Entries by Ómar

Brunnastaðarétt og Vigdísarvallarétt

Fyrrum var réttað í Brunnastaðarétt á Vatnsleysuströnd. Réttin sést vel á loftmynd frá árinu 1954, en í dag (2021) er hún nánast horfin af yfirborði jarðar. Í Úrskurði Óbyggðanefndar árið 2004 var lögð fram lýsing Sæmundar Þórðarsonar á Stóru – Vatnsleysu á smalamennskum á Vatnsleysuströnd og Vogum sem stjórnað var af hreppsnefnd. Þar lýsir Sæmundur […]

Bæjarsker – Grásteinn

Bæjarsker við Sandgerði hefur gengið undir ýmsum orðmyndunum í gegnum tíðina. Hítardalsbók frá 1367 greinir frá kirkju Ólafs konungs helga á Bæjarskerum. Jarðakaupabréf frá 1444 segir að Skúli Loftson hafi selt Hallsteini Höskuldssyni jörðina Þingnes i Borgarfirði í sextíu hundraða en Skúli leggur til á móti hálft Bæjarsker á Rosmhvalnesi, Hraunhafnarbakka á Snæfellsnesi og þar […]

Afréttarnot í Grindavík og Vatnsleysustrandarhreppi fyrrum

Hér á eftir verður fjallað um „Afréttarnot í Grindavík og Vatnsleysustrandarhreppi“ fyrrum. Upplýsingarnar eru fengnar úr skýrslu Óbyggðanefndar um sveitarfélögin frá árinu 2004. „Í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 1703 segir um Krýsuvík: „Afrjett fyrir jarðarinnar peníng nægileg, en er þó öngvum burtu ljeð. En Jarðabókin getur ekki annars staðar um afrétt í Grindavíkur- […]

Álaborgarrétt – Bæjarskersrétt

Tvær réttir eru ofan við Bæjarsker: annars vegar Bæjarskersréttin skammt ofan við Stafnesveginn og hins vegar Álaborgarréttin, sem er bæði eldri og nokkru ofar í Miðnesheiðinni. Staðsetningin á Álaborgarréttinni er n: 64,01,667 v: 22,41,077. Réttin er um 500-600 metra ofan við Stafnesveginn, upp af skógræktarreit sem hallar aðeins til suðurs. Veggir réttarinnar eru nokkuð heillegir, […]

Rockville – byrgi

Á Rockville-svæðinu svonefnda á Miðnesheiði, ofan við Sandgerði, er að finna allmargar minjar. Þar eru hin hlöðnu steinbyrgi fyrir tíma hersetunnar mest áberandi, auk nokkurra hrófa frá hennar tímum. Eitt þeirra er staðsett n: 64,02,421 v: 22,38,559. Það er skammt frá norðurenda við veginn sem liggur austan Rockville svæðisins. Þar er eldri uppgróinn vegur sem […]

Fornleifar og ferðaþjónusta á Íslandi – Orri Vésteinsson

Í seinni tíð hefur æ meir verið rætt um mögulega aðkomu fornleifafræðinga að kynningum og leiðsögn um minjastaði, hvort sem um er að ræða óraskaða eða staði sem er verið að rannsaka. Vaxandi áhugi er á meðal fornleifafræðinga að skoða hvort og hvernig er hægt að tengja saman starf þeirra og áhuga almennings á því. […]

Samspil skipulags við náttúrufarsþætti

Í bók Trausta Valssonar,“Skipulag byggðar á Íslandi – frá landnámi til líðandi stundar„, er m.a. fjallað um samspil skipulags við náttúrufarsþætti og hversu mikilvægt er að fulltrúar skipulagsyfirvalda taki tillit til náttúru- og umhverfisþátta: „Á Íslandi er meira um beint samspil mannlífs, atvinnulífs og byggða, við náttúruöflin en í flestum öðrum löndum. Þess vegna einkennast […]

Herdísarvík III – Ólafur Þorvaldsson

Ólafur Þorvaldsson lýsir hýsingu jarðarinnar Herdísarvík í Árbók Hins íslenska fornleifafélags árið 1948: „Nú skal minzt gömlu bæjarhúsanna, ásamt útihúsum, sem stóðu vestast á túninu á bakka tjarnarinnar. Öll eru hús þessi nú horfin. Á þessum umgetna stað við tjörnina mun Herdísarvíkurbærinn, ásamt fleiri og færri útihúsum hafa verið búinn að standa um aldir. Þess […]

Herdísarvík II – Ólafur Þorvaldsson

Eftirfarandi fróðleikur um örnefni í Herdísarvíkurlandi eftir Ólaf Þorvaldsson birtist í Árbók Hins íslenska fornleifafélags árið 1948: „Austasta örnefni í Herdísarvík með sjó er Breiðibás. Hann er að finna með því, að ganga um 8 mínútur austur með sjó frá eystra túninu. Vestar en í miðjum Breiðabás, sem er allvítt malarvik milli hraunflúða, sem ganga […]

Herdísarvík I – Ólafur Þorvaldsson

Eftirfarandi frásögn Ólafs Þorvaldssonar um jörðina Herdísarvík birtist í Árbók Hins íslenska fornleifafélags árið 1948: „Jörðin Herdísarvík er vestasti bær í Selvogshreppi og þar með vestasti bær í Arnessýslu með sjó fram. Jörðin liggur fyrir botni samnefndrar víkur, og er hún vestast í vogi þeim, er Selvogur heitir, allvíður og bogamyndaður, gengur inn í landið frá […]