Hraunin ofan Helgafells – skammst. á jarðf.kortum

Búrfell

Jarðfræðikort Náttúrufræðistofnunar er ótækt til notkunar fyrir þá/þær er vilja skoða hraunin ofan Helgafells og Húsfells með einhverri nákvæmni, hvað þá önnur hraunasvæði Reykjanesskagans.

Helgafell

Helgafell.

Þegar hins vegar jarðfræðikort ISOR af Suðvesturlandi er skoðað kemur í ljós að hraunin eru merkt mörg hver með alls kyns skammstöfunum, s.s. vkh2, vkh, hú2, hú1, h143, h144, bl1, bl2, str, sts og tv. Stærri hraunin eru nafngreind að fullu, s.s. Húsfellsbruni, Rjúpnadalshraun, Þríhnúkahraun, Stórabollahraun, Tvíbollahraun og Bláfjallahraun.
Ef leita á að lyklinum að framangreindum skammstöfunum á vefnum virðast þær vera hvergi að finna. En þegar gamla prentaða ISOR-jarðfræðikortið, sem var áður á vefnum en er nú horfið, enda einungis til sölu á pappír, má sjá hvað stuttnefnin standa fyrir, sbr. eftirfarandi:

Stóri-Bolli

Stóri-Bolli, Kóngsfellsgígur, í Kóngsfelli (Konungsfelli).

-vkh ….  Þríhnúkahraun eldra
-vkh2 … Þríhnúkahraun yngra
-hú1 …   Húsfellshraun elsta, 10. öld
-hú2 …  Hrútafellshraun mið (Vífilsfellshraun), 10. öld
-h143 ..  Gígaraðir suðvestan af Þríhnúkum
-h144 ..  Hraun úr gígum sunnan Þríhnúka
-bl1 …    Bláfjallahraun 1 (Eldra Strípshraun)
-bl2 …    Bláfjallahraun 2
-str …     Strípshraun
-sts …     Strompahraun
-tv …      Tvíbollahraun (Hellnahraun, Selhraun), 10. öld

Bollar

Tvíbollar.

Þær stofnanir sem gefa sig út fyrir að gefa út jarðfræðikort á vefnum með skammstöfunum mættu gjarnan sjá sóma sinn í að upplýsa neytendur jafnframt um fyrir hvað einstakar þeirra tákna.

Þegar Gervigreindin var spurð um hvort hún kynni skil á framangreindum skammstöfunum svaraði hún m.a. að „vkh“ stæði fyrir „Valahnúkahraun“, en hún kynni ekki skil á öðrum? Varla þarf að taka fram að „Valahnúkahraun“ er ekki til sem örnefni.

Isor

Jarðfræðikort ISOR af Reykjanesskaga með lyklum skammstafanna.