Hvassahraun 1

Hvassahraun

Í Hvassahrauni í umdæmi Voga eru númeruð 27 hús, auk bæjarstæðis Hvassahrauns. Þar var áður bær, síðar aðfluttur sem hefur nú verið rifinn og endurbyggður að Bergstaðastræti 18 í Reykjavík.

Hvassahraun

Hvassahraunsbærinn – Þorkell Ólafsson (1870-1907), steinsmiður, byggði á lóð númer 7 við Bergstaðastræti í Reykjavík reisulegt timburhús árið 1902. Þorkell lést árið 1907 og þá eignaðist Kristín Eiríksdóttir (1868-1961) húsið. Hún bjó í húsinu til æviloka árið 1961.
Þegar til stóð að byggja stórhýsi á lóð hússins við Bergstaðastræti 7 þurfti húsið að víkja. Um 1970 var húsið flutt á jörðina Hvassahraun á Vatnsleysuströnd. Ekki er vitað hver átti húsið þegar það var flutt eða hverjir bjuggu í því í Hvassahrauni.
Á tímabili virðist Reykjavíkurborg hafa átt húsið og síðan Minjavernd hf. en um 2020 eignuðust hjónin Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Örn Úlfar Höskuldsson húsið og fóru að leggja drög að því að fá það flutt til Reykjavíkur, á auða lóð að Bergstaðastræti 18, sem þau fengu samþykkt. Til stóð að flytja húsið í heilu lagi, en þegar til kastanna kom reyndist það ekki unnt af ýmsum ástæðum. Húsið var tekið niður í Hvassahrauni og árið 2024 var tekið til við að reisa það við Bergstaðastræti 18. Við endurbygginguna var húsið lengt og hækkað um eina hæð. Einnig var viðbygging stækkuð og hækkuð og ný viðbygging reist við suðurhlið hússins.Í maí 2025 var svo húsið við Bergstaðastræti 18 auglýst til sölu eftir miklar endurbætur.

Hvassahraunshús þetta var byggt 1902 af Þorkeli Ólafssyni. Upphafleg staðsetning hússins var Bergstaðastræti 7, Reykjavík, en flutt 1970 í Hvassahraun á Vatnsleysuströnd, í Sveitarfélaginu Vogum og síðan rifið skv. framangreindu 2023. Auk hússins að Hvassahrauni fyrrum eru a.m.k. 27 önnur hús á svæðinu, ómerkt sem slík, en hafa á síðari tímum fengið númer frá einum til tuttuguogsjö.

Eftirfarandi umfjöllun segir kannski meira en mörg orð um sumarbústaðabyggðina í Hvassahrauni.

Nokkur eldri húsanna hafa verið rifin skipulega að frumkvæði byggingafulltrúa Voga, sum hafa verið yfirgefin og hafa verið að fjúka undanfarin ár í vondum veðrum, auk fleiri núverandi er hafa verið yfirgefin en standa opin og eiga eftir að fara sömu leið ef ekkert verður að gert. Eitt þessara húsa er hús merkt „Hvassahraun 1“.

Hvassahraun 1, burstalaga bústaður, stendur niður við sjó vestast á Hvassahraussvæðinu. Húsið, 27.70 m2, var byggt árið 1970 og stendur á 3210 m2 lóð. Umhverfis húsið er grjóthlaðinn garður, auk nálægra hleðsla umhverfis moldarflög við hraunhóla, sennilega ætluð til garðyrkju. Fasteiganamatið fyrir árið 2026 er kr. 2.223.000- og brunabótamatið kr. 3.770.000-. Heildarlóðamat er kr. 484.000-.

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

FERLIR skrifaði bæjarstjóranum í Vogum og spurði: „Getur þú upplýst um aldur, sögu og eiganda sumarhússins Hvassahraun 1, sbr. meðfylgjandi mynd. Bústaðurinn stendur opinn og virðist hafa verið yfirgefinn lengi, en á sjálfsagt sína fortíð, sem gaman gæti verið að skrifa um. Grjóthlaðinn veggur er í kring og auk þess hlaðin gerði um litla matjurtagarða í nágrenninu. Enginn vegur liggur þangað.
Fyrir aftan eru leifar bústaðar, Hvassahraun 2, sem virðist vera að fjúka smám saman og samlagast umhverfinu.“

Svar: „Ég er því miður ekki með upplýsingar um stöðuna á þessu sumarhúsi en framsendi erindið á sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, sem er í cc., sem setur fyrirspurnina frá þér í réttan farveg.“

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

Sviðstjórinn sendi í framhaldinu framangreindar upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat með eftirfarandi orðum: „Hérna eru þær upplýsingar sem við höfum um lóðina og eignina er þar stendur. Ekki er heimilt að senda upplýsingar um eigandann.“

Þakkaði kærlega og upplýsti jafnframt: „Mun finna eigandann“!

Eigandi bústaðarins er skv. Landeigendaskrá Húsnæðis og mannvirkjastofnunar Loran ehf, sem gæti verið rangskráning.

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

Leitað var til manns, sem þekkir vel til í Hvassahrauni og hann spurður um upprunann. Hann svaraði: „Maður að nafni Tryggvi, flugmaður, mun hafa átt bústaðinn og selt hann til núverandi eiganda (fyrirtæki). Sá heitir Þórarinn Árnason, ævintýrabisnessmaður. Best væri að þú næðir í þann sem á og notar neðsta bústaðinn, sá heitir Þórður, búin að vera þarna mjög lengi.

Hvassahraun

Hvassahraun 1.

Nefndur Þórarinn ku vera Þórarinn Arnar Sævarsson, einn aðaleigenda RE/MAX og hluthafi í Skeljungi. Svo virðist skv. Landeigendaskrá að Loran ehf sé skráð eigandi allra bústaðanna í Hvassahrauni, samkvæmt opinberum gögnum. Sá hefur þó minni en engar heimildir um sumarbústaðabyggðina frá fyrri tíð.

Ólafur Sigurðsson, smali, Hvassahrauni 4 er sá íbúi sem er næst Hvassahrauni 1. Hann kom fram sem forsvarsmaður fyrir Frístundahúsafélagið Hvassahraun vegna mála er varða skipulags- og umhverfismál á svæðinu hjá Sveitarfélaginu Vogum. Eiginkona hans er Íris Guðmundsdóttir. Hún kvaðst aðspurð ekki þekkja sögu nefnds bústaðar, en benti á Þórð (Hvassahrauni 20) eða Arndísi Helgu Einarsdóttur, Hvassahrauni 27.

Hvassahraun

Hvassahraun 2.

Þórður Benediktsson býr að Hvassahrauni 20, næsta bústað austan við Hvassahraun 1. Hann benti á Tryggva R. Gunnarsson sem eiganda að bústaðnum. Hann þekkti ekki frekari deili á manninum, en hélt að hann væri flugmaður. Hann ætti þó einhver eldri skrif manns frá Hvassahrauni um svæðið og myndi kíkja í þau og hafa samband í framhaldinu. Hann upplýsti skömmu síðar um netfang nefnds aðila.

Hvassahraun

Hvassahraun 27.

Arndís Helga Einarsdóttir býr að Hvassahrauni 27. Hún byggði Hvassahraun 27 ásamt eiginmanni sínum Bjarna Róberti Kristjánssyni eftir að sumarhús, sem staðið hafði á lóðinni, var flutt austur fyrir Fjall. Hún minntist þess að hafa séð umfjöllun um nefnt sumarhús í tölublaði Húss og híbýla ca. um og í kringum 1980. Haft var samband við ritstjóra blaðsins, Sigríði, og hún beðin um að athuga hvort greinin væri enn aðgengileg hjá þeim. Fyrirspurnin var ekki virt viðlits.
Arndís sagðist hafa heyrt að Guðlaugur, gullsmiður, sem bjó í neðstu Viðlagasjóðshúsunum í Breiðholti og haft þar vinnustofu, hafi byggt bústaðinn um 1970, en um annað væri henni ekki kunnugt.

Hvassahraun

Í Hvassahrauni.

Þorkell Ólafsson, eigandi Hvassahrauns, arfleiddi Styrktarfélag vangefinna að hluta jarðarinnar Hvassahrauns. Félagið, sem nú heitir Ás styrktarfélag, átti því um tíma 19 hektara landsvæði norðan Reykjanesbrautar í landi Hvassahrauns. Í desember 2016 seldi félagið landareign sína í Hvassahrauni. Skráður eigandi landsins er Loran ehf.
Bændur í Reykjavík vantaði beitiland og keyptu hluta jarðarinnar á sjötta áratug síðustu aldar. Þeir stofnuðu félagið Sauðafell sem enn er eigandi hluta landsins. Eigendurnir eru nú vel yfir hundrað talsins.

Sendi nefndum Tryggva tölvupóst:
„Sæll Tryggvi,

Hvassahraun

Hvassahraun.

Ég fékk netfangið þitt hjá Þórði í Hvassahrauni þegar ég var að spyrja hann um eigandann á bursthúsalaga sumarhúsi, Hvassahrauni 1. Húsið vakti forvitni mína þegar ég var að ganga um svæðið fyrir stuttu og hugsaði; þetta hús hlýtur að eiga sér sögu. Þess vegna leita ég til þín og spyr; kanntu deili á frumkvöðlinum, eigendasögu sem og öðru sem þykir áhugavert varðandi húsið?“

Skv. AI er nefndur eigandi Tryggvi R. Gunnarsson (f. 20. desember 1972): „Hann átti meðal annars lóð í frístundabyggðinni í Hvassahrauni“.

Hvassahraun

Hvassahraun – sumarbústaður.

Bygging og saga sumarbústaða í Hvassahrauni í kringum 1970 tengist ákveðnu tímabili í sögu svæðisins þar sem nokkuð var um óskipulagða byggð sumarhúsa og smáhýsa á þessum slóðum. Hér eru helstu staðreyndir og samhengi varðandi sumarbústaði í Hvassahrauni í kringum þetta leyti:
-Uppbygging á sjöunda og áttunda áratugnum; á árunum upp úr 1960 og í kringum 1970 fjölgaði sumarbústaðabyggingum í Hvassahrauni. Svæðið þótti aðgengilegt og stutt frá höfuðborgarsvæðinu (um 22 km). Sum húsanna voru reist á lóðum nálægt sjónum í sérstæðu en hrjóstrugu hraunlandslagi.

Hvassahraun

Frá Hvassahrauni.

Sem dæmi um byggingarsögu á þessum tíma má nefna fasteignir á svæðinu þar sem upphaflegi hlutinn (oft um 40 fm) var reistur úr holsteini í kringum 1970.
-Vandamál með byggingarreglugerðir og niðurrif; fljótlega kom í ljós að mörg þessara húsa í landi Hvassahrauns (sem tilheyrði þá Vatnsleysustrandarhreppi) uppfylltu ekki opinberar kröfur.

-Skortur á leyfum; margir bústaðanna voru reistir án nægilegra leyfa frá bygginganefnd eða samræmdist ekki skipulagi.
-Heilbrigðiseftirlit; húsin stóðust hvorki kröfur byggingareglugerðar né heilbrigðiseftirlits, enda var hvorki skipulagt frárennsli né opinber vatnsveita á svæðinu á þessum tíma.

Hvassahraun

Hvassahraun – fjárhúsið rifið.

Eftir margra ára deilur og umræður í hreppsnefnd og bygginganefnd Vatnsleysustrandarhrepps var ráðist í það í október 1987 að rífa niður og fjarlægja samtals 10 byggingar (flestar reistar sem sumarbústaðir) í Hvassahrauni á kostnað eigenda. Ástand húsanna hafði þá verið mjög slæmt og sum þeirra höfðu aldrei verið nýtt almennilega.
-Hvassahraun í dag; í dag er elsta upprunalega búsetan (svo sem gamli bæjarkjarninn og íbúðarhúsið) að mestu horfin. Hins vegar eru enn örfá lögleg hús eða nýrri endurbyggð sumarhús/villur á svæðinu (svo sem nær sjónum) sem nýta sér sérstæða náttúru og sjávarútsýni. Svæðið hefur á síðari árum einnig mikið verið til umræðu vegna hugmynda um mögulegan innanlandsflugvöll.

Hvassahraun

Frá Hvassahrauni.

Í sögulegu samhengi má benda á þá staðreynd að umrætt svæði er frístundabyggð í landi Hvassahrauns, Vatnsleysuhreppi, Gullbringusýslu hefur verið skipulagt í aðalskipulagi 2022 sem frístundabyggð sbr. leigusamningar þar um frá fyrri tíma.
Frístundabyggðin er hugsuð sem m.a. dvalarstaður einstaklinga og fjölskyldu til lengri eða skemmri tíma þar sem ró og friður á að ríkja.

Í „Aðalskipulagi Voga um Hvassahraun 2008-2028“ segir m.a.:

Hvassahraun

Hvassahraun – aðalskipulag 2008-2028.

„Frístundasvæði við Hvassahraun – Við Hvassahraun, norðan Reykjanesbrautar, er Styrktarfélag Vangefinna með frístundabyggð á um 19 ha svæði. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið og gerir það ráð fyrir 30 lóðum fyrir frístundahús. Frístundahús eru þegar á um helmingi lóðanna. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið. Til að yfirbragð svæðisins verði í anda almennrar frístundabyggðar.
Frístundabyggðin í Hvassahrauni afmarkast af Látrum til vesturs, strönd til norðurs, Hvassahraunstúnum til austurs og útivistargötu norðan Reykjanesbrautar til suðurs. Aðkoma að svæðinu er um Hvassahraunsveg sem tengist inn á Reykjanesbraut um mislæg gatnamót austan skipulagssvæðisins. Á svæðinu eru nú þegar á annan tug frístundahúsa.

Fagravík

Fagravík.

Svæðið er hluti af stærri landslagsheild sem er á náttúruminjaskrá, en þar segir:
Strandlengjan frá Fögruvík í Vatnsleysuvík að Straumi í Straumsvík, Vatnsleysustrandarhreppi, Hafnarfirði, Gullbringusýslu.
(1) Fjaran og strandlengjan á u.þ.b. 500 metra breiðu belti, ásamt ísöltum tjörnum, frá botni Fögruvíkur að Straumi.
(2) Sérstætt umhverfi með miklu og óvenju fjölskrúðugu fjörulífi og gróðri. Tjarnir með mismikilli seltu og einstæðum lífsskilyrðum. Útivistarsvæði með mikið rannsóknarog fræðslugildi í nánd við þéttbýli. Friðaðar söguminjar við Óttarsstaði.
Landsskipulagsstefna 2015-2026 öðlaðist gildi 6. mars 2016. Nánari umfjöllun er að finna í greinargerð landsskipulagsstefnu.“

Hvassahraun

Hvassahraun – uppdráttur ÓSÁ.

Í fornleifaskráningu fyrir Hvassahraun er fátt að skoða utan fornleifa heimabæjarins, sem reyndar eru þar af skornum skammti.

Í „Skólablaði Laugarnesskóla“ árið 1968 má t.d. lesa eftirfarandi frásögn Guðrúnar Bjarkar Hauksdóttir undir yfirskriftinni
„Sumardagur í Hvassahrauni“:
„Sunnan við Straum er jörð, sem heitir Hvassahraun. Þar eigum við sumarbústað, sem er nálægt sjó. Þarna er skrýtið landslag, því að það er bara hraun og sprungur. Oft er hægt að gleyma sér við að horfa á hraunklettana, þeir hafa tekið á sig alls konar myndir eftir því, hvernig hraunið hefur runnið. Þessar sprungur geta verið hættulegar. Einu sinni fundum við dáið folald í einni dýpstu sprungunni.
Það vex villt hvönn í þessum sprungum, og hvergi hef ég séð eins stóra kóngulóarvefi og þarna. Það er gaman að sitja þarna og fylgjast með, hvernig flugurnar festast í vefnum og horfa á fegurð hraunsins.

Hvassahraun

Hvassahraun – Þorvaldskot.

Í fljótu bragði virðist ekki vera hér mikið um gróður, en svo er þó ekki. Að vísu er hann ekki hávaxinn, blóðbergið og mosinn ráða ríkjum, en lyng og geldingarhnappar láta á sér bera. Óvíða hef ég fundið sætari ilm úr jörðu en þarna. Og ekki spillir ferskt sjávarloftið. Það eina, sem mér finnst spilla þessum stað er kríugargið og krían sjálf.
Mikið hef ég mátt líða fyrir þennan óvin minn. Það er eins og kríurnar finni á sér, að ég er hrædd við þær. Ef við förum í gönguferð um hraunið eða með fjörunni, er krían alltaf yfir mér, en lætur aðra í friði.
Þegar við komum heim, fer ég að hugsa um liðinn dag. Allt hafði verið svo skemmtilegt og fallegt.“ – Guðrún Björk Hauksdóttir, 8. C

Heimildir:
-https://timarit.is/page/8366016?iabr=on#page/n0/mode/2up
-https://husaflutningar.is/bergstadastraeti-18-reykjavik/

Hvassahraun

Hvassahraun – frístundabyggð.