Hudson ferst við Kistufell 1945
Í Sjómannadagsblaði Grindavíkur 2026 er umfjöllun Karls Smára Hreinssonar með fyrirsögnina „Hudson-flugvél ferst við Kistufell árið 1945„. Þar fjallar hann m.a. um flugslys er Hudson-flugvél breskra flughersins fórst með fimm manna áhöfn í Brennisteinsfjöllum 27. mars árið 1945:
„Á árum síðari heimsstyrjaldar misstu bandamenn margar flugvélar sínar í fjöllunum á sunnanverðum Reykjanesskaga á svæðinu frá Reykjanestá og að Ölfusá. Líklega hafa fjórar breskar flugvélar og um 11 bandarískar farist eða nauðlent á þessu svæði á árunum 1940-1945. Þá eru ótaldar nokkrar flugvélar sem nauðlentu eða fórust á sjó sunnan við Reykjanes. Að auki fórst einn flugbátur frá kanadíska flughernum við Stapatinda á Sveifluhálsi.
Ástæður fyrir þessum mikla fjölda slysa á þessu svæði eru nokkrar. Oftast voru þessar flugvélar að koma úr flugi af hafi, flugu lágt og höfðu ekki afísingarbúnað eins og tíðkast í dag og flugu sjónflug. Skilyrði til flugs eru allt önnur og erfiðari við fjöll en yfir sjó. Flugleiðsögutækni var frumstæð og samskipti við flugturn oft takmörkuð. Margir flugmannanna höfðu litla þjálfun og þekktu ekki aðstæður, hvorki veðurfar né landslag. Flestar þessara flugvéla voru í leitar- og eftirlitsflugi með kafbátum, aðrar að fylgja skipalestum eða í ferjuflugi.
Veðurathugunarflug frá Reykjavík
Í október 1941 var 1407. R.A.F, sérhæfð veðurathugunarflugsveit, stofnuð og varð sérstök deild í strandgæslu breska flughersins (RAF Coastal Command) með aðstetur á Reykjavíkurflugvelli. Hlutverk flugsveitarinnar var hálofta- og veðurathuganir á Norður-Atlantshafi. Árið eftir stofnun flugsveitarinnar var flugvélum sveitarinnar fjölgað og hún fékk Lockheed Hudson flugvélar til umráða og nokkrar Handley Page Hamden-vélar, sem voru teknar úr notkun árið eftir, og einig Hudson Ventura-vélar sem þó voru fljótlega einnig teknar úr notkun.
Á þessum árum hélt flugsveitin uppi stöðugu veðurathuganarflugi frá Reykjavíkurflugvelli. Hún studdist einnig við gögn frá öðrum flugsveitum, þar á meðal 269. R.A.F-flugsveitinni sem sá um ískönnunarflug og 330. N-flugsveitinni (norsku flugsveitinni) og flugsveit 612 sem sá um kafbátaleit. Einnig var hluti af 221. R.A.F-flugsveitinni staðsettir á Reykjavíkurflugvelli og sinnti kafbáta- og eftirlitsflugi haustið 1941. Þær uplýsingar sem flugsveitirnar öfluðu nýttust mest við kafbátaeftirlitsflugið og aðrar könnunarferðir vegna skipalesta á leið frá Bandaríkjunum og Kanada til Bretlands og einnig Rússlands.
251. flugsveit R.A.F.
251. flugsveit konunglega breska flughersins, R.A.F, var upphaflega stofnuð í ágúst 1918 upp úr fjórum öðrum flugsveitum.
Hlutverk hennar var kafbátaeftirlitsflug frá Yorkshire á austurströnd Englands. Flugsveitin var leyst upp 20. júní 1919. Þann 1. ágúst 1944 var 1407. R.A.F.-flugsveitin endurskipulögð og fékk nýtt númer og varð 251. flugsveit R.A.F. Mottó eða einkennisorð flugsveitarinnar var: „However the wind blows“ (Hvernig sem vindurinn blæs).
Sá hluti R.A.F. 279. flugsveitarinnar sem sá um leit og björgun var færður í þessa nýju flugsveit. Þar með fékk flugsveitin aukið hlutverk bæði við eftirlits- og björgunarflug. Flugsveitin starfaði nær eingöngu frá Reykjavíkurflugvelli. Í fyrstu hafði hún á að skipa bæði Avro Ansons I-flugvélar sem tilheyrðu flugsveitinni voru notaðar í samskiptaflugi en Hudson-vélarnar höfðu sérstaka björgunarbáta sem hægt var að varpa niður til manna í neyð.
Í mars 1945 fékk flugsveitin sínar fyrstu Boeing Fortresses II-vélar sem voru í notkun það ár. Þann 30. október 1945 var flugsveitin lögð niður.
Mikilvægi flugsveitarinnar
Flugsveitin og saga hennar er lítið þekkt á Íslandi en þó var hlutverk hennar afar mikilvægt. Þær upplýsingar sem flugsveitin safnaði voru mælingar á loftþrýstingi, raka- og hitastigi og vindafari.
Athafnarsvæði flugsveitarinnar var á hafsvæðum suður og vestur af Íslandi og einnig var eftirlit með hafís á hafsvæðinu ámilli Íslands og Grænlands, Grænlandssundi. Þetta eftirlitsflug var hættulegt vegna erfiðra veðurskilyrða og ísingarhættu. Mikilvægi flugsveitarinnar og þeirra upplýsinga sem hún safnaði var ómetanlegt. Þar sem Ísland var mikilvæg bækistöð fyir Bandamenn til að skapa öryggi á Norður-Atlantshafi bæði fyrir flugumferð og skipalestir þá var nauðsynlegt fyrir stríðsreksturinn að hafa sem nákvæmastar upplýsingar um veður því allar ákvarðanir um ferðir skipalestanna voru teknar með hliðsjón af veðurfari.
Flugsveitin var ein af fáum sveitum er gátu sinnt langdrægu veðurflugi langt út á Atlantshaf. Veðurkerfi á Norður-Atlantshafi myndast vestan við Ísland og berast síðan austur yfir Bretland og meginland Evrópu. Talið er að Eisenhower, yfirmaður herafla Bandamanna í Evrópu, hafi stuðst við upplýsingarnar frá Íslandi þegar hann ákvað að hefja innrásina miklu í Normandy 6. júní 1944. Flestar evrópskar veðurstöðvar höfðu spáð langvarandi óveðri sem hefði gert innrásina erfiða eða ómögulega en upplýsingarnar frá Íslandi sýndu stutt hlé á illviðrakaflanum sem Bandamenn gátu notfært sér.
Björgunarflug frá Íslandi var einnig mjög mikilvægt, ekki aðeins til að bjarga mannslífum heldur til að áhafnir sem bjargað var gætu haldið áfram starfi sínu í flughernum því alltaf var skortur á þjálfuðum flugmönnum og flugliðum.
Tvær flugvélar farast í hafi
Á aðeins fimm mánuðum misstu 251. flugsveit R.A.F þrjár flugvélar sem allar voru af Hudson Mk III-gerð. Þann 9. nóvember 1944 fór Hudson FK752 af stað í veðurathugunarflug. Klukkan 20:57, þegar flugvélin var á heimleið og stödd 75 mílur suðvestur af Reykjavík, heyrsðist neyðarkall frá vélinni.Veður fór þá versnandi og vélin skilaði sér ekki. Hugsanlega hefur ísing orðið til þess að hún fórst. Í vélinni var fimm manna áhöfn eins og algengt var á Hudson-flugvélunum. Þrír úr áhöfninni voru í Konunglega breska flughernum, R.A.F., og tveir menn í onungslega ástralska flughernum, R.A.A.F.
Aðeins rúmlega fjórum mánuðum síðar fórst önnur Hudson Mk III-flugvél 251. R.A.F. flugsveitarinnar yfir sjó og við svipaðar aðstæður. Flugvélin, FK739, lagði af stað frá Reykjavíkurflugvelli skömmu eftir miðnætti þann 17. mars 1945 í hefðbundið veðurathugunarflug. Vélin var í sambandi við stjórnstöð í Reykjavík þangað til sambandið rifnaði þegar vélin átti eftir um klukkustundar flug til Reykjavíkur, þá á heimleið. Leitað var að vélinni í nokkra daga án árangurs. Með vélinni fórurust fimm menn. þrír þeirra voru frá Konunglega breska flughernum, R.A.F., og tveir menn tilheyrðu Konunglega ástaralska flughernum R.A.A.F., líkt og áhöfn Hudson-vélarinnar sem týndist 9. nóvember 1944.
Síðasta flug AD-L
Þann 27. mars 1945, kl. 01.29 að staðartíma, lagði Hudson Mk III, Fk743 flugsveitarinnar sem bar einkennisstafi flugsveitarinnarm stafina AD-L, af stað frá Reykjavíkurflugvelli í hefðbundið veðurathugunarflug suður og vestur af Íslandi. Síðast heyrðist frá vélinni kl. 09:55 um morguninn þegar flugmaðurinn óskaði eftir segulstefnu. Leit hófst fljótlega af vélinni þar sem hún skilaði sér ekki á tilsettum tíma en önnur flugvél frá sömu sveit fann flakið á Kistufelli í Brennisteinsfjöllum, um 26 km í suðaustur frá Reykjavík. Allir í áhöfn vélarinnar fórust. Það var ekki fyrr en 9. apríl að líkamsleifar áhafnarinnar voru sóttar og jarðsettar í hermannagrafreitnum í Fossvogskirkjugarði þrem dögum síðar.
Þeir sem fórust voru:
-John James Yules, flugstjóri (pilot Officer) R.C.A.F. (Konunglega kanadíska flughernum). Hann frá Port Arthur, Ontario, Kanada, 30. ára.
-Thomas Maclaren Lincoln, (Flying Officer) loftskeytamaður/skytta, R.C.A.F., 25 ára.
-N. Smith, (Flight Leeutenant), flugleiðsögumaður/skytta, R.C.A.F., 29 ára.
-William Edmondson, (Sergent), loftskeytamaður/skytta, R.C.A.F. (þ.e. varaliði, Volunteer Reserve). Hann var frá Winnipeg, Kanada, 24. ára.
-A.R. Simmonds, R.A.F.V.R.-varaliði, veðurathugunarmaður, 19 ára.
Eins og fram kemur í þessari upptalningu voru þrír menn í áhöfninni í Konunglega kanadíska flughernum, R.C.A.F.
Minnismerki um þessa flugsveit og aðrar flugsveitir Bandamanna er í Fossvogskirkjugarði.“
Heimild:
-Sjómannadagsblað Grindavíkur 2026, Hudson-flugvél ferst við Kistufell árið 1945, Karl Smári Hreinsson, bls. 72-74.



















