Hunangshella – Gamli-Kirkjuvogur – Stafnes
Gengið var að Hunangshellunni er tengist þjóðsögunni um finngálknið (Rauðskinna) og viðureign mannanna við það. Á hellunni, sem er orðin nokkuð gróin, er vörðubrot. Ekki langt frá því lá alllangt etinn fugl (ekki ólíklegt að það geti verið eftir finngálknið forðum). Hafnagötunni gömlu var fylgt spölkorn til norðurs, en stefnan síðan tekin óhikað til norðvesturs, yfir […]
