Einar Benediktsson

Gjafabréf Einars Benediktssonar vegna Herdísarvíkur.

Skjal, sem stimplað var í fjármálaráðuneytinu 19. ágúst 1939, kveður á um gjöf Einars Einar Ben-gjafarbrefBenediktssonar, skálds, á Herdísarvíkurlandi til handa Háskóla Íslands. Húsið í Herdísarvíkur er þar undan skilið, skv. skjalinu:
„Jeg undirritaður Einar Benediktsson prófessor gef hjermeð Háskóla Íslands jörðina Herdísarvík í Selvogshreppi í Árnessýslu ásamt öllum gögnum og gæðum, þar með húsum, öðrum en íbúðarhúsi, sem ríkið þegar á, ennfremur húsgögnum, sem í íbúðarhúsinu eru og bókasafni mínu sem þar er geymt.
Gjöfin er gefin í minningu um föður minn Benedikt sýslumann Sveinsson. Gjöfin er bundin því skilyrði, að núverandi ábúandi jarðarinnar frú Hlín Johnson hafi afgjaldalausa ábúð á jörðinni meðan hún lifir eða esvo lengi sem hún óskar, en hún skal þó greiða skatta og skyldur af jörðinni.
Gjafarbrjef þetta er gefið út í tveimur samhljóða frumritum.
Herdísarvík 28. september 1935“
Vottar: Bjarni Jónsson – Guðni Gestsson.
Undirritun: Einar Benediktsson

Undir bréfið er skrifað eftirfarandi og vottað hreppsstjóra, Þórarni Snorrasyni: „Jeg undirritaður hreppsstjóri Selvogshrepps Þórarinn Snorrason vottar hjer með að Einar Benediktsson prófessor Herdísarvík hefur í dag ritað nafn sitt undir þetta skjal með fullu ráði og frjálsum vilja í viðurvist míns og tveggja vitundarvotta. Til staðfestu er nafn mitt. P.t. Herdísarvík 28/9 1935 – Þórarinn Snorrason“.

Heimild:
-Stimplað gjafabréf EB.

Herdísarvík

Herdísarvík.

 

Kálffell

Í Nýja tímanum árið 1953 segir frá því er „Guðmundur Í. heimtaði beitiland Vatnsleystrandarbænda til skotæfinga fyrir herinn„, eins og segir í fyrirsögninni:

„Guðmundur Í. heimtar beitiland Vatnsleysustrandarbænda til skotæfinga fyrir herinn. Heiðin frá Grindavíkurvegi allt inn hjá Keili á að vera bannsvæði fyrir Íslendinga.

VogaheiðiGuðmundur Í. Guðmundsson, varnarmálanefndarmaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu og þingmaður Alþýðuflokksins, fer nú hamförum við að afhenda bandaríska hernum lönd Suðurnesjamanna.
Í júní í fyrra skýrði Nýi tíminn frá því að bandaríski herinn hefði gert kröfu til að fá til sinna umráða Reykjanesið frá Keflavíkurflugvelli allt suður til Grindavíkur, og síðan að fyrirhúgað væri að herinn teygði umráðasvæði sitt lengra inn eftir nesinu. Svæðið milli Grindavíkur og flugvallarins hefur bandaríski herinn haít til umráða síðan í fyrrasumar og það er nú einnig komið á daginn að umráðasvæði hersins sé teygt inn eftir skaganum.
Síðasta afrek Guðmundar Í. Guðmundssonar við að leggja lönd Suðurnesjamanna undir bandaríska herinn er það að afhenda hernum beitiland Vatnsleysustrandarbúa frá Grindavíkurvegi að vestan allt austur hjá Keili. Að norðan eru takmörkin skammt ofan við Vatnsleysustrandarbyggðina, að sunnan lína frá Skógfellinu austur með Fagradalsfjalli til Keilis.
Eins og skýrt er frá annarsstaðar í blaðinu er bandarískiherinn nýbúinn að afmarka bannsvæði á landi Vogamanna og hefur m.a. tekið skógræktarsvæði Suðurnesjamanna undir skotæfingar sínar.
En það var ekki aðeins að bandaríski herinn tæki skógræktarsvæðið heldur raðaði hann bannmerkjum sínum allt frá Stapanum og skammt fyrir ofan byggðina inn móts við vitann í Ásláksstaðahverfinu á Vatnsleysuströndinni. Til suðurs frá Stapanum var bannmerkjunum raðað fast við Grindavíkurveginn allt suður hjá Arnarsetri.

Guðmundur Í. í landvinningahug
VogaheiðiAð liðnum uppstigningardegi skrapp fréttam. Nýja tímans á fund Suðurnesjamanna til að kynna sér landvinninga Guðmundar Í. Guðmundssonar og bandaríska hersins. Jú, Vatnsleysustrandarbúar sáu það frá húsum sínum að komin voru merki nokkuð fyrir ofan sem bönnuðu þeim að stíga fæti sínum ofan við vissa línu.
Fyrir um það bil mánuði lét Guðmundur Í. Guðmundsson, sýslumaður og alþingismaður einn starfsmann embættis síns spyrja Vatnsleysustrandarbúa um landamerki og hreppamörk. Hvers vegna var Guðmundi Í. allt í einu orðið svona annt um landamerki? Jú, elsku Kaninn þurfti að fá meira land undir skotæfingar. Og Guðmundur Í. var þjónustusamlegast reiðubúinn að heimta meira land af Suðurnesjamönnum handa bandaríska hernum. Það var hersir.s að skipa — Suðurnesjamanna að hlýða.
Forsvarsmönnum Vatnsleysustrandarbúa var tjáð að land það sem bandaríski herinn hefði nú litið girndarauga væri í línu frá Litla-Skógfelli (sem er á leiðinni til Grindavíkur) til Keilis og frá suðausturenda Stapans einnig til Keilis. Var Vatnsleysustrandarbúum boðið að tilnefna fulltrúa sinn við landaafsal þetta og skyldi hann sitja í gerðardómi til að meta leigu fyrir landið.

Vilja ekki afsala landi
VogaheiðiÞegar landeigendur á Vatnsleysuströndinni ræddu þetta mál kom strax fram það sjónarmið að neita þessari landakröfu. Völdu þeir sem málsvara sinn mann af Vatnsleysuströndinni, sem nú er búsettur í Rvík. Hann neitaði hinsvegar að eiga þátt að landaafsali þessu og setjast í slíkan gerðardóm.
Til að byrja með var Vatnsleysustrandarbúum tjáð að elsku Kaninn þurfi land þetta ekki nema haust og vor, 6 vikna tíma á vorin, jafnlengi á haustin. Þyrftu bændur að smala búsmala sínum brott, — og reka hann hvert?!

Herinn setur upp bannmerki
Fyrir fáum dögum kom svo bandaríski herinn á vettvang og raðaði upp bannmerkjum sem á var letrað: ?
Bannmerki þessi setti hann upp frá útvarpsstöðinni sinni alræmdu á Stapanum og fast með Grindavíkurveginum suður móts við Arnarsetur, skammt frá í Stóra-Skógfelli, en línan þaðan til Keilis liggur fast við norðurhlíð Fagradalsfjallsins.

Beitilandið tekið

Vogaheiði

Sprengja í Vogaheiði.

Samskonar merki setti herinn upp fast við Keflavíkurveginn fyrir ofan gamla herspítalagrunninn austast á Stapanum. En frá austurenda Stapans var merkjalínan ekki í stefnu á Keili, eins og upphaflega hafði verið látið í veðri vaka, heldur þvert á móti inn ströndina í átt til Hafnarfjarðar, skammt fyrir ofan Vatnsleysustrandarbyggðina — innsta merkið. sem frá veginum sást ofan við Ásláksstaðahverfi. Hvað langt inn eftir ströndinni að fyrirhugað er að herinn teygi sig hefur enn ekki verið uppskátt látið.

Skrýtinn feluleikur

Vogaheiði

Landhelgisgæslan og Varnarliðið í sprengjuleit (VF 12. október 2004).

Þegar fréttamaður Nýja tímans leit þarna suður eftir í fyrradag voru öll bannmerkin þar sem þau höfðu upphaflega verið sett af herraþjóðinni, og eru meðfylgjandi myndir sýnishorn af þeim. Síðan skrapp fróttamaðurinn til Grindavíkur, en þegar hann kom til baka eftir skamma viðdvöl í Grindavík höfðu merkin, er áður stóðu fast við veginn til Grindavíkur, verið færð nokkurn spöl austur í hraunið.

Vogaheiði

Sprengja úr Vogaheiði.

Aðeins eitt merki stóð enn uppi, var það rétt við veginn austan við Seltjörnina, þ.e. í lægðinni milíi hraunsins og Stapans. En um sama leyti komu þar Bandarikjamenn í bíl, hljóp einn þeirra út úr bílnum, réðist á merkið og fleygði því niður fór svo inn í bílinn aftur!
— Hin merkin höfðu verið flutt þangað sem þau voru ekki eins áberandi frá veginum! Þar á ekki að slaka til.
Merkin sem áður voru uppi á Stapanum höfðu einnig verið felld, en þótt merkin við Grindavíkurveginn hefðu verið færð, þá var bannmerkjalínan inn ströndina ófærð með öllu. Þar virtist ekki ætlunin að hopa hið minnsta. Guðmundur Í. Guðmundsson Bandaríkjafógeti virðist ekki geta hugsað sér að færa það bannsvæði hóti fjær byggðinni.

Verða þeir hraktir brott?

Vogaheiði

Yfir átta hundruð sprengjur hafa fundist við leit á fyrrverandi skotæfingasvæði bandaríska hersins á Vogaheiði á Reykjanesi í sumar og fyrrasumar (Mbl. 10.08.2004).

Vatnsleysustrandarbúar tóku sauðfé aftur á sl. hausti. Auk þess eiga þeir hross og kýr.
Landið sem Guðmundur Í. og bandaríski herinn hafa nú gert að bannsvæði fyrir þá er beitilandið fyrir búsmalann. Auðvitað tekur enginn mark á því að herinn noti ekki landið nema nokkrar vikur haust og vor. En segjum að svo væri. Hvar eiga bændurnir að geyma búsmala sinn á meðan herinn rótar upp beitilandinu með byssum sínum?
Hver vill eiga búfé sitt á skotæfingasvæði hers? Og hver vill smala skotæfingasvæði (þótt herinn heiti því að skjóta ekki rétt á meðan)?
Allt fram á þennan dag hafa verið að finnast ósprungnar sprengjur frá skotæfingum er fram fóru á stríðsárunum, og oft hafa hlotizt af þeim slys. Á sú saga nú að endurtaka sig? Með því að taka beitiland Vatnsleysustrandarbúa undir skotæfingar hersins, gera það að bannsvæði fyrir bændunum sem þarna búa er ekki annað sýnilegt en ætlunin sé að hrekja þá á brott af jörðum sínum; — en um þetta verður meira rætt síðar.“

Heimild:
-Nýi tíminn, 19. tbl. 21.05.1953, Guðmundur Í. heimtar beitiland Vatnsleystrandarbænda til skotæfinga fyrir herinn, bls. 2 og 11.

Vogaheiði

Frétt í Nýja Tímanum 21.05.1953.

Húshólmi

„Nokkuð hefur verið skrifað um Húshólma og þær hamfarir sem þar dundu yfir þegar Ögmundarhraun brann, sem sá er þetta ritar telur að hafi gerst um miðja 16. öld samkvæmt þeim upplýsingum sem finna má í sögu þjóðarinnar og þá ekki síst í ferðabókum Eggerts og Bjarna og fleiri góðra manna frá nefndu tímabili. Ennfremur má benda á bráðsnjalla grein eftir dr. fil. Sveinbjörn Rafnsson. Finnst mér og eðlilegt að birta hér onjrétta grein eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi, ekki síst vegna þess að hún er það elsta sem skráð hefur verið um þær hamfarir náttúrunnar, sem þá gengu yfir nefnt landsvæði, og elsta lýsing á þeim skemmdúm, sem þá urðu í Krýsuvíkurlandi vegna þeirra hamfara.
husholmi-221Árið 1903 sendi Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi frá sér ítarlega greinargerð á vegum Fornleifafélagsins, þar á meðal fyrstu lýsingu á viðhorfum til Húshólma eftir þær miklu hamfarir er þar riðu yfir við eldgos. Hann segir: „Krýsuvík hefir til forna staðið niður undir sjó fyrir vestari endann á Krýsuvíkurbergi. Nafnið Krýsuvík bendir á það. Engum hefði dottið í hug að kenna bæinn við vík, ef hann hefði fyrst verið settur þar sem hann er nú. En þar sem hann stóð fyrst hefir þetta átt við og svo hefir nafnið haldist, er hann var fluttur. Hraunfióð það, sem á sínum stað er nefnt Ögmundarhraun, hefir eyðilagt hinn forna bæ. Sjást þess glögg merki. Þá er hraunflóðið er komið ofan fyrir hálsana, breiðir þaðsig um allt undirlendið vestur að ísólfsskála, sem nú er austasti bær í Grindavík. Er þar hvergi auður blettur nema aðeins tveir hólmar austan til í hrauninu. Heitir hinn vestri Óbrennishólmi. Hann er kippkorn frá sjó, austan til niður undan múla þeim í hálsunum, sem Núphlíð heitir. Eystri hólminn heitir Húshólmi. Hann er niðri við sjó skammt fyrir vestan bergið. Er hraunkvíslin fyrir austan hann tiltölulega mjó. En runnið hefir hún fram í sjó fyrir austan hann, og það hefir aðalflóðið einnig gjört fyrir vestan hann, hafa svo runnið saman í fjörunni fyrir framan hann, og sést sjávarkamburinn innanvið hraunið á nokkrum parti neðst í hólmanum.
obrennisholmi-221Að ofanverðu er hólminn hærri. Þar virðist hafa verið hæð, sem hraunið hefir flotið fram á og klofnað um. Svo lækkar hann allt í einu, en breikkar þó um leið austur á við, en að vestan gengur hraunið þar heldur inn í hann. Þar undan hraunjaðrinum kemur forn túngarður, er liggur kringum allstórt svæði, en hverfur aftur í hraunið hiðúr frá eigi langt frá vesturenda sjávarkambsins, sem nú var getið. Annar garður kemur undan hraunjaðrinum nokkru neðar en hinn og stefhir í suðaustur. Hann beygist suður á við og gengur gegnum hinn fyrra garð skammt fyrir ofan sjávarkambinn. Er þar hlið á hinum fyrra. Svo heldur þessi síðar taldi áfram að sjávarkambinum og hverfur þar. Er þar sem gata sé rudd gegnum kambinn, líklega sjávargata; er hér eigi allbrimsamt og mun hafa verið útræði. Fyrir neðan þennan síðartalda garð verður afhallandi brekka ofan að neðri hraunjaðrinum. Liggur þriðji garður þar ofan frá neðra garðinum að neðra hraunjaðrinum og hverfur undir hann. Þannig sér hér á fjórar aðskildar girðingar, er allar hverfa að meira eða minna leyti undir hraun. Engin tóft sést í neinni þessari girðingu, svo að, ef sín girðing hefir tilheyrt hverju býli, þá eru tóftir þeirra hrauni byrgðar. Vestur úr útsuðurhorni hólmans gengur graslág milli tveggja hraunjaðra. Er hún eigi breiðari en svo að eigi má ríða 2 hestum samsíða. Þegar samt er komið vestur í hraunið, hvíslast hún í tvær lágar. Þær heita Kirkjulágar. Þar eru rústir. Verður fyrst fyrir tóft, sem snýr frá austri til vesturs, nál. 4 faðma löng og 2 faðmá breið. Dyr eru á vesturenda, jafnvíðar og tóftin sjálf. Mun þar hafa verið þil fyrir. Norðanmegin við þessa tóft, tæplega 2 faðma frá henni, er garður, sem beygist austur fyrir hana og hverfur þar undir hraunið, en að vestan endar hann í tóftarvegg. Er sú tóft fyrir dyrum hennar, nálægt jafnstór henni og hggur frá norðri til suðurs. Dyr hennar hverfa undir hraunjaðarinn að sunnanverðu. Vestanvið hana dýpkar lágin að mun, en er þar ekki víðari en svari tóftarvídd. Sé það tóft, hefir þar líklega verið kjallari, en hleðslan hrunið. Frá norðausturhorni þvertóftarinnar gengur garður eftir norðurláginni, fyrst beint í norður nál. 12 faðma, svo beint í vestur nær eins langt og hverfur svo í hraunið. Utan með þessum garði er svo sem gangrúm hraunlaust, og er það norðurkvísl Kirkjuláganna. Lítur út fyrir, að hér hafi hraunið sigið að með hægð frá báðum hliðum. Svo sem 40 föðmum norðar í hrauninu er auður vesturhluti rústar, sem auðsjáanlega er husholmi-222bæjarrúst. Hefir hún verið þrískift. Miðtóftin snýr frá norðri til suðurs og eru dyr á suðurenda og aðrar á vesturveggnum, inn í vesturtóftina. Inn af miðtóftinni virðist og hús hafa verið, sem er hrauni hulið  allt að kalla. Miðtóftin nál. 2 faðma löng og 1 faðma víð. Vesturtóftin er jafnvíð og hin er löng, nál. 2 faðma en nál. 5 faðmar á lengd. Hún er merkileg að því| að með báðum veggjum, eftir henni endilangri, eru 1 álnar breið set eða rúmstæði og markar glöggt fyrir veggjunum þar utanvið. Austasta tóftin er nær öll hrauni hulin. Þó sýnist sem útidyr hafi verið á henni fyrir austan útidyr miðtóftarinnar. Hvergi er hraunlaus blettur kringum þessa rúst, og ekki verður komist að henni nema á hrauni.

Nafnið Kirkjulágar bendir á, að hér hafi kirkjustaðurinn Krýsuvík verið. Getur vel verið, að sú tóftin í syðri láginni, sem fyrst var talin, sé einmitt kirkjutóftin. Hefir heimabærinn þá víst verið þar líka. Rústin uppi í hrauninu er þó ekki eftir smákot. Hygg ég að heimabæir hafi verið tveir, Efribær og Fremribær, og kirkjan hafi verið hjá Fremri-bænum. Eftir afstöðu að dæma, hafa girðingarnar, sem fyr getur, eigi veríð tún þessara bæja, heldur annarra afbýla, sem þá eru hrauni hulin. Og hver veit, hve mörg býli kynnu að vera horfin þar.
Í Óbrennishólma sjást engar rústir, utan aflangur hringur, vel 5 faðmar í þvermál á hól einum, og er það án efa fjárborg. Og þar litlu vestar liggur langur og breiður garður þvert upp eftir. husholmi-223Slitinn er hann sundur sumstaðar nú, en eigi mun svo hafa verið í fyrstu. Á einum stað hverfur hann t.d. undir hraunsnef, en kemur undan því aftur hinum megin. Efst hverfur hann undir hraunsnef. Tilgangur garðs þessa er mér óljós, nema hann hafi verið landamerkjagarður miUi Krýsuvíkur og næstu jarðar fyrir vestan. Er það ekki vafamál, að á því mikla undirlendi, sem þar er hrauni þakið, hafa bæir verið, ef til vill eigi allfáir; Með hlíðinni vestanundir Krýsuvíkurhálsum hefir að öllum líkindum verið fögur bæjarröð. Austast er hlíðin hæst og myndar múla með klettabelti að ofan. Er þar upp af fjallshryggur, sem heitir Núphlíð. Er líklegt að bær hafi verið undir múlanum og heitið Núpur og hlíðin fyrir ofan Núpshhð, en síðan verið fellt úr, til að gera orðið mýkra í framburði. Og hver veit nema bærinn hafi heitið Núpshlíð (= Gnúpshlíð), og hafi Gnúpur Molda-Gnúpsson búið þar. Grindavík gat nefnilega ekki með réttu heitið vík, nema hún væri tahn frá Reykjanesi austur að Selatöngum að minnsta kosti. En þá hefði landnám Gnúps getað náð austur undir Núpshlíð. Um þetta veit enginn neitt, og er ekki til neins að fara lengra út í það.“ – Ólafur Einarsson

Heimild:
-Dagblaðið – Vísir, Ólafur E. Einarsson, 4. september 1989, bls. 41.

Húshólmi

Húshólmi – uppdráttur ÓSÁ.

Þingvellir

Klukkustígur liggur í sigdældinni sem er á mótum meginlandsfleka Evrópu og Ameríku. Óvíða sjást skilin betur hér á landi en einmitt þarna.
KlukkustígurEnn í dag má rekja stíginn í gegnum skógi-og lyngivaxið Þingvallahraunið. Að vísu hefur áhugasamt skógræktarfólk gleymt sér í ákefðinni og plantað beint ofan í stíginn á kafla, en úr því má enn bæta.
Klukkustígur var fyrrum aðalþjóðleið austanfara inn á Þingvöll og jafnvel lengra. Á þjóðveldisöld voru hins vegar ekki eingöngu þeir sem áttu lögskipað erindi til Alþingis sem þangað lögðu leið sína. Í hinni fornu lögbók Grágás eru nefndar búðir sútara og sverðskriða og í mörgum Íslendingasögum er getið búða ölbruggara og veitingamanna á Alþingi. Þann tíma sem Alþingi stóð yfir var það miðstöð þjóðlífs og einskonar höfuðstaður landsins þangað sem almenningur sótti. Þangað komu iðnaðarmenn og kaupmenn innlendir sem erlendir, fulltrúar erlendra þjóðhöfðingja, fólk í atvinnuleit og betlarar í leit að ölmusu. Kauphéðnar, sverðskriðar og sútarar buðu Þórhallastaðir og Skógarkot framundanfram varning sinn og ölgerðarmenn sáu um að þingheimur gæti vætt kverkarnar. Fréttir voru sagðar úr fjarlægum heimshlutum, kappleikir háðir og veislur haldnar. Æskufólk réð ráðum sínum ekki síður en þjóðskörungar og lögvitringar. Það má því segja að mikið hafi verið um að vera í þessari miðstöð þjóðlífsins um alllangt skeið.
Þeir sem sóttu þing þurftu að leggja á sig erfið ferðalög til að komast til Þingvalla hvert sumar. Sumir áttu einungis um 1-2 daga reið meðan aðrir voru um 14-17 daga á leiðinni yfir fjöll og eyðisanda á hálendi Íslands. Þingvellir lágu vel við fornum leiðum, mitt á milli helstu héraða sunnanlands og vestan, vart nema dagleið ríðandi mönnum. Úr fjölmennustu byggðum norðanlands, Húnaþingi, Skagafirði og Eyjafirði lágu torfærulitlir vegir á þing. Norðlendingar eystri og jafnvel Austfirðingar völdu fjallvegi þvert yfir landið en lengsta þingsókn áttu menn úr sunnanverðu Múlaþingi. Líklegt má þykja að þeir hafi flestir farið um Klukkustíg.
Höfðingjar og hirðfífl, fangar og förumenn fetuðu Skógur framundanKlukkustíginn fyrrum. Nú fara hann einungis fáir ferðamenn. Stígurinn er hins vegar ómerktur og því meiri líkur á en ella að hann hverfi smám saman í gróður.
Þegar gengið er um Klukkustíg er hvað áhrifaríkast að virða fyrir sér landssig og umhverfismótun svæðisins með hliðsjón af hreyfingu jarðskorðunnar. Þingvallasvæðið er hluti flekaskila Atlantshafshryggjarins sem liggja um Ísland. Hér má glögglega sjá afleiðingar gliðnunar jarðskorpunnar í gjám og sprungum svæðisins.
Sigdældin er hluti af virku eldgosa- og sprungusvæði sem nær utan frá Reykjanesi norður í Langjökul. Ytri mörk þess eru við Súlnaberg í Botnssúlum og austur á Lyngdalsheiði og Laugarvatnsfjalli. Á Suðurlandi jagast flekarnir hvor framhjá öðrum en á Þingvöllum færast þeir í sundur og spilda á milli sígur. Fjarri flekaskilunum er hreyfingin jöfn, 2 cm á ári en á þeim sjálfum safnar bergið spennu á löngum tíma sem síðan losnar í umbrotahrinum þegar brotamörkum er náð. Síðast Í Skógarkotigekk slík umbrotahrina yfir Þingvallasvæðið vorið 1789. Þá gekk 10 daga jarðskjálftahrina yfir Þingvelli. Við þá seig landið milli Almannagjár og Hrafnagjár um tæpa 2 m, mest í sigdældinni miðri.
Á þeim tíma sem liðinn er síðan hraunið rann nemur landsig um gjárnar samanlagt um 40 metrum en gliðnum um 70 metrum.  Telja má víst að landslag á þingstaðnum sé talsvert breytt nú frá því sem var þegar þinginu var valinn staður.
Hið stöðuga landsig hefur valdið ágangi vatns upp í þinghelgina. Frá því að Alþingi var stofnað árið 930 má gera ráð fyrir að sigið nemi upp undir 4 metrum.
Vatnságangur og landsig hafði áhrif á þingstörfin en talið er að Þingvallakirkja hafi verið flutt á 16.öld þangað sem hún er nú.  Lögrétta var færð úr stað 1594 því þá hafði hún einangrast á hólma í Öxará.
Við landsigið 1789 fór nokkuð af túni á Þingvöllum undir vatn, gjár opnuðust í og kringum túnið svo ekki var óhult fyrir gripi, og almenningsvegurinn yfir Öxarárósinn og meðfram Hallinum fór á kaf.  Þinghald var í kjölfarið lagt niður á Þingvöllum og flutt til Reykjavíkur.
Í Vatnskoti nærri miðri sigdældinni hefur landsigið 1789 mælst um 2 og hálfur metri.  Þar fór stór hluti af túninu undir vatn.  Land mun halda áfram að síga á Þingvöllum með fyrirsjáanlegum ágangi vatnsins og árinnar á bakkana og þingstaðinn forna en enginn veit hversu langt er þar til næsta umbrotahrina skellur á með tilheyrandi landsigi.
Klukkustígurinn liggur gjarnan með lægðum og í gróanda. Á stöku stað fer hann yfir lágar klappir, en alla leiðina er hann tiltölulega greiðfær – utan þeirra plantna er komið hefur verið fyrir af óvitaskap í götunni. Björn Th. Björnsson segir í bók sinni „Þingvellir“ að „með því að hreinsa upp þessa götu og merkja væri fornri Þingvallaheimild bjargað, – því heimildir eru ekki einasta í bókum, heldur skrifuðu hestshófar og mannsfætur einnig sögu landsins“.
Frábært veður. Gangan tók 1 klst og 11 mín.

Heimild m.a.:
-www.thingvellir.is
-Björn Th. Björnsson, Þingvellir – 1994, bls. 155
.

Þingvellir

Frá Þingvöllum.

 

Hlíð

Refagildrur eru nokkuð misjafnar að gerð en oftast grjóthlaðnir stokkar eða kassar sem hellur hafa verið lagðar yfir og grjóti jafnvel hlaðið þar ofan á. Agn var látið inn í gildruna og tófan þannig tæld inn en þá lokaðist stokkurinn með þar til gerðum lokubúnaði.
RefagildraTalið er að fyrstu gerð refagildra hafi komið með norrænum landnámsmönnum frá Noregi. Þar hafa fundist sambærilegar gildrur og hér á landi.
Refagildrurnar voru hlaðnar úr hellum þannig að þegar tófan ætlaði að sækja agn sem var inni í gildrunni féll dyrahellan aftur og lokaði dýrið inni.
Fyrir u.þ.b. 30 árum þótti það sérstökum tíðindum sæta að hlaðin refagildra fannst á Norð-Austurlandi. Embættismenn úr Reykjavík gerðu sér ferð norður til að líta fyrirbærið augum. Eftir miklar vangaveltur og pælingar kom út skýrsla um þessar svo merkilegu mannvistarleifar.
RefagildranÁ sama tíma mátti  lesa í örnefnalýsingum bæja á Reykjanesskaganum að þar hefðu verið til sambærilegar mannvistarleifar frá löngu liðnum tíma. Fáir virtust hafa sérstakan áhuga á því.
Eftir að FERLIR fór að leita skipulega að mannvistarleifum á Reykjanesskaganum hafa verið staðsettar um 90 hlaðnar refagildur í misjöfnu ástandi. Sumar eru alveg heilar og nánast ósnertar á meðan öðrum hefur verið raskað. Nýjasta refagildran (og varla sú yngsta) fannst nýlega austan við Hlíð í Selvogi. Hún er á lágu klapparholti og snýr opið til norðurs. Gildran, sem er mjög heilleg, fellur mjög vel inn í umhverfið. Nú er hún orðin bæði mosa- og skófvaxin svo mjög erfitt er að koma auga á hana í landinu.

Heimildir m.a.:
-www.instarch.is/instarch

Hlíð

Hlíð – uppdráttur.

Anson

Á Núpafjalli eru margar herminjar. Fjallið stendur á hálendisbrúninni fyrir ofan Ölfusið 313 metra yfir sjávarmáli, en rís einungis um 50 metra yfir heiðina og er því mun myndarlegra austan frá séð og mikill útsýnisstaður. Fljótlega er komið að vegamótum. Liggur vegur til hægri en rofnar fljótlega og er þar alveg ófært. Vegur þessi lá vestur af fjallinu, niður í dalkvos. Sjást þar leifar af mörgum byggingum. Þarna var herkampur á stríðsárunum. Hermennirnir höfðu eftirlit með veginum yfir Hellisheiði en á fjallinu voru loftvarnabyssur til að verja flugvöllinn í Kaldaðarnesi.

Anson

Anson.

Núpafjall er í raunini brött hlíðarbrekka austan í Hellisheiði, vestan við Hveragerði. Hafa hraunflóð runnið þar niður um nær 240 m háa hlíðina. Kambavegur þótti fyrrum allglæfralegur. Fyrst var lagður vegur um Kamba árið 1879 en núverandi vegur var opnaður 1972. Suður frá Kömbum er þverhnípt hamrabrún, Núpafjall. Kambabrún er nyrst í því. Af brúninni er víð og fögur útsýn austur yfir Suðurlandsundirlendið og til Vestmannaeyja. Þar er hringsjá.
Samkvæmt nákvæmum upplýsingum átti flak C64 herflugvélar að vera 3 km suðvestan við Núpafjall. Sú vél var sögð hafa verið á leið frá Vestmannaeyjum er hún hvarf. Þrátt fyrir leitir og eftirgrennslan fundust engin ummerki flugvélaflaks á þeim slóðum. Fræðimenn könnuðust heldur ekki við slysið. Það er hins vegar skráð í bækur ameríska hersins þann 22. okt. 1944 um kl. 15:00. Fjórir farþegar og flugmaður fórust.

Skálafell

Skálafell – kort.

Vestan við Núpafjall á hins vegar að vera flak, við rætur Skálafells, sunnan Hverahlíðar (Tröllahlíðar). Í Mbl. 9. mars 1948 er sagt frá hvarfi Anson-flugvélar í eigu Loftleiða er var á leið frá Vestmannaeykum til Reykjavíkur. Tveimur dögum síðar fannst flakið með dularfullum hætti. Flugvélin mun hafa borið einkennisstafina TF-RVL og var með sjólendingarbúnað.
Ferlir hefur varið nokkrum tíma að leita að flugvélaflaki suðvestan við Núpafjall. Sagan segir að herflugvél hafi hrapað „tvær mílur frá Núpafjalli“. Samkvæmt flugslysaskýrslu átti þar að hafa verið um C-64 vél að ræða og allir í áhöfninni, flugmaður og fjórir farþegar, farist. Þrátt fyrir eftirgrennslan um brak á þessu svæði fannst lítið af því. Menn, kunnugir á svæðinu, könnuðust heldur ekki við brak á svæðinu suðvestan við Núpafjallið. Vænlegast var talið að leita á svæðinu suðvestur af fjallinu, en þar hefði einhverju sinni sést brak úr flugvél.

HverahlidLeitað var til Björns Pálssonar, héraðsskjalavarðar á Sefossi. Hann vísaði á Tómas Jónsson, fyrrverandi lögreglumann á Selfossi. Tómas er frá Þóroddsstöðum sem ætti að vera skammt frá uppgefnum slysstað.
Tómas sagðist hafa haft mikinn áhuga á flugsögunni. Ef einhver flugvél hafi farið niður á umræddu svæði hefði það varla farið framhjá honum. Hins vegar hefði Anson flugvél frá Flugfélagi Íslands farist að vetrarlagi, sennilega árið 1947, í Tröllahlíð syðst í Hverahlíð skammt ofan við Kambana. Sá staður er vestur frá Núpafjalli.

Anson

Anson – frétt í mbl. 9. mars 1948.

Flugvélin, sem var níu manna, var að koma frá Vestmannaeyjum. Allir í vélinni fórust.
Ekkert hafði spurst til flugvélarinnar í 2-3 daga þegar mjólkurbílsstjóri, taldi sig knúinn til að stöðva við vegbrúnina af einhverri ástæðu, sennilega vegna þreytu eða syfju. Hann gekk spölkorn frá bílnum í svarta þoku – og kom þá beint að vélinni. Flugfélagið hefði átt tvær svona vélar á þessum tíma.

Þá var farið að gramsa í gömlum gögnum. Fyrst varð fyrir leiðari MBL frá 30. janúar 1947 er bar yfirskriftina „Flugslysin“. Í honum segir m.a. að „hin tíðu flugslys, sem orðið hafa víðsvegar um heim undanfarið hafa vakið mikla athygli hjer á landi sem annarsstaðar. leið menn getum að, hvað valdi þessum óhöppum, en eiga að sjálfsögðu erfitt með að komast að niðurstöðu um orsakirnar.

Skálafell

Skálafell.

Sennilega hefur tækninni ekki fleygt eins örhratt fram á nokkru sviði og í flugmálunum á styrjaldarárunum. Í þeime fnum hefir orðið hrein bylting. Flugtækin hafa stækkað, orðið hraðgengari og búin hinum fullkomnustu tækjum. En þrátt fyrir hin fullkomnu tæki geta slysin hent. Þarf raunar engan að undra þess. Fáir geta víst gert sjer von um að þeirri fullkomnan verði náð í smíði eða stjórn farartækja, hvort sem er á láði, legi eða í lofti að öll slysahætta verið útilokuð.
Hjer á landi hafa miklar framfarir orðið í flugmálunum síðustu árin.

Hverahlid-2

Á slysstað.

Landsmenn hafa eignast 20 flugvjelar og marga ágæta flugmenn. hefur samgöngum þjóðarinnar orðið mikil bót að hinum aukna flugvjelakosti.
Þróun íslenskra flugmála hefir verið traust og örugg. Mjög fá slys hafa orðið á flugvjelum og örfá á farþegum þeirra… Reynsla Íslendinga í flugmálunum er orðin nokkur. Á grundvelli hennar má búast við miklum umbrótum og auknu öryggi á næstu árum.“
Í Mbl. þann 9. mars 1948 er svo fréttin af hvarfi Anson flugvélarinnar fyrrnefndu. Fyrirsögnin er þessi: „Flugvjelar með fjórum mönnum saknað frá því á sunnudag. Árangurslaus leit í allan gærdag.“

Hverahlid-4

Á slysstað.

Í fréttinni kemur fram að „farþegaflugvjel, frá Loftleiðum, sem var á leið frá Vestmanneyjum til Reykjavíkur s.l. sunnudag hefur ekki komið fram. Var vjelarinnar leitað í allan gærdag af leitarmönnum sem fóru um Reykjanesfjallgarð, Henglafjöll og víðar. Ennfremur var leitað í flugvjelum og skip fyrir suðurströndinni leituðu einnig árangurslaust. – Í vjelinni voru þrír farþegar, Þorvaldur Hlíðdal verkfræðingur hjá Landssímanum, Árni Sigfússon útgerðarmaður í Vestmannaeyjum og Jóhannes Long verkstjóri frá Vestmannaeyjum. Flugmaður var Gústaf A. Jónsson hjeðan frá Reykjavík.

Hverahlid-3

Á slysstað.

Flugmaðurinn hafði talstöðvarsamband við flugturninn hjer á Reykjavíkurflugvelli laust eftir að hann fór frá Vestamannaeyjum, en það var rjett fyrir klukkan 6 e.h. á sunnudag. Var vjelin þá stödd við Þjórsárósa og flaug í 1500 feta hæð. Flugmanninum var sagt, að hjer í Reykjavík væri skyggni sæmilegt. Sagðist hann myndi fljúga yfir skýjum til Reykjavíkur í 3000 feta hæð og fara yfir Hellisheiði. Var flugvjelin stödd við Eyrarbakka er flugmaðurinn hafði síðast talsamband við flugstjórnina í turninum.
Vjelin hafði bensín til fjögra klukkustunda flugs og hefði því getað verið á flugi til klukkan tæplega 10 eða þar um bil.

Hverahlid-5

Á slysstað.

Eftir það heyrðist ekkert til hennar, en það þykir fullvíst, að einhverra hluta vegna hafi flugmaðurinn hætt við þá ákvörðun að fljúga vestur yfir Hellisheiði og snúið við til að fara um Þingvelli og Mosfellsheiði. sennilega talið, að þar myndi verða bjartara.
En það, sem undarlegt er við það, er að flugmaðurinn skuli ekki hafa tilkynnt flugturninum slíka breytingu á áætlun sinni.

Það styrkir þessa hugmynd, að um 6 leytið sást flugvjelin yfir Ölfusi og stefndi hún þá í áttina að Ingólfsfjalli, eða norðaustur. Sáu menn, sem voru efst í Kömbum, neðst í þeim og frá bæ í Ölfusi flugvjelina á þessum sama tíma.
þegar flugvjelin kom ekki fram er líða tók á kvöldið var við og við skotið ljósblysum hjer á vellinum til þess, að beina flugmanni á völlinn ef ske kynni að hann væri á sveimi yfir Reykjavík og sæi ekki til að lenda. Um leið var haldið uppi spurnum um vjelina í austursveitum.

Hverahlid-6

Á slysstað.

Um klukkan 9.30 bárust frjettir frá Hvolsvelli um, að þaðan sæjust ljós í suðurátt, annað hvort á Landeyjarsandi, eða úti á sjó. Var þá hringt til bæjar, sem Hali heitir og menn fengnir til að leita með ströndinni. Þeir töldu sig einnig sjá ljós til hafsins. Var varðskipið Ægir þá fengið til að leita með ströndinni, en ekki bar sú leit neinn árangur.
Strax í birtingu í gærmorgun fóru flugvjelar hjeðan frá Reykjavíkurflugvelli og björgunarflugvjel frá Keflavík til að leita. Var sú leit erfið vegna dimmviðris…

Eins og áður er sagt, er flugvjelin sem saknað er af Avro-Anson gerð. Keypt hingað frá Kanada og hefir verið í eigu Loftleiða um eitt ár. Er þetta yngri flugvjelin af tveimur af sömu gerð. Flugvjelin hefir tvo hreyfla.“

Skálafell

Skálafell – slysstaðurinn.

Í Mbl. þann 11. mars birtist eftirfarandi fyrirsögn: „Flugvjelarfalkið fannst í Skálafelli – Mennirnir í henni fórust við áreksturinn. Í fréttinni kemur fram að „laust eftir hádegi í gær, fannst flak Anson flugvjelarinar, sem hvarf s.l. sunnudag á leiðinni frá Vestamannaeyjum til Reykjavíkur. Flakið var við rætur Skálafells á Hellisheiði. Í um það bil kílómeters fjarlægð frá veginum. Sprenging hefur ekki orðið er flugvjelin rakst á fellið. Við áreksturinn hefur hún mölbrotnað og allir, sem í henni voru látist samstundis.
Það var Sigmundur Karlsson bílstjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna, sem fann flakið. Sigmundur var á leið austur er hann gekk upp að stað þeim í Skálafelli, sem flak flugvjelarinnar var.

Hverahlid-7

Á slysstað.

Sigmundur hélt til bílsins og ók sem mest hann mátti niður í Hveragerði. Þar gerði hann Herbert Jónssyni símstöðvarstjóra aðvart. Herbert tilkynnti þegar um fund flaksins til Reykjavíkur.
Einnig gerði Herbert leitarflokki símamanna aðvart, en þeir voru að leita í sunnanverðu Skálafelli.
Það tekur um það bil 20 mínútur að ganga frá þjóðveginum og að slysstað. Tíðindarmaður blaðsins, er kom á slysstaðinn í gær lýsir því svo, hvernig þar var umhorfs.

Anson

Slysstaðurinn.

Þar sem flugvjelin hefur farist, þekur allskonar brak úr henni um það bil hektara svæði. Mest ber á hreyflum flugvjelarinnar, stýri og hluta af farþegarúmi. Annað hefur molast. Það má sjá þess greinileg merki, að vinstri vængur flugvjelarinnar hefur fyrst snert jörðina. Hefur hann rist jarðveginn upp á dálitlum kafla. – Síðan hefur skrúfan á vinstri hreyfli stungist í jörðina um það bil 50 cm niður og situr þar föst. Flugvjelin hefur svo endasenst upp eftir fjallshlíðinni og efst í henni liggur hluti af farþegaskýlinu. Rjett við það voru lík þeirra fjögurra manna, sem í flugvjelinni voru. Þau voru mikið sködduð, en öll þekkjanleg. Er talið að þeir muni allir hafa látist samstundis.“

Hverahlid-8

Á slysstað.

Viðtal var tekið við fyrrnefndan bílstjóra. „Það er næstum óskiljanlegt hvernig á því stóð, að Sigmundur Karlsson, bílstjóri, fann flugvjelina. – Tíðindarmaður blaðsins spurði Sigmund eftir þessu í gær og sagði hann svo frá:

– Svo bar til í fyrradag, er hann var á leið til Selfoss, og kominn á móts við þann stað, sem skemst var að flakinu, þá setti skyndilega að honum mikinn kulda og líkast því sem að líða mundi yfir hann. Þá einhvern veginn greip það hann, að þaðan myndi skamt að leita flugvjelarinnar. Ekki leitaði hann hennar í það skifti. En í gærdag er hann var á leið austur, og samstarfsmaður hans var með honum, þá bað hann þennan fjelaga sinn að ganga með sjer upp að fjallinu. Hinum fanst það einkennilegt því ekki gat hann frekar en aðrir sjeð neitt er bent gæti til þess að flugvjel væri í Skálafelli. En maðurinn fjellst svo á að ganga með Sigmundi. Gengu þeir beint á þennan stað, sem Sigmundur vildi kanna, en þar var flak flugvjelarinnar.“

Hverahlid-9

Á slysstað.

Eftir framangreinda rannsókn og efnisöflun var um fátt um annað að ræða fyrir FERLIR en að fara á staðinn og reyna að leita flaksins við rætur Skálafells.
Í fræðilegri útlenskri lýsingu af Avron-Anson flugvélinni (kanadísku útgáfunni) kemur m.a. eftirfarandi fram: „Avro Anson var sú flugvél sem mest var notuð af Konunglega kanadíska flughernum. Alls voru 4413 með því nafni notaðar á tímabilinu frá 1941 til 1954. Anson flugvélar á vegum einkaaðila voru mikið notaðar í norður Kanada til léttari flutninga og kannana, allt til 1969.
Flugvélin var upphaflega hönnuð fyrir sex farþega snemma á þriðja áratug aldarinnar. Árið 1936 var vélin notuð til að leita uppi kafbáta og fékk þá viðurnafnið „Faithful Annie“. Þegar Síðari heimstyrjöldin braust út var Avro Anson aðallega notuð til æfinga og þjálfunar.

Anson

Avro Anson 1943.

Árið 1939 var Avro Anson valin af BCATP (British Commonwealth Air Training Plan) sem besta tveggja hreyfla flugvélin. Það leiddi til mestu fjöldaframleiðslu flugvélar í Kanada fyrr og síðar. Avro Ansonin var án þæginda. Hún var hægleyg, köld og hávaðasöm.“
Þegar komið var á vettvanginn í Tröllahlíð 58 árum síðar bar fátt fyrir sjónir nema niðdimm þoka og skemmtilega lárétt rigning. Það birti þó fljótlega og rigningin hvarf á braut. Við tók fagurt útsýni (þegar ekki var horft í áttina að rafmagnsmöstrunum á Hellisheiði) með dularfullu birtuívafi.
Gengið var með allri Hverahlíðinni, en ekki sást tangur né tetur af flugvélinni. Líklega er hennar annað hvort að leita á hraunsléttunni milli gamla vegarins og hlíðarinnar eða uppi í hlíðum Skálafells. E
f einhver, sem þetta les, veit hvar leifarnar er að finna, væru upplýsingar um staðsetninguna vel þegnar (ferlir@ferlir.is).

Hellisheiði

Hellisheiði – skjól refaskyttu.

Í göngunni var komið að hlöðnu skjóli refagildru í Orrustuhólshrauni og í ljós kom að Skógarvegur er ranglega teiknaður inn á landakort. Hann var gengin frá Hverahlíðarendanum (Hlíðarhorni) austanverðum upp fyrir gamla þjóðveginn á Hellisheiði. Á a.m.k. tveimur stöðum er gamla gatan mörkuð í slétta hraunhelluna, en mosinn hefur víða náð að þekja hana.
Skógarvegur gekk líka undir nafninu „Skógarmannavegur, frá þeim tíma, er Hjallamenn sóttu skógarnytjar í Nesjaskóg í Grafningi. Einnig hefur hann verið nefndur Suðurferðagata.
Gangan tók 3 klst og 3 mín. 

Hverahlid-11

Slysstaðurinn úr fjarlægð.

Eftir að framangreint birtist á vefsíðunni barst FERLIR eftirfarandi skeyti: „Halló Ferlirsfólk. Ég var að lesa grein frá ykkur um gönguferðir um Hverahlíð sunnan Hellisheiðar og leit að flugvélarflökum þar. Þegar ég var strákur í Hveragerði þá fór maður í gönguferðir um Hellisheiði og nágrenni og þekkti þar nánast hverja þúfu.
Ansonvélin sem fórst austarlega í Hverahlíðinni ætti líka að vera auðfundin. Hún er um 15 mínútna gang frá gamla þjóðveginum. Þegar búið var að rannsaka þar allt sem þurfa þótti fóru menn frá Flugmálastjórn á slysstaðinn og tíndu saman allt brakið (vélin var með trégrind og dúkklædd) og kveiktu í því öllu nema hreyflunum, þeir töldust of þungir til að velta þeim á bálið enda líklega 60 – 80 metrar á milli þeirra. Svo merkilega vildi til að við vorum 2 strákar að fara að flakinu í annað sinn þegar þetta var. Grunnurinn í Hverahlíðinni er frá skíðaskála sem stóð þarna líklega um 1950.
Góða skemmtun í gönguferðunum, ég er orðinn svo gamall að ég er að mestu hættur f

Anson

Avro Anson farþegavél.

jallaferðum á björtum sumarnóttum en þær voru mitt yndi fyrrum.“
Undir þetta ritaði „
Dagbjartur frá Hveragerði“. Þegar haft var samband við Dagbjart bauðst hann til að fylgja FERLIR á slysstaðinn. Sagðist hann hafa verið 15 ára í Hveragerði þegar fréttin barst af flugvélafundinum. Hann og félagar hans hefðu þá farið gangandi á vettvang og séð aðkomuna. Flugvélin virtist hafa verið á leið til baka til suðurs þegar annar vængurinn rakst í Hverahlíðina. Hreyfillinn rifnaði af og skaust til vesturs. Hinn hreyfillinn kastaðist til austurs og brakið af flugvélaskokknum dreifðist upp brattann.
Simbi mjólkurbílstjóri hefði einnig verið leigubílsstjóri. Eftir þetta hefði hann ekki þorað að aka einn yfir heiðina í myrkri.“
Frábært veður fundardaginn. Gangan tók 1 klst og 1 mín.

Heimildir m.a.:
-Tómas Jónsson – Selfossi.
-Sævar Þorbjörn Jóhannesson – Reykjavík.
-http://www.rafmuseum.org.uk/avro-anson-1.htm
-http://www.bcam.net/ac_rest/anson.htm
-Mbl. 30. jan. 1947.
-Mbl. 09. mars. 1948.
-Mbl. 11. mars 1948.
-Smári Karlsson.
-Dagbjartur Sigursteinsson frá Hveragerði, f: ’34.

Anson

Anson.

 

Írafell

Í Vísindavef Háskóla Íslands er fjallað um örnefnið „Írafell„:

Írafell er þekkt á nokkrum stöðum á Íslandi, meðal annars í Kjós þar sem bæði fell og bær bera þetta nafn. Bærinn er þekktur í rituðum heimildum allt frá 16. öld en nafn hans kemur fyrst fyrir í fógetareikningum frá 1547-1548 (Íslenskt fornbréfasafn XII:107 og víðar).

Írafell

Írafell í Kjós.

Í 18. aldar heimildum er getið um Írafell á Reykjanesi í Gullbringusýslu en það er ekki þekkt nú. Auk þess eru nefnd þrjú Írafell á Snæfellsnesi: eitt á Hellisvöllum (Hellnum) í Breiðuvíkurhreppi (nú slétt flöt, samkvæmt örnefnalýsingu), annað í Helgafellssveit og það þriðja suðvestur af Drápuhlíðarfjalli.
Í Skagafirði er bær sem oft er nefndur Írafell en samkvæmt Landnámabók og fleiri heimildum er upphaflega nafn hans Ýrarfell (Byggðasaga Skagafjarðar III (2004), bls. 410 og áfram).

Írafell

Írafell í Svartárdal.

Ekki er vitað hve gamalt bæjarnafnið Írafell í Kjós er né heldur hvort það er kennt við þá Íra sem taldir eru hafa verið hér við upphaf landnáms eða Íra sem hingað komu í verslunarerindum á 15. öld. Hermann Pálsson fjallaði um Íra-örnefni í grein í Skírni 1953 (bls. 105-111) en hann ræðir ekki Írafell sérstaklega.
Helgi Guðmundsson fjallar um örnefni kennd við Íra, Breta og Pétta í bók sinni, Um haf innan (1997, bls. 198-199). Þar nefnir hann meðal annars að á Katanesi í Skotlandi sé fjall með keltnesku nafni, Cnoc an Eireannaich, sem merki ‘Írafell’, en hann telur annars óvíst hvernig eigi að túlka örnefni þau á Íslandi sem kennd séu við erlendar þjóðir.

Péttar (e. Picts) voru þjóðflokkur, sem var ef til vill ekki keltneskur að uppruna en bjó á Bretlandseyjum og átti í sífelldum útistöðum við Rómverja. Á níundu öld eða svo runnu þeir saman við Skota.“

Írafells-móra“ er getið í þjóðsögum Jóns Árnasonar sbr.:

Reynivellir

Reynivellir í Kjós.

„Kort hét maður og var Þorvarðarson (1760 – 1821), bróðir séra Odds á Reynivöllum (1786-1804); hann var nefndarmaður og gildur bóndi; hann bjó lengst á Möðruvöllum í Kjós, en fluttist síðast að Flekkudal og dó þar. Kort var tvíkvæntur; hét fyrri kona hans Ingibjörg, en hin síðari Þórdís Jónsdóttir.
Ingibjörg var ættuð að norðan. Margir höfðu orðið til að biðja hennar áður en Kort, en hún synjaði öllum. Fyrri biðlarnir þóttust því sárt leiknir, er Kort fékk hennar, enn þótt hann væri þeim flestum fremri um marga hluti. Þeim svall svo þetta um hjarta, að þeir keyptu af galdramanni nyrðra að senda Kort og konu hans sendingu.

Möðruvellir

Möðruvellir í Kjós 1913.

Galdramaður valdi til þess drenghnokka einn, er sagan segir, að hafi orðið úti milli bæja; en galdramaðurinn vakti hann upp volgan eða ekki með öllu dauðan og sendi hann þeim Kort á Möðruvöllum og mælti svo um, að draugurinn skyldi fylgja þeim hjónum og niðjum þeirra í níunda lið og vinna þeim margt til meins.

Þeir menn, sem hafa séð Móra, og þeir eru ekki fáir, hafa lýst honum svo, að hann sé í grárri brók að neðan og mórauðri úlpu fyrir bolfat, með svartan hatt barðastóran á hausnum, og er skarð eða geil stór inn í barðið upp undan vinstra auga. Af úlpunni dregur hann nafn, og því er hann Móri kallaður. Ummæli galdramannsins þykja hafa rætst helst of vel, því þegar Móri kom suður, lagðist hann að á Möðruvöllum, sem ætlað var, og gjörði þeim hjónum margar skráveifur með ýmsu móti, bæði í fénaðardrápi og matskemmdum. En engin eru dæmi til þess, að Móri hafi beinlínis drepið menn, hvorki fyrr né síðar.

Með því Móri ekki átti að hafa verið með öllu dauður, er hann var vakinn upp, þurfti hann, eins og allir slíkir draugar, mat sinn fullan. Varð því að skammta honum ekki síður en hverjum heimilismanni, bæði á Möðruvöllum og eins eftir það hann fór að leggjast að á Írafelli og fylgja Magnúsi Kortssyni, og var maturinn, sem honum var ætlaður, ávallt settur á afvikinn stað.

Möðruvellir

Möðruvellir í dag.

Þessu hafði Móri áorkað með því, að hann húðskemmdi allt í búrinu á Möðruvöllum fyrir Ingibjörgu; sat hann þar stundum uppi á búrbitunum og gutlaði í mjólkurtrogunum með löppunum eða steypti þeim niður, sletti skyri, bæði á hana sjálfa og upp um alla rafta, eða fleygði torfi og grjóti ofan í matinn, hvar sem stóð, og spillti honum með því. Af þessu tók Ingibjörg það til ráðs, að hún fór að skammta honum fullnaðarmat í bæði mál; við það lét hann mikið af matskemmdum.

Einhverju sinni bar þó svo við að gleymst hafði að skammta Móra að kvöldi dags. En um morguninn, er komið var í búrið, sáu menn, hvar hann sat, og hafði sína löppina niðri í hvorri skyrtunnu, en húkti á báðum tunnubörmunum; gjörði hann þá bæði að gutla í skyrinu með löppunum og sletta því með krumlunum. Eftir það var varast að gleyma að skammta honum.

En það var ekki maturinn einn, sem Móri þurfti; hann þóttist líka þurfa að hvílast eins og hver annar, og því er sagt, að eftir að hann fór að fylgja Magnúsi Kortssyni á Írafelli, hafi hann jafnan orðið að láta rúmflet standa autt handa honum gegnt rúmi sínu, og dugði engum öðrum en Móra að liggja í því.

Írafell

Írafell í Kjós.

Það var eitt sinn um réttaleytið, að margt fólk var komið að Írafelli og hafði fengið þar næturgisting. Seinna um kvöldið kom þangað drengur einn og beiddist húsa. Magnús kvað honum húsin heimil, en hvergi gæti hann lofað honum að liggja nema á gólfinu eða ef hann vildi annars kostar liggja í fletinu á móti rúminu sínu, og það þáði drengur með þökkum.

Þegar hann leggst fyrir um kvöldið, sofnar hann brátt; en þegar hann er nýsofnaður, fer óttalega upp á hann, svo að korrar í honum. Hrekkur hann svo upp og getur ekki sofnað væran blund alla nóttina fyrir einhverri ásókn.

Daginn eftir var vont veður, svo gestirnir komust ekki í burtu og voru svo á Írafelli nóttina eftir. En um kvöldið tóku drengir nokkrir sig til, sem áttu heima á Írafelli og þekktu Móra og höfðu oft verið í skítkasti við hann, og festu hnífa allt í kring um rúmfletið, svo oddarnir stóðu alls staðar upp af stokknum. Þá nótt svaf drengurinn vært, og þökkuðu menn það því, að Móri hefði ekki vogað að honum fyrir hnífsoddunum.“

Heimildir:
-https://www.visindavefur.is/svar.php?id=4846
-https://www.snerpa.is/net/thjod/irafell.htm (Íslenskar þjóðsögur og ævintýri, Jón Árnason, bls. 364-365).

Írafell

Írafell í Kjós.

Litli-Hellir

Gengið var um jörðina Helli ofan við Selfoss. Jörðin hefur að geyma ýmsar áhugaverðar minjar frá fyrri tíð, s.s. götur, brýr, tóftir bæjar og útihúsa, hella o.fl.  Í fornleifaskráningu fyrir jörðina má m.a. sjá eftirfarandi fróðleik um þessar sýnilegu minjar. Þessi fornleifaskráning er tekin hér sérstaklega fyrir sem dæmi um ágæta skráningu einstakrar jarðar, en eins og flestum lesendum vefsíðunnar ætti að vera orðið kunnugt þá hafa slíkar skýrslur fengið óvæga gagnrýni – og það ekki að ástæðulausu.
HellirNýjasta fornleifaskráningin er ágætt (vont) dæmi um slíkt, en hún er um svæði svonefndrar „Suðvesturlínu“, háspennulínustæði frá Hellisheiði að Helguvík. Í þeirri skýrslu einni er t.a.m. ekki getið um a.m.k. 60 fornleifar á svæðinu. Annað dæmi er um að heil fornleifaskráning hafi verið gerð um fornt bæjarstæði, bara á röngum stað. Þá má nefna fornleifaskráningu um vegstæði er í vantaði a.m.k. 32 fornminjar, hvorki meira né minja. Í raun er ekki hægt að ætlast til að einhver, hversu háskólamenntaður sem hann er, geti skilað tæmandi skýrslum sem þessum á innan við 3-5 árum, þ.e. ef eitthvert vit á að vera í niðurstöðunum.
„Áður en Fornleifastofnun Íslands vann svæðisskráningu fyrir Helli, árið 1999, höfðu tvær fornleifakannanir verið gerðar á jörðinni. Þá fyrri gerði Brynjúlfur Jónsson frá Minna Núpi, sem árið 1896 skoðaði tóftir eyðibýlisins Fjalls og skrifaði um þær stutta skýrslu. Niðurstöður síðari rannsóknarinnar hafa hins vegar aldrei birst á prenti. Hana gerði Matthías Þórðarson, sem var þjóðminjavörður 1907-1948. Í kjölfarið friðlýsti hann, árið 1927, eyðibýlið Fjall og Stóra-Helli í landi Hellis.
Litlar fornleifarannsóknir hafa almennt verið gerðar í Ölfusi en þótt ekki sé vitað um Hellirfornleifar frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar á svæðinu má leiða líkur að því að svæðið sé meðal þeirra sveita sem fyrst hafi byggst á Íslandi. Ástæður eru m.a. gott aðgengi skipa, inn á Ölfusárós og einnig hefur hið mikla votlendi upp af ósnum ekki verið hulið skógi og því hefur ekki þurft að byrja á að ryðja hann til að efna til byggðar. Nægur heyafli hefur verið á votlendinu fyrir nautgripi og annan fénað og skammt í sumarbithaga á fjöllum. Mikil selveiði var í ósnum og sölvatekja á ströndinni, og sjávarafli utan við landsteina. Óhætt er að fullyrða að fáar sveitir á Íslandi hafa jafnmikil landgæði á litlu svæði og Ölfusið. Af þessu má ætla að snemma hafi orðið þéttbyggt í Ölfusi – og má vel vera að sagnir um skamma viðveru Ingólfs Arnarssonar undir Ingólfsfjalli geymi minningar um að héraðið hafi byggst einna fyrst af sveitum landsins. Það land sem nú tilheyrir Helli hefur fyrst byggst sem hluti af bænum Fjalli, líklega fljótlega eftir að fyrsti kjarni Ölfus, Forirnar, kemst í byggð. Jarðirnar undir Ingólfsfjalli hafa byggst upp með nokkuð jöfnu millibili og eru að jafnaði fremur stórar þó engin þeirra teljist til stórbýla. Á 11. öld reistu efnaðri bændur og höfðingjar kirkjur og bænhús á jörðum sínum og má af dreifingu slíkra húsa fá nokkra hugmynd um skipulag byggðar á þeim tíma. Kirkja var í Fjalli, en athyglisvert er að þekktar kirkjur á þessu svæði eru á öllum dýrustu jörðunum. Þær eru, líkt og jarðirnar, með nokkuð jöfnu millibili en eru hlutfallslega margar miðað við fjölda býla. Dreifing bæja og kirkna bendir því til jafnvægis og gæti bent til að sjálfseignarbændur hafa þar komið sér upp búum eftir að besta landið í Ölfusi var uppurið.
Fjall var líklega meðal fyrstu jarða til að byggjast upp undir Ingólfsfjalli; þess benda ágæt landgæði jarðarinnar í upphafi, sú staðreynd að þar reis kirkja, sem og nafnið sjálft: Fjall. Næsta lítið er vitað um byggð í Ölfusi á síðmiðöldum. Margra jarða í Ölfusi er hvergi getið í skjölum fyrr en í jarðabókum 17. aldar og er Hellir ein þeirra. Hennar er fyrst getið í jarðabókum í kringum 1700 sem hjáleigu Fjalls og því er ekki vitað hvenær hún byggist fyrst. Á 17. öld eyddist Fjall vegna aurskriða og grjóthruns úr Ingólfsfjalli. Einsýnt er að orsök þeirra skriðufalla er að rekja til þess að skógur, sem áður hélt jarðvegi í hlíðum fjallsins, hefur verið eyddur á þessum tíma og hefur síðan runnið stöðugt úr hlíðum þess.
Stóri-HellirEftir að bæjarstæði Fjalls var yfirgefið á 18. öld skiptist jörðin milli Laugarbakka og Hellis sem áður voru hjáleigur Fjalls. Fossnes, sem áður hvar stundaður í Helli fram undir miðja 20. öld en síðan hefur jörðin legið í eyði. Hún er nú eign sveitafélagsins afði verið sjálfstætt býli og gengið kaupum og sölum með Árbæ, virðist um þetta leyti hafa sameinast Fjallsjörðunum og eftir að býlið fór í eyði skömmu eftir 1800 lagðist land þess til Hellis. Búskapur Árborgar og eru þar ráðgerð útivistarsvæði og skógrækt á um 120 ha. svæði.
Hellisland nær nú að austan frá Ölfusá, um Hellisgil upp að tóftum Fjallsbæjar og áfram til norðvesturs upp á brún Ingólfsfjalls. Að vestan nær landareign jarðarinnar frá ánni vestan við Fossnes. Landamerki liggja um Markagil og Markhól, norður um mýrar að Markasteini og Markahamri ofan þjóðvegar og upp á fjallsbrún. Landslag jarðarinnar einkennist fyrst og fremst af aflíðandi mýrar- og engjasvæðum milli Ingólfsfjalls og Ölfusár. Engjarnar voru áður nýttar til sláttu og sumar hverjar til beitar. Upp úr engjunum rísa víða lág en grasgefin holt. Á einu slíku, Túnhól, stóð Hellisbærinn og á þessum holtum hafa flestar byggingar og mannvirki áður verið sett niður og því flestra fornleifa að vænta þar.
Stóri-Hellir„Bærinn Hellir stóð á stærsta holtinu í mýrinni fram af Fjallstúni norðvestan í Túnhólum.“ segir í Sögu Selfoss. Í örnefnalýsingu segir: „…mun bærinn hafa staðið á sama stað. Hvenær hann var byggður, veit ég ekki.“ Búið var á Helli fram til 1944. Rústir bæjarins eru enn alveg óspilltar, norðvestan í Túnhóli. Rústirnar eru á aflöngu holti sem liggur austurvestur.
Það rís hæst austast, þar eru tilkomumiklir klettar með hellisskútum. Mýrar eru umhverfis holtið og víða hafin trjárækt, þó hvergi í námunda við bæjarstæðið. Fram af því til suðausturs er stakur klettur, Krummaklettur. Í Sögu Selfoss er síðasta bænum lýst nokkuð ítarlega og þar er af honum mynd, heldur óskýr: „Á búskaparárum síðasta bóndans í Helli, Einars Sigurðssonar, voru bæjarhúsin enn með gömlu sniði. Sex burstir voru fram á hlaðið. Vestast var skemman, sem var úr torfi og grjóti en járn á þaki. Þar voru geymdir reiðingar og annað, sem tilheyrði búskapnum. Þar var steðji, þar sem ljáir voru klappaðir. Inni í henni voru tveir skammbitar. Uppi á þeim voru geymd orf og hnífur. Gryfja var í gólfinu, þar sem geymdar voru rófur og reiðingar lagðir ofan á. Fiskasteinn var á hlaðinu fyrir framan skemmuna. Næst var gestahús um 3 X 3 metrar að stærð. Áfast því var skúrbygging með bæjargöngum beint norður í þvergöngin fyrir norðan gestastofuna. Þar fyrir norðan, beint á móti bæjargöngunum var hlóðaeldhúsið. Það var allt úr torfi og grjóti og raftur á sperrum og torf. Hlóðirnar voru við suðurvegginn til vinstri, þegar inn var komið. 

BarnahellisskútiGluggabora var á norðurhlið í gluggatóft. Úr þvergöngunum var gengið suður í Bæjartóftirnar, horft til norðurs gestastofuna og þaðan einnig upp á loft hennar, sem var með glugga á framstafni. Þar var geymdur mjölmatur, harðfiskur og annar matur, sem ekki var súr eða saltaðar, enda var þar kalt, aðeins einföld klæðning á þaki og járn. Vestur af þvergöngunum var eldiviðargeymslan, öll úr torfi og grjóti, gluggalaus. Vestur af þvergöngunum var eldiviðargeymslan, öll úr torfi og gjóti, gluggalaus. Í skúrbyggingunni fyrir austan bæjargöngin var búrið með glugga í suðurhlið. Þar var geymdur súrmatur og saltaður matur, og þar var unnið úr mjólkinni. Þangað var gengið úr þvergöngunum fyrir austan um skellihurð með lóðum. Austur úr þvergöngunum var gengið inn í baðstofuna. Hún var 5,65X3,14 metr. að stærð og með stórum glugga út á hlaðið. Þrjú föst rúm voru við austurvegg tvö við vesturvegg. Austurveggur hennar var hlaðinn úr torfi og grjóti og klæddur innan með panel fyrir neðan sperrurnar. Hún var með skarsúð og járni. Við norðurvegg var lítill ofn. Norðan við dyr baðstofunnar var gengið á ská norður í eldhúsið. Það var með grjót- og torfveggjum, þiljað innan og loftið klætt og járn á þaki.
Litli-HellirGluggi var í gluggatóft til norðurs. Eldavélin var við suðurvegg. Fyrir austan bæjarhúsin var heyhlaða og smá sund á milli. Hún var hlaðin úr torfi og grjóti með járni á þaki. Dyr voru að sunnan en baggagat að norðan. Hún var lítið niðurgrafin og tók um 160 hestburði eða 4 1/2 kýrfóður. Austast var fjósið, úr torfi og grjóti og reft yfir með hellu og torfi. Gengið var í það að sunnan og upp tvær tröppur. Helluflór var þvert yfir húsið og hefur sennilega áður haft dyr í austur. Við norðurvegg voru þrír básar með jötum en að sunnan sinn básinn hvorum megin. Haugstæði var austan við fjósið.“ Eins og áður segir eru bæjarrústirnar vel greinilegar. Síðasti bærinn var rifinn 1947 eða 1948 en hann var talinn reistur nálægt aldamótunum 1900, þá að hluta á eldri bæ. Þegar bærinn var rifinn var hluti byggingarefnis fluttur vestur í Einholt þar sem síðustu ábúendur í Helli gerðu sér bæ. Enn er hluti af þverbitum og sperrum úr stofunni í Helli í notkun, í hesthúsi Sigtryggs Einarssonar á Selfossi. Bæjarrústin á Helli er vel greinileg (árið 2004). Framhlið bæjarins sneri í suður. Veggir eru víðast algrónir, mest um 1,5 m háir. Rústin samanstendur af 5-6 hólfum; skemmutófti. Vestan við skemmuna er stórt hólf, alveg opið í suður og hefur þar verið timburþil fyrir og innveggir allir úr timbri.
BrunnurDálítið vestar en fyrir miðju hólfsins er gamla dyrahellan sokkin í svörð, þar voru bæjargöngin. Göngin hafa verið lítið vestar en fyrir miðju og var stofa (gestahús) vestan við þau. Inn eða norður af stofunni var hlóðaeldhús og er þar greinilegt hólf. Þar eru leifar af gamalli eldavél sem þó var aldrei í notkun þar inni. Í hlóðaeldhúsinu hékk m.a. kjöt og þar var soðið slátur. Vestan við það vottar óljóst fyrir hólfi þar sem veggir eru mjög hrundir þannig að hólfið er næstum uppfullt af torfhruni, viðlíka stórt og eldhúsið. Það var eldiviðargeymsla og hænsni geymd á vetrum. Eldiviðageymslan er svo að segja beint norðan við skemmuna en þó var ekki innangengt þar á milli heldur gengið í geymsluna úr stofunni.
Þá skal snúið aftur að bæjargöngunum. Austan við þau var búr en austan við búrið baðstofa, þiljuð að innan og með trégólfi en þó var klöpp undir rúmi móður Sigtryggs Einarssonar, syðst og austast í baðstofunni. Norðan við baðstofuna var eldhús með skorsteini sem enn vottar fyrir, væntanlega yngra en hlóðaeldhúsið. Norðurveggur eldhússins er allra veglegasta hleðslan sem enn er uppistandandi í bæjarrústinni. Hann er grjóthlaðin og óhruninn. Engin skil sjást nú milli allra þessara bæjarhluta: Ganga, stofu, búrs, baðstofu og eldhúss. Austast í bæjartóftinni er fjóstóft, einnig opin í suður. Framan eða sunnan við bæjarröðina alla mótar greinilega fyrir hlaði eða stétt. Stéttin hefur verið 2-4 m á breidd.
Í Sögu Selfoss segir um Stóra-Hellinn: „Sunnan í Túnhólnum er Stóri-Hellir, 10 m langur og 8 m víður. Honum var lokað með þili og geymt þar hey en framan af honum var fjárhús.“ Stórihellir er í Túnhóli austanverðum, um 120 m austan við bæ 001. Hann er um 20 m vestan (ofan) við vegslóða sem liggur að Hellistóftum (001). Austan (neðan) við hellinn er grasi vaxið, bletturinn beint neðan við hellinn er sérstaklega ræktarlegur, þar var kálgarður 027.
RéttEngin ummerki sjást þó lengur um fjárhúsin sem voru beint neðan við hellinn. Skógrækt er hafin víða umhverfis, þó hvergi í nánasta nágrenni hellisins. Fram til um 1960 gegndi hellirinn hlutverki hlöðu en þá var fjárhús fyrir framan hann. Matthías Þórðarson friðlýsti hellinn 5.5.1927: “Hellir fremst í túninu, skamt austur frá bænum, austan í grasivöxnum blágrýtishól.” Hellinum var fyrir nokkrum árum umturnað nokkuð, mokað var út úr honum og aukið mjög á brekkuna upp úr hellinum. Við þær framkvæmdir hurfu fjárhústóftir sem voru fyrir framan hellinn. Þó gætu síðustu leifar þeirra enn verið undir uppmokstrinum utan við hellinn. Nú er hellirinn greinilega vinsælt afdrep unglinga og barna auk þess sem ásatrúarmenn koma þar stundum saman. Möl hefur verið sett í hellisbotninn en lágir bekkir meðfram hliðum hans. Lítið eldstæði hefur einnig verið gert utarlega í hellinum og 8 steinþrep lögð niður í hann. Hellirinn er 7-8 m á breidd en 10-15 m djúpur (15 m eru frá hellismunna í botn). Hann er allt að 8 m á hæð og er víður og rúmgóður. Upplýsingaskilti er við veginn austan við hellinn þar sem sagt er frá hellinum. Þar kemur fram að hellirinn myndaðist við lok jökulskeiðs á ísöld þegar brim svarf klettinn sem er úr 0,7-3,1 milljón ára gömlu basalti. Ekki er getið um friðlýsingu hellisins á upplýsingaskilti og ekki er sérstakt friðlýsingaskilti í eða við hellinn. Hann var síðastur notaður fyrir hey um eða eftir 1960 skv. Sigtryggi Einarssyni. Þá var enn mikil grjóthleðsla fyrir hellismunnanum, allt að rúm mannhæð en hún er nú með öllu horfin. Reft var fyrir hellisopið ofan hleðslunnar og þar voru dyr yfir í fjárhúsið. Á fyrri árum var talið reimt í Stórahelli: „Gamla fólkið taldi reimt í Stóra-Helli. Þóttust menn hafa séð þar mann, lítinn að vexti og kauðslegan. Sérstaka athygli vakti, að hann var með stóran, bláan trefil um hálsinn. Gerði hann oft vart við sig undan slæmum veðrum í draumum heimilismanna. Talið var að í hellinum hefði maður hengt sig í trefli,“ segir í Sögu Selfoss. Þar segir ennfremur: „Við hellinn var fjárhús fyrir 30 fjár, og hellinum lokað með torfi og grjóti og þili ofan á. Úr því var gengið niður í hellinn, sem var góð heygeymsla. Um hann kvað Símon Dalaskáld:
HellirHellirinn er hjarðarskjól
hlaðinn blóma frýnum.
Náttúran það byggði ból
bezt með höndum sínum.

Litli hellir er lítið norðar en sá stóri. Hann tók 14 lömb; er nú (1931) mörgum týndur.“ segir í örnefnaskrá. Litlihellir er um 20 m norðan við Stóra-Helli 007 í beina loftlínu. Hann er um 30 m ofan (vestan) við vegslóða sem liggur til norðausturs frá slóða að Hellisrústum (001). Beint framan við hellinn er lág klettastrýta. Fyrir framan hellinn er grasi gróið og tekur þar við brekka til norðausturs. Norðaustar er mýrlend slétta. Hellirinn er mun minni en Stóri-Hellir og vart hægt að kalla hann meira en skúta sem bergið slútir yfir. Hann er um 2,5 m á breidd en 2 m á dýpt, mest 0,8-1 m á hæð. Hluti af hellisbotninum er vaxinn arfa en einnig er í hellisbotninum að finna mikið af smáum beinum, sérstaklega við hellismunnann. Engar hleðslur eru í eða við hellinn. Líkt og með Stóra-Helli virðist sá litli nú vinsæll áningarstaður, sérstaklega barna. Hellirinn var ekki í notkun í minni Sigtryggs Einarssonar (f. 1935).
BeitarhúsGrímsklettar eru sögustaður og huldufólksbústaður; „Grímsklettar, stundum kallaðir Grímshólar (Þ.S.). Þeir háu hamrahólar, þar sem Hellisgil rennur í Ölfusá. Munnmæli herma, að Erlendur gamli á Strönd hafi vegið þar mann (sem líklega hafi heitið Grímur(Þ.Ö.J.))…“ segir í örnefnaskrá. Grímsklettar eru um 650 m suðaustan við Hellisbæ. Akvegur liggur nú bæði fast suðaustan og rétt suðvestan klettanna/hólanna sem eru grasi grónir hamrar. Í hlíðum þeirra hefur verið gróðursett nokkuð. Göngustígar liggja um hólana. Áður var trú manna að huldufólk byggi í hólunum: „Einnig talaði gamla fólkið oft um ljós austur í Grímsklettum og taldi þar búa huldufólk,“ segir í Sögu Selfoss. Þess má geta að á tímum síðari heimsstyrjaldar höfðu hermenn gjarnan skotæfingar við klettana.
HellisbrúHlaðin rétt er sunnan undir Stekkjarholti, um 300 m vestur af bæ 001 og rúmum 100 m suðaustan við tóftir 015. Stórgrýti er undir holtinu en tóftin er á grónum bala. Einföld rétt, 7 x 9 m stór frá austri til vesturs, op snýr í austurátt. Hún er byggð við brattan klettavegg að norðanverðu og er því aðeins hlaðið að sunnan og vestan og hefur líklega hentað vel að reka meðfram holtinu og inn í réttina. Veggir réttarinnar eru að mestu hrundir, þeir hafa verið úr grjóti eingöngu. Réttin var notuð í minni Sigtryggs Einarssonar fyrir fé, framundir miðja 20. öld.
Hellisbrú var gamall þjóðvegur frá Ingólfsfjalli og niður að Ferjustað. Hún er í þremur bútum og holt á milli þeirra. Vegur hefur verið upphlaðinn, en ekki borið ofan í. Brúarendi. Svæðið þar sem Hellisbrúin endar við fjallskriðu, suðvestan við Blákoll.“ segir í Örnefnaskrá. „Miðaftansholt er til vesturs frá bænum. Hellisbrúin liggur norðan við það.“ segir í örnefnaskrá. Veginum er lýst í Sögu Selfoss: „Um Hellismýri liggur forn vegur frá fjalli að ferjustað. Var hann kallaður Hellisbrú og var í þremur hlutum milli holta, og sér hennar enn vel stað. Efsti hluti hennar liggur frá fjallinu við Blákoll og kallast Brúarendi og lá fyrst í Miðaftansholt. Þaðan í Stekkjarholt með spotta þaðan austur að Helli.
HellisbrúÚr Stekkjarholti lá vegurinn í Hádegisholt og úr því í Hellisholt og komið þar að ánni við Kallþúfu. Þar blasti ferjustaðurinn við og þaðan var ferjan kölluð. Þaðan var farin slóð niður holtið norður að Ferjustað, sem var á móti Svarfhóli.“ Hellisbrú liggur um mýrar, enda tilgangurinn að auðvelda yfirferð um þær. Eins og sést af lýsingu í Sögu Selfoss lá vegurinn í þremur köflum. Hefst lýsingin hér nyrst, norðan Miðaftansholts, þá verður lýst bútnum sem tengdi Miðaftansholt og Stekkjarholt og að lokum þeim hluta sem syðstur var og lá allt að ferjustað 009 við Ölfusá. Úr norðri, allt frá rótum Ingólfsfjalls, liggur Hellisbrú til suðurs, að Miðaftansholti. Á þessum kafla er vegurinn þráðbeinn, 4-5 m breiður og allt að 0,4 m hár. Hann var ekki skoðaður norðan þjóðvegar en vegalengd frá þjóðvegi suður að Miðaftansholti er um 370 m. Farið hefur verið meðfram Miðaftansholti austanverðu en ekki vottar þar fyrir upphleðslu eða slóða. Hellisbrú sést á ný frá holtinu sunnanverðu og liggur þar yfir mýri, skemmstu leið að norðurenda Stekkjarholts 015. Alls er þessi hluti vegarins um 230 m langur og mjög greinilegur, um 4 m breiður. Þar sem hann hverfur við Stekkjarholt hefur verið lagður göngustígur með viðarkurli, áfram upp á holtið, og mun hann vera þar sem gamla leiðin lá áður. Sunnan við Stekkjarholt sést Hellisbrú
enn á ný. Má rekja veginn allt að 350 m til suðurs en þar hverfur hann nálægt núverandi vegarslóða. Upphaflega sveigði Hellisbrú til austurs þar, í átt að ferjustaðnum, en hefur horfið undir veginn. Ekki er ljóst að hve miklu leyti sá hluti var upphlaðinn, enda virðist áhersla hafa verið lögð á að hlaða hann upp yfir mesta deiglendið, þ.e. yfir mýrar. Þó man Sigtryggur Einarsson eftir dálitlum hleðslum utan í brekku skammt vestan við ferjustaðinn, sjá 009.
Barnahellisskúti er lítill hellisskúti næstur bænum… Þar er lítil hola langt inn í bergið, og hafði verið raðað í hana mörgum stórgripsvölum,“ 
segir í örnefnaskrá. Skúti þessi er um 30 m suðaustur af austurenda bæjarrústarinnar 001. Skútinn er í stökum og áberandi kletti, 6-7 m háum. Skútinn er lítil og fremur ofarlega í klettinum, eða 1,7 m frá jörðu. Hann er 1,5 m breiður og um 0,8-1 m hár, allt að 1 m á dýpt. Ekki vottar lengur fyrir stórgripsvölum eða öðrum merkjum um leiki barna.
Rétt er fyrir ofan veginn og 90 metrum fyrir vestan Blákoll var Sængurkonusteinn. Munnmæli herma, að þar hafi kona alið barn og huldukona hjálpað henni. Við jarðrask var steinninn fluttur til og er nú 15 metrum norðvestur af Blákolli.“ segir í Sögu Selfoss. „Fyrir utan og ofan Helli í Ölfusi er fjöldi af stórum steinum, sem hrunið hafa úr Ingólfsfjalli. Undir einum þeirra er skúti. Það er eitthvert stærsta bjargið og heitir hann Sængurkonusteinn. Sagt er, að nafnið sé svo tilkomið: „Til forna stóð bær austarlega undir suðurhlíð Ingólfsfjalls, er hét í Fjalli og var hið mesta höfuðból, 30 hurðir á járnum. Þar hafði Ingólfur fyrst byggt. Þegar sagan gerðist, bjuggu þar auðug hjón en hörð og nízk. Eitt kvöld kom þangað förukona og bað gistingar. Það var auðséð á henni, að hún mundi innan skamms ala barn. Vildu hjónin því vera laus við hana og úthýstu henni. Var þó hellirigning um kvöldið. Hún ráfaði því austur með fjallinu (réttara vestur) en komst ekki nema að steininum og lét fyrir berast í skútanum. Þar ól hún barn sitt um nóttina. Bæði hún og barnið fundust þar lifandi um morguninn. Var þeim hjúkrað og hresstust við.
SængurkonusteinnEn þessa sömu nótt féll skriða á bæinn í Fjalli og hefir síðan eigi eftir af honum nema lítið eitt af túnjaðrinum, er enn í dag heitir Fjallstún og litlar leifar af einhverri byggingu, er þar vottar fyrir. (Almenn sögn í Ölfusi og Flóa, sem Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi skráði og birti í Huld I).“ segir í Sögu Selfoss.
Krummaklettur er nefndur í þjóðsögu um huldufólksbústað: „Kringum bæinn á Helli eru stór hnullungabjörg dreifð víðsvegar. Eitt slíkt bjarg er í kálgarðinum fleiri mannhæða hátt, rastorfa efst. Sitja hrafnar oft upp á bjarginu, og er það kallað Krummaklettur,“ segir í Sögu Selfoss. Um klettinn segir ennfremur: „Á gamlársdag hreinsaði ég [Guðbjörg Einarsdóttir sem dvaldist í Helli 1916] og þvoði og fágaði, sem mest ég mátti. Þegar því var lokið, varð mér reikað út á hlað. Heyrði ég þá háan og hljómmikinn söng. Hlusta ég eftir og þykir söngurinn einkar fagur.
KrummakletturVar sunginn sálmurinn „Nú árið er liðið í aldanna skaut,“ allur til enda. Fékk ég vel greint hvert orð, var sem nokkrar manneskjur syngju við húslestur. Þegar söngnum er lokið, geng ég inn aftur. Verður þá fyrir mér Sveinn bóndi, og segi ég við hann: „Mér þótti undarlegt, það sem ég heyrði áðan í Krummakletti,“ og segi honum frá því, er fyrir mig hafði borið. Sveinn svarar: „Ekki þykir mér svo undarlegt. Sitthvað svipað hefur nú þekkzt hér. „Sveinn var stilltur maður og orðvar og hafði lítt á orði, þótt eitthvað óvanalegt bæri fyrir hann. Þó sagði hann mér einu sinni þessa smásögu: Einu sinni var Guðmundur, sonur minn, úti staddur ásamt móður sinni. Var hann þá nokkuð á legg kominn. Voru þau stödd úti á hlaði. Þá segir Guðmundur allt í einu: „Mamma, sjáðu manninn, sem gengur inn í Krummaklettinn.“ En hversu sem hún reyndi, fékk hún eigi manninn séð.“ Kletturinn er 20-30 m beint suður af bænum. Hann er 6-7 m hár, þverhníptur að suðvestan en gróinn og aflíðandi að norðanverðu og uppganga því auðveld.“
Það er ljóst að Selfyssingar geta státað af vænlegri forleif þar sem Hellir er. Gera þarf þó gangstör í að merkja einstakar minjar, gera stíga og leiðbeina fólki um svæðið.
Frábært veður. Gangan tók 3 klst og 3 mín.

Heimild m.a.:

-Fornleifaskráning í Helli, Ölfushreppi – Birna Lárusdóttir og Elín Ósk Hreiðarsdóttir – Fornleifastofnun Íslands 2004.
-Saga Selfoss.

Stóri-Hellir

Keilir

Í maí 2009 var sett upp útsýnisskífa á Keili – útsýnisfjall Vatnsleysustrandarhrepps.
SkífanÚtsýnisskífa kom á fjallið að frumkvæði Ferðamálasamtaka Suðurnesja sem áttu veg og vanda að þessu verkefni. Það var Viktor Guðmundsson og fleira áhugafólk úr Vogum sem vakti máls á því við Ferðamálasamtökin fyrir 5 árum að setja upp útsýnisskífu á fjallið til að auðvelda þeim sem gengju á Keili að þekkja umhverfið. Undirbúningur stóð yfir í 2 ár. Jakob Hálfdanarson var fenginn til að hanna skífuna.
FSS fékk góðfúslegt leyfi frá Landmælingum Íslands til að nota steinsteypustöpul sem skífan er á en stöpullinn er mælipunktur. Blikksmiðja Ágústar Guðjónssonar smíðaði mjög veglegan pall umhverfis stöpulinn sem var hannaður af Sigurði Sigurðssyni hjá Verkfræðistofu Suðurnesja. Uppsetning á palli og skífu var svo í höndum blikksmiðunnar og Skúla Ágústssonar frá VSS. Pallurinn var fluttur á þyrlu upp á fjallið en það var Slysavarnarfélagið í Grindavík sem sá um þann þátt ásamt Óskari Sævarssyni. Lokahnykkur verksins var svo að festa skífuna sjálfa niður á stöpulinn.
KeilirKostnaður við þessa framkvæmd var allt að þrjár milljónir króna en upp í þann kostnað fengu Ferðamálasamtökin fengið 800 þús. kr. styrk frá Sveitarfélaginu Vogum.
Á útsýnisskífunni eru 87 örnefni allt frá Snæfellsjökli í 123 km fjarlægð og Tröllakirkju í 105 km fjarlægð að Fjallinu eina og Trölladyngju í 3,5 km. fjarlægð, Eldey í 44 km fjarlægð og Litla-Skógfelli í 10 km fjarlægð. Keilir er hið ágætasta útsýnisfjall á miðjum Reykjanes-skaganum og frá fornu fari helsta mið fiskimanna við Faxaflóann. Að staðsetja örnefni rétt er vandaverk og fengu Ferðamálasamtökin fólk af Suðurnesjunum til að aðstoða við að velja inná skífuna örnefni og staðfæra þau.
Keilir

Hraunssel
Haldið var inn (austur Drykkjarsteinsdal frá Hatti utan í vestanverðri Slögu ofan Ísólfsskála, beygt um Brattháls norður með austanverðum Lyngbrekkum og áfram inn með austanverðum Einihlíðum uns staðnæmst var við sunnanvert Sandfell. Þaðan var gengið til austurs sunnan við fellið og síðan til norðurs með því austanverðu.

Ísólfsskáli

Ísólfsskáli – Hattur.

Ætlunin var m.a. að skoða hvort enn mætti greina spor hinnar fornu leiðar Grindvíkinga áleiðis inn á Selsvelli. Spurning var hvort líklegra var að leiðin hafi legið norður með vestanverðu Sandfelli eða því austanverðu. Báðar leiðirnar gætu hafa verið farnar, allt eftir því hvort leiðin lá í Hraunssel eða á Selsvelli. Austari leiðin var líklegri á fyrrnefnda staðinn. Þaðan liggur leiðin yfir slétt Skolahraun (helluhraun) að Þrengslum undir vestanverðum Núpshlíðarhálsi (Vesturhálsi). Sunnar er Leggjabrjótshraun (apalhraun), erfiðara yfirferðar. Þó lá þar yfir ruddur, varðaður, vegur allnokkru sunnar. Sá vegur var endurgerður, lagfærður og breikkaður, með svonefndum „Hlínarvegi“ skömmu eftir 1930 er hann var gerður akfær til Krýsuvíkur með það að markmiði að flytja útvegsbændum í Grindvík nýslegna töðu, að sjálfsögðu gegn gjaldi. Vegagerðin frá Ísólfsskála (Drykkjarsteinsdal) til Krýsuvíkur kostaði þá um 500 krónur og tók það fjóra menn ásamt kúsk lungann úr sumrinu að framkvæma verkið. Hlín Johnsen, þá sérstakur verndari og umönnunarstýra þjóðskáldsins Einars Benediktssonar, greiddi fram vinnulaun að verki loknu, en Einar átti þá bæði Krýsuvík og Herdísarvík. Einar sjálfur, þótt stór væri, var þá lítill fyrir mann að sjá, enda ofsóttur jafnt í rökkri og myrkri, bæði af Þistilfjarðar Sólborgu og öðrum sektarkenndum.
Gengið var yfir Skolahraun. Slétt helluhraunið er að öllum líkindum úr Þránsskildi, en ofan á því er mjó apalræma til suðurs, líklega úr gosinu 1151.

Hraunssel

Hraunssel.

Slóðar liggja yfir slétt hraunið og hefur mosinn farið illa af utanvegaakstri. Komið var að norðanverðu Hraunsseli. Augljóst er að þarna hafa verið tvær selstöður. Í selinu eru bæði tóftir nýrri og eldri selja. Nýrri selin eru undir Núpshlíðarhálsinum, en þau eldri bæði norðan við nýrri selin undir hlíðinni og einnig vestar, nálægt grónum hraunkanti. Þær eru nær jarðlægar. Vestan þeirra tófta er tvískiptur hlaðinn stekkur. Norðan hans er hlaðinn ferköntuð tóft undir hraunbakka, hugsanlega kví. Grösug skál er í hlíðinni ofan við selið. Þar má m.a. sjá leifar hverasvæðis, sem ekki er langt um liðið síðan kulnaði.

Nyrðra nýrra selið er eins stök tóft og síðan önnur með tveimur rýmum. Hitt er heilstæð tóft með þremur samliggjandi rýmum. Elsta tóftin (vestar) virðist hafa verið með tveimur rýmum og því þriðja fasttengdu. Þerrivatn er í grunnum gilskorningi sunnan við selið, en búast má við að þarna neðarlega á grasvöllunum hafi fyrrum verið brunnur, þótt ekki móti fyrir honum nú.
Þetta eru sennilega rústir hins síðasta umbúna sels á Reykjanesskaganum, er talið er að hafi lagst af um 1914, með efasemdum þó, því sel voru almennt að leggjast niður á þessu landssvæði á seinni hluta 19. aldar. Þeim hafði þá verið viðhaldið, með tilfærslum, hléum og margfaldlegri endurgerð, allt frá landnámi no

Hraunssel

Hraunsselsstígur.

rrænna manna hér á landi (871 +/- 2). Selstöður virtust hafa verið mikilvægur þáttur í búsetusögu svæðisins um langan tíma. FERLIR hefur þegar skoðað rúmlega 255 selstöður í landnámi Ingólfs, sem enn eru sýnilegar minjar um, og eru þó allnokkur enn óskoðuð, s.s. norðan Esjufjalla að Botnsá. Þótt margt sé líkt með rústunum er einnig nokkuð ólíkt með þeim. Það verður allt betur rakið með umfjöllun síðar.
Í landamerkjabréfi fyrir Hraun segir m.a. að merkin hafi verið „frá Vatnskötlum fyrir norðan Fagradalsfjall, þaðan til austurs á Selsvallarfjall upp af Sogaselsdal.” Í fyrsta lagi heita Vatnskatlarnir nú á landakortum Fagradals-Vatnsfell og Hraun lýsir merkjum í Selsvallarfjall.Â
Samkvæmt heimild úr Jarðabók ÁM 1703 á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd selstöðu í Sogaseli er það sagt í Stóru Vatnsleysulandi. Selið hins vegar, sem lá undir Hraun (Hraunssel), er fyrir sunnan Þrengslin og þannig innan merkja Hrauns samkvæmt þessari skilgreiningu. Þá má að lokum benda á að fyrir norðan þessa línu og almennt á Selsvöllunum var almenningsselstaða frá Grindavík og ennfremur frá Vatnsleysuströnd“. Hafa ber þó í huga að landamerki Þórkötlustaða stangast verulega á við landamerkjalýsingu Hrauns þar sem m.a. Dalsselið vestan Langhóls er innan landamerkja þeirra. Ef rétt er þá er Dalsselið í landi Þórkötlustaða, en Vogabændur og Grindvíkingar hafa jafnan deilt um tilveru þess inna þeirra marka – hvors um sig.
Í örnefnaskrá fyrir Ísólfsskála segir m.a. um merkin: „Allmiklu skakkar hér um landlýsingu þeirra nágrannanna [Hrauns]. En merkjabókin segir merki Ísólfsskála þannig: Úr fjöru við Festargnípu vestan við svonefndan Skálasand til norðurs að merktum kletti við götuna á Móklettum, svo til austurs í miðja suðuröxl á Borgarfjalli.
Samkvæmt þessu ætti Hraunssel að hafa verið í landi Ísólfsskála og gert út þaðan. Þeir nágrannar gætu þó hafa komið sér saman um selstöðu undir hálsinum og verið þar með sitthvort selið. Það myndi a.m.k. skýra seltóftirnar. Ef svo er þá eru fundið selið frá Ísólfsskála, sem og selið frá Þórkötlustöðum, þ.e. Dalsselið.

Hraunssel

Hraunssel – stekkur.

Járngerðarstaðir og Staður hafa síðan haft selstöður á Baðsvöllum og síðar á Selsvöllum.
Ritari, sem reyndar er hlutdrægur, hefur reyndar talið langlíklegast að Dalselið hafi verið frá Þórkötlustaðabæjunum fyrrum.
Í örnefnalýsingum þaðan, segir að „úr Stóra-Skógfelli [á að vera Litla-Skógfelli til samræmis við aðrar lýsingar] liggur markalínan í gjána í Kálffelli en það er lágt fell eða bunga sem er framarlega í Kálffellsheiði . Frá Kálffelli liggja landamerkin í vatnskatla í Fagradals-Hagafelli og þaðan í Innstuhæð á Vatnsheiði eins og áður segir. Samkv. þessu er Sandhóll, sem er vestur af Kasti, og Fagridalur, sem er kvos inn í Fagradalsfjall austan við Aura, í landi Þórkötlustaða. Fagradals-Vatnsfell,sem er norðvesturöxl Fagradalsfjalls er sömuleiðis í landi Þórkötlustaða. Aurar heita melar innan við og austan Dalahraun og þar norður af eru grasflatir sem heita Nauthólaflatir. Þar var heyjað af bændum á Þórkötlustöðum.“

Í Jarðabókinni 1703 er dómkirkjan í Skálholti eigandi bæði Krýsuvíkur og Hrauns, auk Ísólfsskála, Þórkötlustaða, Hóps og Járngerðarstaða. Ekki er sagt frá selstöðu frá Krýsuvík, en þó má telja öruggt að hún hafi verið þá til staðar. Ekki er heldur sagt frá selstöðu frá Hrauni eða Þórkötlustöðum, en ein hjáleigan, Buðlunga,

Núpshlíðarháls

Núpshlíðarháls.

„brúkar selstöðu og hefur lengi brúkað í Krýsuvíkurlandi, þar sem heitir á Vigdísarvöllum, segja menn að selstaðan sje ljeð frá Krýsuvík, en Krýsuvík aftur ljeð skipstaða fyrir Þorkötlustðalandi. Er selstaðan að sönnun góð, en mikilega lángt og erfitt að sækja“. Hóp þarf að kaupa út selstöðu, en Járngerðarstaðir „brúkar selstöðu enn nú þar sem heita Baðsvellir, og kvarta menn um að þar sjeu hagar oflitlir og þröngvir. Item sje þar stórt mein af vatnsleysi, þá þerrar eru, og fyrir þessa lseti selstöðunnar segja menn fulla nauðsyn til að kaupa selstöðu annarsstaðar. Þessa brúkar bóndinn aleina“. Þarna gæti verið komið tilefni til þess að ætla að Selsvallaselstaðan, sem Járngerðarstaðabændur nýttu síðar, hafi fengist framseld frá Stað. Í Jarðabókinni 1703 segir að selstaða Staðar „sé góð til haga, en lángt og erfitt til að sækja, hefur þó hjeðan frá staðnum brúkuð verið lxxx ár á Selsvöllum“.
Eftir að hafa skoðað minjar seljanna (því þau eru fleiri en eitt frá mismunandi tímum), var gengið norðvestur eftir áberandi götu yfir Skolahraunið með stefnu milli Hraunssels-Vatnsfellanna. Mikil umferð hefur verið þarna. Gatan liggur yfir hið mjóa apalhaft. Hún gefur vísbendinu uma ð nokkur umferð hafi verið inn að Hraunsseli neðan úr Vogum eða Vatnsleysuströnd svo ekki er með öllu hægt að útiloka að selstaðan hafi um tíma verið sótt þaðan.
VatnsstæðiÞegar komið var yfir í Meradalahlíðar var ákveðið að halda áfram til vesturs austan Kisturfells (335 m.y.s.). Kistufell og Keilir, með Litla-Keili og Litlahrút á millum býður upp á skemmtilegt sjónarhorn inn á efstu brún Þráinsskjaldar, hinnar miklu og tilkomuríku dyngjudrottningu Reykjanesskagans. Þaðan er hægt að ganga að einum fallegasta gíg Skagans, nyrst í Fagradalsfjalli (Langhól). Gígurinn, sem er um 70 metra hár, er þverskorinn, þ.e. það sést inn í hann úr norðri og því auðvelt á áætla hvernig gígopið hafi litið út áður en roföflin tóku yfirhöndina.

Hér er í rauninni um að ræða einn tilkomumesta og fallegasta, en um leið úrleiðarlegasta gíg Reykjanesskagans. Vonandi fær Hitaveita Suðurnesja aldrei áhuga á honum – því þá er voðinn vís.
Þegar staðið er þarna má í rauninni sjá nokkra „keilira“, því auk Keilis er Sandfell í suðaustri, Stórihrútur í suðri og Litlihrútur í norðvestri öll með sömu lögun. Keilir nýtur hins vegar þeirrar sérstöðu sinnar að standa stakur og því meira áberandi fyrir þá, sem ekki hafa nennu til að stíga svolítið afsíðis frá malbikinu.
Gengið var til suðurs niður í Meradali. Hér er um einstaklega stórt, sléttbotna og myndarlegt landssvæði að ræða, skjólgott með „safaríkum“ blettum. Ef einhvers staðar ætti að planta skógi á Reykjanesskagann – þá væri það þarna, undir hlíðum Meradals. Og þá skemmir litadýrðin ekki fyrir; fjólublátt Fagradalsfjalli, bláleitt Kistufelli, brúnleitar Meradalahlíðarnar og svarleitur Stórihrútur.
Haldið var að upphafsstað með því að ganga til austurs upp úr Meradal milli Stórahrúts og Hraunssels-Vatnssfells syðra um Einihlíðasand. Ljóst er að vorblómin hafa vaknað seint þetta árið. Blóðbergið og lambagrasið eru þó að koma til, en vetrarblómið virðist hafa ákveðið að kúra frameftir. Smá vætuíbleyta og hlýindi í par daga myndu nægja til að vekja það snemmendis.
Frábært veður. Gangan tók 3 klst og 3 mín.

Heimildir m.a.:
-Jarðabókin 1703.
-Örnefnalýsinar og landamerkjaskrár Grindavíkurbæjanna.

Dalssel

Dalssel.