Entries by Ómar

Flatahraun

Gengið var inn á svonefnda Flatahraunsgötu, gamla leið, sem enn sést norðan við Fjarðarkaup. Þegar komið var yfir hraunið var beygt til austurs með jaðri þess, að svonefndum Hraunholtsstekk. Sést móta fyrir tótt í laut í hraunjaðrinum. Austar var komið í laut og henni voru greinilegar hleðslur. Skúti var vestan í lautinni, innan við hleðslurnar, […]

Seljadalsvegur – Búrfellskot – Nærsel – Þormóðsdalsgullnámur

Tekið verður hús á Þormóðsdalsbóndanum Þorsteini Hraundal og frú. Af því tilefni var gengið að draumóranámum Einars Benediktssonar utan í Búrfelli, beggja vegna Seljadalsár, upp með hinum forna Seljadalsvegi er lá áleiðis til Þingvalla áður en Konungsvegurinn 1907 kom til, yfir steinhlaðnar brýr norðan Leirtjarnar og vestan Silungatjarnar, að Nærseli, fjárborg skoðuð sem og gömul […]

Snókalönd – Stórhöfðastígur

Gengið var um hraunsvæðið sunnan Stórhöfða. Tilgangur ferðarinnar var m.a. að skoða Snókalöndin, óbrennishólma inni í Brunanum (Nýjabrun/Hábruna), sem mun heita eftir Nýjahrauni því er síðar var nefnt Kapelluhraun og rann árið 1151. Gömul gata liggur inn í Snókalöndin frá Stórhöfðastíg skammt sunnan Brunabrúnarinnar, milli hlaðins garðs á henni og hlaðins gerðis utan í hraunnefi […]

Straumssel – búseta

Almennt var hætt að hafa í seli eftir miðja 19. öldina víðast hvar á landinu og lagðist sá siður því af. Þó hélt einn og einn bóndi því áfram og eru heimildir fyrir því að Hvaleyrarbóndi hafi haft í seli við Hvaleyrarvatn lengst allra sem bjuggu í nágrenni Hafnarfjarðar. Oft voru selin ágætlega húsuð og […]

Grjóthleðsla I

Námskeið í „grjóthleðslu í gömlum stíl“ var haldið í Vogunum á vegum Miðstöð Símenntunnar á Suðurnesjum. Á námskeiðinu, sem tók tvo vinnudaga, var m.a. ætlunin að „hlaða frístandandi og fljótandi veggi úr náttúrulegu grjóti. Auk þess var ætlunin að kenna öll grundvallaratriði grjóthleðslu. Nemendur áttu að læra að hlaða horn og bogaveggi og að „toppa“ grjótvegg. […]

Brennisteinsfjöll – jarðfræði

Gengið var upp í Brennisteinsfjöll (Fjöllin) með það fyrir augum að endurfinna op á hraunhellunni norðnorðvestan Kistufells og staðsetja það. Opið fannst fyrir nokkrum árum, en virðst síðan hafa lokast. Þrátt fyrir ítrekaðar leitir hefur það ekki fundist á ný. Á loftmynd mátti og sjá op er gæti verið áhugavert norðan megin-hrauntraðarinnar úr Kistufellsgígnum. Þá […]

Gerði – Alfaraleið – Óttarsstaðasel

Gengið var vestur eftir Alfaraleiðinni frá Gerði, um Draugadali, frammeð Smalaskálahæð og að Gvendarbrunni undir Gvendarbrunnshæð. Þaðan var haldið spölkorn eftir leiðinni til vesturs uns komið var að gatnamótum Rauðamelsstígs eða Skógargötu, eins og hann stundum var nefndur, auk Óttarsstaðaselsstígs. Stígurinn liggur upp frá Óttarsstöðum, um Kothól og framhjá Borginni (Kristrúnarborg/Óttarsstaðaborg) og áfram upp Bekki […]

Garðahraun – Gálgahraun

Gengið var að Garðastekk eða Garðarétt undir vesturjaðri Garðahrauns. Hún er eitt elsta mannvirkið á Álftanesi. Þegar gengið var upp á hraunkantinn ofan við réttina kom nokkuð merkilegt í ljós – fjárborg, sú 90. sem FERLIR hafði til þessa skoðað á Reykjanesi. Hún er greinilega mjög gömul. Erfitt er að koma auga á hana, en […]

Grindavíkurkirkja gamla

Gamla Grindavíkurkirkja, við Kirkjustíg, varð aldargömul þann 26. september [2009]. Þennan dag árið 1909 var kirkjan vígð í Járngerðarstaðahverfi. Hönnuðurinn var Rögnvaldur Ólafsson. Hún þjónaði söfnuðinum allt þar til núverandi kirkja tók við hlutverki hennar 26. september 1982. Áður hafði kirkjustaðurinn verið á Stað í Staðarhverfi. Elstu skráðar heimildir um kirkju þar eru frá 1640. […]

Viðeyjarsel

Í Gömlubotnum (Lækjarbotna) er m. a. að finna tóftir bæjar Hallberu Jónsdóttur, en hún bjó skv. heimildum í Lækjarbotnum um 1870, auk Hallberuhellis. Þá er þar ekki síst að finna leifar tveggja selja; Örfiriseyjarsels og Viðeyjarsels (Bessastaðasels). Þess síðarnefnda er þó hvergi getið í fornleifaskráningum þrátt fyrir merkilegheitin – ekki einu sinni í skýrslu um […]