Entries by Ómar

Lögberg Bakary – herkampur

Á stríðsárunum lá „Selfoss Road“ austur um land Gunnarshólma, Geirlands og Lækjarbotna, núverandi Suðurlandsvegur. Á leiðinni austur voru búðir reistar árið 1940 á hæðinni neðan við bæinn Lögberg í Lækjarbotnum. Suðurlandsvegur liggur nú yfir gamla bæjarstæðinu. Þar var birgðageymsla og geymslusvæði fyrir skotfæri breska hersins. Svæðið var afmarkað með um tveggja metra háum garði sem […]

Hamrafell (Úlfarsfell) – Herkampar við Leirtjörn

Í „Fornleifaskráninu fyrir Leirtjörn vestur“ frá árinu 2023 er m.a. fjallað um herkampana við Leirtjörn vestan Úlfarsfells (Hamrafells): „Í suðvesturhlíðum Úlfarsfells við Leirtjörn og á Lambhagamelum voru á tímum hersetunnar þrjú herskálahverfi. Tientzin var sunnan við Leirtjörn með 78 bröggum og 5 öðrum byggingum, Montezuma var vestan og norðan við tjörnina, síðar nefnt Belvoir North, […]

Geitháls II

Geitháls er býli í lögsagnarumæmi Mosfellsbæjar. Það var byggt árið 1907 úr jörðinni Vilborgarkoti sem þá lagðist í eyði. Guðmundur Magnússon byggði upp Geitháls en hann bjó áður í Elliðakoti. Geitháls var við gatnamót Þingvallavegar og Suðurlandsvegar. Þar var tvílyft hús á steinhlöðnum kjallara. Á Geithálsi var búskapur og greiðasala. Þar var símstöð frá 1909. […]

Vilborgarkot

Það ber ekki mikið á tóftum Vilborgarkots í landi Mosfellsbæjar, einni vestasta bæjarstæði sveitarinnar auk Elliðakots (Hellsikots) og Hólms. Bæjarstæðið var norðan núverandi Gunnarshólma, jarðar byggð út frá Geithálsi, sem fyrrum var byggt upp úr jarðnæði Vilborgarkots er þar áður var byggt út frá Elliðakoti. Í „Örnefnaskrá fyrir Elliðakot og Vilborgarkot“ sem Guðlaugur R. Guðmundsson […]

Skógarstæðið á Víðistöðum – Lýðveldislundurinn

Sú klausa er hér fer á eftir stendur í blaðinu Fjallkonan 19. júní 1908, en Hafnarfjarðarkaupstaður var formlega stofnaður þann 1. júní 1908 þegar lög um kaupstaðarréttindi Hafnarfjarðar gengu í gildi. Við það varð bærinn að sjálfstæðu sveitarfélagi og skildi endanlega við Garðahrepp. „Hafnfirðingar höfðu það til hátíðarbrigðis á afmælisdag Jóns Sigurðssonar að stofna hjá […]

Örnefni á Mosfellsheiði – Hjörtur Björnsson

Í Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1973 er grein um „Örnefni á Mosfellsheiði“ eftir Hjört Björnsson: Örnefni á Mosfellsheiði „Síðan hinn nýi vegur yfir Mosfellsheiði var lagður, fyrir Alþingishátíðina 1930, má svo heita, að ferðir um gamla veginn, sem lagður var nokkru fyrir síðustu aldamót, hafi lagzt niður. Vilja örnefni týnast og falla í gleymsku á […]

Flugslys í Geitahlíð

Í Morgunblaðiðinu 1.07.1995 segir frá flugslysi í Geitahlíð; „Flugmaðurinn látinn þegar að var komið„: „Flugvélin TF-VEN fórst í norðanverðri Geitahlíð, skammt suður af Kleifarvatni, síðdegis í gær. Flugmaðurinn, sem lést, var einn í vélinni. Það var fjögurra manna leitarflokkur úr Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði sem fann vélina um kl. 19.00 í gærkvöldi. Leitarflokkurinn var um […]

Flensborgarhöfn – skilti

Á upplýsingaskilti við Smábátabryggjuna, „Flensborgarhöfnina„, í Hafnarfirði má lesa eftirfarandi texta um Hansabæinn Hafnarfjörð: „Hið svokallaða Hansasamband var stofnað í Lübeck í Þýskalandi á 13 öld og var bandalag kaupmanna í verslunargildum borga í Norður- og Vestur-Evrópu. Lübeck var á þessum tíma mjög öflug verslunarborg og útskipurnarhöfn inn á Eystrasaltið eftir að elsti skipaskurður Evrópu […]

Sveifluháls og nágrenni – Þorvaldur Thoroddsen

Þorvaldur Thoroddsen skrifaði um „Ferðir um Suðurland sumarið 1883„. Skrifin birtust m.a. í Andvara 1884: „Frá Geitahlíðarenda og vestur að Ögmundarhrauni er hraunlaus kafli og er það fásjeð á Reykjanesi. Þetta hraunlausa svæði nær frá Kleyfarvatni suður í sjó milli Sveifluháls og Lönguhlíðarfjallanna, en undir eins og Sveifluháls sleppur, taka við eilíf brunahraun. Í Geitahlíð, […]

Húshólmi vanvirtur…

Fyrir u.þ.b. fimm árum tók Minjastofnun Íslands að sér að útbúa og setja upp minjaskilti í og við Húshólma f.h. Grindavíkurbæjar – á kostnað bæjarins. Húshólmi geymir einar merkustu mannvistarleifar Grindavíkur – sem og Íslands alls. Sett voru upp fjögur skilti við aðkomuna að Húshólma sunnan Suðurstrandarvegar. Eitt þeirra lýsir minjasvæðinu, tvö segja frá jarðfræði […]