Vikri Jóhanns

Í „Sjómannadagsblaði Grindavíkur 2026“ er umfjöllun um „Grindavíkurstríðið 1532“ undir fyrirsögninni „Blóðug barátta um skreiðina„. Engendingar sáu að staða þeirra við Ísland var orðin veik og óttuðust að missa síðustu bækistöð sína á Suðurnesjum [hafa ber þó í huga við lesturinn að Grindabvík er ekki á Suðurnesjum]:

Sjómanndagsblað Grindavíkur

Sjómannadagsblað Grindavíkur 2026.

„Vorið 1532 varð Grindavík vettvangur átaka sem sjaldan eru nefnd í almennri Íslandssögu en höfðu engu að síður mikil áhrif á verslun, sjósókn og samskipti Íslands við umheiminn. Þar mættust Englendingar, Þjóðverjar, Danir og Íslendingar í harðri baráttu um eina verðmætustu auðlind landsins, skreiðina.
Þessi átök voru síðar kölluð Grindavíkurstríðið. Þau stóðu aðeins í skamman tíma en voru hluti af lengri samkeppni um fiskimið Íslands og verlsun við landsmenn. Átökin sem hófust á Básendum en lauk með blóðugri árás í Grindavík mörkuðu tímamót í sögu verslunar og sjósóknar við Ísland.

Kapphlaup um gull hafsins
Á 15. og 16. öld var íslensk skreið mjög eftirsóptt útfluningsvara. Hún var flutt til Englands og meginlands Evrópu og seld með miklum hagnaði.

Grindavíkurstríðið

Englendingar við strönd Grindavíkur 1532.

Erlendir kaupmenn sigldu hingað á hverju vori og reyndu að tryggja sér sem mestan fisk. Samkeppnin var svo hörð að kaupmenn hlupu stundum um og merktu sér fiskistafla um leið og þeir komu til landsins. Fiskurinn var brennimerktur með stöfum kaupmannsins, jafnvel áður en kaup höfðu farið fram. þannig reyndu menn að „helga“ sér aflann áður en aðrir næðu til hans.
Þetta leiddi til sífelldra deilna. Kaupmenn töldu sig eiga fisk sem aðrir höfðu merkt. Sumir höfðu samninga frá fyrra ári en aðrir voru fyrstir á staðinn. Erfitt gat reynst að leysa ágreining sem upp kom og oft enduðu mál með hótunum eða ofbeldi.
Samkeppnin var ekki tilviljun. Skreiðin var einfaldlega gulls ígildi. Einn skipsfarmur frá Íslandi gat skilað svo miklum verðmætum að hann greiddi allan kostnað við ferðina og skildi jafnvel eftir verulegan hagnað. Það er því ekki undarlegt að kaupmenn hafi verið tilbúnir að taka áhættu og jafnvel berjast um fiskinn.

Básendar

Básendar – uppdráttur ÓSÁ.

Englendingar höfðu lengi verið ráðandi í Íslandsverslun. Þeir fiskuðu einnig sjálfir við landið og höfðu bækistöðvar víða. Þegar þýskir Hansakaupmenn, einkum frá Hamborg og Bremen, fóru aðs ækja hingað í auknum mælii harnaði samkeppnin enn frekar. Árið 1532 var svo komið að Englendingar höfðu missr flestar hafnir síðinar við Ísland. Þeir héldu þó enn Grindavík og Vestmannaeyjum og á hvorum stað voru miklir hagsmunir í húfi.

Hamborg og Bremen
Vorið 1532 kom þýski kaupmaðurinn Ludtkin Smith til Básenda. Samkvæmt venju fékk sá sem fyrstur kom í höfn rétt til verslunar og ætlaði Smith sér að halda höfhninni. Skömmu síðar komu tvö ensk skip með fjölmennari áhafnir. Englendingar vildu fá að leggja í höfninni og versla þar. Smith neitaði og spennan jókst.

Básendar

Básendar – festarhringur frá verslunartímanum.

Engendingarnir undurbjuggu árás, en Smith fékk liðsauka frá Þjóðverjum og Íslendingum sem voru á svæðinu. Snemma morguns 2. apríl hófst bardagi. Þrátt fyrir að vera færri höfðu Þjóðverjar betur. Englendingar töpuðu, menn féllu og skip voru gerð upptæk.
Orrustan á Básendum varð upphaf Grindavíkurstríðsins. Englendingar sá að staða þeirra við Ísland var orðin veik og óttuðust að missa síðustu bækistöð sína á Suðurnesjum.

Vígi reist
Enska skipið Peter Gibson var í Grindavík þegar fregnir bárust af átökunum á Básendum. Skipstjórinn John Breye, sem íslendingar kölluðu Jáhann breiða, ákvað að vígbúast. hann lét reisa virki við búðir sínar og safnaði mönnum sínum saman.

Gerðavellir

Gerðavellir – leifar virkis Jóhanns breiða.

Samkvæmt heimildum komu Englendingar stundum hart fram við heimamenn og reyndu að knýja fram viðskipti og Grindvíkingar kvörtuðu til fógeta Danakonungs á Bessastöðum, Diðriks frá Minden.
Fógetinn sá við þetta tækifæri til að bregðast við. Hann safnaði liði Þjóðverja og Íslendinga á Suðurnesjum og fékk einnig stuðning kaupmanna í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum náðist að safna saman um 189 manna liði. Ætlunin var að ráðast óvænt á Englendinga í Grindavík.

Blóðug nótt í Grindavík

Junkaragerði

Garður í Junkeragerði á Gerðavöllum – uppdráttur ÓSÁ.

Aðfaranótt 11. júní 1532 lagði liðið af stað. Englendingar höfðu ekki fengið fregnir af liðssöfnunni og voru margir þeirra við fiskveiðar en aðrir sváfu í búðum sínum [á Gerðavöllum]. Um klukkan tvö um nóttina hófst árásin. Menn fógetans réðust á Englendinga og bardaginn varð stttur en harður þar sem Englendingarnir náðu ekki að skipuleggja sig.
Um fimmtán Englendingar voru drepnir, þar á meðal Jóann Breiði. Aðrir flúðu til skipa sinna. Fimm ensk skip lágu á legunni fyrir utan Grindavík. Fjórum tókst að flýja en eitt strandaði og fórst. Árásarmenn náðu skipinu Peter Gibson og hlóðu herfanginu um borð. Grindavík var komin á vald árásarmanna og þar með lauk í raun Grinsarvíkurstríðinu. Það sem hafði byrjað sem kapphlaup um fiskstafla hafði endað með vopnaðir árás og mannfalli.

Aleiðingar og minjar

Hansakaupmenn

Minnismerki um Hansakaupmenn við Hafnarfjarðarhöfn.

Þótt átökin hefðu verið stutt urðu afleiðingarnar langvarandi. Englendingar misstu síðustu bækistöð sína á meginlandi Íslands og staða þeirra virtist veikjast verulega. Á næstu árum dró mjög úr enskum siglingum til landsins. Þjóðverjar styrktu hins vegar stöðu sína, sérstaklega í Hafnarfirði, og verslun þeirra jókst. Danakonungur sá einnig tækifæri til að efla vald sitt og þróunin leiddi síðar til einokunarverslunar Dana á Íslandi.
Á þessum tíma var Grindavík mikilvægasta verslunarhöfn landsins. þar komu erlendi kaupmenn og fiskur var verkaður og fluttur út. Enn í dag má sjá minjar sem tengdar eru þessum atburðum, m.a. ofan við Stóru-Bót þar sem hóll er sagður leifar af virki Englendinga. Vestar má sjá garða sem tengdir eru við búðir Þjóðverja.
Þessi svæði minna á þann tíma þegar Grindavík var alþjóðleg verslunarhöfn og vettvangur átaka milli stórvelda. Skreiðin var gull Íslands og erlendir kaupmenn voru tilbúnir að leggja mikið í söurnar til að ná henni.
Með Grindavíkurstríðinu lauk ensku öldinni við Ísland og nýtt tímabil hófst.“

Heimild:
-Sjómannadagsblað Grindavíkur 2026, Grindavíkurstríðið 1532 – Blóðug barátta um skreiðina, bls. 75-76.

Gerðavellir

Gerðavellir í Grindavík, virki Jóhanns Breiða – kort ÓSÁ.

Strandarkirkja

Við bifreiðastæðið sunnan Strandarkirkju í Selvogi er skilti. Á því er uppdráttur af Selvogi með tilheyrandi örnefnum og minjum frá fyrri tíð. „Uppdrátturinn er byggður á örnefnalýsingum fyrir Selvogsbæina (Örnefnastofnun Íslands) og heimildum Þórðar Sveinssonar (f: 1930) frá Bjargi, Þórarins Snorrasonar (f: 1931) frá Vogsósum og Kristófers Bjarnasonar (f: 1930), d. 2010) frá Þorkelsgerði.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – skiltið sett upp 2011.

Uppdráttur; Ómar Smári Ármannsson, Sérleg aðstoð; Jóhann Davíðsson, Vinnsla og prentun; Stapaprent.  Gert með stuðningi Sveitarfélagsins Ölfuss árið 2011. Höfunarréttur; Ómar Smári Ármannsson.“

Á skiltinu er eftirfarandi upplýsingar:

Strandarkirkja
„Strandarkirkja er vinsæl til áheita og um tilurð kirkjunnar hafa myndast helgisagnir sem vitna um þann lífsháska sem sjómönnum var búinn fyrir klettóttri og hafnlausri úhafsströnd.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – skiltið endurnýjað 2026.

Kirkjan á Strönd er að stofni til frá árinu 1200. Núverandi kirkja er frá 1888. Hún var endurvígð eftir endurbætur 1968 og enn endurbætt og endurvígð í núverandi mynd 1996.“

Selvogur
„Í Selvogi var fyrr á öldum fjölmennt útvegsbændasamfélag þrátt fyrir takmarkað gróðurlendi og erfiðar lendingar. Byggðin var öll rétt ofan við ströndina eins og sjá má á uppdrættinum. Sveitin var lengst af fremur afskekkt og einangrað byggðarlag. Húsarústir, tættur og túngarðar gæjast hér upp úr jörðinni og gefa glögga sýn í búsetu- og atvinnuhætti fyrri alda.“

Biskupsstofa kostaði prentun skiltisins. FERLIR afhenti það endurgjaldslaust og hefur séð um viðhald þess.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – skilti.

Hvassahraun

Í Hvassahrauni í umdæmi Voga eru númeruð 27 hús, auk bæjarstæðis Hvassahrauns. Þar var áður bær, síðar aðfluttur frá Bergstaðastræti 7, sem hefur nú verið rifinn og endurbyggður að Bergstaðastræti 18 í Reykjavík.

Hvassahraun

Hvassahraunsbærinn – Þorkell Ólafsson (1870-1907), steinsmiður, byggði á lóð númer 7 við Bergstaðastræti í Reykjavík reisulegt timburhús árið 1902. Þorkell lést árið 1907 og þá eignaðist Kristín Eiríksdóttir (1868-1961) húsið. Hún bjó í húsinu til æviloka árið 1961.
Þegar til stóð að byggja stórhýsi á lóð hússins við Bergstaðastræti 7 þurfti húsið að víkja. Um 1970 var húsið flutt á jörðina Hvassahraun á Vatnsleysuströnd. Ekki er vitað hver átti húsið þegar það var flutt eða hverjir bjuggu í því í Hvassahrauni.
Á tímabili virðist Reykjavíkurborg hafa átt húsið og síðan Minjavernd hf. en um 2020 eignuðust hjónin Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Örn Úlfar Höskuldsson húsið og fóru að leggja drög að því að fá það flutt til Reykjavíkur, á auða lóð að Bergstaðastræti 18, sem þau fengu samþykkt. Til stóð að flytja húsið í heilu lagi, en þegar til kastanna kom reyndist það ekki unnt af ýmsum ástæðum. Húsið var tekið niður í Hvassahrauni og árið 2024 var tekið til við að reisa það við Bergstaðastræti 18. Við endurbygginguna var húsið lengt og hækkað um eina hæð. Einnig var viðbygging stækkuð og hækkuð og ný viðbygging reist við suðurhlið hússins.Í maí 2025 var svo húsið við Bergstaðastræti 18 auglýst til sölu eftir miklar endurbætur.

Hvassahraunshús þetta var byggt 1902 af Þorkeli Ólafssyni. Upphafleg staðsetning hússins var Bergstaðastræti 7, Reykjavík, en flutt 1970 í Hvassahraun á Vatnsleysuströnd, í Sveitarfélaginu Vogum og síðan rifið skv. framangreindu 2023. Auk hússins að Hvassahrauni fyrrum eru a.m.k. 27 önnur hús á svæðinu, ómerkt sem slík, en hafa á síðari tímum fengið númer frá einum til tuttuguogsjö.

Eftirfarandi umfjöllun segir kannski meira en mörg orð um sumarbústaðabyggðina í Hvassahrauni.

Nokkur eldri húsanna hafa verið rifin skipulega að frumkvæði byggingafulltrúa Voga, sum hafa verið yfirgefin og hafa verið að fjúka undanfarin ár í vondum veðrum, auk fleiri núverandi er hafa verið yfirgefin en standa opin og eiga eftir að fara sömu leið ef ekkert verður að gert. Eitt þessara húsa er hús merkt „Hvassahraun 1“.

Hvassahraun 1, burstalaga bústaður, stendur niður við sjó vestast á Hvassahraussvæðinu. Húsið, 27.70 m2, var byggt árið 1970 og stendur á 3210 m2 lóð. Umhverfis húsið er grjóthlaðinn garður, auk nálægra hleðsla umhverfis moldarflög við hraunhóla, sennilega ætluð til garðyrkju. Fasteiganamatið fyrir árið 2026 er kr. 2.223.000- og brunabótamatið kr. 3.770.000-. Heildarlóðamat er kr. 484.000-.

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

FERLIR skrifaði bæjarstjóranum í Vogum og spurði: „Getur þú upplýst um aldur, sögu og eiganda sumarhússins Hvassahraun 1, sbr. meðfylgjandi mynd. Bústaðurinn stendur opinn og virðist hafa verið yfirgefinn lengi, en á sjálfsagt sína fortíð, sem gaman gæti verið að skrifa um. Grjóthlaðinn veggur er í kring og auk þess hlaðin gerði um litla matjurtagarða í nágrenninu. Enginn vegur liggur þangað.
Fyrir aftan eru leifar bústaðar, Hvassahraun 2, sem virðist vera að fjúka smám saman og samlagast umhverfinu.“

Svar: „Ég er því miður ekki með upplýsingar um stöðuna á þessu sumarhúsi en framsendi erindið á sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, sem er í cc., sem setur fyrirspurnina frá þér í réttan farveg.“

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

Sviðstjórinn sendi í framhaldinu framangreindar upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat með eftirfarandi orðum: „Hérna eru þær upplýsingar sem við höfum um lóðina og eignina er þar stendur. Ekki er heimilt að senda upplýsingar um eigandann.“

Þakkaði kærlega og upplýsti jafnframt: „Mun finna eigandann“!

Eigandi bústaðarins er skv. Landeigendaskrá Húsnæðis og mannvirkjastofnunar Loran ehf, sem gæti verið rangskráning.

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

Leitað var til manns, sem þekkir vel til í Hvassahrauni og hann spurður um upprunann. Hann svaraði: „Maður að nafni Tryggvi, flugmaður, mun hafa átt bústaðinn og selt hann til núverandi eiganda (fyrirtæki). Sá heitir Þórarinn Árnason, ævintýrabisnessmaður. Best væri að þú næðir í þann sem á og notar neðsta bústaðinn, sá heitir Þórður, búin að vera þarna mjög lengi.

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

Nefndur Þórarinn ku vera Þórarinn Arnar Sævarsson, einn aðaleigenda RE/MAX og hluthafi í Skeljungi. Svo virðist skv. Landeigendaskrá að Loran ehf sé skráð eigandi allra bústaðanna í Hvassahrauni, samkvæmt opinberum gögnum. Sá hefur þó minni en engar heimildir um sumarbústaðabyggðina frá fyrri tíð.

Ólafur Sigurðsson, smali, Hvassahrauni 4 er sá íbúi sem er næst Hvassahrauni 1. Hann kom fram sem forsvarsmaður fyrir Frístundahúsafélagið Hvassahraun vegna mála er varða skipulags- og umhverfismál á svæðinu hjá Sveitarfélaginu Vogum. Eiginkona hans er Íris Guðmundsdóttir. Hún kvaðst aðspurð ekki þekkja sögu nefnds bústaðar, en benti á Þórð (Hvassahrauni 20) eða Arndísi Helgu Einarsdóttur, Hvassahrauni 27.

Hvassahraun

Hvassahraun 2.

Þórður Benediktsson býr að Hvassahrauni 20, næsta bústað austan við Hvassahraun 1. Hann benti á Tryggva R. Gunnarsson sem eiganda að bústaðnum. Hann þekkti ekki frekari deili á manninum, en hélt að hann væri flugmaður. Hann ætti þó einhver eldri skrif manns frá Hvassahrauni um svæðið og myndi kíkja í þau og hafa samband í framhaldinu. Hann upplýsti skömmu síðar um netfang nefnds aðila.

Hvassahraun

Hvassahraun 27.

Arndís Helga Einarsdóttir býr að Hvassahrauni 27. Hún byggði Hvassahraun 27 ásamt eiginmanni sínum Bjarna Róberti Kristjánssyni eftir að sumarhús, sem staðið hafði á lóðinni, var flutt austur fyrir Fjall. Hún minntist þess að hafa séð umfjöllun um nefnt sumarhús í tölublaði Húss og híbýla ca. um og í kringum 1980. Haft var samband við ritstjóra blaðsins, Sigríði, og hún beðin um að athuga hvort greinin væri enn aðgengileg hjá þeim. Fyrirspurnin var ekki virt viðlits.
Arndís sagðist hafa heyrt að Guðlaugur, gullsmiður, sem bjó í neðstu Viðlagasjóðshúsunum í Breiðholti og haft þar vinnustofu, hafi byggt bústaðinn um 1970, en um annað væri henni ekki kunnugt.

Hvassahraun

Í Hvassahrauni.

Þorkell Ólafsson, eigandi Hvassahrauns, arfleiddi Styrktarfélag vangefinna að hluta jarðarinnar Hvassahrauns. Félagið, sem nú heitir Ás styrktarfélag, átti því um tíma 19 hektara landsvæði norðan Reykjanesbrautar í landi Hvassahrauns. Í desember 2016 seldi félagið landareign sína í Hvassahrauni. Skráður eigandi landsins er Loran ehf.
Bændur í Reykjavík vantaði beitiland og keyptu hluta jarðarinnar á sjötta áratug síðustu aldar. Þeir stofnuðu félagið Sauðafell sem enn er eigandi hluta landsins. Eigendurnir eru nú vel yfir hundrað talsins.

Sendi nefndum Tryggva tölvupóst:
„Sæll Tryggvi,

Hvassahraun

Hvassahraun.

Ég fékk netfangið þitt hjá Þórði í Hvassahrauni þegar ég var að spyrja hann um eigandann á bursthúsalaga sumarhúsi, Hvassahrauni 1. Húsið vakti forvitni mína þegar ég var að ganga um svæðið fyrir stuttu og hugsaði; þetta hús hlýtur að eiga sér sögu. Þess vegna leita ég til þín og spyr; kanntu deili á frumkvöðlinum, eigendasögu sem og öðru sem þykir áhugavert varðandi húsið?“

Skv. AI er nefndur eigandi Tryggvi R. Gunnarsson (f. 20. desember 1972): „Hann átti meðal annars lóð í frístundabyggðinni í Hvassahrauni“.

Hvassahraun

Hvassahraun – sumarbústaður.

Bygging og saga sumarbústaða í Hvassahrauni í kringum 1970 tengist ákveðnu tímabili í sögu svæðisins þar sem nokkuð var um óskipulagða byggð sumarhúsa og smáhýsa á þessum slóðum. Hér eru helstu staðreyndir og samhengi varðandi sumarbústaði í Hvassahrauni í kringum þetta leyti:
-Uppbygging á sjöunda og áttunda áratugnum; á árunum upp úr 1960 og í kringum 1970 fjölgaði sumarbústaðabyggingum í Hvassahrauni. Svæðið þótti aðgengilegt og stutt frá höfuðborgarsvæðinu (um 22 km). Sum húsanna voru reist á lóðum nálægt sjónum í sérstæðu en hrjóstrugu hraunlandslagi.

Hvassahraun

Frá Hvassahrauni.

Sem dæmi um byggingarsögu á þessum tíma má nefna fasteignir á svæðinu þar sem upphaflegi hlutinn (oft um 40 fm) var reistur úr holsteini í kringum 1970.
-Vandamál með byggingarreglugerðir og niðurrif; fljótlega kom í ljós að mörg þessara húsa í landi Hvassahrauns (sem tilheyrði þá Vatnsleysustrandarhreppi) uppfylltu ekki opinberar kröfur.

-Skortur á leyfum; margir bústaðanna voru reistir án nægilegra leyfa frá bygginganefnd eða samræmdist ekki skipulagi.
-Heilbrigðiseftirlit; húsin stóðust hvorki kröfur byggingareglugerðar né heilbrigðiseftirlits, enda var hvorki skipulagt frárennsli né opinber vatnsveita á svæðinu á þessum tíma.

Hvassahraun

Hvassahraun – fjárhúsið rifið.

Eftir margra ára deilur og umræður í hreppsnefnd og bygginganefnd Vatnsleysustrandarhrepps var ráðist í það í október 1987 að rífa niður og fjarlægja samtals 10 byggingar (flestar reistar sem sumarbústaðir) í Hvassahrauni á kostnað eigenda. Ástand húsanna hafði þá verið mjög slæmt og sum þeirra höfðu aldrei verið nýtt almennilega.
-Hvassahraun í dag; í dag er elsta upprunalega búsetan (svo sem gamli bæjarkjarninn og íbúðarhúsið) að mestu horfin. Hins vegar eru enn örfá lögleg hús eða nýrri endurbyggð sumarhús/villur á svæðinu (svo sem nær sjónum) sem nýta sér sérstæða náttúru og sjávarútsýni. Svæðið hefur á síðari árum einnig mikið verið til umræðu vegna hugmynda um mögulegan innanlandsflugvöll.

Hvassahraun

Frá Hvassahrauni.

Í sögulegu samhengi má benda á þá staðreynd að umrætt svæði er frístundabyggð í landi Hvassahrauns, Vatnsleysuhreppi, Gullbringusýslu hefur verið skipulagt í aðalskipulagi 2022 sem frístundabyggð sbr. leigusamningar þar um frá fyrri tíma.
Frístundabyggðin er hugsuð sem m.a. dvalarstaður einstaklinga og fjölskyldu til lengri eða skemmri tíma þar sem ró og friður á að ríkja.

Í „Aðalskipulagi Voga um Hvassahraun 2008-2028“ segir m.a.:

Hvassahraun

Hvassahraun – aðalskipulag 2008-2028.

„Frístundasvæði við Hvassahraun – Við Hvassahraun, norðan Reykjanesbrautar, er Styrktarfélag Vangefinna með frístundabyggð á um 19 ha svæði. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið og gerir það ráð fyrir 30 lóðum fyrir frístundahús. Frístundahús eru þegar á um helmingi lóðanna. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið. Til að yfirbragð svæðisins verði í anda almennrar frístundabyggðar.
Frístundabyggðin í Hvassahrauni afmarkast af Látrum til vesturs, strönd til norðurs, Hvassahraunstúnum til austurs og útivistargötu norðan Reykjanesbrautar til suðurs. Aðkoma að svæðinu er um Hvassahraunsveg sem tengist inn á Reykjanesbraut um mislæg gatnamót austan skipulagssvæðisins. Á svæðinu eru nú þegar á annan tug frístundahúsa.

Fagravík

Fagravík.

Svæðið er hluti af stærri landslagsheild sem er á náttúruminjaskrá, en þar segir:
Strandlengjan frá Fögruvík í Vatnsleysuvík að Straumi í Straumsvík, Vatnsleysustrandarhreppi, Hafnarfirði, Gullbringusýslu.
(1) Fjaran og strandlengjan á u.þ.b. 500 metra breiðu belti, ásamt ísöltum tjörnum, frá botni Fögruvíkur að Straumi.
(2) Sérstætt umhverfi með miklu og óvenju fjölskrúðugu fjörulífi og gróðri. Tjarnir með mismikilli seltu og einstæðum lífsskilyrðum. Útivistarsvæði með mikið rannsóknarog fræðslugildi í nánd við þéttbýli. Friðaðar söguminjar við Óttarsstaði.
Landsskipulagsstefna 2015-2026 öðlaðist gildi 6. mars 2016. Nánari umfjöllun er að finna í greinargerð landsskipulagsstefnu.“

Hvassahraun

Hvassahraun – uppdráttur ÓSÁ.

Í fornleifaskráningu fyrir Hvassahraun er fátt að skoða utan fornleifa heimabæjarins, sem reyndar eru þar af skornum skammti.

Í „Skólablaði Laugarnesskóla“ árið 1968 má t.d. lesa eftirfarandi frásögn Guðrúnar Bjarkar Hauksdóttir undir yfirskriftinni
„Sumardagur í Hvassahrauni“:
„Sunnan við Straum er jörð, sem heitir Hvassahraun. Þar eigum við sumarbústað, sem er nálægt sjó. Þarna er skrýtið landslag, því að það er bara hraun og sprungur. Oft er hægt að gleyma sér við að horfa á hraunklettana, þeir hafa tekið á sig alls konar myndir eftir því, hvernig hraunið hefur runnið. Þessar sprungur geta verið hættulegar. Einu sinni fundum við dáið folald í einni dýpstu sprungunni.
Það vex villt hvönn í þessum sprungum, og hvergi hef ég séð eins stóra kóngulóarvefi og þarna. Það er gaman að sitja þarna og fylgjast með, hvernig flugurnar festast í vefnum og horfa á fegurð hraunsins.

Hvassahraun

Hvassahraun – Þorvaldskot.

Í fljótu bragði virðist ekki vera hér mikið um gróður, en svo er þó ekki. Að vísu er hann ekki hávaxinn, blóðbergið og mosinn ráða ríkjum, en lyng og geldingarhnappar láta á sér bera. Óvíða hef ég fundið sætari ilm úr jörðu en þarna. Og ekki spillir ferskt sjávarloftið. Það eina, sem mér finnst spilla þessum stað er kríugargið og krían sjálf.
Mikið hef ég mátt líða fyrir þennan óvin minn. Það er eins og kríurnar finni á sér, að ég er hrædd við þær. Ef við förum í gönguferð um hraunið eða með fjörunni, er krían alltaf yfir mér, en lætur aðra í friði.
Þegar við komum heim, fer ég að hugsa um liðinn dag. Allt hafði verið svo skemmtilegt og fallegt.“ – Guðrún Björk Hauksdóttir, 8. C

Heimildir:
-https://timarit.is/page/8366016?iabr=on#page/n0/mode/2up
-https://husaflutningar.is/bergstadastraeti-18-reykjavik/

Hvassahraun

Hvassahraun – loftmynd 1925.

Skógarkot

Gunnar Grímsson, starfsmaður Þingvallaþjóðgarðs, tók saman eftirfarandi fróðleik um „Skógarkot“ við Þingvelli:

Gunnar Grímsson

Gunnar Grímsson.

„Skógarkot er eyðibýli í skóginum fyrir austan Þingvelli. Það er staðsett um miðja vegu á milli Almannagjár og Hrafnagjár og upp við gamla sýsluveginn um Þingvallasveit.
Skógarkot var ein af hjáleigum Þingvallabæjar en þótti njóta allnokkurs sjálfstæðis frá heimajörðinni á síðari tímum. Skógarkot komst í alfaraleið á 19. öld og blómstraði í kjölfar mikillar jarðræktar, svo það þótti með bestu sauðfjárjörðum sveitarinnar þar til bærinn fór í eyði árið 1936. Nú er Skógarkot einna þekktast sem miðpunktur fjölmargra gönguleiða í Þingvallahrauni.

Hraunfólkið í Skógarkoti
Ekki er vitað með vissu hvenær byggð hófst í Skógarkoti, en þess er fyrst getið í visitasíu Þórðar biskups Þorlákssonar frá 1679. Býlinu er lýst sem einni af hjáleigum Þingvallabæjar í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711.
SkógarkotBóndinn hét þá Halldór Magnússon, en munnmæli voru þá í sveitinni um að fornbýlið „Þórallastaðir“ hafi áður verið þar sem Skógarkot er nú.
Nafnið tengist að öllum líkindum Þórhalli „ölkofra“ úr Ölkofra sögu sem bruggaði öl handa þingmönnum til forna og brenndi óvart Goðaskóg. Bæjarnafnið Þórhallastaðir er nú notað yfir annað eyðibýli um 500 metrum suðaustan Skógarkots. Þar var síðan stekkur frá Skógarkoti.

Skógarkotsbærinn á 19. öld
SkógarkotLitlar sögur fara af ábúendum Skógarkots á átjándu öld, en við upphaf þeirrar nítjándu bjó þar Elka Sæmundsdóttir (1749–1835) ásamt börnum sínum tveimur. Önnur dóttir Elku hét Sigríður Eyjólfsdóttir (1780–1837); kvæntist hún Kristjáni nokkrum Magnússyni (1777–1843) skömmu eftir árið 1800 og tóku þau svo við búrekstrinum.
Skógarkotsbærinn gekk undir miklar endurbætur á fyrri hluta 19. aldar. Sagt er að timburhús með afþiljaðri stofu hafi verið reist í Skógarkoti milli 1820–1830 og verið eina timburhús sveitarinnar þar til núverandi Þingvallakirkja var reist 1859.
SkógarkotBjörn Th. Björnsson getur þess í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (bls. 144) að Ófeigur Jónsson, þúsundþjalasmiður frá Heiðarbæ, hafi verið fenginn til að skreyta stofuna, sem var „blámáluð innan og skreytt rósastrengjum umhverfis efst á veggjum, en loftbitar dökkblárri og einnig rósamálaðir, svo og hurðir innan.“
Kristján var kjörinn hreppstjóri Þingvallasveitar og sinnti þeirri stöðu um langa hríð. Hann lét meðal annars lagfæra alfaraveginn fram hjá Skógarkoti og austur yfir Hrafnabjargaháls, sem og Norðlingaveginn á milli Öxarár og Bolaklifs. Þá lét Kristján lagfæra stíga yfir Hrafnagjá og gera Langastíg í Stekkjargjá færan klyfjahestum.

Skógarkot

Skógarkot – túnakort 1920.

Kristján og Sigríður eignuðust alls sjö börn, en auk þess eignaðist Kristján átta börn til viðbótar með einni af vinnukonum bæjarins, Guðrúnu Þorkelsdóttur. Barneignarmál Kristjáns eru meðal viðfangsefna í sögulegu skáldsögunni Hraunfólkinu eftir Björn Th. Björnsson sem kom út árið 1995.

Jón Kristjánsson (1811–1895) tók við Skógarkoti að föður sínum látnum 1843 og réð þar búi fram til 1890. Jón var þríkvæntur; fyrst Guðrúnu Ófeigsdóttur (1808–1835), síðan Kristínu Eyvindsdóttur (1813–1868) og loks Vilborgu Þórðardóttur (1836–1881). Jón hlaut góðan orðstír fyrir bústörf sín, stækkaði túnið til muna og reisti svo virðuleg húsakynni að hjáleigan Skógarkot þótti með bestu bæjum Þingvallasveitar.

Skógarkot á 20. öld

Skógarkot

Jóhann Kristjánsson frá Skógarkoti – Á Skógarkotsvegi.  Jóhann Kristjánsson með aðföng á hestvagni sínum. Kaupstaðaferðir voru farnar á hverju vori og hausti og nauðsynjavörur keyptar í miklu magni. Einnig var farið fyrir jólin.

Næstu ábúendur Skógarkots á eftir Jóni Kristjánssyni voru hjónin Hannes Guðmundsson (1836–1913) og Margrét Eyjólfsdóttir (1826–1899). Tóku þau við búinu 1890. Á eftir þeim bjuggu þau Halldór Ólafsson (1866–1908) og Þóranna Árnadóttir í Skógarkoti árin 1907–1908 og Ólafur Björnsson og Steinunn Björnsdóttir 1908–1909.
Lýsing er til af torfbænum í Skógarkoti við lok búsetu Ólafs og Steinunnar. Úr bæjargöngunum var gengið inn í eldhús með moldargólfi, þar sem borð var og stólar auk eldavélar með bakaraofni sem gekk fyrir kolum og viði. Úr eldhúsinu var gengið inn í hlóðaeldhús og geymslu. Úr geymslunni var síðan gengið inn í fjósið. Eldhúsið leiddi einnig inn í fjögurra stafgólfa baðstofu með timburgólfi og fimm rúmum. Smærra, tveggja stafgólfa rými var inn af baðstofunni. Ofnar voru í húsinu og olíulampar lýstu það upp, en útikamar var fyrir utan geymsluna. Rigningarvatni var safnað af þakinu ofan í tunnu.

Skógarkot

Skógarkot Teikning af Skógarkoti frá 1960, byggð á ljósmynd af bænum frá 1917. Þröstur Pétursson (1938–2000) teiknaði myndina árið 1960, en faðir hans ólst upp í Skógarkoti.

Timburhús var reist á hlaðinu andspænis bænum árið 1907, sama ár og núverandi turn Þingvallakirkju var byggður. Húsið var með einum sexrúðuglugga á framhliðinni og öðrum smærri á risinu og á þakinu var vindhani með ártalinu 1907. Húsið var kallað gestastofa og notað handa næturgestum. Var full þörf á því, enda var gestagangur ávallt mikill á bænum.
Árið 1917 samanstóð bærinn í Skógarkoti af þremur burstum með timburgöflum sem sneru fram á hlaðið. Innsta burstin var geymsla með sérinngangi, en miðburstin var baðstofa með átta rúmum upp við langveggina. Inngangengt var úr baðstofunni í eldhúsið í fremstu burstinni. Matjurtagarður var reistur upp við bæinn og við hlið hans var hrísköstur.

Fjárhús og fjós voru áföst við bæinn að aftanverðu; þau sneru hornrétt á íbúðarhúsin og við innganga þeirra var lítill hænsnakofi. Gamla hlóðaeldhúsið var staðsett mitt á milli fjóssins og eldhússins og innangengt í það úr báðum byggingum.

Skógarkot

Skógarkot – ljósmynd frá 1917.

Skógarkotsbærinn var að miklu leyti endurbyggður árin 1920–1921. Járnklætt timburhús var þá reist upp við hlaðið, með þremur sexrúðugluggum á framhliðinni og inngangi nyrst. Þar var eldhús, baðstofa og stofa, ásamt tveimur gestasvefnherbergjum sem höfðu sérinnganga á austurhliðinni. Hluti af gamla bænum fékk að halda sér við afturhlið timburhússins.
Gestastofan á hlaðinu var þá færð upp að nýja íbúðarhúsinu og notuð sem viðbygging. Inngangur var á framhlið hennar og í henni voru stofa og svefnherbergi. Í háalofti gestastofunnar var birgðageymsla fyrir hveiti, sykur og aðrar hrávörur og andspænis geymslunni var kompa þar sem börn voru látin sofa þegar gestagangur var mikill. Steyptur kjallari var reistur ofan í fjárhúsinu, líklega fyrir safnhaug.

Skógarkot

Skógarkot – málverk.

Í nýja eldhúsinu var stór kolaeldavél sem hitaði upp vatn í áföstum vatnskassa til daglegra nota. Einn balinn í herberginu var notaður til uppþvotta en annar til þess að baða börnin. Hægt var að rúma allt að fjórtán einstaklinga á bekkjunum við matarborðið. Skápar voru upp við annan langvegginn og annar hornskápur upp við gluggann; hjá honum var gengið niður í óupphitaðan kjallara þar sem matvæli voru geymd við lágan hita. Lítill gluggi hleypti ljóstíru þangað inn.
Úr eldhúsinu var þá innangengt í hlóðaeldhúsið þar sem slátur var m.a. soðinn, kjöt reykt og þvottur þveginn í stórum suðupotti. Fyrir framan bæjarhlaðið var veglegur matjurtagarður reistur, þar sem kartöflur og rófur voru ræktaðar í miklu magni handa ábúendum og gestum.

Börnin í Skógarkoti

Skógarkot

Skógarkotsbærinn á 3. áratug 20. aldar. Horft er til norðurs frá Vaðmálsbala að bæjarhúsunum. Fyrir aftan þau er Sjónarhóll og á honum eru tvö útihús. Hið vinstra er sagt vera hlaða með áföstum hrútakofa og hesthúsi, en það hægra hefur verið langhús fyrir kindur.

Börn Jóhanns og Ólínu hétu Kristján (1908–1986), Jón (1909–1950), Pétur Júlíus (1911–1991), Herdís (1913–2015) og Greta María (1916–2006). Bræðurnir Pétur og Kristján skilja eftir sig ómetanlegar örnefnaskrár sem urðu grundvöllur þekktra leiðarbóka um þjóðgarðinn á Þingvöllum, líkt og Þingvellir – staðir og leiðir eftir Björn Th. Björnsson og Þingvallabók – handbók um helgistað þjóðarinnar eftir Björn Þorsteinsson. Bræðurnir hlúðu einnig að minningarreit um Jón bróður þeirra í svokölluðum Jónslundi.

Staðhættir í Skógarkoti

Skógarkot

Skógarkot 1913.

Skógarkotsbærinn var reistur suðaustan undir hól sem kallast Sjónarhóll eða Balinn, innan í fimm hektara túni sem er afgirt með grjótgarði. Traðir liggja inn að bæjarrústunum úr suðri, og framan við þær og hlaðið er stór matjurtagarður.
Við norðausturhlið bæjarins er lág upphækkun sem virðist að einhverju leyti manngerð og gæti samsvarað örnefninu Hlöðuhól. Þar fyrir austan er uppgróinn hraunbali sem nefnist Harðhaus, þar sem hrísköstur bæjarins var oft geymdur á veturna, og nokkuð austan hans er djúp laut sem nefnist Möngudalur. Sunnan við bæjarhúsin og matjurtagarðinn eru nokkrar samhliða rákir sem kunna að vera leifar mannvirkja.

Skógarkot

Skógarkot – brunnur. Brunnurinn er um tveggja metra djúpur og tiltölulega heillegur. Þar sem grunnvatn var með öllu óaðgengilegt í hrauninu var einungis hægt að safna úrkomuvatni. Af þeim sökum þornaði brunnurinn oft upp, og þurfti þá að sækja neysluvatn í brunninn á Þórhallastöðum eða ofan í Ölkofradal. Í þurrkatímum þurfti jafnvel að sækja vatn niður í Tjarnir, fyrir ofan Vatnsvik, eða í gjárnar hjá Þingvöllum. Skepnum var ýmist brynnt í Þingvallavatni eða í smápollum í næsta nágrenni bæjarins, og þvottur var þveginn við Þingvallavatn eða við bakka Öxarár. Í frosthörkum þurfti þá að bræða snjó til drykkjar.

Brunnurinn í Skógarkoti er í túninu rúmum 100 metrum austan bæjarins. Hann er vel hlaðinn og djúpur en vatn hélst aðallega í honum í votviðratíð. Þegar hann þornaði upp þurfti að sækja neysluvatn til Þórhallastaða eða niður að Tjörnum, sem eru skammt fyrir ofan Vatnsvik í Þingvallavatni. Stöðull Skógarkots var austan við brunninn sem og fjárhús með lítilli hlöðu upp við túngarðinn.
Árið 1925 er getið um fjögur fjárhús, tvær heyhlöður og eitt hesthús í Skógarkoti. Leifar útihúsa sjást meðal annars uppi á Sjónarhól, ofan bæjarins, og er eitt þeirra með grjóthlöðnum kjallara. Efst á hólnum kallast Réttarhóll; þar er sprunga með grjóthleðslum í og austan undir hólnum er tvískipt fjárrétt.
Eitt helsta kennileiti Skógarkots er mikill, grjóthlaðinn garður sem umlykur túnið og hluta Sjónarhóls. Hann er afrakstur mikilla jarðabóta á 19. og 20. öld, þar sem túnið var nær tvöfaldað að flatarmáli. Túnið var fært út í mörgum áföngum með færikvíum, og steinar voru hreinsaðir úr jarðveginum og notaðir sem hleðslugrjót. Aðflutt mold var þá lögð ofan á berar hraunhellur.

Skógarkot

Skógarkot – loftmynd.

Eldri túngarður er vel sjáanlegur innan í túninu. Hann er hringmyndaður og mælist um 200 metrar í þvermál. Ekki liggur fyrir hvenær hann var reistur. Syðsti hluti túnsins var ræktaður upp á síðari hluta 19. aldar og kallast Gerði; þar má finna útihúsaleifar á tveimur stöðum. Líklega hefur stækkun túnsins til norðurs farið fram eftir árið 1920, sbr. túnakort frá því ári. Þar hefur gamalt, rétthyrnt garðlag lent innan hins nýræktaða túns, og innan þess má finna smátóft og manngerða dæld.
Við suðurenda traðanna, rétt fyrir utan túngarðinn, er hraunhella sem kallast Vaðmálsbali og var notuð til að þurrka vaðmál og ull.

Ítök og nytjar

Skógarkot

Skógarkot – örnefni

Skógarkot var hjáleiga frá Þingvöllum og deildi óskiptu beitarlandi með heimajörðinni og öðrum hjáleigum í landi Þingvalla. Grasnytjar utan túns voru á ýmsum slægjublettum í hrauninu og í fjallhögum, ásamt Brúsastaðamýri á tímabili. Í harðindum fékk Skógarkotsfólkið að heyja á Hofmannaflöt eða jafnvel austur á Laugardalsvöllum.
Skógarhögg var norðan og austan bæjarins, þar á meðal í Magnúsarklettsskógi. Mörkin á milli skóglendis Þingvalla og Skógarkots voru dregin í línu á milli Helluholts, Jafningjavörðu og Eyvindarhóls, og mörkin á milli Skógarkots og hjáleigunnar Hrauntúns voru ákvörðuð við Markavörðu, hér um bil mitt á milli bæjanna tveggja.
Skógarkot átti veiðirétt í Þingvallavatni milli Langatangahólma og Hallviks. Bátalægi og netaveiðar voru við Öfugsnáða og þvottastaður í Hlóðavík skammt austar. Silungur var geymdur lifandi í þró í vatninu þar til honum var slátrað.

Skógarkot

Skógarkot – teikning 1913.

Tveir stekkir tilheyrðu Skógarkoti. Annar þeirra hét Gamli-Stekkur og stóð hann við eyðibýlið Þórhallastaði. Þar áttu Skógarkotsbændur einnig fjárhús, kálgarð og ræktaðan túnblett. Hinn stekkurinn hét Nýi-Stekkur og er staðsettur nálægt Ámundahólum fyrir ofan Vatnsvik.
Fjárhelli góðan áttu Skógarkotsbændur á Hellishæð, beint austur af bænum. Annar fjárhellir fannst sunnan bæjarins í upphafi 20. aldar. Engar áreiðanlegar upplýsingar hafa varðveist um sel Skógarkotsbænda, en þeim er eignuð selstaða norðvestan Sigurðarsels í sóknarlýsingu Þingvallaprestakalls 1840. Líklega hefur hún verið nálægt örnefninu Selhólum.

Samgöngur

Konungsvegur

Konungsvegur að Skógarkoti um Þingvallahraun.

Frá Skógarkoti liggja leiðir til allra átta. Flestar eru þær stikaðar og auðveldar yfirferðar. Fjölfarnasta leiðin heitir Skógarkotsvegur eða Gjábakkavegur og liggur meðfram sunnanverðum túngarðinum á milli Þingvalla og Hrafnagjár. Vegurinn varð sýsluvegur sveitarinnar á 19. öld eftir að gamla leiðin um ós Öxarár spilltist í jarðskjálftahrinu, og var síðan ein fjölfarnasta leiðin um Þingvallahraun þar til svokallaður Konungsvegur var lagður nálægt bökkum Þingvallavatns árið 1907.
„Svo sem allir vegir lágu til Róms suður í álfu, þannig liggja allar leiðir í austanverðu Þingvallahrauni um Skógarkot“ segir í Þingvallabók Björns Th. Björnssonar.
Önnur og eldri leið klofnar frá Gjábakkavegi austan Skógarkots. Hún kallast Klukkustígsleið og liggur fram hjá Þórhallastöðum, upp Hábrún og yfir Klukkustíg á Hrafnagjá. Munnmæli í sveitinni herma að hún hafi verið ein elsta þjóðleiðin til Þingvalla, en síðan var hún innansveitarleið á milli Skógarkots og bæjarins Gjábakka. Leiðarkaflinn sem nú er stikaður milli Skógarkots og Þórhallastaða var stekkjargata frá Skógarkoti.

Skógarkot

Skógarkot – heimtröðin.

Þrjár innansveitarleiðir liggja til suðurs frá tröðunum í Skógarkoti. Sú fyrsta kallast Gönguvegur og liggur til suðvesturs að Þingvöllum; hana fóru ábúendur Skógarkots er þeir sóttu messur í Þingvallakirkju. Næst kemur Vatnskotsgata, sem liggur beint suður að hjáleigunni Vatnskoti. Gatan kallast hins vegar Skógarkotsgata þegar hún er farin til norðurs. Þriðja gatan nefnist Veiðigata og liggur suður að veiðistað bæjarins við Öfugsnáða.
Hrauntúnsgata kallast leiðin á milli Skógarkots og hjáleigunnar Hrauntúns. Hún liggur til norðurs frá bæjarrústunum í Skógarkoti, fram hjá brunninum í túninu og þaðan eftir Brúnum. Önnur leið, er nú kallast Nýja-Hrauntúnsgata, var lögð vestan og samhliða þeirri gömlu á fyrri hluta 20. aldar. Hún liggur eftir vestari hluta túngarðsins í Skógarkoti norður að Hrauntúni og heldur svo áfram norður að Ármannsfelli.

Þingvellir

Þingvellir – kort.

Frá Skógarkoti liggja tvær leiðir norðvestur að Leirum. Önnur þeirra er Krókhólagata, sem krækir fram hjá Krókhólum og fer svo um Sandhólastíg hjá samnefndum hólum. Hin leiðin nefnist Miðhólagata og er óstikuð. Hún liggur til norðurs frá Skógarkoti, tekur svo mið á Miðhóla og fer þaðan um Leirastíg inn á Leira.
Tvær nafngreindar götur liggja til austurs og norðausturs frá Skógarkoti. Báðar eru þær óstikaðar. Hellisgata liggur austur að fjárhelli bæjarins á Hellishæð og er merkt með gömlum vörðum á stöku stað. Hin heitir Gapahæðagata og liggur um Mosalág norðaustur að Gapahæðum og Raftviðarhlíð.“ – Gunnar Grímsson tók greinina saman.

Heimild:
-https://www.thingvellir.is/fraedsla/ornefni/s/skogarkot/

Þingvellir

Þingvellir – í Skógarkoti.

Húshólmi

Þegar einhver er spurður: „Hvað er menning?“, verður viðkomanda annaðhvort svarafátt eða svarið verður svo víðfemt að inniheldið verður nánast um allt og ekkert.

Mikilvæg menningarverðmæti voru fyrir skammsýni lögð undir hús í miðborg Reykjavíkur

Menningarverðmæti voru lögð undir hús í miðbæ Reykjavíkur – vegna skammsýni.

Menning hefur stundum verið skilgreind sem „samsafn hegðunarmynstra sem fyrirfinnast í ákveðnum samfélögum, og gildishlaðinna tákna sem gefa hegðuninni ákveðna merkingu eða tilgang. Margar mismunandi skilgreiningar eru til á menningu. Mannfræðingar nota hugtakið til að vísa til þeirrar viðleitni mannsins að skipa lífsreynslu sinni í flokka eða mynstur, og að tjá hana á skipulegan máta. Menning hefur einnig verið skilgreind sem „lífsmynstur heilla samfélaga“. Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur einnig lagt til að menning sé skilgreind sem: „… samsafn þeirra trúarlegu, efnislegu, vitrænu og tilfinningalegu þátta sem einkenna hvert samfélag eða samfélagshóp.

Hlautsteinn

Hlautsteinn.

Listir og bókmenntir teljast til menningar, en einnig lífsstíll, sambúðarform, mannleg gildi, hefðir og skoðanir.“ Í skilgreiningunni liggur að menning grundvallast á orðinu minning.
Stundum er talað um handverksmenningu, þ.e. hvernig verkin voru unnin áður fyrr. Bókmenning lýtur sama lögmálinu. Það er og eðli goðsagna að hugsa til hins forsögulega og leita skýringa á uppruna heimsins og upphafi sögunnar. Allir menningarheimar eiga sér goðsögulegan uppruna og vestræn menning á sinn uppruna ekki síst í hinum auðuga og fjölbreytta goðsagnaheimi Forn-Grikkja.

Íslensk sendiráð á erlendri grundu kynna gjarnan Ísland og íslenska menningu sem mikilvægan þátt í starfsemi. Jafnan er boðið upp á spennandi möguleika á því að koma íslenskri menningu á framfæri. Á hverju ári eru íslenskar kvikmyndir teknar til sýningar í Norræna húsinu og einnig er þar góð aðstaða til fyrirlestra og tónleikahalds. Einnig er náið samstarf með öðrum norrænum aðalræðisskrifstofum að sameiginlegum verkefnum á sviði lista- og menningarmála.

Stoðhola í tóft í Húshólma

Stoðhola í skálatóft í Húshólma í Krýsuvík.

Sjaldnast er menningin kynnt í formi minja eða áþreifanlegrar arfleifðar, en þess frekar í hlóði (söng og spili) og mynd (kvikmynd). Getur ástæðan verið sú að ímyndunarhönnuðir vilji gefa aðra mynd af „menningunni“ en hún raunverulega er? Skammast þjóðin sig fyrir „fátæklegheitin“ í samanburði við „íburðinn“ erlendis?
Hér heima er málum öðruvísi háttað. Haldnar eru sýningar á bókmenntaarfinum í Þjóðmenningarhúsinu, upphafi landsnáms í kjallara hótels í miðborginni og Þjóðminjasafnið gefur gestum kost á að líta menningarverðmætin augum.
Skoðum dæmi um klysjukenndan áhuga landans út á við: „Íslendingar hafa haldið fram þeirri skoðun að nýta beri í miklu ríkara mæli þann styrk sem Norðurlöndin búa yfir og felst í mannauði, sameiginlegum menningararfi og gildismati, svo og öflugu mennta-, vísinda- og nýsköpunarkerfi. Margt bendir til þess að Norðurlönd hafi hingað til vannýtt þessa auðlind til að hasla sér völl á alþjóðlegum vettvangi.

Fátæklegar selleifar á Reykjanesskaga - fulltrúi verkmenningar í 1000 ár

Selstóft á Reykjanesskaga – fulltrúi verkmenningar í 1000 ár.

Íslendingar leggja því áherslu á að nýta sem best innri og ytri styrk Norðurlanda til að efla samkeppnisstöðu á sviði menningar, mennta og vísinda. Lykilorðin eru annars vegar samlegð (synergi) og hins vegar hnattræn útrás. Með öflugra rannsóknarsamstarfi þarf að samþætta og samræma þekkingarauðinn í löndunum, en jafnframt stefna að útbreiðslu norrænna menningar-, mennta- og vísindaafurða.“ Hér er öllu grautað saman; menningu, vísindum, útrás og nýsköpun – ágætt dæmi um ómeðvitaða arfleifð.
Menningarmál hafa jafnan verið ofarlega á baugi í byggðum landsins og bera menningarstefnur sveitarfélaga þess glöggt merki. Menningarstefnur eru staðfesting og viðurkenning á mikilvægi og gildi menningarlífs í sérhverju sveitarfélagi og markmið hennar er að skapa sem best skilyrði fyrir varðveislu, ræktun og miðlun sameiginlegs svæðisbundins menningararfs. Ennfremur er það gjarnan markmið að tryggja eftir föngum að „allir geti notið menningarlífs og að búa í haginn fyrir skapandi, lifandi listasemi og stuðla að sem almennastri þátttöku íbúa á því sviði.“

Þorsteinshellir

Þosteinshellir í Heiðmörk.

En hvað er menning?
„Samkvæmt Orðabók Menningarsjóðs er menning „þroski mannlegra eiginleika mannsins, það sem greinir hann frá dýrum, þjálfun hugans, andlegt líf.“ Íslensk orðsifjabók bætir því við að menning sé „þroski hugar og handa; … það að manna einhvern … þróun, efling, siðmenning“. Orðabók Menningarsjóðs segir líka að menning sé „sameiginlegur arfur (venjulega skapaður af mörgum kynslóðum) … rótgróinn háttur, siður“. Hin Íslenska alfræðiorðabók Arnar og Örlygs segir að menning sé „sú heild þekkingar, siðferðis, trúar og tákna sem er undirstaða mannlegs samfélags“.
Hér má greina að minnsta kosti tvær ólíkar merkingar sem lagðar eru í hugtakið „menningu“ í almennri notkun. Í fyrsta lagi mætti nefna hugmyndina um siðmenningu. Í öðru lagi kæmi svo hugmyndin um menningu sem rótgróinn sið, sameiginlegan arf. Síðari hugmyndin er oft tengd hugtakinu þjóðmenning, að hver þjóð eigi sérstaka menningu, [líkt og sveitarfélög landsins].

Prestsvarðan - er hún einskis virði í menningarsögulegu tilliti?

Prestsvarðan við Garðsstíg á Rosmhvalanesi.

„Menning“ er einnig lykilhugtak ýmissa fræðigreina, ekki síst mannfræðinnar. Í því sem hér fer á eftir er sett fram mjög einfölduð mynd af hefðbundnum hugmyndum mannfræðinnar um menninguna.
Mannfræðin hefur lengi litið svo á að mannkynið sé eitt og það búi yfir sameiginlegum eiginleikum. Við blasir þó að það hefur búið sér mjög fjölbreytilega lifnaðarhætti. Eitt af helstu verkefnum mannfræðinnar að lýsa og skýra þennan fjölbreytileika og það hvernig hann er mögulegur.
Mannfræðingar hafa lengi haft þá skoðun að fjölbreytileikinn byggi ekki á líkamlegum mun manna eins og sjáist af því að fólk fylgi þeim siðum sem það lærir. Barn sem á ættir að rekja til Íslands en er ættleitt og elst upp hjá japönskum foreldrum, lærir japönsku eins og hvert annað barn þar í landi. Klassískar hugmyndir mannfræðinga um menningu ganga út á það að hún sé afl sem mótar einstaklinginn, hugsun hans og hegðun, og að þannig megi líta á að sá fjölbreytileiki í lifnaðarháttum sem mannkyn hefur búið sér sé menningarlegur.

Eru þetta einskisnýtar menningarminjar?

Staðarborg – fjárborg ofan Kálfatjarnar.

Þá hafa mannfræðingar lengi álitið svo að í heiminum séu margar ólíkar menningar, að við getum talað um íslenska menningu, danska menningu og svo framvegis. Þó að hverri menningu megi skipta niður í ákveðna þætti – trúarbrögð, goðsagnir og vígslusiði, svo einhverjir séu nefndir – fléttist þessir þættir í hverju tilviki saman og myndi ákveðna heild. Þannig kennir klassískur skilningur mannfræðinnar að einstakur þáttur tiltekinnar menningar verði ekki skilinn í einangrun heldur verði að skoða hann í samhengi við alla aðra þætti hennar. Samkvæmt þessu er hver menning heildstæð eining.

Dæmi um afskiptar menningarminjar á Reykjanesskaga

Leyndar menningarminjar á Reykjanesskaga.

Ef menningin er heildstæð, er hún líka afmörkuð. Við getum þannig talað um íslenska menningu og enska menningu og dregið skýr mörk milli þeirra. Það fólk sem tilheyrir hverri menningu, tilheyrir henni allt á sama hátt. Íslensk menning er menning íslensku þjóðarinnar en ekki bara einhvers hluta hennar. Hugmyndin er líka sú að menning hafi ákveðinn stöðugleika. Íslensk menning er „íslensk menning“ hvort sem talað er um landnámstímann eða nútímann, og þarna á milli er eitthvert sögulegt samhengi, einhver stöðuguleiki.
Þetta er þá hin klassíska hugmynd mannfræðinnar um menninguna: Hver menning er sjálfstætt kerfi sem endurnýjar sjálft sig. Þessi hugmynd um menningu hefur verið tekin til gagngerrar endurskoðunar undanfarna áratugi. Nú telja flestir að menning sé afsprengi valdatengsla og drottnunar, að menning sé ákveðið form valds og drottnunar, hún sé miðill þar sem vald er bæði skapað og spornað við því.

Íslendingur

Íslendingur í Víkingaheimum. Skipið er byggt á málum Ásubergsskipsins.

Sem dæmi um þetta má benda á hvernig vísað var í þætti úr íslenskri menningu og sögu til rökstuðnings fyrir uppsetningu gagnagrunns á heilbrigðissviði: Víkingaarfleiðina og sagnirnar. Einnig má benda á hvernig andstæðingar gagnagrunnins notuðu hliðstæð menningarleg rök gegn gagnagrunninum: Afsal sjálfstæðisins 1262 og „sölu landsins“ 1949. Menning er þess vegna ekki hlutur til fyrir utan og ofan okkur, heldur er hún hluti af hinu daglega lífi, með allri sinni baráttu og striti.“
Í raun, ef vel er að gáð, fela sérhver mannanna verk í sér afurð menningar er krefst ákveðinnar varðveislu og virðingar þeirra er á eftir koma. Hversu vel hún hefur varðveist á ekki að skipta neinu máli.
Þegar menningarsögulegar minjar á Reykjanesskaganum eru skoðaðar, hvort sem um er að ræða á einstaka stað eða sem heild, blasir vanræksla hvarvetna við.

Herdísarvík

Herdísarvík – sjóbúð.

Svo er að sjá sem fulltrúar minjavörslunnar hafi MJÖG litlar áhyggjur af þessum fornleifum, enda hafði einn þeirra það á orði í einni kennslustundinni í HÍ að “engar merkilegar fornleifar væri að finna á svæðinu”. Þá var hann að miða við Glaumbæ í Skagafirði, Víðimýri og aðra slíkar er endurreistar hafa verið í „sómasamlegri mynd“. Það segir nokkuð um gildismat viðkomandi. Fátækleg, óhreyfð, en áþreifanleg arfleifð, jafnvel jarðlæg, er auðvitað engu að síður merkileg en uppgerð fornleif. Þessum skilningi “sérfræðinganna” þarf að breyta.  Ef það tekst verður Reykjanesskaginn eitt merkilegasta minjasvæði landsins.

Skógfellavegur

Skógfellastígur – forn þjóðleið.

Alþingismenn (fjárveitingavaldið) er mjög svo upptekið, líkt og var í lok 19. aldar, að dýrð Íslendingasagnanna og endurreisn þeirra, en huglægni þeirra kemur samt sem áður aldrei til með að geta staðfest eitt eða neitt á vettvangi fornleifanna. Þess vegna eru minjarnar sjálfar svo mikilvægar, þ.e. myndbreyting þess sem var í raun, bæði frá einum tíma til annars svo og raunverulegum aðstæðum fólksins er þar bjó – og dó. Þær, hversu lítilmótlegar sem þær eru, hver og ein, ber að virða til eins langrar framtíðar og mögulegt er.

Heimildir m.a.:
-wikipedia.org
-visindavefur.is

Lokinu hefur enn ekki verið lyft af menningarverðmætum Reykjanesskagans

Staðarbrunnur endurgerður.

Staðarbrunnur

Gamlir brunnar teljast til fornleifa. Samkvæmt skilgreiningu þjóðminjalaga þá eru fornleifar allar leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja sem menn hafa gert eða manna verkverk eru á, og eru 100 ára eða eldri. Sem dæmi um fornleifar eru nefndar; „brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð…“

Brunnur á Reykjanesskaganum - frá því í byrjun 20. aldar

Norðurkot á Vatnsleysuströnd – brunnur.

Í Þjóðháttaskrá Þjóðminjasafnsins (41) er fjallað um neysluvatn og öflun þess. Þar er m.a. spurst fyrir um vatnsstæði, vatnsból, vatnsþrær, brunna, uppsprettur, lækningalindir og vatnsleiðslur: „Öll mannavist í landinu er tengd öflun neysluvatns fyrir fólk og fénað. Landnámsmenn, sem reistu fyrst byggð hérlendis, hafa m.a. sælst til þess að rennandi vatn félli hjá bæjarstæðinu og til skamms tíma hefur það þótt góður kostur á sveitabýli að eiga góðan bæjarlæk rétt hjá bæjarveggnum. Allt hefur þetta breyst á þessari öld [20. öld], flest byggð ból eiga nú kost á streymandi lindarvatni eftir vatnsleiðslum um lengri eða skemmri veg. Þessi breyting hefur gerst á svo skömmum tíma í sögu þjóðarinnar að enn muna fjölmargir Íslendingar til þess að bera þurfti allt neysluvatn frá brunni eða bæjarlæk í hús.

Vatnslind á Reykjanesskaganum

Vanslind á Reykjanesskaga.

Hvað felst í orðinu vatnsból? Er það eingöngu notað um þann stað sem neysluvatn heimilisins er tekið úr? Gilti þá einu hvort vatnið var sótt í læk, tjörn eða jafnvel brunn? Var ábýlisjörðum talið gott vatnsból til kosta í umræðu manna á milli? Var þá einnig talað um langan eða stuttan vatnsveg og miðað við það hve langan veg þurfti að sækja neysluvatn? Voru dæmi þess að sækja þyrfti neysluvatn á hestum um langan veg?
Hvað um bæjarlækinn? Var hlaðin þar sérstök vatnsþró? Var hlaðið þrep í farveginn til að mynda smáfoss (lækjarbuna) við vatnsbólið? Var sérstakur, flatur steinn við vatnsbólið, ætlaður til að klappa á þvott (þvottasteinn)? Var vegur lagaður með einhverjum hætti að vatnsbóli (stíflur, upphækkun)? Var vatnsbólið haft til þess að afvatna í saltfisk og e.t.v. kjöt? Voru dæmi þess að bæjarlæknum væri veitt gegnum hús, innanbæjar, eða að byggt væri hús eða skýli yfir vatnsbólið? Var neysluvatn sótt í tjörn nálægt bænum? Var einhver umbúnaður í sambandi við vatnstöku þar, t.d. hleðsla útí tjörnina eða grafin þró í tjarnarbotninn? Voru til upphlaðin vatnsból, án aðrennslis eða frárennslis ofanjarðar. Eru til sagnir eða munnmæli varðandi slík vatnsból, t.d. hvað varðar öryggi vatns til nota (að engum skyldi verða meint af vatninu ef vissum skilyrðum var fullnægt)?

Vatnsstæði á Reykjanesskagagnum

Gvendarbrunnur við Alfaraleið.

Brunnar voru víða, einkum í seinni tíð, einkum þar sem ekki var völ á neysluvatni nema með því að grafa brunn. Einstakir menn, öðrum fremur, unnu víða að brunntöku og hleðslu brunna og hlutu jafnvel viðurnefni af því. Var bæjarbrunnurinn innanbæjar, t.d. í fjósi? Var ranghali eða gangur til brunns innanbæjar og byggt sérstakt hús þar yfir brunninn? Var e.t.v. sérstakt brunnhús utanbæjar? Lýsið brunntöku og brunnhleðslu ef tök eru á. Var sprengiefni notað við brunntöku þar sem hraun eða klettar voru til hindrunar? Voru brunnar yfirleitt hringhlaðnir? Hvað með hleðsluefnið. Hvað vita menn dæmi til þess að brunnar hafi verið grafnir djúpt niður? Hvernig var umbúnaði yfir brunnopum (yfirgerslu með hlemmi og brunnvindu t.d.) háttað? Vita menn dæmi þess að brunnar hafi jafnan verið opnir vegna gamalla ummæla?

Mjög forn brunnur á Reykjanesskaganum - líkt og Írskibrunnur á Snæfellsnesi

Merkinesbrunnur – niðurgenginn.

Fylgdi sérstök vatnsfata brunni (vatnsponta)? Voru dæmi þess að silungur (eða silungar) væri hafður í brunni (brunnsilungur) til að útrýma þar brunnklukku t.d.? Voru vatnsleiðslur síðar tengdar við gamla brunna? Voru brunnar hreinsaðir að jafnaði einu sinni á ári (eða oftar)? Eru gamlir brunnar e.t.v. enn í notkun? Hvað nefndist járnborið vatn í brunni (járnláarvatn t.d.)? Er orðið brunnur (brunnar) einnig notað um uppsprettur vatns, t.d. í örnefnum? Þekkja menn sagnir, orðtök eða kveðskap um brunna?
Regnvatn gegndi þýðingamiklu hlutverki og v ar safnað víða. Með tilkomu rennuhúsa urðu tök á því að safna regnvatni í tunnur eða vatnsgeyma. Þetta varð á tímabili þýðingamikill þáttur í vatnsöflun margra sveitaheimila og sumra þéttbýlisstaða.
Hvernig voru vatnsgeymar og söfnunarílát regnvatns, hreinsun þeirra og annað, er efnið varðar. Sá þetta allri neysluvatnsþörf heimila borgið á vissu tímabili?

Staðarhverfi

Staðarbrunnurinn í Grindavík  hefur nú verið endurhlaðinn – 14 m djúpur.

Vatn á vetrardegi gat verið miklum erfiðleikum bundin. Vatn þvarr í langvarandi frostum, eigi síður en í þurrkum, og vatnsból lögðust undir ís. Hvernig var unnin var bót á þeim vanda, m.a. með því að vaka læki og tjarnir fyrir búfénað. Var sérstakt áhald til þeirra nota (vakarbroddur t.d.)? Voru dæmi þess að snjór væri bræddur til vatnsöflunar, t.d. í fjósi?
Vatnsburður frá vatnsbóli til bæjar var eitt af húsverkunum. Hafði viss heimilismaður einkum það starf að bera vatn í bæ eða fjós? Kunna menn af eigin raun eða eftir annarra sögn að segja frá fólki sem vann fyrir sér með því að bera vatn í hús frá vatnspósti eða vatnsbóli? Hvernig voru áhöld sem notuð voru við vatnsburð og hver voru nöfn þeirra (vatnsfötur,
vatnsgrindur, og o.s.frv.). Voru vatnsker eða vatnstunnur til að hella í vatninu innanbæjar svo jafnan væri þar tiltækur nægilegu vatnsforði?

Brunnmynd

Brunnmynd.

Lækningalindir hafa verið víða hér á landi, margar að sögn tengdar vígslum Guðmundar góða. Hér er leitað eftir fróðleik um lækningalindir, nöfnum þeirra, notum og sögnum tengdum þeim. Þekkjast nöfn eins og Gvendarlind eða Maríulækur í nánd bæja eða byggða? Var einkum sótt vatn í þessar lindir handa veiku fólki? Voru dæmi þess að þangað væri sótt neysluvatn til drykkjar og matarsuðu en vatn til annarra nota (t.d. þvotta) sótt í annað vatnsból?

Var sama á hvaða tíma sólarhrings vatn var sótt í lækningalindir? Eru til sagnir um það að lækningalindir hafi verið saurgaðar með einhverjum hætti þannig að þær misstu kraft sinn? Hvenær var hætt að sækja vatn í lækningalindir þar sem þeirra var annars völ? Er trú á lækningalindir e.t.v. enn fyrir hendi?

Brunnur við Reykjanesvita - 1878 skv. danskri fyrirmynd

Brunnur við Reykjanesvita – 1878 skv. danskri fyrirmynd.

Vissa varúð þurfti að hafa við öflun vatns á víðavangi, einkum er menn lögðust niður við vatn úti á víðavangi til að svala þorsta sínum (að signa yfir vatnið eða drekka gegnum dúk eða síu einhverskonar)? Var e.t.v. algengasta aðferðin sú að drekka úr lófa sínum?

Selvogur

Nesbrunnur í Selvogi.

Vatnsleiðslur með sjálfrennandi vatni eða tengdar dælum eða vatnshrútum koma til sögunnar undir lok 19. aldar og þó einkum á þessari öld. Í fyrstu var um stein- og tréstokka að ræða.
Einstakar sveitir hafa lagt samveitur vatns um langar leiðir nú í seinni tíð. Þessar framkvæmdir hafa létt miklu oki af fólki og eru þýðingamikill þáttur í framför aldarinnar. Um þetta er völ margra heimilda en annað liggur engan veginn ljóst fyrir og þá allra helst um það hverjir fyrst hófust handa við að leiða vatn í bæjarhús og útihús í einstökum sveitum eða byggðum. Höfðu einstakir menn forgöngu um það, öðrum fremur, að leggja vatnsleiðslur til heimila og fóru til þeirra starfa bæ frá bæ?“

Duus-Hús

Duus-hús – brunnur.

Af þessum umleitunum má sjá að vatnsöflun og -neysla hefur þótt áhugaverð fornsöguleg arfleifð – og þarf engan að undra því hér hefur verið um að ræða einn af grundvallarþáttum afkomunnar frá upphafi lífs á jörðinni – allt til þessa dags.

Gufuskálar

Lindarbrunnur við Gufuskála.

 

Skyggnisrétt

Tómas Þorvaldsson, 83. ára gamall, tók á móti FERLIR í Grindavík.

Járngerðardys

Tómas Þorvaldsson við dys Járngerðar.

Þegar var haldið að Vergötu í Járngerðarstaðahverfi með það fyrir augum að staðsetja dys Járngerðar, sbr. þjóðsöguna. Gatan liggur til suðurs gegnt Garðhúsum, sem Einar kaupmaður byggði 1918.
Næsta hús að vestan er Valdabær, síðan Járngerðarstaðir og loks Vesturbær. Gamla sjávargatan lá fyrrum til suðurs frá Járngerðarstöðum, en það var samheitið á torfunni, og yfir þar sem nú er Helgavöllur. Vergatan er að hluta til yfir gömlu götunni. Þar sem gatan beygir á móts við Garð, á milli Víkur og Hliðs, var Járngerður dysjuð. Í þjóðsögunni segir að dysin hafi verið einn faðmur á breidd og þrír á lengd. Hafi dysin hækkað til austurs. Framhjá henni hafi vermenn gengið til skips. Þegar Vergatan var malbikuð var hún lögð yfir dysina þarna í beygjunni, en ef grannt er skoðað má enn sjá í suðvesturhorn dysjarinnar, sjávarmegin, undan veginum. Sjómenn á leið til skips staðnæmdust við dysina, tóku ofan og fóru með bæn.

Kapella

Kapellan í Kapellulág.

Tómas sagði frá því að Skálholtssúðin hafi farist með 23 mönnum í Hróflsvíkinni (austan við Hraun) árið 1602. Hafi fólkið verið grafið við kapelluna í Kapellulág.
Þá var haldið að Virkinu. Í og við það var Grindavíkurstríðið háð árið 1532. Skærur voru með Englendingum undir forystu Jóhanns Breiða (Joen Breen) annars vegar og Hansamönnum og heimamönnum hins vegar. Enduðu þær með því að hinir síðarnefndu söfnuðu liði (um 180 – 250 manns) eina nóttina ( 10. júní) og réðust að Englendingum í Virkinu (kl. 02:00 að nóttu). Lágu um annar tugur Englendinga í valnum og þar á meðal Jóhann Breiði, sundurhöggvinn. Aðrir reyndu að flýja til skipa sinna. Fjórum enskum skipum tókst að komast frá landi, en eitt strandaði í útsiglingu og fórst þar með allri áhöfn.

Vikri Jóhanns

Tómas við leifar virkis Jóhanns breiða.

Átta Englendingar voru teknir til fanga. Hinir látnu voru dysjaðir austur undir virkisveggnum. Heitir þar nú Engelska lág. Tómas benti á lágina, sem nú er sandorpin, skeifulaga og hefur áður verið nokkurs konar dalur austan við Virkið – á milli þess og Hellanna. Virkið sjálft er nú þarna fremst á kampinum, en sjórinn hefur brotið þarna talsvert af landinu. (Sjá nánar Grindavíkurstríðið undir Fróðleikur).

Tómas sagði frá Skjöldunni, en svo nefndust hús þar sem fátækir fengu að búa vestan við Járngerðastaði. Þar eru nú hlaðin útihús frá bænum.

Grindavík

Skjalda.

Vestan við Skjölduna er graslaut, opin til suðurs. Hún heitir Geldingalaut. Þar voru folöld gelt, stundum mörg á dag. Norðan við Skjölduna er Vatnsstæðið og síðan hraunið. Uppi í því er fallegur gróinn hraunbolli, Einisdalur. Þangað fóru Grindvíkingar oft á góðvirðisdögum og tóku með sér nesti. Austar, norðan Járngerðastaða, er Bóndastekkstúnið. Á því var hlaðin rétt, Bóndastekkstúnsrétt. Hún var síðar notuð sem kartöflugarður. Norðvestan túnsins er gjáin Silfra, sem þjóðsaga er kennd við. Í gjánni á að vera silfursjóður, en þegar menn eru að því komnir að ná honum upp er eins og húsið á Járngerðarstöðum standi í björtum logum.

Títublaðavarða

Títublaðavarða.

Norðan við Silfru liggur Skipsstígurinn í átt að fjarskiptastöðinni. Við hann er heil varða, en skammt norðan hennar er önnur fallin, á efstu brún áður en komið er að girðingunni. Hún heitir Títublaðavarða. Þaðan má vel sjá hvar stígurinn liðast innan girðingarinnar, að vörðu norðan hennar, skammt frá gatnamótum götu að Hópi. Einnig sést þaðan í Gyltustíg vestast í sunnanverðum Þorbirni.

Hraunstekkir eru austan við Gerðisvallabrunna. Sunnan við þá er hlaðinn stekkur og tótt undir grónum hól. Þar voru lömbin höfð um vorið þegar ærnar voru reknar í sel innan við Þorbjörn (Baðsvallasel).

Junkaragerði

Garður í Junkeragerði á Gerðisvöllum.

Haldið var að Gerðisvallabrunnum að vestan. Þar má sjá vörðu á hægri hönd. Hún stendur við gamla þjóðleið út að Húsatóttum. Sést vel móta fyrir gömlu götunni við vörðuna. Beint niður frá henni, á sjávarkampinum er Markhóll, landamerki Húsatótta og Járngerðarstaða. Vestar er Stekkhóll. Gamall stekkur er vestan í hólnum, nú að mestu jarðlægur. Þá er komið að Hrafnagjá. Austan hennar eru garðar hlaðnir í ferkantað gerði. Þar er Junkaragerði. Þýskir og heimamenn áttu í gerðinu með sér marga glettuna fyrr á öldum. Innan þess má sjá gamlar tóttir. Eftir að Englendingar höfðu verið hraktir frá Grindavík sátu Hansamenn nánast einir að verslun við Íslendinga um sjö áratuga skeið, eða þangað til Danir tóku að sauma að þeim og einokuðu verslunina. Líklegt má telja að Hansamenn hafi sest að þarna í búðum Englendinga eftir að þeir voru flæmdir á brott.

Gerðavellir

Gengið um Gerðavelli – söguslóðir Grindavíkurstríðsins 1532.

Gerðið sést vel og gaman er að ganga um svæðið með hliðsjón af sögunni. Junkarar bönnuðu t.d. heimamönnum að fara inn fyrir gerðið á meðan þeir voru í róðrum, en þeir læddust nú samt þar inn fyrir og náðu sér í ýmislegt nýtanlegt. Junkarar reyndu að hefna sín á Grindvíkingum, en þeir svöruðu fyrir sig með því að saga í sundur árar, gera gat á báta o.s.frv.

Utar á kampinum er rétt, Skyggnisrétt á Skyggni. Í hana voru trippi rekin á vorin og þau klippt áður en þau voru rekin upp á Selsvelli. Vestar eru Hásteinar. Víkin útaf Skyggni, undan Gerðisvallabrunnum, heitir Stórabót.
Frábært veður.

Junkaragerði

Garður í Junkeragerði á Gerðavöllum – uppdráttur ÓSÁ.

Ölfusvatn

Við gömlu brunngötuna frá Kirkjuvogi i Höfnum er grágrýtissteinn, ca. 60 cm á hæð og 30 cm á breidd og lengd. Steinninn er í dag við suðvesturbrún bílastæðis vestan kirkjunnar. Ekki er ólíklegt að þar skammt frá hafi gamli kirkjustígurinn frá bæjunum í vestri komið inn á brunngötuna. Engin áletrun er á steininum, sem hefur samst sem áður verið hið ágætasta sæti.

Hafnir

Kirkjuvogskirkja – skósteinn.

Kirkjustígar lágu jafnan þétt ofan túngarðanna með stefnu á hlutaðeigandi kirkju. Við sumar þeirra eru til örnefni er benda til þess að þar hafi kirkjugestir skipt um skó, þ.e. sett þá betri á fæturnar, áður en gengið var til kirkju. Þessi örnefni nefnast gjarnan „skósteinn“ eða „skóklöpp„. Hið fyrrnefnda er t.d. að finna við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd og hið síðarnefnda við Strandarkirkju í Selvogi.
Í íslenskri þjóðfélagssögu er skósteinn ákveðinn steinn, gjarnan staðsettur í grennd við kirkjur eða á áfangastöðum í þjóðbraut. Skósteinninn við Kálfatjörn er markaður með átalinu A°1790.

Hafnir

Hafnir – skósteinn.

Fyrrum gekk fólk jafnan á einföldum og slitnum vaðmáls- eða skinnskóm yfir heiðar og grýtta vegi til að spara spariskóna. Þegar komið var nær áfangastaðnum (svo sem kirkjunni) staldraði fólk við hjá „skósteininum“ til þess að skipta yfir í fínni spariskóna áður en haldið var til messu, að teknu tilliti til „almættisins“.

Við skoðun á steininum virtist augljóst, að teknu tilliti til núverandi staðsetningar, að hann hefur verið færður af upprunalegum stað út fyrir tiltölulega nýlegt malbikað bílastæði sunnan kirkjunnar og stendur þar nú einn og stakur. Virða ber verktakan fyrir hugulsemina.

Gufuskálar

Gufuskálar – hestasteinn.

Steinninn hefur án efa þjónað tilgangi „skósteins“ fyrrum. Steinsins er hvergi getið í skráðum heimildum. Skv. því ætti hann ekki að vera til, a.m.k. í hugum sagnfæðinga. Fornleifafræðingar hafa þó ávallt verið þeim skrefi framar við uppljóstrun staðreynda.

Ýmsir „steinar“ voru bæði nýttir og tilgerðir fyrrum. Má þar t.d. nefna „hestasteina“ sem voru ýmist drykkjarskálar í steini eða steinar með gati eða lykkju. Fyrrnefndan stein má m.a. sjá við Vesturbæ að Gufuskálum við Leiru á Rosmhvalanesi og þann síðarnefnda við Kálfatjarnarkirkju. Hestasteinn var lengi vel við Strandarkirkju, en virðist nú horfinn.

Strandarkirkja

Strandarkirkja – hestasteinn.

Fyrrum var hestasteinn basaltsteinn með áföstum hring eða gróp sem grafinn var niður við bæi eða kirkjur til þess að hægt væri að binda hesta við þá. Þeir voru notaðir allt fram á 20. öld – og jafnvel lengur.

Hlautsteinn

Hlautsteinn.

Svonefndir „hlautsteinar“ hafa jafnan verið metnir í fyrrum skrifum, en í þeim síðari tíma jafnan nefndir „blótsteinar„.
Hlautsteinn er fornt íslenskt orð yfir fórnarstein eða dómstein úr heiðnum sið, sem tengist blótum í norrænni goðafræði. Orðið er samsett úr tveimur hlutum: Hlaut; blóð úr fórnardýrum sem var notað við heiðnar athafnir og blótsteinn; steinninn eða stallurinn þar sem fórnarathöfnin fór fram eða þar sem blóðinu var stökkt. Slíka steina má t.d. sjá við Ölversvatn í Grafningi og Brúsastaði í Þingvallasveit, en líklegra er þó að þeir hafi einungis fyrrum verið notaðir sem drykkjasteinar. Báðir steinarnir eru við heimtraðir bæjanna.
Blóta er m.a. getið í Landnámu, Úlfljótslögum, Eyrbyggju, Hákonar sögu góða, Kjalnesinga sögu og Víga-Glúms sögu. Í þremur þeirra er getið um „hlautbolla„. Hvergi í fornum sögnum er getið um „blótsteina„.

Elliðakot

Elliðakot – hornsteinn (EG).

„Hornsteinar“ voru víða notaðir fyrrum. Um var að ræða steina í nýhlöðnum mannvirkjum, s.s. bæjum, sjóbúðum eða brunnum. Þannig var t.d. sagt frá hornsteininum í brunninum í Fuglavík með ártali frá því á 16. old (A°1580), sem síðar var tekinn og færður í hleðslur síðasta torfbæjarins. Þegar hann var jafnaður við jörðu og nýtt timburhús byggt var gamli hornsteinninn settur í hlaðstéttina þar sem hann fannst svo eftir leit FERLIRsfélaga og ábúandans á bænum. Sömu sögu má segja af áletraðanum hornsteininum í gamla steinhlöðnu sjóhúsinu á Kálftatjörn frá því á 17. öld (A°1674). Hafrótið færði sjóbúðina í kaf og hornsteinninn hvarf. Sagt hafði verið frá honum í gömlu heimildum.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – ártalssteinn úr sjóbúð (A°1674).

Svo vel vildi til að einn FERLIRsfélaganna gekk fram á steininn í fjörunni neðan við bæinn. Hann var í framhaldinu selfluttur heim að safnaðarhúsinu, en hvílir nú í endurhlöðnum vesturvegg gömlu hlöðunnar og fjóssins Skjöldu á staðnum.
Oft var hornsteinn við bæjardyr torfhúsa, annað hvort með áletrun og eða kristilegu tákni til að fæla frá illa anda. Hornsteinninn í Elliðakoti var eyrnamerktur „EG“, sem voru upphafsstafir hleðslumeistarans, Eggerts Guðmundssonar.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – signingarsteinn.

Dæmigerður hornsteinn hefur að minnsta kosti tvær flatar hliðar sem mynda rétt horn (eða nálægt því). Önnur flata hliðin snýr út langvegginn og hin snýr út gaflinn eða hliðarvegginn. Þannig binda þeir hleðsluna saman í báðar áttir. Gott handverk krafðist þess að steinarnir væru lagðir á víxl; einn steinn liggur með löngu hliðina fram með framveggnum (og stuttu inn í gaflinn). Þegar hleðsla er gaumgæfð má sjá hleðsluna alveg við jörðu, situr hornsteinninn oft á mjög breiðum, flötum hellusteini sem kallast undirstöðusteinn. Sjálfur neðsti hornsteinninn er oftast vandlega valinn blágrýtis- eða grágrýtisklöpp sem hefur verið fleyguð til þess að liggja algjörlega lárétt á grunninum.

Stekkjarkot

Stekkjarkot – fiskisteinn. Í honum eru markaför. 

„Signingafontar“ voru og til framan við fornar kirkjur, s.s. á Hrauni við Grindavík og á Kálfatjörn. Þeir voru einkum tileinkaðir kaþólskum sið.

„Fiskasteinn“ var steinn (oft flatari eða kollóttur að ofan) sem staðsettur var á hlaði bæjar og notaður sem undirlag þegar harðfiskur var barinn með pilsi eða hamri til að mýkja hann fyrir neyslu. Stundum var sami steinninn notaður bæði sem hestasteinn og fiskasteinn.
Fiskasteinum fylgdu jafnan „fiskisleggjur“ sem notaðar voru til að berja harðfiskinn. Slíkar sleggjur finnast oft við fornleifauppgrefti, ýmist heilar eða brotnar.

Heimildir:
-https://ferlir.is/kirkjuvogur-kotvogur/
-https://ferlir.is/brunnar-og-vatnsstaedi-a-reykjanesi-yfirlit/
-https://timarit.is/page/5186282
-BA ritgerð í Þjóðfræði – Íslenskir blótsteinar, bakgrunnur, samhengi og útbreiðsla, Kári Pálsson, 2019.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – skósteinn (A°1790).

Hafnir

Kirkjuvogsbrunnur var sögulegur brunnur staðsettur í Hafna- og Kirkjuvogshverfi Reykjanesbæjar á Reykjanesskaganum. Samkvæmt sögulegum heimildum var brunnurinn byggður um eða fyrir árið 1750 af Tómasi Arasyni frá Fuglavík. Hann var niðurgengur líkt og brunnurinn á Merkinesi.

Hafnir

Hafnir – túnakort frá 1919 lagt yfir loftmynd frá 2023. Á myndinni sést Kirkjuvogsbrunnur.

Vatnsöflun var gríðarlega mikilvæg og krefjandi áskorun á Suðurnesjum fyrr á öldum og því var mannvirkið mikilvæg lífæð fyrir stórbýlið í Kirkjuvogi. Í dag eru helstu leifar brunna og tengdra mannvirkja á svæðinu að finna í nágrenni við gömlu bæjarhólana og túngarðana, ekki síst í Höfnum. Fyrir 1900 var svo að segja grafinn brunnur eða vatnsstæði við sérhvern bæ á Skaganum, sumsstaðar jafnvel fleiri en einn.

Þegar túnakortið yfir Kirkjuvogshverfið frá 1919 er skoðað má sjá staðsetningu einstakra bæja er þá voru í byggð sem og nokkrar götur.

Hafnir

Kirkjuvogshverfi – túnakort 1918.

Ein af þeim var brunngatan frá Kirkjuvogi er endaði í suðri við Kirkjuvogsbrunninn. Frá honum til norðausturs liggur önnur gata, að Kotvogi. Þegar loftmynd af Höfnum var skoðuð með hliðsjón af túnakortinu virtist brunnstæðið ekki sérstaklega augljóst, en þegar túnakortið var sett yfir nýlega loftmynd birtist nákvæm staðsetning hans.

Í dag, 2026, hefur brunnsvæðið á einhverju tímabili, hlaupið í sandskafla sem síðan hefur gróðið yfir. Engar hleðslur sjást því í brunnstæðinu.

Hafnir

Hafnir – Kirkjuvogsbrunnur.

Grændalahellir

Í „Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum – Áfangaskýrslu III“ frá árinu 2016 er m.a. fjallað um „Grændalahelli“ og „Grændalavörðu„. Þar segir m.a.:

Grændalahellir

Grændalahellir.

„Norðaustur af Virkishólum eru Draugadalir. Þar eru einnig Grændalaflatir, Grændalir og Grændalavarða,“ segir í örnefnaskrá.
„Á einum hraunhólnum er varða sem heitir Grændalavarða og við þennan hól sunnanverðan er fjárskjól með hleðslum sem heitir Grændalahellir eða Loftsskúti og snýr op þess í suðurátt,“ segir í bókinni Örnefni og gönguleiðir.
„Í síðari heimildinni er Loftsskúta og Grændalahelli slegið saman í eitt en Loftsskúti er 1,2 km sunnan við Grændalahelli og er um tvo aðgreinda staði að ræða. Fjárskýli eru á þeim báðum. Grændalahellir er norðan í hólnum sem Grændalavarða er á og gengið er inn að norðan til suðurs.

Grænhóll

Grænhóll – Keilir í bakgrunni.

Hellirinn er um 100 m suðaustan við steyptan stöpul frá Landmælingum sem sést greinilega frá Reykjanesbraut. Hann er um 2 km ANA við Hvassahraunsbæinn. Umleikis er gróið hraun. Fjárskýlið er að mestu náttúrulegt. Hellirinn er 11-12 m á lengd og 3-4 m á breidd. Hæstur er hann 1,6-1,8 m en hallar mikið inn á við. Fyrir framan hellinn er náttúruleg hraunbrún sem afmarkar hann en ofan á henni er grjót og hleðslur á stöku stað. Skarð er í hraunbrúnina á einum stað.

Grændalavarðan er alveg hrunin og ekki sést steinn yfir steini. Varðan hefur líklega vísað á fjárskýlið í Grændalahelli en hún er líka á eða nærri merkjum og kann að hafa gegnt hlutverki landamerkjavörðu.“
Sjá meira HÉR.

Heimild:
-Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum – Áfangaskýrsla III, 2016.

Grændalahellir

Hleðsla í sprungu við Grændalahelli.