Tag Archive for: Hafnarfjörður

Leiðarendi

Á bílastæðinu við hellirinn „Leiðarenda“ við Bláfjallaveg er skilti. Á því stendur:

Jarðfræði

Leiðarendi

Leiðarendi – op.

„Hraunhellirinn Leiðarendi er í þjóðlendu milli Hafnarfjarðar og Grindavíkur innan Reykjanesfólkvangs. Auk þess njóta hraunhellar sérstakrar verndar samkvæmt náttúrverndarlögum (61, gr. laga nr. 60/2013) og allir dropsteinar í hellum landsins eru friðlýstir.

Leiðaendi

Í Leiðarenda.

Hraunhellar myndast þegar kvika rennur í hraunrás undir yfirborði, sem síðan nær að tæmast áður en kvikan storknar. Leiðarendi myndaðist í hraungosi úr Stórabolla í Grindarskörðum fyrir um 2000 árum. Yfir það hraun rann svo yngra hraun fyrir rúmlega 1000 árum sem kennt er við gígin Tvíbolla. Það hraun hefur náð að brjóta sér leið inn í hellinn á nokkrum stöðum. Leiðarendi er um það bil 900 metra langur, með fjölda viðkvæmra hraunmyndana eins og dropsteina, hraunstráa og hraunsepa, ásamt litríkum útfellingum.

Leiðarendi

Leiðarendi – dropsteinn.

Dropsteinar, hraunstrá og hraunsepar í hellum myndast við kónun hraunsins og eru fullmótuð fljótlega eftir að hraunið myndast. Þau halda ekki áfram að vaxa og t.d. dropsteinar í kalkhellum erlendis. Því er allt rask á þeim varanlegt.

Hraunin tvö við Leiðarenda nefnast eldra og yngra Hellnahraun þegar nær dregur byggð. Þau mynduðu Hvaleyrarvatn og Ástjörn sem eru hraunstífluð vötn.

Umgengisreglur

Leiðarendi

Leiðarendi – uppdráttur ÓSÁ.

-Leiðsögumenn eða fararstjórar skulu útvega sér leiðbeiningar um umgengisreglur hjá Hafnarfjarðarbæ áður en farið ermeð hópa inní hellinn.

Leiðarendi

Í Leiðarenda 2008.

-Hámarksstærð hópa eru 8 manns á hvern leiðsögumann.
-Ekki má snerta hraunstrá, dropsteina eða viðkvæmt hellaslím á veggjum og í lofti.
-Fararstjórar bera ábyrgð á að útvega nauðsynlegan búnað eins og hjálma og ljós.
-Ekki má kveikja eld inni í hellinum.
-Öll neysla matar og/eða drykkja er bönnuð.
-Landvörður er starfandi í fólkvanginu og brot á þessum reglum verða kærð til lögreglu.“

Svo virðist sem Hafnarfjarðarbær hafi tekið hellinn yfir, en hann er einungis að hluta til í landi bæjarins. Hinn hlutinn, og sá hluti hans sem tengist inngönguopunum er í Grindavíkurlandi.

Leiðarendi

Leiðarendi – skilti.

Hafnarfjörður

Leynidalir voru á norðausturmörkum Þorbjarnarstaða í Hraunum, vestan Ásbrautar og norðvestan Ásvallabrautar.

Hafnarfjörður

Leynidalir – loftmynd.

Í „Örnefnalýsingu Ara Gíslasonar um Þorbjarnarstaðir“ segir: „Suður af Hrauntungum er svo Fornasel, suður af því eru slakkar sem heita Vatnsstæði. Niður af þeim koma Kolbeinshæðir. Milli Hrauntungu og Kolbeinshæða heitir Brenna, þetta er skógardalur. Þar skammt niður af er svo
Rauðimelurinn fyrrnefndi. Svo tekur við hraunsvæði það sem heitir Kapelluhraun og í því er Kapella (Sjá árb. Fornleifafél.). Þetta er rétt ofan við gamla veginn, svo eru smákrókar norðan Kapellu sem heita Leynidalir“. Ari minnist ekki á fjárskjól í nefndum Leynidölum.

Alfaraleiðin

Í fornleifaskráningum hefur Alfaraleiðin (rauðlituð) millum Þorbjarnarstaða og Gerðis ekki verið skráð (einungis sögð „óljós“) – Herforingjarðaskort 1906.

Í „Örnefnalýsingu Gísla Sigurðsson um Þorbjarnarstaði“ segir: „Um Brúnaskarð eystra liggur alfaraleiðin upp á Kapelluhraun, en svo nefnist neðsti hluti Nýjahrauns, sem ofar kallast Bruninn og enn ofar Háibruni. Áður hefur verið getið um mosatekju í Kapelluhrauni. Landamerkjalínan liggur úr Þórðarvík suður og upp um Leynidali og síðan áfram upp austurbrún Brunans. Alfaraleiðin lá suðvestur eftir Brunanum“. Gísli nefnir heldur ekki fjárskjól í Leynidölum.

Hafnarfjörður

Leynidalir – fjárskjól 1.

Í „Fornleifaskráningu vegna mats á umhverfisáhrifum háspennulína frá Ölkelduhálsi á Helguvík í Reykjanesbæ„, sem Bjarni Einarsson skráði árið 2009 er getið um þrjú fjárskjól í Leynidölum, svonefnd Leynidalaskjól.
Um fyrstnefnda fjárskjóllið segir m.a.: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla í svokölluðum „dal“ um 160 m norðan við Krýsuvíkurveginn, 2,5×11 m (A – V). Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega [Ásbrautar]. Hlaðinn hefur verið 10 m langur tvískiptur garður úr hraungrjóti fyrir framan tæplega 11 m langan hraunskúta. Hleðslan er um 0,6 m breið og um 0,7 m há þar sem hún er hæst við inngang sem snýr mót NNA. Veggir eru mosavaxnir og gólf grasi gróið. Úr verður afmarkaður hellisskúti, tæplega 11 m langur, um 2,5 m djúpur og rúmlega 1 m hár, sem kjörið skjól fyrir hrakið fé. Í vestasta hluta skjólsins má greina leifar af þakhellum.“

Hafnarfjörður

Leynidalir – Leynidalaskjól 2.

Vitnað er í „Örnefnaskrá; Hraunin – Þorbjarnarstaðir, Gísli Sigurðsson skráði“, og „Fornleifaskráningu vegna tillögu að nýrri legu Krýsuvíkurvegar. Handrit; Byggasafn Hafnarfjarðar, maí 2004„.

Um annað fjárskjólið segir: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla (jarðfall), í svokölluðum „dal“, u.þ.b. 150 m norðan við Krýsuvíkurveginn. Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega, innra mál fjárskjólsins er 3×7 m (NA – SV). Hlaðinn hefur verið garður fyrir framan og til hliðar að SA-verðu við rúmlega 11 m langan slútandi hraunskúta. Þannig hefur verið myndaður hellisskúti eða fjárskjól. Hleðslur veggja eru u.þ.b. 0,6 m breiðar og rúmlega 1 m háar.

Hafnarfjörður

Leynidalir – fjárskjól 1.

Hæstar eru hleðslurnar við inngang sem snýr mót SV. Inngangur er tæplega 1 m á breidd. Veggir eru úr hraungrjóti sem eru orðnir áberandi mosavaxnir. Gólf skútans er allt gróið grasi. Athyglisvert er að unnar hellur hafa verið valdar til þess að mynda þak skútans að SA-verðu. Þar sem hraunskútinn er hvað hæstur er hæð hans rúmlega 1 m.“ Vitnað er til sömu heimilda og fyrr.

Um síðastnefnda fjárskjólið segir: „Leynidalsskjól – fjárskjól: Í grasi grónum hraunbolla (jarðfall), svokölluðum „dal“. Hugsanlega undir vegöxl sunnan við nýja Krýsuvíkurveginn eða mikilli mön úr timburflísum. Fjárskjólið er hugsanlega undir vegöxl sem nær upp að þaki skútans sem skjóli er í (eða undir mikilli mön). Lýsing þess hljóðar svo í „Fornleifaskráningu vegna hins nýja Krýsuvíkurvegar„:

Hafnarfjörður

Leynidalir – varða.

„Fjárskjól 8×2,5 m að stærð (NV – SA). Hlaðinn hefur verið grjótgarður um 8 m á lengd fyrir framan slútandi hraunskúta. Þannig hefur verið myndaður hellisskúti eða fjárskjól. Veggir eru mosavaxnir u.þ.b. 0,5 m breiðir og rúmlega 0,5 m háir. Dyr snúa líkast til mót austri. Gólf skjólsins er allt grasi vaxið. Athyglisvert er að á NV-verðu hefur verið hlaðið fyrir gjótu. Minjarnar eru hugsanlega enn til staðar undir öxlinni, þóó ástandi sé líklega orðið lélegt.“

Bjarni getur um Vörðu efst í Leynidölum: „Um 6 m norður af jarðstrengshrygg, rétt norðan við rafmagnslínu (Ísallínu), um 100 m sunnan við fjárskjól, á mosavaxinni hraunbungu. Fornleifarnar eru í óröskuðum reit á milli vega, um 1 m í þvermál og um 1,2 m há. Úr hraungrjóti.“

Í „Fornleifaskráningu Hafnarfjarðar VIII – Ásland“ frá árinu 2021 er fjallað um tvö „Leynidalssskjól“.

Hafnarfjörður

Leynidalir – meint fjárskjól.

Um hið fyrra segir: „Fjárskýli; lengd: 4.7 m, breidd: 3.7 m, vegghæð: 0.7–1.2 m, breidd veggja: 0.8 m. Í grasivöxnum hraunbolla um 130m vestan við húsið Eskivelli 19. Tvær veglegar hleðslur framan við þokkalega rúmgóðan skúta. Inngangur fyrir miðju.
Þakhellur liggja innan í skútanum en þær stóðu enn þegar skýlið var skráð árið 2004. Skútinn er fullur af rusli. Veggjahæð er frá 0.7 – 1.2 m og veggjabreidd er að jafnaði um 0.8 m.“

Um síðara fjárskýlið segir: „Fjárskýli; lengd 6.7 m, breidd 0.4 m, vegghæð 0.1-1.1 m, breidd veggja 0.4 m. Fjárskjólið er í hraunbolla um 70 m sunnan við götuna Suðurhellu. Tvær hleðslur framan við grunnan skúta í hrauninu. Vestari hleðslan er verr farin. Inngangur fyrir miðju og mosavaxið. Veggjahæð er frá 0.1 – 1.1 m og veggjabreidd er að jafnaði um 0.4 m. Engin hætta.“

Heimildir:
-Þorbjarnarstaðir – Örnefnalýsing Ara Gíslasonar.
-Þorbjarnastaðir – Örnefnalýsing Gísla Sigurðssonar.
-Fornleifaskráning vegna mats á umhverfisáhrifum háspennulína frá Ölkelduhálsi á Helguvík í Reykjanesbæ, Bjarni F. Einarsson 2009.
-Fornleifaskrá Hafnarfjarðar VIII – Ásland, 2021.

Hafnarfjörður

Leynidalir – fjárskjól 1.

Ratleikur Hafnarfjarðar

Ratleikur Hafnarfjarðar er árlegur útivistar- og fróðleiksleikur þar sem þátttakendur leysa þrautir víðs vegar um bæinn og upplandið og kynnast sögu, náttúru og menningu Hafnarfjarðar á skemmtilegan hátt.

Ratleikur Hafnarfjarðar

Ratleikskortið 2002.

Ratleikurinn er áhugaverður leikur fyrir alla fjölskylduna og stendur yfir allt sumarið. Upphafsmaður ratleiksins var Pétur Sigurðsson en hann kynntist svipuðum leik á ferð sinni um Noreg. Eftir að Pétur kynnti hann til sögunnar, fór hann af stað með Ratleikinn í samvinnu við ferðamálayfirvöld í Hafnarfirði. Lovísa Ásbjörnsdóttir sá um gerð fyrstu ratleikskortanna. Ratleikurinn hefur síðan vakið mikla lukku og breytingar verða jafnan á honum frá ári til árs.
Hið merkilega er, þegar leitað er eftir „Ratleik Hafnarfjarðar“ í leitarvélum eða á „Timarit.is“ finnst reyndar fróðleikur um Ratleikinn, en engar þeirra virðast hafa að geyma mynd af frumkvöðlinum Pétri.

Pétur Sigurðsson

Pétur Sigurðsson

Pétur Sigurðsson, frumkvöðullinn (ljósm. GG).

Pétur Sigurðsson var einstakur hugsjónamaður sem lét til sín taka á mörgum sviðum í Hafnarfirði, en hann er án efa þekktastur sem „faðir Ratleiks Hafnarfjarðar“.
Pétur kom með hugmyndina frá Noregi, sem fyrr sagði, og kynnti hana í framhaldi fyrir ferðamálayfirvöldum í Hafnarfirði, sem leist vel á hana. Hann setti fyrsta Ratleik Hafnarfjarðar á laggirnar árið 1996. Hugmyndin var einföld en snjöll: að fá fólk út í náttúruna, kynna því bæjarlandið og söguna í gegnum skemmtilega leit að merktum skiltum eða póstum. Í þá daga var fátt um fjölmiðla; bæjarblöð og -landsmála.
Pétur sá um leikinn af mikilli ástríðu í sjö ár, undirbjó, valdi staðsetningar, samdi vísbendingar, málaði lykilsspjöldin og fór sjálfur með þau út í hraun. Leikurinn varð fljótt að einum vinsælasta sumaratburði bæjarins og hefur verið haldinn árlega síðan –  með sívaxandi vinsældum.

Ratleikur Hafnarfjarðar

Fyrstu ratleiksskiltin voru handmáluð græn og hvít árlega og síðan bætt við „lyklum“, sem þátttakendur þurftu að skrá á ratleikskortin, líkt og í dag. Undirbúningurinn krafðist því mikillar vinnu af hálfu útleggjarans.

Pétur var menntaður járnsmiður og starfaði lengi hjá Vélsmíðaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar. Hann var þekktur fyrir mikla handverkskunnáttu og var raunverulegur „þúsundþjalasmiður“. Hann brann fyrir því að kenna ungu fólki að meta náttúruna og bera virðingu fyrir umhverfinu. Ratleikurinn var í raun framlenging á þessari lífsskoðun hans – að tengja bæjarbúa við „Hafnarfjarðarhraunið“ sem hann elskaði svo heitt. Hann var hafsjór af fróðleik um örnefni og staðhætti í Hafnarfirði og nágrenni. Í gegnum ratleikinn tókst honum að miðla þessari þekkingu til áhugasamra bæjarbúa. Margir Hafnfirðingar hafa í framhaldinu lært að rata um sitt eigið heimaland, eingöngu vegna þess að þeir fóru að „leita að póstum frá Pétri“.
Þrátt fyrir skamman tíma við stýringu Ratleiks Hafnarfjarðar á hann mikið lof skilið – bæði fyrir hugmyndina sem og þrautseigju upphafsins.

Jónatan Garðarsson

Jónatan Garðarsson.

Jónatan Garðarsson hafði unnið með Pétri að leiknum frá 2002, tók við honum árið 2004 og lagði hann í framhaldinu til 2006.  Auk  þess tók hann saman fróðleiksmola á útgefið ratleikskortið sem tengdust felustöðum ratleiksspjaldanna. Þá setti hann þar inn fróðlega samantekt um helstu þjóðleiðir í hraununum ofan Hafnarfjarðar. Flest það er varðaði minjar og sögu Hafnarfjarðar var honum hugleikið. Hann var og iðinn við að kynna ratleikinn fyrir bæjarbúum sem og fyrir öðrum mögulega áhugasömum um efnið í fjölmiðlum.

Jónatan sem sagt lagði út leikinn til 2006, en árið 2007 hafði Guðni Gíslason tekið að sér umsjón hans og endurgerði síðan ratleikskortið. Markmiðið með ratleiknum varð þó enn það sama og áður hafði verið, auk framangreinds, að efla áhuga almennings á útivist og vekja athygli á þeim náttúruperlum sem finna má í Hafnarfirði og í upplandi bæjarsins.

Guðni Gíslason

Guðni Gíslason.

Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarfrétta (fyrrum Fjarðarpóstsins), smiður, skáti, svo eitthvað sé nefnt, sem og eigandi Hönnunarhússins ehf,  gefur nú út Ratleik Hafnarfjarðar. Hann hefur undirbúið, annast og/eða lagt Ratleik Hafnarfjarðar frá 2006 eða í 20 ár. Frá árinu 2007 hefur hann alfarið séð um ratleikinn í samstarfi við ferðamálayfirvöld í Hafnarfirði, utan ársins 2009 er bæjaryfirvöld misstu kjarkinn um stund eftir bankahrunið.
Af árafjöldanum má dæma að Guðni hafi bæði reynst staðfastur og þrautseigur í eindreginni viðleytni sinni til að viðhalda bæði ratleiknum í upprunalegri mynd og þróa hann samtímis til nútímahorfs. Verður það bæði að þykja virðingar- og aðdáunarvert. Slíkur maðurinn hefði hingað til hlotið sérstaka viðurkenningu fyrir minni afrek.

Ratleikur Hafnarfjarðar

Ómar Smári Ármannsson.

Guðna til aðstoðar síðustu árin við ábendingar og textaskrif hefur verið Ómar Smári Ármannsson, fornleifafræðingur, leiðsögumaður og fv. aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann hefur löngum haldið úti upplýsingasíðunni FERLIR um minjar, sögu og náttúru Reykjanesskagans, en sjálfur  jafnan látið lítið fyrir sér fara.
Ómar hefur þó bæði ritað fjölda greina um verðmæti sögulegra minja í og við Hafnarfjörð og á Reykjanesskaganum, auk þess sem hann hefur fundið aðrar allnokkrar slíkar, áður óþekktar og unnið að fornleifaskráningum. Afrakstur þessa hefur löngum reynst notadrjúkt í ratleiknum.
Heimasíða ratleiksins er RATLEIKUR HAFNARFJARÐAR, en auk þess má finna hann á facebooksíðunni RATLEIKS HAFNARFJARÐAR.

Ratleikskort og fróðleikur

Ratleikur Hafnarfjarðar

Fyrstu ratleikskortin.

Vönduð útivistarkort eru gefin út árlega og innihalda staðsetningar, leiðbeiningar og fróðleiksmola. Þau eru afhent ókeypis á helstu stöðum í bænum, m.a. í Bókasafni Hafnarfjarðar, í sundlaugum bæjarins, í Fjarðarkaup, á bensínstöðvum, í Upplýsingamiðstöð Hafnarjarðarbæjar og á skrifstofu Fjarðarfrétta (Hönnunarhússins) við Bæjarhraun.
Til að sem flestir geti nú tekið þátt í þessum skemmtilega útivistarleik, sem byrjar í lok maí eða byrjun júní, er honum þrískipt: Léttfeti – 9 merki, Göngugarpur – 18 merki, Þrautakóngur – öll 27 merkin. Á hverjum stað þarf að finna leyniorð á spjaldi, skrifa það á yfirlitsseðil í bæklingnum. Þegar lokið hefur verið við leikinn að hluta eða í heild þarf að skila inn lausnum. Uppskeruhátíð verður haldin í lok september, þar sem dregið er úr öllum sem skila inn a.m.k. 9 merkjum.

Ratleikur Hafnarfjarðar

Ratleikskortið 2007.

Létti leikurinn sem hugsaður er fyrir byrjendur, en er jafnframt kjörið verkefni fyrir fjölskyldur eða hópa. Garpagangan reynir meira á úthald þátttakenda og hæfni við að nota landakort og erfiðasti hlutinn þrautseigju þeirra sömu. Ekki er um kapphlaup við tímann að ræða og kjósa margir að krydda gönguferðir fjölskyldunnar með þessum skemmtilega leik allt sumarið og nýta ferðirnir til að skoða annað merkilegt sem umhverfið hefur upp á að bjóða.
Lausnir verða að berast fyrir auglýstan skiladag í septembermánuði og eru veglegir vinningar í boði fyrir heppna þátttakendur.
Ratleikskortið nýtist jafnframt sem almennt útivistarkort. Leikurinn er ætlaður öllum aldurshópum, bæði íbúum og gestum, og er vinsæll hjá fjölskyldum sem vilja sameina hreyfingu og fróðleik.

Ratleikur Hafnarfjarðar 2026

Ratleikur Hafnarfjarðar

Ratleiksmerki Ratleiks Hafnarfjarðar, 30. árgangur.

Ratleikurinn 2026 er í fullum undirbúningi. Í ár verður ratleikurinn lagður út þrítugasta sinni. Þemað að þessu sinni eru „Hraunin ofan Hafnarfjarðar„, sbr:
-27 ratleiksmerki verða lögð út á fjölbreytta staði í Hafnarfirði og upplandi bæjarins.
-Leikurinn mun standa frá maílokum til seinni hluta septembermánaðar.
-Þrír erfiðleikaflokkar verða áfram í boði; Léttfeti, Göngugarpur, Þrautakóngur.
-Þátttakendur safna bókstöfum og tölum af merkjunum og skila inn lausnum, að lágmarki 9 talsins, til að geta tekið þátt í útdrætti.
-Uppskeruhátíð verður haldin í lok september eða byrjun október þar sem heppnir þátttakendur eiga möguleika á veglegum vinningum. Um 60 slíkir eru í boði fyrir þá er skila inn úrlausnum.

NJÓTIÐ, bæði bæjarbúar (þ.m.t. frambjóðendur á listum til komandi sveitarstjórnarkosninga) sem og gestir bæjarins…

Ratleikur Hafnarfjarðar

Ratleikur Hafnarfjarðar – eitt af „nútímaskiltum“ (áfangastöðum) ratleiksins.

 

Hafnarfjörður 1554

Í Sjómannadagsblaðinu 1992 eru greinar um tilurð, upphaf og þróunar byggðar í Hafnarfirði, m.a. undir fyrirsögninni „Miklar hamfarir og erfið fæðing„:

Sjómannadagsblaðið 1992
„Það var ekki lítið, sem gekk á fyrir máttarvöldunum að búa til Hafnarfjörð. Í sinni eigin sköpun gekk það svo til fyrir hólmanum, sem fékk nafnið Ísland að á einu sínu aldursstigi var yfir honum blágrýtishella, sem síðan lagðist yfir ís, og ísinn bráðnaði og hólminn varð blómum skreyttur, og enn kom ísinn og lagðist yfir blómin, en ísinn átti sér svarinn óvin. Hann var eldurinn, sem braust um undir blágrýtishellunum og ísnum eins og tröll í fjötrum, og tók að sprengja helluna og bræða ísinn og þá tók hraunið að renna og hraunin kólnuðu í gjallhrúgur og hraunið rann í sjó fram og það tóku að myndast skagar útúr hólmanum og víkur inn í hann.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður skömmu fyrir 1900 – mynd í eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar.

Allt gekk þetta með miklum seinagangi, því að í þennan tíma var ekki til mannskepnan, sem sífellt er að flýta sér og mælir allan tíma í hænufetum, sem hún kallar ár. Hún gefur og öllu sín nöfn, þessi mannskepna.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður 1835.

Og þegar gjallhringarnir kólnuðu og urðu blágrýtis- og móbergshrúgur kallaði hún þau fjöll, og eitt fjallið nefndi hún Vífilsfell, en skagann, sem runnið hafði fram úr því fjalli eða þeim fjallaklasa og storknaði í hraunhellu, var gefið nafnið Romshvalanes, og hefur það nafn trúlega tekið til þess skaga alls, sem nú er nefndur Reykjanesskagi.
Vífilfell var heitið eftir fóthvötum náunga, sem bjó á Vífilsstöðum. Sá hafði hlaupið eftir endilangri suðurströnd hólmans í leit að framtíðar búsetursstað fyrir sinn húsbónda. Kannski vilja Hafnfirðingar sem minnst um þennan mann tala. Það var nefnilega hann sem fann Reykjavík. Vífill var svo fótfrár, að þegar hann vildi róa til fiskjar, hljóp hann frá bústað sínum uppá þetta fjall að gá til veðurs áður en hann reri. Hann rann þetta sem hind á sléttum velli, þó á 700 metra bratta væri að sækja og spottinn 10 km. eða svo í loftlínu. Síðan hljóp hann til skips að róa eða heim í rúm til kellu sinnar aftur. Margt barnið hefur orðið til um aldirnar, þegar menn hættu við að róa.

Hvaleyri

Hvaleyrarbærinn 1772 (settur í nútíma samhengi). Varða til minningar um Flóka Valgarðsson, þess er elst er getið, í forgrunni.

Í fyrrgreindum gauragangi í jarðskorpunni hafði Hafnarfjörður myndast, af Hvaleyrarhöfða á annan veginn, en Álftanesinu á hinn veginn, og varð hin mesta völundarsmíð af firði.

Hvaleyri

Hvaleyir 1772.

Menn vita að vísu hvernig nafnið Hvaleyri varð til. Þeirri eyri gaf nafn hinn fyrsti fiskimaður hólmans, svo ákafur til veiðanna, að hann gætti ekki að afla heyja, og festist þessi veiðiáhugi með þeim, sem fylgdu í fótspor þessa náunga. Hann hafði í hrakningum rekizt inn á hinn skjólgóða fjörð og fundið þar hval rekinn á eyri, sem hann gaf þá nafnið Hvaleyri. En þótt vitað sé gerla, hvernig nafnið Hvaleyri er tilkomið veit enginn hver gaf firðinum nafnið Hafnarfjörður, en fjörðurinn ber nafn sitt með sóma, hann er lífhöfn í öllum veðrum með góðri skipgengri rennu inná öruggt skipalægi. Það mun áreiðanlega rétt, sem séra Árni Helgason segir að nafngiftin hefir upphaflega átt við fjörðinn milli Hraunsness og Melshöfða.
Það er ólíklegt að víkin eða reyndar bara vogurinn milli Hvaleyrarhöfða og Skerseyrar hefði verið kölluð fjörður, á tíma íslenzku nafngiftarinnar. Það hefur gerzt hið sama með Hafnarfjörð og ísafjörð. Kaupstaðir tóku nöfn sín af fjörðum, sem þeir stóðu við. Fjarðarnafnið festist á þessum vog, þar sem kaupstaðurinn reis. Sigurður Skúlason segir að „gamlar skoðanir séu lítils virði í þessu efni“. Það er undarleg ályktun.

Hafnarfjörður - Hvaleyri
Nafninu bregður fyrir í Hauksbókarhandriti um 1300 í sambandi við nafngift Flóka á Hvaleyri, en síðan ekki fyrr en í annálum á 15.du öld.
Heitið „Fjörðurinn“ er síðara tíma heiti á Hafnarfirði í máli manna, og einkum bæjarbúa sjálfra og Reykvíkinga, og líklega eru engir landsmenn í vafa um um við hvað sé átt þegar sagt er að maður eigi heima í „Firðinum“, það á enginn fjörður nema Hafnarfjörður. Líkt og það tók tímann að búa til Hafnarfjörð, reyndust seint búnir til Gaflarar, enda umhugsunarefni.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður 1902 – herforingjaráðskort með örnefnum.

Átti yfirleitt að búa til Krata. Það varð að ráði til jafnvægis í náttúrunni. Það er bókstaflega ekkert vitað, hvort í þessum forláta firði var nokkur sála búsett svo öldum skipti.
Hvaleyri er, sem fyrr er lýst, nefnd í Landnámu, og því nafni bregður fyrir, segir Sigurður Skúlason í sinni Hafnarfjarðarsögu, þrisvar sinnum á 14du öld, og þá fyrst árið 1343 í sambandi við skipsskaða. „Kristínarsúðin“ er sögð hafa brotnað við eyrina. Þar næst í kirkjugerningi 1391 og 1394 er sagt í annál að norskt skip hafi tekið þar land af hafi.
Nú er það ekki að efa að skipaferðir hafa verið um fjörðinn frá fyrstu tíð landnáms og eitthvert fólk þó nafnlaust sé, bollokað með rolluskjátur, lagt net í Hvaleyrartjörn og dorgað í firðinum fyrir fisk, en það er ekki svo mjög undarlegt að við fjörðinn festist engin byggð, sem sögur fari af fyrr en það verður að útlendingar gera garðinn frægan.
Fjörðurinn var einangraður, umkringdur hraunkarganum illum yfirferðar og engar búsældarlegar sveitir á næstu grösum og því um langan veg og torfæran að sækja kaupstefnur, ef skip hefði komið af hafi með varning, siglingamenn hylltust til að taka hafnir þar sem þeir lágu fyrir fjölmennum sveitum. Þá hefur og verið svo fámennt við fjörðinn að ekki hefur verið leitað þangað í liðsafnaði og hetjur ekki riðið þar um héruð til mannvíga.

Hafnarfjörður
Það urðu sem sé útlendingar, sem leystu Hafnarfjörð úr álögum einangrunar og færðu staðinn inní landsöguna. Útlendingar hafa alla tíð verið hrifnir af þessarri höfn og komið mikið við sögu staðarins. Þegar útlendingum verður leyft að landa hér afla, væri það ekki undrunarefni að þeir sæktu mikið til Hafnarfjarðar.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður.

Það er um það löng saga í Sögu Hafnarfjarðar hinni fyrri, þegar Ríkharður hinn enski valdi sér Hafnarfjörð fyrstur manna svo sögur fari af sem verzlunarstað 1412, en einmitt það ár hófust siglingar Breta hingað til kaupskapar og fiskveiða.
„Sumarið 1415 var mikil erlend sigling til Hafnarfjarðar. Þangað sigldi þá knör sá, er Árni Ólafsson Skálholtsbiskup hafði látið gera erlendis og komið síðan á út hingað. En þetta sumar er einnig sagt, að 6 skip frá Englandi hafi legið í Hafnarfirði. Gæti það bent til þess, að staðurinn hafi þá þegar verið orðinn miðstöð enskra siglinga hér við land.
Skipverjar á einu þessarra ensku skipa rændu nokkurri skreið bæði á Romshvalanesi og í Vestmannaeyjum og var slíkt ekki eindæma um Englendinga, sem hingað komu á þessum tíma. Með einu þessarra skipa sigldi Vigfús Ívarsson, fyrrverandi hriðstjóri til Englands.“ Vigfús sigldi með fullt skip skreiðar en skreiðarverð var þá hátt í Englandi.

Hafnarfjörður
En Englendingum reyndist ekki lengi friðsamt í Hafnarfirði. Bæði Hansakaupmenn og Hollendingar tóku að leita eftir bækistöð uppúr 1471. Stríðið um Hafnarfjörð stóð þá mest milli Þjóðverja og Englendinga og fóru Englendingar mjög halloka í þeim viðskiptum, en létu sig þó ekki, þeirri þjóð er ósýnt en að láta sig, og héldu Englendingar áfram að auka sókn sína hingað til lands og voru fjölmennir víða sunnanlands og vestan allt norður í Jökulfirði og suður í Vestmannaeyjar.
HafnarfjörðurOg ekki hefur Þjóðverjum tekizt að hrekja þá með öllu úr Firðinum fyrr en kom fram undir 1520. Eftir það sátu Þjóðverjarnir að höfninni og bjuggu vel um sig á Óseyri. Alls sóttu Þjóðverjar á 39 hafnir hér við land og er af því mikil saga hversu valdamiklir þeir voru orðnir á 16. öldinni og jafnvel svo að þeir létu orðið til sín taka störf og samþykktir Alþingis. Allt framferði Þjóðverjanna féll landsmönnum miklu betur en Englendinga og miklu betra skipulag var á verzlunarháttum, og var Hafnarfjörður þeirra aðal bækistöð, og þar fastir kaupmenn, sem reistu hús myndarleg og kirkju. Veldi Hamborgara stóð með miklum blóma allt til 1543 að Danakonungur lét gera upptæka alla þýzka fiskibáta 40-50 skip, sem gengu frá Suðurnesjum og aðrar eignir Þjóðverja þar.
Veldi Hamborgara fór að hnigna eftir þetta og með Einokun 1602, misstu Þjóðverjar verzlunarleyfi sitt (1603) í Hafnarfirði. En ekki var að fullu slitið sambandi Hamborgara og Hafnafjarðar fyrr en á þriðja tug 17du aldar.“

Hafnarfjörður
Í framhaldinu tók danska einokunarverslunin við frá 1602-1787. Sigurður Skúlason, skrásetjari, kveður Konungsverzlun með þessum orðum:
„Með þessum hætti varð Hafnarfjörður mesta fiskihöfn Íslands í lok einokunartímabilsins. Hafngæði og lega fjarðarins gerðu hann enn á ný að þýðingarmestu verzlunar- og fiskistöð landsins.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður 1835.

Á uppdrætti af firðinum, sem gerður var um þessar mundir, sjást auk verzlunarhúsanna í Akurgerði, verzlunarhúsið á Langeyri, íbúðarhús stýrimanna og geymsluhús (Fiske Jagternes Huus) á Hvaleyri. Í Hvaleyrartjörn lágu fiskijaktirnar að vetrarlagi, en aðalsaltfiskverkunin fór fram á Langeyri, norðan fjarðarins. Þar lögðust fiskihúkkorturnar fyrir akkerum, meðan skipað var upp úr þeim, en ekki máttu þær liggja utar en svo, að Keili bæri beint yfir Hvaleyrarhöfða, vegna grýtts sjávarbotns.
Hafnarfjörður
Þegar kóngur hafði tapað í fimm árin, 1781-86 á Íslandsverzlun sinni ákvað hann að tapa ekki meiru. Honum þótti nú flest fullreynt um þessa Íslandsverzlun og sá þann kostinn vænstan að gefa hana frjálsa. Ekki tókst þó vel til um byrjunina fyrir Hafnarfjörð sem verzlunarstað.

Hafnarfjörður.

Hafnarfjörður.

Þann 6. júní 1787 var auglýst með tilskipun að verzlunin væri gefin frjáls við alla þegna Danakonungs, en um haustið (17. nóv.) var einnig gefin út tilskipun um kaupstaði í landinu, og fengu þá nokkrir verzlunarstaðir kaupstaðarréttindi, og urðu höfuðverzlunarstaðir í verzlunarumdæmum eða kaupsviðum og hétu þetta „autoseraðir útliggjarastaðir“. Þeir voru: Reykjavík, Vestmannaeyjar, Eskifjörður, Eyjafjörður, Ísafjörður og Grundarfjörður.
Hafnarfjörður varð þarna útundan. Hann var aðeins „autoriseraður höndlunarstaður“ í umdæmi Reykjavíkur, en kaupsvið Reykjavíkur ákveðið Gullbringu- og Kjósarsýsla og Borgarfjarðar- og Mýrasýsla vestur að Hítará.
Með þessari tilskipan var það staðfest af stjórnarvöldum að Reykjavík skyldi sitja yfir hlut Hafnarfjarðar sem verzlunarstaður.
Það átti ekki af Hafnarfirði að ganga, að ráðamenn hefðu litla trú á staðnum sem framtíðar verzlunarstað.

Bjarni SívertsenÁrið 1850 hafði danska innanríkisráðuneytið spurzt fyrir um það hjá stiftamtmanninum hvort Hafnarfjörður ætti að telja til þeirra hafna, sem væru hentugar til að vera meiriháttar verzlunarstaðir, þar sem kaupskip gætu lagzt svo, að vörum yrði skipað upp.
Stiftamtmaðurinn snéri sér til sýslumanns Gullbringu- og Kjósarsýslu og fól honum að gefa svarið.
í stuttu máli sagt taldi sýslumaður allt úr um Hafnarfjörð, sem gerlegt væri að byggja upp sem stóra verzlunarhöfn. Byggingarsvæðið í Hafnarfirði væri orðið svo þröngt að eins og sakir stæðu væri naumast hægt að reisa þar sæmileg verzlunarhús, hvað þá heldur mörg. Verzlanir þær, sem fyrir eru á staðnum geti ekki látið neitt af sínum lóðum. Ekki sé hægt að knýja Knudtzon stórkaupmann til að láta neitt af sínu landi, sem hann eigi með fullum rétti og samkvæmt eldri ályktun. (Hér mun átt við Akurgerði, eða landið vestan við fjörðinn). Hamarskot mátti heita fullbyggt, þar stæðu tvær verzlanir og búið að úthluta lóð fyrir þriðju verzlunina. í Hamarskotslandi sé því ekki lengur um neina verzlunarlóð að ræða sem geti náð til sjávar, svo sem sjálfgert sé að verði að vera.
Í Ófriðarstaðalandi sé óbyggð landræma meðfram sjónum, að vísu mætti reisa þar nokkrar byggingar eða tvær verzlanir, en slíkt yrði kostnaðarsamt, þar sem landið væri lágt, og verja yrði húsin fyrir sjógangi og ofan við þessa landræmu væri mýri. Loks er það að norðan við verzlunarstaðinn nái hraunið „svo gersamlega niður að sjó, að þar er ekki um neinar byggingarlóðir að ræða“.
Lausakaupmönnum var loks bannað að verzla í Firðinum, en það var um seinan fyrir Hafnarfjarðarkaupmanninn. Hann fór á hausinn í sama mund.
Á rústum þessa þrotabús Hafnarfjarðarverzlunarinnar reisti Bjarni Sívertsen verzlun sína, og í sama mund (1797) verzlun í Reykjavík, reisti þar verzlunarhús sem nefnt var Sívertsenshús. Þar var prestaskólinn síðar til húsa.
Árið 1804 keypti Bjarni bæði Hvaleyri og Akurgerði og 1816 keypti hann Ófriðarstaði og átti þá orðið verzlunarlóðirnar við fjörðinn nema Flensborg.
KnudtzonÁrið 1835 keypti Peter Christian Kudtzon, stórkaupmaður í Kaupmannahöfn allar fasteignir af dánarbúi Bjarna Sívertsen í Akurgerðislandi á uppboði í Kaupmannahöfn
fyrir 3900 rd. í reiðu silfri.
Árið 1869 fluttist Þorsteinn Egilsson til Hafnarfjarðar og settist að í húsi Matthíasar J. Matthisen, kaupmanns, sem hann hafði reist á Hamarskotsmöl fyrstur manna á því verzlunarsvæði 1841.
Þarna hóf svo Þorsteinn verzlun sína. Hann komst í samband við Norsk-íslenzka Verzlunarfélagið, sem sjálfur Jón Sigurðsson hafði átt aðild að í félagi við norska Íslandsvini. Þorsteinn brá sér til Björgvinjar, og hafði þá orðið að fá lánað fyrir farinu, ekki var auður í garði hjá kaupmanninum, og hann kom upp aftur sem verzlunarstjóri hins nýstofnaða félags í Reykjavík. Hann kom á skonnortu hlaðinni vörum sem sigldi eftir skamma dvöl út aftur og einnig hlaðin vörum og sigldi þá úr fiskhöfninni Hafnarfirði.
Þorsteinn EgilssonSegir nú ekki af þessu félagi annað, en það reisti sér hurðarás um öxl með kaupum á gufuskipi, og ýms dýr mistök urðu í rekstri skipsins og félagið lagði upp laupana 1873. Þá réðst Þorsteinn hið sama ár til verzlunarfélags Álftaness og Vatnsleysustrandarhrepps. Það félag hætti eftir aflaleysisárið 1776.
Samtímamaður Þorsteins í Hafnarfirði var maður, sem þekktur er í landssögunni, sem einn af merkustu mönnum síns tíma, Þórarinn Böðvarsson, sem fyrst var prestur í Vatnsfirði, en síðar í Görðum frá 1868 til dauðadags 1895. Hann var prófastur í Kjalarnesþingi í 21 ár og alþingismaður Gullbringu- og Kjósarsýslu í 23 ár. Séra Þórarinn kom víða við í félags- og framkvæmdasögu Hafnarfjarðar á sinni tíð og var einnig frumkvöðull þar í útgerð. Segja mætti að engin ráð væru nema séra Þórarinn kæmi þar til.
Áður hefur það verið rakið hér í sögunni, að þrisvar sinnum kom það til að stjórnvöld gerðu uppá milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, og héldu fram hag Reykjavíkur og mestu máli skipti í þeim hlutaskiptum að Innréttingarnar voru settar niður í Reykjavík 1752.
August FlygenringÁgúst Flygenring kemur til sögunnar í Firðinum sem skipstjóri. Hann kom til Hafnarfjarðar 1888 til að taka við skipstjórn á litlum kútter, Svend, sem séra Þórarinn átti og var með hann í 8 ár. Þá fer Ágúst til Noregs að kaupa stærra skip fyrir Þórarinn og keypti þá kútterinn Himalaya 1892, og var skipstjóri á því skipi til ársins 1900, að hann hætti skipstjórn og hóf útgerð og verzlun.
Einar Þorgilsson varð aftur á móti fyrstur manna til að bregðast við í verzlunarmálinu, þegar verzlanirnar, Knudtzonaverzlun og Linnetsverzlun voru að hætta rekstri.
Einar stofnaði þá 1895 Pöntunarfélag í Firðinum og veitti því forstöðu í tíu ár, en sjálfur byrjaði hann að verzla á Óseyri, sem hann hafði keypt árið 1900.
Einar ÞorgilssonÁrið 1897 varð Einar hreppstjóri Garðahrepps og þar með Hafnfirðinga og gekkst þá fyrir stofnun útgerðarfélags, þilskipafélags Garðhverfinga, til kaupa á kútter, svo að segja má að Einar brigði hart við, þegar hann sá hvað var að gerast í Reykjavík.
Rétt sem jarlarnir tveir og Pétur J. Thorsteinsson hafa snúið þróuninni í Hafnarfirði við og fólk fór á á ný að flytjast í þennan stað, reis hvert stórfyrirtæki útlendra manna af öðru á staðnum, Brydeverzlun hóf 1902 kútteraútgerð frá Hafnarfirði með fjórum kútterum, þá næst skaut sér inn Íslendingurinn Sigfús Sveinsson með 3 kúttera jafnt og hann reisti fiskverkunarstöðina Svendborg.

Falck konsúll, Norðmaður frá Stavanger kom með tvo litla togara, Atlas og Albatross 1903^4 og það var hann, sem með útgerð þeirra skipa frá Hafnarfirði hóf síldveiðar með herpinót fyrstur manna hér við land og er það ekki lítill atburður í íslenzku fiskveiðisögunni. Enn er að nefna Norðmanninn H.W. Friis, en hann hóf útgerð lóðabáta, og þeir urðu einir fimm um skeið. Og 1904 keypti Ágúst Flygenring gufubátinn Leslie og gerði hann fyrstur Íslendinga út til veiða með herpinót fyrir Norðurlandi.

Coot

Coot.

Þá er það næst að telja að hinn jarlinn, Einar Þorgilsson, tók að gera út frá Hafnarfirði fyrsta íslenzka togarann sem kom til landsins 6. marz 1905, og tæpum tveimur árum áður en fyrsti togarinn, Jón forseti kom til Reykjavíkur. Coot-útgerðin í Hafnarfirði var hins vegar fyrsta togaraútgerðartilraunin, sem lánaðist hérlendis.
Báðir ráku jarlarnir jafnt þessu kútteraútgerð sína 3-4 kúttera hvor og juku fiskkaup sín. Menn í nærliggjandi plássum allt suður til Keflavíkur tóku að verzla við þá og verzlanir þeirra urðu þær stærstu í bænum.
Báðir munu jarlarnir hafa lánað mönnum efni til húsbygginga og gerðu fólki kleyft að koma sér upp ódýrum timburhúsum, járnklæddum, sem kostuðu fyrir fyrri heimsstyrjöldina 700-1200 krónur. Fólk greiddi þessi lán með vinnu sinni.“

Heimild:
-Sjómannadagsblaðið, 1. tbl. 01.06.1992, Miklar hamfarir og erfið fæðing – Hafnarfjörður, bls. 59-61.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður 2018. Hér má sjá (gul lína) strandlínuna árið 1903.

Saltfiskur

Saltfiskurinn hinn hefðbundni á sér ekki eins langa sögu hér á landi og skreið eða þurrkaður fiskur (sjá meira HÉR). Salt var ekki aðgengilegt lengi vel í þeim mæli sem þurfti og það var ekki fyrr en í lok átjándu aldar að kaupmenn voru skyldaðir til að kenna Íslendingum að salta fisk.

Verstöð

Verstöð fyrrum – þorskaflastöð.

Aldamótaárið 1800 fluttu Íslendingar í fyrsta skipti út saltfiskfarm á eigin vegum. Upp frá því jókst saltfiskverkun Íslendinga smátt og smátt þar til þeir urðu meðal stærstu saltfiskframleiðenda í heimi. Og lífið varð saltfiskur fyrir mjög marga hér á landi…

Saltfiskverkun er einn af hornsteinum íslenskrar hagsögu og á Suðvesturlandinu, sérstaklega á Reykjanesskaga og við Faxaflóa, má enn sjá glögg merki og minjar um þennan mikilvæga iðnað. Saltfisksreitir (eða hreinlega reitir) voru sérútbúin svæði þar sem fiskur var breiddur út til þerris í sólinni. En salfiskþurrkreitirnir sem voru svo mjög áberandi í lok 19. aldar og í byrjun þeirrar 20, áttu sinn aðdraganda.

Saltvegurinn

Saltvegurinn á Ítalíu ca. 400 f.Kr.

Á Sjávarútvegsráðstefnu í Hörpu í nóvember 2018 flutti Gunnar Tómasson hjá Þorbirni h/f í Grindavík yfirlit um „Verkun saltfisks í tímans rás„. Þar kom m.a. fram:

Saltið

• Mennirnir vissu snemma í sögunni að þeir þyrftu salt til þess að lifa.
• Steinaldarmennirnir notuðu saltsteina fyrir sinn búpening.
• Í kringum 400 f.Kr. var Via Salaris, Saltvegurinn, lagður á Ítalíu.
• Rómverskir hermenn fengu salarium, útbýtt salt, sem síðar þýddi “reiðufé” til að kaupa salt fyrir.
• Og enska orðið salary, laun, er afkomandi saltsins.

Saltfiskverkun frá upphafi

Saltfiskur

Saltfiskur.

• Í Aþenu var verslað með saltfisk úr Svartahafi fyrir meira en 3000 árum.
• Fönikíumenn ráku mikil viðskipti með saltfisk. Sídon (Líbanon) þýðir bær fiskimanna og Malaga, sem Fönikíumenn stofnuðu á Suður-Spáni, þýðir “staðurinn þar sem fiskur er saltaður”.
• Rómarveldið byggðist að hluta á saltfiskvinnslu.
• Englendingar komu til Íslands um 1400 og höfðu um langt skeið töluverð umsvif hér á landi í tengslum við fiskveiðar sínar og byrjuðu hér að salta fisk.

Söltunaraðferð á 15. og 16. öld
• Tunnufiskur.
• Hausaður og slægður fiskur saltaður í tunnur. Fiskurinn myndar pækil líkt og þegar síld er söltuð í tunnur.
• Þessi aðferð sparaði saltið.
• Þessi aðferð var fyrst notuð hér á landi af Englendingum á 15. öld.
• Heimildir eru um útflutning á tunnusöltuðum fiski á 15. og 16. öld.

Söltunaraðferð 17. og 18. öld

Saltfiskur

Saltfiskur – söltunaraðferð, tunnufiskur, á 18. öld.

• Kaupmannahafnaraðferðin – Pækilsöltun.
• Flattur fiskur saltaður í trékistur og seinna í steypt kör. Fiskurinn myndar pækil og salti dreift með til að styrkja pækilinn.
• Fiskurinn lá lengi í pæklinum.
• Pækillinn var notaður aftur og aftur.
• Þessi aðferð sparaði saltið.
• Eftir pæklunina var fiskurinn þurrkaður.
• Danir lögður áherslu á þessa aðferð og var hún notuð fram á 18. öldina.

Söltunaraðferð um miðja 18. öldina fram á lok 19. aldar

• Staflasöltun – Terraneufsverkun.
Verkunaraðferð sem notuð var á Nýfundnalandi.
• Lögð áhersla á að blóðga fiskinn strax eftir veiði.

Saltfiskur

Saltfiskur – Bakkalá-fiskreiturinn í Hafnarfirði 1954.

• Fiskurinn var slægður og flattur strax þegar í land var komið eða bara “öngulvarman”.
• Ferskur flattur fiskurinn var svo þveginn vel fyrir söltun og svarta himnan fjarlægð af þunnildinu.
• Þar næst var hann “staflasaltaður”. Þ.e kafsaltaður í lága stæðu og lá þar í 3 til 5 daga.
• Þá var byrjað að þurrka fiskinn.
• Og staflað á milli þurrkdaga í hrauka með roðið upp og farg ofan á.
• Þessi aðferð útheimti mikið salt.
• Miðjarðarhafslöndin lögðu áherslu á þessa aðferð og var hún notuð fram í lok 19. aldar.

Söltunaraðferð í lok 19. öldina fram á miðja 20. öld

Saltfiskur

Saltfiskur – staflasöltun.

• Staflasöltun.
• Lögð áhersla á að blóðga fiskinn strax eftir veiði.
• Fiskurinn var slægður og flattur strax þegar í land var komið.
• Ferskur flattur fiskurinn var svo þveginn vel fyrir söltun og svarta himnan fjarlægð af þunnildinu.
• Þar næst var hann “staflasaltaður”. Þ.e kafsaltaður í lága stæðu og lá þar í 8 til 10 daga.
• Umsaltaður og staflað í hærri stæður með minna salti.
• Þessi aðferð útheimti mikið salt.
• Staflasöltun var notuð fram yfir miðja 20. öldina.

Söltunaraðferð eftir miðja 20. öld

Saltfiskur

Saltfiskur – pækilssöltun.

• Pækilsöltunin (endurbætt).
• Flattur fiskur er saltaður í 840 ltr. stálkör. Fiskurinn myndar pækil og liggur þar í fjóra sólarhringa.
• Því næst er hann “staflasaltaður”. Þ.e kafsaltaður í lágar stæður.
• Umsaltaður seinna og staflað í hærri stæður með minna salti.
• Þessi aðferð útheimti minna salt en staflasöltunin.
• Þessi aðferð er að hluta til notuð enn í dag.
• Þessi aðferð er aðallega notuð við verkun á saltfiski fyrir Portúgal.
• PORT fiskur.

Söltunaraðferð undanfarin rúm 30 ár
• Sprautusöltun og “pæklun”.
• Flattur eða flakaður fiskur er sprautaður með 18° til 20° pækli. Síðan lagður í kör með tilbúnum 18° til 20° pækli. Þar liggur hann í um 40 til 50 klst.
• Því næst er hann kafsaltaður í kör. Þar er fiskurinn látinn verkast í 3 til 4 vikur.
• Þessi aðferð er aðallega notuð við verkun á saltfiski fyrir Spán, Ítalíu og Grikkland.
• SPIG fiskur.

Hafnarfjörður

Járnbrautarvagnar voru algengir á fiskreitum Hafnarfjarðar.

Þurrkaður saltfiskur var vinsæl neysluvara í Suður-Evrópu og Suður-Ameríku. Töluvert magn af þeim saltfiski sem fluttur var frá Íslandi um og eftir 1800, allt fram eftir 20. öld, var þurrkaður í Portúgal, áður en hann var seldur til neytenda þar í landi eða fluttur áfram til Brasilíu. Áhugi var fyrir því að skoða fýsileika þess að flytja þurrkunarferlið hingað til lands og auka þannig virðisauka afurðar. Markmiðið með þessu verkefni var að byggja upp þekkingu við framleiðslu á þurrkuðum saltfisk úr íslensku hráefni, sem hefur verið saltaður og þurrkaður við íslenskar aðstæður með notkun jarðvarma.

Fiskreitur

Fiskreitur við Ljósutröð (nú N1) – Sólvangur fjær.

Eftir að Íslendingar sendu Íslendingar í fyrsta skipti út saltfiskfarm á eigin vegum um aldamótin 1800 jókst saltfiskverkun Íslendinga smátt og smátt og í upphafi 21. aldarinnar er saltfiskur ennþá mikilvæg útflutningsvara þó að nýjar og breyttar geymsluaðferðir hafi litið dagsins ljós. Mikilvægustu markaðir okkar og þeir stærstu eru á Spáni, Ítalíu og Grikklandi og í Portúgal. Nú eru markaðir að opnast með nýjum áherslum, þ.e.a.s væntingum um ákveðin gæði. Þessir markaðir eru fremst Portúgal og Brasilía, þar sem áhugi er fyrir þurrkuðum saltfiskafurðum. Í Portúgal er saltaður fiskur þurrkaður og fluttur til Brasilíu.

Hellisgerði

Hellisgerði fyrrum – saltfisksþurrkunarreitir 1954.

Fyrir mörgum árum var hætt að framleiða þurrkaðan saltfisk hér á landi vegna hás launakostnað við framleiðsluna, en þess í stað hefur saltfiskur verið fluttur út til Portúgals þar sem hann er þurrkaður. Hér á landi er jarðvarmi sú orka sem er mikið notuð er til framleiðslu á þurrkuðum afurðum, og Íslendingar ættu að vera vel samkeppnishæfir á mörkuðum fyrir þurrkaðann saltfisk, með nýtingu á þessari ódýru orku.

Áður en vélrænir þurrkklefar komu til sögunnar (upp úr 1930–1940) var fiskurinn þurrkaður utandyra. Reitirnir voru gerðir úr grjóti, möl eða hleðslum til að tryggja að loft lék um fiskinn og hann óhreinkaðist ekki.

Saltfiskur

Saltfiskur – útflutningur á 18. öld.

Fiskurinn var fluttur úr saltpækli upp á reitina snemma morguns. Ef rigna gerði þurfti að „taka saman“ fiskinn í skyndi og hlaða honum í stakka sem voru slegnir með segldúkum. Reitirir voru vinnustaður fjölmargra kvenna. Þær sáu um að breiða úr fiskinum, snúa honum og flokka hann. Þetta var líkamlega erfið vinna sem krafðist mikillar nákvæmni og veðurglöggvunar.
Suðvesturlandið var miðstöð þessarar starfsemi vegna nálægðar við gjöfull fiskimið og mikils útflutnings frá Hafnarfirði og Reykjavík. Hafnarfjörður var oft kallaður „saltfiskbærinn“. Þar voru gríðarstórir reitir, t.d. þar sem Flensborgarskóli stendur nú og á svæðum í kringum miðbæinn. Klettarnir og hraunið nýttust vel sem undirlag.

Saltfiskur

Saltfiskur – saltfisksreitir á Langeyrarmölum 1954.

Hafnarfjörður á sér ríka sögu sem tengist saltfiskverkun, en bærinn var einn helsti saltfiskbær landsins á fyrri hluta 20. aldar. Á árum áður var fiskurinn þurrkaður á mölunum við sjávarsíðuna, svo sem á Hamarskotsmöl og Langeyrarmölum. Einn af þekktustu reitunum var Einarsreitur, sem útgerðarmaðurinn Einar Þorgilsson útbjó árið 1913. Þar er nú leik- og boltavöllur með söguskilti frá Byggðasafni Hafnarfjarðar. Saltfiskurinn var staflað, umstaflaður nokkrum sinnum og síðan „vaskaður“ (þveginn) úr sjó í sérstökum vöskunarhúsum.<

Sandgerði

Gulllág í Sandgerði – fyrrum fiskreitur.

Stórir reitir voru í Vesturbænum í Reykjavík (t.d. á Grandanum og við Framnesveg) og þar sem nú er miðborgin. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna (SH) á rætur sínar að rekja til þessa tíma þegar saltfiskur var helsta útflutningsvaran.

Í Grindavík, Sandgerði og Garður var saltfiskverkun aðalatvinnuvegurinn. Vegna þess hve hart barist var um plássið voru reitirnir oft hlaðnir úr hraungrýti sem enn má sjá leifar af í landslaginu.

Saltfiskur

Saltfiskur – Saltfiskmóinn við Sjómannaskólann í Reykjavík, einn síðastur slíkra í borginni.

Hugtakið „Að breiða fisk“ er fast í íslenskri tungu og vísar beint til þessarar vinnu á reitunum. Þetta var nánast eins og dans við veðurguðina; ef sólin skein of glatt gat fiskurinn „stiknað“ (skemmst), en ef það rigndi þurfti að hafa hraðar hendur til að bjarga verðmætunum.

Hugtakið „Að breiða fisk“ er fast í íslenskri tungu og vísar beint til þessarar vinnu á reitunum. Þetta var nánast eins og dans við veðurguðina; ef sólin skein of glatt gat fiskurinn „stiknað“ (skemmst), en ef það rigndi þurfti að hafa hraðar hendur til að bjarga verðmætunum.

Saltfiskur

Saltfiskur – saltsfisksþurrkunarreitur Einar Þorgilssonar við Hamarkotslæk.

Í Hafnarfirði, sem lengi var kallaður „saltfiskbærinn“, sem fyrr sagði, mætast náttúra og iðnaður á einstakan hátt. Hraunið, sem mörgum þótti til trafala við húsbyggingar, reyndist vera fullkomið undirlag fyrir saltfiskreiti. Hafnarfjörður var á tímabili stærsta útflutningshöfn landsins fyrir saltfisk, mikið til vegna starfsemi Bjarna „riddara“ Sívertsen og síðar stórútgerða eins og Einars Þorgilssonar. Einn stærsti reiturinn var þar sem Flensborgarskóli stendur nú. Þar var fiskurinn breiddur beint á klappirnar og sérútbúna möl. Ólíkt mörgum öðrum stöðum þurfti í Hafnarfirði ekki alltaf að flytja inn möl. Hraunhellurnar í bænum voru notaðar sem náttúrulegir reitir. Hellisgerði og svæðið í kringum Hamarinn voru undirlögð af hvítum saltfiski á góðviðrisdögum. Við Vesturgötu og á svæðinu þar sem nú er íbúðabyggð í Norðurbænum voru umfangsmiklir reitir í eigu kaupmanna.

Saltfiskur

Saltfiskur – Einarsreitur „ofan byggðar“ 1954.

Breytingin yfir í vélræna þurrkun átti sér stað að mestu á árunum 1930–1950. Þetta voru mestu tæknistökkin í sögu verkunarinnar. Útiþurrkun var algjörlega háð duttlungum veðursins. Fiskurinn gat skemmst í rigningu eða „stiknað“ í of miklum hita. Einnig þurfti her manns (aðallega konur og börn) til að hlaupa út og breiða yfir fiskinn ef ský dró fyrir sólu.
Saltfiskþurrkun innandyra er tæknileg aðferð sem gerir kleift að þurrka saltfisk óháð veðuraðstæðum, oft með því að nýta jarðvarma til að skapa kjörhitastig og rakastig.

Saltfiskur

Saltfiskur – Alliance-fiskreiturinn vestan  Hafnarjarðar 1954.

Þurrkun innandyra gerir framleiðendum kleift að stjórna ferlinu betur en við útiþurrkun, sem getur leitt til jafnari gæða og betri afurðar.Nýting jarðvarma: Íslenskar rannsóknir hafa beinst að því að nota jarðvarma til að þurrka saltfisk, sem er umhverfisvæn og hagkvæm leið. Innanhússþurrkun er nýjung í sögulegu samhengi á Íslandi, þar sem fiskur var áður fyrr nær eingöngu þurrkaður utandyra. Markmiðið með slíkri tækni er að auka virðisauka á Íslandi, þar sem mikið af fiski hefur verið fluttur óþurrkaður til landa eins og Portúgal til þurrkunar. Í þurrkhúsum var hægt að stýra hita og loftflæði nákvæmlega, sem tryggði jafnari og betri vöru. Með tilkomu húsanna var hægt að verka fisk jafnt að vetri sem sumri.

Saltfiskur

Saltfiskur – færibandaþurrklefi innanhúss.

Fyrstu þurrkhúsin nýttu kolakyndingu og síðar rafmagn eða jarðvarma (þar sem hann var fyrir hendi) til að hita upp loft sem stórar viftur blésu yfir fiskinn. Í stað þess að liggja á jörðinni var fiskinum staflað í háar grindur eða „vagna“ sem rennt var inn í þurrkklefa. Þetta sparaði gríðarlegt pláss miðað við reitina utandyra. Seinna komu færibönd og tölvustýrðir klefar sem mældu rakastig í fiskinum. Breytingin yfir í þurrkhús markar raunar upphafið að nútíma matvælavinnslu á Íslandi; farið var frá því að vera háð náttúrunni yfir í iðnaðarferli þar sem afköst og nýting voru í fyrirrúmi.

Saltfiskur

Saltfisksréttur.

Þegar þurrkhúsin tóku yfir nánast alla vinnsluna upp úr 1940 hvarf „hvíti liturinn“ af bænum. Reitirnir voru skipulagðir undir íbúðarhús og götur. Í dag má þó finna leifar af hleðslum víða í hrauninu í Hafnarfirði ef vel er að gáð, og minjar um þennan tíma eru áberandi í bænum, sem og víðar á Reykjanesskaganum.

Heimildir:
-https://fiskurogkaffi.is/saltfiskur-og-saltfiskur/
-https://www.matis.is/media/matis/utgafa/01-16-Saltfiskthurrkun.pdf
-https://gamli.sjavarutvegsradstefnan.is/wp-content/uploads/2018/11/1.-Gunnar.pdf

Þorskur

Þorskur – verðandi saltfiskur.

Seltún

Ferðinni árið 2000 var heitið að Seltúni í Krýsuvík með það fyrir augum að skoða svæðið m.t.t. hugsanlegra sýnilegra minja (tófta).

Selstaðan

Seltún – stekkur.

Áður höfðu fundist seltóftir og hringlaga gerði austarlega á túninu. Ljóst er þó að þarna var brennisteinsnám um nokkurt skeið, bæði af hálfu Krýsuvíkurbænda og útlendinga. Tóftir húsa eru neðan undir Baðstofu (sjá meira HÉR) og því ættu að vera sambærilegar minjar við Seltún nálægt Hveradal þar sem brennisteinn var jafnframt numin á sama tíma. Ljóst er af skrifum Ole Henchels um brennisteinsmannvirki í Krýsuvík 1776 að þau voru nokkur, en höfðu verið látin drabbast niður. Brennissteinsvinnslan var síðan tekin upp að nýju í námunum og þá hafa væntanlega verið byggð ný hús og önnur mannvirki. Leifar þeirra ættu að sjást þrátt fyrir margbreytileika landsins.

Hringlaga

Seltún – gerði.

Til gamans má geta þess að Seltúns- og Hveradalssvæðið er eitt fjölsóttasta ferðamannasvæði landsins, en minjanna þar umleikis er hvergi getið (árið 2009), hvorki hinnar fornu þjóðleiðar um Ketilsstíg, selstöðunnar í Túninu né brennisteinshúsanna.
Til að gera langa sögu stutta má geta þess að við leitina fundust tvö hús úr torfi og grjóti norðan við Seltún, auk hestagerðis, og ein lítil ferningslaga tóft vestan við það. Áður en þessum minjum verður lýst nánar er ástæða til að rifja upp annan fróðleik um efnið á öðrum FERLIRssíðum (ekki síst til að koma að fallegum myndum af svæðinu).
„Brennisteinn var unninn í Krýsuvík á 18. og 19. öld. Frægar eru ljósmyndir í ensku 19. aldar blaði er sýndu „arðvænlega“ vinnslu náttúruauðlinda á svæðinu. Á þeim sáust miklir hraukar brennisteins og allt virtist í fullum gangi. Tilgangurinn með myndunum var m.a. að selja enskum hlutabréf í námuvinnslufélaginu.

Tóft

Tóft norðan Seltúns.

Þeir félagar Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson voru á ferð um Krýsuvík árið 1756 og var þá unninn brennisteinn í Krýsuvík. Til er uppdráttur af námuvinnslusvæðinu frá þessum tíma. „Hverasvæðinu er skipt í tvö svæði. Annað heitir „Heimanáman“, þar sem brennisteinninn er. Það er sunnar, nær Krýsuvíkurbæ og sjónum. Hitt svæðið liggur norðar, uppi í fjöllunum. Þar eru hverirnir flestir, og eru fjórir þeirra mestir. Við mældum einn þeirra, sem bláleirsgrautur sýður í. Í honum beygja menn tré og gyrði. Hann er 6 álna djúpur. Annar hverinn er mjög nýr. Hann var til veturinn 1754 -1755 í miklum landskjálfta, og héldu þeir, sem þá voru staddir þar í brennisteinskofunum, að þeir mundu hrynja.“
Brennisteinssvæðin voru tvö; annars vegar í Baðstofu (Heimanámar) milli Hettu og Hatts og hins vegar við Seltún. Bændur höfðu í gegnum aldirnar grafið upp brennistein og selt ferðamönnum milliliðalaust. Þeir seldu síðan námuréttindin fyrir peninga og þótti það í frásögu færandi. Upphæðin var þó lítil miðað við mögulegan ávinning.

Tóft

Tóft norðan Seltúns.

Árið 1753 var komið upp húsi í Krýsuvík til að vinna brennistein að undirlagi Skúla Magnússonar landfógeta og Bjarna Pálssonar landlæknis. Nokkur ágóði varð af brennisteinsvinnslunni.
Í Jarðamati 1849–1850 er kafli um Krýsuvík og hjáleigurnar, Suðurkot, Norðurkot, Stóra – Nýjabæ, Litla – Nýjabæ, Vigdísarvelli, Bala, Læk og Fitjar. Þar stendur m.a.: „Landrými mjög mikið. … Skógarló. Talsverður brennusteinn. … Jörðin að flestum í nytjum mjög örðug og fólksfrek, þareð þær liggja langt frá og eru sumar sameinaðar lífshættu.“

Gerði

Gerði norðan Seltúns.

Í afsals- og veðmálabók Gullbringu- og Kjósarsýslu frá árunum 1848 – 1862 kemur fram að eigandi hálfrar Krýsuvíkur hafi leigt Jóni Hjaltalín námarétt og gefið byggingarleyfi þann 13. september 1851. Þar kemur einnig fram að þann 30. september 1858 selja eigendur Krýsuvíkur Joseph William Busby esq. brennisteinsnámur í landi Krýsuvíkurtorfu og Herdísarvíkur og að eigandi hálfrar Krýsuvíkur og Herdísarvíkur hafi heitið því þann 4. september 1858 að selja Jóni Hjaltalín námuréttindi.

Ketilsstígur

Ketilsstígur markaður í móbergið.

Manntalsþing var haldið í Innri – Njarðvík þann 20. júní árið 1859. Þar var auglýst samningi sem Sverrir Eiríksson í Krýsuvík hafði gert við dr. Jón Hjaltalín þann 4. september 1858 um að Sverrir seldi Jóni sinn helming úr Krýsuvíkurtorfunni ef leyfi fengist ekki til þess að selja sérstaklega undan jörðinni brennisteinsnámur þær sem þar voru.
Á manntalsþinginu var einnig þinglýst afsalsbréfum sem eigendur Krýsuvíkur, S. Sivertsen og Sverrir Eiríksson, gáfu út síðla árs 1858. Í þeim kemur fram að þeir selji Joseph William Busby Esq. allar námur í Krýsuvíkurlandi.
Samningur milli eigenda Krýsuvíkur og Herdísarvíkur og Patersons um námur frá 2. desember 1871 var þinglesinn þann 20. júní 1877.
Landamerkjabréf Krýsuvíkur var undirritað 14. maí 1890 og þinglesið 20. júní sama ár. Í landamerkjabréfinu kemur einnig fram hver hafi verið ítök kirkjunnar. Einnig er greint frá því í landamerkjabréfinu að Strandarkirkja og Kálfatjarnarkirkja eigi ítök í landi kirkjunnar, þar á meðal mánaðarselsátur í Sogum, sunnanvert við Trölladyngju, samkvæmt munnmælum og vitnisburði kunnugra manna, eign Kálfatjarnarkirkju, og að allar brennisteinsnámur á Krýsuvíkur- og Herdísarvíkurlandi séu í eigu útlendinga.

Tóft

Tóft vestan Seltúns.

Kostnaðurinn við brennisteinsvinnsluna varð þó of mikill og var því einungis unnin brennisteinn þar í tvö sumur eftir að JWB keypti námurnar. Síðan tóku ýmsir námurnar á leigu en síðastur þeirra var Bretinn T. G. Paterson og bróðir hans W. G. S. Paterson. Samningur milli eigenda Krýsuvíkur og Herdísarvíkur og Patersons um námur frá 2. desember 1871 var þinglesinn þann 20. júní 1877. Þeir nýttu námurnar árið 1876. Þeir stofnuðu m.a. „Brennisteinsfélag Krýsuvíkur“ og reyndu sem fyrr sagði að selja hlutabréf í námuvinnslunni til Englendinga.

Þil

Tréþil (stífla) í Seltúnslæk.

Á þessum tíma var orðið lítið af brennisteini ofanjarðar og æ erfiðara var að ná í hann. Grafa þurfti og bora eftir brennisteininum með mikilli fyrirhöfn. Hreinsa þurfti afurðirnar, safna saman, þurrka, móta og flytja. Settar voru upp nokkra kvíar úr tréþiljum í lækjarfarveginn og í þær safnað vatni. Í þeim var brennisteinninn þveginn áður en hann var færður upp í stóra hrauka á svæðið sem nú er bílastæði.
Á stríðstímum var brennisteinninn „gullsígildi“, en á friðartímum svaraði vinnsla hans varla kostnaði.

Bárujárn

Bárujárnshúsin í Seltúni í Krýsuvík 1882.

Árið 1880 er talið að allri námuvinnslu hafi verið lokið og sama ár var uppboð á ýmsum eigum félagsins.
Vinnsla brennisteins í Krýsuvík stóð því yfir í hartnær tvær aldir. Enn þann dag í dag má sjá leifar námuvinnslunnar, en fáir veita þeim athygli.
Í bók II er skýrsla Ole Henchels um brennisteinsnámur á Íslandi og hreinsun brennisteins, 30. janúar 1776. Í henni lýsir Ole m.a. leir og brennisteini í Krýsuvíkurfjalli og hvernig vatnsborð Kleifarvatns hafði lækkað eftir landskjálfta, „trúlega eftir að sprunga hafi opnazt í vatnsbotninum“.

Ketilsstígur

Ketilsstígur að vestanverðu.

„Hjá syðstu námunum rétt við fjallsræturnar var fyrsta hreinsunarstöðin reist, en þar sem ekkert eldsneyti var þar að hafa, var hún flutt og sett niður fjórðung mílu frá bænum, en þar er mótekja góð. Síðan var hún flutt heim undir bæinn, því að mönnum þótti léttara að flytja brennisteininn þangað niður eftir en að flytja eldsneytið upp eftir að fyrsta stöðvarhúsinu. Heima við bæinn er einnig léttara að ná í vatn, því að lækur með góðu vatni rennur þar framhjá.
Ég athugaði ásigkomulag húsanna, með tilliti til þess að aftur yrði tekin upp brennisteinsvinnsla. Þau voru gerð úr torfi og grjóti á íslenzka vísu, en um þau og annan útbúnað, sem til vinnslunnar heyrði, er það skemmst að segja, að það var allt gersamlega ónýtt og húsin fallin, svo að allt verður að gera að nýju, ein og þar hefði aldrei fraið fram brennisteinsvinnsvinnsla eða nokkur hús og mannvirki til þeirra hluta verið þar.

Krýsuvík

Tóftir brennisteinshúsa neðan Baðstofu.

Þar sem aðeins eru liðin 8-9 ár síðan brennisteinsvinnslan lagðist niður, hefðu þó hús og áhöld átt að vera í nothæfu ástandi, ef eitthvert eftirlit hefði verið haft með þeim. Það hefði legið beint við að fela bóndanum í Krýsuvík umsjá með húsunum gegn einhverri lítilli þóknun, þar sem hann er þarna búsettur og hafði unnið við brennisteins-vinnsluna. Síðan hefði kaupmaðurinn í Grindavík, sem er einungis 2 1/2 mílu í burtu þaðan, getað farið til Krýsuvíkur eini sinni á sumri til þess að líta eftir, að umsjónin væri sómasamlega rækt. Þá hefði ekki þurft nema smávegis aðgerðir, þegar vinnslan yrði upp tekin á nýjan leik…

Tóft

Tóft á Austurhálsi.

Bóndinn í Krýsuvík vissi ekki nema af einum stað öðrum, þar sem brennisteinn fyndist. Er hann 2 1/2 mílu í norðaustur þaðan. Síðast meðan unnið var í Krýsuvík að brennisteinsnámi, sótti hann þangað allan þann brennistein, sem þar var að fá, á 50 hesta, og hefur það þá verið nálægt 80 ættum. Ekki vissi hann, hvort brennisteinn hefði skapazt þar síðan, og væri það vert athugunar.
Ef til þess skyldi koma, að brennisteinsvinnsla yrði hafin hér að nýju, þá mundi stofnkostnaðurinn verða allmikill, eins og þegar hefur verið bent á. En ég þori að fullyrða, að þetta er kleift, ef hagsýni er gætti. Í fyrsta lagi verður að taka brennisteininn með hinni mestu varkárni. Þá verður og að fara skynsamlega að við hreinsunina og ætti fyrst að þvo hrábrennisteininn. Með þeim hætti hygg ég, að mætti ekki aðeins spara mikið lýsi, heldur einnig yrði brennisteinninn betri en ella. Hversu þessu yrði bezt fyrir komið, skal ég lýsa, þegar ég síðar lýsi þeim aðferðum, sem nú eru notaðar við hreinsun brennisteins í hreinsistöðinni á Húsavík.

Brennisteinn

Brennisteinsauga í Seltúnshverum.

Í Krýsuvík er brennisteinninn hreinni og betri en á Norðurlandi. Það þarf ekki heldur að flytja hann óhreinsaðan langar leiðir eftir vondum vegum, svo að framleiðslukostnaðurinn verður minni en á Húsavík. Hins vegar verður að kannast við það, að frá Krýsuvík þarf að flytja brennisteininn hreinsaðan 6 mílna leið til Hólmshafnar, en þaðan er hann fluttur út. En Grindavíkurhöfn er aðeins 2 1/2 mílu frá Krýsuvík og allgóður vegur þar á milli. Ef brennisteinsvinnslan yrði upp tekin, verða starfsmenn verzlunarinnar að skera úr því, hvort muni vera ódýrara, að flytja brennisteininn á hestum til Grindavíkur og þaðan á bátum til Básendahafnar, þar er ekki er siglt á grindavíkurhöfn, eða flytja hann á hestum alla leið í Hólminn eða til Hafnarfjarðar. En þeir geta gert það betur en ég, því þeir hafa fyrrum haft umsjá með flutningunum og vita, hvað þeir hafa kostað. Þeir ættu einnig að geta reiknað nokkurn veginn, hvað flutningskostnaðurinn yrði, eins og ég hef stungið upp á, og er þá létt að bera það saman, hvor leiðin reyndist ódýrari, og að velja hana að sjálfsögðu.

Seltún

Seltún – tóftir.

En þegar nú þar að auki nokkrar smáskútur eru gerðar út til fiskveiða við Ísland, gætu þær tekið brennisteininn á Grindavíkurhöfn, og þá er flutningurinn á landi mjög stuttur.
Hins vegar get ég ekki heitið því, að unnt sé að stunda brennisteinsnám í Krýsuvík um langt skeið í einu, þar eð námurnar eru allar á einum stað og ná ekki yfir sérlega stórt svæði. Þegar brennisteinninn hefur verið tekin úr þeim í 3-4 ár, mun þurfa að hvíla þær um jafnlangan tíma, nema menn yrðu svo heppnir að finna þar kaldar námur, sem hægt væri að vinna meðan brennisteinn myndaðist á ný í lifandi námunum, en ekki er hægt að gera því skóna með nokkurri vissu.

Austurengjar

Minjar á Austurengjum.

En ef ekki sýnist tiltækilegt að hefja brennisteinsvinnslu í Krýsuvík að þessu athuguðu, virðist mér samt, svo að námurnar liggi ekki þar engum til gagns, að rétt væri að lofa bændum þeim, er þar búa, að hreinsa brennisteininn, gegn því að þeir afhendi hann verzluninni og fengju erfiði sitt og fyrirhöfn goldið eftir landsvenju. Verzlunin mundi að vísu ekki græða mikið á þessu, en hafa þó nokkurn ágóða.
Þá rannsakaði ég, eins og mér var boðið, hvort jarðhitinn væri nokkurs staðar svo mikill, að unnt væri að nota hann til brennisteins-hreinsunarinnar. En hann reyndist mér hvergi meiri en svo, að kvikasilfrið kæmist í suðumark. Hann er þannig með öllu ónógur til að bræða með brennisteinn eða eima hann, þegar hann er í föstu formi.

Fegurð

Brennisteinsauga á hverasvæðinu.

En þó að hitinn væri nægur, þá er jarðveguinn of laus til þess, að hægt sé að koma þar fyrir húsi eða nokkrum tækjum til að handsama hitann, því að þar er hvorki hægt að ganga né standa án þess að hætta sé á, að maður sökkvi í leðjuna, og varð ég oft fyrir því að vaða jörðina upp í hné.
Dagana 18. – 19 júlí fór ég um fjöllin, sem liggja suðvestur frá Kelifarvatni og fram hjá brennisteinsnámunum og beygja síðan í suðaustur til sjávar. Svipaðist ég þar um eftir kalki, sem mér datt í hug, að kynni að finnast þar, af því að kalk er algeng bergtegund í öðrum löndum. En hversu vel sem ég leitaði, fann ég hvergi nokkrun kalkvott, því að hvarvetna þar, sem égf fór eða sá yfir, var enga aðra bergtegund að sjá en sandstein þann, sem áður hefur verið lýst.“

Krýsuvík

Krýsuvík – fjósið næst, bústjórahúsið t.v. og starfsmannahúsið t.h.

Af framangreindum tóftum má ætla að torfhúsin tvö hafi verið verkfæra- og vinnufatageymslur. Norðan þeirra er slétt flöt, líklega eftir stórt tjald. Sunnan tóftanna er gerði. Þar hefur væntanlega verið ferhyrnd girðing til að geyma hesta þá er fluttu brennisteininn til Hafnarfjarðar. Tófin ferhyrnda sunnar gæti hafa verið undir kamar, enda spölkorn frá námuvinnslusvæðinu.
Leifar af tréþili neðan við Hveradal eru vissulega síðustu leifar brennisteins-vinnslunnar. Þó mætti ætla, af járnnöglum að dæma, að þar væri um nýrra mannvirki að ræða, en ef grannt er skoðað má sjá að eldri naglar Bretanna hafa rygað í gegn, en nýrri verið settir í staðinn. Líklegt má telja að þar hafi einhverjir verið að verki er talið hafa að brennisteinsnámið myndi ganga í endurnýjun lífdaga, enga gnæð af honum enn af að taka.
Segja má að fegurð Krýsuvíkur núdagsins gefi gærdeginum lítið eftir – ef grannt er skoðað…

Krýsuvík

Tóft brennisteinsvinnslunnar við Eystri-Læk.

Gengið var yfir í Austurengi. Á þeirri leið var m.a. gengið fram á óþekkta selstöðu, sem sagt verður frá síðar.
Eins og fram kom í upphafi var ætlunin að leita að og finna hugsanlegar mannvistarleifar brennisteinsnámsins í Hveradal/Seltúni. Jón Haltalín vildi nefna námusvæðið Ketilsstígsnámu – og ekki að ástæðulausu. Í raun má segja að um nokkur hverasvæði sé að ræða austan í Sveifluhálsi, hvort sem átt  er við Baðstofusvæðið eða Seltúnssvæðið.

Heimild:
-Ólafur Olavius – Ferðabók II og II, Steindór Steindórsson frá Hlöðum íslenskaði, Bókfellsútgáfan, 1964, bls. 272-274 (II).
-http://hot-springs.org/krysuvik.htm
-Sveinn Þórðarson, 1998.
-Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar – 1978, bls. 178-179 II.
-Afsals- og veðmálabók Gullbringu- og Kjósarsýslu 1848-1862. (Gull. og Kjós. XIX, 3).
-Afsal Erlends Jónssonar á Brunnastöðum til P.C. Knudtzon, dags. 12.8.1838, á Krýsuvík með sex hjáleigum, Stóra-Nýjabæ, Litla-Nýjabæ, Norðurkoti, Suðurkoti, Austurhúsum og Vesturhúsum, og tveimur nýlendum, Vigdísarvöllum og Garðshorni. (Afs. og veðm. Gull. & Kjós. A, nr. 97).
-Þinglýsingar varðandi námarétt í Krýsuvík, dags. 20.6.1849.

Seltún

Seltún – hverasvæði.

Búðarvatnsstæðið

Í Örnefnalýsingu fyrir Krýsuvík segir Þorsteinn Bjarnason frá Háholti m.a. frá Búðarvatnsstæðinu:

Búðarvatnsstæðið

Búðarvatnsstæðið.

„Frá Dagon er landamarkalínan í Núphlíð. Austan í henni, syðst, er Skalli, en austan undir Núphlíð er Sængurkonuhellir. Frá Núphlíð eru landamerki sjónhending í vesturrætur á Trölladyngjum, frá þeim í Markhelluhól við Búðarvatnsstæði. Að norðan eru mörkin sjónhending úr Markhelluhól, norðvestan við Fjallið eina, öðru nafni Eldborgarhellir, í Melrakkagil, sem kemur niður úr Undirhlíðum.“

Búðarvatnsstæðið

Búðarvatnsstæðið.

Í Örnefnalýsingu fyrir Krýsuvík sem Ari Gíslason skráði segir m.a:
„Norður frá Mávahlíðum rís upp Mávahlíðarhnúkur. Héðan til norðausturs liggur leiðin um hraun að Búðarvatnsstæði.“

Merkhella

Markhella – áletrun.

Í skráningu „Menningarminja í Vatnsleysustrandarhreppi“, svæðisskráningu, sem Sædís Gunnarsdóttir skráði árið 2006 segir:
„Búðarvatnsstæði – heimild um vatnsból
Þaðan liggur landamerkjalínan í norður um mitt Búðarvatnsstæði og Búðarhól, sem er Hraunhóll.” segir í örnefnaskrá “Gömul hestagata liggur meðfram hrauninu og við fylgjum henni í austurátt fyrir tunguna og að Búðarvatnsstæðinu. Um vatnsstæðið endilangt liggur gamla sauðfjárveikivarnargirðingin sem hefur vísað okkur veginn hingað til. Vatnsstæðið er nokkuð stórt og virðist hafa verið lagað til af mannahöndum.” “Það kúrir í grasbletti ofan við úfið hraunið og þaðan er útsýnið vítt og fallegt til suðurs og austurs. Örnefnið er sérkennilegt og gæti bent til þess að við vatnsstæðið hafi verið áningarstaður og þá jafnvel yfir nótt, þ.e. einhverskonar “búðir”. Ekki er ólíklegt að þeir sem unnu við kolagerð í Almenningi hafi hafist við tímabundið við Búðarvatnsstæðið og af því sé nafnið dregið.”

Markhella

Markhella – áletrun.

Í Örnefnalýsingu fyrir Hvassahraun eftir lýsingu Gísla Sigurðssonar og upplýsingum, sem Guðmundur Sigurðsson gaf í viðtali á Örnefnastofnun 16. júlí 1980 segir m.a.:
„Er þá komið á Dyngjuháls. Austur af honum eru Mávahlíðar, en þar um liggur landamerkjalínan milli Hvassahraunslands sunnanvert og Krýsuvíkur. Austur af Lambafellum eru Einihlíðar, og vex þar einir. Ofan eða sunnan þeirra er Einihlíðabruni. Sunnan Einihlíða lá landamerkjalína Hvassahrauns og Krýsuvíkur í Markaklett, sem er austur af Búðarvatnsstæði. Hann er nefndur Markhelluhóll í landamerkjalýsingu. Stafirnir Hvassa.- Ótta. – Krv. eru þar markaðir á hellu, sem snýr við norðaustri [hellan snýr reyndar við norðvestri]. Á hólnum er varða, sem mun heita Markhelluhólsvarða. Þaðan liggur landamerkjalínan í norður um mitt Búðarvatnsstæði og Búðarhól, sem er hraunhóll. Þar vestur af er lægð í hrauninu, sem nefnist Helgulaut. Þar hafði kona að nafni Helga orðið úti.“

Í Örnefnalýsingu fyrir Óttarsstaði, lýsingu Gísla Sigurðssonar segir m.a.:

Markhella

Markhella – áletrun.

„Úr Markhelluhól liggur merkjalínan um vestasta hluta Sauðabrekkugjár, en þá um Búðarvatnsstæði, og skiptist það jafnt milli Óttarsstaða og Hvassahrauns. Norður og niður af vatnsstæðinu nefnast Búðarhólar. Mörkin liggja líklega gegnum þá.“

Markhelluhóll

Markhelluhóll við Búðarvatnsstæðið.

Búðarvatnsstæðið er á sléttu hrauni undir nýrri hraunbrún. Á brúninni, á svonefndum Markhelluhól, eru tvær vörður, önnur lítil og hin mosavaxin; greinilega fornar. Um vatnsstæðið lá fyrrum sauðfjárveikigirðing og má enn sjá staura hennar við og í nágrenni við það. Girðingin var þá á mörkum Krýsuvíkur, Hvassahrauns og Óttarsstaða. Hvers vegna framangreindir stafir hafi verið grafnir á steinvegg Markhellu, í eins og hálfs kílómeters fjarlægð frá Búðarvatnsstæðinu til austurs, hefur aldrei verið skýrð að fullu. Ekki er ólíklegt að ætla að einhver á ströndinni hafi látið sér detta í hug að krota nöfnin þarna, enda í skjóli frá mögulegri umferð Krýsuvíkurbænda um ofanverð fáfarin hraunin. Landamerkjalýsingin um Markhelluna á þessum stað kemur a.m.k. ekki heim og saman við fyrri lýsingar.

Heimildir:
-Örnefnalýsing fyrir Krýsuvík – Þorsteinn Bjarnason frá Háholti safnaði og skráði.
-Menningarminjar í Vatnsleysustrandarhreppi, svæðisskráning; Sædis Gunnarsdóttir, 2006.
-Örnefnalýsing fyrir Hvassahraun; lýsing Gísla Sigurðssonar, víða tekin upp orðrétt. Upplýsingar, sem Guðmundur Sigurðsson gaf í viðtali á Örnefnastofnun 16. júlí 1980. Hann hafði áður borið lýsingu Hvassahrauns undir Gústaf Brynjólfsson frá Eyðikotinu. Guðmundur er fæddur á Hvassahrauni árið 1919.
-Örnefnalýsing – Óttarsstaðir; lýsing Gísla Sigurðssonar var borin undir Gústaf Brynjólfsson frá Eyðikoti og síðan samin upp úr henni ný lýsing. Gústaf er fæddur í Reykjavík 1906, en ólst upp í Eyðikotinu í Hraununum og var þar til 1937.

Búðarvatnsstæðið

Búðarvatnsstæðið.

Valahnúkar

Eftirfarandi saga hefur einhverra hluta vegna ratað inn sem heimild um þjóðsögu í fornleifaskráningu til stuðnings náttúruvættum á Valahnúkum ofan Hafnarfjarðar.

Tröllapabbi

Vættur ofan Hafnarfjarðar.

Sagan sú segir að „einu sinni hafa nátttröllafjölskylda búið í Kerlingarhnúk sunnan við Kerlingarskarð, en norðan við Kerlingargil og er þá Lönguhlíðahorn á millum. Stórkonusteinar eru norður undir Lönguhlíðarhorni. Sögn er af tilvist þeirra, en hún verður ekki rakin hér.
Eitt sinn að vetri þegar dagurinn var stystur ákvað fjölskyldan í Kerlingarhnúk að leggja land undir fót og sækja sér hval (sumir segja skreið) til Hafnarfjarðar en sá hafði rekið á Hvaleyri. Þetta var löngu áður en mennskir höfðu sest að hér á landi. Lögðu tröllin; móðir, faðir, dóttir og stálpaður sonur þegar af stað er sólin hafði skriðið undir ysta hafflöt Faxaflóans. Hundur þeirra fylgdi fast á eftir. Sóttist ferðin vel niður hraunin. Fóru þau beint að augum; yfir Valahnúka (Austurhnúka og Vesturhnúka), sniðgengu þó Helgafell. héldu um Brunna, sem nú er Kaldársel, yfir Bleiksteinsháls og sem leið lá yfir Ásfjall niður á Hvaleyri.

Hundurinn

Hraunavættur.

Fleiri tröll voru þá mætt á svæðið og þrættu þau drjúga stund um fenginn.
Fór þó svo að lokum að tröllafjölkskyldan í Kerlingarhnúk fékk drjúgan skerf og hélt hún að því búnu áleiðis heim á leið. Sóttist henni nú ferðin seint því hvalkétið bæði seig í og var ekki auðborið. Eftir að hafa áð við Brunna undir Kaldárhnúkum héldu þau ferðinni áfram. Faðirinn, sem bar hryggjarstykkið, dróst svolítið aftur úr, enda landið á fótinn. Fjölskyldan hélt sig í hæfilegri fjarlægð frá Helgafelli því vættir þess voru ekki af þeirra ættum.

Tröllamamma

Tröll á Valahnúkum.

Eitthvað virðist fjölskyldan annað hvort hafa misreiknað tímann eða hún hefur farið hægar yfir á heimleiðinni en ætlað var því þegar hún kom upp fyrir brún Austurhnúka birtust skyndilega fyrstu morgunsólargeislarnir í Grindarskörðum. Hundurinn, sem fór með hæstu hæðum, steinrann fyrstur. Ætlaði fjölskyldan þá að freista þess að komast niður af Austurhnúkum, en höfðu ekki við sólinni. Urðu fremstu fjölskyldumeðlimirnir að steinum þeim er standa þar enn; móðirin og börnin austar, en faðirinn lítt vestar. Sést vel hvar hann hefur sest niður þegar hann varð þess áskynja er gerst hafði.
Saga þessi hefur lifað meðal tröllanna í fjöllunum ofan Hafnarfjarðar allt til þessa dags. [Aðrir segja að sjá megi skreiðina umleikis tröllunum, sem fyrr sagði.]
Og endar svo þessi saga.“

Eru þetta ekta nátttröll þarna á Valahnúkum? Er þetta ekki bara lygasaga? Ótrúlegt þykir að nátttröll hafi verið til – eða hvað? Lífssteinarnir að baki „tröllunum“ segja þó sína sögu. Auk þess er sagan góð – en þó verður að segja eins og er að tröll eru ekki til í raun og veru (þ.e. engar áþreifanlegar sannanir liggja fyrir um tilvist þeirra (aðrar en bráðin að baki þeim svo miðvetra)).

Fjallkóngur

„Fjallkóngur“ norðvestan Mávahlíða.

Tröll  tilheyra ekki náttúrunni eins og fuglar eða fiskar og þess vegna er ekki hægt að fjalla um ummyndun þeirra í stein með því að útskýra einhver líffræðileg ferli í líkama þeirra, á sama hátt og til dæmis hefur verið fjallað um umbreytingu plantna á koltvísýringi í súrefni eða það hvernig hrökkálar mynda rafstuð.
Umbreyting tröllanna er þess vegna mannanna hugverk. Tröll verða því að einu að steini þegar sólin skín á þau af því að þannig geta menn útskýrt tilvist þeirra!
Að vísu er rétt að geta þess að ekki verða öll tröll að steini ef þau komast í tæri við sólarljós heldur á það fyrst og fremst við um svonefnd nátttröll.
Það getur verið ágætis skemmtun að koma auga á form í náttúrunni sem líkjast tröllum, eins og við ímyndum okkur að þau líti út.
En svo má auðvitað spyrja af hverju tröll verða endilega að steini, af hverju breytast þau ekki í vatn, gorkúlur, banjó, færiband eða eitthvað allt annað? 

Tröllamamma

Tröllin á Valahnúkum.

Og alveg eins má spyrja af hverju verður ummyndunin við sólarljós en ekki við tunglskin, þegar það rignir, í sunnanstrekkingi eða við eitthvað allt annað?
Til þess að svara þessum spurningum er rétt að hafa í huga hvernig menn búa íslensk tröll til. Lengst af hefur íslenska orðið tröll þó ævinlega verið notað um einhvers konar bergbúa eða vættir í mannsmynd. Fram kemur í þjóðsögum að tröll eru stórvaxnar verur sem búa í hellum og gljúfrum. Þau eru ólík jötnakyni goðsagnanna að því leyti að jötnarnir búa vel og ríkmannlega, eiga góð húsakynni og berast á, eins og lesa má um í Þrymskviðu og víðar.

Tröll

Tröll – hver segir að þau séu ekki til?

Af þessu sést að það er ekki fjarri lagi að láta tröll verða að steini, enda eru þau bergbúar. Ef tröllin yrðu að banjói, færibandi eða einhverju öðru sem tengist þeim ekki neitt, væri verið að fara á skjön við skáldskaparlega rökvísi.
Það felst einnig rökvísi í því að láta tröllin verða að steini þegar sólin kemur upp. Andstæða sólarljóss og dagsbirtu er nóttin og myrkrið, en þá fara kynjaverur einmitt á kreik. Þegar hin upplýsta og bjarta veröld tekur aftur völdin er „eðlilegt“ að myrkaöflin láti undan síga. Þá verða nátttröllin beinlínis steinrunnin.

Tröllin á Valahnúkum

Tröllin á Valahnúkum.

Umbreyting (e. metamorphosis) er eins konar afbrigði af myndhverfingu (e. metaphor) en með því hugtaki er átt við að merking orða færist af einu sviði yfir á annað. Ummyndun tröllanna verður til þess að þau hætta að vera tröll en verða að grjóti í staðinn.

Hrauntunga

Hraunhtungukarlinn í Kapelluhrauni.

Það getur verið ágætis skemmtun að koma auga á tröll þegar menn eru á gönguferðum og eins og getur verið gaman að sjá andlit í skýjafari.
Hvað eru vættir? Vættir geta verið bæði af hinu góða og illa, það er hollvættir eða óvættir.
Hvort dularvættir séu til í alvörunni eða ekki, er ógerningur að svara með óyggjandi hætti. Það fer í rauninni eftir viðhorfi hvers og eins hverju hann vill trúa. Þess má geta að til eru einstaka raunvísindamenn sem segjast trúa því að vættir séu til í venjulegum skilningi. Reynsla manna sýnir að sannanir sem menn taka gildar um tilvist vætta munu seint koma fram.“
Rétt er að hafa í huga að framangreind saga af tröllunum á Valahnúkum er ekki þjóðsaga. Hún var samin af einum Ferlirsfélaganna í tilefni að fjölskyldugöngu á hnúkana árið 2009.

Heimild m.a.:
-www.visindavefur.hi.is

Valahnúkar

Tröllin á Valahnúkum.

Urriðakot

Urriðavatn er grunnt vatn vestan Urriðaholts í Garðabæ. Vatnið er einnig nefnt Urriðakotsvatn eða Urriðakotstjörn. Urriðavatn myndaðist fyrir um 7300 árum þegar Búrfellshraun rann og hraun rann inn í dalverpi til móts við Urriðakot og stíflaði vatnið. Flatarmál vatnsins er um 13 hektarar, meðaldýpt þess er 0,70 m og mesta dýpi 0,90 m. Urriðavatn og aðliggjandi hrauðjaðar eru á náttúruminjaskrá.

Urriðakot

Urriðavatn – Sýlingarhella.

Urriðakot er (var)  jörð í Garðabæ. Bærinn stóð suðvestan í Urriðakotsholti norðaustan við Urriðakotsvatn. Bærinn stóð nálægt miðju túninu. Suður frá bænum lágu traðir, hlaðnar úr torfi og grjóti.
Kvíaflöt heitir allmikið barð norðvestan við túngarðinn og ofan við veginn, sem lá norðvestur frá bænum. Kvíaflöt var gerð að túni skömmu áður en Urriðakot fór í eyði. Vegurinn, sem hér um ræðir, er Urriðakotsvegurinn nýrri. Hann var lagður um 1930 norðvestur úr túninu, yfir mýrina, yfir Vesturvik og um Hrauntangann, gegnum túnið á Setbergi á Setbergsveg vestan við bæinn á Setbergi. Hann var lagður sem bílvegur og var þá hætt að nota Urriðakotsveg eldri, sem lá til austurs frá bænum, en sá vegur var ekki bílfær.

Urriðakot

Urriðakotsvatn – loftmynd 1954.

Sá hluti hraunsins, sem skagar út í Urriðakotsvatn, kallast Hrauntangi, og er hluti af honum í Setbergslandi. Sá hluti Hrauntanga, sem skagar lengst út í vatnið til suðurs, heitir Mjóitangi. Réttartangi skagar austur úr Hrauntanga nokkru sunnan við mitt Vesturvik. Í Hrauntanga rétt norðvestan við Mjóatanga er stór klettur með sýlingu í. Hann kallast Sýlingarhella og er á mörkum Urriðakots og Setbergs.
Úr Sýlingarhellu lá markalínan í uppmjóan háan klett með Klofavörðu upp á Stórakrók (nú fast við nýlega stækkun IKEA). Klofavarða var eyðilögð við framkvæmdirnar, algerlega að ástæðulausu.

Heimildir:
-Örnefnalýsing fyrir Urriðakot, Gísli Sigurðsson.

Urriðakot

Urriðakot – Klofavarða á Stórakrókshól.

Suðurnes

Í skrá Gísla Sigurðssonar fyrir Þorbjarnarstaði í Hraunum segir um „Markavörðuna“ yst á landamerkjunum til austurs:

Markavarða

Markavarðan efst á hraunbungu Hrútagjárdyngjuhrauns.

„Úr Hafurbjarnarholtsvörðu lá landamerkjalínan um Nyrztahöfða og um Norðurhöfðaslakka, á Mjóhöfða og um Miðhöfðaslakka, þaðan í Fremsthöfða á móti Straumslandi í Þrívörður“. Gísli Sigu

rðsson segir, að þær hafi verið nefndar Lýritti. Ljóst er að markalínan lá austur og ofan við Brunatorfur (Brunntorfur) og kom þar á Stórhöfðastíg, sem lá svo áfram vestur að Fjallinu eina suðvestan Fremstahöfða.
Hvað sem öllum örnefnum í þessu annars kennilauslega hábungusvæði Hrútargjárdyngjuhrauns stendur Markavarðan þessi enn sinn vörð og undirstrikar þannig ystu landamerki Þorbjarnarstaða og Straums þarna efst á hraunbrúninni.
Markavarðan er mjög vel sýnileg frá Krýsuvíkurvegi í vestri.

Heimild:
-Örnefnalýsing fyrir Þorbjarnarstaði, Gísli Sigurðsson.

Fjallið eina

Fjallið eina – umlukið Hrútargjárdyngjuhrauni.