Bieringstangi

Árni Óla fjallar um „Tanga-Hvíting“ í bók sinni „Strönd og Vogar„:

Strönd og Vogar„Sú er sögn, að eitt sinn hafi komið erlent skip til Voga, seint á vetri eða að vorlagi. Var þá harðindatíð og frost mikil, svo allar fjörur voru sem klakabólstur og lagís víða með ströndum fram. Þrír menn af skipi þessu ætluðu að fara inn á Bieringstanga. Gengu þeir á skipsbátinn og reru inn eftir. En fram undan tanganum lentu þeir í lagíshröngli. Munu þeir ekki hafa verið ís vanir, enda fór svo, að bátnum hvolfdi og drukknaði einn þeirra.
Þessi maður gekk þegar aftur og gerði af sér ýmsan óskunda á tanganum og voru menn hræddir við hann. Var hann kallaður Tanga-Hvítingur, vegna þess að hann var með hvíta húfu á kolli. Mun og ekki hafa verið trútt um, að menn héldi að hann drægi að sér fleiri sjódauða menn, og að draugarnir yrði margir um skeið.
Símon Dalaskáld reri margar vertíðir syðra og mun það hafa verið veturinn 1865, eða þar um bil, að hann reri á Bieringstanga, og mun þá hafa verið á útgerð Bjama á Esjubergi. Þótti þá draugagangur þar með meira móti. Út af því orkti Símon „Rímur af Bieringsborgar-bardaga“. Þær eru til í Landsbókasafni, en þó eigi heilar, því að 14 vísur vantar framan af fyrstu rímu, en alls voru rímurnar átta. Símon gerir þar draugana að Tyrkjum, er komið hafi á flota miklum til að herja á „Bieringsborg“. En kempurnar, sem fyrir voru, lögðu til orustu við þá.

Bieringstangi

Bieringstangi – eldhústóft.

Fyrir þeim voru tveir konungar, Magnús á Lykkju á Kjalarnesi og Bjarni á Esjubergi, en hinn þriðji var hersir, Þórður Þórðarson frá Kistufelli. Þar sem og nefndir synir Magnúsar, Tómas og Eyjólfur.

Þessir höfðu mikla makt,
málma tamir sköllum.
Borgin stóð með býsna prakt
blómlegum á völlum.
Um þann tíma ekki rór
— eyddist friður blíður —
upp á ríki Strandar stór
stríddi Tyrkjalýður.

BieringstangiOrustan varð hin grimmasta og er getið margra manna, er vel gengu fram, svo sem Erlings hreppstjóra á Geitabergi, afa Ásmundar Gestssonar kennara, Halldórs frá Kollafirði, Þorsteins frá Þúfnalandi, Þórðar frá Snartarstöðum. Símon kemur þar og sjálfur við sögu. Taldi hann fyrst úr að barizt væri, en er orustan var sem mannskæðust, varð hann hræddur:

„Ekkert stendur illum fjendum mót,
föllum vér í banabað,
bölvað er að vita það.“
Síðan kastar sverði hastarlega,
og af klökkum öldujó
ofan sökk í djúpan sjó.

Bieringstangi

Bieringstangi – tóft.

Gat hann þó svamlað til lands, en vermenn unnu frægan sigur á illþýðinu.
Eigi lauk þó draugaganginum á Bieringstanga með þessu. Tanga-Hvítingur var þar enn á sveimi og gerði mönnum glettur. Vildu menn þó fegnir losna við hann. Eitt sinn skaut Gunnar bóndi í Halakoti silfurhnapp á hann, og var það talið óyggjandi, ef um venjulega drauga var að ræða. Hvíting mun og hafa brugðið illilega er hann fékk í sig silfurhnappinn, því að hann sundraðist við það í tómar eldglæringar. En svo skreið hann saman aftur og hélt uppteknum hætti allt fram um 1890. En þá hvarf hann.“

Heimild:
-Strönd og Vogar – Árni Óla, Tanga-Hvítingur, 1961, bls. 266.

Bieringstangi

Bieringstangi – uppdráttur ÓSÁ.

Vogar

Í Vogagerði 23 í Vogum eru þrjú skilti er kveða á um sögu vettvangsins. Hús nr. 23 var fyrrum samkomuhúsið Glaðheimar. Á skiltunum má lesa eftirfarandi:

„Glaðheimar

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Á þessum reit stóðu Glaðheimar semm í 50 ár var aðal samkomuhúsið í Vogunum. Glaðheima byggði Guðlaugur Aðalsteinsson árið 1959.
Laugi eins og hann var kallaður var fæddur á Fáskrúðsfirði árið 1929 og ólst þar upp en settist að í Vogunum ásamt eiginkonu sinni árið 1952.
Glaðheimar voru í eigu Guðlaugs til ársins 1971 en þá eignaðist Vatnsleysustrandarhreppur húsið ásamt Kvenfélaginu Fjóu og Ungmennafélaginu Þrótti. Húsið var rifið árið 2009, þá í lélegu ástandi.

Hús menningar

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Í húsinu fóru fram ýmsir menningarviðburðir og má jafnvel segja að flestir þeir viðburðir sem fram fóru í byggðarlaginu á því tímabili sem húsið stóð, hafi tengst húsinu á einhvern hátt.
Glaðheimar voru þeim sem þekktu til ákveðinn menningararfur hvað varðar sjálfsmynd fólks, samstöðu hópa og samfélagsins í heild sem þekktu til hússins og starfseminnar þar. Líta má á Glaðheima og þennan reit sem stað minninga og stað hins óáþreifanlega menningararfs.

Ýmsar uppákomur

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Í húsinu foru fram ýmsar uppákomur og árelgir viðburðir sem tengdi íbúana saman og áttu sinn þátt í að móta samfélagið, s.s. dansleikir (sveitaböll), þorrablóð, leiksýningar, bíósýningar, brúðkaup, fermingar, miðilsfundir, danskennsla, erfisdrykkjur, íþróttakappleikir og sýningar af ýmsum toga. Um tíma var húsið þó ekki notað til almenns brúks heldur notaði Laugi, sem var mikill athafnamaður, það undir skreiðargeymslu og tengda vinnslu en einnig sem netageymslu.

Viðburðir

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Fjöldi viðburða vour haldnir í Glaðheimum, m.a. dansleikir og sveitaböll. Laugi stóð sjálfyr fyrir böllum í upphafi þegar húsið var nýlegt. Fjöldi aðkomumanna mætti í rútum eða einkabílum.
Til þess að laða að fyrstu gestina á böllinn hleypti Laugi ungum Vogastúlkum inn og sagði þeim að dansa fram við dyr, svo að þeir sem litu við sæju að það væru að minnska kosti nokkrar stúlkur mættar á ballið. Þegar fjölgaði í salnum voru þær reknar aftur út. Laugi bannaði fólki að dansa ákveðna dansa þar sem mikið var um hopp enda gólfið ekki allsstaðar jafn öflugt.

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Á dansleikjunum spiluðu þekktar hljómsveitir og skemmtikraftar eins og sjá má á auglýsingum. Ýmis félagasamtök úr bæjarfélögunum í kring fengu húsið til leigu fyrir árshátíðir og fleira.
Á meðan Glaðheimar stóðu voru þeir miðstöð viðburða í samfélaginu og oft framhald af athöfnum sem fram fóru annars staðar t.d. kirkjunni. Það má því velta fyrir sér hugmyndinni um að ef veggirnir í Glaðheimum hefðu getað talað þá hefðu þeir vafalaust haft frá mögu að segja.
Meðal viðburða í húsinu voru bíósýningar sem voru mörgum m innistæðar en margir upplifðu sína fyrstu bíóferð þar. Á fyrstu árunum voru sýndar kvikmyndir á sunnudögum. Einhverjir minnast þess að oftar en ekki hafi íslenski titillinn verið „Hart á móti hörðu“. Aðrir minnast þess að hafa séð „Gög og Gokke“ og „Síðasta bæinn í dalnum“ sem sýnd var við góðar undirtektir þó að það hafi brakað og brostið í hljóðkerfinu.

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Á áttunda og níunda áratugnum var Nýi dansskólinn með danskennslu í Glaðheimum. Í mörg ár kunnu nánast allir Vogabúar að dansa helstu samkvæmisdansana og áttu m.a. marga íslandsmeistarar í dönsum um árabil.
Í Glaðheimum var sköpuð menningarsaga. Húsið var hluti af bæjarmyndinni og átti þátt í að skapa sjálfsmynd íbúa. Húsið var staður þar sem folk kom saman, þar sem tengsl voru mynduð á milli manna á vettvangi félagslegra atburða. Menningin sem fram fór í húsinu endurspeglar líf fólksins í Vogunum á hverjum tíma. Hvort sem húsið var lélegt eða jafnvel ónýtt, má líta á Glaðheima sem menningararf.

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Tilkoma Glaðheima var mikil lyftistöng fyrir allt félagslíf. Þeir árlegu viðburðir sem enn standa mörgum Vogabúum í fersku minni eru þorrablótin á vegum Kvenfélagsins Fjólu (stofnað 1925) og 1. des. böllin á vegum Ungmennafélagsins þróttar (stofnað 1932). Það sem einkennir minningar fólks í tengslum viðð þessar skemmtanir er hin mikla undirbúningsvinna sem lá að baki og skilaði fólki ekki síður gleði og skapaði minningar en dansleikirnir sjálfir.

Kvenfélagið Fjóla

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Þorrablótin skiptu samfélagið miklu máli og hefði sem hafði skapast í kringum þau. Hefð sem fólst meðal annars í flutningi á leikþáttum, undirbúningi og æfingum ásamt mörgu öðru.
Sameiginlegu minningarnar sem fluttar voru í annálunum gerðu það að verkum að fólki fannst það eiga sameiginlega fortíð og jafnvel örlög og sökum þess stæði það betur saman í daglegu amstri. Blótin voru ómissandi þáttur í menningu íbúa Vatnsleysustrandarhrepps.

Ungmennafélagið Þróttur

Vogar

Glaðheimar – skilti.

1. des. böllin í Glaðheimum voru frekar ætluð yngri kynslóðinni. Þar voru einnig fluttir leikþættir eins og þorrablótum hjá Fjólu. Fleiri viðburðir á vegum Þróttar voru áramótaböll, spilakvöld, borðtenniskvöld ásamt allskonar íþrótta- og félagsstörf.
Þegar félagsmerki Þróttar var hannað átti það að sameina hugsjónir ungmennafélaganna. Merkið samanstendur af heimafjallinu Keili, líkamlegu heilbrigði, ljósvita og bókviti.“

Á lóð Glaðheima við Vogagerði er nú gosbrunnur og bekkir fyrir áhugasamt fólk um söguna.

Vogar

Glaðheimar – skilti.

Kalkofninn

Kalknám var stundað í Sandhól við Djúpagil og við Mógilsá ofan Mógilsárfoss í Esjunni frá árinu 1873 í nokkur misseri og síðan aftur á árunum 1916-17. Kalkbrennsluofnar voru byggðir við Rauðará í Reykjavík (1873) og síðan neðan við Arnarhól (1876). Kalofnsvegur var nefndur eftir þessum gjörningi.

Í Víkverja 1873 er umfjöllun um „Kalk í Esjunni„:

Mógilsá

Mógilsá – kalknáma.

„Það er flestum kunnugt, að kalk fanst fyrir nokkrum árum í Esjunni. Það var í felli einu fyrir ofan Mógilsá, að menn þóttust sjá kalkberg koma fram í möl þeirri, er á er öllu fellinu. Landlæknirinn, dr. Jón Hjaltalín, lét höggva nokkur brot af berginu, og senda þau fræðimönnum erlendis til rannsóknar, og kom þá fram, að 90 hundruðustu partar af steininum voru hreint kalk; svo reyndist og í fyrra, þá er nokkrir steinar voru fengnir hinum útlensku vinnumönnum, er unnu að þinghúsgjörðinni fyrir austan Reykjavík, að ágætt kalk fékst af þessum steinum, þá er þeir voru brendir.

Egill Egilsson

Egill Egilsson (1829- 1896).

Nú hefur herra kaupmaður Egill Egilsson (Sveinbjarnarson) hér í Reykjavík gjört gangskör að því, að kanna þessa kalknámu nákvæmar og nota hana. Kalkbergið er, svo sem vér áðr sögðum, í sérstöku litlu felli sunnan til í Esjunni. Hingað til hefir eigi komið mikið fram af því, en líkur eru til, að bergið nái langt inn í fellið, og merki hafa jafnvel sést til þess, að það nái í gegn um það. Sé það svo, munu margar miljónir tunna af kalki vera fólgnar í fellinu.
Herra Egill Egilsson hefir fyrir hálfum mánuði látið brjóta einar 50 tunnur af kalki úr berginu, og flutt þær ofan að sjó, en svo þungt var grjótið, að það voru klyfjar á 200 hesta. Þar voru 30 tunnur af grjótinu látnar í skip, er herra E. á, og eru þær nú fluttar fram að Rauðará; þar ætlar herra E. að láta gjöra kalkofn og brenna grjótið. Reynist það þá eins gott, og sagt er, mun verða stofnað hlutafélag til þess að vinna námuna enn betur.
Vér óskum herra Egli kaupmanni allrar hamingju til verks þess, er hann hefir gerst forgöngumaðr fyrir, og vér efum eigi, að hið mesta gagn geti hlotist að því, ef kalkbergið að eins að nokkru leyti svarar þeim vonum, er kunnugir menn hafa gert sér um það. Næst vegaleysinu getum vér talið vonda húsagjörð einn hinn mesta hnekki á öllum framförum vorum, en fari svo, að vér getum fengið kalk í hús vor á nokkurn veginn vægan hátt, er tvent áunnið; vér þyrftum þá eigi að skemma hagagöngur vorar með torfristum, og fengjum þá langtum hlýari og stæðilegri, og fyrir því og með tímanum, ódýrari hús, en vér höfum hér til haft.“

Í Þjóðólfi 1877 var eftirfarandi grein:

Vesturgata 52

En sá, sem fyrstur byggði hér íveruhús úr höggnu íslenzku grjóti, ætlum vér sé bóndinn Pétur Gíslason á Ánanaustum; sá þriðji sem á samskonar hús í smíðum er Jóhannes Zöega. Hús úr steini eru hér öllu ódýrari en timburhús, ef með hagsýni er byggt, og ætti það atriði eitt að vera nægilegt til þess að fá menn til að hætta við annað veggjasmíði en úr voru eigin ágæta, þjóðlega grjóti, sem helzt til lengi hefir legið eins og ónýtur «steinn í götu». Ýmsir fleiri eru farnir að byggja meira og minna úr þessu ótæmanlega og óslítanlega efni, enda skortir nú ekki hið bezta kalk, og það á staðnum.  Kalk > Steindir og bergtegundir með kalsínkarbónati (CaCO3). Brennt kalk > kalsíumoxíð (CaO), fæst við hitun kalks, notað m.a. í áburð. Slökkt kalk > kalsíumhýdroxíð (Ca(OH)2), vætt brennt kalk, notað sem steinlím Leskjað kalk > brennt kalk hrært í vatn, notað sem steinlím, til áburðar, til að sýrustilla jarðveg og til iðnaðar.

“Byggingarframfarir í Reykjavík eru sýnilegar ár frá ári, og mundu svo fremur, væri árferði betra… Síðan herra E. Egilsson réðst í kalknámið í Esjunni og þeir konsúll Smith komu upp kalkbrennslunni, hafa menn þegar tekið að skilja hve ómetanlegur hagur – auk fegurðarinnar – er að byggja steinhús, og stöku menn teknir að gjöra það. Sá fyrsti hér í miðjum bænum, sem komið hefir upp steinhúsi, er Eyþór Felixson verzlunarmaður (fyrrum póstur). Hús það er 13 álna langt og 14 álna breitt með 12 álna háum veggjum, og er nú eitt hið laglegasta, en langsterkasta hús bæjarins.

Bergstaðastræti 24

Snemma árs 1884 fékk Jóhannes Pálsson, tómthússmaður, leyfi til þess að byggja sér steinbæ með timburstöfnum á Þingholtslóð.
Húsið er hlaðið úr steini, sléttað utan með kalki, að grunnfleti 12X9 álnir.

En sá, sem fyrstur byggði hér íveruhús úr höggnu íslenzku grjóti, ætlum vér sé bóndinn Pétur Gíslason á Ánanaustum; sá þriðji sem á samskonar hús í smíðum er Jóhannes Zöega. Hús úr steini eru hér öllu ódýrari en timburhús, ef með hagsýni er byggt, og ætti það atriði eitt að vera nægilegt til þess að fá menn til að hætta við annað veggjasmíði en úr voru eigin ágæta, þjóðlega grjóti, sem helzt til lengi hefir legið eins og ónýtur «steinn í götu». Ýmsir fleiri eru farnir að byggja meira og minna úr þessu ótæmanlega og óslítanlega efni, enda skortir nú ekki hið bezta kalk, og það á staðnum. Engir hinna ríkari bæjarbúa hafa þó enn látið til sín taka í þessu, heldur er það eptirtektavert, að þeir sem byrjað hafa, eru allir fremur félitlir menn, en þeir eru skynsamir, og vita vel hvað þeir gjöra.
Kalkbrennslan fór fram í tveimur ofnum. Fyrst var reistur tilraunaofn hjá Rauðará 1873 en 1876 var reistur varanlegri ofn hjá Arnarhólslæk (vatn þarf við kalkvinnslu). Þessi ofn var ámóta að stærð og gamli söluturninn á Lækjartorgi.“

Í Eimreiðinni árið 1900 segir m.a.:

Kalkofn

Kalkofninn að baki húsanna við Lækjargötu, neðan Arnahóls.

„Fram með Arnarhólstúni sjávarmegin liggur stígur, og er þar trébrú yfir lækinn; þessi stígur liggur að allmiklu timburhúsi, þar sem Björn múrari Guðmundsson verzlar með timbur; fyrir nokkrum árum var hér kalkofn, og átti að brenna þar kalkstein, sem fanst í Esjunni; var þetta gert nokkra stund, en fórst fyrir, bæði vegna þess, að flutningur frá námunni varð of dýr og erfiður, og svo vegna þess, að vatn úr læknum var haft í kalkið, en það vatn er óhreint, bæði úr tjörninni og svo blandað sjávarseltu, og óhæfilegt til kalkgerðar; varð kalkið þannig ónýtt eða miklu verra en þurft hefði. En þetta vildu forsprakkarnir ekki heyra, þótt sagt væri við þá.“

Í Ægi 1914 var fjallað um flutning kalksins frá Esjunni til Reykjavíkur:

Hótel Ísland

Hótel Ísland.

„Egill heitinn föðurbróðir minn átti franska loggortu, sem fyrst hjet »Ladon«, en síðar »Esja«. Hannes Hafliðason var þar skipstjóri 1876, en eftir hann tók við hr. Joh. Halberg, sem kom hingað til lands 1877. Var hann skipstjóri á því 1877 og ’78, var það haft til fiskiveiða og kalkflutnings úr Esjunni hingað til Reykjavíkur, því að þá var hjer kalkofn og brent hjer kalk. Hr. J.G. Halberg varð síðan eigandi »Hotel Íslands« og hjelt því í mörg ár.“

Í Tímariti iðnaðarmanna 1941 segir frá Birni Guðmundssyni, múrara, sem byggði kalkofninn við Kalkofnsveg:

Björn Kristjánsson

Björn Kristjánsson.

„Fyrsti útlærði múrarinn hér, sem ég man eftir, af ísl. bergi brotinn, var Björn Guðmundsson, sem þá líka var lengst af alþektur undir nafninu „Björn múrari“, einnig löngu eftir að hann var hættur að halda á múrskeiðinni og orðinn kola- og timbursali. Þótti Björn bráðduglegur og vandvirkur iðnaðarmaður. Hann setti hér upp kalkofn þann, sem Kalkofnsvegur er heitinn eftir og stóð rétt fyrir norðan Varðarhúsið á sjávarbakkanum.
Áður hafði Sverrir [Runólfsson] byrjað að reisa samskonar ofn inni undir Bauðará, þar sem seinna reis klæðaverksmiðjan „Iðunn“, en náði aldrei að fullgera ofninn, svo að ekki varð neitt úr neinu). Kalkið, sem brenna skyldi, var sótt upp í Esju, en forgöngumenn rekstursins voru þeir Marteinn Smith kaupmaður og Egill Egilsson borgari (í Glasgow). Þótti hið brenda kalk Björns fyrirtak að gæðum, en kostnaðurinn við kalkvinsluna úr námunni í Esjunni og flutningur kalksteinsins þaðan á bátum hingað, reyndist of mikill til þess, að fyrirtækið gæti borgað sig; því að vagnar voru hér engir til nema tvílijóla mókerrur og akvegir því síður.“

Í Heilbrigðistíðindum 1973 fjallaði Jón Hjaltalín, landlæknir, um „Kalkbrennsluna„:

Jón Hjaltalín

Jón Hjaltalín, landlæknir.

„Fyrir 20 árum gat jeg þess í „Nýjum Félagsritum“, hversu nauðsynlegt það væri, að vjer yfir höfuð hefðum annað lag á húsagjörðum vorum, en hingað til hefur tíðkazt, og jeg tók það fram um leið, að eins og það lægi hverjum manni í augum uppi, að hjer væri gnægð af góðu byggingargrjóti, þannig mundi hjer og finnast nóg kalk í fjöllunum og landinu, ef vel væri að gáð, og áræðið og kunnáttuna að nota það vantaði eigi. Hjer um bil 8 árum eptir að jeg hafði ritað þá grein, er hjer um ræðir, í tjeðum fjelagsritum, fann jeg kalksteinslag hjer í Esjufjalli örskammt frá sjónum; jeg reyndi kalksteininn þá þegar eptir efnafræðisreglum, með því að leysa hann í saltsýru, og fann, að hann hafði í sjer yfir 90 hundruðustu parta af hreinu kalki, en slíkt eru hinir beztu kalksteinar. Seinna var hann prófaður í Kaupmannahöfn, og kom mönnum saman um, að svo væri, sem jeg hafði til tekið.

Sverrir Runólfsson

Sverrir Runólfsson.

Stiptamtið ljet um sama leytið herra B. Gunnlögsen og mig nákvæmar skoða námuna, og mæla hana og veginn niður að sjónum, og líka var hún grandskoðuð af enskum jarðfræðingi. Svona hefur þetta nú staðið þangað til í sumar; en nú hefur herra verzlunarstjóri E. Egilsson tekið sjer fyrir að brjóta kalkið, flytja það hingað, og er nú að láta byggja kalkofn til að brenna það í. Af þessu fyrirtæki má að minni hyggju mikið gott leiða, ef menn að eins vilja gefa því nægan gaum, og fara að ráðast í, að byggja steinhús, en þessa er nú því heldur væntandi, sem fleiri menn, er í fyrrasumar störfuðu hjer að hegningarhúsinu, námu af húsasmiðnum herra Bald þá aðferð, er menn nú almennt við hafa, að fleyga steina í tígulmyndað veggjagrjót. Jeg fæ og eigi betur sjeð, en steinhúsbyggingar fari að verða hin bráðasta nauðsyn, þar sem timbureklan er allt af að vaxa ár frá ári, enda ættu allir skynsarair menn fyrir löngu að vera orðnir sárleiðir á vorum ónýtu, óhollu og auðvirðilegu moldarkofum, sem nú í mörg hundruð ár hafa verið heilsu og lífi ilandsmanna til hins rnesta tjóns og auðsjáanlegasta niðurdreps í alla staði. Þær hafa verið og verða, svo lengi sem þær við vara, Íslands sannkallað krabbamein, sem gjörsamlega þarf að burt nema svo fljótt og rösklega sem unnt er.“

Árni Óla skrifaði ítarlega grein í Lesbók Morgunblaðsins 1949 um „Kalknám í Esjunni og Kalkbrenslu í Reykjavík“:

Esja

Mógilsá í Esju.

„Það mun hafa verið um 1863 að Jón Hjaltalín landlæknir fann kalkstein í Esjunni og taldi að þar mundi vera svo mikið af honum að það borgaði sig að hefja námagröft þar og brenna kalk.
Ástandið í byggingarmálefnum Reykjavíkur var þá þannig, að enn voru flestar vistarverur fólksins torfbæir. Innflutningur á timbri frá Noregi hafði farið minkandi árum saman og það timbur, sem fekst, varð æ ljelegra byggingarefni. Ýmsir menn skoruðu á kaupmenn að flytja inn kalk, svo hægt væri að reisa hjer steinbæi og steinhús, því að nóg var hjer af grjóti til að byggja úr og bygging hegningarhússins hafði sýnt þeim að hægt var að nota það. En það var eins og að klappa harðan steininn. Kaupmenn vildu ekki flytja inn kalk, nema þá af mjög skornum skamti, og svo var það svo dýrt, að enginn treystist til að ráðast í að byggja hús úr steini.

Mógilsá

Kort frá árinu 1909 sem sýnir staðsetningu bæja við Kollafjörð og austur með Esjunni. Á Mógilsá eru merkt inn þrjú hús innan túns og þjóðleiðin fyrir botn fjarðarins.

Kalkfundurinn í Esjunni kveikti því hjá mönnum von um það, að bráðlega mundi fást íslenskt kalk til húsbygginga. En enginn þóttist þó svo efnum búinn að hann gæti ráðist í það fyrirtæki að brjóta kalkstein og brenna kalk.

Mógilsá

Mógilsá – loftmynd 1963.

Þá var hjer hinn kunni dugnaðar og áhugamaður, Sverrir Runólfsson. Hann var steinsmiður og honum hefir sjálfsagt verið það allra manna Ijósast hver áhrif það gæti haft til batnáðar í byggingamálum höfuðstaðarins, ef hjer væri hægt að framleiða kalk. Hann fýstist því mjög til þess að ríða á vaðið og gera tilraun um það hvernig kalksteinninn í Esjunni mundi reynast.

Mógilsá

Mógilsá – túnakort 1916.

En þar sem hann átti ekki fje til að leggja í þann kostnað, sótti hann um 650 ríkisdala styrk hjá stjórninni í þessu augnamiði.
Umsókn hans kom fyrir dómsmálaráðuneytið danska, en það fól þeim Jóni Hjaltalín landlækni og Birni Gunnlaugssyni yfirkennara að skoða kalknámuna í Esjunni og láta í ljós álit sitt um það hvort nokkurt gagn væri í henni. Þeir sendu aftur nákvæma lýsingu og teikningu af námasvæðinu sumarið 1864. Þetta sendi svo dómsmálaráðuneytið til „Den polytekniske Anstalt“ í Kaupmannahöfn og bað um umsögn þess. Tveir danskir jarðfræðingar voru fengnir til að láta álit sitt í ljós og þeirra úrskurður var sá, að þetta væri ekki annað en vitleysa, því að á Íslandi fyndist ekkert námakyns. Og að þessum úrskurði þeirra fengnum neitaði stjórnin að veita Sverri hinn umbeðna styrk.

Mógilsá

Gamli bærinn á Mógilsá í júlí 1910. Bærinn stendur undir brekkunni, fyrir framan hann er kálgarðurinn og grjóturðin sem braust fram úr gilinu árið 1866. Á myndinni er hægt að greina sex hús, hlaðan austast sem var timburhús þá, vestar eru tvö torfhús með timburgöflum sem hafa verið íveruhús og líklega fjós vestan við þau, enn vestar eru tvö hús hlaðin úr torfi og grjóti með torfþökum, fyrir framan vestasta húsið er stór haugur og hefur það hús líklega verið hesthús. Þýskir ferðamenn í heimsókn.

Lá svo þetta mál í þagnargildi um nær 10 ára skeið. En það var ekki gleymt. Og sumarið 1873 rjeðist, Egill Egilson kaupmaður í það að leigja námarjettindin í Mógilsárlandi fyrir 40 kr. gjald á ári. Og hinn 10. ágúst fór hann við annan mann upp að Mógilsá til að skoða námuna og búa undir kalkvinslu þar. Viku seinna hafði svo verið brotinn svo mikill kalksteinn þarna að Egill sendi bát uppeftir og hafði 10 hesta heilan dag til þess að flytja á þeim kalkstein úr námunni niður að bátnum. Jafnframt byrjaði hann á því að reisa kalkbrennsluofn hjá Rauðará. Þessi ofn var alls ekki fullkominn, því að hann var aðeins gerður í tilraunaskyni. En 109 dagsverk fóru þó í það að hlaða hann, draga að grjót, sand og deigulmó og ennfremur fóru 14 dagsverk í brennslu.

Mógilsá

Mógilsá árið 1945. Austast eru íbúðarhúsin tvö, þá kemur tengibygging vestan við sem líklega var fjós á tímabili, síðan hlaða sem er með gaflinn í suður og svo bygging með skúrþaki vestan við hlöðuna sem hefur verið nýja fjósið. Vestar má sjá hesthúsið úr torfi og grjóti og enn vestar sér í timburskúr líklega frá Kalknámufélaginu.

Var þar brent mó, spýtum, hrísi og kolum og segir Egill sjálfur svo frá að tilraunin hafi tekist vel. Geta má þess, að við vinnsluna var brennt 113 hestum af mó (hver hestur kostaði þá 50 aura) og 1 1/2 tunnu af kolum. En ekki hefi jeg getað fundið hve mikið kalk hafðist upp úr þessu. Kostnaður við námugröftinn þetta ár nam samtals 682.00 krónum og var þar með talin 40 kr. leiga. Áreiðanlega hefir kalknámið ekki borgað sig, enda var hjer aðeins um byrjunartilraun að ræða. Þó hafði Egill trú á fyrirtækinu, en treystist ekki til að leggja í það meira fje og fyrirhöfn að sinni. Og næsta ár, 1874, var ekkert unnið í námunni, og ekkert kalk brennt í ofninum hjá Rauðará.

Mógilsá

Mógilsá árið 1965, útihúsin orðin hrörleg og bíða þess að verða rifin, þakið hefur fokið af fjósinu og hlöðunni. Næst eru hús Kalknámufélagsins og fjær sér í íbúðarhús, starfsmannahús og tilraunastöð skógræktarinnar sem voru reist 1964.

Árið 1875 kom Alþing saman og þar bar Jón Hjaltalín landlæknir fram frumvarp um bann gegn útflutningi á kalksteinum o.fl. í sambandi við það komst hann þannig að orði: „Menn vita lítið um aðra fjallkalksteina hjer á landi en kalklagið í Helgustaðafjalli, því að þótt kalklag hafi fundist í Esjunni, þá er það svo þunt, að það nemur að breidd varla 1/5 hluta af því, sem Helgastaðanáman er, enda vita menn eigi hve langt Esjukalksteinninn gengur inn í fjallið.
Þá fer hann mörgum orðum um óheilnæmi og endingarleysi torfbæja. Í Austfjörðum standi þeir ekki nema svo sem 10 ár, vegna úrkomu, og væri munur fyrir fólk þar og annars staðar að geta bygt úr steini, auk þess sem þá fengist heilsusamlegar íbúðir.

Sandhóll

Sandhóll við Djúpagil.

Eins og sjá má á þessu ber hann ekkert oflof á kalknámuna í Esjunni. En að hann hafi haft trú ú því að landinu væri hagur að því, að náman væri unnin, sjest á því, að á þessu sama þingi bar hann fram þá breytingartillógu við fjárlögin, að Agli væri veittur 1000 kr. styrkur til kalkbrenslu, á 10 gr. fjárlaganna undir ýmislegum útgjöldum.
Landshöfðingi lagðist á móti þessu. Ekki væri það af því að hann vildi ekki styðja fyrirtækið, eins og sæist á því, að í fyrra hefði hann heitið Agli 400 kr. styrk, með því skilyrði að fyrirtækið hefði einhvern framgang, en svo væri ekki enn.
Egill mun hafa sjeð það, að ekki var heppilegt að hafa kalkbrensluofninn inn hjá Rauðará og að betra mundi að hafa hann niður við höfnina, hjá læknum. Fór hann því til landshöfðingja og bað um ofurlitla lóð úr Arnarhólslandi við lækjarósinn undir kalkbrensluofn og stíg frá honum niður að sjónum, svo gott væri að koma kalksteininum þangað.

Mógilsá

Námusvæðið við Mógilsá.

Landshöfðingi gaf honum kost á þessu með þeim skilyrðum, að þessi blettur væri girtur með 2 álna hárri trjegirðingu, að jafnstór blettur væri sljettaður í túni sínu (Arnarhólstúni) og að Egill greiddi 8 kr. leigu á ári til landsjóðs fyrir afnot kalkofnsblettsins. Þetta fundust Agli harðir kostir, þegar þess var gætt að þessi blettur, sem hann bað um, var ekki tún, heldur alfaraleið allra þeirra, sem fóru yfir lækinn neðst, allur troðinn og auk þess skemdur af sjávargangi. Þó taldi hann sjer nauðugan einn kost að ganga að þessum skilyrðum því að hvergi í Reykjavík myndi tiltækilegt að hafa ofninn nema þarna hjá læknum, vegna þess að mikið vatn verður að nota við kalkvinslu. Mun hann og ef til vill hafa litið svo á, að hann fengi ríflegri styrk hjá landshöfðingja fyrir vikið. Að minsta kosti sótti hann svo um að fá 1000 króna styrk úr landsjóði. Landshöfðingi svaraði því, að hann hefði ekki umráð nema yfir helming þess fjár, sem ætlað væri til styrktar atvinnuvegum (á 15. gr. fjárlaganna). Stjórnin í Kaupmannahöfn hefði umráð hins helmingsins. Gaf hann þó enn vilyrði fyrir 400 kr., en sækja þyrfti um til dönsku stjórnarinnar að fá viðbót úr hinum hluta sjóðsins.

Mógilsá

Norðurhlið bæjarins á Mógilsá 1910, austast er timbur hlaðan með opi fyrir hey í norður, fyrir vestan koma tvö íveruhús, og síðan fjósið. Mikið grjót er fyrir aftan bæinn og má greina eina tóft þar.

Alt þetta ár gekk í þetta og var lítið sint um námagröftinn. Þó telur Egill útgjöld sín vegna námuvinslu hafa numið kr. 396.66 (ásamt leigu), en ekkert sjest um það hvernig brenslan hefur gengið. — Sjálfsagt hefur Egill ekki verið ánægður með hana, og allra síst með ofninn, því að nú fær hann Björn Guðmundsson múrara til þess að fara utan og kynna sjer hvernig nýtísku kalkbrensluofnar væri, og læra að brenna kalk.
Næsta vor (21. apríl) fer Egill enn fram á það við landshöfðingja að fá styrk, og fekk nú þessar 400 krónur. En hann þóttist þó, sem von var, engu nær, því að alt þetta fje fór til þess að girða blettinn hjá læknum, og sljetta jafnstóran blett í túni landshöfðingja.

Mógilsá

Mógilsá árið 1945, búið að byggja við íbúðarhúsið í austur og steypa hlöðu og fjós, vestast er torfhús sem líklega var hesthús og var byggt fyrir árið 1910 og enn vestar eru skúrbyggingar líklega hús Kalkfélagsins.

Landshöfðingi skrifaði þá Íslandsráðgjafanum í Kaupmannahöfn og lagði til að hann veitti fyrirtækinu álíka mikinn styrk af þeim hluta fjárveitingarinnar á 15. gr., sem hann hafði yfir að ráða. Ráðgjafinn neitaði að verða við því, eins og sjest á brjefi frá landshöfðingja til Egils, dags. 19. júní 1876.

Oddgeir Stephensen

Oddgeir Stephensen – 1812-1885.

Þar segir svo: „Ráðgjafinn hefur tjáð mjer, að hann verði að vera þeirrar skoðunar, að ef yfir höfuð ástæða skyldi vera til fyrir stjórnina að styðja fyrirtæki einstakra manna, önnur eins og þetta, eigi þó að minsta kosti ekki að veita styrkinn að gjöf handa hlutaðeiganda, sem ræðst í fyrirtækið, með því að engin trygging er fyrir því, að eigi fari svo, að alt fyrirtækið, sem styrkurinn á að efla, hætti innan skamms. Ráðgjafinn hefur því eigi þóst geta veitt neinn styrk í þessu skyni af sínum hluta í 15. gr. fjárlaganna, en af því að það, að minni hyggju, sje mjög æskilegt, að farið yrði að vinna áminsta kalksteinsnámu, segist ráðherrann aftur á móti ekki vera því mótfallinn, að jeg láti yður fá 400 kr. lán úr viðlagasjóði, gegn tryggilegu veði.“

Ekki er að sjá að Egill hafi þegið þetta lán. Mun hann hafa verið gramur út af þessum undirtektum, og aðallega vænt Oddgeir Stephensen um að hafa spilt fyrir sjer hjá ráðherranum. Þá um sumarið (1876) er samt hafist handa um smíði hins nýa kalkofns. Var dreginn að leir innan frá Elliðaám og sandur innan frá Eiði. Jafnframt er farið að vinna að því af kappi að brjóta kalkstein í Esjunni. Var keypt mikið af púðri á Eyrarbakka til þess að sprengja þar. En þá kom í ljós að kalksteinninn var ekki eins mikill og menn höíðu haldið og þraut brátt fyrsta og annan ganginn. Sá Egill sjer því vænst að tryggja sjer einnig námarjettindi í Kollafjarðarlandi og leigði þau fyrir 20 krónur á ári. Margir menn voru hafðir þarna í vinnu um sumarið. Kaupið var lágt, aðeins 2 krónur á dag, en þó hafði einn maður (Egill í Arabæ) 256 kr. upp úr sumrinu.
Eftir þetta sumar taldi Egill að hann hefði lagt fram kr. 4010.95 í kostnað við námagröftinn, en getur þess ekki að hann hafi haft neinar tekjur af honum. Og þetta sumar hefur ekkert kalk verið brent, heldur kalksteinninn brotinn, fluttur sjóveg til Reykjavíkur og átt að geymast þar þangað til nýi ofninn væri fullger, en hann varð það ekki fyr en á árinu 1877.

Kalkofninn

Kalkofninn neðan við Arnarhól.

Vegna þessara útgjalda, sem voru mikil á þeim dögum, bæði vegna þess að krónan var þá dýrari en nú, menn yfirleitt fátækari og hvergi lán að fá, sá Egill sitt óvænna að halda þannig áfram. En ekki var honum um það að gefast upp. Tókst honum þá að fá M. Smith konsúl í fjelag við sig þannig að Smith ætti fjórða hlutann í fyrirtækinu, en Egill þrjá fjórðu. Björn Guðmundsson vann að smíði kalkofnsins og varð það allmikið hús, turnlaga. Var ofninn vandaður að öllum frágangi og sem líkastur þeim ofnum, er notaðir voru erlendis. Sennilega hefur verið byrjað að brenna kalk í honum snemma á árinu 1877. Fer nú fyrirtækið fyrst að komast á rekspöl.

Reykjavík

Reykjavík 1887.

Kalksteinn var brotinn af kappi í Esjunni og eru þar allmargir menn við vinnu. — Kalksteinninn var sprengdur með púðri, því að dynamit þektist þá ekki. Var fyrst tekin fyrir kalkæð fyrir vestan ána og túnið á Mógilsá, en ganginn þraut brátt, eins og áður er sagt. Þá var kalkið sprengt í svonefndum Sandhól, upp af Djúpagili, en þar fór á sömu leið. Þá var farið að sprengja kalkstein fyrir ofan fossinn í Mógilsá. Var þetta miklu hærra í fjallinu og flutningar allir erfiðari fyrir vikið, Allur var kalksteinninn fluttur á hestum frá námunni niður að sjó. Var þaðbæði kvotlsamt og erfitt og reyndist dýrt. Og svo voru flutningar með bátum þaðan til Reykjavíkur. Voru hafðir tveir eða þrír bátar við flutningana, þar á meðal fröns loggorta, sem Egill átti.

Lækjargata 10

Eitt elsta íbúðarhús úr hlöðnu grágrýti í Reykjavík. Grjótið var fengð úr Skólavörðuholti, en kalkið til bindingar úr Esjunni. Húsið var síðar lengt til suðurs og kvistir gerðir árið 1904.

Til er yfirlit um reksturinn á þessu ári og hefur hann kostað kr. 5323-54 alls. En upp í það kemur selt kalk fyrir kr. 3778.89 og kalksteinn fyrir kr. 1200.00, eða samtals kr. 4978.89, svo að tap kr. 349.65 hefur orðið á rekstrinum. Kalkið var selt í smásölu til hinna og annara og kostaði hver tunna af því 6 krónur. Af því má sjá, að á þessu ári hafa fengist um 630 tunnur af kalki.

Bergstaðastræti 12

Á árunum 1880 til 1905 voru byggð allmörg steinhús og steinbæir í Reykjavík með tækni sem íslenskir steinsmiðir lærðu af byggingu Hegningarhússins við Skólavörðustíg og Alþingishússins. Sérstaða steinbæjanna lá í því að þeir voru að miklu leyti eftirlíking torfbæjanna sem þeir leystu af hólmi. Veggir voru úr hlöðnu grjóti án glugga, gaflar oftst úr timri með gluggum og þakið bárujárnsklætt. Er því oft haldið fram að steinbæirnir séu eina sér-reykvíska húsagerðin. Talið er að um 170 steinbæir hafi verið byggðir á þessum árum en að aðeins 20 þeirra standi enn.

Til er nafnlaus grein um kalknámið,- skrifuð á dönsku þetta ár. Mun hún hafa átt að birtast (og hefur máske birst) í einhverju dönsku blaði. Er þar veist að stjórninni og yfirvöldum fyrir það hvað þau hafi sýnt lítinn skilning á þessu nauðsynjamáli, og jafnframt sýnt því beran fjandskap. Þykir mjer líklegt að greinin sje runnin undan rifjum Egils. Er því þar og lýst hvaða vonir hann hefur bundið við þetta fyrirtæki um bættan húsakost í Reykjavík. Segir þar m.a. svo: — Í Reykjavík hafa verið bygð nokkur steinhús í sumar. Þar á meðal íbúðarhús fyrir almúgafólk, og má það furðulegt heita í því árferði sem nú er, því að hjer er mjög þröngt í búi vegna þess að fiskveiðarnar brugðust algjörlega. — Enginn efi er á því, að framvegis munu menn byggja hús sín hjer úr steini og kalki. En það er ekki gott að segja hve fljótt steinhúsin munu útrýma torfbæunum. En hvort sem þess verður langt eða skamt að bíða, þá mun sú breyting hafa hin heillavænlegustu áhrif á kjör allra, því að bætt húsakynni er eitt af aðalskilyrðunum fyrir því, að hjer geti orðið menningarlegar framfarir. —

Benedikt Gröndal

Benedikt Gröndal.

Þrátt fyrir dugnað og áhuga Egils stóð fyrirtæki þetta ekki nema í nokkur ár. Björn Kristjánsson, síðar bankastjóri, var einn af þeim, sem vann við kalknámið í Esju, og segir hann að það hafi lagst niður vegna þess að það borgaði sig ekki, og kennir þar um óheppilegum vinnubrögðum og of miklum flutningskostnaði. Hann segir að kalksteinninn hafi sprengst illa með púðrinu, og í stað þess að reiða hann á hestum ofan úr námunni, hefði verið betra og kostnaðarminna að hafa þráðbraut niður brekkuna og renna honum niður.

Benedikt Gröndal, bróðir Egils, sem átt hefur að vera þessum málum kunnugur, segir svo um kalkvinsluna: „Fyrir nokkrum árum var hjer kalkofn og átti að brenna þar kalkstein, sem fanst í Esjunni. Var þetta gert nokkra stund, en fórst fyrir bæði vegna þess, að flutningur frá námunni varð of dýr og erfiður, og svo vegna þess, að vatn úr læknum var haft í kalkið, en það vatn er óhreint, bæði úr tjörninni og svo blandað sjávarseltu og óhæfilegt til kalkgerðar. Varð kalkið þannig ónýtt, eða miklu verra en þurft hefði. En þetta vildu forsprakkarnir ekki heyra, þótt sagt væri við þá.“
Eitthvað hefur Gröndal sjálfsagt til síns máls um að vatnið úr læknum hafi skemt kalkið. En ekki hefur það verið altaf, því að sagt var að kalkið hefði verið betra og sterkara heldur en útlent kalk. Steinstjettin gamla í Bankastræti var límd saman með kalki úr Esjunni.

Trausti Ólafsson

Trausti Ólafsson í portinu við Hverfisgötu 44 Reykjavík, en þar bjó hann 1927 – 1934. Í bakhúsinu þar var Efnarannsóknastofa ríkisins til húsa til 1937 þar til að starfsemin var flutt í Atvinnudeild Háskólans. Trausti tók við forstöðumannastarfi á Rannsóknarstofunni er hann kom heim frá námi 1921. Efnarannsóknastofa ríkisins var stofnuð 1906 og var fyrsti forstöðumaður hennar Ásgeir Torfason Bjarnasonar skólastjóra í Ólafsdal. Ásgeir var fyrsti efnafræðingur landsins.

Þegar Bankastræti var breytt, var hún rifin upp, og brotnuðu þá steinarnir fyr en að samskeytin gæfu rig. Það sýnir að ekki hefur alt kalkið verið ljelegt. Og enn stendur steinhús Þorsteins Tómassonar í Lækjargötu 10. Það er límt saman með kalki úr Esjunni og hefur það ekki látið á sjá enn.
Löngu síðar, árin 1916—17, var gerð önnur tilraun með kalknám í Esjunni. Átti þá að brenna kalkið þar efra. „5 eða 6 menn unnu í 2 mánuði við að losa kalkstein úr ákveðnum gangi þar; var komið nokkuð djúpt niður í hann og var veggurinn því orðinn hár að ofanverðu. Verkamennirnir fundu nú upp á því að skjóta 30 dynamitpatrónum í einu í ganginn. Afleiðingin varð, að efri veggurinn hrundi ofan í ganginn og fylti hann. Fjelagið gafst svo upp við fyrirtækið.“

Nokkuð er af gulli í kalksteininum og kvarzgöngum, sem eru í sambandi við hann. Rannsakaði Trausti Ólafsson efnafræðingur sýnishorn úr námunni fyrir Björn Kristjánsson og reyndist gullmagnið í kalkganginum 10—19 grömm í tonni, en í kvarzinum nokkru meira eða alt að 26 gr. í tonni. En í gullnámum Suður-Afríku var þá meðaltal gullmagns 12 1/2 gramm í tonni.
Björn segir því: „Ef nú Egill Egilson hefði látið rannsaka kalksteininn fyrir gull þá hefði ágætlega borgað sig að vinna steininn þar á staðnum sem gullstein. Eins hefði sennilega vel borgað sig að brenna og leskja kalksteininn þar á staðnum og leysa gullið úr afganginum af steininum, sem ekki leskjaðist, með cyankalium.“ – Á.Ó.

Heimildir:
-Víkverji 28.08.1873, Kalk í Esjunni, bls. 82.
-Þjóðólfur 17.5.1877.
-Eimreiðin 01.01.1900, bls. 83.
-Ægir 01.06.1914, bls. 68.
-Tímarit iðnaðarmanna 01.04.1941, bls. 26-27.
-Heilbrigðistíðindi 01.07.1973, Kalkbrennsla, bls. 60-61.
-Lesbók Morgunblaðsins 23.10.1949, „Kalknám í Esjunni og Kalkbrensla í Reykjavík“, Árni Óla, bls. 461-464.
-Hndr. Lbs. 314 fol. Hndr. J. S. 133 fol., Reykjavík um aldamótin, Iðnsaga Íslands II, Alþtíð. 1875, Stjórnartíð, 1876.
-Fornleifaskráning vegna deiliskipulags við bæjarstæði Mógilsár, Borgarsögusafn Reykjavíkur 2019.

Esja

Esja.

Geitahlíð

Gengið var í þoku upp girðingaveg á mótum Árnessýslu og Gullbringusýslu við Sýslustein.

Slóðaketill

Við Slóðaketil.

Veður var að öðru leyti milt og hlýtt. Í miðri hraunhlíð var litið ofan í hraunketil, sem nefndur hefur verið Slóðaketill. Ofan í honum er um 6 metra gat virðist hraunrás liggja þar inn undir. Rás þessa þarf að skoða betur síðar. Slóðanum var fylgt upp á hraunbrúnina og áfram upp grónar hlíðar melhóla uns komið var á efstu brún. Inni í þokunni í austur eru Sandfjöllin og fjær Vesturás og Austurás. Í suðaustur er Herdísarvíkurfjallið og í góðu skyggni sést þaðan inn yfir Svörtubjörg og alveg að Hnúkum. Í suðvestri eru Æsubúðir á Geitahlíð. Í vestri er Sveifluhálsinn, en nær má sjá gíga, bæði austan í Geitahlíð og eins ofan við Kálfadalahraunið, sem rann þarna til vesturs ofan í Kálfadalina. Þar liggur slóðinn til norðurs inn á hraunbreiðu, en beygir fljótlega til vesturs. Vinstra megin er fallegur hraungígur.

Brennisteinsfjöll

Brennisteinsfjöll – Kistufell framundan.

Áð var þegar komið var út úr hrauninu eftir tæplega klukkustundar gang. Þar í austur á að vera hægt að sjá Vörðufell og inn að Kistufelli í Brennisteinsfjöllum. Austan við Vörðufell er Eldborgin, röð fallegra hraungíga og mikilla hraunrása. Þar vestan við rann Hvammadalshraun niður í Hvammadal austan Kleifavatns. Í suðurjaðri þess er m.a. Gullbringuhellir.
Hraunkantinum var fylgt til suðurs. Austan við hraungíga Kálfadalshrauns var haldið til suðsuðausturs inn á mosahraunið og þar fylgt háum hraunkanti á hægri hönd. Þegar komið var út úr hrauninu var komið í gróið hraun úr eldborgunum austan Geitahlíðar. Þeim kanti var fylgt til suðausturs þangað til hann mætti eysti hluta Geitarhlíðar. Þar rann hluti gróna hraunsins niður svonefndan Sláttudal, á milli hlíða. Hallar þar undan til suðurs. Hlíðin er nokkuð brött efst, en jafnar sig fljótlega. Neðar er hraunið mjög gróið. Hamrar eru á vinstri hönd og mikil hraunrás á þá hægri.

Slóðaketill

Slóðaketill.

Þegar komið er niður á þjóðveginn er hlaðið hrossaskjól undir hraunkantinum handan hans. Þar var áð uns haldið var að bílunum. Eða eins og einn þátttakenda sagði þegar niður var komið:
“Flestum þykir eigi miður,
komin niður,
um gil,
sem reyndar virtist ekki til
og að hafa sloppið heil,
um geil,
í fjalli
úr margra alda gömlu gjalli.
Þokan reyndist óvenjuþétt,
en gangan létt,
enda vanir menn,
sem þekkja og rata þetta enn.
Förum síðar aftur sömu leið,
gatan er greið.”

Gangan var um 7.7 km og tók um 3 klst. Ætlunin er að fara aftur upp girðingaslóðann, yfir hraunið ofan melhólanna og fylgja síðan hraunkantinum til austurs, í stað vesturs eins og nú var gert, og koma niður við suðaustanvert Kleifarvatn, þar sem bílar munu bíða göngufólks. Sú ganga mun líklega taka um 4 klst, en á þessu svæði er hægt að líta eitt mikilfengslegasta eldgosasvæði landsins.
Frábært veður.

Sýslusteinn

Sýslusteinn.

Systkinalundur

Gunnlaugur Kristmundsson kennari og Sandgræðslustjóri var einn af stofnendum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Hann fæddist á Þverá í Núpsdal í Vestur-Húnavatnssýslu 1880, tók gagnfræðapróf og kennarapróf frá Flensborg 1905. Hann kynnti sér sandgræðslumál í Danmörku og kenndi á vetrum en sinnti sandgræðslu á sumrin frá 1907.

Gunnlaugur Kristmundsson

Gunnlaugur Kristmundsson (1880-1949).

Gunnlaugur kenndi við Barnaskóla Hafnarfjarðar 1914 til 1942 er hann var skipaður Sandgræðslustjóri við stofnun embættisins. Því starfi gegndi hann til 1947, en hann andaðist 1949.
Þegar ljóst var vorið 1947 að ekki yrði hægt að hefja ræktunarstarf við Hvaleyrarvatn stakk Gunnlaugur upp á því að hefja gróðursetningu í skjólsælum hraunbollum í norðanverðu Gráhelluhrauni, sem var fyrsta ræktunarsvæði félagsins.
Guðmundur bróðir Gunnlaugs var bóndi í Sveinskoti á Hvaleyri til 1949 er hann lést. Ingibjörg systir þeirra var ráðskona Guðmundar um árabil og eini erfingi bræðra sinna sem voru báðir ókvæntir. Þegar Ingibjörg andaðist 1952 lét hún eftir sig erfðaskrá og gaf stóran hluta eigna sinna til að stofna „Skógræktarsjóð Guðmundar og Gunnlaugs Kristmundssona og Ingibjargar Kristmundsdóttur“ til að efla skógrækt í Hafnarfirði eða í nágrenni kaupstaðarins.
Sumarið 1989 var afhúpaður minningarsteinn um systkinin í Systkinalundi í suðurhlíðum Húshöfða.

Heimild:
-Fjarðarfréttir 1. okt. 2026, Systkinalundur.

Systkinalundur

Minnismerki – Systkinalundur.

Póstlúður

Í tveimur tölublöðum Faxa áriðð 1978 segir Guðsteinn Einarsson í Grindavík frá „Einari pósti Árnasyni„:

Einar póstur gekk undir meiri þunga en hann gat lyft með handleggjunum

Guðsteinn Einarsson

Guðsteinn Einarsson.

„Einar Árnason f. 31. des. 1851, skírður 2. jan. 1852 í heimahúsum. Foreldrar hans voru Árni Jónsson og Helga Einarsdóttir búandi hjón í Vesturkoti.
Einar missti föður sinn 4 ára gamall, því að Árni dó 23. apríl 1856 þá talinn 36 ára gamall tómthúsmaður á Miðengi.
Helga giftist aftur 29. jan. 1859 þá 34 ára. Seinni maður hennar var Guðmundur Hannesson bóndi í Breiðagerði,
29 ára. Þau voru gefin saman í Kálfatjarnarkirkju.
Einar Árnason var fermdur á Trinitatis 1867. Og fær þá þessa umsögn hjá presti sínum, sr. Stefáni Thorarensen: „Lestur og kunnátta sæmileg. Skilningur daufur. Hegðun góð“.
Einar fluttist með móður sinni og stjúpa frá Breiðagerði að Vigdísarvöllum árið 1870.
Fyrir og upp úr síðustu aldamótum var hér á landi til nokkuð af fólki sem var talið sérkennilegt, þ.e. að það batt ekki sína bagga þeim hnútum er almennt gerðist.
Vitanlega var þetta mestmegnis það sem kallað er förufólk, þ.e. það flakkar bæ frá bæ og lifði á því sem því var gefið hverju sinni. Á þessu rjátli sínu, einsamalt að jafnaði, hefir það sennilega aldrei náð hugsunarhætti hins almenna borgara og þannig orðið einhvers konar utangarðsmanneskjur.
Mér duttu þessar manneskjur í hug í sambandi við skoðanakönnun „Vikunnar“ nú fyrir skömmu, þar sem segir frá skoðunum ungs fólks. Eitt af því sem þar kemur fram, er orðrétt: „Nú er svo komið, að allir skólar eru orðnir fullir af meðalmönnum.“

Grindavík

Grindavík 1925.

Vonandi verkar þetta þannig að þetta utangarðsfólk aldamótanna sem ég var að geta um, nái meðalmennskunni, en vonandi standa þó topparnir upp úr. Í þessu sambandi datt mér í hug sérkennilegur maður, sem fyrst og fremst var bundinn við Grindavík, en almenningur nú mun ekki kannast við og gekk undir nafninu Einar póstur. Það skal tekið fram, að hér er ekki um að ræða ævisögu Einars pósts, heldur minningar mínar eins og þær eru frá barnæsku til fullorðins manns, svo og sögusagnir sem í mér hafa loðað, frá árum Einars hér í Grindavík.

Krýsuvík 1887

Krýsuvík 1887. Lengst til hægri er sýslumaðurinn í Gullbringusýslu, Árni Gíslason, en hann bjó í Krýsuvík seinni hluta ævi sinnar.

Upphaf Einars pósts mun það, að hann var fæddur á Vatnsleysuströnd, af hjónum sem hétu Helga og Árni. Föður sinn mun Einar hafa misst mjög ungur og stóð þá móðir hans uppi með 6 börn, öll ung.
Á þeim tímum þýddi slíkt yfirleitt að fjölskyldum var sundrað og börnin boðin upp til lægst bjóðandi framfærslu, en fljótlega kom til maður sem giftist ekkjunni og tók hann jafnframt að sér framfærslu barnanna. Maður þessi var annálaður dugnaðarmaður, en jafnframt mjög harður við alla sér undirgefna, svo að segja mætti sögur af, en þessi lýsing ætti að nægja til að gera megi ráð fyrir að þessi fósturbörn hafi ekki alltaf átt sjö dagana sæla.
Nú var það Einar póstur, sem ég ætlaði að segja frá og verður þá fyrst að byrja á vaxtarlagi hans. Hann mun hafa verið um 150 cm á hæð, bolurinn eðlilega stór, höfuðið mjög stórt, en sá líkamshluti, er vantaði vöxtinn, var fæturnir. Klofið á Einari var ekki meira en í hné á meðal manni, en aftur á móti var hann svo handleggjalangur að hendurnar virtust koma við hnén á honum er hann bar á börum.
Vöxtur Einars mun kallaður dvergvöxtur nú til dags og efa ég ekki að það hafi verið beinkröm á uppvaxtarárunum sem hefur framkallað þennan vöxt.

Krýsuvík

Krýsuvíkurbærinn um 1914.

Um tvítugsaldur mun Einar hafa ráðist vinnumaður að Krýsuvík til Árna sýslumanns. Ekkert hefi ég heyrt um vinnu hans þar annað en að vori og sumri hafi hann að mestu gætt engjanna í Krýsuvík. Þrátt fyrir lélegan líkamsvöxt, lítur út fyrir að karlinn í Einari hafi verið fullgildur til kvenna, því í Krýsuvík er sagt að hann hafi verið trúlofaður vinnukonu að nafni Kristín og frá þeim tíma er fyrsta sérkennilega orðatiltækið sem ég hefi heyrt frá þeim tíma, en það átti að hafa verið þegar Kristín sveik hann, að eftir á hafi Einar sagt frá því þannig: „Hún sveik mig á mánudaginn í tólftu, helvítis mellan þessi“, og frá þeim tíma er vísa sem eignuð var Stefáni Stefánssyni, sem lengi gekk undir nafninu „túlkur“. Einhverntíma er Einar kom seinna heim en búist var við, kvað hann:
Nú er hann Einar durgur dauður,
dúkasólin grætur hann.
Kúfur er hinn eini auður
er hún Stína erfa kann.

Ísólfsskáli

Ísólfsskáli um 1900.

Um 1880 er svo Einar kominn að Ísólfsskála til móður sinnar og fósturföður, sem þar bjuggu þá. Þá var á Ísólfsskála vinnukona sem Katrín hét, Þorkelsdóttir, og þar hitti Einar sína ektakvinnu, sem seinna varð.
Katrín þessi mun hafa verið ættuð úr Grindavík, en það sérstaka við þessi hjón var, að þau virtust sköpuð í sama farið, hvað hæð og vexti við kom. Með þeim var sem sagt fullkominn hjónasvipur. Ég varð nú ekki svo frægur að sjá uppi klobbann á Kötu, enda pínupilsin ekki komin til sögunnar, en segja mætti mér að fæturnir hefðu ekki haft eðlilega lengd frekar en á Einari.
Árið 1890 strandaði „Fransari“, þ.e. þrísigld skonnorta. Þau fóru í stórum flotum með fram ströndum landsins og fiskuðu á færi. Þetta skip hafði siglt upp í Hraunsand í góðu veðri seint í aprílmánuði. Mannbjörg varð. Leki mun hafa komist að skipinu. Skipshöfnin mun hafa unnið nokkuð að björgun úr skipinu og því verið þar nokkurn tíma.

Hraun - kort

Hraun í Grindavík – uppdráttur ÓSÁ. Á kortinu má sjá Hrauntún.

Skipsstrand þótti ætíð athyglisvert og var því mjög fylgst með því frá nærliggjandi stöðum. Einar og Kata munu hafa komið þar á Hraunssand meðan Fransararnir dvöldu þar og frá þeim tíma er þetta haft eftir Einari um Kötu: „Þegar ég og Fransararnir hlupu á eftir henni austur um allan Sand, mikið anskoti var skepnan fljót.“
Eitthvað mun hafa dregist frá því að talið var að Einar og Kata væru að draga sig saman og þar til þau urðu hjón og einhver sem spurt hafði Einar um, hvað giftingu þeirra liði, hafði hann svarað svo: „Ég væri löngu giftur henni, ef ekki væri á henni anskotans hausinn.“ Þetta mun hafa verið í sambandi við að talið var að hún hefði geitur.

Einar póstur

Einar póstur.

Fljótlega eftir þetta munu þau hafa gift sig og hófu búskap í þurrabúð sem þá var kölluð svo, á Hrauni og hét það Hrauntún. Frá þeim tíma er þau bjuggu í Hrauntúni hefi ég heyrt að þá hafi Kata lagst á sæng til að eiga barn og eftir að ljósmóðirin hafði verið sótt og ekkert barnið kom, að þá hafi Einar sagt: „Ætli væri ekki reynandi að gefa henni lútsterkt baunakaffi til að snerpa á henni.“ Hvað sem kaffinu leið mun ekkert barnið hafa komið, en talið var að barnið hefði visnað upp með móðurinni.
Katrín ÞorkelsdóttirÍ Hrauntúni og Melbæ munu þau Einar og Kata hafa búið hér í Grindavík, en árið 1910 munu þau hafa flutt til Keflavíkur.
Frá búskaparárum þeirra í Grindavík hefi ég heyrt ýmislegt sem farið hefur í millum þeirra hjóna og virðist Einar þá farinn að beita sérstökum orðaforða og að kasta fram vísum. Þau hjón munu hafa haft skap stórt, þótt lítil væru og eitt sinn hafði Einar átt að segja við Kötu sína í orðasennu: „Farðu í hurðarlaust helvíti, hornafullt af skónálum, helvítis árans pístólan þín.“

Á þessum árum, sennilega 1905 eða 1906, gerist Einar póstur frá Keflavík, um Hafnir, Grindavík, Krýsuvík, Selvog, Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Það má heita ótrúlegt að hann gæti þetta, þar sem pósturinn var talinn vera um 100 pund með útbúnaði, þegar lagt var af stað frá Keflavík, en það var þó staðreynd að þetta gat Einar og mun hafa byggst á því, að hann var skrokksterkur, þ.e. að hann gat staðið undir og gengið undir meiri þunga en hann gat lyft með handleggjunum. Um þessa eiginleika sagði faðir minn sögu af honum.

Einarsbúð

Einarsbúð t.v.

Pabbi var oft vor og haust við afgreiðslu í búð Einars í Garðhúsum og einhverju sinni hafði Einar póstur komið að fá einn hundrað punda poka af rúgmjöli. Pabbi sagðist hafa tekið pokann úr bing og kippt honum að tunnu sem höfð var til að ganga frá pokunum á bakið, því allt var borið á bakinu þá.

Grindavík

Grindavík – Einarsbúð t.h.

Nú, þegar Einar tók við pokanum gat hann aðeins draujað honum eftir gólfinu, en ekki lyft upp á tunnuna. Hann spurði hvort ekki ætti að skipta pokanum í tvennt og fara með í tveim ferðum. Nei, hafði Einar sagt, ég er góður ef þú hjálpar mér að koma honum á bakið.
Þegar það var búið, dáðist pabbi mikið að, hvað Einar var léttfetalegur með pokann á bakinu, þegar hann labbaði austur garðana, eftir að hafa séð hann glíma við pokann inni.
Einar mun ekki hafa þótt gengur í skipsrúm og segir sig því sjálft að tekjur munu hafa verið af skornum skammti hjá þeim hjónum og fátækt mikil, en til að halda sér uppi í erfiðleikunum mun Einar hafa haft einhverja hörku við tilveruna og er þetta til sannindamerkis um það: Einhverju sinni er Einar kom úr póstferð, hafði Kata farið að telja upp hvað blessað fólkið hafði gefið þeim. Þegar Einar hafði hlýtt á upptalningu Kötu, hafði hann sagt: „Ég held það sé rétt til þess, fyrst það getur það.“ Kata hafði sagt: „Mikil ósköp eru að heyra til þín, maður, en Einar svarað: „Ég sný ekki aftur með það, ég held það sé rétt til þess, fyrst það getur það.“

Reykjanesviti

Reykjanesviti í byggingu.

Árið 1907 skeður svo það að fólk hér í Grindavík og jafnvel um allan Reykjanesskagann fær peninga í hendurnar fyrir vinnu sína. Þetta var í sambandi við að á því ári var Reykjanesviti byggður. Sennilega hefir þessi nýbreytni leyst úr læðingi það bezta sem í hverjum einstaklingi bjó. Einar póstur var þarna í vinnu á milli póstferða og einmitt þarna komu fram tvær vísur hjá Einari, sem næstar munu því að þola bragarreglur. Sú fyrri var svona:

Þorsteinn hvíti þar með ýtum gengur.
Oft hjá Dísu una kann,
ekki tala ég meira um hann.

Þórkötlustaðir

Einland í Grindavík.

Þessi Þorsteinn var Steini í Einlandi og munu allir eldri Grindvíkingar muna eftir honum, en Dísa var vinnukona á Stað hjá séra Brynjólfi Gunnarssyni.
Önnur vísa Einars frá vitabyggingunni og sú er meiri eftirköst hafði fyrir hann, var um mann úr Höfnum. Sá hét Ketill Magnússon og er vísan svona:

Ketill Magnús kallaður
kempan magtar stinna
Einu sinni á ævinni
hann ætlaði að fara að vinna.

Þetta þótti hitta, þannig að Ketill Magnús þessi hafi þótt heldur sérhlífinn við vinnu, en eftirköstin voru þau, að faðir Ketils Magnússonar var vel hagmæltur og sá gerði brag um Einar póst, svohljóðandi:

Þá Friðrik kóngur sigldi um sæ
og sá til Grindavíkur,
leit hann mann einn, langt frá bæ,
á leið til Keflavíkur.
„Cristiansen minn komdu hér“
kallaði sjóli glaður,
„líttu á hvernig labba fer
líkur dvergi maður.“
Christiansen með kíkirinn
kíminn glotti og sagði:
„Þetta er putti pósturinn
með prakkara látbragði.“
Ólafur með stóran staf
stendur upp úr fönnum,
en putti fer á kolsvart kaf
og kallast burt frá mönnum.
Póststjórninni skrifa skal
og skýra frá því betur,
ég held það mesta heimskuhjal
að hafa putta í vetur.
Eftirlaunin enginn fær
Einar þó að deyi,
en Ólafur í rósum rær,
svo raunum léttir eigi.

„Við köllum þetta hér í Keflavík, hús, en ekki bæ“, sagði Einar póstur við Grindvíkinginn
Keflavík
Ég man fyrst eftir Einari árin 1906 eða 1907, því hann kom alltaf að Húsatóftum þar sem ég er uppalinn. Raunverulega voru það hátíðisdagar, því Einar opnaði alltaf blaðatöskuna og skildi eftir öll blöð í Staðarhverfið, sérstaklega minnist ég blaðanna Lögbergs og Heimskringlu, sem pabba voru send öll póstár Einars, en í þeim voru mjög spennandi neðanmálssögur.

Staður

Staður – kirkjan stóð á hólnum nær. 

Þegar Einar var í póstferð, var full múndering hans blaðataska úr sverum striga, spennt um axlir og náði niður á rass á Einari, þá tösku mátti opna og skilja eftir blöð á viðkomandi bæi — 2. bréfataska, hana mátti ekki opna nema á bréfhirðingastöðum — 3. var lúður og þótti okkur strákunum það mikill merkisgripur og venjulega fengum við lúðurinn lánaðan til að blása í, en leyfðum okkur ekki að leita eftir að fá hann fyrri en farið var að bera á borð fyrir Einar og helst að hann væri byrjaður að borða.
Ég tel rétt að minnast á eina sérstaka minningu um Einar póst frá þessum árum, sem sýnir hvað lífsbaráttan var hörð, miðað við daginn í dag og einnig að Einar karlinn hefir ekki legið á liði sínu til sjálfsbjargar. Árið 1910 var kirkjan á Stað rifin. Hún var úr timbri og það var allt selt á uppboði. Á uppboðinu keypti Einar 10 eða 12 borð. Þau voru l0 eða 12″ og 8-12 fet á lengd.
Einar póstur.
Sem fyrri er sagt, fluttust þau Einar og Kata til Keflavíkur 1909 eða ’10 og árið 1910 var Einar farinn að byggja í Keflavík og borð þau er hann keypti úr Staðarkirkju, bar hann fyrst upp að Húsatóftum og geymdi þar og bar þau síðan tvö og tvö til Keflavíkur, þegar hann var að koma að austan úr póstferðum. Ég og bróðir minn, Jón, minnumst þess, þegar Einar labbaði með borðin norður göturnar á Keflavíkurvegi, frá Húsatóftum. Göturnar voru um hnédjúpar meðalmanni, svo ekkert sást, nema borðin sem vögguðu sitt á hvað.

Keflavík

Keflavík 1895.

Niðurstaðan að áreynslu Einars varð svo sú, að hann kom húsi yfir sig og Kötu í Keflavík. Keflvíkingar voru á þeim tímum orðlagðir fyrirnafnagiftir og vitanlega var hús þeirra nefnt „Pósthús“. Með sínu pósthúsi fékk Einar um 3600 ferm. lóð og var eignalóð.
Einn öflugur peningamaður í Keflavík náði lóðinni undir sig, en hún er nú talin á 5-6 hundr. kr. ferm., svo hefði Einar lifað 40-50 árum lengur, hefði hann verið orðinn milljóneri. Í sambandi við hús Einars í Keflavík, hefi ég heyrt þessa frásögn: „Grindvíkingur einn hitti Einar hjá húsi sínu eftir að það var byggt. Þeir hófu tal saman og þar kom að Grindvíkingurinn spurði Einar hvort þetta væri bærinn hans“. Einar hafði svarað: „Við köllum þetta hér í Keflavík hús, en ekki bæ“.
Hér kemur svo síðasti kafli minn um Einar póst og hann er um það, þegar ég kynntist honum persónulega. Það gerðist þegar Grindavíkurvegurinn var lagður árin 1914 til 1917. Við vorum þar báðir öll árin, ég stráklingur, en Einar vitanlega fullorðinn.

Einar var ræðinn og laginn

Grindavíkurvegir

Ein búð vegagerðarmannanna við gamla Grindavíkurveginn á Gíghæð.

Ég var hestasmali fyrsta sumarið, fór á fætur um 5 að morgni og átti að skila hestunum kl 7, þegar vinna byrjaði. Kl. 1 var skipt um hesta aftur. Þá voru morgunhestar fluttir, en kl. 2-3 átti það að vera búið og þá átti hestasmali að vinna til kvölds.

Grindavíkurvegur

Unnið við Grindavíkurveginn 1916.

Einar póstur var venjulega látinn bera á börum á móti strákum og hann var sá sem ég bar venjulega á móti í þessum vinnutíma mínum. Einar var ræðinn og nokkuð laginn að segja frá, enda kunnugur langt út yfir það umhverfi, sem ég þekkti þá, en það sem mest sat í mér og gerði það að verkum að ég, stráklingurinn, fékk mig lítið til að gera grín að Einari að einhverju sinni er hann var að segja frá sínum uppvexti, endaði hann frásögu sína með þeim orðum, sem ég gleymi aldrei, en þau voru: „Ég ætla bara að segja þér það, að ég á engan þann óvin, að ég óski honum þess að búa við, það er ég átti í uppvextinum.“

Ég vinn það ekki fyrir heilagan anda…

Grindavíkurvegur

Búðastaður vegagerðarmanna við gerð Grindavíkurvegarins 1918 í Hrossabrekkum.

Öll árin í veginum var Einar í sér tjaldi, sýndist víst ekki heppilegt að hann væri innan um aðra sökum sinna sérkenna, en það vildi svo til, að hann var með í því tjaldi, sem ég var í þrjú seinni sumurin, svo ég vissi þess vegna svo vel hvað Einari leið.

Grindavíkurvegur

Gamli Grindavíkurvegurinn.

Öll haustin í veginum enduðu eins hjá Einari, þannig að þegar fór að gera rigningar, var ekki unnið í fasta rigningu, aðeins þegar gekk á skúrum, en Sigurgeir verkstjóri gekk eftir því, að allir væru í galla, þegar skúraveður var komið, en þá sagði Einar: „Það er enginn verri þótt hann vökni“. En þegar bleytur voru búnar að ganga nokkra daga og Einar orðinn gegndrepa og allt í kringum hann í tjaldinu, þá var viðkvæði Einars: „Ég vinn það ekki fyrir heilagan anda að láta drepa mig“, og þar með var hann farinn. Sigurgeir sagði að svona hefði gengið öll sumur í restinni og Einar var alltaf farinn áður en vinnan raunverulega hætti.

Nokkur skáldaandi var yfir
Einari þarna í vegavinnunni, en
því miður man ég ekki nema
tvær vísur hans frá þessum
tíma. Þær eru svona:
Mangi langi, mjór og krangalegur
hleypur Voga horskur til,
hann í sogar veðrið sig.

Hin er svona:
Fjandans eru faularnir,
fullir með svik og pretti,
allir standa aularnir
undir sama kletti.

Stundum rann svona skáldskapur upp úr Einari, en vitanlega sat lítið af því eftir í manni.

Andskotinn hossi þér á hrossherðablaði

Kúadalur

Kúadalur í Grindavík.

Einar kom að jafnaði til að drekka kaffi í okkar tjaldi, því það var hitað fyrir allann hópinn og tvennt sem Einar sagði upp úr eins manns hljóði eða án þess að viðræður hefðu sveigt að því. Annað var að upp úr þögn sagði Einar: „Einu sinni var maður á Skálanum, sem ég réði við“.

Greindavíkurvegur

Grindavíkurvegur 1914-1918.

Við getum gert okkur í hugarlund að á bak við þessi fáu orð, sé raunverulega heil æfisaga lítilmagnans, sem undir niðri hafi fundið sitt getuleysi í sambandi við alla sem hann hafði umgengist. Hitt var eins til komið, að upp úr þögn sagði Einar: „Margt er það í koti karls, sem kóngs er ekki í ranni, og tvenn á ég hnífapörin.“ Þetta sýnir vitanlega takmarkalausa sjálfsánægju með sitt litla og má vera, að það hafi verið eitt af því sem gat haldið svona fólki uppi í lífsbaráttunni.

Síðasta minningin sem ég á af Einari pósti, frá vegavinnunni gerðist i Kúadal, rétt við Grindavík. Þá var Einar að fara vegna rigninga, eins og áður er sagt og hann var að labba af stað með sínar pjönkur á bakinu. Ég var að bera grjót á börum með stráki, sem nokkuð hafði strítt Einari. Þegar Einar fór framhjá, kallaði ég hvort hann ætlaði ekki að kveðja.
Jú, sagði Einar og kom og tók í hendina á mér, með viðeigandi formúlu, en labbaði svo af stað án þess að kveðja hinn, sem spurði þá hvort hann ætlaði ekki að kveðja sig líka, en þá svaraði Einar: „Nei, andskotinn hossi þér á hrossherðablaði helvítis árans kvikindið þitt.“
Þetta eru eiginlega síðustu kynni mín af Einari pósti. Hann mun hafa dáið einhverntíma milli 1920 og 1930, en hans ektakvinna dó á Karlsskála í Grindavík um 1934.“ – Guðsteinn Einarsson

Guðmundur Björgvin Jónsson segir frá Einari og hans fólki í bók hans „Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi„

Suðurkot í Vogum

Suðurkot

Suðurkot í Vogum.

Eftir aldamótin lét Benedikt [Pétursson] byggja upp gamla bæinn og var sá notaður til ársins 1927. Þá lét hann byggja það Suðurkot er nú stendur. Smiður að því húsi var Þorsteinn Árnason húsasmíðameistari úr Keflavík. Um 1930 fór að draga úr umsvifum Benedikts, enda var hann þá orðinn 63 ára. Þó hafði hann vertíðamenn í skipsrúmi hjá öðrum útgerðarmönnum, m.a. sjómann frá Skagaströnd, Kristmund Jakobsson ekkjumann, 34 ára. Árið 1944 hætti Benedikt búskap og tóku þá Guðrúnu dóttir hans og Kristmundur við og bjuggu þau í sambýli uns Kristmundur lést árið 1976. Guðrún bjó ein í nokkur ár eða þar til hún fór á elliheimilið Garðvang árið 1979 og þar er hún enn. Kristmundur vann síðustu árin, meðan heilsan leyfði, hjá íslenskum Aðalverktökum á Keflavíkurflugvelli. Húsið Suðurkot var selt aðkomnufólki árið 1980.

Vigdísarvellir

Vigdísarvellir – Krýsuvíkur-Mælifell fjær.

Börn Benedikts og Sigríðar: 1) Guðrún Kristín, 2) Jón Gestur (látinn), einnig ólu þau upp Guðmund Marijón Jónsson sem var sonur Jóns Þorkelssonar og Mörtu Sigurðardóttur frá Flekkuvík.

Vigdísarvellir

Vigdísarvellir – uppdráttur ÓSÁ.

Sigríður, kona Benedikts, var sem áður segir frá Vigdísarvöllum. Þar var selstaða frá fornu fari, en um 1830 var þar reist nýbýli og var það í byggð fram yfir aldamót. Þar var einnig hjáleiga er Bali hét. Um 1870 flutti Guðmundur Hannesson bóndi í Breiðagerði á Vatnsleysuströnd, að Vigdísarvöllum með konu sinni Helgu Einarsdóttur. Þau voru þá nýgift og hún með 6 börn í ómegð frá fyrra hjónabandi. Eftir ár fluttu þau frá Vigdísarvöllum og að Ísólfsskála. Einar Árnason, sonur Helgu, kallaður Einar póstur, var vel þekktur í Grindavík og víðar um Suðurnes, fyrir dugnað þrátt fyrir að hann var ekki vaxinn eins og fólk er flest, og nokkuð sérkennilegur í háttum.
Að Vigdísarvöllum kom Sigríður Brynjólfsdóttir frá Árbæ í Landssveit, þá 14 ára, til föður síns, er þá bjó þar með þriðju konu sinni, og hafði hann átt dreng og stúlku með hverri. Hversu lengi hann bjó þar er mér ekki kunnugt. Síðasti ábúandi á Vigdísarvöllum mun hafa verið Ívar nokkur. Ég þekkti tvo syni hans, Bjarna, er réri margar vertíðir frá Vogum og víðar og hinn var Oddur, sem var lengi póstmeistari í Hafnarfirði og vel þekktur þar.

Heimildir:
-Faxi, 1. tbl. 01.01.1978, Einar póstur… – Guðsteinn Einarsson, bls. 16-18.
-Faxi, 2. tbl. 01.03.1978, Við köllum þetta hér í Keflavík hús…-Guðsteinn Einarsson, bls. 16-17.
-Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, Guðmundur Björgvin Jónsson, bls. 40-41.
-Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppu, Guðmundur Björgvin Jónsson, bls. 248.
Faxi 1978

Hlöðunesrétt

Í bók Guðmundar Björgvins Jónssonar, „Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi“ fjallar hann m.a. um Hlöðunesrétt, lögrétt Vatnsleysustrandarhrepps; öðru nafni Vogarétt eða Strandarrétt:

Hlöðunesrétt

Hlöðunesrétt vígð árið 1956.

„Fyrir ofan Hlöðversneshverfi er samkomuhúsið Kirkjuhvoll (sjá U.M.F.Þróttur). Nokkuð fyrir ofan Kirkjuhvol er fjárrétt. Það er hin gamla Vogarétt sem áður var staðsett á milli Vogabyggðar og Vogastapa. Þessi nýja rétt er reyndar enn kölluð Vogarétt þó hún sé á ströndinni. Gamla Vogaréttin var lögrétt eins og sú nýja sem byggð var árið 1956. Réttin hefur einnig verið nefnd „Hlöðunesrétt“ og „Strandarrétt“.

Vogarétt

Garður við Vogarétt – hlaðið úr holsteini.

Skammt neðan við  Hlöðunesréttina stendur opið hlaðið lítið hús úr holsteini (sandsteini) er bar nafnið Garður, sem lítt hefur verið getið í heimildum.
Lögrétt þýðir aðalskilarétt fjár (sbr. orðabók Árna Björnssonar frá 1979).

Hlöðunesrétt

Hlöðunesrétt.

Í lögrétt skal fara fram löglegt uppboð óskilafénaðar sem kemur í hana frá hinum ýmsu aukaréttum í sýslunni. Hefur opinber embættismaður á vegum viðkomandi sýslumanns það starf að bjóða upp féð.

Hlöðunesrétt

Hlöðunesrétt 1982.

Árið 1956 var samþykkt af sveitastjórn að byggð skyldi ný lögrétt á nýjum stað og voru kosnir þrír menn til að kanna hvernig staðið skyldi að framkvæmdinni. Þeir voru; Guðmundur í. Ágústsson, þáverandi hreppsnefndarmaður, Sigurjón Sigurðsson, Traðarkoti og Þórður Jónasson á Stóru-Vatnsleysu. Þessir menn fóru um sveitir suðvestanlands og könnuðu kosti og galla margra rétta, til að sameina það besta í eina nýja lögrétt fyrir Vatnsleysustrandarhrepp.

Vogarétt

Hlöðunesrétt árið 2022.

Réttin var hlaðin úr sandsteini (holsteini) og við hana er mjög góð aðstaða fyrir fjárflutningabíla.
Þórður Jónasson bóndi á Stóru-Vatnsleysu sá um byggingaframkvæmdir ásamt aðstoðarmönnum. Gekk verkið vel og var réttin vígð árið 1956 með mikilli viðhöfn.“

Heimild:
-Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, Guðmundur Björgvin Jónsson, bls. 247-248.

Hlöðunesrétt

Hlöðunesrétt.

Básendar

Í Faxa árið 1948 eru skrif séra Jóns Thorarensen um „Bátsenda„:

Jón Thorarnesen

Jón Thorarensen (1902-1986).

„Bátsendar hjá Stafnesi eiga sér einkennilega sögu. Þeir hafa eflaust á fyrri öldum verið notaðir til útróðra, en nafnkunnastir voru þeir fyrir hina dönsku einokunarverzlun, sem rekin var þar í þrjár aldir, frá 1484—1799.

Fyrst er getið um enska kaupmenn á Bátsendum. Árið 1484 gerði fulltrúi Danakonungs upptækt skip og vörur af Englendingum á Bátsendum, en þeir vildu hafa íriðsamlega verzlun við Íslendinga.

Árið 1491 sló í harða brýnu á milli Englendinga og Þjóðverja útaf Bátsendum, og 1506 eru Englendingar þar í friði með verzlun sína samkvæmt leyfi, er Þorvarður lögmaður Erlendsson í Selvogi gaf þeim.

Kristján III

Kristján 3. (12. ágúst 1503 – 1. janúar 1559) var konungur Danmerkur og Noregs (og þar með Íslands) frá árinu 1534 (formlega frá 1536) til dauðadags.

En 1518 var friðurinn úti milli Þjóðverja og Englendinga út af Bátsendum, Grindavík og Hafnarfirði, og varð bardagi loks milli þeirra í Hafnarfirði, sem endaði með því að Þjóðverjar héldu velli og náðu þessum verzlunarstöðum af Englendingum. Eftir þennan bardaga voru Þjóðverjar öllu ráðandi á Bátsendum, og þegar þýzka útgerðin var mest, höfðu Þjóðverjar þar syðra 45 fiskiskip.

En Kristján þriðji lét gera einn eldhúsdag að þessu öllu og ræna öllum skipum af Þjóðverjum 1543, og 20 árum síðar rændi konungur eða sló eign sinni á allar útvegsjarðir kringum Bátsenda, og öllum afla var upp frá því í tvær aldir rúmlega skipað að Bátsendum, í sjóð konungs. En þrátt fyrir það, að Danir rændu hinum þýsku skipum tókst þeim seint að ná Bátsendum frá Þjóðverjum, því um miðja 16. öld höfðu þeir tuttugu skip þar syðra, en Danir einungis tvö.
Árið 1548 ætlaði danskt skip að sigla inn til Bátsenda, en þýzkt skip var þar fyrir, og flæmdu þeir það danska burt.

Bátsendar

Bátsendar 1983. Garðar fremst. Fjærst má sjá tóft torfbæjarins.

Árið 1640 byrja svo Danir einokunarverzlun sína með fullum krafti á Bátsendum, og þar varð aðalverzlun danska valdsins á þessum slóðum, þar til sjórinn batt enda á allt saman þann 9. jan. 1799, en þá gekk fárviðri með stórflóðum um allt Suðurland, og eyðilögðust þá nótt 187 skip á Suðurlandi. Kirkjan á Hvalsnesi fauk, og skemmdir urðu miklar víðar. Á Eyrarbakka týndust 9 nautgripir, 63 hross og 58 kindur. Seltjarnarnes varð að eyju í flóðinu svo ekki varð komizt tíl Reykjavíkur. Og á Bátsendum eyðilagðist allt. Allur kaupstaðurinn eyðilagðist, en kona ein drukknaði.

Básendar 1726

Básendahöfn 1726. Keflavíkurhöfn ofar.

Þær byggingar, sem eyðilögðust voru þessar. Sölubúðin; íbúðarhús danska kaupmannsins; lýsisbúðin; lifrarbræðslan; íslenzkur torfbær, sem var 5 kofar litlir og urðu þeir allir ein grjóthrúga eftir flóðið; stórt vöruhús, og svo hrundu að mestu vörugeyrnsla, lítið fjós, hlaða og skemma, auk þesss tapaði kaupmaður 6 manna fari, 4ra manna fari, 2ja manna fari og norskri skektu. Sjórinn komst 164 faðma upp fyrir efsta húsið á Bátsendum.

Básendar

Básendar – gamli bærinn.

Hinrik Hansen hét síðasti kaupmaðurinn á Bátsendum. Hann segir frá því í skýrslu, sem hann gaf, að um nóttina, aðfaranótt þess 9. jan., hafi hann, kona hans, 4 börn og vinnukona vaknað við það að brakaði í öllu verzlunarhúsnu, og skellir heyrðust eins og grjóti væri kastað á húsið, og þegar hann fór á fætur og lauk upp útidyrum, brauzt sjór inn á þau með afli og fyllti öll herbergi. Flýðu þau þá upp á loft og hírðust þar til kl. 7 um morguninn, að þau brutu þakgluggann og óðu upp að fjósinu, sem hærra stóð. Óðu þau í gegn um borðvið, planka, búsáhöld og vörur, sem allt flaut þar í einum graut. En þegar þau komu að fjósinu hrundi það litlu síðar, þá flýðu þau til hlöðunnar, en um líkt leyti sópaðist þakið af henni. Þá lagði þetta fólk af stað hálf nakið í roki og kulda í áttina heim að Loddu sem var næsta hjáleiga, og komst það þangað eftir mestu þrautir.

Básendar

Básendar – uppdráttur ÓSÁ.

Gömul kona, er var í íslenzka torfbænum á Bátsendum fórst í flóðinu.

Básendar

Básendar – festarhringur.

Hinrik Hansen var kaupmaður á Bátsendum frá 1788 og til þess síðasta. Hann kom ungur til Íslands, 16 ára, og eignaðist íslenzka konu. Hann átti íbúðarhús á Bátsendum, sem eg hefi minnst á og bjó þar allt árið, hann var orðinn efnaður maður, en missti aleigu sína á einni nóttu og allt óvátryggt eins og geta má nærri. Bar hann sig upp við kóng, en fékk bæði sein og vond svör.

Hinrik Hansen dó í Keflavík 11. okt. 1802, 53 ára gamall, og var jarðsunginn að Útskálum 18. s.m. Þó að Hinrik Hansen væri danskur einokunarkaupmaður, þá hafði hann það það fram yfir aðra starfsbræður sína, sem fyrr höfðu verið þar, að hann kvæntist íslenzkri konu, og var á Bátsendum allt árið, en danskir kaupmenn voru oft vanir að fara á haustin til Danmerkur og loka verzlunarhúsunum og láta sér á sama standa, þó að Íslendingar yrðu að svelta heilu hungri á vetrum.

Básendar

Básendar 1983. Stafnesbærinn fjærst. Garður við Kaupmannshúsið.

Það er ekki að ástæðulausu, þó að einkennilegar tilfinningar vakni hjá mönnum, er þeir koma suður fyrir Stafnes, þar sem Bátsendakaupstaðurinn stóð.

Básendar

Básendar – uppdráttur ÓSÁ.

Fyrir 148 árum var þar kaupstaður, sem sópaðist burtu á einni nóttu. Eg held, að enginn blettur á Íslandi eigi sér jafn einkennilega sögu. Þar sem nú eru berar klappir og brimbarðir hnullungar, þar á sama stað var einu sinni líf og fjör og fjögur tungumál: íslenzka, danska, enska og þýzka, hafa verið töluð þar fyrr á tímum. Mörg verzlunarhús voru þar og útvegsbændur komu í stórum hópum að leggja inn fisk sinn og taka út. Ungar og fallegar heimasætur að kaupa sér silkiefni í skrauttreyjur við upphluti og skautbúning.

Básendar

Básendar – Brennitorfuvík.

Karlarnir drukku þar brennivín bjartar jónsmessunætur og báru saman hjá hver öðrum vertíðaraflann, og hresstu sig eftir fiskflutningana og uppskipunina. Þangað kom líka oft maður einn, sem var stór, þrekinn og kraftalegur, með stórgert og svipmikið andlit, svartur á brún og brá og bað um úttekt. Þetta var sóknarpresturinn á Hvalsnesi, Hallgrímur Pétursson. En það var hvorttveggja, að hann gat ekki stært sig af búskap og af því að leggja miklar afurðir inn, og svo var líka hitt, að sýslumaðurinn á Stafnesi var óvinur hans, sem spillti fyrir honum á Bátsendum, svo hann hefur eflaust oft farið þaðan með þungum hug. Þess vegna sagði hann:

Mannleg aðstoð er misjafnt trygg
margir fá slíkt að reyna,
trúskaparlundin laus og stygg
leið gengur eigi beina.
Veltur á ýmsa hlið um hrygg
hamingjulánið eina.

Básendar

Básendar – húsgrunnur.

Já, það mátti segja, á Bátsendum, þar valt hamingjan oft um hrygg fyrir Íslendingum. En í frægustu bók heimsins standa þessi orð: Þeir síðustu munu verða fyrstir. Suðurnesin, sem áður voru heimkynni einokunar og kúgunar, hafa orðið fyrir gjörbreytingu og endurreisn. Frá þeim streymir nú árlega ógrynni auðs í þjóðarbúið, og flestir aðrir landshlutar munu hverfa í skugga þeirra stórfelldu mannvirkja og framkvæmda í sambandi við atvinnulífið, sem þar verða að veruleika á komandi tímum.“

Heimild:
-Faxi, 1. tbl. 01.01.1948, Bátsendar – séra Jón Thorarensen, bls. 3-4.

Básendar

Frá Básendum.

Bieringstangi

Árni Óla skrifaði bókina „Strönd og Vogar“ 1961. Í bókinni fjallar Árni m.a. um „Bieringstanga“ og nágrenni hans á Vatnsleysuströnd:

„Hann [Bieringstangi] er fyrir sunnan Brunnastaðahverfið, og mun þar hafa verið útræði afar lengi. Vörin þar var hin stærsta á Ströndinni og hlaðnir kampar beggja vegna við hana fram í sjó. Var norðurkampurinn meiri og mátti lenda við hann bátum til uppskipunar.

Bieringstangi

Eldhús á Bieringstanga.

Sumarið 1844 giftust þau Þórunn Hallgrímsdóttir, systir Egils í Minni-Vogum, og Andrés Gottfred Pétursson, og voru gefin saman af séra Sveinbirni Hallgrímssyni, er þá var aðstoðarprestur að Kálfatjörn. Segir hann í kirkjubókinni um brúðguðmann, að hann sé „fisktökumaður á Tangabúðum hjá Brunnastöðum“.

Bieringstangi

Bieringstangi – loftmynd 1954.

Þá hafa verið komin þar salthús og fisktökuhús. Seinna fékk þessi útgerðarstöð nafnið Bieringstangi og var kennd við Móritz W. Biering, er seinast var kaupmaður í Reykjavík og drukknaði á skipi sínu undan Mýrum í nóvember 1857. Hann var fyrst verzlunarstjóri Flensborgarverzlunar í Keflavík 1837—1842. Er því líklegast, að sú verzlun hafi látið reisa salthúsin tvö, sem á Tanganum voru. Þau voru smíðuð úr 1 3/4 þml. borðum með síðum milli samskeyta, og var það gamalt byggingarlag. Á loftum þeirra voru verbúðir. Nú var það málvenja að kenna verzlanir við verzlunarstjórana, og hefir Flensborgarverzlunin í Keflavík sennilega verið kölluð „Bieringsverzlun„, meðan hann stýrði henni, og þá eðlilegt að búðirnar drægi nafn af honum.

Bieringstangi

Bieringstangi – áletrun á sjávarklöpp.

Annars var þessi verzlun lögð niður 1842, og varð Biering þá forstjóri Flensborgarverzlunar í Reykjavík og keypti hana 1850. Mun hann þá enn hafa rekið útgerðarstöðina á Tanganum, og má því vera, að hann hafi ekki verið kallaður Bieringstangi fyrr en Biering eignaðist verzlunina.

Bieringstangi

Hvammsbrunnur við Bieringstanga.

Umhverfis þessa stöð risu svo upp tómthúsmannabýlin Vorhús, Hausthús, Töðugerði og Grund. Þarna var gert út fram um seinustu aldamót. Seinasti útgerðarmaður á þessum stað var Magnús Torfason, kallaður „dent“, ættaður frá Naustakoti. Hann svaf sjálfur uppi á lofti í annarri búðinni, en sjómenn hans á lofti hinnar búðarinnar. Magnús var snyrtimenni mikið og kunnur framreiðslumaður í veizlum í Reykjavík. Hann reri aldrei sjálfur. Seinasti formaður hans var Hallgrímur, sonur Andrésar Gottfreds Péturssonar. Þarna var og önnur útgerðarstöð, sem nefnd var Klapparholt. Var vör hennar skammt fyrir vestan Tangavörina. Þar gengu jafnan 4-5 skip. Þar gerði Þórður Guðmundsson á Hálsi út og hafði umsjón með salthúsi, er þar var.
Ég lét nú í ljós, að mig langaði til þess að skoða Bieringstanga. Þeir bræður, Árni hreppstjóri og Egill kennari, kváðu velkomið að fylgja mér þangað.
Bieringstangi
Við gengum svo fyrst niður að vörinni, sem Egill gamli Hallgrímsson, afi þeirra, hafði látið ryðja, og hlaðið öfluga grjótgarða beggja vegna langt út í sjó til að skýla henni. Þarna í vörinni höfðu þeir haft uppsátur báta sinna feðgarnir, hann og Klemens, og síðar þeir Klemens og Hallgrímur mágur hans. Fyrir ofan á sjávarkambinum áttu þeir sína sjóbúðina hvor og var nokkurt bil á milli þeirra. En þar höfðu þeir gert öflugan skjólvegg, svo að milli búðanna mynduðust skjólkvíar, sem voru ágætt athafnasvæði. Á sjávarkambinum höfðu þeir gert fiskreita, og þar var einnig lifrarbræðsluhús. Nú er þetta allt horfið, nema vörin og grunnar húsanna.

Grænaborg

Grænaborg brann þriðja sinni árið 2002.

Við höldum svo inn með sjónum, fram hjá Grænuborg og inn á Bieringstanga. Er það alllöng leið, enda er þá komið inn í Brunnastaðahverfi. Landslag er þarna breytilegt, hraunhólar og klappir með grónum dældum á milli og mýrarsundum sums staðar. Að vestanverðu á tanganum hefir stöðin verið. Sér þar enn steyptan botn úr salthúsi og móta fyrir grunni annars húss, og sums staðar eru leifar af grjótbyrgjum, þar sem fiskur var saltaður. Byrgi þessi voru ekki stór, hlaðin tóft úr tómu grjóti allhá, og síðan flatreft yfir. Niðri á sjávarkambinum voru fiskreitarnir, en þeirra sér nú ekki stað, nema hvað grjótið er þar, og hefir sjórinn brotið það upp og hlaðið því allavega.

Bieringstangi

Bieringstangi – uppdráttur ÓSÁ.

Skammt frá stöðinni eru rústir býlanna Vorhúsa, Hvamms, Hausthúsa og Klapparholts, og umhverfis þau ræktaðir túnblettir. Þarna var byggð nokkuð fram á þessa öld, en nú er allt komið í eyði. Einhver einkennileg kennd grípur mann, þegar reikað er um þennan grýtta sjávartanga, þar sem einu sinni var fjörugt athafnalíf, en nú ekki annað en vesalar rústir. Þessi staður er eitt af talandi táknum breyttra atvinnuhátta og að nú er komin ný öld.
Við fórum aðra leið til baka, gengum upp á gamla veginn, sem var þjóðbraut frá landnámstíð og fram til 1912, þegar akvegurinn kom í stað hennar. Frost og regn, snjór og leysingar hafa farið ómjúkum höndum um gamla veginn, svo að varla sést móta fyrir honum. Og þó eru enn uppi menn, sem muna það, þegar stórar skreiðarlestir þræddu þennan veg dag eftir dag. Svo skammt er milli gamla tímans og nýja tímans, — og gamli vegurinn hvarf með gamla tímanum.

Bieringstangi

Magnús Ágústsson og Haukur Aðalsteinsson við skipsflak mb Hauks á Bieringstanga.

Fleiri útróðrastöðvar voru þarna, svo sem Kristjánstangi. Þar var saltgeymsla, en ekki fisktaka. Í Eyrarkoti, sem var niðri við sjóinn fram af Vogum, voru einnig viðleguskip. Í Minni-Vogum hóf Geir Zoega farsælan útgerðarferil sinn.
Mælt er, að bændum þar syðra hafi þótt orðið nokkuð þröngt fyrir dyrum hjá sér um 1876, er svo margir „útlendingar“ höfðust þar við á vertíðinni. Segir sagan, að bændur á Strönd, Vogum og Njarðvíkum hafi þá tekið sig saman um að leigja ekki uppsátur og upp úr því hefði svo Reykvíkingar og Seltirningar flutt sig suður í Leiru og Garð. Þessu ber vel saman við skrárnar um spítalafiskinn, því að þá fækkar aðkomubátum þarna óðfluga. Árið 1879 eru þar ekki taldir nema 10 „útlendingar“ og árið 1880 eru þeir aðeins sex.“

Heimild:
-Strönd og Vogar – Árni Óla, Hólmabúðir og Bieringstangi, 1961, bls. 168-173.

Vorhúsbrunnur

Vorhúsabrunnur.

Eldvörp

Haldið var í Eldvörp og staðnæmst á svæðinu við borholuna. Sæmilegur vegur er þangað með heitavatnspípunni um Illahraun. Eldvörp eru um 10 km löng gígaröð í stefnu suðvestur – norðaustur.

Tyrkjabyrgi

Eitt byrgjanna í Sundvörðurhrauni.

Talið er að síðast hafi gosið þar fyrir meira en 2000 árum. Gengið var suður fyrir Eldvörpin, inn á svonefndan Brauðstíg. Þar er hlaðinn garður utan í hraunhrygg. Vestan hans er hverasvæði. Eftir tiltölulega stutta göngu í gegnum úfið Sundvörðuhraunið var komið niður á slétt mosavaxið apalhraun. Beygt var út af stígnum til vinstri og var þá komið inn í krika í skjóli hins háa apalhrauns. Í krikanum og upp á hraunöxlinni að sunnanverðu eru um tugur hlaðinna byrgja. Þau fundust fyrir tilviljun veturinn 1872 og elstu lýsingu á þeim er að finna í Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen en hann skoðaði þær árið 1883. Gerður var uppdráttur af svæðinu.

Tyrkjabyrgi

Byrgin í Sundvörðurhrauni.

Sumir segja að byrgi þessi hafi verið aðsetur útilegumanna, en aðrir segja að í þeim hafi fólk dulist um sinn eftir að Tyrkirnir komu til Grindavíkur 1627. Byrgin eru fremur lítil, aflöng og þröng. Eitt kringlótt byrgi er uppi á hraunbrúninni og önnur þar hjá. Ummerki eru eftir mannvistir í skútum og hellum talsvert vestar í Eldvörpum. Hlaðin refagildra er framan við syðstu byrgin.

Tyrkjabyrgi

Eitt byrgjanna.

Ef einhver eða einhverjir hafa viljað dyljast þarna um sinn væri það tiltölulega auðvelt. Fyrir ókunnuga er mjög erfitt að finna staðinn, auk þess sem hann fellur vel inn í landslagið. Þótt mosinn hafi sest á byrgin og hraunið í kring er líklegt að þau hafi engu að síður fallið vel inn í landslagsmyndina þá og þegar þau voru gerð.
Eftir að hafa skoðað mörg byrgi á nokkrum stöðum á Reykjanesskaganum, s.s. ofan við Húsatóttir, í Strýthólahrauni, í Slokahrauni, austan við Ísólfsskála, á Selatöngum, við Herdísarvík og við gömlu Hafnabæina er að sjá sem margt sé líkt með þeim. Svipað lag er á þessum byrgjum og t.d. í Slokahrauni og við Herdísarvík. Því er ekki útilokað að byrgin undir Sundvörðuhrauni hafi um tíma verið ætlað eða þjónað þeim tilgangi að varsla þurrkaðan fisk eða annan varning frá Húsatóttum.

Eldvörp

Fiskbyrgin í Sundvörðuhrauni.

Á móti mælir að önnur þurrkbyrgi á Skaganum eru við sjávarsíðuna, en þessi talsvert langt uppi í landi. Hins vegar gætu þessi byrgi, á þessum stað, verið ætlað til annars en einungis að varsla þurrkaðan fisk, þ.e. sem felustaður fyrir slíkan fisk. Hafa ber í huga að Grindvíkingar voru fyrrum leiguþý Skálholtsstóls, sem átti alla útgerðina. Mikil örbirgð ríkti. Þarna gætu einstaklingar hafa skotið undan fiski til geymslu ef og þegar á þyrfti að halda er hungrið svarf að. Ekki ólíkleg tilgáta.

Eldvörp

Óraskað byrgi í Eldvörpum.

Engin ástæða er til að draga úr tilgátum manna um aðra notkun og tilgang, sbr. framangreint, enda má telja líklegt að fólk hafi dvalið, eða hafi ætlað að dvelja þarna í skjóli hraunsins, ekki síst í ljósi þess að mannvistarleifar hafa fundist þar á öðrum stöðum í nágrenninu. Fróðlegt væri að fá aðrar hugsanlegar tilgátur um tilgang og notkun þessara skemmtilegu, en dulúðulegu, byrgja.
Stígnum var fylgt til suðurs í gegnum hraunið og út á Árnastíg. Árnastíg var síðan fylgt áleiðis niður að Húsatóttum þangað til var komið að vörðu við gatnamót.

Tyrkjabyrgi

Refagildra.

Skammt neðan hennar er enn ein refagildran á svæðinu. Í stað þess að fylgja stígnum austur fyrir gamla bæinn var genginn varðaður stígur að og ofan við misgengið vestan hans. Ofan þess eru hlaðin fiskbyrgi og er a.m.k. eitt nokkuð heillegt. Stendur það nokkuð hátt. Önnur eru fallin, en vel má sjá útlínur þeirra og auðvelt er að áætla fyrri stærð þeirra. Gjáin í misgenginu er efni í sérstaka ferð, enda margar sögur og sagnir henni tengdar.
Frábært veður – sól og hiti. Gangan tók 2 klst og 54 mín.
Sjá meira um Eldvörp HÉR, HÉR og HÉR, HÉR, HÉR og einkum HÉR. Auk þess HÉR og HÉR.
Tyrkjabyrgi

Byrgin í Sundvörðuhrauni – uppdráttur ÓSÁ.