Færslur

Hálsnesbúðir

Stefnan var tekin á Hálsnes norðvestan við Neðri-Háls í Kjós. Langflestir, sem ekið hafa um Hvalfjörðinn, hafa gefið nesinu auga, en langfæstir hafa ekið út af þjóðveginum og gaumgæft það. Full ástæða er þó til þess því svæðið endurspeglar merkilega sögu. Þrátt fyrir það eru engar merkingar eða vísbendingar um hvar það gæti verið að finna. Þokkalegur malarvegur er niður á Búðasand, en þangað var ferðinni heitið að þessu sinni. Auk búðaminjanna við Búðasand var ætlunin að skoða Maríuhöfnina skammt utar sem og svæðið umhverfis svonefnda Hálshóla á sunnanverðu nesinu.
Laxárvogur, Hálsnes og HvalfjörðurMaríuhöfn mun hafa verið mesti kaupstaður landsins á miðöldum, fram á 15. öld. “Rústir staðarins eru ofan við Búðasand og er Maríuhöfn við suðausturenda sandsins. Skip sem þangað komu voru dregin inn á poll inn af sandinum. Þarna er talið að haffær skip hafi verið smíðuð á landnámsöld, enda viður tiltækur. Árið 1402 kom skip (Hvala-) Einars Herjólfssonar í Maríuhöfn og flutti með sér svartadauða.
Akvegurinn liggur alveg niður á sandinn og hægt er að komast nánast að Maríuhöfn. Þarna er einstaklega fallegt og vel þess virði að gefa sér góðan tíma til að skoða sig um.
Maríuhöfn er við Lax[ár]vog. Þar eru
“víðáttumiklar leirur og grunnsævi með fjölbreyttu lífríki, svo sem kræklingi og gróðri. Laxvogur er eitt frjósamasta grunnsævi við sunnanverðan Faxaflóa. Á Hvalfjarðareyri handan vogarins er fundarstaður baggalúta. Þarna má sjá setmyndunar- og rofferli án mikilla áhrifa mannsins.”
Í umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands um svæðið segir m.a.: “Svæðið hýsir sjaldgæfar tegundir og er viðkvæmt fyrir röskun; svæðið er mikilvægt vegna viðhalds sterkra stofna og hefur alþjóðlegt verndargildi; svæðið hefur jafnframt verulegt vísindalegt gildi.”
Hálsnes - loftmyndLaxá hafnar að lokum í Lax[ár]vogi. Vogur þessi hefur reyndar gengið undir ýmsum nöfnum. Sr. Sigurður Sigurðsson nefnir hann Laxavog (1840), Jón O. Hjaltalín kallar hann Hálsvík (1746) en Björn Bjarnarson segir Laxárvogur (1937). Í daglegu tali er hann nefndur Laxvogur. Þar er útfiri mikið og lífríki fjölskrúðugt og mikil náttúrufegurð. Fyrr á tímum áttu margir erindi að þessum vogi. Neðst í ánni er Sjávarfoss eða Sjóarfoss eins og hann hét áður fyrr. Skammt ofan við hann rennur Bollastaðalækur í ána, þar er og Bollastaðavað og ítið eitt neðar er annað vað, er Höklavað nefnist.
Rétt við Sjávarfoss norðan megin er klettur (Klöppin), sem bátar lögðust upp að fyrr á árum áður en bílfært varð fyrir Hvalfjörð. Á bátum þessum var fluttur varningur, fólk og á sumrin hey úr Kjósinni á vegum fólks úr Reykjavík, sem hafði slægjulönd á leigu í sveitinni.
Annar lendingarstaður var Harðbali, sem er sunnan við voginn um miðbik hans. Austan vogsins er Laxárnesland og bærinn Laxárnes í suðausturhorninu, norður af honum er Laxárnestangi en vestur af bænum er Suðurnes og síðan enn vestar Skorárvík, þar sem Skorá rennur til sjávar en hún kemur upp í Eyrarfjalli. Fyrir miðjum voginum blasir við félagsheimilið Félagsgarður undir Laxárnesásnum, það var tekið í notkun árið 1945.

Búðartóft á Búðasandi - í Hálsbúðum

Fyrr á þessari öld og raunar miklu lengur sóttu sjómenn af Suðurnesjum og víðar að krækling til beitu upp í Hvalfjörð. Einn staðanna er Laxvogur. „Þótti hvergi betra að taka krækling en þar“, segir Erlendur Björnsson í endurminningum sínum (Sjósókn, Rvík 1945). Þótti kræklingur þar feitur og skeljarnar hreinar að utan. Aðrir staðir voru Stampar, sem eru norðan við Hálsbæinn, þar var kræklingurinn hins vegar seinteknari og þurfti ætið að kafa eftir honum. Næsti staður var svo í Hvammsvík, þá Hvítanes, Fossá, Brynjudalsvogur og Botnsvogur. Nú tína menn helst krækling sér til matar við Fossá. (Sjá meira undir Beitufjara).
Utan til í Laxvogi, rétt sunnan við miðju, er Maríusker, sem tilheyrt hefur Reynivöllum frá alda öðli. Norðan til í voginum innanverðum er Hálshólmi neðan við Hálsbæina. Utan og norðan við þá er svo Búðasandurinn.

Hálsnesið blasir við, þegar litið er út Hvalfjörðinn. Þarna er einn merkasti sögustaður Kjósarinnar, Hálsbúðir. Búðasandur er fagur frá náttúrunnar hendi og einhver fegursti staðurinn í sveitinni. Upp af honum er fjörukambur og handan hans lón, sem talið er hafa grynnst og minnkað í tímans rás. Milli lónsins og fjörukambsins eru leifar gömlu búðatóftanna og hafa fornleifarannsóknir farið fram á þessu svæði undanfarið en ekki liggur ljóst fyrir um niðurstöður þeirra. Að öllum líkindum hafa búðirnar verið hlaðnir uppveggir, sem tjaldað hefur verið yfir.
Nyrsti hluti HálsbúðaFrá fornu fari var höfn á Búðasandi samkvæmt heimildum. Aðrar hafnir voru á Hvalfjarðareyri vestan við Laxvoginn, í Laxvogi (Hálshólaskipalægi, sem Skúli fógeti nefnir svo, það er fyrrnefnt vestur undir Hálshólum) og loks var höfn í Hvammsvík. Höfnin á Búðasandi hét frá fornu fari Maríuhöfn. Hún er þó ekki eina örnefnið í Kjósinni, sem minnir á Maríu, en kirkjan á Reynivöllum var helguð Maríu guðsmóður og af þeirri ástæðu m.a. er þessu svo farið.
Þegar gengið var um norðanverðan Búðasand sáust tóftir Hálsbúða greinilega. Þær hafa legið nokkuð þétt saman í einni samfellu. Byggður hefur verið sumarbústaður í nyrsta hluta tóftanna og trjám plantað utan og ofan í þær. Búðirnar virðast hafa verið margar, en erfitt er að greina fjölda þeirra af nákvæmni. Veggir standa víða grónir og dyr hafa gjarnan vísað að hafi. Tveir aumingjalegir tréstaurar standa í tóftunum með afmáðum áletrunum. Vísast hefur þar áður staðið “Friðlýstar fornleifar”.

 

Tóftir Hálsabúða

Sunnarlega í röðinni hefur farið fram fornleifauppgröftur. Í rauninni er/var hann dæmigerður fyrir slíka framkvæmd hér á landi; allt skilið eftir ófrágengið og öðrum einskis nýt. Auðvitað á ekki að leifa fornleifauppgröft nema gera ráð fyrir frágangi svæðisins að honum loknum, þ.e. með viðhlítandi minjaskiljum, merkingum og upplýsingaskiltum. Sumir segja, grafendum til vorkunnar, að uppgröfturinn hafi verið stöðvaður í miðjum klíðum af ótta við þarna kynnu að hafa verið grafin lík frá tímum svartadauða.
Á Búðasandi var samkvæmt rannsóknum dr. Björns Þorsteinssonar stærsti kaupstaður landsins á 14. öld. Þangað komu skip frá útlöndum og gátu haft vetursetu vegna lónsins, þangað sem þau voru dregin upp á haustin. Það var ekki hvað síst biskupsstóllinn í Skálholti, sem var mjög mannmargur, sem naut góðs af þessari höfn og hafði skip í förum, sem lögðu þarna upp. En að auki var þessi höfn, sem var hin besta frá náttúrunnar hendi, ákjósanlega í sveit sett til þess að koma varningi á eftirsóknarverðustu kaupstefnu þjóðarinnar, Þingvelli og Öxará um þingtímann, þegar mannfjöldinn safnaðist þar saman í stórum stíl. Telur dr. Björn, að þessi höfn hafi verið Skálholtsstól öllu hentugri en t.d. höfnin á Eyrarbakka fyrir þær sakir, að leiðin til Skálholts var auðfarnari úr Kjósinni en af Eyrarbakka. Þegar blaðað er í fornum annálum kemur í ljós, að biskupar koma til og frá Hvalfirði, þegar þeir fara utan.
Í BúðafjöruLeiðir af Búðasandi austur á bóginn til Þingvalla og Skálholts voru einkum tvær. Hin fyrri var inn Kjósardalinn og um Kjósarskarð og Kjósarheiði austur til Þingvalla. Þessi leið er auðfarin þótt ekki megi gleyma því, sem gamlar lýsingar gera úr mýrum og þvílíkum farartálmum. Hin leiðin var inn Hvalfjörð og upp úr Brynjudal – eða Botnsdal – yfir Leggjarbrjót til Þingvalla vestan við Ármannsfell. Þarna hefur verið stærsti kaupstaður landsins? Eða svo telja menn nú, þar til annað réttara kemur í ljós. Álitið er að sigling hafskipa í Hvalfjörð hafi aukist mjög á síðari hluta 14. aldar og þar hafi aðalhöfn landsins verið í lok hennar. Heimildir greina frá því, að þar hafi oft verið mörg skip samtímis og ýmsir kaupsamningar, sem dagsettir eru í Hvalfirði, eru til frá þessum tímum. Höfn þar virðist hafa legið vel við, hvað varðar samgöngur, sem fyrr sagði. Á þessum tímum voru hafskipin lítil og grunnskeið svo auðvelt var að draga þau á land og búa þar um þau fyrir veturinn.
Innan við kambinn (Búðasand) er Búðasandurgrunnt lón og fellur smálækur úr því til sjávar syðst á honum. Á flóði gengur sjór upp í lónið. Áður sagði að “Höfnin á Búðasandi hét frá fornu fari Maríuhöfn”. Fljótt á litið virðist bæði aðstaða og lending hin ákjósanlegasta utan við Búðafjöruna, sem er sendi, aflíðandi og löng. Staðsetning búðanna gefa sterklega til kynna að höfnin (legan) hafi verið utan við sandinn. Fjölmörg rök önnur mætti tína til, en skv. sumum fyrirliggajndi upplýsingum á höfnin sjálf, Maríuhöfn, að hafa verið sunnan við Búðasand. Höfði skilur höfnina frá sandinum.
Í örnefnalýsingu fyrir Neðri-Háls eftir Ara Gíslason segir m.a. um Búðasand og tóftirnar þar: “Fallegur hvammur er nyrzt í Búðarsandi, þar sem búðirnar stóðu. Hálsbúðir eru stakkstæði grasi gróið, mjög gamalt. Orðmyndin Búðasandur er rétt að áliti G. (rangt Búðarsandur í stafrófsskrá og í skrá Einars Jónssonar). Á Búðasandi eru miklar tóftir, sem á þessu ári voru friðlýstar. [Skjal undirritað af ÞM 30.09.1975, þinglýst 02.10.1975].
Hálsbúðir eru framangreindar tóftir, sem nú hafa verið friðlýstar.
Hlein er klettasker, sem alltaf er upp úr. Hlein á að vera svo (ekki Hleinar eins og í stafrófsskrá). Allt svæðið fyrir norðan Búðasand er kallað Hlein.”
HálshólarEinnig segir: “
Vestan við Ullarhól er gömul rétt við sjó. Þar er smámelur, sem heitir Réttarmelur, rétt innanvert við hólmann. Rétt fyrir innan Hálshóla, fyrir neðan bæinn á Hálsi er hóll, er heitir Ullarhóll.”
Gengið var yfir affallið úr lóninu næst ströndinni og yfir Búðahöfðann, vestast í Hálshólum. Ástæða er þó til að gefa honum gaum, ekki síst bergummyndunum, hrúðukörlum og öðrum náttúruverðmætum, sem þarna ber fyrir augu.

“Við Maríuhöfn í Laxárvogi var einn stærsti kaupstaður landsins fram á 15. öld. Þangað gengu skip Skálholtsstóls enda var höfnin vel í sveit sett gagnvart samgönguleiðum til Þingvalla og uppsveita Árnessýslu. Þangað barst svarti dauði til landsins árið 1402 en talið er að um þriðjungur íbúanna hafi látist af farsóttinni.
Annálar greina frá því að hún hafi komið með skipi í Hvalfjörð. þá var Maríuhöfn á Búðasandi við Laxárvog ein aðalhöfn landsins. Samkvæmt sömu heimildum tók Áli Svarhöfðason veikina og “deyði fyrstur af kennimönnum um haustið” í Botnsdal ásamt sjö sveinum sínum. Síðan breiddist pestin um landið og er talið að látist hafi um 40 þúsund manns úr henni, eða nærri helmingur landsmanna.
Á upplýsingaskilti ofan við Maríuhöfn stendur eftirfarandi: “Maríuhöfn er forn verslunarstaður frá þjóðveldisöld og ein aðalsiglingarhöfn landsmanna á miðöldum. Í annálum er oft getið um að skip kæmu út í Hvalfirði og mun átt við þennan stað. Héðan er talið að drepsóttin svartidauði hafi borist til landsins 1402 og smitið borist með klæðum Einars Herjólfssonar. Hann andaðist úr sóttinni á skipi sínu í hafi en klæði hans voru afhent ættingjunum. Maríuhöfn er austan Búðasands en ofanvert við lónið milli sands og sjávar má sjá að Maríuhöfn hafi lagst af á 15. öld með breyttum skipakosti er skip urðu djúpskreiðari og þurftu því dýpri hafnir.” Blómaskeið verslunar í Maríhöfn var fram yfir 1400.

Varða í Hálshólum

Hlaðinn bryggja hefur verið í Maríuhöfn og sjást leifar hennar enn mjög vel. Sennilega hefur staðsetning þessi, þ.e. á Maríuhöfninni, komið til vegna mannvirkisins. Slíkt mannvirki er ekki að finna á Búðasandi. Fjarlægð búðatóftnanna frá þessum stað þarf þó ekki að útiloka að þarna hafi fyrrum verið hafnaraðstaða, enda bendir bryggjan til þess að svo hafi verið. Þá liggur gata ofan hafnarinnar, sem enn sést greinilega þar sem hún liggur vestast yfir Hálshólana.
Miðað við aðstæður á svæðinu verður að telja líklegra að skip frá þjóðveldistímabilinu hafi flatlent á Búðasandi og varningurinn borinn þar í land, stystu leið til búða. Síðar, þegar flytja þurfti varning frá hinum stærri skipum með smábátum, er líklegra að þau hafi legið utan við eða á svonefndi Maríuhöfn og varningnum verið færður að hinni hlöðnu bryggju í “Maríuhöfn” innanverðri, sem hér hefur verið tilgreind, a.m.k. einhver hluti eða tilteknir hlutar hans. Með tilkomu bryggjunnar hefur verið hægt að koma varningnum strax fyrir á vögnum, sem ekki var hægt í malarfjörunni. Sjá meira um rannsóknir og heimildir um búðirnar á Búðasandi í meistararitgerð Magnúsar Þorkelssonar 2004.
Gengið var inn með voginum, en hann er þar sendinn og auðveldur yfirferðar. Fallin varða, sem einhverju sinni hefur verið stór, er uppi í Hálshólunum sunnanverðum, líklega markavarða.Maríuhöfn

Þá var stefnan tekin að ofanverðri Hvammsvík með það fyrir augum að berja augum jarðfræðifyrirbærið Steðja. Steðji og næsta umhverfi er eina svæðið sem friðlýst hefur verið í hreppnum; svæðið er friðlýst sem “náttúruvætti”. Ákveðnar reglur gilda um umgengni við Steðja og næsta umhverfi og tilgreindar voru í auglýsingu um friðlýsinguna: Steðji: “Steðji (Staupasteinn) á Skeiðhóli, Kjósarhreppi, Kjósarsýslu. Friðlýstur sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 218/1974. Stærð 7 ha. Sérkennilegur klettur á mjóum stöpli eins og staup í laginu. Ber mörg nöfn en er af flestum nefndur Staupasteinn. Skeiðhóll hefur verið vinsæll áningarstaður ferðamanna. Friðlýstur 1974.”

Steðji

Skeiðhóll er undir miðju Hvammsfjalli í Hvalfirði. Milli hólsins og fjallsins er grunnt skarð þar sem ekið var um uns þjóðvegurinn var færður niður fyrir hólinn, nær sjónum. Sunnan í Skeiðhól stendur afar sérstæður klettur, líkastur glasi á mjóum stöpli. Á honum eru þekkt að minnsta kosti fjögur nöfn: Prestur, Steðji, Karlinn í Skeiðhól og Staupasteinn. Flestir kannast trúlega við klettinn sem Staupastein en á vegvísi við þjóðveginn, nálægt Hvammsvík, er hann nefndur Steðji. Kletturinn og næsta nágrenni er friðlýst sem náttúruvætti. Einbúinn okkar býr í klettinum sjálfum og í brekkunni þar hjá. Erla Stefánsdóttir sjáandi veit einungis um 8 einbúa sömu ættar á Íslandi. Auk okkar manns á Skeiðhóli, er slíkur einbúi við Brynjudalsá í Hvalfirði, tveir eru í Kópavogi og einn nálægt þjóðveginum við Blönduós, svo nokkrir séu nefndir.
Til eru nokkrar sagnir af íbúum í Steðja, en þær verða ekki raktar hér. Hafa ber í huga að staðurinn var vinsæll áningarstaður ferðalanga, svo vinsæll að Staupasteinsnafnið mun ekki hafa komið af engu. Eflaust hafa þá orðið til ýmsar sagnir, sem hver verður að hafa fyrir sig.
Í rauninni er miður að þjóðvegurinn skuli ekki liggja lengur framhjá Steðja, svo mikinn svip hefur hann sett á ferðalög og hugi ferðalanga í gegnum tíðina.
Frábært veður. Gangan tók 2 klst og 2 mín.

Heimildir m.a.:
-Mbl. 30. ágúst 1981.
-kjos.is
Erlendur Björnsson, endurminningar,  Sjósókn, Rvík 1945.

Búðasandur - Hleinin fjærst

Melaseljadalur

Stefnt var að því að ganga upp í Melaseljadal ofan við Tindsstaði, Kiðafell og Mela í Kjós. Áður en lagt var af stað var kíkt á eftirfarandi grein um svæðið, sem birtist í MBL 24. nóv. 1968 og bar fyrirsögnina “Hún amma mín það sagði mér”.
Melaseljadalur og nágrenni“Í þetta skiptið ætlum við að ganga í Tinnuskarð og í Þjófagil, og ef okkur endist þrek, að ganga það allt til enda, þar til Melaseljadal er náð, en hann öðlaðist frægð sýna skyndilega þegar reist var þar brugghús á þeim tíma, þegar “bændurnir brugguðu í friði, meðan Blöndal var suður með sjó” eins og sagði í kvæðinu.
Við erum fljót yfir bergvatnsána tæru Kiðafellsá upp á Kleyfarnar framhjá klettinum, sem hún amma mín sagðist alltaf sjá álfaborgina í, einkanlega þegar kvöldsólin skein á hana. Ég held að hún hafi þar fyrir utan bæði séð álfakónginn og álfadrottninguna, en henni fannst alltaf álfaborgin hafa burstir, eins og íslenskur sveitarbær. Burstirnar voru þrjár, sagði hún.
Allt er þetta á fótinn, en Tinnuskarð er ekki hátt, þótt klettabeltið sé tilkomumikið og reglulegt, og brátt náum við upp á sléttuna ofanvert við Tinnuskarð.
Enga finnum við samt tinnuna, en hins vegar er mikið um jaspis og kvartzmola, sem liggja á melnum, út um allt. ekki er önnur skýring á nafngiftinni en sú, að gömlu mönnunum hafi fundist jaspísinn svo harður, – þeir gátu skorið með honum gler – og kallað skarðið eftir því.
Útsýnið upp til dalsins á TindstaðafjalliOg nú sjáum við ofan á þetta einkennilega náttúrufyrirbæri Tinnuskarðið sjálft. Eiginlega er þetta ekki skarð, nema yzt við klettabeltið. Miklu frekar er þetta lítil dalkvos. Sé maður staddur í botni hennar, sér mann enginn. Skarðið er aðeins opið til vesturs, út til fjarðarins, og þeir sem um þjóðveginn fara fyrir neðan, myndu ekki hafa hugmynd um þótt þúsundir manna hefðust við í dalkvosinni innan við sjálft skarðið. Grasivaxnar brekkur eru á allar hliðar og þar er einskonar sæti allt um kring og er þetta engu líkara en [í] rómversku hringleikahúsi. Colosseum er að vísu gert af steini og mannavöldum, en þarna gætu vel farið fram leikar og mannfundir, og nógir eru áhorfendabekkir. Einnig hagar þannig svo til, að innanvert við skarðið, norðanmegin er ræðupallur af náttúrunni gerður hátt í klettum og þar reyndi maður raddþolið hér áður. Það er engu líkara, en klettarnir vörpuðu hljóðinu inn í þetta hringleikahús og óþarft myndi þar að nota gjallarhorn. Tinnuskarð er sem sagt tilvalið fyrir mannafundi.
Rétt sunnan við komum við svo niður í Þjófagil. Eftir því rennur lítill lækur, skoppar stein af steini og fellur svo meðfram norðurjarðri Melaflatar og niður Melagil til sjávar hjá Niðurkoti, en sá bær er nú í eyði. Á Melaflöt var það venjan hér áður að hleypa hestunum á leið til kirkju í Saurbæ, og var hún tilvalinn skeiðvöllur.
Járnbrautarvagn við Kiðafell - herminjar frá HvítarnesiEnginn veit ég deili á nafngift þessari, Þjófagil. Veit um enga þjófa, sem hafa verið að sniglast í gili þessu. Það er víða grösugt og auðvelt yfirferðar, og endar ekki fyrr en í Melaseljadal bak við Stampana.
Og þá er að segja frá Melaseljadal. Hann er eiginlega örlítið dalverpi opið í báða enda, en þar hefur sjálfsagt verið haft í seli frá Melum hér áður, eins og nafnið bendir til. Ekki hef ég séð neinar rústir aðrar en þær af brugghúsinu fræga, sem nú greinir frá.
Þetta var á þeim tímum, eins og áður sagði, þegar bændurnir brugguðu í friði, meðan Blöndal var suður með sjó en Björn sálugi Blöndal var lögreglueftirlitsmaður með landabruggi þá.
Það var á allra vitorði, að nokkrir þarna í nánd stunduðu lítilsháttar brugg sér til búdrýginda, en allt voru þetta heiðursmenn, og aldrei fannst brugghúsið, fyrr en sólheitan sumardag einn að maður nokkur skapp í fjallgöngu á Dýjadalshnúk í Esju. Á niðurleið gekk hann yfir Melaseljadal, og sá þá lækjarsprænu koma undan einhverri þúst. Við nánari athugun kom í ljós hið haganlegasta brugghús með landalögum í mörgum brúsum og tunnum á stokkunum. Lækurinn var leiddur í gegnum húsið til hagræðingar. Tveir kjóar sátu þar nærri og söng ámátlega í þeim, eins og þeir væru búnir að fá sér heldur mikið neðan í því af framleiðslunni.
Álfaborgin í KleyfumEkki sagði maðurinn frá þessu, en upp komst um húsið fyrir annarra tilverkanað um síðir, og var þá úti hin hagstæða tíð. Einhversstaðar í Þjófagili fann ég líka einu sinni eitthvað af tunnustöfum, sem vafalaust hafa ekki átt annað erindi þar, en til verksmiðjunnar í Melaseljadal. Vafalítið hefur það verið góð heilsubótarganga að ganga til verksmiðurekstursins, en þetta varðaði við landslög og öllu var hellt niður. Æ, það má ekkert skemmtilegt gera á þessu landi lengur.
Nú var orðið kvöldsett, sólin að síga bak við Akrafjall, og við höldum niður með Þverá til byggða.
Alltaf ber eitthvað nýtt fyrir augu, alltaf opnast meir og meir af íslenskri náttúru fyrir okkur, og við raulum fyrir munni okkar niður Kleyfarnar hið gullfallega erindi Guðmundar skólaskálds:

Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern reit.
Komið er sumar, og hýrt er í sveit.
Sól er að kveðja við bláfjallabrún.
Brosa við aftanskin fagurgræn tún.
seg mér, hvað indælla auga þitt leit
íslenska kvöldinu í fallegri sveit.”

Í Jarðabókinni 1703 segir m.a. Um Neðrakot [Niðurkot]: “Fjórða býli á jörðinni [Kiðafelli], sem ekki er með hjáleigum talið.” Í umsögn um Kiðafell er ekki getið um selstöðu. Minnst er á selstöðu Mela upp í Esju í Jarðabókinni: “Selstöðu á jörðin þar sem heitir Mela Seljadalur, og eru þeir hagar að mestu aleyddir af skriðum.”
Að sögn Sigurbjörns Hjaltasonar á Kiðafelli var greinin í Lesbókinni eftir föðurbróður hans, Friðrik Sigurbjörnsson, fyrrverandi lögreglustjóra á Ísafirði. Hann skrifaði m.a. bókina “Sól skein sunnan” og þar mun vera umfjöllun um svæðið (náttúrufarslýsingar). Tóftir væru í Melaseljadal, en sá dalur væri mun neðar en virðist við fyrstu sýn, eða einungis lítil skál. Þær tóftir voru m.a. notaðar fyrir brugghúsið nefnda. Tinnuskarð hefði verið nefnt Tvistakarð og Þjófadalur Þjódalur vegna þjóhnappalíki, sem í honum eru. Tíminn verður nýttur til að afla fleiri heimilda um svæðið.
Vegna veðurs, ofankomu og skafrennings, var ákveðið að freysta ekki uppgöngu í Melaseljadal að þessu sinni. Uppförin þangað bíður leysinga.

Heimild:
-Mbl. 24. nóv. 1968 – Hún amma mín það sagði mér, bls. 7, úr ritröðinni “Á víðavangi” (Friðbjörn Sigurbjörnsson).
-Jarðarbók Ám og PV 1703, bls 381 og 394.

Útsýnið til dalsins þennan dag

Reynivallasel

Lagt var af stað frá hlaðinni rétt í Kálfadal við svonefndan Sjávarfoss.  Um 250 metra ofar er önnur hlaðin rétt, allmiklu eldri. Ætlunin var að finna og skoða selstöðurnar frá Reynivöllum, Vindási og Fossá. Kotbýlið Seljadalur óx upp úr Reynivallaseli. Selsins er getið í Jarðabókinni 1703: “Selstöðu í Seljadal.” Einnig er í Jarðabókinni getið sels frá Vindási í Seljadal: “Selstöðu á jörðin í sínu eigin landi, en brúkast þó ekki, heldur í selstöðu þeirri, er beneficio tilheyrir á Seljadal.” 

Rétt í Kálfadal

Líklega er (þ.e. að hingað til hefur verið talið) um sömu selstöðu að ræða og þá frá Reynivöllum því í Jarðabókinni segir ennfremur: “Bústaður sóknarprestsins í Kjós, gefinn af kóngl. máð af sál. Friðrik 3ja háloflegrar minningar í staðinn þess fordjarfða beneficii Reynivalla, sem af skriðum og snjóflóði næsta því eyðilagt var.” Eins og annars staðar er skráð hafði skriða fallið á Reynivallabæinn og jafnað við jörðu.
Um selstöðu Fossár segir í Jarðabókinni: “Selstöðu á jörðin í heimalandi.” Vel mátti álykta að Fossárselið væri í Fossárdal og þá væntanlega nálægt Fossá.
Þegar lagt er af stað frá fyrrgreindum stað er þar kort af svæðinu. Skógræktin hefur Fossá til ræktunnar. Hún hefur væntanlega viljað leiðbeina áhugasömu útivistarfólki um svæðið. En það fólk, sem ætlar að ganga þaðan upp að gamla Seljadalsbænum, verður að gæta þess að fara ekki eftir kortinu. Á því er bærinn sýndur vestan Seljadalsár, er að sjálfsögðu nokkru austan árinnar, sunnan Hjaltadalsár. Bærinn (tóftirnar) er rétt staðsettur á gömlu landakortum.

FossárselÞegar komið var upp fyrir Fossárbæinn (vestan árinnar) liggur slóði upp með ánni. Slóðinn hefur verið lagður yfir gamla götu. Hún birtist þegar slóðinn beygir lengra upp í hlíðina. Þegar götunni er fylgt liggur hún svo til í beina línu að mótum Seljadalsáar og Hjaltadalsáar. Skammt norðan við ármótin er vað. Varða er við það austan árinnar. Skammt norðar, á austurbakkanum, er fallegur lækur. Trjám hefur verið plantað í hlíðina og eru þau nú orðin allhá – heilmikill skógur. Seltóftir eru skammt ofan við bakkann, við lækinn. Trjám hefur verið plantað í þær allar nema hvað ein stendur út úr og sést sæmilega. Þarna er líklega um að ræða seltóftir Fossár, enda í bæjarins landi og auk þess ofarlega að mörkunum.
Stekkur í FossárseliGötunni var fylgt áfram upp með ánni. Skammt ofar er beygja á ánni. Þar liggur gatan yfir á grynningum og stefnir síðan svo til beint upp að Seljadalsbænum, skáhalt upp hlíðina.
Seljadalur er vel gróinn, en þýfður mjög. Við suðurenda hans blasir Skálafell við og Sandfell vestar. Hryggur er að vestanverðu með dalnum og Hornfell að austanverðu. Hornið skagar út úr efstu brún þess.
Nokkrar tóftir eru í bæjarstæðinu. Efst er ílangt hús með dyrum mót vestri. Fast  neðan við það er fjárhús. Norðan við það er stærstu tóftirna; Seljadalur. Norðar er tóft; gætu einnig hafa veri sauðakofi.
Ekki er ólíklegt að sunnan vi bæinn hafi gamla selið frá Reynivöllum staðið og hús með gerði sunnar; sennilega fjárhús og hlaða, hafi verið byggt upp úr því. Tóftin er óvenjumjó af fjárhúsi að vera. Bæjarstæðið er á ágætum stað og vel st

aðsett m.t.t. til aðstæðna og staðhátta. Hlaðinn heur verið garður að austanverðu, væntanlega kálgarður og afhýsi milli hans og bæjartóftanna. Sunnar er tóft, væntanlega útihús. Gata liggur vestan þess.
Skammt norðvestar er hlaðin tvíhólfa rétt. Líklega hefur hún áður verið stekkur því kró er í horni annars hólfsins, en síðan hinu hólfinu verið bætt við, enda miklu mun heillegra en hitt.
Tóft í SeljadalÞar sem áð var á tóftum Seljadals var ekki úr vegi að rifja eitthvað upp um leiðir, örnefni og sögu svæðisins. Norðan Esju og sunnan Hvalfjarðar er Kjósin, umlukt fjöllum, hálsum, heiðum og hafi. Nafnið sjálft er talið merkja lítinn dal (kvos) og geta flestir verið á eitt sáttir um það, að sveitin ber nafn, sem henni hæfir.
Í sóknar- og sveitarlýsingum frá fyrri tímum virðist nafnið Kjós aðeins eiga við um dalinn milli Esju og Reynivallaháls.
Í Landnámu segir, að Valþjófur, sonur Örlygs hins gamla Hrappssonar landnámsmanns á Esjubergi, hafi byggt bæ að Meðalfelli. Er hann því landnámsmaður Kjósarinnar, hann „nam Kjós alla” segir orðrétt. Í Landnámu er að vísu getið annarra landnámsmanna á svæðinu. Hvamm-Þórir nam land „á milli Laxár og Forsár og bjó í Hvammi”.
Rétt í SeljadalReynivallaháls dregur nafn sitt af kirkjustaðnum, sem nánar segir frá síðar. Hann liggur í landsuður frá Hálsnesi í sveig inn að Fossárdal og Seljadal, um það bil tíu kílómetra leið. Austan við er svo Þrándarstaðafjall. Austan við er svo Þrándarstaðafjall, nyrst, þá Hornafell og Kjölurinn. Seljadalur er sunnanverður dalurinn milli Hornafells og sunnanverðan Reynivallaháls. Nyrðri hlutinn nefnist Fossárdalur. Sandfell er syðst á hálsinum og norðvestan við það er Sandfellstjörn.
Yfir Hálsinn liggja fjórar fornar alfaraleiðir, sem nú verður getið nánar. Vestast er Kirkjustígur, beint upp af kirkjunni, þar fyrir innan er Gíslagata á landamærum Reynivalla og Vindáss, og loks þjóðleiðirnar fornu, Sandfellsvegur og Svínaskarðsvegur sem koma saman austan til í hlíðum Sandfells. Allar liggja þessar leiðir að lokum niður að Fossá norðanvert í Hálsinum.

SvínaskarðsleiðAustan Gíslagötu eru Dauðsmannsbrekkur, sem svo heita vegna þess að þjóðsagan greinir frá stigamennsku Magnúsar bónda á Fossá, sem sat þar fyrir ferðamönnum á 18. öld. Við gatanmót Sandfellsvegar og Gíslagötu er dys, sem sögð er vera yfir ferðamanni er dó þarna é leið sinni. Svínaskarðsleið liggur norður af sunnan við svonefnda Hryggi norðan Sandfells, síðan beygir leiðin til norðurs með fram Dauðsmannsbrekkunum, sem eru þá á hægri hönd. Loks mætti nefna eina leið enn upp á Hálsinn að sunnanverðu, milli Gíslagötu og Svínaskarðsvegar, suðvestan til í Sandfelli, skammt austan Vindáss. Þetta er allbrött leið, sem liggur upp á Hálsinn vestan við Sandfell inn á Gíslagötu. Selstígur, en svo heitir þessi leið, lá upp að Vindásseli í Seljadal framanverðum.
SeljadalurSeljadalurinn er grösugur dalur og sér enn móta fyrir rústum þessa bæjar, er þar stóð í miðri austurhlíðinni. Þar bjó síðast Gísli Einarsson ásamt fjölskyldu sinni 1897-1921. Landið er gott fyrir sauðfjárbeit. Austan Seljadals er Hornafell en norðvestan við bæjarrústirnar eru Hjaltadalur, í honum rennur Hjaltadalsáin fyrrenfnda. Í ánni er Folaldafoss. Fossinn er áberandi þegar gengið er má Seljadalsá framhjá ármótunum.
SeljadalurEftir Seljadal rennur svo Seljadalsáin, sem breytir um nafn eftir að Hjaltadalsá hefur sameinast henni og heitir þaðan í frá Fossá og dalurinn Fossárdalur, sem fyrr sagði. Í örnefnaskrá fyrir Reynivelli segir að ”í Seljadal var kotið Seljadalur, sem fyrrum var kallað Reynivallasel. Sá bær stóð í óbyggð 1880-1897. Þá fór þangað Gísli Einarsson frá Hækingsdal og bjó þar til 1921.”
Kirkjustaður og prestssetur hefur verið á Reynivöllum frá því elstu heimildir herma. Þar var einnig lengst af miðstöð byggðarinnar. Um
langan aldur var þar þingstaður sveitarinnar og þinghús, þar var rekinn fyrsti barnaskólinn í Kjósinni, hann var stofnaður kringum 1880 og starfaði í sérstöku húsnæði, sem byggt var fyrir skólastarfið. Þá var prestur á Reynivöllum sr. Þorkell Bjarnason, sem áður er getið. Hann var afkastamikill á ýmsum sviðum menningarlífsins, ritaði m.a. Íslandssögu, sem lengi vel var eina Íslandssagan, sem kennd var í skólum landsins. Þá skrifaði hann einnig stórmerka bók um sögu siðbótarinnar hér á landi auk fjölda ritgerða um ýmis efni. Áður hefur verið getið um frumkvæði hans í laxeldi.

Eftirmaður hans var sr. Halldór Jónsson, sem prestur var á Reynivöllum í hálfa öld, frá 1900 til 1950. Sr. Halldór var sömuleiðis merkur prestur á sinni tíð, framfarasinnaður í búskaparháttum og tónskáld ágætt. Oddviti sveitarinnar var hann um árabil. Hann hefur ritað endurminningar sínar, sem eru merk heimild um líf og starf Kjósverja í þá hálfu öld, sem hann var sálnahirðir þeirra.
GöturKirkja sú, er nú stendur á Reynivöllum, er ein elsta timburkirkja landsins. Hún var reist árið 1859 í tíð sr. Gísla Jóhannessonar og skammt frá hafði bærinn staðið frá ómunatíð, uns hann var færður á svipaðar slóðir og hann er nú, þó lítið eitt neðar, eftir skriðuföll mikil, sem gengu ítrekað yfir staðinn á 17. öld.
Leyfi til þess að flytja kirkjuna í Kirkjubrekkuna, þar sem hún er nú, fékkst þegar núverandi kirkja var reist. Er kirkjan í hefðbundnum stíl síns tíma en þó dálítið breytt frá upphaflegri mynd, hún hefur verið lengd ofurlítið, forkirkju bætt vestan við, og einnig hefur sú breyting verið gerð á henni að innanverðu, að prédikunarstóllinn, sem áður var fyrir ofan altari, var færður á suðurvegg. Þetta var gert skömmu fyrir 1930 og um svipað leyti voru pílárar í skilrúmi milli kórs og skips fjarlægðir og er þar nú aðeins lágur veggur eins og víða í kirkjum frá seinni hluta 19. aldar, sem svipaðar Selstígurinnbreytingar hafa verið gerðar á. Auk þess hafa bekkir verið endurnýjaðir í kirkjunni. Altaristafla eftir Brynjólf Þórðarson prýðir kirkjuna auk ýmissa annarra merkra gripa. Á Þjóðminjasafninu eru nokkrir góðir gripir úr Reynivallakirkju, m.a. tvær gamlar altaristöflur, kaleikur og patína frá 14. öld, ljósasax og fleiri gripir.
Í Lýsing Reynivallasóknar 1840, eftir séra Sigurð Sigurðsson, segir: „Selstöður hafa verið: Á Seljadal frá Reynivöllum og Vindási.”

Hafa ber í huga að hér er, þrátt fyrir allmikla fyrirhöfn, einungis um frumvinnu að ræða er ætlað er að miða að því að hnitsetja gamlar götur og leiðir á Reynivallahálsi og undirliggjandi bæja beggja vegna.
Næst verður haldið upp framangreindan Selsstíg um Múla og reynt að fylgja honum “norður yfir Hryggi”.
Gangan tók 2 klst og 22 mín. Frábært veður.

Heimildir m.a.:
-Örnefnalýsing fyrir Reynivelli – Guðmundur B. Kristmundsson.
-www.kjos.is
-Í Kjósinni – eftir Gunnar Kristjánsson.
-Jarðabók ÁM og PV 1703.
-Lýsing Reynivallasóknar 1840 – séra Sigurður Sigurðsson.

Fossárrétt

Meðalfellsvatn - skilti

Á norðurbakka Meðalfellsvatns er upplýsingaskilti. Á því má lesa eftirfarandi texta:

“Í Kjós er hægt að lesa merkilega sögu um hop og framskrið jökla ísaldar. Kjósin er dalur sem jöklar ísaldar hafa forðum grafið út úr Esjuhálendinu. meginjökull hefur skriðið út Hvalfjörð, en minni jöklar úr Kjós, sem hafa skilið Meðalfell eftir. Smærri skrijöklar hafa grafið út dalina norðan í Esjunni.

1. Meðalfell

Meðalfell

Meðalfell.

Í Landnámu segir að Valþjófur, sonur Örlygs hins gamla Hrappssonar landnámsmanns á Esjubergi, hafi byggt bæ sinn að Meðalfelli. Er hann því landnámsmaður Kjósrainnar, hann “nam Kjós alla” segir orðrétt.

2. Eyjarétt

Eyjarétt

Eyjarétt.

Rétt neðan við Kaffi Kjós eru leifar Eyjaréttar sem var lögrétt frá 1890 til 1955. Hægt er að sjá merki um réttina ef gengið er upp í hlíðar Meðalfells upp af Kaffi Kjós og horft yfir svæðið þaðan.

3. Írafell

Írafell

Írafell (MWL).

Einn frægasti draugur landsins er Írafellsmóri. Sagt er að hann hafi verið vakinn upp úr dreng sem varð úti á milli bæja. Draugurinn var sendur að Möðruvöllum til að ásækja Kort nokkurn Þorvarðarson og var sagt að hann myndi fylgja ætt hans í níu ættliði. Draugurinn fylgdi syni Korts að Írafelli og dregur síðan nafn sitt af bænum.

4. Grjóteyri

Grjóteyri

Grjóteyri.

Um miðja 20. öld voru gerðir nokkrir skógarreitir af félagasamtökum, m.a. í landi Grjóteyrar.

5. Flekkudalur

Flekkudalur

Flekkudalur

Í Flekkudal eru hraunlög og móberg. Þessi hraun runnu líklega þegar eldstöðin á Kjalarnesi var að deyja út, en eldstöðin í Stardal ekki vöknuð. Meðalfell er myndað úr sömu jarðlögum. Í gili Flekkudalsár er einnig að finna margvíslegar stuðlamyndanir í móbergi, bólstra og móbergstúff með gerggöngum og stórum gúlum af stuðluðu blágrýti.

Meðalfellsvatn - skilti

Meðalfellsvatn – skilti.

Írafell

Í Alþýðublaðinu, helgarblaði, segir m.a. um Kjós; “Talir þú gott, þá lýgur þú“.

“Kjósin lætur ekki mikið yfir sér, þegar maður virðir hana fyrir sér af þjóðvegjnum. En hún er ekki öll þar sem hún er séð. Hún leynir á sér. Og þetta er falleg sveit og búsældarleg, þótt hér verði hvorki tíunduð fegurð hennar né gæði.

Írafell

Írafell.

Lengi vel vissi ég ekki annað um þessa sveit eða íbúa hennar en ýmsar sögur af Írafells-Móra, einum atkvæðamesta draug Íslandssögunnar, sem kenndur var við Írafell í Kjós. Írafells-Móri var vakinn upp af galdramanni nyrðra og sendur Kort Þorvarðarsyni, gildum bónda, sem lengi bjó á Möðruvöllum í Kjós, en fluttist síðast að Flekkudal og dó þar 1821.
Kort var tvíkvæntur; hét fyrri kona hans Ingibjörg. Margir höfðu orðið til að biðja hennar áður en Kort, en hún synjaði þeim öllum. Biðlarnir þóttust sárt leiknir og keyptu af galdramanninum að senda Kort og konu hans sendingu. Valdi hann til þess drenghnokka, sem orðið hafði úti milli bæja. Vakti galdramaðurinn hann upp volgan eða ekki með öllu dauðan og sendi hann þeim Kort á Möðruvöllum og mælti svo um, að draugurinn skyldi fylgja þeim hjónum og niðjum þeirra í níunda lið og vinna þeim margt til meins. Móri sveikst ekki um þetta. Gerði hann þeim hjónum og afkomendum þeirra margar skráveifur, drap fyrir þeim fénað, skemmdi mat og sótti að fólki í svefni og vöku. Skammta varð honum fullan mat ekki síður en hverjum öðrum heimilismanni á Möðruvöllum og á Írafelli, eftir að hann fluttist þangað með Magnúsi Kortssyni. Sömuleiðis þurfti að ætla honum rúmflet til að liggja í, bæði af bæ og á.
Hér er ekki ætlunin að rekja frekar lífshlaup Írafells-Móra, sem þó var ærið sögulegt og viðburðaríkt. Hins vegar hefði kannski einhver gaman af að kynnast lítillega Kjósverjum þeirrar tíðar, samtíðarfólki Írafells-Móra, eins og það kom sálusorgara þess á Reynivöllum fyrir sjónir, og hvernig hann lýsir því, daglegu lífi þess og áhugaefnum, atvinnuháttum og menningu.

Reynivellir

Reynivellir.

Um þessar mundir, eða nánar tiltekið 30. apríl 1839, sendi nefnd manna í umboði Hins íslenzka bókmenntafélags í Kaupmannahöfn boðsbréf heim til Íslands „sérílagi öllum prestum og próföstum á landinu” með þar til heyrandi spurningum um náttúru og byggð landsins, menningu og atvinnuhætti.
Séra Sigurður Sigurðsson á Reynivöllum í Kjós fékk þetta bréf eins og aðrir kirkjunnar menn í landinu. Svaraði hann spurningum nefndarinnar vel og skilmerkilega. Um Kjósverja hefur hann m.a. þetta að segja: „Flestir bændur í Kjósinni hafa sauðfá fátt, en fer mikið fleiri að tiltölu, sem þeir ala margir á útheyi, arðlitlar, fram eftir vetri. Tún sín rækta þeir sæmilega; láta margrf kýr liggja inni á sumrum. Til eru þeir, sem brúka færikvíar, og margir beitarhús á vetrum. Þeir stunda heyafla vel og fara lestir í útver tll fiskifanga vetur, vor og haust, þegar afli er. Fiskur er meiri partur þeirra höndlunarvara, þar landvara svo lítil til. Kálgarða rækta þeir margir, er ekki kartöflur eður önnur jarðepli. Sölva- og rótatekju hafa þeir ekki og lítið af fjallagrösum, sem ekki fást í Kjósarfjöllum. Nokkrir fara samt eftir þeim austi: á fjöll, í Skjaldbreið, langan veg. Sumir veiða rjúpur á vetrum. Þeir lifa margir látæklega á kornvöru, fiski og mjólk. Þeir vinna ullu á vetrum til fatnaðar, en ekki til útgjalda, því ull er víða lítil. Karlmenn spinna sumir hamp á vetrum í þorskanet og til veiðarfæra. Sumir elta skinn og sauma skinnföt, nokkrir vefa vaðmál og hafa á hendi útiverk við fé og hross. Kvenfólk fæst við ullarvinnu, þó minna en víða er siður í Norðurlandi. Þegar vetrarvertíð byrjar, fara karlmenn flestir í ver, en kvenfólk tekur þá við útiverkum. Þeir smíða ekki til gróða, hvorki tré eður járn; margir eru þeir vel búhagir og smíða húsgögn sín af tré og járni. Trjáreki er hér enginn, ekki heldur skógarviður til húsabygginga. Ekki iðka menn skotfimi, —
fáeinir að sönnu skjóta refa við gren og slysa rjúpur, — ekki glímur, ekki skíða- eður skautaferðir, — ekki sund, — vaða heldur —; enginn þeirra þekkir nótnasöng, ekki heldur kunna þeir á hljóðfæri. Þeir skrifa fáeinir, og þó lítið, og eru ekki gefnir mjög fyrir bókmenntir, svo ekki hafa þeir þetta til skemmtunar. Ég nefni ekki fleira. Sumir lesa dálítið í alþekktum fornsögum, en vita lítið í veraldarsögunni. Ekki skilja þeir danska tungu. Enginn hefir hér vit á lækningum eður þekkir lækrringajurtir; engin er hér yfirheyrð yfirsetukona. Ekki tíðkast hér í sveit nokkrir sérlegir sjúkdómar, nema þeir, sem almennt ganga yfir landið, landfarsóttir, og ekki mjög sóttnæmt, enda þekkja menn hér lítið til uppruna sjúkdóma eður vita að ráða bót á þeim. Bráðdauði eður fjárpest sú, sem víða gengur um landið, hefur nú upp í nokkur ár undanfarið stungið sér niður á einstöku stað, einkum fyrri part vetrar, og drepið fénað. Dýralæknir vor í Reykjavík hefir enn ekkert ráð við henni gefið til hlítar.

Reynivellir

Reynivellir.

Um trúrækni manna og trúarbragðaþekkingu talar maður með varygð, helzt um einn söfnuð út af fyrir sig. Er lítið mun því hafa miðað síðan um aldamótin síðast.”
Þann 1. marz 1840 sezt svo séra Sigurður á Reynivöllum við skrifborð sitt, eftir að hafa svarað samvizkusamlega öllum spurningum þeim, sem til hans var beint, og ritar nefndarmönnum eftirfarandi bréf til frekari skýringar og áréttingar:
-Háttvirtu herrar! Meðtekið hefi ég á síðastl(iðnu) sumri ykkar heiðursverða og góða bréf til mín af 30. apríl f.á. áhrærandi það efni að svara upp á þær spurningar, sem bréfið hljóðaði upp á. En bæði lasleysi þá í stað og sumarannir hindruðu mig frá því að sýna lit á að koma þessu í verk, sízt í lagi nokkuð eftir óskum, sem þurfti, þar fávizka, aldurdómur og ókunnugleiki, þar sem maður kemur gamall langt að, bægði mér að geta nákvæmari útmálun gefið en þessa.
Nú, þó seinna sé en ég vildi, legg ég í þetta umslag útmálun um Reynivallasókn, hvar í lýst mun vera öllum örnefnum, er ég vissi eður heyrt hefi, að hér séu, sömuleiðis sveitarinnar ástandi og afstöðu yfir höfuð. Spursmálunum hefi ég svarað [á] þann veg, ekki hverju út af fyrir sig eftir röðinni, heldur í söguformi, þó með tiliti því, að þeim yrði öllum svarað nokkurn veginn. Um siðferðið og trúrækni í þeirri sveit, hvar maður býr, og á að skipta við aðra, mundi bezt að vera nokkuð fáorður, ekki óþægilega. Nógu margir skrifa eður varpa á það efun yfir höfuð. Síðari tíð sýnir ávöxtinn, hver hann verður. Hertugans sannyrði mættu mér í minni vera: Talir þú illt um þá, verður þú barinn, talir þú gott, þá lýgur þú. Yfir höfuð ætti landkort að gjörast eftir sveitanna útmálun; þó eru fáir færir fyrir þeirri útmálun, sem þyrfti. Forlátið, háttvirtu herrar, þessa ófullkomnu tilreynslu mína.
Reynivöllum, þann 1. marz 1840, – S. Sigurðsson.”

Írafell er næstum því inni á gafli í Kjósinni, svo að notuð sé samlíking, sem á upprunalega annars staðar heima en í landslaginu. Jörðin og sveitin öll hefur tekið miklum stakkaskiptum síðan á dögum séra Sigurðar á Reynivöllum og Írafells-Móra er ekki lengur skammtað í askinn sinn eins og hverjum öðrum heimilismanni eða ætlað rúmflet til að liggja í, enda lætur hann nú ekki á sér kræla.
En þeir, sem aka um Kjósina á góðviðrisdegi ættu þó að renna augum til bæjarins undir fellinu, sem uppvakningurinn var kenndur við, og hafa jafnframt í huga sóknarlýsingu sálusorgarans á Reynivöllum til skilningsauka á Írafells-Móra og samtíð hans. Kjósin er ekki öll þar sem hún er séð. Hún leynir á sér.” —6G

Heimild:
-Alþýðublaðið, helgarblað; “Talir þú gott, þá lýgur þú”, 25.05.1969, bls. 9-10.

Meðalfellsvatn

Við Meðalfellsvatn í Kjós.

Steðji

Í Tímanum 1976 eru sögð  “Nokkur orð um Kjósarsýslu – Hvað ætlar þú að sjá af landinu þínu?”.

“Sýslumörk Borgarfjarðarsýslu og Kjósarsýslu eru við Botnsá i Hvalfirði, en Kjós nefnist sveitin frá Hvalfjarðarbotni til Kiðafellsár. Kjós þýðir í raun kvos eða dæld, enda kemur það vel heim og saman við landslag þar í sveit.

Kjós

Ferð okkar um landnám Ingólfs hefst við Botnsá í Hvalfirði, og þar eru, eins og fyrr segir, sýslumörk Borgarfjarðarsýslu og Kjósarsýslu. Botnsá fellur úr Hvalvatni, sem er næst dýpsta vatn landsins, 160 m djúpt. Er sagt, að vatnið heiti eftir hval, sem teymdur var í það upp eftir Botnsá. Í Botnsá er fossinn Glymur, hæsti foss á Íslandi, rúmir 200 m að hæð.
Þegar yfir Botnsá er komið, sveigir vegurinn út með Múlafjalli, bröttu og hömrum girt í sjó fram, og er vegastæðið tæpt á kafla. Botnsvogur heitir vogurinn, sem við sjáum á hægri hönd.
Við ökum út með Múlafelli og yfir Brynjudalsá, sem fellur um lítið dalverpi, Brynjudal, og til sjávar í Brynjudalsvogi. Ofan við brúna á Brynjudalsá var foss, sem sprengdur hefur verið, og við hann er Maríuhellir.
Skammt norðan Laxár komum við að vegamótum Kjósarskarðsvegar, en hann liggur á milli Kjósar og Þingvallavegar, u.þ.b. 22 km langur. Við Kjósarskarðsveg eru meðal annarra bæirnir Reynivellir, sem er kirkjustaður og prestssetur, og Vindáshlíð, þar sem eru sumarbúðir KFUK. Írafell heitir innsti bær í Kjós, og við þann bæ er kenndur Írafells-Móri, frægur draugur í eina tíð.
Kjós
Við ökum yfir Laxá og höldum fram hjá Félagsgarði. Áður en við vitum af komum við að vegamótum Meðalfellsvegar, sem liggur upp með Meðalfelli að sunnan. Áin Bugða fellur úr Meðalfellsvatni, og rennur í Laxá, ekki langt frá bænum Ásgarði, Bærinn að Meðalfelli er á vinstri hönd, ef haldið er eftir Meðalfellsvegi.
Ef við höldum fram hjá vegamótum Meðalfellsvegar, komum við brátt að þriðju vegamótunum, að þessu sinni að vegamótum Eyrarfjallsvegar. Tilvalið er að bregða út af vananum og taka nú beygjuna til vinstri í stað þess að halda beint áfram. Þá höldum við fyrst um grasi gróið undirlendi fram hjá búsældarlegum býlum, yfir Skorá og síðan eftir berangurslegum ruðningsöldum, allt til þess er við komum að mótum Eilífsdals, en Í þeim dal stendur samnefndur bær. Undirlendi er töluvert á þessum slóðum.
Eilífsdalur er tilkomumikill og hrífandi í senn hið innra, girtur hamrafjöllum á þrjá vegu, Þórnýjartindi að austan, Skálatind að vestan, en Eilífstindi fyrir botni dalsins.
Við höldum fram hjá bænum Eilífsdal, og þegar Miðdalur, Tindastaðir og Mórastaðir eru að baki, komum við til Kiðafells, landnámsjarðar Svartkels hins katneska. Ef við hefðum ekki beygt til vinstri og ekið eftir Eyrarfjallsvegi, hefði leið okkar legið áfram eftir þjóðbrautinni, eins og vaninn er að fara, þegar haldið er til Reykjavíkur. Leiðin liggur þá út með Eyrarfjalli og framhjá bænum Eyri. Til hægri sjáum við Hvalfjarðareyrina, langa og flata, en þaðan liggur sæsímastrengurinn yfir í Katanes á Hvalfjarðarströnd. Á sínum tíma var rætt um að gera þaðan bílferjustað yfir Hvalfjörð, og var nokkur undirbúningur hafinn að því, en ekkert varð meira úr framkvæmdum.

Írafell

Írafell.

Við höldum fram hjá bænum Kiðafelli, förum yfir Kiðafellsá og sjáum brátt niður að Hjarðarnesi.
Nú erum við komin á Kjalarnesið, en svo heitir nesið milli Kollafjarðar og Hvalfjarðar. Vegurinn liggur um Tíðaskarð, sem svo er nefnt, og brátt opnast okkur mikilfengleg sýn suður um Seltjarnarnes og Faxaflóa.
Þjóðvegurinn liggur fram hjá heimavistarskólanum á Klébergi, og litlu sunnar er félagsheimilið Fólkvangur. Gegnt Fólkvangi er bærinn Vallá, en þaðan var Benedikt Magnússon, sá er stofnsetti steypustöðina B.M. Vallá. Hofsvík heitir víkin fram undan Fólkvangi.
Kollafjörður
Brátt komum við á steyptabraut og ökum eftir henni framhjá Mógilsá, þar sem Skógrækt ríkisins hefur reist rannsóknarstöð skógræktar fyrir þjóðargjöf Norðmanna. Þar er kalknáma, sem um skeið var unnin, og einnig fannst þar vottur gulls, en því miður ekki nógu mikið. Kalkið, sem unnið var við Mógilsá, var flutt til Reykjavíkur og brennt þar. Heitir Kalkofnsvegur, þar sem brennslan fór fram.
Mógilsá
Bærinn Kollafjörður stendur skammt frá Mógilsá og þar hefur ríkið sett upp fiskeldisstöð. Í Kollafirði bjó Kolbeinn Högnason, alþýðuskáld, landskunnur fyrir snjallar lausavísur og ferskeytlur. Fjörðurinn allur milli Seltjarnarness og Kjalarness heitir Kollafjörður, og á honum eru eyjarnar, Viðey, Engey, Akurey, Þerney og Lundey.
Við höldum fram hjá byggingum kaupfélags Kjalarnesþings, og til hægri blasir við okkur Leiruvogurinn.
Brátt sér heim að Hulduhólum, íbúðarhúsi Sverris Haraldssonar, listmálara , en í túninu framan við hús sitt hefur listamaðurinn komið nokkrum verka sinna fyrir. Lágafell er á vinstri hönd, en þar er kirkja og fagurt íbúðarhús, sem Thor Jensen reisti. Effersöeættin færeyska á rætur sínar að rekja til Lágafells. Þaðan var og ættaður Oddgeir Stephensen, sem meðal annars gegndi starfi forstöðumanns íslenzku stjórnarskrifstofunnar í Kaupmannahöfn. Hlíðartún nefnist lítið þorp í Lágafellslandi. Þar er vistheimili fyrir vangefin börn. Leið okkar liggur nú með Úlfarsfelli á vinstri hönd, en til hægri sjáum við heim að Blikastöðum, miklu stórbýli í Mosfellssveit.”

Heimild:
-Tíminn; Nokkur orð um Kjósarsýslu, Hvað ætlar þú að sjá af landinu þínu?, 222 tbl. 03.10.1976, bls. 16-17.
Kjós

Kjós

Í Degi, Íslendingaþáttum, árið 1998, er fjallað um “Morðóðan og ófróman bónda á Frossá í Kjós.

Morðóður og ófrómur bóndi á Frossá

Reynivallaháls

Kjós.

Axlar-Björn er einn frægasti morðingi Íslandssögunnar. Oxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi var í alfaraleið og urðu ferðamenn fegnir að fá gistingu í bænum. Björn réði þeim þá bana og rændi þeim verðmætum sem þeir höfðu meðferðis.
Sagt er að 19 manns hafi verið vegnir í rúmum Axlarbónda, sem tekinn var, dæmdur og höggvinn fyrir ódæði sín. En Axlar-Björn var ekki sá eini sem lagðist á ferðamenn með þessum hætti. Magnús Sighvatsson, sem bjó á Fossá í Kjós á árabilinu 1729-1770, var sterklega grunaður um að myrða og ræna ferðamenn sem leið áttu um hlöð hans.
Örnefnið Dauðsmannsbrekka á Reynivallahálsi í Kjós dregur nafn sitt af þeim atburði að þar hafi maður verið myrtur og sögn er til um að þar hafi Magnús á Fossá átt hlut að máli. Magnús var ættaður af þessum slóðum. Faðir hans Sighvatur Halldórsson var frá Meðalfelli, en móðir hans Kristín Erlingsdóttir frá Esjubergi á Kjalarnesi. Var Magnús fæddur á Hurðarbaki í Kjós árið 1704.

Morð í Dauðsmannsbrekku

Kjós

Kjós – Dauðsmannsbrekka of Fossá.

Magnús Sighvatsson var forn í skapi og talinn fjölkunnugur. Hann var illa þokkaður meðal nábúa sinna og þorðu fáir á hann að leita. Honum er svo lýst, að hann hafi verið mikill og sterkur og illur viðureignar ef því var að skipta. Þessa lýsingu á Magnúsi skráði Jósafat ættfræðingur Jónasson, en hann ritaði eftir sögnum á Hvalfjarðarströnd. Hann var vel efnum búinn og héldu sumir að auður hans væri miður vel fenginn.
Sagt er að maður nokkur norðlenskur hafi verið sendur suður í Reykjavík, sumir segja suður að Bessastöðum á Álftanesi, og hafði hann allmikla peninga meðferðis. Maður þessi gisti á Fossá hjá Magnúsi á suðurleið og er ekki annars getið en að allvel hafi farið á með þeim meðan heimafólk vissi til. Snemma morguns lagði ferðamaður af stað eins og leið lá yfir hálsinn suður af Fossá, en er hann var skammt kominn verður hann þess var, að tveir menn veita honum eftirför. Þekkir hann þar Magnús bónda á Fossá og Eyjólf son hans. Man hann þá eftir að hafa heyrt ýmsar misjafnar sögur af Magnúsi og kemur í hug að hér muni ekki allt með felldu.

Kjós

Kjós – Reynivallaháls.

Leitar hann nú undan suður á hálsinn, en þeir á eftir og létta eigi fyrr en þeir ná honum í brekku einni þar í hálsinum, skammt frá veginum er liggur niður frá Fossá suður að Reynivöllum. Taka þeir feðgar þegar til hans og biðja hann að afhanda sér peninga þá er hann hafði meðferðis. Norðlendingurinn tekur því fjarri og réðust þeir feðgar þá þegar á hann, og var viðureigna þeirra bæði hörð og löng, því Norðlendingurinn hafði krafta í kögglum. Er svo skýrt frá að Magnús hafi látið Eyjólf son sinn ganga aftan að manninum og hafi Eyjólfur lagt hnífi milli herða honum, meðan Magnús glímdi við hann að framan.
Er það haft eftir manni er Guðmundur hét og bjó á Hálsi í Kjós, og reið þar skammt frá þeim suður yfir hálsinn þennan sama dag, og að hann hafi séð viðureign þeirra, en treystist ekki til að hjálpa þeim ókunna manni, þótt hann sæi dauða hans þegar vísan. Er jafnvel sagt að Norðlendingurinn hafi kallað til Guðmundar og beðið hann hjálpar, en Guðmundur sá það síðast til, að þeir feðgar höfðu kominn manninum á hné og mæddi hann þá mjög blóðrás, svo að vörn hans var á þrotum. Þeir feðgar veittu honum þá þegar tilræði með hnífnum.

Sönnunargögn skorti

Kjós
En það er af Guðmundi að segja að hann tók svo nærri sér að geta ekki bjargað manninum, að hann lagðist þegar í rúmið þegar hann kom heim og varð hann aldrei síðan samur og áður á meðan hann lifði. Einkum sótti á hann sinnisveiki og ætluðu menn að orsökin var að hann skyldi hlaupast frá þegar voðaverkið var framið.
Þegar sama dag og morðið var framið var mannsins leitað og fannst hann eftir tilvísun Guðmundar í brekku þeirri, er síðan er kölluð Dauðsmannsbrekka.
Aldrei sannaðist þetta verk til fulls upp á Magnús, enda er sagt að ekki hafi verið gerður að því neinn reki. Guðmundur vildi og mjög lítið um þetta tala og aldrei gat hann þess í votta viðurvist, og er sagt að bæði hann og aðrir nábúar hans, er líka höfðu grun um hver valdið hafi, hafi dulið það mest fyrir ótta sakir, því þeir vissu að Magnús var bæði fjölkunnugur og í öllu hinn versti viðureignar.
Guðmundur sá er hér er fjallað um var Þórðarson. Hann var fæddur 1725 og dó 1798. Hann bjó á Neðra-Hálsi og þótti merkisbóndi. Hann var faðir Lofts hreppstjóra á Hálsi og Þorsteins stúdents í Laxnesi í Mosfellssveit. Fjölmenn ætt er komin frá Guðmundi.

Prestur marinn til dauða

Kjós

Kjós – Svínaskarð.

Margar eru fleiri sagnirnar um Magnús á Fossá og þótti hann jafnan hinn mesti misindismaður og menn þóttust vissir um að hann hefði oftar orðið ferðamönnum að fjörtjóni.
Einar Torfason var prestur á Reynivöllum 1747 -1758. Hann dó snögglega í Svínaskarði er hann reið á eftir lest sinni og sonur hans fór með yfir skarðið nokkru fyrr. Fannst Einar þar fallinn af hestinum og marinn til dauða, með annan fótinn fastan í ístaðinum. Hugðu flestir að dauða hans hafi borið að af manna völdum og var Magnús á Fossá grunaður um verknaðinn, því menn þóttust áður vita að óvild var á milli þeirra, en hvað þeim hafi orðið að sundurþykkju er ekki frá greint.

Féll á eigin bragði

Kjós

Á Reynivallahálsi.

Þess er getið að maður nokkur var sendur úr Borgarfirði suður til Reykjavíkur og var erindi hans að sækja peninga til einhvers í Reykjavík. Það var um vetur og var hjarn yfir allt. Maður þessi gisti á Fossá hjá Magnúsi bónda og var honum vel tekið, svo að hann þóttist hvergi á leið sinni hafa fengið jafngóðar viðtektir og var Magnús honum þó ókunnur með öllu.
Að morgni er Borgfirðingurinn fer af stað fylgir Magnús honum á veg og verður þeim allhjaldrjúgt, og kemur þar niður tal þeirra, að Magnús spyr ferðamann um erindi hans til Reykjavíkur. Borgfirðingurinn grunaði ekki að brögð væru í tafli og segir honum allt hið ljósasta um erindi sín. Áður en þeir kveðjast býður Magnús honum að koma við hjá sér á bakaleið og segir sér forvitni á fréttum að sunnan. Heitir hinn þessu og heldur síðan sína leið.
Ekki er sagt af ferðum hans fyrr en hann hefur lokið erindum sínum og fer hann þá sömu leið til baka og gistir á bæ einum í Mosfellssveit. Bóndi spyr hann hvort hann hafi komið að Fossá til Magnúsar og segir Borgfirðingurinn honum allt um samtal þeirra, því að hann var kunnugur bónda. Bóndi varð hljóður við og ráðleggur sendimanni að fara aðra leið, þar sem Magnús verði hans ekki var og segir honum að ef Magnús nái fundi hans, muni tvísýnt um hvort hann komist heill á leiðarenda.

Kjós

Kjós – Fossá og Reynivallaháls.

Borgfirðingurinn féllst á ráð hans og fer þó yfir Reynivallaháls, en nokkuð frá almannavegi, eða að minnssta kosti annan veg en hann hafði áður farið og ætlar ekki að koma við á Fossá. Magnús fær grun af þessari ætlun hans og hefur spurn af för hans og situr fyrir honum, þar sem honum þótti líklegast að leið hans mundi liggja og þar hittast þeir á Reynivallahálsi. Magnús spyr sendimann þegar, hvers vegna hann hafi ætlað að forðast bæ sinn. En hinn segist hafa álitið þessa leið beinni, enda hafi hann verið búinn að vera lengur á ferðinni en hann hafi búist við. Hafi hann og frétt að Magnús væri ekki heima. Magnús gefur þessu engan gaum og ræðst þegar á manninn og segist ekki munu láta hann fara án þess að hafa gefið honum ráðningu fyrir að hafa brugðið loforði sínu og skuli hann ekki gera það fleirum. Hinn tekur sterklega á móti og kveðst vilja fara ferða sinna óhindraður af Magnúsi, þar sem hann hafi ekkert til saka unnið. Glíma þeir ekki lengi áður en þar kennir aflsmunar, svo að Magnús varð að bíða lægri hlut í viðskiptum þeirra, og gekk hinn svo frá Magnúsi, að hann komst nauðulega heim til sín, lagðist og dó skömmu síðar. Hörmuðu hann fár er hann þekktu.
Ýmsar sögur eru um að Magnús hafi gengið aftur og gert skráveifur og að illa hafi hann legið kyrr í kirkjugarðinum á Reynivöllum. En [þær] draugasögur verða ekki tíundaðar hér.

Illmennska í arf

Kjós

Kjós.

Magnús á Fossá var enn á lífi 1772 en dáinn er hann fyrir 1780. Kona hans hét Þuríður Magnúsdóttir og var hún enn á lífi 1780. Þau áttu mörg börn en mestar sögur fara af Eyjólfi syni þeirra, sem var líkur föður sínum í flestu, gáfaður og vel að sér sem hann, en hið mesta illmenni og ekki frómur. Eyjólfur bjó á Fossá fyrstu búskaparár sín eftir lát föður síns. Þá grunaði menn að hann væri valdur að hvarfi nokkurra kinda sem hurfu frá einum eða fleiri nágrönnum hans. Hann frétti að gera ætti þjófaleit á bænum. Lét hann hið stolna fé þá í gryfju eina dimma er var undir baðstofugólfi á Fossá, og var ekki hægt að sjá það nema taka upp gólffjalirnar. Til þess að ekki heyrðist jarmur kindanna, tók hann það ráð að skera úr þeim tungurnar. Má af því marka innræti hans og hefur honum þar svipað til föður síns. Þó að hið stolna fé fyndist ekki að þessu sinni hjá Eyjólfi, höfðu menn þó stöðugt grun á honum, enda komst síðar upp, að grunurinn var ekki ástæðulaus og er sagt að Eyjólfur hafi verið dæmdur fyrir sauðaþjófnað.

Heimild:
-Dagur – Íslendingaþættir; Morðóður og ófrómur bóndi á Frossá, 29.08.1998, bls. 1-2.

Gíslagata

Dys í Dauðsmannsbrekku á Reynivallahálsi.

Steðji

Á Vísindavef Háskóla Íslands er m.a. fjallað um Kjós og nokkra staði þar innan marka í svörum við spurningum þess efnis. Taka ber þó svörunum með hæfilegum fyrirvara.

Yfir hverju þarf landsvæði að búa til að það sé kallað Kjós?
Upprunlega hljóðaði spurningin svona:

Kjósarhreppur

Í Hvalfirði er landsvæði sem heitir Kjós. Nálægt Skaftafelli, inn af Morsárdal er líka landsvæði sem heitir Kjós. Spurningin er hvað gerir landsvæði að Kjós? Yfir hverju þarf landsvæði að búa til að það sé kallað Kjós?
Orðið kjós merkti í fornu máli ‚þröng vík‘ en merkir nú ‘kvos, dalur eða dæld’ (Íslensk orðabók, 778; Ásgeir Blöndal Magnússon, 468).
Í Troms og víðar í Norður-Noregi merkir orðið kjos ‘þröngur dalur’ eða ‘laut’ (Norsk stadnamnleksikon, 183).
Auk Kjósar í Kjósarsýslu og í Skaftafellssýslu kemur nafnliðurinn meðal annars fyrir í örnefnum á Snæfellsnesi, í Norður-Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu (Íslandsatlas).

Heimildir:
-Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók. Reykjavík 1989.
-Íslandsatlas. Fimmta prentun endurskoðuð. Reykjavík 2015.
-Íslensk orðabók. Þriðja útgáfa, aukin og endurbætt. Ritstjóri: Mörður Árnason. 3. prentun. Reykjavík 2005.
-Norsk stadnamnleksikon. Jørn Sandnes og Ola Stemshaug (útg.). Oslo 1976.

Af hverju heitir Írafell í Kjós þessu nafni og hvað er sá bær gamall?
Írafell er þekkt á nokkrum stöðum á Íslandi, meðal annars í Kjós þar sem bæði fell og bær bera þetta nafn. Bærinn er þekktur í rituðum heimildum allt frá 16. öld en nafn hans kemur fyrst fyrir í fógetareikningum frá 1547-1548 (Íslenskt fornbréfasafn XII:107 og víðar).

Írafell

Írafell.

Í 18. aldar heimildum er getið um Írafell á Reykjanesi í Gullbringusýslu en það er ekki þekkt nú. Auk þess eru nefnd þrjú Írafell á Snæfellsnesi: eitt á Hellisvöllum (Hellnum) í Breiðuvíkurhreppi (nú slétt flöt, samkvæmt örnefnalýsingu), annað í Helgafellssveit og það þriðja suðvestur af Drápuhlíðarfjalli.
Í Skagafirði er bær sem oft er nefndur Írafell en samkvæmt Landnámabók og fleiri heimildum er upphaflega nafn hans Ýrarfell (Byggðasaga Skagafjarðar III (2004), bls. 410 og áfram).
Ekki er vitað hve gamalt bæjarnafnið Írafell í Kjós er né heldur hvort það er kennt við þá Íra sem taldir eru hafa verið hér við upphaf landnáms eða Íra sem hingað komu í verslunarerindum á 15. öld. Hermann Pálsson fjallaði um Íra-örnefni í grein í Skírni 1953 (bls. 105-111) en hann ræðir ekki Írafell sérstaklega.

Írafellssel II

Írafellssel II – uppdráttur ÓSÁ.

Helgi Guðmundsson fjallar um örnefni kennd við Íra, Breta og Pétta1 í bók sinni, Um haf innan (1997, bls. 198-199). Þar nefnir hann meðal annars að á Katanesi í Skotlandi sé fjall með keltnesku nafni, Cnoc an Eireannaich, sem merki ‘Írafell’, en hann telur annars óvíst hvernig eigi að túlka örnefni þau á Íslandi sem kennd séu við erlendar þjóðir (199).
Péttar (e. Picts) voru þjóðflokkur, sem var ef til vill ekki keltneskur að uppruna en bjó á Bretlandseyjum og átti í sífelldum útistöðum við Rómverja. Á níundu öld eða svo runnu þeir saman við Skota.

Hvernig myndaðist Meðalfellsvatn í Kjós?
Stöðuvötn eru vatnsfylltar dældir sem ná niður fyrir grunnvatnsflöt eða myndast þar sem einhver þröskuldur girðir fyrir vatnsrennsli á yfirborði eða grunnvatnsrennsli. Jöklar hafa leikið stórt hlutverk við myndun stöðuvatna á Íslandi og má skipta jökulmynduðum vötnum í nokkra flokka. Nánar er fjallað um myndun stöðuvatna í svari við spurningunni Hver eru dýpstu stöðuvötn á Íslandi? og um jökulrof í svari við spurningunni Hvað er jökulrof? Hvernig verður jökulrof og landmótun jökla á Íslandi?

Meðalfellsvatn

Við Meðalfellsvatn í Kjós.

Langflest íslensk stöðuvötn í jökulsorfnum dældum. Dældirnar hafa myndast þegar ísaldarjökullinn heflaði landið, misdjúpt eftir þykkt jökulsins á hverjum stað og styrk undirlagsins. Eftir stóð mishæðótt landslag með dældum sem fylltust af vatni.
Að öllum líkindum er Meðalfellsvatn í Kjós dæmi um stöðuvatn í jökulsorfinni dæld og þá myndast eins og hér hefur verið lýst.
Meðalfellsvatn er 2 km2 að flatarmáli. Mesta dýpi vatnsins er tæplega 19 m og meðaldýpi er 4,4 m. Dýpsti hluti þess er í því austanverðu en meginhluti þess er tiltölulega grunnur (2 – 4 m). Vatnasvið Meðalfellsvatns er um 39 km2 . Í það sunnanvert renna smáárnar Flekkudalsá með upptök í Flekkudal í norðanverðri Esju og Sandsá með upptök í norðanverðum Móskarðshnjúkum. Úr Meðalfellsvatni norðvestanverðu fellur áin Bugða sem rennur í Laxá.
Í Meðalfellsvatni er töluvert af bleikju og einnig er þar að finna urriða. Auk þess veiðast í vatninu nokkrir laxar árleg.

Heimildir:
-Flokkun vatna á Kjósarsvæði – Meðalfellsvatn. Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis og Háskólasetrið í Hveragerði. 2004.
-Meðalfellsvatn á NAT Norðurferðir. Sótt 6. 3. 2008.

Hvernig myndaðist Esjan?
Esjan og berggrunnurinn undir Reykjavík, Mosfellssveit og Kjós myndaðist í gosbeltinu sem nú liggur frá Reykjanestá um Þingvallasveit og norður í Langjökul. Í Esju, á svæðinu frá Hvalfirði og austur fyrir Skálafell í Kjalarneshreppi, var eldvirknin stöðug í rúmlega eina milljón ára frá því fyrir um 2,8 milljón árum. Á þessum tíma voru að minnsta kosti 10 jökulskeið með hlýskeiðum á milli.
Esja
Esjan myndaðist vestan til í gosbeltinu og ýttist smám saman frá því til vesturs. Rekhraðinn til vesturs frá flekaskilunum, sem nú liggja um Þingvallasveit, hefur um milljónir ára verið um einn cm á ári, enda stendur heima að vesturendi Esju er um 30 km norðvestan við vestustu virku sprungurnar (gjárnar) á Þingvöllum og í Hengli. Á sama tíma og berggrunnurinn undir Reykjavík, Mosfellssveit og Kjós var að myndast vestan til í gosbeltinu var berggrunnurinn undir Selfossi og Hreppum að myndast austan til í því. Auðvelt er að fá nútímasamlíkingu á Reykjanesskaga með því að hugsa sér að berggrunnurinn undir Reykjavík sé að myndast í Trölladyngju og Sveifluhálsi vestan við Kleifarvatn, og berggrunnurinn undir Selfossi framtíðarinnar sé að myndast í eldstöðvum milli Kleifarvatns og Herdísarvíkur.
Esja
Fyrir tæpum þremur milljón árum var vestasti hluti Esju í vesturjaðri virka gosbeltisins (sem nú liggur um Þingvallasveit). Þetta virka gosbelti teygði sig til norðausturs meðfram Hvalfirði en til suðvesturs yfir Sundin og Vesturbæinn. Á þeim tíma voru þó hvorki Sundin né Hvalfjörður til. Samfellt fjalllendi náði frá hálendinu og miklu lengra í sjó fram en nes og eyjar við innanverðan Faxaflóa nú. Þá var stórt eldfjall í Sundunum, en gjástykki teygðust til norðurs um Kjós og suður yfir Mela. Margt bendir til að stór askja hafi myndast í þessari megineldstöð, Kjalarneseldstöðinni, og mikill fjöldi innskota myndaðist í henni. Stærstu innskotin má nú sjá á yfirborði í Viðey, yst á Kjalarnesi og milli Skrauthóla og Mógilsár.
Gosvirknin færðist smám saman austar, Kjalarnesmegineldstöðin þokaðist til vesturs út úr gosbeltinu en gosvirknin varð mest þar sem Kistufell í Esju er nú. Þá fengu jarðlögin neðst í Kistufelli sinn mikla halla. En ekki leið á löngu þar til gosvirknin var komin austur fyrir Grafardal. Þar myndaðist stórt og myndarlegt eldfjall, Stardalsmegineldstöðin. Í þeirri eldstöð myndaðist askja álíka stór og Kröfluaskjan. Í henni safnaðist vatn, svipað og síðar gerðist í Öskju í Dyngjufjöllum, en askjan fylltist síðan af gosefnum. Þunnfljótandi hraunlög runnu langt vestur úr virka gosbeltinu og mynduðu hinn reglulega hraunlagabunka, sem nú myndar topp Esjunnar allt frá Skálafelli vestur undir Hvalfjörð. Æviskeiði megineldstöðvarinnar í Stardal lauk með líparítgosum undir jökli á bogasprungum umhverfis öskjuna. Glæsilegustu menjar þeirra eldsumbrota eru Móskarðshnúkar, en aldursgreiningar benda til að líparítið í þeim sé um 1,8 milljón ára gamalt.
Eldvirkni færðist enn til austurs, eða öllu heldur megineldstöðina rak vestur úr gosbeltinu og upphleðslu jarðlaga lauk í Esju, Kjós og byggðum hluta Mosfellssveitar. Samfellt fjalllendi náði frá Akrafjalli og Skarðsheiði austur yfir Esju og fellin í Mosfellssveit. Yfir Sundunum og Reykjavík lá meira en þúsund metra þykkur stafli af hraunlögum og móbergi.
Í rúmlega milljón ár eftir að Móskarðshnúkar mynduðust skófu ísaldarjöklar fjalllendið og skáru út það landslag, sem við sjáum í dag. Ekki er vitað um eldvirkni á svæðinu þennan tíma. Esja
Ekki er heldur vitað um fjölda jökulskeiða á þessu tímabili, en margt bendir til að jökulskeið gangi yfir Ísland á um hundrað þúsund ára fresti.
Fyrir þrjú til fimm hundruð þúsund árum varð eldgos undir jökli í Mosfellssveit og þá myndaðist Mosfell. Þá voru dalir Esju svipaðir og í dag og fellin í Mosfellssveit einnig. Á næstu hlýskeiðum runnu þunnfljótandi hraun úr grágrýtisdyngjum í jaðri virka gosbeltisins vestur yfir hið rofna land, þöktu mikið af láglendinu og runnu í sjó fram. Hraunstraumarnir runnu milli Mosfells og Esju, milli Úlfarsfells og Hafrahlíðar, en einkum þó vestur yfir láglendið sunnan Úlfarsfells. Þessi grágrýtishraun mynda Brimnes á Kjalarnesi, yfirborð eyjanna á Sundunum svo og flest klapparholt á höfuðborgarsvæðinu svo sem Grafarholt, Breiðholt, Öskjuhlíð, Valhúsahæð, Digranesháls, Hamarinn í Hafnarfirði og Hvaleyrarholt. Upptök grágrýtishraunanna eru fæst þekkt, en meðal þeirra hafa þó verið Borgarhólar, Lyklafell og Eiturhóll á Mosfellsheiði.
Nánari upplýsingar er að finna í Árbók Ferðafélags Íslands 1985 í grein eftir Ingvar Birgi Friðleifsson. „Jarðsaga Esju og nágrennis“, bls. 141-172.

Hvað þýðir nafnið Esja?
Bærinn Esjuberg á Kjalarnesi er nefndur á nokkrum stöðum í Landnámu án þess að vikið sé að skýringu á nafninu. Þar bjó Örlygur Hrappsson sem kom til landsins frá Suðureyjum og settist að á Kjalarnesi.

Esja

Esja – örnefni.

Í Kjalnesingasögu er sagt frá því að írskir menn hafi komið á skipi í Leiruvog í Kollafirði. Meðal þeirra var kona, Esja að nafni, og var hún sögð ekkja og mjög auðug. Hún tók við bæ Örlygs og bjó að Esjubergi. Fjallsnafnið er þar ekki nefnt.
Vegna þessara sagna hefur sú tilgáta komið fram (W. Craigie) að nafnið Esja sé af keltneskum uppruna, dregið af Ésa eða Essa (sjá Hermann Pálsson: Keltar á Íslandi. Reykjavík 1996:170).
Flestir hafna þó þessari skýringu og telja að kvenmannsnafnið sé til orðið á eftir bæjarnafninu og fjallsheitinu. Helgi Guðmundsson (Um haf innan 1997:193-94) hefur bent á að í Lewis (Ljóðhúsum) í Suðureyjum séu varðveitt norræn örnefni í gelísku sem komi heim og saman við röð örnefna frá Akranesi og suður í Kollafjörð. Meðal þeirra er Esjufjall. Hugsanlega hafa örnefnin verið gefin um sama leyti á báðum stöðum og flust með norrænum mönnum vestur á bóginn.
Líklegasta skýringin á Esja er því sú að um norrænt nafn sé að ræða. Ásgeir Blöndal Magnússon (Íslensk orðsifjabók 1989:157) bendir á að í eldra máli hafi verið til orðið esja í merkingunni ‘flögusteinn, tálgusteinn’. Í norsku er til esje í sömu merkingu. Af sama uppruna eru norska orðið esje í merkingunni ‘eimyrja’, sænska orðið ässja í sömu merkingu en einnig í merkingunni ‘smiðjuafl’ og síðastnefnda merkingin kemur fram í danska orðinu esse ‘smiðjuafl’. Ásgeir Blöndal telur upphaflega merkingu orðsins esja í íslensku vera ‘eldstæði’ og ‘steintegund höfð til eldstæðis- og ofngerðar’. Fjallsnafnið væri þá af sama stofni.

Hver er uppruni örnefnisins Skálafell og gæti verið að upphaflega hafi það heitið Skálarfell eða Skaflafjell?
Fyrirspyrjandi nefnir ekki hvaða fell hann á við en Skálafell eru tvö í nágrenni Reykjavíkur:
Austan Esju, inn af Mosfellsdal í Kjósarsýslu (774 m).
Upp af Hellisheiði, suðaustur af Hveradölum (574 m).

Skálafell

Skálafell – Stardalur fremst.

Landnámabók segir að Ingólfur Arnarson hafi látið gera skála á Skálafelli (Íslenzk fornrit I, 45) og mun þá átt við Skálafell sunnan Hellisheiðar. Hins vegar segir Kristian Kålund í sögustaðalýsingu sinni að sagnir séu um að Ingólfur hafi haft skála (fjárskála) á Skálafelli austan Esju (Kålund I, 43). Jónas Magnússon í Stardal segir í örnefnaskrá að fellið í Kjós „ætti betur við söguna af Ingólfi Arnarsyni en Skálafell upp af Kömbum, því að Þingvallavatn blasir við af þessu felli.“
Líklega er nafnið á fjallinu austan Esju upphaflega *Skálarfell, af áberandi skál í fjallinu. Þó er önnur skál minni í austurenda fjallsins og gæti því nafnið hafa verið Skálafell í upphafi, segir Egill J. Stardal, sonur Jónasar í Stardal í Árbók Ferðafélagsins 1985, 122-123.
Ekki er líklegt að upphaflega nafnið hafi verið Skaflafjell eða Skavlfjell. Þórhallur Vilmundarson segir að Skálafell sunnan Hellisheiðar minni á húsburst séð úr Ölfusi og gæti því verið líkingarnafn (Grímnir I, 128).

Heimildir:
-Ferðafélag Íslands. Árbók 1985. Rvk. 1985.
-Grímnir I. Rvk. 1980.
-Kristian Kålund. Íslenzkir sögustaðir I. Sunnlendingafjórðungur. Íslenzk þýðing: Haraldur Matthíasson. Rvk. 1984.
-Landnámabók. Íslenzk fornrit. I. Rvk. 1968.

Heimild:
-https://www.visindavefur.is/search/?q=Kj%C3%B3s

Skálafell

Tóft í Skálafelli.

Hvítanes

Hvítanes í sunnanverðum Hvalfirði er merkilegur staður, ekki síst vegna mikilla stríðsminja, sem þar eru.
Friðþór Eydal skrifaði um hernámið og hersetuna í Fréttablaðið 9. maí 2020. Þar minnist hann t.d. á Hvítanes.

Satt og logið um hernámið og hersetuna

Friðþór Eydal

Friðþór Eydal.

“Friðþór Eydal hefur rannsakað umsvif erlendra herja á Íslandi, meðal annars í skjalasöfnum þeirra. Margt reynist ekki eins og almannarómur hafði fyrir satt og Friðþór varpar ljósi á staðreyndirnar.
Bretar hernámu Ísland 10. maí 1940 til þess að hindra að Þjóðverjar kæmu sér upp flug- og flotabækistöðvum í landinu sem ógnað gætu Bretlandseyjum og skipaleiðum á Norður-Atlantshafi.
Stuttur aðdragandi var að þessum sögufræga atburði en þýskir herir gerðu innrás í Noreg mánuði fyrr og brutu á nokkrum vikum á bak aftur mótspyrnu norska hersins og breskra og franskra hersveita sem sendar höfðu verið til aðstoðar.
Sumt af breska herliðinu sem hrökklaðist frá Noregi kom til Íslands ásamt öðrum liðsauka í júnímánuði og hóf varnarviðbúnað. Skortur á herafla varð til þess að Kanadastjórn lagði til eitt stórfylki með tæplega 2.700 mönnum til Íslandsdvalar sumarið 1940. Sigldu flestir þeirra áfram til Bretlands um haustið þegar breskur liðsauki barst til landsins. Herafli Breta náði hámarki árið 1941 þegar um 28.000 liðsmenn landhers, flughers og flota dvöldu í landinu.

Til verndar skipaleiðinni
Bandaríkin voru hlutlaus í styrjöldinni til ársloka 1941 en allmikils stuðnings gætti þar við málstað Breta. Ríkisstjórn Roosevelts Bandaríkjaforseta fann leið til þess að létta undir með því að lána og leigja Bretum margvíslegan herbúnað sem þeir sóttu í bandarískar hafnir. Mikil hætta steðjaði þó að siglingunum og hugkvæmdist forsetanum að senda bandarískt herlið til Íslands og láta Bandaríkjaflota þar með veita herskipavernd á siglingaleiðum austur á mitt Atlantshaf. Sömdu ríkisstjórnir Íslands, Bretlands og Bandaríkjanna um það sumarið 1941 að bandarískt herlið skyldi taka við vörnum landsins og leysa breska hernámsliðið smám saman af hólmi.
Hernámi Breta lauk formlega 22. apríl 1942 þegar meginliðsstyrkur þeirra hvarf heimleiðis, en breski flotinn og flugherinn, sem léku aðalhlutverk í baráttunni við þýska flotann á norðaustanverðu Atlantshafi, starfaði áfram í landinu með Bandaríkjaher þar til eftir stríðslok.

Hvalfjörður lék stórt hlutverk

Hernámið

Hernámið. Bandaríkjamenn mæta til leiks.

Bandamenn höfðu mikinn viðbúnað til þess að hefta siglingar þýskra herskipa og kafbáta og verja skipaleiðir á Atlantshafi. Varnir landsins miðuðust fyrst og fremst við svæði þar sem voru hafnir, eða aðstaða til flugvallagerðar og starfsemi sjóflugvéla með vegartengingu við aðra landshluta, svo sem á Suðvesturlandi, við Húnaflóa, Eyjafjörð og á Austurlandi.
Viðbúnaður var mestur á höfuðborgarsvæðinu, en Reykjavíkurhöfn var lykillinn að liðs- og birgðaflutningum til landsins. Umsvifin voru í meðallagi á Norðurlandi og fremur lítil á Austurlandi, enda vegatengingar við þá landshluta fremur frumstæðar. Bretar lögðu flugvelli í Kaldaðarnesi og Reykjavík en Bandaríkjamenn reistu stóra flugbækistöð við Keflavík, sem lék stórt hlutverk í miklum loftflutningum þeirra til Bretlands.
Eftirlitsskip og fylgdarskip skipalesta höfðu aðstöðu í Hvalfirði og áðu einnig í Seyðisfirði. Hvalfjörður lék stórt hlutverk í siglingum skipalesta með hergögn og birgðir frá Bretlandi og Bandaríkjunum til sovéskra hafna á Kólaskaga og við Hvítahaf er mest reið á, 1941 og 1942.
Heildarheraflinn í landinu var nærri 50.000 þegar mest var, sumarið 1943, og hafði um 80 prósent hans aðsetur á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturlandi. Landsmenn sjálfir voru einungis um 120.000 í upphafi hernámsins og íbúar Reykjavíkur um 40.000.

Kærkomin umskipti

Hernámið

Hernámið.

Þótt þröngt væri á þingi tókst sambúð landsmanna við hina framandi gesti furðu vel. Í árslok 1942 var ekki lengur talin hætta á innrás Þjóðverja og sumarið eftir var stór hluti bandaríska herliðsins fluttur til Bretlands til þjálfunar fyrir innrásina á meginland Evrópu. Nýr og miklu fámennari liðsafli kom þá til landsins en hélt að mestu sömu leið árið 1944.
Flestir bresku og bandarísku hermennirnir sem eftir sátu í stríðslok störfuðu á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli og hurfu þeir síðustu til síns heima vorið 1947.
Síðari heimsstyrjöldinni hefur verið lýst sem mesta umbrotatíma í sögu Íslendinga. Markaðir opnuðust í Bretlandi og Bandaríkjunum fyrir flestar útflutningsafurðir á margföldu verði og hleypti það, ásamt atvinnu sem skapaðist við fjölbreytt umsvif herliðsins, af stað gríðarlegum efnahagslegum uppgangi. Umskiptin voru kærkomin eftir langvarandi stöðnun og kreppu og grunnur var lagður að nútímavæðingu og velmegun þjóðarinnar.
Íslendingar voru ekki þátttakendur í hernaðinum en bækistöðvar bandamanna og aðstaða í landinu átti þátt í að flýta fyrir sigri í styrjöldinni. Landsmenn veittu mikilvægan stuðning, t.d. með sölu matvæla og annarra framleiðsluvara sem kom Bretum afar vel.
Þótt styrjöldin færði þjóðinni auðsæld og umbætur fór hún ekki varhluta af ógnum hennar. Alls fórust 151 Íslendingur af hernaðarvöldum, svo fullvíst sé talið, og skjótur efnahagsuppgangur og herseta höfðu langvarandi þjóðfélagsumrót í för með sér.
Bandamenn misstu alls nærri 900 manns hér við land og í stríðslok hvíldu 510 erlendir hermenn og sjómenn í íslenskri mold. Þar af voru rúmlega 200 Bandaríkjamenn en líkamsleifar þeirra voru síðar fluttar til heimalandsins.

Bábiljurnar leiðréttar

Hernámið

Hernámið.

Hér hefur verið stiklað á stóru um helstu staðreyndir, en margvíslegar bábiljur sem snemma fengu byr undir báða vængi heyrast enn. Er því ekki úr vegi að skýra og leiðrétta ýmislegt sem misskilningi kann að valda.
Hernámi Breta lauk formlega 22. apríl 1942 og við tók umsamin hervernd Bandaríkjanna.
Herliðið tók sér í fyrstu bólfestu í fjölmörgum byggingum sem sumar stóðu auðar, en reistu síðan herbúðir víða á leigulóðum. Engin mannvirki eða lóðir voru tekin án samninga og endurgjalds til eigenda, sem miðaðist við gangverð í landinu.
Stóraukin dýrtíð olli því þó að endurgjaldið rýrnaði þegar frá leið, en fékkst að hluta bætt í gegnum skaðabótanefndir sem í sátu fulltrúar hersins og íslenskra stjórnvalda. Þeir sem fært gátu sönnur á að hafa farið halloka í viðskiptum hlutu bætur frá ríkis­sjóði að styrjöldinni lokinni.
Breska orrustuskipið HMS Hood lagði ekki upp frá Hvalfirði í sína hinstu för vorið 1941, heldur var á leið þangað frá Orkneyjum þegar því var snúið til vesturs í veg fyrir þýska orrustuskipið Bismarck. Hood var grandað um það bil miðja vegu milli Reykjaness og Hvarfs á Grænlandi en ekki skammt undan Reykjanesi. Ógerlegt er talið að sprengjudrunurnar hafi borist alla leið til Reykja­víkur.

Ofmetinn fjöldi hermanna

Hernámið

Hernámið…

Hermannafjöldi í landinu hljóp ekki á hundruðum þúsunda, eins og sumir landsmenn ályktuðu af umsvifunum sem þeir urðu vitni að, heldur fór mest í tæplega 50 þúsund.
Hernaðaryfirvöld gerðu reyndar í því að láta líta út fyrir að liðsaflinn væri miklu meiri, til þess að láta Þjóðverja halda að innrás í Noreg væri yfirvofandi frá Íslandi og Bretlandseyjum.
Heraflinn var minnstur á Austurlandi, þar sem hann fór mest í um 800 á Seyðisfirði en fluttist síðar að stórum hluta til Reyðarfjarðar. Þar náði hann hámarki rúmlega 900 í tíð breska, kanadíska og norska hersins árið 1942 og í rúmlega 1.200 eftir að Bandaríkjamenn höfðu tekið við haustið 1942, en var ekki mörg þúsund eins og gjarnan er haldið fram fyrir austan.

Íslendingar ekki þátttakendur

Hernámið

Hernámið.

Landsmenn voru ekki þátttakendur í hildarleiknum en allmargir íslenskir sjómenn sigldu á farskipum sem fluttu nauðsynjavörur til landsins og fiskiskipum með afla til sölu á mörkuðum í Bretlandi. Einnig réðust nokkrir ungir sjómenn á erlend farskip, oftast í ævintýraleit. Því miður komust ekki allir alltaf heilir heim úr þeim ferðum, en það var fremur afleiðing, heldur en þátttaka í átökunum og reyndar engin nýlunda, enda sjómennska jafnan nokkurt hættuspil.
Þjóðverjar litu á siglingar Íslendinga til Bretlands sömu augum og bandamenn á siglingar norskra og danskra skipa á hersetnum heimaslóðum sínum, það er í þágu óvinarins og eirðu engu.
Alls fórust um 410 íslenskir sjómenn og farþegar af almennum slysförum eða hernaðarvöldum á styrjaldarárunum sex, auk fjögurra sem urðu fyrir banaskotum hermanna eða sprengjubrotum. Virðist sem sú heildartala hafi snemma verið höfð ranglega til marks um fórnir Íslendinga í samanburði við aðrar þjóðir.
Til samanburðar við þá 260 sjómenn og farþega sem ekki fórust af hernaðarvöldum, svo víst sé talið, fórust samkvæmt skýrslum Slysavarnafélags Íslands að meðaltali um 200 sjómenn á þremur sex ára tímabilum á áratugnum fyrir stríð. Að teknu tilliti til mjög aukinnar sóknar og ástands skipastólsins á stríðsárunum, má því álykta að hlutfallslegur mannskaði af öllum orsökum á sjó, hafi í reynd verið lítið tíðari en áratugina á undan.

Lítinn séns í íslenskar konur

Hernám

Samskipti hernámsliðsins við Íslendinga voru óneitanlega mikil.

Erlendu hermönnunum varð alls ekki eins vel ágengt í samskiptum við íslenskar stúlkur og oft er látið í veðri vaka. „Ástandið“ svonefnda var raunar ekkert frábrugðið því sem jafnan gerðist á stöðum sem ungir vermenn hópuðust til eða í síldarplássum, þótt fjöldi aðkomumanna næði óþekktum hæðum á stríðsárunum.
Langflestir hermannanna kváðust ekki eiga neinn „séns“ í stúlkurnar, sem fæstar virtu þá viðlits.
Bandaríkjaher sem fjölmennastur var þegar á leið, lagði bann við giftingum liðsmanna sinna. Ákvörðunin var ekki einskorðuð við Ísland og byggðist á því að stjórnvöld vildu forðast að þurfa að annast framfærslu fjölskyldna sem stofnað væri til með óvissa framtíð og e.t.v. í einmanaleika fjarri heimahögum.
Allmikið er til af lýsingum á viðhorfi hermanna til landkosta eða ókosta og dvölinni í landinu almennt, en fremur lítið um viðhorf til lands­manna. Þetta stafar einfaldlega af því að sárafáir kynntust í raun, eða áttu náin samtöl við, landsmenn.
Nú gerir fólk sér vart grein fyrir hversu tungumálakunnáttan var lítil og erfiðlega gekk að eiga gagnleg samtöl þannig að fólk kynntist högum hvers annars í raun. Flest viðhorfin á báða bóga eru því byggð á því sem fólk sá úr fjarlægð, og upplifði í einhverjum tilvikum, en ekki síst á sögusögnum og getgátum sem gengu manna á milli í fásinninu, enda fréttaflutningi strangar skorður settar.

Báru hver öðrum vel söguna

Hernámið

Hernámið.

Þeir sem kynntust í raun sér um líkum, til dæmis liðsforingjar eða menntamenn, báru hverjir öðrum jafnan vel söguna og sama er að segja um þá sem áttu í viðskiptum eða bjuggu í návígi, til dæmis á smærri varðstöðvum á landsbyggðinni.
Herliðið flutti ógrynni tækja og búnaðar til landsins við uppbyggingu heraflans, til dæmis rúmlega 4.000 bifreiðar og önnur farartæki auk fjölda flugvéla, og reisti um 12.000 braggabyggingar ásamt 1.000 smærri stein- og timburhús í rúmlega 300 íbúðahverfum. Þrjú þúsund farartæki voru flutt aftur úr landi ásamt margvíslegum búnaði.
Árið 1944 samdist svo við ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna um að íslenska ríkið annaðist kaup og endursölu á öllum fasteignum og búnaði sem ekki yrði fjarlægður, til þess að tryggja innheimtu lögboðinna aðflutningsgjalda. Fékk ríkissjóður eignirnar á vægu verði en yfirtók jafnframt skuldbindingar gagnvart landeigendum. Var Sölunefnd setuliðseigna sett á fót til að annast verkið ásamt því að bæta skemmdir á landeignum fyrir ágóða af endursölu til landsmanna.

Hernám

Skjáskot úr sjónvarpsþættinum Stríðsárin á Íslandi, sem sýndur var á RÚV 1990, í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá upphafi hernáms á Íslandi.

Í allmörgum tilvikum fengu landeigendur greitt fyrir að sjá sjálfir um landlögun en heyktust sumir á því og eru það nánast einu staðirnir þar sem mannvirki eða minjar standa eftir frá hersetunni, utan flugvallanna í Reykjavík og Keflavík og olíu- og hvalstöðvarinnar í Hvalfirði, sem voru áfram í notkun.
Heyrst hefur að hermannafjöldi í Hvalfirði hafi skipt tugum þúsunda, en hið rétta er að bækistöðvar í firðinum voru fremur fáliðaðar en fjöldi sjóliða og sjómanna á skipum sem áðu þar gat auðvitað hlaupið á þúsundum, þótt fæstir fengju landgönguleyfi.
Í Hvalfirði gekk lengi sú saga að við lendingu létt­báta, skammt innan við Hvítanes, hafi verkamenn verið látnir smíða forláta tröppur fyrir komu Winstons Churchills, forsætisráðherra Breta, sem hafði viðdvöl á Íslandi eina dagstund sumarið 1941. Sagan er ólíkleg sökum þeirrar leyndar sem hvíldi yfir komunni og fullvíst er að Churchill steig alls ekki á land í Hvalfirði heldur einungis í Reykjavík.

Engir særðir hermenn að utan

Hernámið

Herspítalinn Cam Dailey á Vogastapa.

Um hríð var útbreidd sú saga að stórir herspítalar hefðu verið reistir á Íslandi fyrir hermenn sem særðust á meginlandi Evrópu eftir innrás bandamanna í Normandí sumarið 1944. Herliðið reisti reyndar braggaþyrpingar fyrir sjúkraskýli og spítala í herbúðum sínum en einungis í samræmi við fjölda hermanna í landinu hverju sinni. Liðsaflinn dróst skjótt saman árið 1943 og því ekki að undra þótt landsmenn hafi brotið heilann um tilgang svo umfangsmikilla salarkynna, sem skyndilega stóðu auð og yfirgefin.
Sömu vangaveltur eru þekktar í tengslum við bandarísku flugbækistöðina í Narsarsuaq á Grænlandi, þar sem allstór spítali reis fyrir herlið á stríðsárunum og var endurnýjaður í Kóreu­stríðinu, að sögn til líknarmeðferðar illa særðra hermanna, sem herinn vildi að leynt færi.

Draugur kveðinn niður

Hernám

Fallbyssa á verði á Valhúsahæð.

Ýmsar sögur hafa einnig gengið af reimleikum tengdum hermönnum eða hjúkrunarkonum sem látist hafi á stríðsárunum og jafnvel spítalabröggum eða efni úr þeim sem flutt var á milli landshluta.
Þekkt er saga af bandarískri hjúkrunarkonu, ungri og myndarlegri, sem sögð er hafa látist í bifreiðaslysi í Mosfellssveit og gengið aftur á þeim slóðum. Dauðsföll í röðum herliðsins eru vel skilgreind í heimildum hernaðaryfirvalda og sýna að engin hjúkrunarkona hersins lést á Íslandi á stríðsárunum.
Ekki verða bornar brigður á frásagnir fólks af reimleikum en helst er að ætla að afturgengna hjúkrunarkonan unga og myndarlega hafi ef til vill ekki verið öll þar sem hún var séð.”

Í Sunnudagsblaði Morgunblaðisins 3. jánúar 1999 er fjallað um “Hernaðarumsvif í Hvalfirði eftir heimsstyrjöldina síðari”.
“Bandamenn komu sér upp aðstöðu á Íslandi til þess að fylgjast með og hefta siglingar þýskra herskipa og kafbáta og verja skipaleiðir sínar á norðaustanverðu Atlantshafi. Bretar lögðu flugvelli í Reykjavík og Kaldaðarnesi í þessu skyni.

Hernaðarumsvif

Hvítanes

Hvítanes – loftmynd.

Umsvifum hers og flota bandamanna í Hvalfirði í síðari heimsstyrjöldinni er lýst ítarlega í bókinni “Vígdrekar og vopnagnýr – Hvalfjörður og hlutur Íslands í orrustunni um Atlantshafið”, eftir Friðþór Eydal sem kom út fyrir jóli 1997. Ekki var rými í bókinni fyrir umfjöllun um afdrif stöðva og mannvirkja hersins og umsvif í Hvalfirði að styrjöldinni lokinni og bætir bókarhöfundur úr því nú.
Bandamenn komu sér upp aðstöðu á Íslandi til þess að fylgjast með og hefta siglingar þýskra herskipa og kafbáta og verja skipaleiðir sínar á norðaustanverðu Atlantshafi. Bretar lögðu flugvelli í Reykjavík og Kaldaðarnesi í þessu skyni, en Bandaríkjamenn tvo flugvelli suður með sjó til loftvarna og liðsflutninga til Bretlands. Eftirlitsskip og fylgdarskip skipalesta áðu í Hvalfirði og Seyðisfirði. Um eins og hálfs árs skeið var kaupskipum frá Bretlandi og Bandaríkjunum safnað saman í Hvalfirði til siglingar í skipalestum norður fyrir land og um Smuguslóðir til rússneskra hafna. Hætt var að hafa þennan hátt á í árslok 1942 og sigldu Rússlandsskipalestirnar eftir það beint frá Skotlandi án viðkomu. Herskipadeildir og fylgdarskip skipalesta höfðu þó viðkomu hér á landi eftir sem áður.
Í Hvalfirði lá oft fjöldi skipa á kaupskipalæginu utan Hvammsvíkur og á móts við Ferstiklu og herskipalæginu sem var í firðinum annanverðum. Gat þar oft að líta stærstu herskip veraldar sem veittu skipalestunum vernd gegn orrustuskipum þýska flotans í Noregi. Bretar reistu flotastöð í Hvítanesi þar sem m.a. var gert við netalagnir, sem lágu þvert yfir fjörðinn utanverðan, til varnar gegn óvinaskipum og kafbátum, svo og tundurdufl sem girtu fjörðinn við Hálsnes í sama tilgangi. Í stöðinni voru birgðageymslur, verkstæði, íbúðaskálar, spítali, og annað til þjónustu við herskipaflotann ásamt kvikmyndahúsi, verslun, veitingastofu og tómstundaheimili fyrir sjóliðana. Öflug flotkví lá innanvert við nesið ásamt viðgerðar- og birgðaskipum og lyfti skipum til botnviðgerðar.

Hvítanes

Hvítanes á stríðsárunum.

Bandaríkjamenn reistu mikla eldsneytisbirgðastöð í landi Miðsands og Litlasands við fjörðinn norðanverðan. Þar tóku skip sem áðu í firðinum olíu og einnig olíuskip sem fylgdu flotadeildunum og gáfu þeim eldsneyti á hafi úti. Á Miðsandi var jafnframt birgðastöð vegna skipaviðgerða.
Í Hvammsvík reis birgðastöð fyrir skotfæri og djúpsprengjur flotans ásamt tómstundaheimili fyrir skipshafnir Bandaríkjaflota. Sams konar tómstundaheimili var reist fyrir áhafnir kaupskipanna í Hvammsey. Á Hvammshólum, sem gnæfir yfir Hvammsvíkina, var aðsetur hafnarstjórans í Hvalfirði, sem var breskur sjóliðsforingi, og stjórnuðu menn hans allri skipaumferð í firðinum.
Skipalægið og flotastöðvarnar í Hvalfirði voru vandlega varðar gegn óvinaárásum. Segulmælingalagnir á sjávarbotninum milli Seltjarnarness og Akraness gerðu viðvart um skipaumferð í myrkri eða dimmviðri og varðskip önnuðust eftirlit á innanverðum Faxaflóa. Hljóðsjárbúnaður lá á sjávarbotni beggja vegna álsins í firðinum utanverðum og var eftirlitsstöð með henni að Gröf í Skilamannahreppi. Á Kjalarnesi, Akranesi og í Borgarnesi var talsvert herlið sem hafði það hlutverk að verja óvinum leiðina landveginn. Stórar fallbyssur við bæinn Dalsmynni á Kjalarnesi vörðu innsiglinguna. Slíkar byssur voru einnig á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi og Hvaleyri við Hafnarfjörð.

Hvítanes

Hvítanes – loftmynd.

Úr krikanum utan Hvaleyrar og yfir að Grundartanga lá netalögn úr sverum vír sem stöðva skyldi skip og kafbáta á leið inn fjörðinn. Netunum var haldið uppi af fjölmörgum stórum duflum og lágu festar í akkeri á botninum. Hlið var á lögninni og varðskip við sem hleypti skipum í gegn. Fallbyssur og ljóskastarar á bökkunum undan Útskálahamri að sunnan, og að Klafastöðum að norðan, vörðu netalögnina. Að auki lá tundurduflagirðing með segulnemum þvert yfir fjörðinn undan Hálsnesi. Í varðstöð á nesinu mátti sprengja duflin, eitt eða fleiri, undir óboðnum kafbátum eða skipum sem kæmust svo langt. Þessi varnarviðbúnaður bandamanna í firðinum ásamt ströngu eftirliti á Faxaflóa var þýskum hernaðaryfirvöldum ljós og aftraði þeim frá að stefna skipum og kafbátum gegn þessum mikilvæga áningarstað. Til loftvarna var öflugum byssum komið fyrir undir Hvammshólum við Hvammsvík, á Hrafneyri handan fjarðarins og á Þyrilsnesi. Smærri loftvarnabyssur voru þar og í Hvítanesi og við olíustöðina á Söndum. Þýskar könnunarflugvélar lögðu oft leið sína með ströndum landsins í leit að skipum, loftmyndatöku af hernaðarmannvirkjum og til veðurathugana. Í einstaka tilfellum gerðu þær árásir á skip eða mannvirki. Oft lá leiðin yfir Hvalfjörð til að gæta að skipum á læginu. Flug þeirra var áhættusamt, enda margar loftvarnabyssur í firðinum bæði í landi og á skipum. Einnig voru flugvellirnir í Reykjavík og Keflavík skammt undan en þar var fjöldi orrustuflugvéla sem höfðu það hlutverk að granda hinum óboðnu gestum. Þýsku njósnaflugvélarnar flugu gjarna lágt yfir fjöllum svo loftvarnaskytturnar rétt grilltu í skotmarkið. Bandaríkjaher grandaði 5 þýskum flugvélum við landið í styrjöldinni, öllum með orrustuflugvélum og tveimur eftir að þær höfðu lagt leið sína yfir Hvalfjörð.

Hvítanes

Hvítanes – loftmynd.

Er leið á styrjöldina og bandamenn náðu yfirhöndinni í baráttu við þýska kafbátaflotann fór skipakomum fækkandi í Hvalfirði og viðbúnaður sömuleiðis. Breski flotinn starfrækti flotastöð sína í Hvítanesi til stríðsloka en hóf þá brottflutning. Dregið hafði verulega úr varnarviðbúnaði í firðinum er leið að styrjaldarlokum. Tundurduflagirðingin lá þó enn undan Hálsnesi uns henni var eytt í sprengingu í maí. Um líkt leyti var kafbátanetunum sökkt þar sem þau lágu þvert yfir fjörðinn og höggvið á landfestar þeirra.
Olíustöðin, sem Bandaríkjamenn reistu fyrir Breta á svokölluðum “láns og leigukjörum” , var rekin af bresku olíufélagi frá ársbyrjun 1944. Réð fyrirtækið til þessa verks um 30 íslenska starfsmenn sem aðsetur höfðu í skálahverfinu á Miðsandi. Að styrjöldinni lokinni tók Bandaríkjafloti aftur við stöðinni og hugðist reka hana áfram samkvæmt áætlunum sem þeir þá höfðu uppi um herstöðvar til langs tíma.

Hvítanes

Hvítanes – loftmynd.

Eftir stóðu í firðinum fjölmörg mannvirki sem reist höfðu verið í miklum flýti og með ærinni fyrirhöfn og kostnaði. Var komið að hernaðaryfirvöldum að losa sig við þessi mannvirki ásamt búnaði og birgðum sem ekki þótti ástæða til að nýta eða flytja af landi brott, enda flutningatæki, mannafli og farmrými af skornum skammti. Ljóst var að verðgildi mannvirkja á svo afskekktum stað gat ekki orðið í neinu samræmi við upphaflegan byggingarkostnað og varla að búast við að þau nýttust nema með flutningi annað. Samkomulag hafði verið gert milli hernaðaryfirvalda og ríkisstjórnarinnar um að hún keypti og/eða yfirtæki mannvirki og búnað hersins og endurseldi einkaaðilum eftir atvikum. Í mörgum tilvikum var um að ræða greiðslu fyrir landspjöll sem orðið höfðu við umsvif herliðsins, einkum þegar um mannvirki var að ræða.

Í Hvítanesi var hafskipabryggja úr stáli og önnur smærri steinbryggja og heilt þorp íbúðarbragga og vöruskemma auk nokkurra hlaðinna steinhúsa. Þar var að finna vatnsveitu, rafstöð og kyndistöð og gatnakerfi með lýsingu. Í Hvammsvík og nágrenni voru vöruskemmur og skotfærageymslur og fjöldi íbúðarbragga. Þá voru braggahverfi að Dalsminni, Útskálahamri, á Hálsnesi, Þyrilsnesi, Hrafneyri, að Klafastöðum og Gröf. Nefnd setuliðsviðskipta annaðist ráðstöfun búnaðar og mannvirkja hersins fyrir hönd ríkissjóðs. Mannvirki og búnaður í Hvítanesi höfðu kostað breska flotann a.m.k. 270.000 sterlingspund, sem var jafnvirði 2,9 hundraðshluta af verðmæti útfluttra sjávarafurða árið 1945 og gæti með sömu viðmiðun numið rúmlega 2,7 milljörðum króna í dag. Stöðin á Hálsnesi hafði kostað 10.000 pund og í Hvammsvík átti flotinn mannvirki að verðmæti 7.000 sterlingspund. Greiðlega gekk að selja búnað og byggingar, enda flestar færanlegar.

Hvítanes

Hvítanes.

Helstu mannvirkin í Hvítanesi voru tvær stórar vöruskemmur og steypt plan við þær og bryggjurnar tvær. Fékk Vita- og hafnarmálastofnunin m.a. tvo stóra gufukrana sem gengu á járnbrautarspori fram á bryggjuna ásamt skemmunum tveimur. Greiddi stofnunin 3.000 sterlingspund fyrir þá stærri og flutti á lóð sinna við Vesturvör í Kópavogi. Í bryggjuna sjálfa, sem kostað hafði 126.000 pund að smíða, barst einungis eitt boð að upphæð 400 pund og var það einnig frá Vita- og hafnarmálastofnuninni. Mælti breski flotaforinginn í Reykjavík með því að boðinu yrði tekið, þótt lágt væri, enda vart að búast við öðru betra og stofnunin hefði reynst breska flotanum hjálpleg á ýmsan hátt og keypt mikið af búnaði og þ. á m. umrædda skemmu á fullu verði. Breska flotastjórnin ákvað hins vegar að gefa íslenska ríkinu bryggjuna gegn því að ríkisstjórn Bretlands væri þar með leyst undan allri ábyrgð vegna viðhalds hennar eða kröfum sem upp kynnu að koma síðar vegan þessa mannvirkis. Ekki kom til þess að bryggjan yrði seld eða rifin og töldu íslensk stjórnvöld í fyrstu réttast að eiga hana þar uppistandandi ef til þyrfti að taka og greiddi Vitamálaskrifstofan landeiganda dálitla leigu fyrir aðgang að bryggjunni, a.m.k. fyrstu árin. Snemma fór þó að bera á því að tekið væri timbur úr bryggjunni. Hirti þá Vitamálaskrifstofan það sem hún náði upp af brautarsporinu og undirlagstrjám. Eigandi jarðarinnar óskaði eftir því árið 1949 að fá bryggjuna keypta af ríkissjóði og árið 1960 að ríkissjóður afsalaði honum bryggjunni til niðurrifs vegna þeirra búsifja sem hernámið í Hvítanesi hefði haft í för með sér og hversu takmarkaðar skaðabætur hefðu hlotist fyrir. Var það álit vitamálastjóra í bæði skiptin að ekki væri ástæða til að afsala bryggjunni, heldur bíða hentugs tækifæris í þeirri von að gera mætti úr henni frekari verðmæti en brotajárn. Má eflaust geta sér þess til að mannvirki þau sem eftir stóðu í Hvítanesi hefðu ef til vill fengið nýtt hlutverk ef síld hefði gefið sig oftar í eins ríkum mæli í Hvalfirði og hún gerði veturinn 1947-1948, þegar nánast engar síldarverksmiðjur var að finna á Suðvesturlandi. Þá má ætla að þróun heimsmála í kalda stríðinu hafi gefið mönnum tilefni til að halda að brátt yrði aftur þörf á hernaðaraðstöðu í firðinum.

Hvalfjarðarsíldin og hreinsun fjarðarins

Hvítanes

Hvítanes – loftmynd.

Veiðar á síld til beitu voru hefðbundnar í Faxaflóa á haustvertíð. Veturinn 1947 varð mikillar síldar vart í Kollafirði og á Sundunum og var talsvert veitt þar um veturinn af blandaðri síld í nót sem siglt var með í bræðslu til Siglufjarðar, enda hefðbundnar síldveiðihafnir á Norður-og Austurlandi og engar stórar síldarbræðslur að finna fyrir sunnan. Sumarsíldveiðarnar fyrir Norðurlandi brugðust illa þetta sumar, svo og veiðar reknetabátanna á Faxaflóa um haustið. Auk þeirrar óáranar sem síldarlaust sumar hafði í för með sér stefndi nú í alvarlegan beituskort um veturinn. Reknetabátarnir lömdu allan flóann um haustið, en án teljandi árangurs uns mikillar síldar varð vart inni í Hvalfirði í byrjun október. Var það upphaf stórfenglegra síldveiða í firðinum sem stóðu fram í marsmánuð árið eftir.
Fljótlega kom þó í ljós að víða á veiðislóð síldveiðibátanna var að finna leifar af kafbátagirðingunni, sem sökkt hafði verið við brottför breska flotans, legufæri og víradræsur sem ollu síldarflotanum tilfinnanlegu veiðarfæratjóni. Kvartaði Landssamband íslenskra útvegsmanna yfir þessu ástandi til sjávarútvegsmálaráðherra í janúar 1948. Var vitaskipinu Hermóði falið að athuga hvort mögulegt væri að ná upp nokkru af þessum festum, en svo reyndist ekki vera og ljóst að til þyrfti að koma öflugt sérbúið skip. Samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu 25. febrúar þess efnis að nauðsynlegar ráðstafanir skyldu gerðar til hreinsunar á öllu því sem herliðið hefði skilið eftir á botni Hvalfjarðar sem truflun ylli við veiðar í firðinum og skemmdum á veiðarfærum. Skyldi ríkisstjórnin beita sér fyrir því að þau erlendu ríki sem hér ættu hlut að máli framkvæmdu hreinsun á sinn kostnað auk þess að greiða tjón sem fiskimenn hefðu beðið og kynnu að bera af þessum sökum. Varð að samkomulagi að skip frá breska flotanum, H.M.S. Barrage, sérbúið til lagningar og viðhalds netgirðinga og legufæra, skyldi annast verkið. Hóf skipið að slæða upp kafbátanetin utanvert við Hvalfjarðareyri í lok ágúst. Brátt kom í ljós að önnur tveggja lagna sem þar höfðu legið samhliða var enn í heilu lagi, en hin var í nokkrum hlutum og höfðu sumir m.a. verið dregnir inn í víkina innan við Hvalfjarðareyri. Þá héldu dufl, sem skilin höfðu verið eftir á lögnunum er þeim var sökkt, enn hlutum hennar nokkuð frá botni og víða lágu rytjur af nótum síldarbáta frá því um veturinn saman við víraflækjurnar ásamt legufærum skipa. Skipið hélt slæðingum áfram fram í nóvember og hafði þá losað í Hvítanesi 14 farma af netum, duflum og legufærum sem flest voru 6-8 tonna steypuklumpar. Mest af víraflækjunum setti skipið á land upp af bryggjunni í Hvítanesi, en nokkuð var látið í sjóinn og fjöruna upp með henni.
H.M.S. Barrage kom aftur til landsins í apríl 1949 og hóf slæðingu að nýju í maí. Verkið gekk nú mjög vel, enda réttur árstími. Stóð verkið fram í ágúst og taldi skipstjórinn þá að vírnetin sem upp hefðu verið tekin mundu nægja í fjögurra sjómílna samfellda lögn auk dufla og legufæra. Þó var línu yfir fjörðinn frá odda Hvalfjarðareyrar hlíft við slæðingu til að skemma ekki sæsímastreng sem þar hafði verið lagður. En Hvalfjarðarsíldin sást ekki meir.

Nýtt hlutverk

Hvítanes

Hvítanes – bryggjan.

Þótt Bretar hyrfu á brott úr Hvalfirði að stríðinu loknu starfrækti Bandaríkjafloti áfram olíustöðina á Söndum. Umsvifin voru þó ekkert í líkingu við það sem verið hafði, en Bandaríkjamenn höfðu uppi miklar áætlanir til að tryggja öryggi í þessum heimshluta að styrjöldinni lokinni og óskuðu eftir leyfi til að starfrækja áfram herstöðvar á Íslandi til langs tíma.
Hugmyndir Bandaríkjahers voru þær að rekstur Keflavíkurflugvallar yrði óbreyttur, þ. e. sem millilandaflugvöllur og að þar yrði einnig aðstaða fyrir sprengju- og orrustuflugsveitir flughersins eftir því sem þurfa þætti. Í herbúðum Bandaríkjaflota í Washington voru ýmsar hugmyndir viðraðar veturinn 1946 um staðsetningu flotaflugstöðvar eins og þeirrar sem rekin hafði verið í Skerjafirði og á Reykjavíkurflugvelli. Þaðan höfðu flugvélar flotans stundað eftirlitsflug og kafbátaveiðar á styrjaldarárunum. Þá var rætt um heppilegan stað fyrir flotastöð sem annaðist önnur verkefni og hýsa skyldi yfirstjórn flotans og verið hafði í Camp Knox í Reykjavík. Kom m.a. til álita að taka allt Kársnesið vestan Hafnarfjarðarvegar undir þessa aðstöðu, eða Skerjafjörð og Reykjavíkurflugvöll eins og verið hafði, og var rætt um innanverðan Kópavogsdal undir skotfærageymslur. Einnig kom til álita að leggja flugvöll á Álftanesi með þremur flugbrautum og yrði þar öll aðstaða flotans utan Hvalfjarðar og næði um allt nesið inn í Hafnarfjörð. Loks kom til álita að flotaflugstöðinni yrði einnig valinn staður á Keflavíkurflugvelli.
Í Hvalfirði gerðu menn ráð fyrir að olíubirgðastöðin á Söndum yrði starfrækt áfram, en ný stöð reist innanvert við Hvítanes ef leyfi fengist ekki til áframhaldandi reksturs. Hvítanes var álitinn heppilegur staður fyrir yfirstjórn flotans og skotfærageymslur hans yrðu áfram í Hvammsvík, eða utanvert við stöðina á Miðsandi. Ekki var búist við því að mikið af þeim byggingum sem reistar höfðu verið á stríðsárunum yrðu nýttar til frambúðar, enda flestar þeirra braggar sem ekki var ætlað að standa lengi.

Hvítanes

Herminjar á Hvítanesi.

Vart er þó ástæða til að ætla að komið hefði til greina að reisa ofangreindar herstöðvar á höfuðborgarsvæðinu þótt rætt hafi verið um þá staði í upphaflegri tillögugerð. Í skjalasafni Bandaríkjaflota er að finna kort með hugmynd að flugvelli á Álftanesi og hefur þar verið ritað: “Nei, forsetinn býr þar.” Sérstök staðarvalsnefnd á vegum flotans tók sér ferð á hendur til Íslands og kannaði aðstæður síðari hluta aprílmánaðar 1946. Auk hernaðarlegra atriða hafði nefndin þrjú meginatriði að leiðarljósi við tillögugerð sína.
a. Af pólitískum og diplómatískum ástæðum væri óæskilegt að reisa herstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
b. Sökum skorts á ræktarlandi væri æskilegt að halda sig við óræktuð svæði þar sem því yrði við komið.
c. Hátt verð á fasteignum mælti með því að valin væru svæði þar sem sem fæstar byggingar væru fyrir.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að flotastöðin skyldi rísa í Hvítanesi; sprengju- og skotfærageymslur fyrir herskipaflotann í Hvammsvík; olíustöðin skyldi vera á sama stað, en austan Hvítaness til vara; Fjarskiptastöð á Kjalarnesi, eða austan Hvítaness til vara; hafnarskrifstofa flotans í Reykjavík sem verið hafði á efstu hæð hafnarhússins á stríðsárunum, yrði best rekin þar áfram; flotaflugstöð og aðstaða öll fyrir flugvélar flotans skyldi vera á Keflavíkurflugvelli.

Hvítanes

Hvítanes – bryggjan.

Er skemmst frá því að segja að ofangreindar áætlanir Bandaríkjamanna komu aldrei til framkvæmda, enda kveðið á um brottför Bandaríkjahers í Keflavíkursamningnum sem undirritaður var 8. október 1946.
Er Bandaríkjafloti tók aftur við olíustöðinni í Hvalfirði af Bretum sumarið 1945 hætti Shell olíufélagið breska rekstrinum og við tók bandaríska félagið Standard Oil (ESSO) í gegn um umboðsaðila sinn hér á landi, Hið íslenska steinolíufélag. Sameinuðu þar krafta sína smæsta íslenska olíufélagið og stærsta olíufélag í heimi. Daglegur rekstur stöðvarinnar var áfram í höndum íslenskra starfsmanna. Olíufélagið hf. sem stofnað var vorið 1946 keypti þá um haustið meirihlutann í Hinu íslenska steinolíufélagi, en það félag hafði þá tekið við eldsneytisafgreiðslu á flugvélar á Keflavíkurflugvelli.
Við brottför Bandaríkjahers bauðst stóru olíufélögunum Olíuverslun Íslands og Skeljungi að kaupa olíustöðina í Hvalfirði. Að könnun lokinni var það niðurstaða beggja félaganna að stöðin mundi ekki henta fyrir starfsemi þeirra, enda áttu bæði félögin aðstöðu í Reykjavík. Olíufélaginu var þá boðin stöðin til kaups, en félagið átti ekkert umtalsvert geymarými og þótti henta að kaupa stöðina og reka hana a.m.k. þar til nýrri og fullkomnari aðstöðu yrði komið upp annarsstaðar. Er hér var komið höfðu bæði Hvalur hf., sem þá var nýstofnað fyrirtæki til hvalveiða, og Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda sýnt áhuga á að eignast aðstöðuna. Fjöldi nýsköpunartogara var í smíðum og brenndu langflestir svartolíu sem ekki var neitt geymarými fyrir á útgerðarstöðum þeirra. Samdist svo með togaraeigendum og Olíufélaginu, en meðal þeirra er stóðu að stofnun félagsins voru allmargir útvegsmenn, að hinir fyrrnefndu afsöluðu sér tilkalli til kaupa á olíustöðinni eða hluta hennar ef Olíufélagið fengi hana keypta og félagið skyldi sjá útgerðum hinna nýju skipa fyrir brennsluolíu á hagkvæmu verði. Sóttu togarar olíu í stöðina í Hvalfirði allt fram yfir 1950 og þaðan var olíuvörum lengi dreift út um landið. Með kaupum á stöðinni varð fyrst grundvöllur fyrir kaupum á stórum olíuförmum til landsins sem voru miklu hagkvæmari viðskipti en áður höfðu tíðkast.

Hernám

Herspítalahverfi Breta umhverfis Gamla-Garð. Spítalinn rúmaði 200 sjúklinga og 130 starfsmenn.

Við Nefnd setuliðsviðskipta samdist svo vorið 1947 að Oíufélagið og Hvalur keyptu stöðina og skiptu félögin með sér bryggjunni, vatnsveitu, legufærum o.fl., en önnur mannvirki tilheyrðu hvoru félagi um sig. Var mikið af tækjabúnaði stöðvarinnar, sem ekki nýttist félögunum tveimur, selt öðrum, þ. á m. lítið olíuskip af þeirri gerð sem Bandaríkjafloti notaði til flutninga í höfnum og á skipalægjum, sem lá þar með bilaða vél. Gert var við skipið og því gefið nafnið Þyrill. Fékk Skipaútgerð ríkisins Þyril til afnota og var skipið í olíuflutningum innanlands næstu tvo áratugina og síðar, m.a. í síldarflutningum til ársins 1970 er það var selt úr landi.
Er Bandaríkjaher kom aftur til landsins árið 1951 má segja að olíustöðin á Söndum hafi gengið í endurnýjun lífdaga. Varnarliðið þarfnaðist mikils geymarýmis fyrir eldsneytisbirgðir sínar, en samið var um leigu á megninu af geymarými stöðvarinnar fyrir eldsneyti á flugvélar og herskip. Mikill hluti birgðanna í Hvalfirði voru reyndar varabirgðir, einkum fyrir Bandaríkjaflota. Auk þess var þar geymt allt flugvélaeldsneyti Varnarliðsins og það flutt í smærri skömmtum sjóleiðina til Keflavíkur eftir því sem gekk á birgðirnar þar. Var þessi háttur hafður á allt til ársins 1990, er ný olíubirgðastöð Varnarliðsins og NATO í Helguvík var komin í notkun.
Með komu Varnarliðsins var herlið á ný staðsett í Hvalfirði. Reis lítið braggahverfi á ásnum vestan Miðsands þar sem dvöldu rúmlega 100 liðsmenn landhersins og önnuðust gæslu olíubirgðastöðvarinnar. Stöðin var nú rekin af sérstöku dótturfyrirtæki Olíufélagsins, Olíustöðinni í Hvalfirði hf., sem stofnað var í því skyni. Landherinn hvarf að mestu af landinu árið 1959 og liðsmenn hans í Hvalfirði síðastir í janúar árið eftir. Önnuðust herlögreglumenn flughersins gæslustörfin uns landgönguliðar flotans tóku við sumarið 1961.

Olíubirgðastöð Atlantshafsbandalagsins

Hernám

Orrustuskipið Prince of Wales liggur við festar í Hvalfirði þar sem það bíður meðan forsætisráðherrann bregður sér til Reykjavíkur og nágrennis. Í baksýn er Akrafjall. Í nóvember þetta sama ár, aðeins um fjórum mánuðum eftir að þessi mynd var tekin, sökktu japanskar flugvélar skipinu í Suður-Kínahafi. Af áhöfninni fórust 327 menn.

Bandaríkjafloti tók við hlutverki flughersins við rekstur mannvirkja og þjónustu við Varnarliðið sumarið 1961 í samræmi við aukinn þátt flotans í vörnum á austanverðu Norður-Atlantshafi. Taldi Atlantshafsherstjórn NATO brýnt að tryggja að nægar birgðir eldsneytis væru til staðar í Hvalfirði. Var hafinn undirbúningur að endurnýjun geyma og lestunaraðstöðu ásamt lagningu legufæra í firðinum sem nýtast mættu herskipum Atlantshafsbandalagsríkjanna á ófriðartímum. Íslenskir aðalverktakar önnuðust framkvæmdir við nýju olíustöðina sem tekin var í notkun árið 1968. Framkvæmdum lauk að fullu árið eftir, en verkið var fjármagnað að mestu leyti af Mannvirkjasjóði NATO. Í stöðinni eru fjórir rúmlega 12.000 tonna svartolíugeymar sem grafnir voru niður í brekkuna upp af Gorvík vestan Miðsands, olíubryggja, dælu- og hitunarbúnaður auk húsnæðis fyrir rekstur stöðvarinnar.
Samkomulag varð um að Íslenskir aðalverktakar önnuðust rekstur nýju stöðvarinnar í samræmi við samning milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda frá árinu 1966 sem kvað á um að fyrirtækinu, sem sérhæfði sig í vinnu fyrir Varnarliðið, skyldu tryggð lágmarks verkefni er umsvif í varnarliðsverkefnum væru lítil. Þá tóku starfsmenn aðalverktaka einnig við gæslu olíubirgðanna og mannvirkja í Hvalfirði og leystu landgönguliðana af hólmi vorið 1967.

Hernám

Winston Churchill og Hermann Jónasson ganga hér um götur Reykjavíkur í heimsókn Churchill hingað til lands 16. ágúst 1941.

Hlutverk olíustöðvar NATO breyttist á öndverðum níunda áratugnum eftir að breytingar höfðu orðið á vélbúnaði herskipa. Eru flest herskip nú knúin dísilvélum eða þotuhreyflum sem krefjast léttara eldsneytis en svartolíunnar sem tankarnir voru upphaflega gerðir fyrir. Voru þeir tæmdir árið 1991 og endurnýjaðir og búnir til geymslu á léttari steinolíublöndu fyrir þotuhreyfla. Þessari framkvæmd lauk nýlega, en ekki liggur fyrir hvenær geymarnir verða fylltir að nýju.
Upphaflegt skálahverfi olíustöðvarinnar stendur enn að hluta á Miðsandi. Er það með heillegustu minjum um þau miklu umsvif sem voru í Hvalfirði og víðar á landinu á árum heimsstyrjaldarinnar síðari. Þar má sjá einstætt safn þeirra mismunandi braggategunda sem herlið bandamanna reisti yfir starfsemi sína, og hefur þeim verið vel við haldið, enda í fullri notkun fram á síðari ár.
Minjar um mannvirki og veru hernámsliðsins á stríðsárunum sáust lengi vel víða, en það voru ekki aðeins braggarnir sem hurfu, heldur hafa aðrar minjar smám saman verið að mást út.

Braggar

Braggi  og dátar á stríðsárunum.

Minjar um mannvirki og veru hernámsliðsins á stríðsárunum sáust lengi vel víða, en það voru ekki aðeins braggarnir sem hurfu, heldur hafa aðrar minjar smám saman verið að mást út. Hvalfjörður var mikilvægur frá hernaðarsjónarmiði og risu herstöðvar á Miðsandi að norðanverðu og á Hvítanesi að sunnanverðu. Þegar er ekið inn eftir Hvalfirði sunnanverðum og komið fram hjá Hvammsvík liggur vegurinn ofan við Hvítanes, sem hallar niður að firðinum, grasi vafið. Ofan frá þjóðveginum er þar ekkert sérstakt að sjá en útsýnið er fagurt frá þessum stað inn eftir Hvalfirði. Gegnt Hvítanesi skagar Þyrilsnes fram í fjörðinn og sundið á milli er aðeins hálfur annar kílómetri. Til austurs sést inn í Brynjudal, en fyrir suðrinu gnæfir Reynivallaháls. Á Hvítanesi var bújörð, en langt mun vera síðan hún fór í eyði.
Afleggjari liggur frá þjóðveginum niður eftir nesinu. Þegar þangð er komið má víða sjá hvar vegir hafa legið um nesið, en grasið sem víðast hvar er hnéhá beðja, hefur miskunnað sig yfir hinar smærri minjar. Eftir standa steinsteyptar tóftir uppi á nesinu og hálffallin, steinhlaðin hús niðri við bryggjuna sem enn hangir uppi. Það af henni sem stendur upp úr sjó er heillegast en sá hluti hennar sem alveg er uppi á ströndinni hefur molnað niður.

Heimildir:
-Fréttablaðið – Friðþór Eydal, Laugardagur 9. maí 2020.
-https://www.mbl.is/greinasafn/grein/440784/
-https://www.mbl.is/greinasafn/grein/580576/

Hernám


George Eisel skytta komst einn af þegar sprengjuflugvél Franks M. Andrews yfirhershöfðingja Bandaríkjahers í Bretlandi með 15 manns innanborðs fórst á Fagradalsfjalli á Reykjanesi í maí 1943. Hér ræða íslenskir blaðamenn við hann á Helgafellsspítala, þeir eru frá vinstri Ívar Guðmundsson frá Morgunblaðinu, Hersteinn Pálsson rithöfundur og þýðandi frá Vísi og Jón Þórarinsson tónskáld frá Ríkisútvarpinu.

Gullbringu- og Kjósarsýsla

Í útgáfu Sögufélagsins um “Gullbringu- og Kjósarsýslu; sýslu- og sóknarlýsingar” má m.a. lesa um örnefni, atburði o.fl. í sýslunum á árunum 1839-1855.

Útgáfa Sýslu- og sóknalýsinga Gullbringu- og Kjósársýslu markaði upphaf endurútgáfu Sögufélags á Sýslu- og sóknalýsingum Hins íslenska bókmenntafélags sem lengi höfðu verið ófáanlegar. Guðlaugur R. Guðmundsson sagnfræðingur og Svavar Sigmundsson rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast undirbúning útgáfunnar.

Gullbringu- og Kjósarsýsla.
Í bókinni eru ítarlegar upplýsingar á sýslunni og flestum sóknum hennar, skrifaðar af staðkunnugum mönnum á fyrstu áratugum nítjándu aldar, áður en nútíminn gekk í garð, og í henni eru birtar myndir af kirkjum og nokkum höfundanna. Í viðauka eru sýnd sóknarmörk og gamlar götur eftir korti Björns Gunnlaugssonar frá 1844. Sýslu- og sóknalýsingar Gullbringu- og Kjósársýslu eru grundvallarrit um örnefni og lýsingar á fornum leiðum á svæðinu og kjörið rit fyrir þá sem unna sögu og staðfræði á suðvesturhorni landsins.

-Stutt lýsing á Gullbringu- og Kjósarsýslu – Þórður Jónasson [1852]
-Geir Backmann – Grindavík 1840-’41
-Brandur Guðmundsson – Lýsing á Höfnum
-Sigurður Sívertsen – Útskála- og Kirkjuvogssóknir 1839
-Pétur Jónsson – Kálfatjarnarprestakall 1840
-Árni Helgason – Garðaprestakall 1842
-Stefán Þorvaldsson – Lýsing á Mosfells- og Gufunessóknu 1855
-Sigurður Sigurðsson – Lýsing á Reynivallasókn 1840

Formáli
“Hefst þá meginsform þessa bindis, en það eru sýslulýsingar og sóknalýsingar þær, sem gerðar voru að tilhlutun Hins íslenska bókmenntafélags. Aðalhvatamaður þessa verks var skáldið Jóns Hallgrímsson, er hugðist þannig að safna efni til ýtarlegrar og nákvæmlegrar Íslandslýsingar, sem hann hafði ætlað sér að semja, en entist ekki aldur til.

Boðsbréf og spurningar frá deild Hins íslenska bókmenntafélags í Kaupmannahöfn til sýslumanna og presta á Íslandi 1839.
Spurningarnar voru:

Í fyrsta lagi:

1. Afstaða og stærð landsins.
2. Landslag.
3. Haf og vötn.
4. Veðráttufar og loftslag.
5. Auðæfi náttúrunnar.
6. Kynferði og eðlisfar þjóðarinnar.

Í öðru lagi:
1. Landsbyggð allt frá landnámstíð.
2. Læknisdæmi.
3. Veraldleg skipan allt frá landnámstíð.

Í þriðja lagi:
A. Uppruni og forlög þjóðarinnar (almennt yfirlit).
B. Þjóðarlýsing.
C. Landsstjórnarsagan.

Þórður Jónason: Stutt lýsing á Gullbringu- og Kjósarsýslu 1852

Þórður Jónason

Þórður Jónason.

“Sýslur þessar hétu fyrrum Kjalarnesþing, og eru þær báðar eitt prófastdæmi og sami sýslumaður í þeim báðum; heitir hann héraðdómari í Gullbringusýslu, en sýslumaður í Kjósarsýslu.
Gullbringusýsla er að landslagi frábrugðin öðrum sýslum í landinu. Hún er mestmegnis hraun og melar; þar vantar víða sauðfjár- en alls staðar kúahaga; útheyisslægjur eru engar og utantúns lítið og allvíðast ekkert graslendi. Þar eru engar ár og einungis 3 lækir í allri sýslunni. Atvinnuvegur sýslubúa er því einkum fiskiveiði, og sækja þangað og margir úr öðrum sveitum á vetrarvertíðinni, bæði úr Norðurlandi og úr Árnessýslu. Nafnkenndustu veiðistöðvar eru Vogar, Njarðvíkur (Norðvíkur) og Hafnir.
Gullbringusýsa er íll yfirferðar og vegirnir bæði krókóttir og slitróttir. Bæirnir standa með sjónum og byggðin er hvergi tvésett, og sýslan er þannig öll á lengdina.
Í Kjósarsýslu, sem Elliðaár aðskilja frá Gullbringusýslu, eru landskostir þar á móti góðir, víðast nægar slægjur og mikið graslendi, móskurður góður, torfrista og hagar vetur og sumar og hægt til allra aðdrátta, og má að vísu telja Kjósarsýslu í þessu tilliti með hinum bestu sýslum á landinu.
Innan sýslu eru engir fjallvegir, nema ef telja skyldi Svínaskarð milli Kjósar og Mosfellssveitar, sem mun vera hér um bil 2 mílur bæja á milli.
Bæði Mosfells- og Hellisheiði eru býsna langir fjallvegir og vandrataðir á vetrardag. Eru því vörður reistar og sæluhús byggð á heiðum þessum, eitt á Mosfellsheiði, en 2 á Hellisheiði handa ferðamönnum, og eiga þeor oft náttstað á Hellisheiði í sæluhúsum þessum, þegar þá dagar uppi á leiðinni. Torfærur eru engar á vegum þessum, nema menn villist af réttum vegi, en þá kvað ferðamönnum hætta búin, einkum á Hellisheiði, þegar fara skal niður af heiðinni, því heiðin er mjög brött að austanverðu.

Grindavík – Geir Backmann 1840-’41
Gullbringu- og Kjósarsýsla
Takmörk sóknarinnar eru að vestanverðu Valahnúkur, sem aðskilur bæði land og reka Hafna og Grindavíkur. Á Selatöngum er drangi eða klettur í fjörunni, Dagon kallaður, og skilur hann bæði land og reka Krisi- og Grindavíkur.
Í Grindavíkursókn eru einasta 7 aðalbýli, en hina bæina köllum vér hjáleigur, og eru þær nú á tímum 13 byggðar. Hinn fyrsti og vestasti bær í sökninni er Staður. Stekkjarveg í landnorður frá Stað er annað aðalbýlið Húsatóttir. Hið þriðja býlið er Járngerðarstaðir. Fjóra býlið er Hóp. Hið 5ta býlið eru Þorkötlustaðir. 6ta aðalbýlið er Hraun. Á milli Hrauns og hins 7da býlisins, Ísuskála, alii Ísólfsskála, sem er austasti bærinn í sókninni, er hið minnsta 1 1/4 míla, því nú verður að afra almenningsveg upp svo kallað Hálsa.
Það er vel að merkja við allar jarðir í sókn þessarri, að þær árlega að segja má, ganga af sér bæði til lands og sjávar, sumar af sjó og sandfoki, t.d. Staður, Hraun og Þorkötlustaðir, af sandfoki Húsatóttir, af sjávargangi Járngerðarstaðir, Hóp og Ísuskáli, en við hvertveggi mætti þó með pössun og atorku mikið gjöra.

Geir Backmann

Geir Backmann.

Staður á selstöðu á Selsvöllum. Selsvellir eru héðan í landnorður upp í fellum, og er Keilir, þegar í sel þetta er komið, rétt í útnorður. Stendur selið í Strandarmannalandi eður fyrir norðan Grindavíkur landamerki. Þar er allgrösugt, en bíst fljótt upp, því allir bæir í sókninni nema Hraun hafa þar í seli, og þó að engu goldið Staðarprestinum. Vilja menn hér gjöra þess selstöðu almenning, og þyrfti þó ei að vera. Litlu vestar en Selsvellir er selstaða frá Hrauni; hér er árlega haft í seli frá bæ þessum, og eru landamerkin milli seljanna í svoköllum Þrengslum. Flestir bæir í Grindavík hafa haft í seli einhvers staðar til fjalla; er mér sagt, að vatnsleysi olli því, að allar þær eru afræktar og getur vel verið sannleiki. Sú mun og orsök, að allir hafa þyrpst á Selsvelli, því þar er dálítill rennandi lækur rétt við selið. Vanalegt er að reka sel í 8du v(iku) sumars, og aftur úr því 16 eða síðast 17 v(iku) af sumri, nema óþerrir hafi hamlað fólki að ná töðum af túnum sínum. Ekkert er hér afréttarlandM allt fé ungt og gamalt, lömb og sauðir er rekið í selið og þar smalað á hverju máli; lömbin eru kefluð.
Hér skulu hvergi finnasdt nokkrar fornmannaleifar, nema ef væru nokkur garðlög úti um hraun, sem ég ímynda mér helst gjörð umkring gamalla manna beitiland. Ekki veit ég að fornleifar hér fundnar og því ekki heldur vera hér í nokkurs manns geymslu.
Ég óska, að línur þessar mættu koma að því gagni, sem til er miðað.”

Lýsing á Höfnum – Brandur Guðmundsson
Gullbringu- og kjósarsýsla
Byggð þessi er við sjóinn, hvar Kirkjuvogsósar byrja; er sjór fyrir vestan og norðan, en Ósarnir liggja til austurs landnorðurs, eru um hálfa viku sjávar að lengd með skerjum víða. [Í Jarðabók ÁM segir, að Gamli Kirkjuvogur hafi legið í auðn lengur en 120 ár 1703, en það bæjarstæði var í Kirkjuvogslandi. “Heyrt hefi eg, að þær 3 jarðir Stóra- og Litla-Sandhöfn og Kirkjuhöfn hafi lagts í eyði, að kirkja hafi staðið þar, eftir að jörðin lagist í eyði, en ofnaumt mun tilnefnt tímatalið á annað hundrað ár síðan [hefir lagst í eyði um 1660, því tilnefnd Ingigerður sál. vissi aðeins til, að uppblásin mannabein í hennar minni hefðu verið flutt til Kirkjuvogskirkju og lögð í kirkjugarð, og eru þó síðan full 100 ár… – Á sama aukablaði getur Brandur og þess, að hann hafi á “landcommissiþingi á Járngerðarstöðum 1801 séð í bók hjá commissariis Kirkjuvog nefndan fyrir norðan Ósa ár 1516, sem mig minnir og þar í getið eyðijarða Haugsenda hér og Arnargerðis”].
24 geirfuglum alls á skip langmest, en optast 5 til 8, en seinustu 2 vorin hafi hann ekki sést.
Engar vita menn þar fornmenjar í jörðu eða á, en steinkol meina menn vera á Reykjanesi.
Þetta er þá sú upplýsing, er eg get í stuttu máli meðdeilt yður, prestur minn góður, í því áður umtalaða og bið eg yður auðmjúklega að virða, en skyldi þar þurfa nokkru við að bæta, vilda eg að því leyti get sýna viljann, en bið auðmjúklega leiðréttingar á missmíðinni og yfirsjónum.”

Útskálaprestakall – Sigurður B. Sívertsen 1839
Gullbringu- og Kjósarsýsla
Útskálaprestakall inniheldur 3 aóknir, nl. Útskála, Hvalsness- og Kirkjuvogssóknir; þær 2 síðari voru lagðar við 1811.
Takmörk milli Útskála- og Kirkjuvogssóknar er Háaleiti, milli Hvalsness- og Kirkjuvogssóknar Ósar þeir, er skerast inn í austur-landnorður, og þaðan upp að Háaleiti. Á millum Útskála- og Hvalsnessóknar eru engin örnefni, sem sóknir skilja.
Í Útskálasókn eru þessi byggðalög: Keflavík, Leiran, Stórihólmur, Gufuskálar (landnámsjörð) og Rafnkelsstaðir.
Fyrir sunnan Skagann kemur Nesið, sem liggur suður með sjónum. Þar var í fyrri daga höfuðból, sem Kirkjuból heitir, sem nú að mestu má heita komið í eyði. Á Kirkjubóli var áður hálfkirkja eða bænahús, sem síðar var af tekið. Eftir máldögum átti Péturskirkja að Kirkjubóli xl hndr. í heimalandi, fjórðung í Geirfuglaskeri og viðreka allan á Skarðaurð. (Á Kirkjubóli var junkherra Ívar Hólmur drepinn af biskupssveinum í Skálholti 1443. Líka Kristján skrifari í hefndir eftir Jón biskup Arason, voru þeir, sem Norðlingar drápu, dysjaðir fyrir norðan túngarð á Hafurbjarnastöðum, hafa bein þeirra í núverandi manna minnum blásið upp úr sandinum.
Flangastaðir er jörð. Hennar er getið í Landnámu, og mælt, að Flangur, sem fyrstu skyldi hafa byggt hana, sé heygður þar í túninu; er grjót umhverfis leiði hans, ef tilhæfi er í.
Á Býjaskerjum var áður kirkja, sem um er geið í Vilchins-máldaga, og kennd er við Ólaf kóng helga; er haldið, að hún hafi staðið á svonefndum Kirkjukletti.
Sunnar, í fullt útsuður, stendur Hvalsnes. Þar er snotur timburkirkja, annexía frá Útskálum. Hvalsneskirkja var fyrst byggð og vígð 1370, með þeim máldaga.
Syðst liggja Bátssandar, gamall kaupstaður, sem fór í stórflóði, sem síðan er kallað Básendaflóðið. Það var árið 1799, nóttina m(illi) 8. og 9. jan.
Sunnar með sjónum liggur Þórshöfn; það er mjó vík, sem þýskir höfðu lagt inn skipum sínum, þá þeir höfðu verslun.
Tveir liggja alfaravegir útúr sókninni, sem nefnast Sandgerðis- og Hvalsnesvegur. Liggja þeir báðir inn í Keflavík; kemur sá fyrri á Garðveg skammt fyrir innan Keflavík, en hinn liggur beint að sunnan og byrjast við Melbergsá. Til er líka gamall vegur, sem aflagður er, frá Stafnesi og suður með sjó, inn fyrir Ósa og suður í Hafnir; það er gamall kaupstaðavegur frá Bátssöndum; er hann grýttur og langur.

Sigurður Sívertssen

Sigurður Sívertsen.

Sunnan við Kalmanstjörn er Sandhöfn, eyðijörð, sem af lagðist og fór í eyði vegna sandsfoks, því ekkert sést eftir nema lítið af hól, hvar bærinn skyldi hafa staðið. Sunnar er Eyrin, fyrir innan Hafnarberg. Þar var bær og útræði fyrir rúmum 50 árum síðan.
Sunnar eru Skjótastaðir, sem meint verið hafi ein eyðijörð, enda er í mæli, sem satt mun vera, að allt Reykjanes hafi fyrr meir byggt verið.
Sunnar eru Valhúkar, sem er bergnös há, þá Valahnúksmöl (við hvörja trjáviðaskipið mikla strandaði um árið, eða réttara sagt þau mörgu og stóru tré bárust að landi).
Eldey er stór klettur í hafinu í vestur frá Reykjanesi. Mest hafa fengist þar á seinni tímum 24 geirfuglar í einu, en í 2 skipti seinast ekki sést.
Af fornleifum veit ég öngvum innan þessara <sókna> merkilegum. Steinn er eða klettur, sem stendur í svo nendu Kistugerði nálægt Rafnkelsstöðum með áklöppuðum rúnastöfum. Ekki hafa menn getað lesið úr þeim, en hafa þó oft verið af teiknaðir. (Líklega er það frá seinni tímum og skammstafað eða bundið mannsnafn). Að þar skammt frá sé heyður Rafnkell sá, sem jörðin er kennd við, eru munnmæli, sem við ekkert hafa að styðjast.)
Á Flangastöðum eða þar í túni nálægt Klöll er grjóthrúga, líkt sem dys. Þar hafa gamlir menn sagt, að heygður væri Flangur sá, sem í landnámstíð mundi fyrstu byggt hafa þá jörð, eða sem hún nefnist eftir. Annað dys eða haug þykjast menn geta séð í túni á Nesjum, sem áður lá til Másbúða, og segir fólk, að þar liggi undir Már sá, sem fyrstur hafi byggt Mársbúðir. Því er líka bætt við munnmæli þessi, að Katla hafi heitið kona hans, skörungur mikill. Annar haugur sé og í túninu, undir hverjum að liggi smali Márs.
Þetta, í flýti saman tekið og uppskrifað, en þó sem sannleikanum næst og nákvæmast sem orðið gat, biður undirskrifaður félagið vel að virða.”

Kálfatjarnarprestakall – Pétur Jónsson 1840
Gullbringu- og Kjósarsýsla
Takmörk Njarðvíkusóknar að utanverðu er skurður eður dæld, sem liggur beint frá heiði, rétt við höndlunarstaðinn Keflavík ofan við sjó; frá hans efri enda upp í heiðinni að Gömlu-Þúfu á svo kölluðu Háaleiti, af hvörju sjá má umhverfis 3já vegu í sjó.
Hvergi er rennandi vatn, en brunnar grafnir, víðast slæmir og saltir.
Höfuðbæir í Njarðvíkum eru tevir; innri- og Ytri-Njarðvík; hinir eru afbýli, hjáleigur og kot.
kirkjan í Njarðvík, orðin altimburkirkja, á ekkert utan það hún á stendur, þar sem hún fékki ekki kirkjrétt fyrri en í Jóns biskups Vídalíns tíð, og Njarðvíkur áttu áður kirkjusókn yfir heiði, suður í Hafnir; varð fyrst annexía frá Hvalsnesi og þar eftir að Kálfatjörn.
Á Kálfatjörn er nýbyggð altimburkirkja.
Þetta er það helsta, sem ég get skýrt frá.”

Garðaprestakall – Árni Helgason 1842
Gullbringu- og Kjósarsýsla
“Álftanessveit, sem yfir grípur Garða- og Bessastaðasóknir, hefur að norðanverðu við sig Reykjavíkursókn, að sunnanverðu Kálfatjarnar.
Á næstliðnu sumri þóttist fyrrverandi kaupkm(aður) í Keflavík A. Gunnarssonon hafa fundið brennisteinsnámu í Hraunamannalandi, nálægt Stórhöfðastígsvegi, er enginn vissi af áður. Hann segist hafa sent út með kaupmanni Siemsen nokkuð af þessum fundið, en eg þekki ei dóminn.
Þesir bæir eru í Garðasókn: Syðst Lónakot, þá Óttarstaðir með tveimur hjáleigum, Straumur, Þórbjarnarstaðir með tveimur tómthúsum, Lambhagi. Allir þessir bæir heita einu nafni Hraunabæir. Nú kemur Hvaleyi með 5 hjáleigum; ei hafa þær allar grasnyt. Óseyri með tómthúsi. Ás með tíomthúsi. Ófriðarstaðir, Hamarskot. Sá eiginlegi Havnarfjarðarhöndlunarstaður tekur nú við. Þar var áður jörð tilheyrandi Garðakirkju, sem hét Akurgerði; nú sjást hennar ekki menjar. Þessi jörð var tekin frá Garðaprestakalli fyrir hálfa Rauðkollsstaði vestur í Hnappadalssýslu. Enginn veit nú, hvað mikið land Akurgerði fylgdi, og þingsvitni, sem tekið var nálægt 1790, gat engu orkað, það hefir dankað svona, að kaupmenn, sem eiga Akurgerði, eigna sér ströndina frá Fiskakletti og inn að Hamrakotslæk, og prestar í Görðum hafa eigi ákært. Á þessu petti eru nú þrjú höndlunaraðsetur, grossera KnutZons, Thomsens og Linnets.
Í Bessastaðasókn eru þessir bæir: Bessastaðir, Lambhús og Breiðabólstaðir.
Ég veit ekki nema það, að Garðar eiga selstöðu í því sokallaða Kirkjulandi, sem liggur fyrir ofan byggðina, frá Elliðavatns- og Vatnsendalandi, suður að Krýsuvíkurlandi og upp undir fjöllin. Hitt veit eg og, að nú brúkar enginn hér selstöður, og séu Garðar undanteknir, sem höfðu pening í seli til 1832, hafa ei selstöðu héðan verið brúkaðar í næstliðin 50 a 60 ár.

Árni Helgason

Árni Helgason.

Úr sókninni liggur vegur úr Hafnarfirði upp í Selvog, sem heitir Grindarskraðavegur. Syðst er Ólafsskarðsvegur, svo er Lágaskarð og loks Hellisheiðarvegur. Á þessum vegi eru, þá Hellisheiði er farin, 3 sæluhús; þeir, sem fara Lágaskarð, gefa haft gagn af einu þeirra, og af öðru þeirra þeir, sem fara Ólafsskarð. Hjá Arnarnesi liggur og vegur og til hægri handar, þá héðan er farð, upp úr Kópavogi inn að Helliám, sem kemur þar saman við alfaraveg allra austa, norðan- og vestanmanna, sem ferðast til Reykjavíkur. Við fleta þessa vegi er gjör árlega, brýr lagðar hér og hvar yfir bleytuflög, en vörður brúkast ei nema á fjallvegum og þó ei öllum. Á Hellisheiðar- og Lágaskarðsvegi eru Bolavellir, upp vi fjallið, og Vötnin, nokkru nær byggðinni hérna megin, almennustu áfangastaðirnir. Helliskot er næsti bær á sama vegi hérna megin við fjallið, hinum megin Reykir eða Reykjakot.
Fornleifar eru varla, að megi kalla. Skoðað hef eg klappir þær, sem eru utarlega á Hvaleyrarhöfða, og séð, að þær eru margvíslega útrispaðar (bergið er ekki hart). Mörg nöfn get eg þar lesið, sem voru alþekkt nöfn danskra og þýskra, og eru þessi nöfn líklega skrifuð þar af sj´ómönnum framandi þjóða, helst meðan kaupstaðurinn var þeim megin við fjörðinn, rétt eins og margir hafa grafið nöfn sín inní bergið í Rauðshellir, sem þangað hafa komið; sums staðar er hvað skrifað ofan í annað. Mögulegt er, að þeir, sem betur eru læsir, geti hér fundið rúnir.
Gerði tvö, sem sumir ætla, að séu dómhringir, finnast. Hið annað á Hofstöðum, hitt í Ráðagerðistúni, sem er næsti bær við Garða.

Lýsing á Mosfells- og Gufunessóknum – Stefán Þorvalddson 1955
Gullbringu- og Kjósarsýsla
Mosfellsprestakall er tvær kirkjusóknir, Mosfells og Gufuness.
Þrír liggja þjóðvegir um sóknirnar; 1. Vegur sá, er liggur norðan yfir Svínaskarð, sem er stuttur fjallvegur milli Kjósar og Kjalarness og Mosfellssveitar. – 2. Sá, er liggur austan yfir Mosfellsheiði og fram í Seljadal, niður hjá bæjunum Þormóðsdal, Miðdal og Reynisvatni og Árbæ, og 3ji vegurinn liggur suðaustan yfir Hellisheiði, fyrir sunna Helliskot og norðan Klapparhlt og Árbæ.
Fornmenjar eru hér fáar sem engar, hvörki rúnir eða myndir, húsatóftir eða dómgringar. En haugur einn er hér í dalnum, á landamærum milli Hraðastaða og mosfells, á sléttu undirlendi við Suðurá, og er haugur sá nefndur Hraðaleiði. Hann er aflangur og snýr í norður og suður og ekki allstór. Það er mælt, að Hraði hafi verið þræll í fornöld, en hafi fengið frelsi, og hafi hann þá reist bæs inn þarm er enn kallast Hraðastaðir, og sé þessi haugur yfir hann orpinn og við hann kenndur.”

Lýsing á Reynivallasókn – Sigurður Sigurðsson 1940
Gullbringu- og Kjósarsýsla
“Meðtekið hefi eg á næstl(iðnu) sumri ykkar heiðursverða og góða bréf til mín af 30. apríl f.á., áhrærandi það efbi að svara upp á þær spurningar, sem bréfið hljóðaði upp á. En bæði vasleysi þá í stað og sumarannir hindruðu mig frá því að sýna lit á að koma þessu í verk, síst í lagi nokkuð eftir óskum, sem þurfti, þar fáviska, aldurdómur og ókunnleiki, þar sem maður kemur gamall langt að, bægði mér að geta nákvæmari útmálan gefið en þessa.”

Heimild:
-Gullbringu- og Kjósarsýsla; sýslu og sóknarlýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1855, Guðlaugur R. Guðmundsson og Svavar Sigmundsson, Sögufélagið 2007.

Gullbringu- og Kjósarsýsla

Kort Björn Gunnlaugssonar.