Gamli Bláa Lónsvegurinn – skilti

Grindavík

Við gamla Bláa Lónsveginn norðan Grindavíkurvegar eru þrjú skilti. Á einu skiltinu stendur einungis „Grindavík – 6 km„. Á öðru eru upplýsingar um „Varnargarðana“ og á því þriðja segir frá „Baráttunni við hraunið„:

Grindavík

Bláa Lónsvegur – skilti.

Varnargarðarnir
„Varnargarðarnir í nágrenni Grindavíkur hafa verndað byggðina í Grindavík fyrir hraunrennsli, ásamt vegum, orkuverinu í Svartsengi og Bláa Lóninu.
Öflugar jarðhræringar hófust á Reykjanesskaga í ársbyrgjun 2020. Hætta var einnig á að hraun rynni á skömmum tíma til byggðar í Grindavík eða næði að ógnaorkuverinu í Svartsengi.
Í ársbyrjun 2024 hófust framkvæmdir við varnargarða sem eru hannaðir til þess að beina hraunrennsli frá byggðinni og öðrum mikilvægum mannvirkjum.

Grindavík

Bláa Lónsvegur – skilti.

Varnargarðaranir eru úr 2,5 milljón rúmmetrum af jarðefni. Heildarlengdin er 13,5 kílómetrar.
Garðarnir eru stórvirki, unnir til að tryggja öryggi Grindavíkur. Með þekkingu og hugrekki hefur verið reist varnarkerfi sem er einstætt í sinni röð.

Hve voldugir eru varnargarðarnir?
-Væru garðarnir opin rými kæmust þar fyrir 33 milljón geitur. Það er 16.000 sinum fleiri geitur en lifa á Íslandi.
-Ef varnargarðarnir væru fyllti af heyrúllum, myndi það nægja til að næra íslensku geiturnar í næstum 300 ár!
-Þú þyrftir að ganga endilengt eftir 135 fótboltavöllum til að jafna lengd garðanna.“

Grindavík

Bláa Lónsvegur – skilti.

Baráttan við hraunið
„Hraunrennsli í nágrenni Grindavíkur hefur skemmt mikið af innviðum. Meðal annars runnið yfir vegi og rofið hitaveitulagnir og raflónur. Hraunkælingu hefur verið beitt til varnar, auk varnargarða.
Hraun hefur nokkrum sinnum runnið yfir vegi sem liggja að Grindavík. Alls hafa verið lagðir 38 kílómetrar af nýjum vegum, þar af tæpir 9 kílómetrar yfir nýrunnið hraun.
Áður en vegur er lagður yfir nýrunnið hraun er það kælt, jafnað út og styrkt með jarðefni sem tryggir stöðugleika vegarins.

Rennandi hraun kælt með vatni

Grindavík

Bláa Lónsvegur – skilti.

Til að hægja á hraunrennsli var beitt aðferð sem hefur aðeins einu sinni áður verið notuð á íslandi, þ.e. á Heimkaey árið 1973. Vatni var dælt á hraunið til að kæla glóandi massann, mynda storknað lag og hindra framrásina sem mest. Kælingin átti þátt í að verja mikilvæga innviði, til dæmis hjá orkuverinu í Svartsengi þegar hraunrennslli ógnaði starfseminni.

Hve langir eru nýlögðu vegirnir?
-Ef raða ætti meðalstórum geitum í röð eftir vegunum þyrftum við að smla um 38.000 geitum. Á Íslandi eru aðeins 2.000 geitur svo þær dygðu skammt.
-Ef geit gæti rölt 3.6 kílómetra á dag tæki það hana meira en 10 daga að leggja nýju vegina að baki.
-Geitin hefði þó rölt yfir endilanga 30 fótboltavelli.“

Grindavík

Bláa Lónsvegur – skilti.