Saga Hafnarfjarðar – Sigurður Skúlason 1933

Hafnarfjörður

Í „Lesbók Morgunblaðsins 1933″ er grein eftir Árna Óla undir fyrirsögninni „Saga Hafnarfjarðar„. Þar fjallar hann m.a. um nýlega útgefna bók Sigurðar Skúlasonar með sama tiltli:

Hafnarfjörður

Saga Hafnarfjarðar 1930 – Sigurður Skúlason.

„Það mun hafa verið árið 1930 að bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað að láta rita sögu þess staðar, í tilefni af því að í sumar eru liðin 25 ár síðan Hafnarfjörður
fékk kaupstaðarrjettindi. Fekk þá bæjarstjóri Sigurð magister Skúlason til þess að rita söguna og byrjaði hann á því vorið 1931 að viða að sjer efni til hennar, og hefir starfað sleitulaust að bókinni síðan. Byrjaði hann á því að ganga í gegn um allar ferðabækur um Ísland og aðrar prentaðar heimildir, er á einhvern hátt snerta Hafnarfjörð, og skifta þær hundruðum. Síðan rannsakaði hann heimildir í Þjóðskjalasafninu og varð sú rannsókn mjög umfangsmikil fyrir þá sök, að öll vitneskja um Hafnarfjörð er á víð og dreif í skjölum Gullbringu- og Kjósarsýslu, áður en skiftingin var ger. Af skrám um erlend skjalasöfn var Sigurði það ljóst, að í Hamborg og Kaupmannahöfn var heimildir að finna, sem ekki mátti ganga fram hjá. Fór hann því utan í júlí 1932 og dvaldist fyrst um sinn.
Strax varð höfundi ljóst þegar byrjað var að prenta hana að þetta yrði mikil bók. Skiftir höf. henni í marga kafla og skal hjer rakið efni þeirra fram að þeim tíma er Hafnarfjörður fekk kaupstaðarrjettindi 1908.
Fyrsti kaflinn heitir: Umhverfi Hafnarfjarðar. Er þar í stuttum dráttum sögð jarðsaga umhverfisins, alt framan úr grárri forneskju, eða löngu áður en nokkur vissi að Ísland var til, og fram á vora daga. Er fróðlegt að lesa um hinar stórfeldu byltingar, sem þar hafa orðið og hvernig Reykjanesskaginn myndaðist. HafnarfjörðurKaflinn endar á því, að brugðið er upp mynd af hlutleik Hafnarfjarðar, eins og hann kemur gestsauga fyrir sjónir, og jafnframt tilfærð ummæli ýmissa erlendra ferðamanna, þar sem þeir segja frá Hafnarfirði og hvernig þeim hafi litist á staðinn.
Annar kafli heitir: Hinar fornu um hálfsmánaðartíma í Hamborg þújarðir í Hafnarfirði, og er hann við rannsókn í ríkisskjalasafninu, 78 blaðsíður. Er þar rakin mjög en síðan í Kaupmannahöfn um ýtarlega sögu bújarðanna Hvaleyrar, sem er elst, Ófriðarstaða og í rituðum heimildum í ríkisskjala- sem nú nefnast Jófríðarstaðir, safni Dana, konunglega skjala, Hamarkots, Akurgerðis og loks safninu og handritasafni Árna „híbýlanna sunnan fjarðar. Aftan við sögu safnaði hann sögu margskonar þújarða er svo viðauki, sem segir fróðleik til sögunnar, sem ekki var frá búnaðarmálum Hafnarfjarðar hjer á landi.
HafnarfjörðurSagan er nú tilbúin frá hendi höfundar og er þegar byrjað að prenta hana. Verður þetta mikil bók, eða um 40 arkir í stóru broti. Skiftir höf. henni í marga kafla og skal hjer rakið efni þeirra fram að þeim tíma er Hafnarfjörður fekk kaupstaðarrjettindi 1908. Er sá hluti sögunnar 22—25 arkir að stærð.

Af umleitanir í erlendum skjalasöfnum varð Sigurði það ljóst, að í Hamborg og Kaupmannahöfn var heimildir að finna, sem ekki mátti ganga fram hjá. Fór hann því utan í júlí 1932 og dvaldist fyrst um hálfsmánaðartíma í Hamborg og er hann við rannsókn í ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn, konunglega skjalasafninu og handritasafni Árna Magnússonar. Aftan við sögu þessara safnaði hann margs konar fróðleik til sögunnar frá öndverðu og fram til þessa dags.
HafnarfjörðurSagan er nú tilbúin frá hendi höfundar og er þessi þáttur bókarinnar því í raun rjettri landbúnaðarsaga Hafnarfjarðar. Þar eru myndir af Hvaleyri, þar á meðal tvær gamlar (1772) af bæ Þorsteins bónda Jónssonar, teiknaðar af tveimur samferðamönnum Sir Joseph Banks, sem dvaldist í Hafnarfirði það sumar. Þarna eru einnig ábúendaskrár jarðanna, samdar eftir fylstu gögnum, sem til verður náð, og eru samfeldar frá því um 1700.
Þriðji kaflinn heitir: Saga verslunarstaðarins. Er þeim kafla skift í þrjá megin þætti. Fyrsti þátturinn heitir Tímabil erlendrar samkepni (874—1602). Er hann um 60 blaðsíður og lýkur með honum fyrsta bindi bókarinnar, sem nú er fullprentað. Í þessum þætti er lýst, sögu íslenskra verslunarmála alment á þessu tímabili og því hvernig verslúnin drógst úr höndum Íslendinga sjálfra og lenti í klóm Norðmanna í lok þjóðveldistímabilsins.
HafnarfjörðurEn síðan er ýtarleg frásögn um það hvernig Norðmenn heyktust á því að sigla hingað, og verslun Íslands komst í hendur enskra og þýskra kaupmanna.
Þetta er þó aðeins nauðsynleg baksýn að verslunarsögu Hafnarfjarðar, sem alt þetta tímabil var langsamlega þýðingarmesti verslunarstaður hjer á landi. Sjerstaklega er eftirtektarverð frásögn höf. um upphaf ensku verslunarinnar hjer við land, sem er mjög tengd við Hafnarfjörð, og verslunarsamning einn, sem gerður var á Alþingi 1527 milli fslendinga annars vegar og þýskra og enskra kaupmanna hins vegar. Þessi samningur er prentaður í íslensku fornbrjefasafni, og hefir honum áður nálega enginn gaumur verið gefinn. Sýnir höf. fram á að hjer sje um að ræða mesta pólitískan verslunarsigur, sem útlendingar hafa unnið hjer á landi.
HafnarfjörðurEinnig er lýst afskiftum Danakonungs af verslunarmálum vorum, sem lauk, eins og kunnugt er rneð einokunartilskipun Kristjáns IV. árið 1602. Eftirtektarverð í þessum þætti er og frásögnin um bækistöð Hamborgarkaupmanna í Hafnarfirði. Er þar sagt frá því að þeir reistu þar kirkju, og sömuleiðis eru dregnar fram frásagnir íslenskra heimildarrita um baráttu Englendinga og Þjóðverja út af verslunaryfirráðum í Hafnarfirði.
Að lokum er lagt kapp á að sýna sjerstöðu Hafnarfjarðar í verslunarsögu Íslands á þessu tímabili. Annar þátturinn heitir: Tímabil danskrar einokunar (1602-1787). Þessum þætti bókarinnar er skift niður í smákafla, s.s. í hverra höndum verslunin var á hverjum tíma, og er þar fylgt sömu skiftingu, sem Jón Aðils hefir í bók sinni um verslunareinokun Dana á Íslandi.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður – herforingjaráðskort 1903.

Er hjer í stuttum dráttum lýst breytingum þeim, sem smám saman urðu í versluninni eftir einkaleyfisbrjefunum, en að öðru leyti er lítið farið út fyrir sögu Hafnarfjarðar, vegna þess að ýtarlega hefir verið ritað áður um þetta tímabil. Er þar lýst afleiðingum einokunarinnar í verslunarumdæmi Hafnarfjarðar. Síðan er gefið yfirlit um fiskveiðar íbúanna þar syðra, en hvað var aðalatvinnuvegur þeirra og sá, sem öll afkoma þeirra verslun bygðist á. Að lokum er brugðið upp ljósi yfir ýmsa þætti í menningu íbúanna á Innnesjum á þessu tímabili, svo sem dagfari og menntun, mataræði og neyslu munaðarvöru, klæðnaði, húsaskipun og atvinnuvegum. Hefir höf. þar stuðst við hina merku óprentuðu ritgerð Skúla landfógeta Magnússonar um Gullbringu- og K.jósarsýslu, sem hann samdi á árunum 1782—1785, og varðveitt er nú í handritasafni Landsbókasafnsins.
HafnarfjörðurÞriðji þátturinn heitir: Frá einokun til kaupstaðar (1787—1908). Er því þar fyrst lýst hvernig Hafnarfjörður lá i rústum eftir einokunina og Móðuharðindin, og gjaldþroti þess danska kaupmanns, sem tók verslunina þar í sínar hendur eftir að einokuninni lauk.
Síðan er sagt frá Bjarna riddara Sívertsen, sem byrjaði verslun þar 1794 og framkvæmdum hans, sem marka að ýmsu leyti tímamót í sögu Hafnarfjarðar. Bjarni dó 1833 og vill því svo einkennilega til, að sama árið sem Hafnarfjarðarkaupstaður á 25 ára afmæli, er 100 ára dánarafmæli þessa merka manns. Er því vel farið að hans er hjer ýtarlega minst — lýst skipasmíðum hans, sem þá voru nýung hjer á landi, siglingum hans og hvernig hann, ásamt Magnúsi Stephensen og með aðstoð Sir Josephs Banks, bjargaði Íslendingum frá yfirvofandi hungursneyð 1808 þegar Danir og Englendingar áttu í ófriði.
Síðan er sögð saga helstu verslana í Hafnarfirði fram til 1908 og sömuleiðis eru mjög fróðlegir og skemtilegir þættir um sjósókn Hafnfirðinga á 19. öld og staðarbrag þar. Loks er ýtarlegt yfirlit yfir byggingu og uppgang fjarðarins á þessu tímabili.“ – Á.Ó.

Heimild:
-Lesbók Morgunblaðsins, 23. tb. 18.06. 1933, Árni Óla, bls. 180-183.
-https://timarit.is/page/3270765#page/n3/mode/2up

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður – örnefni (ÓSÁ).