavík, 15. okt. 1927. Sveinbjörn Egilson.

Í framhaldinu verður hér fjallað stuttlega um strand togarans Kinston Period H 55 sunnan Kalmanstjarnar árið 1934.

Strand utan við Kalmannstjörn 1934

Kalmanstjörn

Kingston – strandið 1934.

„Myndin er líklega tekin 26. febrúar 1934. Maðurinn til hægri er líklega Jón Bergsveinsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélags Íslands. Strandaði togarinn er frá Kingston útgerðarfélaginu í Hull. Það strand sem passar best við myndina er strand Kingston Peridot H 55 rétt sunnan Kalmannstjarnar í Höfnum. Togarinn sigldi á land aðfararnótt 24. febrúar 1934 en skemmdist lítið. Jón fór á staðinn með fluglínutæki og hjálpaði ásamt slysavarnarsveitinni í Höfnum áhöfninni í land samdægurs. Varðskipið Óðinn og breska björgunarskipið Henry Lancaster komu og drógu skipið út 26 febrúar.“ (BÞ 2018)

Heimildir:
-Ægir, 9. tbl. 01.09.1914, Botnvörpuskip sem strandað hafa við strendur Íslands 1896-1906, bls. 117.
-Ægir, 10. tbl. 01.10.1927, Skýrsla um skipströnd í Grindavík á svæðinu frá Hraunsandi til Staðarbergs árin 1850-1927 – Einar G. Einarsson, Garðhúsum 27. júní 1927, skráð af Sveinbirni Egilssyni, bls. 220-221.
-Sarpur.is

Gufuskip

Gufuskip-Baldur RE 146-1913.

Garðhús

Í Morgunblaðinu 30. okt. 2021 er fjallað um „Alþýðustúlkuna sem varð greifaynja„. Það segir meira um frásegjandann en húsið þar sem alþýðustúlkan átti heima:
Húsið er steinbærinn nr. 9 við Bakkastíg í Reykjavík, nú við Lagargötu 2. Steinbærinn var friðaður af mennta- og menningarmálaráðherra 1. febrúar 2012, með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðun nær til ytra byrðis hússins.

Garðhús

Garðhús – upplýsingaskilti.

Steinbærinn Garðhús var byggður af Bjarna Oddssyni hafnsögumanni árið 1884 en áður stóð þarna torfbær með sama nafni. Bærinn taldist lengst af til Bakkastígs, enda lá sú gata áður framhjá húsinu og niður að sjó, og var raunar einnig kölluð Garðhúsastígur. Um tíma taldist húsið til Lagargötu en nýlega fékk það staðfangið Mýrargata 24.
Lóðin var mæld út úr Ánanaustalandi. Hliðaveggir bæjarins eru hlaðnir úr höggnum grásteini, en stafnar eru úr bindingi sem í er hlaðið múrsteini. Litlar breytingar hafa verið gerðar á steinbænum, þó viðbyggingar hafi verið byggðar við hann, þeim breytt og teknar niður.

Garðhús

Garðhús 1948.

Árið 1903 keyptu hjónin Þorsteinn J. Sveinsson skipstjóri og hafnsögumaður og Kristín Tómasdóttir Garðhús. Eftir að Þorsteinn lést úr spænsku veikinni árið 1918 bjó Kristín ekkja hans áfram í Garðhúsum með börnum þeirra fimm. Hún hafði m.a. aðstöðu til fiskþurrkunar og matjurtaræktunar á lóðinni og leigði út hluta af húseigninni. Tvö herbergi og eldhús með kolaeldavél voru niðri í bænum og þrjú herbergi á loftinu. Inngönguskúr var byggður við vesturhlið hússins árið 1923. Kristín bjó í Garðhúsum allt til um 1941 er hún seldi Hraðfrystistöðinni eignina.
Bærinn er mjög upprunalegur að gerð. Hann hefur eins og aðrir steinbæir í Reykjavík sérstakt menningar- og byggingarsögulegt gildi

Þuríður Dýrfinna

Þuríður Dýrfinna.

Bjarni starfaði sem hafnsögumaður og stundaði því ekki búskap og var því tómthúsmaður. Eiginkona Bjarna var Þuríður Eyjólfsdóttir. Hún þótti hinn mesti skörungur, stórgáfuð og mikill persónuleiki. Hún var vel að sér í íslenskum fræðum og kunni býsn af ljóðum. Hún safnaði ljóðabókum, sem hún batt inn í gott band. Undir hennar verndarvæng áttu skáld og menntamenn athvarf og því fór oft fram lífleg umræða í Garðhúsum þar sem bókleg mennt var í hávegum höfð og mikið lesið. Eftir að eiginmaður hennar lést flutti hún í viðbyggingu við Garðhús, einlyft timburhús. Það hús var rifið árið 1997.
Hjónin Þorsteinn J. Sveinsson skipstjóri og hafnsögumaður og Kristín Tómasdóttir keyptu Garðhús árið 1903. Eftir að Þorsteinn lést úr spænsku veikinni árið 1918 bjó Kristín áfram í Garðhúsum með börnum þeirra fimm allt til áranna 1941-1942 þegar hún seldi Garðhúsaeignina.
Árið 1923 var búið að byggja inngönguskúr úr timbri við vesturhlið steinbæjarins.

Þurríður

Þurríður, lengst til vinstri í neðstu röð.

Tvær viðbyggingar voru við húsið, Bakkastígur 9a og 9b. Bakkastígur 9a stóð við vesturhlið hússins og var reist árið 1942.
Það var skrifstofu- og geymsluhús. Árið 1944 var virt undir br.nr. 264 í fyrsta sinn íbúðarhús við norðurgaflinn (Bakkastígur 9b) og er stafl. b í virðingunni. Bakkastígur 9b var reistur í kringum 1896. Árið 1997 var óskað eftir leyfi til að rífa viðbyggingarnar og lagðist Árbæjarsafn ekki gegn niðurrifi þeirra.
Árið 1942 var Garðhúsaeignin komin í eigu Hraðfrystistöðvarinnar hf. Það ár var byggt skrifstofu- og geymsluhús úr bindingi við vesturgafl steinbæjarins. Sú viðbygging var einnig rifin árið 1997. Nú eiga Faxaflóahafnir ehf. steinbæinn. Bakkastígur var einnig nefndur Garðhúsastígur.
Árið 2002 hófust endurbætur á steinbænum.

Garðhús

Garðhús.

Garðhús tengjast íslenskri alþýðustúlku sem varð greifynja de Grimaldi, en sú saga er mörgum gleymd. Stúlkan hét Þuríður Þobjarnardóttir. Hún giftist Henri de Grimaldi, afabróður Alberts fursta af Mónakó.
„Þuríður fæddist 30. október 1891 en hún missti föður sinn ung og var fyrir vikið alin upp hjá einstæðri móður og afa sínum og ömmu, sem öll bjuggu í Garðhúsum í Reykjavík. Húsið stendur enn og er friðað, en þau eru ekki mörg húsin hér á landi sem enn standa og eru beintengd við sögu kvenna. Þetta er stein­bær sem var sjómannshús við sjávarsíðuna og byggt í anda torfbæjanna. Garðhús voru alþýðuheimili en mikið menningarhús. Þuríður ólst upp við mjög menningarlegar aðstæður á alþýðuvísu en amma hennar og nafna, Þuríður Eyjólfsdóttir, var hafjór af fróðleik og áberandi í bæjarlífi á þessum tíma sem ein helsta menningarkona bæjarins. Í Garðhús sóttu skáld og þar þótti líf og fjör. Af þessu sést í hvaða umhverfi hin unga Þuríður elst upp og hún fékk að fara í Kvennaskólann, tók tvo bekki saman á einum vetri, 1911-1912.“

Garðhús

Þuríður Þorbjarnardóttir Grimaldi og Henri de Grimaldi, afabróðir Alberts fursta af Mónakó. Myndin er tekin 1925, dánarár Þuríðar.

Þuríður hafði gott vald á tungumálum. „Hún talaði dönsku, ensku og frönsku og hún starfaði um tíma í verslun á Búðum og í skartgripaverslun Jóns Sigmundssonar á Laugavegi. Eflaust hefur hún þurft að nota erlend tungumál í því sem hún sinnti fyrir þessi tvö fyrirtæki. Afi hennar var hafnsögumaður, en til að geta orðið slíkur í Reykjavík á þessum tíma þurftu menn að kunna hrafl í erlendum tungumálum, þeir þurftu að geta bjargað sér þegar erlend skip komu. Tungumál hafa því væntanlega ekki verið framandi í Garðhúsum, á æskuheimili Þuríðar.“

Þurríður

Morgunblaðið 23. ágúst 2005, bls. 9.

Sigrún seg­ir að þegar Þuríður var 29 ára hafi hún verið fengin til að starfa á Hótel Skjaldbreið, hið örlagaríka ár í lífi hennar fyrir hundrað árum, 1921.

„Þá var mikið að gerast í Reykjavík og fólk bjóst við erlendum ferðamönnum og þá veitti ekki af að hafa stúlku í móttöku hótelsins sem kunni erlend tungu­mál. Þar hitti hún markgreifann, Henri de Grimaldi, afabróður Alberts fursta af Mónakó, ekkjumann sem var þrjátíu árum eldri og tilheyrði elstu kon­ung­s­ætt Evrópu. Sagt er að hann hafi verið mjög háttprúður og stórgáfaður maður, hafi meðal annars haft þrettán tungumál á valdi sínu, en hann var mál­vís­indamaður og lagði meðal annars stund á norræn mál og talaði og skrifaði íslensku. Henri hafði kynnst Guðmundi Finnbogasyni landsbókaverði þegar hann var í Sorbonnehá­skóla í Frakklandi og fyrir hvatningu hans kom Henri til Íslands. Væntanlega hefur verið stórkostleg uppgötvun fyrir greifann að hitta fyrir á Hót­el Skjald­breið hana Þuríði, unga glæsilega reykvíska stúlku, sem var vel að sér í bókmenntum og menningu. Hún hafði gott menningarlegt nesti úr Garðhúsum, þar sem skáld voru fastagestir og amman lifði í fornum riddarasögum. Sagt er að greifinn hafi hrifist af glæsileika, menntun og háttvísi Þuríðar. Hann gisti á hótelinu og svo getum við í eyðurnar. Þetta er mikið ástarævintýri þar sem erlendur stórefnaður konungborinn greifi og alþýðustúlka á Íslandi verða ástfangin við upphaf tuttugustu aldar.“

Garðhús

Garðhús.

Þuríður sigldi með Gullfossi af landi brott með greifanum 23. október 1921, fyrir um 100 árum.
Garðhús„Þau sigldu héðan með Gullfossi til Kaupmannahafnar og kannski hélt hún upp á þrítugsafmælið um borð í Gullfossi. Þau fóru svo frá Kaupmannahöfn til Hamborgar, þaðan til Parísar og að lokum til Lissabon þar sem greifinn bjó. Þeim auðnaðist því miður ekki að vera samvistum nema í fjögur ár og eignuðust engin börn, en Þuríður dó úr berklum í Brussel árið 1925, þá tæplega 34 ára. Hún hefur mögulega borið berklana með sér héðan frá Íslandi, því það var þó nokkuð um berkla í hennar móðurætt.“
„Þuríður skrifaði bréf heim til Íslands til vinkonu sinnar Ragnhildar Sigurðardóttur, öll þessi fjögur ár sem hún bjó erlendis. Fyrsta bréfið skrifaði hún rétt rúm­um mánuði eftir að hún fór héðan. Þar kemur fram að með þeim er ung stúlka, Gunnlaug Briem, 19 ára dóttir Valdimars Briem prests, en það voru tengsl á milli fjölskyldnanna. Gunnlaug var hjá þeim í Lissabon í heilt ár og Auður Finnbogadóttir, systurdóttir Þuríðar, kom eftir það og var líka ár hjá þeim sér til heilsubótar. Greifinn vildi gjarnan að Þuríður hefði íslenska konu sér til félagsskapar, til halds og trausts,“ segir Sigrún og bætir við að deilur hafi verið í fjölskyldu greifans um hver væri rétti prinsinn af Mónakó.

Garðhús

Garðhús.

„Um þetta skrifar Þuríður í einu bréfanna og þar segir orðrétt: „Hann er voða ríkur maður og það er gremjulegt að sjá allt hans skraut og auðæfi sem eru í kringum hann og hann á alls engan rétt á að hafa. Ekki svo að skilja að það sé leiðinlegt fyrir mig, því ef greifinn væri í rétti sínum að vera prins af Mónakó, væri ég að öllum líkindum ekki gift honum, sem í raun og veru er stórt lán fyrir mig, ekki satt.“
„Hún var alltaf að vonast til að komast aftur til Íslands í heimsókn. Í einu bréfinu segist hún því miður ekki komast það sumarið, því hún þurfi að fara á heilsuhæli í Belgíu. Hún segist vera mikið innan um hefðarfólk í fínum húsum, en að hana langi meira til að vera samvistum við alþýðufólk. Í einu bréfinu segir hún orðrétt: „Mikið vildi ég heldur vera í einhverju húsinu í Reykjavík.“
Íslensk kona í Íslendingafélaginu í Brussel, Guðrún Högnadóttir Ansiau, tók sig til og fór að grafast fyrir um líf Þuríðar eftir að hún fluttist út.
„Hún heimsótti ættingja greifans og hefur fengið margskonar upplýsingar frá Grimaldiættinni. Guðrún hefur lagt mikið á sig við þessa vinnu og hún hafði einnig uppi á legsteini Þuríðar þar sem hún er jarðsett í Brussel, undir kórónu Grimaldiættarinnar. Guðrún heillaðist af sögu Þuríðar og hefur annast um grafreit hennar af stakri prýði.“

Garðhús

Garðhús.

Á leiði í Brussel í Belgíu er legsteinn og á honum er skjaldarmerki Grimaldi aðalsættarinnar, en undir hvílir greifynjan Þuríður Marquise de Grimaldi d´ Antibes et de Cagne. Í áletrunina er mörkuð sagan hennar.
GarðhúsÞuríður fæddist 30. október 1891 í Garðhúsum við Bakkastíg í Reykjavík; dóttir Guðbjargar Bjarnadóttur og Þorbjarnar Jónassonar. Þuríður þótti snemma efnileg stúlka og hneigð til bókar. Fer þó fáum sögum af uppvexti hennar fram til 1911, en þann vetur tók hún tvo efstu bekki Kvennaskólans og lauk prófi þaðan vorið 1912. Starfaði hún síðan ýmist við verslunarstörf eða kennslu og nýttist þar vel óvenjuleg hæfni hennar til að nema tungumál, einkum dönsku og ensku. Á sumrin dvaldi hún einatt við sveitastörf.
Sumarið 1921, þá er Þuríður stóð á þrítugu, brá hún út af föstum vana um störf í sveit, réði sig á Hótel Skjaldbreið, og varð fljótt altalandi á frönsku. Á hótelinu dvöldu oft útlendingar og kom í hlut Þuríðar að annast samskipti við þá. Meðal hótelgesta þetta sumar var markgreifinn Henri Charles Raoul Marquis de Grimaldi d´Antibes et de Cagne, stóreignamaður í Lissabon, afsprengi elstu konungsættar í Evrópu og náinn ættingi þjóðhöfðingjans í Mónakó. Greifinn, sem þá var liðlega sextugur ekkjumaður, heillaðist mjög af hinni ungu íslensku konu, glæsileik hennar, menntun og háttvísi. Var sú hrifning gagnkvæm, þótt aldursmunur væri vissulega mikill. Fór enda svo að Þuríður hét honum eiginorði, eftir mikil heilabrot, en hjúskapur við greifann boðaði gríðarleg umskipti í lífi hennar. Var hið lúthersk/kaþólska par gefið saman við borgaralega vígslu í Reykjavík 15. október 1921 og viku síðar veitt kirkjuleg vígsla í Landakotskirkju.

Garðhús

Brúðkaupið hlaut mikla umfjöllun reykvískra blaðamanna, enda fátítt að svo tignir menn sem markgreifinn heiðruðu höfuðstað Íslands með nærveru sinni, hvað þá að þeir kvæntust dætrum þjóðarinnar. Var annars lítið vitað um þennan tigna gest og ærið örðugt um heimildaöflun, ólíkt því sem nú er.
GarðhúsSamtímaheimildir geta þess þó að hér hafi verið á ferð einstakt prúðmenni, víðförull, afburðagreindur og vel menntaður, sérlega mikill tungumálamaður og mikill áhugamaður um norræn fræði og kveðskap. Er hermt, að greifinn hafi verið talandi á 13 tungumál. Þess er og getið að greifinn hefði kynnst Guðmundi Finnbogasyni, dr. phil síðar landsbókaverði, þegar sá síðarnefndi var við nám í París um 1910 og hann kennt greifanum íslensku, enda hugur greifans staðið til þess að geta lesið hin fornu kvæði á frummálinu. Fór enda svo að greifinn náði góðu valdi á íslensku innan fárra ára og ritaði hana sem íslenskur væri. Liggja eftir greifann allmörg bréf þessu til staðfestu, sem hann sendi vinum og ættingjum Þuríðar greifynju, hið síðasta 11. maí 1940, skömmu fyrir andlát hans 10. desember sama ár.
Sunnudaginn 23. október 1921 lét Gullfoss úr höfn í Reykjavík, og með skipinu hin nýbökuðu hjón. Þuríður kvaddi föðurlandið íklædd dökkblárri dragt og ljósri blússu, með lítinn rósavönd í hendi; grönn og teinrétt, en alvörugefin á svip. Með í för var 19 ára snót, Gunnlaug Briem, sem greifinn hafði boðið henni að taka með sér til samfylgdar og samneytis á nýju heimili í Portúgal. Hefur Þuríði vart grunað, þá er Esjan hvarf henni sjónum, að hún myndi aldrei aftur fjallið líta.

Garðhús
Greifahjónin hófu búskap sinn í Lissabon, en þar hafði Henri greifi mikil umsvif, og undi Þuríður hag sínum vel. Var haft á orði, að einkennilegt þætti að greifynjan kynni bæði að baka smákökur og sauma kjóla, og hún spurð af ráðskonu sinni hvort hún hefði lært til slíkra verka sökum fátæktar á Íslandi. Má ætla, að dugur íslenskra kvenna hafi þá enn ekki borist mikið út fyrir landsteina.

Garðhús

Sveitarsetrið við Avenue Montjoise í Uccle í Brussel.

Vorið 1922 sneri Gunnlaug heim til Íslands og í hennar stað kom til hjónanna Auður Finnbogadóttir systurdóttir Þuríðar. Hafði þá harðnað mjög á dalnum sökum byltingar og síðar kreppu í Portúgal og greifahjónin misst lungann af eignum sínum. Lýsir Þuríður ástandinu glöggt í bréfum til góðvinar síns, sr. Friðriks Friðrikssonar; hefur helst áhyggjur af lasleika eiginmanns síns, en er æðrulaus um eigin krankleika, svo sem kvenna er gjarnan siður. Haustið 1923 fluttu greifahjónin til Frakklands, síðan til Spa í Belgíu, og þaðan aftur til Lissabon, áður en þau settust að í Brussel vorið 1925, við Avenue Montjoise í Uccle. Sama vor sneri Auður heim til Íslands og stóð til að greifahjónin myndu fylgja á eftir í kynnisför um landið, en þau höfðu yndi af því að ferðast og höfðu víða farið á hjúskaparárunum. En af Íslandsför varð ekki; Þuríður veiktist, líklega af berklum, sem voru tíðir í móðurætt hennar. Dvaldist hún síðan ýmist á heilsuhælum í Spa eða Brussel, uns hún lést 10. október 1925, aðeins 34 ára. Til eru bréf frá margreifanum til Auðar Finnbogadóttur, þar sem hann skýrir frá veikindum og síðar andláti konu sinnar og eru þau öll á vandaðri íslensku. Sá er þetta skrifar hefur lesið umrædd bréf, en af þeim er einsætt að greifinn hafi unnað Þuríði heitt og að sorgin yfir missi hennar hafi fylgt honum til æviloka. Segir þannig í bréfi 23. ágúst 1939 að greifinn sé „kraftlítill, gamall og sorgbitinn“ og skömmu síðar ritar hann að stríð sé að skella á og að nú vildi hann öllu helst vera búsettur á Íslandi, en hafi því miður ekki lengur fjárráð til. Minningu eiginkonu sinnar heiðraði greifinn með því að reisa veglegt minnismerki á gröf hennar og þar hvíla nú hjónin hlið við hlið.

Þuríður

Leiði Þuríðar Marquise de Grimaldi d´Antibes et de Cagne.

Víkur þá sögunni að Guðrúnu og Charles Ansiau, sem varið hafa ómældum tíma í að grafast fyrir um lífshlaup greifynjunnar og koma í veg fyrir að hjúpur gleymskunnar leggist yfir hið ljúfsára ævintýri hennar á erlendri grund. Er þeim rannsóknum hvergi nærri lokið, en við þær hafa Ansiau hjónin kynnst ættmennum markgreifans í Bretlandi, Frakklandi og Mónakó, sem deilt hafa sama eldmóði við að upplýsa um líf greifahjónanna.
GarðhúsMeðal þess sem komið hefur í ljós er að markgreifinn var afabróðir Alberts Grimaldi fursta af Mónakó frá 1889-1922, en sonarsonur furstans var enginn annar en Rainier III, sá hinn sami og kvæntist leikonunni Grace Kelly 1956. Komið hefur og í ljós að markgreifinn hafi átt erfðarétt til furstadæmisins í Mónakó, en afsalað honum til yngri bróður síns, svo hann gæti helgað sig fræðistörfum í stað þess að annast um rekstur hins þjóðrekna spilavítis. Má því segja að brennandi áhugi markgreifans á Íslandi og íslenskri menningu hafi komið í veg fyrir að við eignuðumst okkar eigin furstaynju á borð við Grace Kelly.

Íslandsfélagið í Belgíu hyggst á vormánuðum 2013 heiðra minningu Þuríðar Marquise de Grimaldi d´Antibes et de Cagne, með því að boða til gönguferðar í kirkjugarðinn sem hún hvílir í, og munu félagsmenn njóta þar leiðsagnar hinna ágætu Ansiau hjóna. Er aldrei að vita nema hjónin verði þá búin að komast að því sem enn er sveipað dulúð, nefnilega hver eða hverjir leggi enn fersk blóm á grafreit greifynjunnar íslensku.

Heimildir:
-Jónas Jóhannsson forseti Íslandsfélagsins í Belgíu, Brussel, 9. janúar 2013.
-Björg Einarsdóttir, Úr ævi og starfi íslenskra kvenna II, Rvík 1984.
-Björg Einarsdóttir, Grimaldi Greifafrú, Húsfreyjan, Rvík, október-desember 1984, 4. tbl., 35. árg.
-Samtöl við Guðrúnu Ansiau og lestur bréfa greifahjónanna
-https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/10/30/althydustulkan_sem_vard_greifynja/
-Fréttabréf Ættfræðingafélagsins, 39. árg. 2021, Sigrún Magnúsdóttir: Greifynjan Þuríður de Grimaldi, bls. 3-9.

Garðhús

Garðhús, byggt 1884.

Hrútafellshraun

Nýlega barst FERLIR eftirfarandi póstur:
„Sæl og blessuð. Datt í hug að senda þessar myndir sem ég tók í síðustu viku þegar ég fór að finna ratleiksmerki 27 við Búðavatnsstæðið.
Á göngu eftir Hrauntungustíg sá ég hvar slétt Hrútagjárdyngjuhraunið var eins og upprétt eða uppsprengt á talsvert löngum kafla. Getur þú útskýrt fyrir mér hvaða fyrirbæri er þetta sem var þarna í gagni á sínum tíma?
Það er alveg meirihátta að sjá hraunið svona. Hef prufað að ganga yfir það og langar ekki að reyna það aftur.
Með bestu kveðju, Guðmundur Gunnarsson.“

Hrútafellshraun

Hrútafellshraun.

Svar FERLIRs var: „Sæll Guðmundur, þetta er bæði sérstakt og merkilegt hraunhaft í Hrútargjárdyngjuhrauninu, sem rann fyrir ca. 7000 árum.
Þegar hraun rann síðar til norðurs frá gígum norðan við Hrútafell náði það að lyfta upp hraunhellunni í jöðrum þess þannig að hraunflekar risu upp og mynduðu þessar stórbrotnu hraunmyndanir.

Hrútafell

Hrútafell.

Eldsumbrotaskeiðið, sem stóð í um 450 ár í Brennisteinsfjöllum og í Krýsuvíkurkerfinu. Í Brennisteinsfjöllum rann Hvammahraun og í Móhálsadal rann Hrútafellshraunið fyrrnefna um árið 800. Síðastnefnda hraunið rann niður með Hrútagjárdyngjunni, sem fyrr sagði. Um 1151 rann svo Ögmundarhraun (sem heitir reyndar ýmsum nöfnum) á þessum kafla, frá Lat í suðri að Helgafelli í norðri. Það hraun setti einnig svip sitt á landslagið, en þó einkum austan Dyngjunar.“

Hrútargjárdyngja

Hrútargjárdyngja. Yngra hraun Dyngjunnar hefur runnið ofan í eldri megingíginn og áfram til norðurs.

Guðmundur svaraði: „Sæl, Takk kærlega fyrir greinagóða lýsingu á fyrirbærinu.

Það hefur myndast gríðarlegur þrýstingur á hraunið þarna svo það brotnaði „mélinu smærra“ ef svo má að orði komast.

Hrútafellshraun

Hrútafellshraun – nyrsti hlutinn.

Mér finnst allt umhverfi Hrútagjárdyngunnar alveg einstakt og gaman að horfa á gjárnar miklu sem hafa líklega myndast við jarðsig þegar toppur dyngjunnar brotnar niður. Það er einnig gaman að ganga með henni að „utanverðu“ alveg til móts við Fjallið eina og raunar allan norðurkantinn líka.
Þakka fyrir frábæran vef, Ferlir. Hann er gríðarlega mikil þekkingarbanki um eiginlega allan Reykjanesskagann og þar hef ég leitað að upplýsingum um hitt og þetta um langt skeið. Ég byrjaði óvart í Ratleiknum árið 2006 þegar ég rakst á merki við Undirhíðarnar og datt þá inn á þinn frábæra vef og hef margoft notað hann síðan mér til fróðleiks og skemmtunar.“

Á Haustráðstefnu Jarðfræðafélags Íslands 26. nóvember 2010 var m.a. fjallað um Hrútafellshraun, sem hingað til hefur flestum verið hulið:

Landnámslagið

Landnámslagið (Settlement) í sniði.

„Kortlagning og aldursgreiningar á hraunum á Reykjanesskaga hefur leitt í ljós að eldvirknin síðustu 10.000 árin einkennist af gosskeiðum sem vara í 400-600 ár. Á milli gosskeiðanna eru um 600-800 ára goshlé.

Jón Jónsson

Jón Jónsson – jarðfræðikort af Hrútagjárdyngju og nágrenni.

Á hverju gosskeiði verða flest eða jafnvel öll eldstöðvakerfin á skaganum virk. Gossaga síðustu tveggja gosskeiða er allvel þekkt og myndin af því þriðja síðasta óðum að skýrast.
Um eldri gosskeið liggja fyrir takmarkaðar upplýsingar enn sem komið er, þó bætist smám saman við ný vitneskja.

Hrútagjárdyngja - norðurveggurinn.

Hrútagjárdyngja – norðurveggurinn.

Tímasetning hrauna á Reykjanesskaga byggir annars vegar á C-14 aldursgreiningum á gróðurleifum undan hraunum og hins vegar á gjóskulagatímatali.
Gjóskutímatalið byggir á Heklu- og Kötlulögum ásamt gjóskulögum sem eiga upptök í sjó við Reykjanes. Landnámslagið (LNL), frá því um 870 e.Kr. (Karl Grönvold o.fl. 1995), finnst um allan skagann og er eitt mikilvægasta leiðarlagið. Á seinni hluta nútíma, síðustu 4500 árin, er stutt á milli gjóskulaga í jarðvegssniðum og tímatalið því notadrjúgt en neðar verður það hins vegar mun gisnara, sem takmarkar notagildi þess (Magnús Á. Sigurgeirsson og Árný Erla Sveinbjörnsdóttir 2000).

Kristnitökuhraun

Jarðfræðikort.

Frá síðasta gosskeiði eru þekktir þrennir eldar, þeir fyrstu á 10. öld og hinir síðari á 12. og 13. öld. Hraun frá fyrstu eldunum eru í Brennisteinsfjallakerfinu, s.s. Tvíbollahraun, Breiðdalshraun, Húsfellsbruni, Selvogshraun og Kristnitökuhraunið.

Þrjú fyrstnefndu hraunin hafa verið aldursgreind (Jón Jónsson 1983). Mögulegt verður að teljast að einhver þessara hrauna hafi brunnið á 11. öld.

Hraunflæði

Tvíbollahraun.

Öll liggja þessi hraun ofan á Landnámslaginu og undir Miðaldalaginu (ML) frá 1226.
Við kortlagningu hrauna í Brennisteinsfjöllum og í Krýsuvíkurkerfinu síðustu tvö sumur kom í ljós að þar er að finna hraun sem liggja fast undir Landnámslaginu. Lítill sem enginn jarðvegur er sjáanlegur þar á milli. Næsta þekkjanlega gjóskulag undir þessum hraunum, eða gjalli frá upptakagígum þeirra, er Heklulag sem er 1400-1500 ára gamalt (kallað „Gráa lagið“ vegna sérstaks litar). Yfirleitt er nokkur jarðvegur á milli „Gráa lagsins“ og hraunanna. Út frá afstöðu hraunanna til gjóskulaga teljum við að þau séu frá 8.-9. öld. Ljóst er að hraunin tilheyra síðasta gosskeiði en ekki því næsta á undan sem varð fyrir um tvö þúsund árum. Síðasta gosskeið lengist því um allt að 200 ár og spannar tímabilið frá um 750-1240 e.Kr., eða um 500 ár.

Gjóskulög

Gjóskulög í jarðvegssniði.

Hraunin sem um ræðir er annars vegar að finna í Brennisteinsfjallakerfinu og hins vegar í Krýsuvíkurkerfinu. Í Brennisteinsfjöllum eru það Hvammahraun og Vörðufellsborgahraun. Upptök þess fyrrnefnda eru í gígaröð efst í Brennisteinsfjöllum. Stærsti gígurinn heitir Eldborg. Síðarnefnda hraunið kemur frá gígaröð nokkru sunnar, vestan undir Vörðufelli, sem nefnd er Vörðufellsborgir. Skammur tími hefur liðið á milli gosanna. Hraunin eru ungleg og hafa stundum verið talin meðal sögulegra hrauna. Jón Jónsson (1978, 1983) taldi þau ekki með í þeim hópi en þó vera mjög ung. Hraunin þekja til samans ríflega 40 km2 og runnu ofan úr fjöllunum á nokkrum stöðum, s.s. um Hvamma í átt að Kleifarvatni og fram af Herdísarvíkurfjalli um Lyngskjöld og nokkur fjallaskörð þar fyrir austan.

Móhálsadalur

Móhálsadalur.

Í Krýsuvíkurkerfinu er hraun frá líkum tíma í Móhálsadal. Upptök þess eru á um sjö kílómetra langri gígaröð, talsvert slitróttri. Á nýlegu jarðfræðikorti af Reykjanesskaga er hraunið nefnt Hrútafellshraun (hrf) (Kristján Sæmundsson o. fl. 2010). Stærstu gígarnir eru Lækjarvallagígar austan við Djúpavatn. Lítill hraunfláki sem aðgreinist frá meginhrauninu er á risspildu Hrútagjárdyngju. Ofan á henni, skammt norðvestur af gíg dyngjunnar, hefur opnast tveggja kílómetra löng gossprunga sem gefið hefur frá sér hraun sem er um 0,66 km2 að flatarmáli. Meginhraunið er hins vegar um 6,8 km2 að lágmarki en syðsti hluti þess er hulinn af Ögmundarhrauni, sem er frá 12. öld (Sigmundur Einarsson o.fl. 1991).

Sogin

Hraun norðan Soga. Sogaselsgígurinn fjær.

Út frá afstöðu hraunanna til gjóskulaga verður ekki annað séð en að þau séu öll mynduð á mjög svipuðum tíma. Ekki er þó víst að eldar hafi verið uppi í báðum eldstöðvakerfunum samtímis, en skammt hefur liðið á milli þeirra. Úr þessu mætti mögulega fá skorið með aldursgreiningum á koluðum gróðurleifum og mó undan hraunum og gjalli. Slík sýni hafa nýverið náðst frá tveimur stöðum. Annar staðurinn er norðan við rissvæði Hrútagjárdyngju og hinn í Sogum. Sýnin hafa verið send til greiningar.
Á báðum svæðunum, þ.e. í Móhálsadal og í Brennisteinsfjöllum, hafa hlaðist upp stórir gjall- og klepragígar sem bendir til að gosin hafa verið kröftug og staðið nokkuð lengi.

Hvammahraun

Hvammahraun austan Kleifarvatns.

Hraunin í Brennisteinsfjöllum ná yfir stórt svæði. Gosvirknin þar hefur smám saman færst í einn megingíg sem gefið hefur frá sér mikið af hrauninu. Hvammahraun er að mestu úfið og illfært apalhraun en umhverfis gígasvæðið er helluhraun. Talsverð hraunbunga með dyngjulögun er við aðalgíginn. Bergfræðirannsókn hefur ekki farið fram á hraununum, en samkvæmt athugunum Jóns Jónssonar (1978) er Hvammahraun fremur ólivínríkt.
Eldarnir á 8.-9. öld bæta nokkru við þá mynd sem við höfum af eldvirkni á Reykjanesskaga. Til dæmis er nú ljóst að á sama gosskeiðinu hefur gosið tvisvar í sama eldstöðvakerfi. Einnig bendir nú flest til að gosskeiðin séu nokkru lengri en talið hefur verið, en vísbendingar um það hafa einnig komið fram varðandi gosskeiðið fyrir um 2000 árum.“

Ögmundarhraun

Ögmundarhraun – loftmynd.

Á síðasta gosskeiði hófst gosvirknin um 800 e.Kr. í Brennsteinsfjöllum og í Krýsuvíkurkerfinu. Rannsóknir benda til að þar hafi gosið samtímis eða því sem næst. Í Brennisteinsfjöllum rann Hvammahraun og í Móhálsadal rann Hrútafellshraun. Um hálfri annarri öld eftir að þessum eldum lauk hófst gos í Krýsuvíkurkerfinu um miðja 12. öld, líklega árið 1151. Nefnast þessir eldar Krýsuvíkureldar. Ritaðar heimildir benda til að þeim hafi lokið árið 1188. Hraun sem runnu í Krýsuvíkureldum eru Ögmundarhraun, sem er þeirra syðst, Mávahlíðahraun og Kapelluhraun.

Vörðufellsborgir

Vörðufellsborgir í Brennisteinsfjöllum.

Hraunin sem um ræðir er annars vegar að finna í Brennisteinsfjallakerfinu og hins vegar í Krýsuvíkurkerfinu. Í Brennisteinsfjöllum eru það Hvammahraun og Vörðufellsborgahraun. Upptök þess fyrrnefnda eru í gígaröð efst í Brennisteinsfjöllum. Stærsti gígurinn heitir Eldborg. Síðarnefnda hraunið kemur frá gígaröð nokkru sunnar, vestan undir Vörðufelli, sem nefnd er Vörðufellsborgir. Skammur tími hefur liðið á milli gosanna. Hraunin eru ungleg og hafa stundum verið talin meðal sögulegra hrauna. Jón Jónsson (1978, 1983) taldi þau ekki með í þeim hópi en þó vera mjög ung. Hraunin þekja til samans ríflega 40 km2 og runnu ofan úr fjöllunum á nokkrum stöðum, s.s. um Hvamma í átt að Kleifarvatni og fram af Herdísarvíkurfjalli um Lyngskjöld og nokkur fjallaskörð þar fyrir austan.

Hrútafellshraun

Hrútafellshraun.

Í Krýsuvíkurkerfinu er hraun frá líkum tíma í Móhálsadal. Upptök þess eru á um sjö kílómetra langri gígaröð, talsvert slitróttri. Á nýlegu jarðfræðikorti af Reykjanesskaga er hraunið nefnt Hrútafellshraun (hrf) (Kristján Sæmundsson o. fl. 2010).

Djúpavatnsgígar

Gígur ofan Djúpavatns.

Stærstu gígarnir eru Lækjarvallagígar austan við Djúpavatn. Lítill hraunfláki sem aðgreinist frá meginhrauninu er á risspildu Hrútagjárdyngju. Ofan á henni, skammt norðvestur af gíg dyngjunnar, hefur opnast tveggja kílómetra löng gossprunga sem gefið hefur frá sér hraun sem er um 0,66 km2 að flatarmáli. Meginhraunið er hins vegar um 6,8 km2 að lágmarki en syðsti hluti þess er hulinn af Ögmundarhrauni, sem er frá 12. öld (Sigmundur Einarsson o.fl. 1991).
Út frá afstöðu hraunanna til gjóskulaga verður ekki annað séð en að þau séu öll mynduð á mjög svipuðum tíma. Ekki er þó víst að eldar hafi verið uppi í báðum eldstöðvakerfunum samtímis, en skammt hefur liðið á milli þeirra. Úr þessu mætti mögulega fá skorið með aldursgreiningum á koluðum gróðurleifum og mó undan hraunum og gjalli. Slík sýni hafa nýverið náðst frá tveimur stöðum. Annar staðurinn er norðan við rissvæði Hrútagjárdyngju og hinn í Sogum. Sýnin hafa verið send til greiningar.

Jarðfræðikort

Jarðfræðikort ÍSOR af Reykjanesskaga.

Jarðskjálftabelti liggur eftir skaganum og markar flekaskilin. „Ef byrjar að gjósa væri það líklega byrjun á svona skeiði, í nokkrar aldir myndi ég halda. Það hefur allavega verið þannig í síðustu þrjú skipti, og lengra aftur reyndar, en það eru ekki til jafn nákvæm gögn um það,“ segir Magnús Á. Sigurgeirsson, jarðfræðingur hjá ÍSOR, í samtali við mbl.is í dag.

Náttúruvá

Bókin „Náttúrvá á Íslandi…“.

Hann tók saman upplýsingar um síðustu gosskeið á Reykjanesskaganum og þau hraun sem runnu í hvert skipti. Aðalatriði samantektarinnar má lesa hér: „Allgóð þekking er til staðar um síðustu þrjú gosskeiðin á Reykjanesskaga sem stóðu yfir fyrir 3.000-3.500 árum, 1.900-2.400 árum og svo 800-1240 e.Kr. er kemur fram í samantektinni. Hana byggir Magnús á jarðfræðikortum af Reykjanesskaga og bókinni Náttúruvá á Íslandi, eldgos og jarðskjálftar.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að á seinni hluta Hólósen ([nútíminn í jarðfræðilegu samhengi] sem nær yfir síðustu 11.700 árin) hefur gosið í kerfunum á 900-1.100 ára fresti. Um fyrri hluta Hólósen er meiri óvissa sem orsakast af færri og ónákvæmari aldursgreiningum.
Hvert gosskeið virðist standa yfir í um 500 ár en á þeim þeim tíma verða flest eldstöðvakerfin virk en þó yfirleitt ekki á sama tíma. Einkennist gosvirknin af eldum sem standa í nokkra áratugi hver. Hraunin renna frá gossprungum sem geta orðið allt að 12 kílómetra langar.

Jarðfræðikort

Jarðfræðikort af Reykjanesskaga.

Á Reykjanesskaga eru sex eldstöðvakerfi sem raða sér skáhallt eftir honum í NA-SV stefnu. Vestast er Reykjaneskerfið og austar koma kerfi kennd við Svartsengi, Fagradalsfjall, Krýsuvík, Brennisteinsfjöll og að síðustu Hengil.

Brennisteinsfjöll

Brennisteinsfjöll.

Síðasta eldsumbrotaskeið stóð í um 450 ár. Á síðasta gosskeiði hófst gosvirknin um 800 e.Kr. í Brennisteinsfjöllum og í Krýsuvíkurkerfinu. Í Brennisteinsfjöllum rann Hvammahraun og í Móhálsadal rann Hrútafellshraun.
Á 10. öld gaus síðan aftur í Brennisteinsfjallakerfinu og runnu þá m.a. Svínahraunsbruni (Kristnitökuhraun) í Þrengslum, Húsafellsbruni í Heiðmörk, Breiðdalshraun, Selvogshraun og Tvíbollahraun/Hellnahraun.
Um hálfri annarri öld eftir að þessum eldum lauk hófst gos í Krýsuvíkurkerfinu um miðja 12. öld, líklega árið 1151. Nefnast þessir eldar Krýsuvíkureldar. Ritaðar heimildir benda til að þeim hafi lokið árið 1188. Hraun sem runnu í Krýsuvíkureldum eru Ögmundarhraun, sem er þeirra syðst, Mávahlíðahraun og Kapelluhraun. Ögmundarhraun eyddi a.m.k. einu býli sem sjá má merki um í óbrennishólmum.

Stampar

Stampar vestast á Reykjanesskaga.

Eftir um 20 ára hlé hefjast síðan Reykjaneseldar sem stóðu yfir á tímabilinu 1210-1240 og marka lok um 450 ára langs eldsumbrotaskeiðs. Allgóð vitneskja er fyrir hendi um framgang Reykjaneselda 1210-1240.

Stampar

Stampahraun í mótun.

Eldarnir hófust með gosi í sjó við Kerlingarbás á Reykjanesi (skammt norður af Valahnúk). Eftir þetta færist gosvirknin á land og rann þá Yngra-Stampahraun frá 4 kílómetra langri gígaröð, líklega árið 1211. Samkvæmt rituðum heimildum gaus að minnsta kosti sex sinnum í sjó í Reykjaneseldum. Gjóskulög má merkja frá Reykjaneseldum í Þingvallasveit og í Borgarfirði frá um 1226 og á Álftanesi frá um 1231. Um tuttugu árum eftir Yngra-Stampagosið hófst sprungugos í Svartsengiskerfinu og á tímabilinu 1230-1240 runnu Eldvarpahraun, Illahraun og Arnarseturshraun. Eftir það lýkur eldunum og hefur ekki orðið hraungos á Reykjanesskaga síðan – eða í u.þ.b. 800 ár.“
Sjá þó MYNDIR af gosinu í Geldingadölum árið 2021…“.

Heimildir:
-Tölvupóstar.
-Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands 26. nóvember 2010
-Eldgos á Reykjanesskaga á 8. og 9. öld Magnús Á. Sigurgeirsson og Kristján Sæmundsson Íslenskar Orkurannsóknir, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.

Brennisteinsfjöll

Eldborg í Brennisteinsfjöllum.