Skósteinn við Kirkjuvogskirkju auk fleirri nytjasteina

Ölfusvatn

Við gömlu brunngötuna frá Kirkjuvogi i Höfnum er grágrýtissteinn, ca. 60 cm á hæð og 30 cm á breidd og lengd. Steinninn er í dag við suðvesturbrún bílastæðis vestan kirkjunnar. Ekki er ólíklegt að þar skammt frá hafi gamli kirkjustígurinn frá bæjunum í vestri komið inn á brunngötuna. Engin áletrun er á steininum, sem hefur samst sem áður verið hið ágætasta sæti.

Hafnir

Kirkjuvogskirkja – skósteinn.

Kirkjustígar lágu jafnan þétt ofan túngarðanna með stefnu á hlutaðeigandi kirkju. Við sumar þeirra eru til örnefni er benda til þess að þar hafi kirkjugestir skipt um skó, þ.e. sett þá betri á fæturnar, áður en gengið var til kirkju. Þessi örnefni nefnast gjarnan „skósteinn“ eða „skóklöpp„. Hið fyrrnefnda er t.d. að finna við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd og hið síðarnefnda við Strandarkirkju í Selvogi.
Í íslenskri þjóðfélagssögu er skósteinn ákveðinn steinn, gjarnan staðsettur í grennd við kirkjur eða á áfangastöðum í þjóðbraut. Skósteinninn við Kálfatjörn er markaður með átalinu A°1790.

Hafnir

Hafnir – skósteinn.

Fyrrum gekk fólk jafnan á einföldum og slitnum vaðmáls- eða skinnskóm yfir heiðar og grýtta vegi til að spara spariskóna. Þegar komið var nær áfangastaðnum (svo sem kirkjunni) staldraði fólk við hjá „skósteininum“ til þess að skipta yfir í fínni spariskóna áður en haldið var til messu, að teknu tilliti til „almættisins“.

Við skoðun á steininum virtist augljóst, að teknu tilliti til núverandi staðsetningar, að hann hefur verið færður af upprunalegum stað út fyrir tiltölulega nýlegt malbikað bílastæði sunnan kirkjunnar og stendur þar nú einn og stakur. Virða ber verktakan fyrir hugulsemina.
Steinninn hefur án efa þjónað tilgangi „skósteins“ fyrrum. Steinsins er hvergi getið í skráðum heimildum. Skv. því ætti hann ekki að vera til, a.m.k. í hugum sagnfæðinga. Fornleifafræðingar hafa þó ávallt verið þeim skrefi framar við uppljóstrun staðreynda.

Gufuskálar

Gufuskálar – hestasteinn.

Ýmsir „steinar“ voru bæði nýttir og tilgerðir fyrrum. Má þar t.d. nefna „hestasteina“ sem voru ýmist drykkjarskálar í steini eða steinar með gati eða lykkju. Fyrrnefndan stein má m.a. sjá við Vesturbæ að Gufuskálum við Leiru á Rosmhvalanesi og þann síðarnefnda við Kálfatjarnarkirkju. Hestasteinn var lengi vel við Strandarkirkju, en virðist nú horfinn.
Fyrrum var hestasteinn basaltsteinn með áföstum hring eða gróp sem grafinn var niður við bæi eða kirkjur til þess að hægt væri að binda hesta við þá. Þeir voru notaðir allt fram á 20. öld – og jafnvel lengur.

Hlautsteinn

Hlautsteinn.

Svonefndir „hlautsteinar“ hafa jafnan verið metnir í fyrrum skrifum, en í þeim síðari tíma jafnan nefndir „blótsteinar„.
Hlautsteinn er fornt íslenskt orð yfir fórnarstein eða dómstein úr heiðnum sið, sem tengist blótum í norrænni goðafræði. Orðið er samsett úr tveimur hlutum: Hlaut; blóð úr fórnardýrum sem var notað við heiðnar athafnir og blótsteinn; steinninn eða stallurinn þar sem fórnarathöfnin fór fram eða þar sem blóðinu var stökkt. Slíka steina má t.d. sjá við Ölversvatn í Grafningi og Brúsastaði í Þingvallasveit, en líklegra er þó að þeir hafi einungis fyrrum verið notaðir sem drykkjasteinar. Báðir steinarnir eru við heimtraðir bæjanna.
Blóta er m.a. getið í Landnámu, Úlfljótslögum, Eyrbyggju, Hákonar sögu góða, Kjalnesinga sögu og Víga-Glúms sögu. Í þremur þeirra er getið um „hlautbolla„. Hvergi í fornum sögnum er getið um „blótsteina„.

Elliðakot

Elliðakot – hornsteinn (EG).

„Hornsteinar“ voru víða notaðir fyrrum. Um var að ræða steina í nýhlöðnum mannvirkjum, s.s. bæjum, sjóbúðum eða brunnum. Þannig var t.d. sagt frá hornsteininum í brunninum í Fuglavík með ártali frá því á 16. old (A°1580), sem síðar var tekinn og færður í hleðslur síðasta torfbæjarins. Þegar hann var jafnaður við jörðu og nýtt timburhús byggt var gamli hornsteinninn settur í hlaðstéttina þar sem hann fannst svo eftir leit FERLIRsfélaga og ábúandans á bænum. Sömu sögu má segja af áletraðanum hornsteininum í gamla steinhlöðnu sjóhúsinu á Kálftatjörn frá því á 17. öld (A°1674). Hafrótið færði sjóbúðina í kaf og hornsteinninn hvarf. Sagt hafði verið frá honum í gömlu heimildum.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – ártalssteinn úr sjóbúð (A°1674).

Svo vel vildi til að einn FERLIRsfélaganna gekk fram á steininn í fjörunni neðan við bæinn. Hann var í framhaldinu selfluttur heim að safnaðarhúsinu, en hvílir nú í endurhlöðnum vesturvegg gömlu hlöðunnar og fjóssins Skjöldu á staðnum.
Oft var hornsteinn við bæjardyr torfhúsa, annað hvort með áletrun og eða kristilegu tákni til að fæla frá illa anda. Hornsteinninn í Elliðakoti var eyrnamerktur „EG“, sem voru upphafsstafir hleðslumeistarans, Eggerts Guðmundssonar.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – signingarsteinn.

Dæmigerður hornsteinn hefur að minnsta kosti tvær flatar hliðar sem mynda rétt horn (eða nálægt því). Önnur flata hliðin snýr út langvegginn og hin snýr út gaflinn eða hliðarvegginn. Þannig binda þeir hleðsluna saman í báðar áttir. Gott handverk krafðist þess að steinarnir væru lagðir á víxl; einn steinn liggur með löngu hliðina fram með framveggnum (og stuttu inn í gaflinn). Þegar hleðsla er gaumgæfð má sjá hleðsluna alveg við jörðu, situr hornsteinninn oft á mjög breiðum, flötum hellusteini sem kallast undirstöðusteinn. Sjálfur neðsti hornsteinninn er oftast vandlega valinn blágrýtis- eða grágrýtisklöpp sem hefur verið fleyguð til þess að liggja algjörlega lárétt á grunninum.

Stekkjarkot

Stekkjarkot – fiskisteinn. Í honum eru markaför. 

„Signingafontar“ voru og til framan við fornar kirkjur, s.s. á Hrauni við Grindavík og á Kálfatjörn. Þeir voru einkum tileinkaðir kaþólskum sið.

„Fiskasteinn“ var steinn (oft flatari eða kollóttur að ofan) sem staðsettur var á hlaði bæjar og notaður sem undirlag þegar harðfiskur var barinn með pilsi eða hamri til að mýkja hann fyrir neyslu. Stundum var sami steinninn notaður bæði sem hestasteinn og fiskasteinn.
Fiskasteinum fylgdu jafnan „fiskisleggjur“ sem notaðar voru til að berja harðfiskinn. Slíkar sleggjur finnast oft við fornleifauppgrefti, ýmist heilar eða brotnar.

Heimildir:
-https://ferlir.is/kirkjuvogur-kotvogur/
-https://ferlir.is/brunnar-og-vatnsstaedi-a-reykjanesi-yfirlit/
-https://timarit.is/page/5186282
-BA ritgerð í Þjóðfræði – Íslenskir blótsteinar, bakgrunnur, samhengi og útbreiðsla, Kári Pálsson, 2019.

Kálfatjörn

Kálfatjörn – skósteinn (A°1790).