Entries by Ómar

Hafnir – skilti

Við kirkjugarðsvegg Kirkjuvosgkirkju að vestanverðu er skilti. Á því er Höfnum og kirkjum byggðalagsins lýst í máli og myndum: Hafnir Elstu ritheimild um byggð í Höfnum er að finna í landnámu þar sem greint er frá því að Ingólfur Arnarson hafi gefið Herjólfi Bárðarsyni, frænda sínum og fóstbróður, land á milli Vágs og reykjaness. landssvæði […]

Örnefni í Þingvallahrauni – Ásgeir Jónason

Árbók Hins íslenska fornleifafélags, 01.01.1973, segir um „Örnefni í Þingvallahrauni“, bls. 147-160. Örnefni í Þingvallahrauni „Það, sem venjulega er nefnt Þingvallahraun, takmarkast að austan af Hrafnagjá, að norðaustan af Mjóafellshraunum og Ármannsfelli, að norðvestan af Almannagjá og að suðvestan af Þingvallavatni. Hallstígur er syðst á Hrafnagjá, skammt fyrir norðan Arnarfellsenda. Þaðan og inn í Hallvík […]

Hellanöfn síðustu ára – tilurð nafngifta – Björn Hróarsson

Í Lesbók Morgunblaðsins 1990 fjallar Björn Hróarsson um „Hellanöfn síðustu ára – tilurð nafngifta„: Á síðustu árum hefur hellafræði skotið rótum á Íslandi. Íslendingar hafa eignast sína fyrstu hellafræðinga og til eru bæði Hellarannsóknafélag Íslands og Íslenska hellarannsóknarfélagið. Þessi áhugi hefur leitt til þess að fundist hafa fjölmargir nýir hellar og mörg ný hellanöfn litið […]

Kvika og hraun

Á Vísindavef HÍ er fjallað um myndun kviku og mótun hrauns: „Bergkvika (kvika, bergbráð, bráð – e. magma) er blanda af bráðnu bergi og gufum, sem ættuð er úr iðrum jarðar. Við storknun kvikunnar skiljast gosgufurnar úr henni, en við storknun bráðarinnar verður til storkuberg. (Þorleifur Einarsson: Jarðfræði). Í einfölduðu máli þá notum við orðið […]

Ásfjall – hernámið í nágrenni Hafnarfjarðar

Í dagrenningu föstudaginn 10. maí árið 1940 hélt bresk flotadeild inn á Sundin við Reykjavík. Flotadeildin samanstóð af fjórum skipum, beitiskipunum Berwick og Glasgow, og tundurspillunum Fortune og Fearless. Um borð í skipunum voru hundruð breskra hermanna, gráir fyrir járnum, tilbúnir til að hernema Ísland. Þetta átti eftir að verða einn örlagaríkasti dagur í sögu […]

Eldvarpahraun – Jón Jónsson

Í riti Orkustofnunar skrifar Jón Jónsson, jarðfræðingur; „Jarðfræðikort af Reykjanesskaga – skýringar við jarðfræðikort“. Þar lýsir hann m.a. Eldvarpahrauni (-hraunum): „Eldvarpahraun er að því er virðist yngst hrauna á utanverðu Reykjanesi. Það skal þó tekið fram að Stampahraun yngra og Eldvarpahraun ná hvergi saman og verður því ekki séð hvort þeirra yngra er. Hitt ætla […]

Markrakagil og Ráðherraflöt

Höfundur þessarar örnefnalýsingar um Krýsuvík er Gísli Sigurðsson lögregluvarðstjóri í Hafnarfirði, en Svanur Pálsson afritaði 2004 eftir eintaki, sem varðveitt er á Bókasafni Hafnarfjarðar. Aðalheildarmenn voru Ólafur Þorvaldsson og Krýsuvíkurbræður, synir Guðmundar í Krýsuvík, aðallega tveir; voru fluttir til Hafnarfjarðar, annar bjó á Holtsgötu, en hinn í Þorgeirstúni. Unnið á milli 1960–70. Hér er fræðst […]

Ölfusárbrú – skilti

Sunnan Ölfurárbrúar er upplýsingaskilti. Á því má lesa eftirfarandi: „Árið 1891 var byggð hengibrú yfir Ölfusá. Það var fyrir forgöngu Tryggva Gunnarssonar, síðar alþingismanns og bankastjóra, sem húsið Tryggvaskáli heitir eftir. Brúin var þá stærsta mannvirki á íslandi. 5. september 1944 slitnuðu eystri burðarstrengirnir, en brúin hafði þá þjónað Sunnlendingum í 53 ár. Brúnni var […]

Hólmur – saga og nálæg braggahverfi

Hólmur er jörð í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Það var efsta býlið í Reykjavík. Það stendur við Hólmsá í jaðri Hólmshrauns, sunnan Suðurlandsvegar. Jörðin var árið 1234 orðin eign Viðeyjarklausturs. Í Jarðabókinni frá 1703 er sagt frá jörðinni Hraunstún sem hafi verið milli Hólms og Elliðavatns og að þar hafi verið kirkjustaður en Hrauntún farið í eyði […]

Leið um Gömlubotna að Draugatjörn – Jón Svanþórsson

Jón Svanþórsson, fyrrum lögreglu- og útivistarmaður, skrifaði um gömlu leiðina um Gömlubotna að Lækjarbotnum og áfram að Draugatjörn neðan Kolviðarhóls: „Frá Ármótakvísl liggur leið í Gömlubotna. Er þá stefnt norðan grágrýtishóls sem kallaður er Höfuðleðurshóll og svo hjá Silungapolli norðanverðum þar sem ferðamenn áðu oft. Áfram liggur leiðin að austanverðum pollinum og að brún Hólmshrauns […]