Botnsdalur

Við gatnamót gamla þjóðvegarins um Botnsdal í Hvalfirði og Botnsdalsvegar er skilti með yfirskriftinni „Pílagrímsleiðin í Skálholt„. Þar segir:

Botnsdalur

Pílagrímsleiðin – skilti.

„Um Botnsá, sem kemur úr Hvalvatni, var frá öndverðu sýslu og fjórungamörk.

Í Landnámu segir að írskur maður, Ávangur að nafni, hafi verið landnámsmaður í Hvalfirði og búið í Botni. Hafi þá verið þar svo mikill skógur að hann hafi smíðað sér hafskip og hlaðið skip sitt þar sem nú heitir Hlaðhamar. Við getum dregið þessa frásögn í efa, en þó er vísta að framburður Botnsár hefur myndað grynningar þar sem áður var aldjúpt. Og þó að Ávangur hafi ekki getað höggvið nægan trjávið í haffæran knerri, þá er ekki ólíklegt að hann hafi getað smíðað kúða (e. curragh) að írskum hætti, þar sem skinn er strengt á viðargrind.

Ávangur hefur verið kristinn maður og áreiðanlega reist bænhús á bæ sínum. a.m.k. var hálfkirkja í Stóra-Botni og er þar enn þekkt örnefnið Kirkjuhóll.

Tvívörður

Tvívörður.

Um 200 metrum hér utar, vestan við Brunná, liggur gamla þjóðleiðin um Síldarmannagötur yfir Botnsheiði. Á vatnaskilum við Tvívörður skiptist leiðin til vesturs og austurs. Fer vestari leiðin niður að Vatnshorni í Skorradal, en eystri leiðin liggur niður með Löngugötugili að Fitjá. Stór varða sem nefnist Guðjón markar upphaf leiðarinnar hér við Botnsvog. Í henni er box þar sem finna má upplýsingar um leiðina og nágrennið.

Pílagrímsmerkið

Pílagrímsmerkið

Pílagrímsmerkið.

Þetta merki hefur verið notað til að auðkenna upplýsingaskilti og stikur sem marka nú leiððina frá Bæ í Borgarfirði í Skálholt. Það er afbrigði af pílagrímsmerki Norðamanna sem markar Ólafsveginn, leiðina frá Osló til Niðaróssdómkirkju og aðra pílagrímsvegi í Noregi sem enda nið Niðarósdómkirkju. Svíar nota norska pílagrímsmerkið á sínum pílagrímsleiðum. Krossinum hefur verið breytt á íslenska merkinu með góðfúslegu leyfi frá Pílagrímsmiðstöðinni í Niðarósi (Þrándheimi) og Riksarkivet í Osló, sem er eigandi að höfundarrétti þess.
Embætti Biskups Íslands gekk frá kaupum á notkunarrétti merkisins í ágúst árið 2000.“

Síldarmannagötur

Síldarmannagötur

Guðjónsvarða – Upphafsvarðan var hlaðin af Guðjóni Kristinssyni frá Dröngum á Ströndum, en Síldarmannagötur voru varðaðar og stikaðar á árunum 2000 og 2003 af hópi sjálfboðaliða.

Heitið „Síldarmannagötur“ er talið hafa orðið til í tengslum við nytjar Borgfirðinga og annarra sem fóru um heiðina í Hvalfjörð til að veiða og nytja síld, þegar síldarhlaup komu í Hvalfjörð. Heitið „Hvalfjörður“ hefur verið tengt við hvalagöngur, en sumir hvalir elta uppi síldartorfur. Síðast er vitað um miklar síldargöngur í Hvalfjörð veturinn 1947-48, er „hundruð báta mokuðu upp þessu silfri hafsins nótt og dag.“ (Heimild: Byggðir Borgarfjarðar II, 1989. Búnaðarsamband Borgarfjarðar, s. 10). Í árbók FÍ frá 1950 segir að í Grafarvogi við Reykjavík séu leifar af fornum garði, kenndum við „síldarmenn“. Garðurinn er hlaðinn þvert á voginn. Leiða menn að því líkur að garðurinn hafi verið notaður til styrktar við ádrátt og síldin síðan hirt þegar fjaraði frá. Ætla má að síldartorfur hafi verið veiddar með svipuðum hætti í Botnsvogi.

Botnsdalur

Pílagrímsleiðin – kort á skiltinu sem sýnir leiðina frá Botni að Þingvöllum; leiðina um Leggjarbrjót.

Þvottahellir

Við Þvottahelli í Botnsdal, skammt frá gönguleiðinni að Glym, er skilti með yfirskriftinni „Þvottahellir„. Á því eru eftirfarandi upplýsingar:

Þvottahellir

Þvottahellir.

„Þjóðsagan segir að nafn fossins Glyms sé þannig til komið að álfkona hafi breytt manni sem sveik hana í tryggðum í hvalinn Rauðhöfða. Þá hafi Rauðhöfði tekið að granda bátum á Faxaflóa. Í Hvalfirði fórust með einum bátnum tveir synir prestsins í Saurbæ. Þá hafi presturinn, sem var orðinn gamall og blindur, gengið með hjálp dóttur sinnar niður að sjávarmáli og tyllt staf sínum í sjóinn. Þá kom Rauðhöfði syndandi og teymdi presturinn hann inn í Botnsvog og upp eftir Botnsá.

Þvottahellir

Í Þvottahelli.

Þegar komið var í glúfrið þar sem fossinn fellur á að hafa verið svo þröngt að jörðin hafi hrist og drunur hljómað, og af því dragi Glymur nafn sitt. Rauðhöfði endaði í Hvalvatni og er sagt að hann hafi sprungið að áreynslunni.“

Í örnefnalýsingu fyrir Stóra Botn segir: „Austan við Gamlastekk í árgljúfrinu er Þvottahellir. Stór steinn á gljúfurbarminum vísar veginn að hellisopinu. Í þessum helli var stundum í ótíð þurrkaður þvottur“. Hellisins er ekki getið í fornleifaskráningu af svæðinu.

Þvottahellir

Í Þvottahelli.

Botnsdalur

Við bílastæði ofan Stóra-Botns í Botnsdal er skilti með yfirskriftinni „Gönguleið að útsýnisstöðum við Glym„. Þar segir:

Glymur

Glymur.

„Glymur í Botnsá er hæsti foss Íslands, um 198 metra hár. Botnsá rennur úr Hvalvatni og steypist úr um 300 m hæð yfir sjó niður í stutt en mjög djúpt gljúfur niður í Botnsdal. Hvalvatn er annað dýpsta stöðuvatn landsins, um 160 metra djúpt.

Gestum er velkomið að ganga – á eigin ábyrgð – eftir merktum stígum upp að útsýnisstöðunum Steðjanös og Hellupalli, þaðan sem fallegt er að horfa á fossinn falla niður í Gllymsgljúfur. Þeir sem vilja skoða gljúfrið og efri hluta fossins geta gengið áfram upp með glúfrinu. Fossinn sést ekki allur þótt nær sé farið, en heildarsýn ofan í gljúfrið er betri ofar við fossinn. Síðan er annað hvort gengið sömu leið niður eftir stígnum eða vaðið yfir ána um 300 m fyrir ofan fossinn. Þaðan er gengið niður vestan gljúfursins, eða auðveldari slóða vestur heiðarbrúnina og niður Svartahrygg.

Glymur

Glymur að haustlagi.

-Góðir gönguskór eru nauðsynlegir.
-Leiðin að Glym er ekki hættulaus, þar sem bergið er víða laust í sér. Göngumenn ferðast á eigin ábyrgð.
-Víða er falhætta, sérstaklega þegar hált er og snjór og bleyta.
-Staur liggur yfir ána frá vori fram á haust, þannig að hægt er að ganga yfir þurrum fótum, nema í vatnavöxtum þarf að vaða að staurnum vestanmegin, þegar það er hægt. Hann er þó tekinn niður yfir veturinn vegna hálkuhættu á stígnum vegna snjóa, íss og aurbleytu og flóða sem gætu brotið hann. Staurinn getur verið blautur og háll – á öllum árstímum – og er ekki fyrir lofthrædda.

Þvottahellir

Þvottahellir (2). Í örnefnalýsingu fyrir Stóra Botn segir: „Austan við Gamlastekk í árgljúfrinu er Þvottahellir. Stór steinn á gljúfurbarminum vísar veginn að hellisopinu. Í þessum helli var stundum í ótíð þurrkaður þvottur“.

-Fossin sést aðeins austan árinnar og því þarf að fara yfir hana til að sjá hann.
-Áætlaður göngutími að Þvottahelli – og til baka; 1 klst.
-Áætlaður göngutími að útsýnisstöðunum Steðjanös og Hellupalli – og til baka; 3 klst.
-Mögulegt er að vaða yfir grýtta ána um 300 m fyrir ofan fossinn. Þá er gott að hafa vaðskó meðferðis. Síðan er gengið niður vestan gljúfursins, eða auðveldari slóða vestur heiðarbrúnina og niður Svartahrygg.
-Að bílastæðinu frá vaðinu er jafnlangt, um 3.5 km, hvort sem farið er vestan gljúfursins eða vestur slóðann Svartahryggsleiðina. Gönguleið um vaðið er 7.1 km.
-Frá bílastæði að vaði eru 3.6 km ef farið er austan árinnar að Glym.
-Göngum vel um landið.“

Glymur

Glymur – gönguleið.

Straumur

„Bærinn Straumur í Hafnarfirði er einn svokallaðra Hraunabæja á strandlengjunni milli Straumsvíkur, þar sem álverið stendur, og Vatnsleysuvíkur Þetta myndarlega burstalaga hús með fallegri tjörn fyrir framan og hraunið áberandi í umhverfinu blasir við þeim sem aka til Keflavíkur og er augnayndi öfugt við hið tröllvaxna álver sem áður er ekið fram hjá.

Straumur

Straumur.

Sá sem byggði húsið árið 1926-7 var Bjarni Bjarnason skólastjóri Barnaskóla Hafnarfjarðar. Hann bjó hér og rak jafnframt stórt bú í Straumi á þeirra tíma mælikvarða, hafði 14 kýr í fjósi og mikinn sauðfjárbúskap. Arkitektinn var enginn annar en Guðjón Samúelsson. Og það var engin tilviljun. Bjarni var einn af nánustu stuðningsmönnum Jónasar Jónssonar frá Hriflu, einkavinar Guðjóns, enda var Bjarni skipaður skólastjóri Héraðsskólans á Laugarvatni eftir að skólinn tók til starfa 1930 og var það næstu áratugi. Aðrir tóku því við Straumi. Þar var meðal annars lengi rekið svínabú.

Bjarni Bjarnason

Bjarni Bjarnason (1889 – 1970).

Árið 1959 keyptu þeir Kristinn Sveinsson byggingarmeistari og Bjarni Blomsterberg kaupmaður Staum og ráku svínabúið eftirleiðis nema Sigurjón Ragnarsson í Hressingarskálanum keypti hlut Bjarna eftir fjögur ár og rak það síðan með Kristni. Auk svínabússins ráku þeir félagar einnig kjúklingabú þegar frá leið. Vegna mengunar frá álverinu að sögn varð svo að hætta öllum rekstri í Straumi árið 1977 og jörðin fór í eyði. Húsin dröbbuðust niður.

Breyting varð árið 1989. Þá var stofnuð Listamiðstöð í Straumi í samvinnu Hafnarfjarðarbæjar og Hugsjónafélagsins Straums og húsin voru smám saman gerð upp. Aðalmaðurinn í þessu var Sverrir Ólafsson myndhöggvari og veitti hann Listamiðstöðinni í Straumi forstöðu til 2001. Fjölmargir listamenn fengu aðstöðu í henni um lengri eða skemmri tíma.

Haukur Halldórsson

Haukur Halldórsson (1937 – 2024).

Einn af þeim var Haukur Halldórsson sem gerði líkanið af Edduheimum í Straumi en þar hafði hann lengi vinnustofu ásamt Sverri Erni Sigurjónssyni þar sem þeir stofnuðu saman Víkingahringinn. Bar lengi vel mest á listaverkum Hauks í Straumsbænum. Að lokum gufaði Listamiðstöðin upp.

Árið 2018 seldi Hafnarfjarðarbær Straum. Kaupandi var fasteignafélagið Sverð og skjöldur í eigu Eyþórs Guðjónssonar.“

Heimild:
-Guðjón Friðriksson.

Straumur

Straumur 1935.

Svartagil

Hér verður fjallað um tvo bæi í ofanverðri Þingvallasveit til forna, þ.e. Svartagil og Múlakot.

Svartagil

Svartagil

Svartagil – bæjarstæðið.

Svartagil er eyðibýli og stórt gljúfur í Þingvallasveit, staðsett við suðvestanverðar rætur Ármannsfells. Það er staðsett í krika undir Ármannsfelli framan við samnefnt gil og er umlukið Sláttubrekkum í vestri og Bæjarfelli í austri. Eyðibýlið er kennt við gilið og stendur það framan og neðan við gilið. Austan við Svartagil er annað gil sem nefnist Klömbrugil. Staðurinn liggur tæpa 7 kílómetra frá Þingvallabænum og afleggjarinn þangað beygir út af Kaldadalsvegi til vinstri, skammt frá Skógarhólum. Samkvæmt munnmælum hét bærinn áður Vegghamrar. Svartagil var lengst af hjáleiga frá Þingvallabænum. Vitað er um búsetu þar allt frá upphafi 17. aldar. Byggðin var þó mjög stopul vegna lítilla landgæða í hrauninu.
Síðasti bærinn sem búið var í á staðnum brann til kaldra kola í október 1957. Þar með lagðist búseta endanlega af.

Svartagil

Svartagil – bæjarstæðið.

Sjálft Svartagilið er um 2,5 kílómetra langt. Það teygir sig djúpt inn í Ármannsfellið, norðan við Stórhól. Leysingafarvegur liggur um gilið og fínna má vatnsuppsprettu við gilsmynnið.

Vitað er um búsetu í Svartagili allt aftur til upphafs 17. aldar. Þá var staðurinn sel frá Þingvöllum. Síðar uppbyggð sem kot og stundum í byggð, en oftast í eyði. Ekki er óhugsandi að mannabyggð hafi verið í Svartagili löngu fyrr, þótt engar ritaðar heimildir geti þess. Samkvæmt munnmælum var eldra nafn bæjarins Vegghamrar, sem fyrr getur.

Svartagil

Svartagil – bæjarstæðið.

Svartagil var lengst af hjáleiga í óskiptu landi Þingvallabæjar en átti slægjur í Mýrarkrók og skógarnytjar í Bolabás. Fjárhús [beitarhús] átti hjáleigan á 19. öld við eyðibýlið Múlakot undir Fjárhúsamúla og stekkur bæjarins var í Stekkjardal ofan í Bæjarfelli. Svartagil varð síðar sjálfstætt býli eftir þjóðgarðmyndun. Eftir brunann voru bæjarhúsin rifin ári síðar. Þar eru nú einungis óljósar tóftir.

Bæjarhús Svartagils á 20. öld hafa staðið í túnjaðrinum við rætur Sláttubrekkna.

Svartagil

Svartagil – óljósar mannvistarleifar við Tungu.

Stórt fjárhús var við bæjarhlaðið, þar sem akslóðinn endar nú. Bæjarlækurinn rennur um túnið norðan bæjarhúsana og fram hjá hringmynduðum bletti er nefnist Tunga. Það er að öllum líkindum manngerður rústahóll og vel má vera að eldri bæir í Svartagili hafi verið reistir þar. Ræktað tún er ríflega sex hektarar að flatarmáli og framan við það er talsvert mýrlendi. Lágur garður umgirðir nyrðri hluta túnsins og í austri er það afmarkað af lækjum úr Svartagili og Klömbrugili.

Svartagil var áður nálægt helstu alfaraleiðum til Þingvalla. Það er skammt frá upphafi Gagnheiðarvegar, sem liggur yfir Gagnheiði, og kippkorn norðan leiðarinnar yfir Leggjabrjót. Akslóði liggur frá Svartagilsbænum meðfram Bæjarfelli og sameinast brátt alfaraleiðum undir Ármannsfelli nálægt Skógarhólum.

Svartagil

Svartagil – stekkur í Stekkjardal.

Við skoðun Svartagils 2026 blasti fyrst fyrir gróinn bæjarhóllinn. Í honum hafa greinilega verið matjurtargarður og útihús. Bæjarlækurinn rennur vestan við tóftirnar og hefur safnast í tjrön í túninu sunnan þeirra. Þar á bakkanum mótar fyrir fyrrgreindum, nánast jarðlægum, rústarhól

Slóði liggur frá bænum að Stekkjardal. Þar nyrst í dalnum eru stekkjartóftir. Við skoðun á þeim virtist sem stekkurinn hafi verið byggður síðar upp úr tóftum eldri selstöðu. Greina má þar þrjár byggingar. Sú vestasta, og heillegasta, virðist hafa verið endurnýtt sem og hluti úr annarri fast austan hennar. Enn austar virðist vera lítil bygging, greinilega mjög forn. Þar gæti fyrrum hafa verið eldhúsið í meintu seli. Þekkt er að fyrrum minjar hafi verið endurnýttar að teknu tilliti til nýrra þarfa.

Svartagil í frumheimildum

Svartagil

Svartagil – stekkur er gæti hafa verið byggður upp frá eldri selstöðu frá Þingvallabænum. Uppdráttur ÓSÁ.

Svo segir í máldagakveri Odds biskups Einarssonar frá um 1600 (AM 66 a 8 vo.): „Miðfell 20 # jörð forðum, Sk[álholtskirkjujörð]. Kúg. nú ekke[rt]. Mjóanes b.b. 5 Vatnskot og Brandskot, hjáleigur frá Þingvöllum. Svartagil er sel frá Þingvöllum, stundum byggt en oftast í eyði. Brúsastaðir, Kárastaðir, Stíflisdalur eru kirkjujarðir frá Þingvöllum. Skálabrekka b.b. Item Heiðarbær. Nesjar veit ég ekki hvört þangað liggur eða til Úlfljótsvatns.“

Svo segir í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711, bls. 367: „Svartagil, hjáleiga frá Þingvallnastað, bygð í staðarins landi. Dýrleikinn er óviss. Ábúandinn Jón Jónsson. Landskuld er xl álnir og hefur svo verið í 27 ár, þar fyrir var landskuld xxx álnir, því kotið var þá bygt upp úr eyðibýli, og stóð sú xxx álna landskuld um 5 ára tíð, en þá kotið ræktaðist upp, var landskuldin framfærð.““

Múlakot

Múlakot

Múlakot – loftmynd 2019.

Múlakot í Þingvallasveit (einnig kallað Mosastaðir) er eyðibýli og sögulegur staður staðsettur innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Múlakot er undir Ármannsfelli. Það er staðsett í krika vestan Fjárhúsamúla og dregur nafn sitt af honum. Vestan Múlakots eru Skógarhólar og þar fyrir neðan er Þingvallarétt. Rústirnar liggja í krika vestan við Fjárhúsamúli og suður af Sleðási, rétt undir hinu þekkta Ármannsfelli. Samkvæmt Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns var kotið aðeins byggt í eitt ár í kringum 1680–1681. Bærinn var upphaflega reistur og útbúinn upp úr fjárhúsum frá Svartagili, sem þá var komið í eyði. Vestan við rústir Múlakots eru Skógarhólar og skammt neðan við þá er gamla Þingvallaréttin. Á svæðinu má sjá greinilegar leifar og tættur af tveimur fjárhúsum sem snúa norður-suður og tilheyra líklega 19. eða 20. öld. Staðurinn var sögulega talinn hjáleiga frá Þingvöllum.

Múlakot

Múlakot – uppdráttur ÓSÁ.

Í Múlakoti ber helst á framangreindum tveimur fjárhúsum frá 19. eða 20. öld. Bæði snúa þau frá norðri til suðurs og er það eystra talsvert smærra. Vestara fjárhúsið skiptist í tvennt og hefur hlöðu við norðurgaflinn. Við norðausturhorn þess vottar fyrir eldra mannvirki, afar litlu, sem gæti hafa verið 17. aldar bærinn.
Mannvirki þessi standa innan eða ofan á sporöskjulaga garðlagi sem mælist um 32×40 metrar að stærð. Ekkert er vitað um aldur þess eða hvort það hafi yfir höfuð verið reist samtíma Mosastöðum. Garðlagið er áhugavert sökum þess hve fáar hliðstæður það hefur í Þingvallasveit.

Múlakot

Múlakot – beitarhús.

Litlar sem engar fornleifarannsóknir hafa farið fram í Múlakoti, sem var friðlýst árið 1927, utan vettvangsathugana. Staðurinn gæti þó veitt mikilvæga innsýn í byggðarsögu Þingvallasveitar. Má í því samhengi nefna að í 14. kafla Hænsna-Þóris sögu hafi alþingi verið haldið undir Ármannsfelli eitt árið og er þess einnig getið í kirknatali Páls Jónssonar frá um 1200. Í einni útgáfu kirknatalsins frá 17. öld (Stockh. Papp. 8:vo nr. 25) er sagt að kirkja hafi staðið undir Ármannsfelli og sjáist tóftir hennar þar enn. Langsótt gæti reynst að kanna sannleiksgildi þessara frásagna – og eru hér líklegast jarðbundnari útskýringar undir sverði – en þó er eitthvað sem tengir þinghald við rætur Ármannsfells og hægt væri að kanna nánar.

Múlakot

Múlakot – beitarhús.

Við skoðun á Múlakoti 2026 virtist fjárhúsið (beitarhúsið) frá Svartagili hafa verið byggt inn í eldra bæjarstæði Múlakots. Veggir beitarhússins að vestanverðu virðast nýrri en þeir að austanverðu, sem virðast hafa verið leifar kotsins. Að framan er getið fjárhústóftar austan við beitarhúsið frá Svartagili. Sú fjárhústóft er augljóslega mun eldri en beitarhúsið. Út frá henni til suðurs er hlaðinn leiðigarður, nú að mestu gróinn.

Múlakot í frumheimildum

Múlakot

Múlakot – útihús.

Svo segir í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711, bls. 366–367: „Múlakot er kallað örnefni upp undir Ármannsfelli austan fram, það var fyrir 30 árum bygt um eins árs tíð, og var þá bygt upp úr fjárhúsum frá Svartagili. Aldrei meinast þar fyrri bygð verið hafa, og ekki nema um þetta eina ár, hefur það og allajafna síðan í auðn verið. Svartagil var þetta ár í eyði, og hafði Múlakots ábúandinn það þá til slægna, og því meinast landskuldin og leigukúgilda fjöldinn þar þá verið hafa hið sama sem nú er á Svartagili. Þetta kot hefur og verið kallað Mosastaðir [þessi setning er rituð út á rönd].“

Múlakot

Múlakot – eystra fjárhúsið.

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1980–1985: „Á múlanum sem [Múlakot] og fjárhúsin voru undir, hef ég heyrt fleiri en eitt nafn. Básmúli, Kotmúli og Fjárhúsamúli. Væri ekki rétt að nefna hann eftir hollvætti sveitarinnar og kalla hann ÁRMANNSMÚLA. Munnmæli herma, að oft hafi sézt ljós í hlíðinni fyrir ofan Skógarhóla og óvenju bjartar stjörnur skinu yfir Ármannsfelli.“
Pétur merkti múlann, er hann kallaði Húsmúla, inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Sú loftmynd, eins dýrmæt og hún er, sem afhent var Þjóðgarðinum á Þingvöllum og Örnefnastofnun, virðist því miður með öllu glötuð.

Þrátt fyrir allt framangreint eru bæði Svartagilsbærinn og Múlakot ranglega skráð inn á hinu opinberu kort.

Heimildir
-Ásgeir Jónasson. (1939). Örnefni í Þingvallahrauni. Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937-1939, 147–161.
-Guðmann Ólafsson. (1982). Afréttur Þingvellinga. Athugasemdir og viðbætur [Guðrún Þóra Guðmannsdóttir skráði]. Örnefnastofnun Íslands.
-Kristján Jóhannsson. (e.d.). Örnefni í Hrauntúnslandi og afrétti Þingvallahrauns [Óbirt efni]. Örnefnastofnun Íslands/Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
-Pétur J. Jóhannsson. (e.d.). Þingvallaþankar og lýsing eyðibýla. Örnefnastofnun Íslands.
-Þorsteinn Bjarnason. (e.d.). Afréttur Þingvallasveitar. Örnefnastofnun Íslands.
-AM 66 a 8 vo.
-Björn Pálsson. (1979). Þingvalla- og Úlfljótsvatnssóknir. Í Árnessýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1843 og lýsing Ölfushrepps anno 1703 eftir Hálfdán Jónsson (bls. 171–192). Sögufélag.
-Gunnar Þórisson & Pétur J. Jóhannsson. (1983). Þingvallasveit, sveitarlýsing. Í Sunnlenskar byggðir III (bls. 171–216). Búnaðarsamband Suðurlands.
-Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. 2. bindi: Árnessýsla. (1981). Sögufélag.
-Kristján Jóhannsson. (e.d.). Örnefni í Svartagilslandi [Óbirt efni]. Örnefnastofnun Íslands/Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
-Svartagil. (e.d.). [Heimildamaður ókunnur, Guðjón Friðriksson skráði]. Örnefnastofnun Íslands.
-Diplomatarium Islandicum. Íslenzkt fornbréfasafn, sem hefir inni að halda bréf og gjörninga, dóma og máldaga, og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn. (1923) (12. bindi). Hið íslenzka bókmenntafélag.
-Gunnar Grímsson. (2024). Týndu eyðibýlin í Þingvallahrauni. Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 112, 27–58.
-Íslenzk fornrit III: Borgfirðinga sögur. (1938). Sigurður Nordal og Guðni Jónsson bjuggu til prentunar. Hið íslenzka fornritafélag.
-Matthías Þórðarson. (1945). Þingvöllur – Alþingisstaðurinn forni. Alþingissögunefnd.
-Sveinbjörn Rafnsson. (1993). Páll Jónsson Skálholtsbiskup. Nokkrar athuganir á sögu hans og kirkjustjórn. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands.

Múlakot

Múlakot.

Þingvellir

Sunnan við Þingvallaveg, skömmu áður en komið er að gatnamótunum frá Mosfellsdal að Fræðslumiðstöðinni á Hakinu, eru tvö skilti. Á öðru er fátæklegt yfirlitskort af Þingvöllum og óljósar myndir sem væntanlega er ætlað að útskýra nánar á hinu skiltinu er bara annað fátæklegt kort, auk texta, sem ber yfirskriftina „Velkomin í þjóðgarðinn á Þingvöllum„. Þar segir:

Þingvellir

Þingvellir – skilti.

„Saga íslands og íslensku þjóðarinnar kemur hvergi betur fram á einum stað en á Þingvöllum við Öxará. Þar var Alþingi stofnað um 930 og var það haldið all fram til ársins 1798. Meginviðburðir Íslandssögunnar, svo sem kristnitakan árið 1000 og lýðveldisstofnunin árið 1944 gerðust þar, og því skipa Þingvellir sérstakan sess í hugum Íslendinga. Þingvellir eru nú friðlýstur þjóðgarður og segir í lögum að hið friðlýsta land skul vera undir vernd Alþingis og ævinlega eign íslensku þjóðarinnar. Árið 2004 voru Þingvellir samþykktir á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.

Þingvellir

Þingvellir – kort á skilti.

Þingvellir eru náttúruundur á heimsmælikvarða. Jarðsagan og vistkerfi Þingvallavatns mynda einstaka heild þar sem hið stöðuga grunnvatnsrennsli er undirstaða fjölbreytts lífríkis og gróður. Vatnasvið Þingvallavatns er um 1300 ferkílómetrar að stærð og hefur að geyma auðlindir fyrir komandi kynslóðir; hreint og tært vatn og háhita sem virkjaður er á Nesjavöllum. Þingvallasvæðið er á flekaskilum Atlantshafshryggjarins og bera gjár og sprungur svæðisins gliðnun jarðskorpunnar vitni.“

Þingvellir

Þingvellir – kort á skilti.

Kaldársel

Gengið var frá húsi K.F.U.M. og K. Ætlunin var að ganga til suðurs að Kaldá, þar sem hún rennur neðan við húsið, og yfir göngubrú, sem þar er á henni með stefnu eftir Kúastígnum að Kýrgili.

Kaldársel

Kaldárssel – uppdráttur ÓSÁ.

Kaldá rennur þar á mótum tveggja hrauna. Annað hraunið rann úr suðri um 1151, en hitt rann úr Búrfelli löngu fyrr eða fyrir u.þ.b. 4750 árum, norðaustan af Kaldárseli. Tóftir selsins voru nokkurn veginn þar sem viðbygging Kaldársels er nú svo og sunnan hennar, ofan árbakkann. Þar má enn sjá móta fyrir garðhleðslum. Sunnan árinnar, á hægri hönd þegar farið er yfir Kaldá, má einnig og sjá tótt á árbakkanum. Eftir stutta göngu að girðingu framundan er komið inn á hluta gömlu Krýsuvíkurleiðanna; Dalaleiðar er lá upp um Kýrgil og áfram til suðurs austan Undirhlíða, og Undirhlíðarvegar er lá áfram til suðurs vestan Undirhlíða, allt að Ketilsstíg yfir Sveifluháls. Sameiginlegi hlutinn er augljós í Kaldárhrauninu og auðvelt að fylgja honum í átt að Kaldárselshnjúkum. Við hnjúkana greindist Krýsuvíkurvegurinn, sem fyrr segir, annar lá upp fyrir Undirhlíðar, Dalaleiðin, og hinn út með Hlíðunum.

Kaldársel

Kaldárssel; hús KFUM og selsrústirnar.

Gamli bærinn í Kaldárseli stóð á túnblettinum, sem núverandi hús stendur á, þ.e. suðaustan við eldra húsið, á móts við miðju þess nýrra er snýr að árbakkanum. Áður tilheyrði landið Garðakirkju og hafði hún þar í seli fram til ársins 1836. Frá árinu 1873 hafði Hvaley þar leigusel. Sel Garða voru flest í Selgjá vestan Búrfellsgjár. Enn sjást þar tóttir selja með hraunbarminum beggja vegna, einkum að sunnanverðu, svo og fallegir fjárhellar, bæði í gjánni og efst í Urriðavatnshrauni. Hafnarfjarðarbær keypti árið 1912 allmikinn hluta af Garðakirkjulandi, Kaldársel þar með.

Kaldársel

Tóftir Kaldársels framan við núverandi hús.

Elsta heimild um Kaldársel er í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1703. Þar segir að Hvaleyri eigi selstöð þar sem heitir Hvaleyrarsel suður af Hvaleyrarvatni í Selshöfða, auk selstöðvar í Kaldárseli. Aðrir munu ekki hafa nýtt það sel. Þegar Hvaleyrarbóndi hætti selförum að Kaldárseli lagðist selstöð þar niður með öllu, annað hvort 1865 eða 1866.

Í húsvitjunarbók Garða má sjá að árið 1867 er kominn ábúandi í Kaldársel. Hann hét Jón Jónsson, en hann var þar stutt. Eftir það lagðist búskapur niður um nokkur ár.

Selgjá

Selgjárhellir. Einnig nefndur Þorsteinshellir.

Árið 1876 kom þangað Þorsteinn Þorsteinsson eða Þorsteinn í Selinu, eins og hann var jafnan nefndur. Enn er efst í Heiðmörkinni fallegur fjárhellir, Þorsteinshellir, sem lengi var talinn týndur. Þorsteinn var nokkuð sérkennilegur í háttum. Á hans tíma voru í Kaldárseli nokkar byggingar, matjurtargarður, sem lá frá bænum niður að ánni mót suðri og vörslugarður. Bæjarhús voru lítil en snoturlega byggð. Í því var baðstofa, búr, eldhús og bæjardyr. Tætturnar voru allar vel hlaðnar úr sléttum og þykkum hraunhellum, en hvergi mold eða torf á milli, svo sem venja var.

 

Kaldársel

Tóft vestan við núverandi hús í Kaldárseli.

Jón Guðmundsson á Setbergi keypti húsin í Kaldárseli sem og kindur. Þau voru öll rifin, nema baðstofan, sem stóð uppi fram undir aldamót. Hún var einkum notuð sem sæluhús fyrir fjármenn Setbergsbænda, sem þá fengu þar afdrep á ferðum sínum.  Haustleitarmenn Grindvíkinga leituðu alla leið að Kaldá og höfðu náttstað í Kaldárselisínu, einkum sauðum, víðs vegar þar í högum. Einnig var gott fyrir Krýsvíkinga að hafa þarna afdrep. Þá var mikil umferð útlendra ferðamanna til Krýsuvíkur, einkum til að skoða hinar nýyfirgefnu brennisteinsnámur, sem þar voru. Þeir gistu margir í Kaldárseli. Baðstofan bar þess merki. Í sperrur og súð voru skorin ófá mannanöfn af ýmsum þjóðernum.

Kaldársel

Kaldársel – fyrsti skáli K.F.U.M. Kaldársel sést aftan við húsið.

Að liðnum aldamótum 1900 var ekkert hús lengur í Kaldárseli. Ferðum útlendinga fækkaði, Krýsvíkingar týndu ört tölunni, fjallleitir Grindjána styttust og hið stóra Setbergsheimili tvístraðist. Og fénaðurinn hvarf úr högunum.
Árin 1906-1908 fékk Kristmundur Þorláksson Kaldársel til afnota, síðar stórbóndi í Stakkavík. Hann kom upp smáheyhlöðu í Kaldárseli fyrir sínar 50 kindur með því að byggja yfir hina gömlu baðstofutótt, sem þá stóð enn ófallinn. Þá byggði hann þar lambahús. Ekki hafði hann not af gömlu tóttunum að öðru leyti en því að hann gat nýtt úr þeim hraunhellurnar, sem hann gerði af miklum dugnaði. Kristmundur lá við í Hafnarfirði, en fór fótgangandi um veturinn beitarhúsaveginn í Kaldársel í myrkri kvölds og morgna.

Kaldársel

Kaldársel – fjárskjól.

Ærnar hafði hann við gömlu hellana, sem eru skammt norður af Selinu. Lömbin voru í húsi, en músin vildi leggjast á þau. Kristmundur flutti loks fé sitt í Hvassahraun þar sem honum bauðst vist. Hann var því síðasti bóndinn í Kaldárseli.
Framundan eru Kaldárhnjúkar Syðri. Hlíðin á vinstri hönd og hraunið á þá hægri. Eftir stutta göngu er gengið framhjá Kúadal, en talið er að selssmalinn hafi rölt kvölds og morgna um þessa sömu götutroðninga með kýr úr og í haga. Vestan Kúadals taka Undirhlíðarnar við. Gengið er framhjá Kýrskarði og áfram útfyrir Múla á hægri hönd. Þar á horninu er hellisskúti er nefnist Árnahellir, kenndur við Árna Gíslason í Brekkubæ í Hafnarfirði.

Kaldársel

Kaldársel – fjárborg; ljósmynd Daniels Bruun.

Með Hlíðunum eru tré, sem plantað var af Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar, sum fyrir áratugum síðan. Þar er minnisvarði um fyrsta formann Skógfræktarfélagsins, Ingvar Gunnarsson. Afturhlíðar Undirhlíða heita Bakhlíðar eða Gvendarselshæð. Þar er Gvendarsel vestan í hlíðinni. Sjást tóttir selsins og hlaðinn stekkur framan þess.

Kaldársel

Kaldársel – selið sést hægra megin við húsið.

Framundan undir Hlíðunum, sem áður nefndust Gvendarselshlíðar, eru Kerin. Þau eru fallegir tvíburagígar. Hægt er að ganga upp í efri gíginn úr þeim neðri um gat á milli þeirra, en þar uppi er tilvalinn, skjólgóður, áningastaður.
Sjá meira um Kaldársel HÉR, HÉR, HÉR, HÉR, HÉR og HÉR. Og er þá um fátt getið…
Frábært veður.

Kaldársel

Teikning Daniels Bruun af baðstofunni í Kaldárseli.

 

Hólavallagarður

Í Hólavallakirkjugarði eru fjögur skilti. Á þeim má m.a. lesa eftirfarandi:

Velkomin í Hólavallagarð

Hólavallagarður

Hólavallagarður – leiði Guðrúnar Oddsdóttur. Guðrún var því fyrsta manneskjan sem ver jarðsett í kirkjugarðinum, og er þar af leiðandi vökukona hans. 

„Hólavallagarður var vígður árið 1838 og vökuaður hans er Guðrún Oddsdóttir, sýslumannsfrú, sem lést 11. nóv. 1938.

Garðurinn er einn elsti og sögufrægasti kirkjugarður Íslands og hér hvíla margir af merkustu Íslendingum sögunnar. Garðurinn er ætlaður öllum, óháð trúarbrögðum.

Kirkjugarðurinn var friðlýstur í júní árið 1925.

Friðlýsing
Hólavallakirkjugarður var friðlýstur 2025. Friðlýsingin tekur til Hólavallagarðs í heild; veggjar umhverfis garðinn, heildarskipulags hans, klukknaports, minningarmarka og ásýndar garðsins.

Hólavallagarður er meðal merkustu kirkjugarða landsins og hefur mikið menningar-, sögu- og náttúrufarlegt gildi. Skráð byggingarár hans er 1838 og var garðurinn síðar stækkaður í nokkrum áföngum. Þróun hans endurspeglar því með einstökum hætti skipulagssögu og uppbyggingu íslenskra kirkjugarða á 19. og 20. öld, meðal annars í skipulagi grafa og gatna á milli grafaraða.

Hólavallagarður

Hólavallagarður – skilti.

Í garðinum hefur varðveist eitt merkasta og heillegasta safn minningarmarka á Íslandi. Minningarmörkin hafa mikið gildi fyrir listasögu, táknfræði og þróun ólíkra stílgerða. Garðurinn er um þrís hektarar að stærð og þar er fjölbreyttur gróður, bæði blóm og tré auk fágætra mosa- og sveppategunda. Gróðurinn og minningarmörkin mynda saman sérstætt umhverfi sem geymir mikilvægar heimildir um sögu Reykjavíkur.

Friðlýsingin hefur ekki áhrif á daglega umhirðu eða rekstur Hólavallagarðs. Markmið friðlýsingarinnar er að tryggja að sérkenni, menningarminjar og ásýnd garðsins varðveitist til framtíðar.

Hólavallagarður var umhverfisverndað svæði í aðalskipulagi Reykjavíkur 2004-2024, meðal annars vegna sérstakrar gróðurfjölbreytni, en í garðinum er að finna yfir 200 plöntutegundir.

Færeysku reitirnir og franski reiturinn

Hólavallagarður

Hólavallagarður – reitur franskra sjómanna.

Stærsti samfelldi reiturinn í Hólavallagarði er Franski reiturinn. Eftir því sem frönskum skipum fjölgaði hér við lans var farið að helga sérstakan reit þeim frönsku sjómönnum sem ekki áttu afturkvæmt. Fyrst er getið greftrunar í reitinn árið 1864 en síðast mun hafa verið grafið í hann árið 1922.

Árið 1963 reisti ríkisstjórn íslands minnisvarða á reitnum um hina frönsku sjómenn. Á dranganum er tilvitnun í bók Pierre Loti, Pecheur d’islande (Á Íslandsmiðum í þýðingu Páls Sveinssonar), á frönsku og íslensku.

Hólavallagarður

Hólavallagarður – minnismerki um áhöfn Anna av Toftum.

Í Hólavallagarði eru tveir reitir þar sem hvílir hluti áhafna færeyskra skipa. Í öðrum hvíla fjórtán af sautján manna áhöfn kúttersins Anna av Toftum sem fórst úti fyrir Grindavík þann 5. apríl 1924 og í honum eru jarðsettir sjö menn úr áhöfn færeysku skútunnar Acorn frá Klakksvík sem fórust er eldur kom upp um borð þann 20. mars 1928.

Líkhúsið og klukknaportið

Hólavallagarður

Hólavallagarður – klukknaportið.

Á árunum 1830-1851 stóð líkhús í Hólavallagarði. Gamla líkhúsið mun hafa verið reist árið 1838 eða stuttu þar á eftir. Á meðan á stækkun Dómkirkjunnar stóð árin 1847-1848 var líkhúsið notað sem kirkja Reykvíkinga. Veturinn 1950-1951 var það tekið ofan enda mjög farið að láta á sjá eftir að hafa staðið í um 110 ár án nauðsynlegs viðhalds. Það hafði þó verið klætt bárujárni fyrr á öldinni. Saga líkhússins var þó ekki öll. Það var flutt í Fossvog, reist að nýju og lengi notað sem geymsla. Þar mun líkhúsið hafa staðið fram á sjöunda áratuginn þegar það var talið ónýtt með öllu og rifið.

Hólavallagarður

Hólavallagarður – líkhúsið.

Klukknaportið, sem stendur í miðju elsta hluta garðsins, var reist snemma árs 1951 á grunni líkhússins og er teiknað af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins. Blómareiturinn kringum Klukknaportið markar grunn þess og er klukkan í portinu sú sama og hékk í turni líkhússins. Hún var erlend og líklega gömul skipsklukka en ýmis ummerki á henni benda til að upphaflega hafi húnverið kirkjuklukka. Aðsiða var fyrr á tíð að klukkunni væri hringt þegar jarðað var í garðinum en sá siður er nú aflagður og hefyr klukkunni ekki verið hringt í áraraðir.

Melshús

Í þeim hluta garðsins sem farið var að grafa í um 1903 sóð áður Melshús.

Hólavallagarður

Hólavallagarður – skilti.

Melshúsabæirnir voru raunar þrír. Tveir voru sambyggðir og vissi framhlið þeirra til austurs. Þriðji bærinn var ögn vestar og sneri framhlið hans til vesturs.
Sú saga hefur verið sögð að Bjarni Matthíasson dómhringjari sem bjó í Melshúsum hafi valið sér legstað þar sem rúm hans hafi staðið í bænum.“

Margan meiri fróðleik um Hólavallagarð er að finna á skiltunum, ýmsu merkilegu hefði mátt við bæta og öðru miður merkilegu sleppa.

Annars er ganga um garðinn ávallt þess virði, enda margt merkilega sögulegt þar að finna, ef vel er að gáð.

Hólavallakirkjugarður

Hólavallagaraður – Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, staðfestir friðlýsingu vegna Hólavallagarðs við Suðurgötu.

 

Selvogsgata

Í Morgunblaðinu 18. sept. 1995 fjallar Bolli Kjartansson um „Selvogsgötu – fornu þjóðleiðina“:

Selvogsgata

Selvogsgata, Hlíðarvegur og Stakkavíkurgata.

„Víða um land eru glögg merki um gamlar þjóðleiðir milli byggða. Dæmi um slíka leið í nágrenni þéttbýlisins á höfuðborgarsvæðinu er Selvogsgata. Nánar tiltekið er það leiðin milli Hafnarfjarðar og Selvogs í Árnessýslu. Þessi leið var skemmsta leið um 30 km frá fjörunni í Hafnarfirði og til strandar í Selvogi. Mun hér lýst leiðinni frá Kaldárseli og Valahnúkum og í Selvog.

1. áfangi: Kaldársel – Grindaskörð
Hér er miðað við að hefja gönguna við Kaldársel ofan Hafnarfjarðar og ganga norður fyrir Valahnúka. Þegar komið er vel austur fyrir Valahnúka liggur gatan um úfin hraun sem m.a. eru komin úr Grindaskörðum. Á þessari leið yfir hraunin í stefnu á Grindaskörð eru vörður við veginn, sem lagfærðar hafa verið eða endurhlaðnar fyrir nokkrum árum. Nú er Helgafell á hægri hönd en Húsfell á vinstri. Eftir klukkustundar gang frá Kaldárseli er komið á helluhraun og þar er gatan glögg.

Selvogsgata

Selvogsgatan gengin – FERLIRsfélagar á ferð.

Stefnan er í vestasta skarð Grindaskarða [Kerlingarskarð] sem er um það bil 5 suðaustur og er Selvogsgata alla leið í Selvog nokkurn veginn gengin í þá stefnu.
Forfeður okkar voru glöggir á beinustu og auðveldustu leið milli byggða. Þegar komið er upp í Grindaskörð er gott að líta yfir farinn veg og héðan er góð yfirsýn yfir innnesin og til Esju og Akrafjalls. Þennan áfanga frá Kaldárseli og í Grindaskörð má auðveldlega ganga á 2-3 klst.

2. Áfangi: Grindaskörð — Hvalskarð

Selvogsgata

Hvalskarð.

Í Grindaskörðum eru eldvörp á alla vegu. Úr Miðbollum hafa runnið hraun eftir landnám og náð í sjó fram milli Straumsvíkur og Hvaleyrarholts. Þegar horft er úr Grindaskörðum í stefnu á Selvog blasir Hvalskarð við. Þangað eru um 4—5 km og liggur Selvogsgata milli hrauns og hlíðar eins og víða á fornum þjóðleiðum.
Úr Grindaskörðum hallar nokkuð niður í sigdal þar sem Heiðin há er á vinstri hönd en hraunbreiða þekur sigdalinn. Þegar komið er niður í sigdalinn austan hraunbreiðunnar er komið að fallegri eldborg er ber nafnið Kóngsfell. Við Kóngsfell skiptu fjallkóngar úr Selvogi í leitir og þar af nafnið. Við Kóngsfell er kjörið að draga upp nestið og setjast niður smástund.
Hér er Selvogsgatan hálfnuð, þ.e. öll leiðin frá Hafnarfirði í Selvog. Héðan er um klukkustundar ganga í Hvalskarð og leiðin auðrötuð milli hrauns og hlíðar.

3. áfangi: Hvalskarð – Katlabrekkur

Strandardalur

Varða við Katlabrekkur ofan Strandardals.

Þessi áfangi er um 7 km og fer nú að halla undan fæti. Hér er Selvogsgatan nokkuð óglögg og vörður margar hálffallnar. Neðar verður leiðin aftur greinilegri og verður nokkur lækkun er kemur í Katlabrekkur vestan Urðarfells og stutt leið niður á láglendið í Selvogi.

4. áfangi: Katlabrekkur – Hlíð/Strandarhæð
Síðasti áfanginn eftir að komið er ofan af fjallinu er annaðhvort vestur með hlíðinni eða Hlíðarvatni og bænum Hlíð er þar stóð eða ganga í suður í stefnu á Vörðufell.

Selvogsgata

Selvogsgata/Kerlingarskarðsvegur.

Vörðufell er lág hæð, þar sem Selvogsmenn réttuðu og smalar hlóðu þar vörður ef þeir fundu ekki gripi sína. Brást þá ekki að gripirnir fundust. Hér er því gott að rifja upp sögur af séra Eiríki í Vogsósum, en héðan sést til Vogsósa við ósa Hlíðarvatns. Héðan sést einnig til Eiríksvörðu á Svörtubjörgum. Selvogsheiði er í austri héðan og Hnúkar tróna þar efst á heiðinni.
Á þessum slóðum eru margir hraunhellar og sumir notaðir af Selvogsmönnum sem fjárhellar.

Selvogsgata

Gengið um Selvogsgötu – björgunarskýlið.

Hér hefur stuttlega verið lýst Selvogsgötu frá Kaldárseli og í Selvog. Algengast er þó að ganga frá björgunarskýlinu neðan við Grindaskörð og í Selvog og er það um 6 klst. ganga á góðum degi.
Þessa leið er gott að ganga vor, sumar og haust.“ -Bolli Kjartansson

Hafa ber í huga að Selvogsgatan skiptist  neðan við björgunaskýlið; annars vegar í Selvogsgötu um Grindarskörð skammt austar og hins vegar í Hlíðarveg um Kerlingarskarð vestar. Selvogsgatan að sunnanverðu endar í Selvogi, en Hlíðarvegurinn endar ofan við Hlíðarvatn.

Heimild:
-Morgunblaðið 18. sept. 1995, Selvogsgata – forna þjóðleiðin, bls. 29.

Selvogsgata

Selvogsgata (Suðurferðavegur), Hlíðargata og Stakkavíkurgata/-Selsstígur.

Ketilsstígur

Í Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1943 fjallar Ólafur Þorvaldsson um „Fornar slóðir milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar„, þ.á.m.a. Ketilsstíg:

„Ég ætla nú að lýsa að nokkru vegum, götum og stígum, sem liggja milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur og oftast voru farnir. Að sjálfsögðu sleppi ég hér þeim nýja Krýsuvíkurvegi, sem nú er að mestu fullger. Þó á hann þegar nokkra sögu, en hún er annars eðlis og skal ekki rakin hér.

Undirhlíðavegur

Krýsuvíkurleiðir

Krýsuvík – gamlar götur (ÓÞ).

Fyrst skal hér lýst þeim vegi, sem mest var farinn og aðallega, þegar farið var með hesta. Vegur sá var tekinn úr Hafnarfirði öðru hvoru megin Hamarskotshamars, upp yfir Öldur, þar sem nú er kirkjugarður Hafnfirðinga, upp í Lækjarbotna, með Gráhelluhrauni sunnanverðu, upp að Gjám, sem er hraunbelti frá því móts við Fremstahöfða, upp í Kaldársel. Þar var venjulega aðeins staldrað við, hestar látnir drekka, þegar farið var yfir ána, því að oftast var ekki um annað vatn að ræða, fyrr en til Krýsuvíkur var komið.
Frá Kaldárseli lá leiðin yfir smáhraunbelti, unz komið var að Undirhlíðum. Lá vegurinn suður með þeim, víða allsæmilegur, moldar- og melgötur. Vegurinn liggur yfir eitt hraunhaft, norðarlega með Undirhlíðum, kringum eldvörp þau, sem Ker heita, og hefur hraun streymt þar upp undan hlíðinni á vinstri hönd, þegar suður er farið.
Syðst með Undirhlíðum, eða nokkru sunnar en Stórihríshvammur, er farið yfir mel úr rauðu gjalli, og heitir sá melur Vatnsskarðsháls, þaðan er stutt í Vatnsskarð, þar sem hinn nýi vegur liggur nú úr hrauninu upp á hálsinn. Í Vatnsskarði var talin hálfnuð leiðin milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur. Venjulega var áð þar snöggvast, lagað á hestunum, gert að, sem kallað var, stundum kippt ofan, einkum ef lest var ekki þung.

Krýsuvíkurgötur

Fornar þjóðleiðir millum Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur.

Þegar lagt er upp úr Vatnsskarði, taka við hinir svonefndu Hálsar, réttu nafni Sveifluháls, og má segja, að suður með hálsinum sé góður vegur. Sem næst þriggja stundarfjórðunga lestagang frá Vatnsskarði skerst dálítil melalda fram úr hálsinum, og heitir þar Norðlingaháls. Nokkru þar sunnar sjást í hálsinum leifar af brennisteinshverum, og heitir það svæði Köldunámur. Þar litlu sunnar tekur við stór grasflöt, sem Hofmannaflöt heitir. Við suðurenda hennar rís upp úr hálsinum hæsti tindur Sveifluháls, sem Miðdagshnjúkur heitir.

Sveifluháls

Sveifluháls – örnefni.

Veit ég ekki, hvernig það nafn er til orðið, — en gamalt er það. Ef um dagsmörk er að ræða í því sambandi, getur það ekki komið frá Krýsuvík. Fremur gæti það átt við frá Hvaleyri eða Ási eða annars staðar í grennd Hafnarfjarðar. Þegar Hofmannaflöt sleppir, er skammt ófarið að Ketilsstíg, þar sem vegurinn liggur upp yfir hálsinn. Stór steinn er á hægri hönd og á honum dálítil varða, og er það leiðarmerki um það, að þeir, sem til Krýsuvíkur ætluðu, tækju stíginn upp í hálsinn, en héldu ekki lengra suður með, því að sá vegur lá til Vigdísarvalla og enda alla leið suður fyrir háls, og er syðsti útvörður þessa langa og tindótta háls, fagurt, keilulagað fell, — Mælifell.

Ketilsstígur

Ketilsstígur norðan Ketils.

Þegar Ketilsstígur er tekinn, liggur vegurinn fyrst upp allbratt klettahögg, en þegar upp á það er komið, liggur Ketillinn svo að segja fyrir fótum manns. Ketillinn er kringlóttur, djúpur dalur eða skálinn og ofan í hálsinn. Grasflöt er í botni Ketilsins, sem er svo djúpur, að botn hans mun vera jafn undirlendinu fyrir neðan Hálsinn.

Ketilsstígur

Ketillinn. Fíflvallafjall , Grænadyngja og Hrútafell fjær

Vestur- og norðvesturbrún Ketilsins er þunnur móbergshringur, en norður-, austur- og suðurhliðar eru hálsinn sjálfur upp á brún, og er hæð hans þar um 350 m. Ketilsstígur liggur því í fullan hálfhring um Ketilinn, hærra og hærra, þar til á brún kemur. Láta mun nærri, að verið sé 30—4 5 mín. upp stíginn með lest, enda sama þótt lausir hestar væru, því að flestir teymdu hesta sína upp stíginn.

Ketilsstígur

Ketilsstígur

Ketilsstígur er tvímælalaust erfiðasti kaflinn á þessari hér umræddu leið. Slæmt þótti, ef laga þurfti á hestum í stígnum, og búast mátti við, ef baggi hrökk af klakk, hvort heldur var á uppleið eða ofan, að hann þá, ef svo var lagaður, ylti langt niður, því að utan stígsins, sem heita má snarbrattur, eru mest sléttar skriður ofan í Ketilbotn. Ketilsstígur er mjög erfiður klyfjahestum og sízt betri niður að fara en upp. Þegar upp á brún kemur, sést, að hálsinn er klofinn nokkuð langt norður, allt norður að Miðdagshnjúk, og eru í þeirri klauf sanddalir, sem Folaldadalir heita. Af vestari brún hálsins liggur vegurinn spölkorn eftir sléttum mel til suðausturs, og blasir þar við hæsta nípa á austurbrún hálsins og heitir Arnarnípa. Litlu sunnar er komið að dálitlu stöðuvatni, sem Arnarvatn heitir. Eftir það fer að halla niður af hálsinum að sunnan, og er nú ekki eins bratt og að vestan, þar til komið er fram á síðari brekkuna, sem er brött, en stutt. Þegar brekkunni sleppir, er komið í grashvamm, sem Seltún heitir.

Ketilsstígur

Ketilsstígur.

[Framangreind lýsing er verulega ýkt. Ekkert snarbretti er á þessari leið og er hún mjög auðveld göngufólki upp á hálsinn.]
Allur er hálsinn uppi, norðan vegar, gróðurlaus, en sunnan vegar er sæmilegur gróður. Allhár og umfangsmikill hnjúkur er sunnan vegarins, þegar austur af er farið, og heitir sá Hattur. Víðsýnt er af vesturbrún Sveifluháls, þaðan sér yfir allan Faxaflóa, allt til Snæfellsness, en af austurbrún blasir Atlantshafið við, sunnan Reykjaness.

Arnarvatn

Arnarvatn við Ketilsstíg.

Þegar í Seltún kemur, er talið, að komið sé til Krýsuvíkur, þó er um einnar stundar lestagangur heim að Krýsuvík. Í Seltúni eru nokkrir leirhverir, og kraumar í sumum græn leðja, aðrir eru dauðir.
Úr Seltúnshvamminum er farið yfir alldjúpt gil, Selgil. Á sumrum seytlar þar vatn í botni, en á vetrum getur það orðið ófært með hesta sökum fannar, sem í það skeflir, þar eð gilið er djúpt og krappt.
Sunnan gilsins er Seltúnsbarð, og stóðu þar fram yfir aldamót síðustu tvö allstór timburhús, sem enskt félag, er rak brennisteinsnám þar og í Brennisteinsfjöllum á síðari hluta nítjándu aldar, reisti þar.

Seltún

Brennisteinsnámuvinnslusvæðið við Seltún.

Nú eru þessi hús löngu horfin. Af Seltúnsbarði er haldið yfir svonefnda Vaðla. Eftir það taka við melar, og liggur vegurinn þar á vesturbakka Grænavatns. Nokkru norðvestar er Gestsstaðavatn, umlukt háum melum, og sést ekki af veginum. Þegar Grænavatni sleppir, er örstuttur spölur suður á móts við Nýjabæina, Stóri-Nýibær til vinstri, Litli-Nýibær til hægri, og þar með komið í Krýsuvíkurhverfi. Milli Nýjabæjanna og heimajarðarinnar Krýsuvíkur er um 12 mín. gangur. Tún heimajarðarinnar liggur sunnan undir og uppi í Bæjarfelli, en bæjarhús, kirkjan og kirkjugarðurinn standa á hól eða hrygg sunnarlega á túninu.

Ketilsstígur

Ketilsstígur.

Hér hefur verið lýst að nokkru aðalveginum milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar, sem, eins og fyrr segir, var oftast farinn og aðalleið á sumrin, þegar farið var lausríðandi eða með lest, og var þessi leið talin um 8 klst. lestagangur.

Dalaleið

Dalaleið ofan Gvendarselshæðar.

Þá mun ég hér að nokkru lýsa tveimur stígum, sem vestar liggja og aðallega voru farnir af gangandi mönnum, svo og ef farið var með fáa hesta að vetrarlagi, bæði af því að þessar leiðir lágu mun beinna við til Hafnarfjarðar eða frá, svo líka eftir því, hvernig snjór lá, ef mikill var. Ef snjó setti niður af austri eða norðaustri, t.d. meðan menn höfðu viðdvöl í kaupstaðnum, var venjulega snjóléttara á þessum leiðum en með Undirhlíðum og Hálsum. Hins vegar gat síðartalda leiðin verið snjóminni, ef mikið snjóaði af suðvestri. Þetta þekktu menn af langri reynslu. Annars voru vetrarferðir fátíðar með hesta milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Þó kom fyrir, að farið var fyrir jólin, aðallega þá með rjúpur til að selja, svo og stöku sinnum á útmánuðum. Venjulega fóru menn vetrarferðir, ef farnar voru, gangandi, og ýmist báru menn þá eða drógu á sleða það, sem með var verið. Stillt var svo til, að tungl væri í vexti og færi og veðurútlit sem ákjósanlegast. Margir voru þá mjög veðurglöggir, og var þar eftir ýmsu að fara, sem löng reynsla, ásamt skarpri eftirtekt kenndi mönnum.

Stórhöfðastígur

Stórhöfðastígur

Stórhöfðastígur.

Þegar ferðamenn fóru Stórhöfðastíg, var farið frá Hafnarfirði upp hjá Jófríðarstöðum, um hlaðið í Ási, oft gist þar, ef menn t. d. komu frá Reykjavík. Frá Ási var farið suður úr Skarði, yfir Bleiksteinsháls, suður yfir Selhraun, vestan undir Stórhöfða, nokkurn spöl suðaustur með honum, lagt á hraunið frá suðrhorni hans, fyrst um gamalt klappahraun, þar til komið var á nýrra brunabelti, sem á sínum tíma hefur runnið ofan á gamla hraunið.

Stórhöfðastígur

Stórhöfðastígur, ruddur sunnan Stórhöfða.

Gegnum nýja brunann liggur stígur eða gata, sem enginn veit, hvenær ruddur hefur verið, annars með öllu ófær hestum. Í nýja brunanum, spölkorn austur af stígnum, eru tveir dálitlir blettir eða hólmar, sem bruninn hefur ekki náð að renna yfir. Hólmar þessir heita Snókalönd. Ekki ber þau hærra en umhverfið og sjást því ekki lengra til, og helzt ekki fyrr en að er komið. Hestfær götuslóð liggur norður í Snókalönd, nokkru austar en þar, sem Stórhöfðastígurinn kemur suður úr brunanum.

Snókalönd

Snókalönd.

Ekki eru Snókalöndin jafnstór, það vestra nokkru stærra, og slóð á milli. Hvað liggur til grundvallar þessu nafni, veit víst enginn lengur, en á tvennt mætti benda. Í fyrra lagi, að þarna hafi vaxið villihvönn, snókahvönn — geitla. Í öðru lagi, að blettir þessir, sem hafa verið miklu gróðurríkari en umhverfið, hafi fengið nafn sem land af töngum þeim og hornum, sem hinn ójafni brunakantur myndar þarna í grennd, og gæti því þýtt „Krókalönd“. Í orðabók Blöndals segir, að snókur sé angi eða útskiki út frá öðru stærra. Gætu því tangar þeir, sem út úr brunanum ganga, verið stofn að þessu nafni. Þó finnst mér fyrri tilgátan sennilegri. Líkur benda til, að þarna hafi verið nokkur skógur og máske verið gert þar til kola fyrrum.
Gatan út í Snókalöndin bendir á nokkra umferð þangað. Sökum fjarlægðar þessa staðar frá alfaraleið óttast ég, að svo geti farið, að hann gleymist og nafnið týnist, þar sem þeir, er mest fóru þar um og héldu með því við mörgum örnefnum, voru fjármenn og smalar, en þeim fækkar óðum um þessar slóðir sem víðar.

Snókalönd

Gata í Snókalönd.

Af þessum örsókum get ég hér þessara litlu hólma með hinu fágæta og fallega nafni. Þess má geta, að gren er í vestara Snókalandinu — Snókalandagren.
Þegar suður úr brunanum kemur, liggur stígurinn upp með suðvesturbrún hans, og fylgir maður brunanum, þar til komið er móts við Vatnsskarð í Undirhlíðum, sem farið er þá að nálgast.

Stórhöfðastígur

Stórhöfðastígur – Fremstihöfði og Helgafell fjær.

Úr því liggur stígurinn meira til suðurs, þar til komið er að Fjallinu eina. Er það fremur lágt, hrygglaga fjall með klettaborg á suðurenda. Austan undir því liggur stígurinn, og er þá Sandfell á vinstri hönd allnærri. Er nú stutt þar til komið er á Undirhlíðaveginn, skammt suður af Sandfellsklofa.
Stórhöfðastíg fóru stundum lausríðandi menn frá Krýsuvík til Hafnarfjarðar. Fóru þá sem leið lá inn með hálsum, þar sem sú leið er allgóður reiðvegur, þar til kom á móts við, þar sem Stórhöfðastígurinn lá vestur á milli Fjallsins eina og Sandfells. Sá stígur var stundum tekinn, því að við það féll úr mikill krókur, inn með Undirhlíðum um Kaldársel, en hitt bein lína til Hafnarfjarðar. Þó að Stórhöfðastígurinn sé frekar slitróttur, var gott að láta hestinn njóta hægu ferðarinnar, en jafnsnemma komið til Hafnarfjarðar eða fyrr, þrátt fyrir stirðari veg.

Hrauntungustígur

Hrauntungustígur

Hrauntungustígur.

Þeir, sem ætluðu sér Hrauntungustíg frá Hafnaríirði til Krýsuvíkur, fóru um Jófríðarstaði að Ási, þaðan um bkarð vestan Ásfjallsaxlar, yfir hraunhaft milli Grísaness og Hamraness, undir vesturenda þess, austur að stórum steini flötum ofan, sem er þar stakur á jafnsléttu. Frá honum er farið suður á gamalt helluhraun um 10 mínútur, þá tekur við Nýibruni eða Háibruni, sem runnið hefur ofan á eldra hraunið. Gegnum brunann er, eins og á Stórhöfðastíg, rudd allgreiðfær gata, sennilega gerð á svipuðum tíma og Stórhöfðastígur, en hver það hefur látið gera, veit víst enginn, en nijög gamlar eru þessar vegabætur, og eru þær sennilega fyrstu vegabætur, sem gerðar hafa verið til Krýsuvíkur. Þó kann að vera, að stígurinn gegnum Ögmundarhraun, sem fyrr getur, sé eldri, og þá sennilega þær fyrstu. Gegnum Háabrunann er sem næst 20 mín. gangur með lest, og þegar á suðurbrún hans kemur, ganga til beggja handa suður úr brunanum tvær brunatungur, sem stígurinn liggur suður á milli, og ná þessar tungur spölkorn suður á svokallaðan Almenning, sem er nú búfjárhagar Hraunajarðanna, en hefur fyrr á öldum, eins og nafnið bendir til, verið frjáls til afnota fleiri en Hraunabændum, t. d. til kolagerðar, og sjást þar enn allvíða leifar gamalla kolagrafa. Af brunatungum þessum tel ég víst, að stígurinn hafi nafn fengið, Hrauntungustígur.

Hrauntungustígur

Hrauntungustígur.

Eftir að suður úr Hrauntungum kemur, er óglögg, sums staðar jafnvel engin gata, og verður því sjónhending að ráða, enda torfærulaust yfir kjarri vaxið lágahraun, en allt á fótinn. Þegar kemur dálítið upp í Almenninginn, fer maður nálægt gömlu selstæði, sem Gjásel heitir, og er þar venjulega vatn. Sennilega hefur þar verið haft í seli frá Þorbjarnarstöðum eða Stóra-Lambhaga í Hraunum.

Fornasel

Fornasel – vatnsstæði.

Nokkru austar er annað selstæði, sem Fornasel heitir. Þegar suður á há-Almenning kemur og útsýnið víkkar til suðurs, sést hár klettahryggur í suðvestur, og eru það Sauðabrekkur. Norður af þeim er farið yfir víða og djúpa gjá, á jarðbrú, Sauðabrekkugjá, eftir það er komið á svonefnda Mosa, sem er flatt grámosahraun, og er gata þar allglögg. Þá er hár brunahryggur, sem liggur frá norðri til suðurs á vinstri hönd og heitir Hrútagjá, Hrútadalir þar suður af. Þegar Mosum sleppir, hefur maður Mávahlíðarhnjúk og Mávahlíðar skammt sunnar á hægri hönd.
Móti Mávahlíðum syðst er komið í Hrúthólma; er það langur, en fremur þunnur melhryggur, nokkuð gróinn neðan, öllum megin, smávin í þessari brunaeyðimörk.

Hrúthólmi

Hrúthólmi – stígur.

Þegar úr Hrúthólma er farið, taka við sléttar hraunhellur, ágætar yfirferðar. Sunnarlega á þessum hellum er stakt móbergsfell, Hrútafell. Þegar á móts við það kemur, en það er nokkuð til hægri við stíginn, er stutt þar til komið er á sumarveg Krýsuvíkur, skammt norðan Ketilsstígs.
Þessi leið, sem hér hefur lýst verið að nokkru, var að heita má eingöngu farin af gangandi mönnum, og stundum ráku Krýsvíkingar fé til förgunar þessa leið. Sömuleiðis kom fyrir, að hún var farin af Herdísarvíkurmönnum, svo og Selvogsbúum, þegar þeir ráku fé í kaupstað, ef snjór var fallinn á fjallið og Kerlingarskarð, sem annars var þeirra aðalleið til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur.
Hér hefur þá nokkuð ýtarlega verið gerð tilraun til að lýsa þeim þremur höfuðleiðum, sem lágu milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur, frá því þar varð fyrst byggð, fram á síðustu ár.

Hrútfell

Hrútfell.

Að lokum vil ég svo geta að nokkru fjórðu leiðarinnar, sem kom fyrir, að Krýsvíkingar fóru, ef með hesta voru fyrir néðan, þ.e. í Hafnarfirði, og dreif niður svo miklum snjó, að hinum leiðunum var engri treyst. Þá gat þessi leið verið fær. Leið þessi lá frá byggð í Hraunum sunnan Hafnarfjarðar.

Rauðamelsstígur

Rauðamelsstígur.

Þegar menn fóru þessa leið, var venjulega farið út af Suðurnesjaveginum, norðan Rauðamels, skammt sunnan Óttarsstaða, um Óttarsstaðasel, vestan undir Skógarnefjum, sunnan Einihlíða, en norðan Lambafells, fram hjá afar stórum klettum, sem eru einstæðir á sléttum mosaflákum og Bögguklettar heita, þaðan yfir brunatagl, sem liggur upp að norðurhálsi Trölladyngju, upp slóða yfir hálsinn, síðan yfir helluhraun slétt norðan Hörðuvalla, sem er nokkurt undirlendi mót norðri, milli Trölladyngju og Grænudyngju. Þá er komið að fjalli, sem Fíflavallafjall heitir, og farið nokkuð suður með því að austan, þar til komið er undir Stórusteinabrekku, þaðan liggur stígurinn yfir slétt helluhraun norðan Hrútafells, unz komið er á stíginn upp úr Hrúthólma, sem er á Hrauntungustígsleið, sem áður getur.
Önnur leið upp úr Hraunum lá nokkru norðar, — eða upp frá Þorbjarnarstöðum, venjulega norðan Draughólshrauns, um Straumsel, norðan Gömluþúfu, sem er hár og umfangsmikill klettur upp úr hæstu hæð Hraunaskógar (Almennings). Þegar upp fyrir Gömluþúfu kom, mátti fara hvort menn vildu heldur, austan eða vestan Sauðabrekkna, og var komið á Hrauntungustíg norðan Mávahlíða. Þessi leið var helzt farin af Hraunamönnum, er svo voru almennt kallaðir, sem fóru aðallega til fjárleita haust og vor til Krýsuvíkur, svo og af Krýsvíkingum, þegar fyrir kom, að þeir sóttu sjóföng til Hraunabænda, því að meðan Hraunajarðir voru almennt í byggð sem bændabýli, sem var fram yfir síðustu aldamót, — enda tvær jarðir enn —, var þaðan mikil sjósókn.

Hellan

Krýsuvíkurvegur undir Hellunni.

Áður en við yfirgefum þessar slóðir að fullu, skulum við nú, þegar við hverfum frá Krýsuvík að þessu sinni, fara leið, sem við höfum ekki áður farið. Þessi leið er hin svonefnda Vatns- eða Dalaleið. Nú vill svo til, að nokkur kafli hins nýja vegar frá Hafnarfirði til Krýsuvíkur liggur með Kleifarvatni að vestan, svo að nú gefst fleiri mönnum kostur á að fara þessa leið en áður var.

Hellan

Hellan vestan Kleifarvatns.

Þessi leið mun ekki hafa talizt til höfuðleiða milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar, enda sjaldan farin, og þá helzt á vetrum. Þó tel ég hana ekki með öllu ómerkilega, og ber fleira til en eitt. Það er þá fyrst, að þessi leið er stytzta og beinasta lestaleiðin milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Hún er greiðasta og hægasta leiðin. Hún liggur í sérkennilegu og fögru umhverfi. Hún var nokkrum annmörkum háð, — og hún gat verið hættuleg.
Þessa leið var ekki hægt að fara, jafnvel svo árum skipti, nema ísar væru tryggir, og lágu til þess tvær meginástæður. Annars vegar réðu hér um vetrarhörkur, hins vegar náttúrufyrirbæri, sem enn eru óskýrð, svo að fullsannað sé. Hér kom fram sem oftar, að ekki fóru ávallt saman óskir ferðamannsins og lögmál náttúrunnar. Til þess að hægt væri að fara þessa leið með hesta að vetri til, varð Kleifarvatn að vera á hestís. Reynslu voru menn búnir að fá fyrir því, að Kleifarvatni var ekki að treysta á ís með hesta fyrr en eftir vetrarsólhvörf.

Kleifarvatn

Hverir við sunnanvert Kleifarvatn.

Meginorsök þess, hve vatnið leggur seint, er vafalaust sú, að allmikill hiti er í botni þess, sér í lagi að sunnanverðu, og hafa, þegar vatnið er lítið, verið talin þar milli 10 og 20 hveraaugu, sem spýta sjóðheitri gufu upp í vatnið og í loft upp, þegar út af þeim fjarar. Hvað sem um skoðanir manna og reynslu í þessu efni er að segja, er hitt víst, að frosthörkur voru venjulega meiri og stóðu oft lengur, eftir að kom fram yfir miðjan vetur. Hins vegar var vorís ekki treyst, þótt þykkur væri.“

Heimild:
-Árbók Hins íslenska fornleifafélags 01.01.1943, Fornar slóðir milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar – Ólafur Þorvaldsson, bls. 83-87.

Arnarvatn

Arnarvatn við Ketilsstíg.