Entries by Ómar

Hraðaleiði – Egilsdys – Æsuleiði – Skeggjaleiði

Nokkur fornmannaleiði eru í Mosfellsbæ. Má þar nefna Þormóðsleiði í Seljadal, Hraðaleiði á mörkum Hraðastaða og Mosfells, Æsuleiði við Æsustaði, Skeggjaleiði hjá Skeggjastöðum, Úlfarsleiði í Úlfarsfelli, Reynisleiði við Reynisvatn og Egilsdys í Tjaldanesi neðst í Mosfellsdal. Samkvæmt aldagamalli sögn er Hraði, þræll sem fékk frelsi til forna og byggði Hraðastaði, heygður í Hraðaleiði og Þormóður, […]

Auðnar – Þórustaðir – Kálfatjörn – kotin

Gengið var frá Auðnum um Þórustaði og kotin í kringum Kálfatjörn skoðuð. Til hliðsjónar á göngunni var höfð bók Jóns Thorarensens frá Kotvogi, Litla skinnið. Í henni er ljóslifandi frásögn og lýsing Kristleifs Þorsteinssonar árið 1938 frá verinu, sjávarútvegi á Vatnsleysuströnd um 1880 og mannlífinu þar á þeim tíma. Hann lýsir auk þess bæjunum og […]

Melaberg – Másbúðir – Hvalsnes – Stafnes

Ætlunin var að ganga um bæjarkjarnana sunnan Fuglavíkur og norðan Básenda. Ýmiss örnefni á svæðinu gefa til kynna sögulega atburði fyrr á öldum, þjóðsagnakennd tákn og miklar mannvistarleifar. T.a.m. má enn sjá búsetu- og atvinnuminjar í Másbúðarhólma. Haft var og í huga að enn voru ófundnar tvær gamlar selstöður frá Hvalsnesi, sem getið er um […]

Menningararfur og ferðaþjónusta

Guðbrandur Benediktsson, deildarstjóri á Minjasafni Reykjavíkur – Árbæjarsafni, er jafnframt stundakennari við HÍ í sagnfræði, þjóðfræði og ferðamálafræði. Í kennslustund (2006) í fornleifafræði við Háskólann fjallaði hann m.a. um „menningararfinn og ferðaþjónustuna“. Kynnti hann einstök hugtök og skilgreiningar innan ferðamálafræðinnar er tengjast viðfangsefninu, s.s. ferðaþjónusta/-mennska, ferðamaður, ástæður ferða, hvatar, sjálfbærni og viðhorf ferðaþjónustunnar til menningararfsins. […]

Í Hafnarfirði á árum áður…

Braggar og herminjar U.þ.b. 12.000 braggar voru byggðir af Bretum og Bandaríkjamönnum á stríðsárunum og um 1000 hús úr timbri og steinsteypu fyrir eldhús og böð. Átta mánuðum eftir að herir Hitlers gerðu innrás í Pólland 1939 urðu Íslendingar varir stríðsins með beinum hætt. 10 maí 1940 fylltist landið Breskum hermönnum og hófu að koma […]

Innnes og Suðurnes

Í bókinni „Litla skinnið“ eftir Jón Thorarensen frá Kotvogi, útg. 1982, skrifar hann m.a. um Innnes og Suðurnes. Lýsingin er stutt, en fróðleg. “Hin ævaforna skipting milli Innnesja og Suðurnesja, sem var skýrt ákveðin alla tíð var þessi: INNNES frá Elliðaám að Hvaleyrarholti fyrir sunnan Hafnarfjörð. SUÐURNES frá Hvaleyrarholti að Selatöngum austan við Grindavík. Hluti […]

Sogin I

Í Trölladyngju eru hverir og ummyndun á skák sem nær austan frá Djúpavatni vestur á Oddafell. Hveravirknin fer minnkandi, en í Sogunum má enn sjá virka hveri. Sprengigígar og miklir gjallgígar eru í gossprungum þar sem þær liggja yfir ofannefnda skák. Ummyndun er mest í Sogunum þar sem stórt svæði er ummyndað af klessuleir. Vestan […]

Fjárborg, -hús, stekkur, skjólgarður og refagildrur ofan Höfða

Í bók Sesselju Guðmundsdóttur, „Örnefni og gönguleiðir í Vatnsleysustrandarhreppi (ofan Gamla-Keflavíkurvegarins)„, segir m.a. um fjárborg, fjárhús og stekk ofan Breiðagerðis og Höfða: „Rétt sunnan og ofan við vegamót Gamlavegar og Strandarvegar í Breiðagerði er Krummhóll með uppmjórri vörðu á og í framhaldi og upp af honum kemur svo Borg en það er langt holt nokkuð […]

Morð á Þórkötlustöðum og á Stað

Morð og manndráp eru engin nútímauppfinning, ekki einu sinni í fámennari byggðum landsins. Í „Sextándu öldinni“ er m.a. fjallað um morð, sem var framið á Þórkötlustöðum og aldarfjórðungi síðar á Stað:  „Maður var veginn á Þórkötlustöðum í Grindavík [1562], Guðmundur Sigurðsson að nafni, og voru þar að verki fjórir vistarmenn. Bóndinn Ketill Ketilsson, kom út […]

Ögmundarhraun – Mælifellsgreni

Ætlunin var að finna og skoða Mælifellsgrenin í Ögmundarhrauni. Gengið var suður með austurkanti Ögmundarhrauns uns komið var að grónu gerði utan í hraunkantinum. Uppi á hraunbrúninni skammt sunnar er há varða. Frá henni liggur stígur vestur í mosahraunið, að stórri vörðu, sem þar er. Þegar komið var að þeirri vörðu var aðara að sjá […]