Vífilsstaðasel

Í ritinu Heima er best árið 2012 ritar Þorkell Jóhannesson, „Þankabrot um Vífilsstaðasel, sel og selbúskapur á Íslandi„. Þar segir hann m.a.:

Vifilsstadasel-302

Vífilsstaðasel – uppdráttur ÓSÁ.

„Örugglega má telja, að landnámsmenn hafi í árdaga flutt með sér þekkingu á seljum og selbúskap til nýrra heimkynna á Íslandi og þá væntanlega mest frá vestanverðum Noregi. Um þetta vitna frásagnir í gömlum lögum, elstu máldögum kirkna, Landnámsbók og Íslendingasögum svo sem Njáls sögu og Grettis sögu. Veigamesta heimild um sel og selbúskap á fyrri tíð er Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá byrjun 18. aldar. Fyllstu upplýsingar um sel og selbúskap á Íslandi er hins vegar að finna í viðamikilli úttekt eftir þýskan mann, Egon Hitzler, sem birtist árið 1979. Frekari rannsókn á seljum og selbúskap er þó án efa þörf.

Vifilsstadasel-303

Vífilsstaðasel – uppdráttur.

Vífilsstaðasel í landi Vífilsstaða í Garðabæ (áður Garðahreppi í Gullbringusýslu) hefur verið allstórt sel. Rúst þess er og stæðilegri en rústir margra annarra selja í Gullbringu- og Kjósarsýslu, en einmitt á því svæði voru  mörg sel. Það vekur því athygli, að Vífilsstaðasel er í námunda við þekkta gönguleið og reiðleið eftir línuvegi meðfran háspennulínum til Straumsvíkur og þar er stundum áð. Meðan annars af þeim sökum er freistandi að gera Vífilsstaðaseli í nokkur sérstök skil.
Nýlega hefur verið gerð úttekt á rúst Vífilsstaðasels af hálfu Minjasafns Reykjavíkur. Er stuðst við þau gögn hér á eftir, þegar fjallað er um selsrústina. Þá er stuðst við örnefnalýsingu Gísla Sigurðssonar og Svans Pálssonar og leiðalýsingu um svæðið.

Vífilsstaðasel

Vífilsstaðasel – tilgáta.

Reynt er að huga að legu selgötunnar til heimabæjar svo og að sérstakri rúst í næsta nágrnni viðs elið. Með stoð í Íslenskum þjóðháttum Jónasar Jónasonar frá Hrafnagili, frásögnum frá tveimur meðal síðstu seljanna, sem starfrækt voru hér á landi, og öðrum heimildum er fjallað um búskap í seljum, en hann snerist umfram allt um mjaltir og mjólkurvinnslu. Í því efni var enn fremur leitað fanga í þremur heimildaritum frá fyrri tíð. Þá eru hugleiðingar um langt hnignunuarskeið selsbúskaparins á Íslandi og lok hans. Í lokaorðum er reynt að meta hve lengi Vífilsstaðasel hafi verið notað og vísbendingar um brunn við selið og álykta enn frekar um efnið.

Vífilsstaðasel

Vífilsstaðasel – stekkur.

Vífilsstaðasel er einn af mörgum stöðum í nágrenni þéttbýlis Stór-Reykjavíkur, sem minnir á horna búskaparhætti í seljum. Mörg þessara selja hafa verið utan heimajarðar og seljavegir því oft verið langir eða fremur langir. Vífilsstaðasel var dæmigert heimasel og því ekki óhæfilega langt til heimahúsa eða veturhúsa og stundum var nefnt.
Að vestan og norðan takmarkast hvilft af Selási og Selholti austan og sunnan Vífilsstaðasels.

Vifilsstadasel-305

Í Vífilsstaðaseli.

Við mastur nr. 29 í syðri háspennulínunni, sem ekki er fjarri hábrún Vífilsstaðahlíðar að austan, opnast til suðurs víður, grasigróinn hvammur, sem nefna má Selhvamm. Selás er á austurbrún hvammsins og Selholt lokar honum til suðurs og afmarka hvamminn frá suðurhvilftinni með Grunnavatni syðra. Vestanvert hvamminum er Selhóll og framan í honum allmikill grágrýtishamar, sem nefndur hefur verið Selhamar. Gísli Sigurðsson nefnir í örnefnalýsingu sinni Selkvíar við Selhólinn. Ekki hefur það verið rannsakað til hlítar, hvort þar leynist rúst af kvíum. Þða hlýtur að teljast líklegt.
Suðaustanhallt í hvamminum undir Selásunum eru greinilegar rústir Vífilsstaðasels. Sjáanlegar eru rústir þriggja húsa, sem liggja nokkurn veginn frá norðvestri til suðausturs…

Vífilsstaðasel

Vífilsstaðasel – tilgáta.

Í lýsingu Garðaprestakalls frá 1842 segir síra Árni Helgason (1777-1869), sem var prestur í Görðum á Álftanesi 1825-1858, að síðast hafi verið haft í seli í Görðum 1832, en selbúskapurinn hafi yfirleitt lagst af í hreppnum á árunum 1780-1790. Heimildum síra Árna og Egon Hitzler ber því ekki fyllilega saman og verður nú ekki skorið úr því hvort þeirra hefur rétt fyrir sér.“

Þess má geta að í framangreindi athugun á selsrústunum yfirsést Þorkeli t.d. stekkur ofan við Vífilsstaðasel, fyrrnefnda kvíin í Selkvíum, tvær eldri selsamstæður sunnan meginselsins sem og stekks suðvestan þeirra.

Heimild:
-Þorkell Jóhannesson, „Þankabrot um Vífilsstaðasel, sel og selbúskapur á Íslandi“ – Heima er bezt, 1. tbl. 62. árg. 2012, bls. 29-39.

Vifilsstadasel-301

Vífilsstaðasel – tilgáta ÓSÁ.

Kollafjarðarrétt

Kollafjarðarrétt er hlaðin fjárrétt ofan Kollafjarðar á Kjalarnesi. Auk gerðis eru þar 15 dilkar. Þegar FERLIR heimsótti réttina [2007] var ekki að sjá að hún hafi verið notuð um skeið. Veggir eru hlaðnir úr mógrjóti af vettvangnum, vel þykkir og standa enn vel. Hins vegar keppast bæði óheftur kerfillinn og ómarkviss trjárækt að gera minjarnar ósýnilegar í landslaginu.

Mosfellsbær

Kollafjarðarrétt.

Ekki er kunnugt um aldur réttarinnar,  Steinunn Guðmundsdóttir, húsfreyja á Heiðarbæ í Þingvallasveit, fæddist í Kollafirði, en flutti þaðan árið 1961. Hún kvaðst muna eftir réttinni, en líklega væri Magnús í Stardal fróðari um hana.  Aðspurður kvaðst Magnús Jónasson muna eftir því að réttin lagðist af um það  leiti sem Kjalarnes sameinaðist Reykjavík [1998]. Faðir hans, Jónas Magnússon, hefði verið þar réttarstjóri og auk þess Oddur gamli í Þverákoti (kom þangað 1916- eða ’17). Kjalarnesrétt hefði legið mjög vel við Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós, auk þess sem bændum úr Þingvallasveit hafi verið skipað til réttar þar. Magnús kvaðst ekki vita hversu gömul réttin væri, en hún væri a.m.k. frá 19. öld. Eftir að hætt var að rétta þar hefðu hestamenn notað réttina og hefðu þá hleðsluveggirnir skemmst talsvert vegna ágangs hrossanna. Vonaðist hann til að réttin yrði einhvern tímann hlaðin upp að nýju.

Mosfellsbær

Í Kollafjarðarrétt.

Undir réttarveggnum voru rifjuð upp skáldsöguleg tengsl hennar við frumburð skáldsögunnar hér á landi. Rétt þessi þykir nefnilega ekki síst merkileg fyrir það að hún kemur fyrir í skáldsögunni Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen (1818-1868) frá árinu 1850, sbr. meðfylgjandi: „Það var einn dag um þetta leyti og skömmu eftir að Ormur var suður kominn, að veður var fagurt, en vegir þurrir, og var réttað upp í Kollafjarðarrétt, og reið margt fólk úr Víkinni sér til skemmtunar upp í réttirnar, bæði konur og flestar gervistúlkur bæjarins, svo og margir karlmenn, sem við voru látnir. Gjörðist þá mikill skortur reiðskjóta í bænum, og urðu margir að setjast aftur, sem höfðu ætlað að fara. Kaupmaður Á. og kona hans fóru. Guðrún hafði einhvers staðar getað aflað sér hests, en Sigríði vantaði reiðskjóta, og leit út fyrir, að hún yrði heima að sitja, en þó langaði hana til að fara, því hún hafði aldrei komið þar upp eftir. Möller átti hest gráan, það var gæðingur, norðlenskur að kyni, af Bleikáluætt úr Skagafirði, er þá var mest orðlögð um landið. Hesturinn var stríðalinn á hverjum vetri, en lítið riðið á sumrin, því sjaldan kom nokkur annar maður honum á bak en eigandi, og ekki hlýddi nokkrum að biðja um hann til láns, hvað sem við lá. Líður nú fram að hádegi, og ríða allir á stað, sem hesta höfðu fengið, en ekki hafði Sigríður enn getað útvegað sér neinn reiðskjóta, en Guðrún beið hennar þó, ef verða mætti, að eitthvað réttist úr fyrir henni.

Kollafjarðarrétt

Í Kollafjarðarrétt.

Nú er hvergi fyrir sér að leita, Sigríður mín! Ég býst við, að þú verðir að sitja kyrr, nema þú viljir biðja hann kaupmann Möller um hann Grána hans; ég held það sé eini hesturinn, sem til er hérna eftir í Víkinni, sagði Guðrún.
Það gjöri ég ekki, og ég get ekki ætlast til þess, að hann ljái mér hann, þar sem hann vill ekki ljá nokkrum öðrum hann.
Veit ég það, að hann hefur afsagt þeim þremur eða fjórum hérna í morgun um hann, en hvar kemur það þá fram, sem hann segir um þig, ef hann gjörir sér ekki mannamun? Og farðu, Sveinki litli, og skilaðu við hann kaupmann Möller, að hún Sigríður, sem er hjá honum kaupmanni Á., biðji hann að ljá sér hann Grána sinn upp að réttunum í dag.

Sveinn litli fór og kom aftur að lítilli stundu liðinni og teymdi þá Grána og sagði, að kaupmaður hefði beðið sig að skila, að hann hefði ekki vitað, að hún ætlaði að fara, ella mundi hann hafa boðið henni hann að fyrra bragði.

Mosfellsbær

Kollafjarðarrétt.

Mosfellsbær

Kollafjarðarrétt.

Sér þú nú, góða mín, sagði Guðrún, hvernig Möller er, þar sem hann tekur því, enda vissi ég það, hvernig fara mundi, ef hann fengi boð frá þér, en ekki hefði hann gjört það fyrir aðrar hérna í Víkinni; því það er eins og ég segi þér, þó þú trúir því ekki.
Ekki trúi ég því nú heldur fyrir að tarna, sagði Sigríður, en nú er þá best að ríða á stað, fyrst reiðhesturinn er fenginn.
Síðan ríða þær stöllur, og með því hestarnir voru góðir, náðu þær flokknum, sem á undan var riðinn, skammt fyrir innan Hellisárnar; og brá þá mörgum í brún, er þeir sáu Sigríði koma þeysandi á Grána Möllers og varð mönnum harla fjölrætt um það, hverju það sætti, að Sigríður hefði orðið fyrir þeirri mildi að fá hann. Um daginn skemmtu menn sér við réttirnar, en sneru heim um kvöldið, og var þá komið fram á nótt, er menn komu aftur til Reykjavíkur.“
Svo mörg voru þau orð, en myndirnar segja kannski svolítið meira um það sem allflestir eru ómeðvitaðir um í „örskotsfjarlægð“ frá fjölmennstu byggðasvæði landsins.

Heimild m.a.:
-Piltur og stúlka – skáldsaga – Jón Thoroddsen.

Kollafjarðarrétt

Kollafjarðarrétt – uppdráttur ÓSÁ.

Mosfellsbær

Í „Skráningu fornleifa í Mosfellsbæ“ árið 2006 er m.a. fjallað um sambyggð beitarhús með heykumli, auk nálægs stekks í suðvesturhlíðum Æsustaðafjalls. Tóftirnar sjást en þótt óljósar séu orðnar vegna óskipulegrar skógræktar er hófst í hlíðunum um 2012. Í fornleifaskráningunni segir:

Mosfellsbær

Beitarhús – teikning ÓSÁ.

„Í grasi vaxinni dæld í suð­vest­ur­hlíð Æsustaða­fjalls eru rústir af beitar- eða fjárhúsum og e.t.v. rétt eða stekk. Þetta er um 1,8 km NA Reykj­alundar og um 600 m SSV við með­ferð­ar­heim­ilið Hlað­gerð­ar­kot, 150-170 m yfir sjáv­ar­máli. Fjallið er gróð­ur­laust til norðurs en til suðurs sér á áveitu­skurði í hlíðum Reykja­fells. Í vestri sjást þök hæl­isins á Reykj­alundi (Ágúst Ó. Georgs­son).
Rúst­irnar eru af tveimur sam­liggj­andi húsum með 2ja m breiðum veggjum. Veggirnir voru víðast hvar mjög heill­egir þegar rústin var skráð 1980, þótt sums staðar hefði hrunið inn í hana. Annað húsið var helm­ingi lengra að inn­an­máli um 13 m á lengd og 2 m á breidd. Það var mest­megnis hlaðið úr grjóti en milli hleðslna mátti þó greina torfur til bind­ingar.

Mosfellsbær

Beitarhústóftin 2026.

Um tveimur m inn frá inn­gang­inum var einföld stein­aröð milli lang­veggj­anna og hefur þar hugs­anlega verið dyraum­bún­aður. Húsið sjálft skipt­ist í tvo hluta, ytra her­bergi sem var rúmlega 7 m langt og innra her­bergi, um 4 m langt. Inn­gang­ur­inn að því var næstum alveg fallinn saman en sást þó móta fyrir honum. Her­bergið hefur líklega verið notað undir hey. Í þessum innri hluta voru veggirnir hvað hæstir eða um 1,4 m og sá vel í stein­hleðsl­urnar. Í húsinu mótaði fyrir bárujárns­bita og trébita úr þekjunni.

Mosfellsbær

Beitarhúsin – tilgátumynd.

Minna húsið hefur verið um 4 m langt og 2 m breitt en tóftir þess voru ógreini­legri og mörk aft­ur­stafns óglögg. Það hefur hugs­anlega verið hey­garður eða heytóft. Þetta hús virtist eldra en hið stærra en senni­lega hafa verið þarna hús áður en það var byggt og gæti minna húsið verið frá þeim tíma. Vel má þó vera að húsin tvö hafi ein­hvern tíma verið notuð sam­tímis en hið minna hefur þó verið rifið all­löngu áður en hætt var að nota hið stærra. Húsin snéru í SV að Helgafelli og Skamm­askarði. Um 3-4 m sunnan þeirra sáust leifar vír­girð­ingar (Ágúst Ó. Georgs­son).

Mosfellsbær

Beitarhúsin 2026.

Að sögn Jóels Jóels­sonar, bónda í Reykjahlíð, er rústin af beit­ar­húsi frá Norður-Reykjum og hætt var að nota það laust fyrir 1940. Sam­kvæmt Hlíf Gunn­ars­dóttur á Æsustöðum færði Jakob Ein­ars­son fjár­húsin þá nær Norður-Reykjum. Þar eð stærra húsið er greini­lega ekki mjög gamalt gæti þetta vel staðist. Að sögn Guðjónu Bene­dikts­dóttur á Norður-Reykjum heyjaði tengda­faðir hennar tún­blett þarna og lét í tóft eða hlöðu (Ágúst Ó. Georgs­son).
Stutt hefur verið að sækja hleðslu­grjót á melinn skammt norðan rúst­anna.

Mosfellsbær

Stekkurinn 2023.

Um 40 m frá beit­ar­húsa­rúst­inni í aflíð­andi brekku er önnur rúst og blasa hlíðar Reykja­fells við þegar horft er í SV.
Skammt neðan rúst­ar­innar tekur við smáþýfður mói og síðan byrjar flat­neskjan milli Æsustaða­fjalls og Reykja­fells. Hlíðar Reykja­fells blasa við frá rúst­inni þegar horft er í SV. Svæðið er mjög gras­gefið og hefur verið girt af (Ágúst Ó. Georgs­son).
Þegar tóftin var skráð árið 1980 var hún mjög gróin, veggir sums staðar útflattir og óljósir. Virtist sá endi sem að hlíð­inni snéri að hluta grafinn inn í hana. Mann­virkið hefur verið fer­hyrn­ings­laga, að inn­an­máli 9 m á lengd og tæplega 4 m á breidd, mestmegnis úr torfi en und­ir­staðan þó líklega úr grjóti. Ekki var að sjá að það hefði haft neinn fram­gafl og giskaði skrá­setj­ari á að þetta hefði verið stekkur eða rétt. Tóftin hafði stefn­una NA-SV. Enn sér móta fyrir girð­ing­ar­leifum á svæðinu (Ágúst Ó. Georgs­son).“

Heimildir:
-Skráning fornleifa í Mosfellsbæ 2006.
-Ágúst Ó. Georgs­son. Forn­leifa­skrán­ing í Mos­fells­sveit 1980-1982. Skrán­ing­ar­bækur Þjóð­minja­safns­ins.

Mosfellsbær

Norður-Reykir – nýlegra fjárhús nær bænum 2023. Að sögn var hætt að nota fjár­húsin um 1950 er fé var skorið niður og hefur ekki verið fjár­bú­skapur á Norður-Reykjum eftir það.

Lónakotssel

Gengið var upp í Lónakotssel frá Óttarsstaðaborginni, yfir Alfaraleið, selstaðan skoðuð og síðan haldið áfram upp í Mið-Krossstapa og Hraun-Krossstapa. Litið var á grenin, sem þar eru sem og grenin undir Skógarnefi. Síðan var haldið til norðurs að Tóhólum. Kíkt var í Tóhólaskúta áður en haldið var yfir í Óttarsstaðarsel og áfram til norðurs, skáhallt niður Almenning.

Alfaraleið

Alfaraleiðin við gatnamót Lónakotsselsstígs.

Ekki verður hjá því komist að taka eftir Alfaraleiðinni þegar gengið er yfir hana. Hún er bæði breið á þessum kafla ofan við Smalaskálahæð og vel greinileg þar sem hún liðast um hraunið frá austri til vesturs – eða öfugt. Gatan er gömul þjóðleið milli Innnesja og Suðurnesja. Gatan er víða vel mörkuð í hraunhelluna eftir aldalanga notkun, en hún lagðist af þegar vélknúin farartæki tóku við hlutverki hestanna. Gatan er nú sjáanleg frá hraunbrúninni austan við Kapelluhraunið austan kapellunar, en auk þess má sjá spotta af henni við kapelluna. Lægðin austan við Smalaskálahæð nefnast Draugadalir. Síðan liðast hún að Taglhæð um Sprengilendi í áttina að Hvassahrauni. Þar skiptir leiðin um nafn og nefnist eftir það Almenningsvegur. Hann liggur um Kúagerði og Vatnsleysuströnd að Vogum. Við Vogastapa tekur Stapagatan við, en svo nefnist þjóðleiðin milli Voga og Njarðvíkur.

Lónakotssel

Lónakotssel.

Þegar Lónakotsselsstígurinn er rakinn upp í gegnum hraunið, áleiðis að selinu, má víða sjá fallnar gamlar vörður er fyrrum leiddi fólk leiðina.

Lónakotssel er norðan undir Skorás, þversprunginni klapparhæð. Á ásnum er varða, sem heitir Skorásvarða, en hennar er getið í gömlum markalýsingum. Varðan sést víða að í Almenningum.
Lónakotsselshæðabyrgi er einnig þekkt undir nafninu Skorásbyrgi, því það er norðan við samnefnda hæð. Byrgið tilheyrði Lónakotsseli og gagnaðist sumur sem vetur því Lónakotsærnar voru jafnan á útigangi og smali látinn fylgja fénu árið um kring.

Lónakotssel

Lónakotssel eftir að selstaðan lagðist af – tilgáta.

Í jarðfallinu, sem byrgið er í, má jafnframt sjá hleðslur stekks eða réttar. Austan við Skorðásin er falleg kví.
Hleðslur eru um og við Krossstapagrenin norðvestan við Mið-Krossstapa – ofan selsins.

Lónakotssel

Lónakotssel – fjárskjól.

Meðan staldrað var við grenin heyrðist tófa gagga í norðvestri. Sest var niður, merki gefið um þögn og hún staðsett. Sást vel hvar dýrið rak af og til upp trýnið utan í steini á gróinni hæð ekki alllangt frá. Tófan var greinilega forvitin um ferðir tvífætlinganna. Vindur var af vestri. Einn þátttakendanna læddist með lægð austan við grenin og stefni hljóðlega til norðurs, í hvarfi frá tófunni. Hún var því alveg grunlaus, greyið, þegar hún leit skömmu síðar framan í mannveru, sem birtist skyndilega til hliðar við hana á hólnum.

Tófa

Tófa.

Mórauð tófan, hvítskeggjótt og brúneygð, stóð kyrr eitt augnarblik. Hún virtist hugsa margt og um allt í einu. Tófan átti greinilega ekki von á að maðurinn gæti verið svona mikill refur. Hún tók þá ákvörðun að henda sér í áttina frá ógnvaldinum, sletta skottinu upp í lofti og láta sig hverfa inn í nærliggjandi hraunsprungu. Þetta var látið nægja að þessu sinni. Best hefði verið ef tófan hefði sýnt yfirvegun og verið um kyrrt svo hægt hefði verið að spyrja hana almæltra tíðinda – á tófumáli að sjálfsögðu, en svona eru nú dýrin nú til dags – varkár og hrædd. Þau virðast ekki lengur hafa hæfileika til að greina mannamun, enda kannski ekkert skrýtið, því maðurinn veit sjálfur ekki hvernig hann á að haga sér gagnvart dýrunum og náttúrunni.

Lónakot

Lónakot – Skorásvarða.

Fyrir ofan Skorás taka við slétt mosa- og hraunsvæði allt upp að Krossstöpum. Krossstaparnir eru tveir sérkennilegir og klofnir klettastapar hvor upp af örðum með stuttu millibili. Um neðri og stærri stapann endilangan liggur gömul saufjárveikigirðing. Neðri stapinn, Mið-Krossstapi er sagður hornmark jarðanna Lónakots, Hvassahrauns og Óttarsstaða í landamerkjabréfum, en í rauninni er enginn Mið-Krossstapi sjáanlegur því staparnir eru aðeins tveir að því er virðist.

Álfakirkja

Álfakirkja.

Þó telja sumir að Álfakirkjan, neðar og norðar í hrauninu, geti verið svonefndur Neðsti-Krossstapi.
Eftir að hafa skoðað Skógarnefsgrenin neðan við háhraunbrúnina nyrst í nefninu var haldið til austurs yfir tiltölulega nýlega hraunlænu. Svo virðist sem hún hafi komið úr smágíg neðan við Skógarnefið og gefið af sér litla spýju til norðurs. Hún er tiltölulega mjó. Þegar komið var í vesturjarðar Tóhólanna var gengið að Tóhólaskúta, en síðan niður í Óttarsstaðasel.

Lónakotssel

Rjúpa við Lónakotssel.

Óvenjumikið var af rjúpu á leiðinni, en auk þess skógarþröstur, maríuerla, sólskríkja, spói og þúfutittlingur.
Við skoðun í kringum selstóftina mátti sjá minna vatnsstæði í lítilli hraungjótu undir bakka skammt sunnan hennar, en meginvatnsstæðið er austan selsins.

Selsstígnum var loks fylgt niður að línuvegi og stefnan síðan tekin á Óttarsstaðaborgina þar sem hringnum var lokað. Á leiðinni varð fyrir hundur hraunkarlsins, en eins og flestum er kunnugt á sérhvert hraun sér a.m.k. einn hraunkarl, ímynd þess úr neðra er fylgjast vildi með hvað er að gerast ofanjarðar.
Frábært veður.

Lónakotssel

Tóftir Lónakotssels undir Skorási.

Mosfellsbær

Við Helgadalsveg í Mosfellsbæ, neðan Katlagils, er skilti með yfirskriftinni „Vindhóll„. Á því má lesa eftirfarandi:

Vindhóll

Mosfellsbær

Mosfellsbær – Vindhóll; skilti.

Héðan liggur gönguleið á Grímannsfell, fyrst um allbrattar brekkur upp á brún og síðan áfram á hæsta hnúk fjallsins sem heitir Stórhóll.
Frá Stórhól er hægt að ganga norður af fjallinu niður að Helgufossi og síðan niður með Köldukvísl að Gljúfrasteini. Þaðan er stutt leið hingað.
Einnig er hægt að ganga frá Stórhól á svonefndan Hjálm á suðurhluta Grímannsfells og síðan niður í Torfdal. Þaðan má ganga í Dalsréttina yfir göngubrú á Suðurá og enda gönguna hér.

Velkomin á stikaðar leiðir Mosfellsbæjar
Mosfellsbær er um 200 ferkílómetrar að stærð. Hér eru víðáttumikil náttúruleg svæði og einstakir útivistarmöguleikar í lítt snertu landslagi upp til heiða, við vötn og ár og strandlengjuna. Áberandi eru fellin og gróðursælir dalir auk tveggja jarðhitasvæða.

Leirvogur

Leirvogur.

Leiruvogur gengur inn úr Kollafirði og í hann falla þrjár ár; Leirvogsá, Kaldakvísl og Varmá. Leiruvogur er nefndur í fornsögum, þar var alþekkt skipalægi til forna og þaðan lá leið til Þingvalla og annarra landshluta.

Gönguleiðir eru margar og fjölbreyttar í Mosfellsbæ. Fjöllin eru að vísu ekki há, það hæsta er Grímannsfell, tæplega 500 m.y.s. Náttúruperlur og skoðunarverðir staðir eru víða við gönguleiðirnar. Má þar nefna Leirvogsá og Tröllafoss, sem er friðlýst náttúruvætti, Köldukvísl og Helgufoss, Varmá og Álafosskvos, Nóngilsfoss og Katlagil, Grettistak á Þverfelli og Seljadal. Fornar þjóðleiðir, seljarústir og aðrar sögulegar minjar eru einnig víða við gönguleiðirnar.

Jarðfræði

Móskarðshnúkar

Móskarðshnúkar – hluti af Stardalseldstöðinni.

Frá því að Stardalsmegineldstöðin kulnaði fyrir um tveimur milljónum ára hafa roföflin grafið dali og myndað það landslag sem við þekkjum í dag. Berggrunnurinn er að mestu hraun, sem runnu á hlýskeiði, og í fellunum má sjá hraunlög sem hafa hlaðist upp á löngum tíma.

Mosfellsheiði er dyngja og þaðan runnu hraunlög niður á láglendið í Mosfellssveit. Víða er jarðhiti í tengslum við virkar sprungur og misgengi sem teygja sig út frá gosbeltinu. Í Mosfellsdal eru þykk setlög sem benda til þess að þar hafi verið stöðuvatn.

Gróður

Skófir

Skófir á steinum.

Við landnám var Mosfellssveit skógi vaxin og miklar breytingar hafa orðið vegna landnýtingar og uppblásturs. Gróður teygir sig frá sjávarsíðunni, upp dalina og fellin. Ofan til eru fellin gróðursnauð. Þar eru ríkjandi skófir á steinum og klöppum, mosi og hálendisplöntur. Við gönguleiðina um Stekkjargil, sunnan undir Helgafelli, hafa verið merktar nokkrar tegundir úr íslenskri flóru.“

Hið fyndna við skiltið er að á því er hvergi minnst á staðsetningu eða örnefni nefnds Vindhóls, hvorki í texta né á meðfylgjandi korti. Þá eru nánast allir þarnefndir „áhugaverðir staðir“ víðs fjarri skiltinu, að ekki sé talað um Stekkjargilið sunnan Helgafells?
Staðsetning skiltisins er þó góð þegar áhugasamt fólk vill horfa frá því yfir annars fallegan Mosfellsdalinn til norðvesturs á góðum degi.

Mosfellsbær

Mosfellsbær – Vindhæð; skilti.

Seltún
Hvers vegna heitir Seltún í Krýsuvík „Seltún„. Það vita fáir. Í upplýsingum um svæðið er hvergi minnst á sel í túninu. Ekki heldur minjar brennisteinsvinnslunnar í lok 19. aldar.
Seltún

Seltúnssel – tilgáta.

Sigfús Eymundsson tók ljósmynd af selstöðunni 1882 frá vörðunni á Litla-Lambafelli að Seltúni. Á myndinni sjást tóftir sestöðunnar ágætlega, auk annarra minja skammt suðaustar. Enn má sjá móta fyrir þeim minjum. Tóftir selsins voru síðan jafnaðar við jörðu þegar túnræktunarátakið hófst í Krýsuvík eftir uppsteypu kúabúsins.

Með því að handvinna, þolinmæðlega, endurgerð selsins og síðan biðja um hjálp gervigreindar var hægt að endurskapa selstöðuna…

Seltún

Seltúnsselið sést á þessari mynd Sigfúsar Eymundssonar frá 1884 – myndin er tekin frá Lambafelli að Seltúni.

Sigurðarsel

Á ýmsum kortum af Þingvallasvæðinu má sjá örnefnið „Sigurðarsel„, en bara á jafn mörgum stöðum og kortin eru mörg. Á sumum þeirra er selið skráð sunnan þjóðvegarins í gegnum þjóðgarðinn, sunnan við svonefndan Klukkustíg, og á öðrum er það staðsett skammt norðan þjóðvegarins. Á öllum kortunum er selið þó staðsett austast í Þingvallahrauni, vestan Hrafnagjár.

Hellishaedarhellir

Hellishæðarhellir.

Þegar FERLIR var að fylgja sjálfboðaliða-samtökum um náttúruvernd um Þingvallahraun daginn eftir þjóðhátíðardaginn 17. júní með það fyrir augum að rekja fornar götur, s.s. að Hellishæðahelli, um Svínhóla og síðan Klukkustíg frá Hrafnagjá að Þórhallsstöðum austan Skógarkots, birtist selið skyndilega uppljómað í heiðinni.
Reyndar kostaði það nokkurra mínútna undirbúning á áningarstað vestan undir Svínhólum eftir að komið hafði verið við í hellinum í Hellishæð. Í Jarðabókinni 1703 mátti lesa eftirfarandi um selstöðuna frá Þingvallabænum: „Selstöðu góða á staðurinn í sínu landi, en þar er örðugt til vatns í þerra sumrum, því brunnurinn þornar aldeilis upp.“
Í örnefnalýsingu um Þingvallahraunin er birtist í Árbókinni 1937-1939 mátti lesa eftirfarandi um svæðið umleikis og  Sigurðarsel (Þingvallarsel): „Frá Gjábakkastíg vestur að Tjörnum hækkar hraunið norður-eftir, norður fyrir Þingvallahelli; er svo að mestu leyti flatt norður-af Sigurðarseli og Hellishæð og vestur-að Hábrún, en hallar þaðan vestur- að Mosalág og Lágbrún.

Sigurdarsel-4

Sigurðarsel.

Þetta heitir einu nafni Brún. Þetta var þrautastaður, að því er sauðbeit snerti á vetrum, bæði fyrir hraunbúa og aðra; jafnvel var f je rekið þangað til beitar austan úr Laugardal.
Eins og áður er sagt, heitir Klukkustígur þar, sem hverfur hallinn á vestri barmi Hrafnagjár. Alla leið þangað frá Hallstíg er gjáin djúp, breið og að öllu hin hrikalegasta. Þar fyrir norðan verður austurbarmurinn hár á dálitlum kafla, en vesturbarmurinn nær því jafn hrauninu, enda hækkar það þar á ný og hallar mót suðvestri; heitir sá halli Sigurðarsel. Sunnan í því er stór og falleg brekka, sem heitir Sigurðarselsbrekka; suður frá henni, vestur af Klukkustíg, er stór hóll, sem heitir Klukkustígshóll. Á gjánni, þar sem barmar hennar eru orðnir jafnir, er Selstígur; þar norður-frá eru fornar tóftir, sem má ske hafa verið hið virkilega Sigurðarsel. Skógur var um 1900 stærstur og sverastur í Sigurðarseli, en þar fyllist fljótt að snjó, sjerstaklega í norðaustan-hríðum.

Sigurdarsel-5

Sigurðarsel – uppdráttur ÓSÁ.

Við norðvestur-horn Sigurðarsels[hæðar] er Hellishæð. Það er há hæð, sem snýr h.u.b. í austur og vestur, með skógi vaxna grasbrekku að sunnanverðu. Uppi á henni er hellir, ei all-lítill, sem notaður var frá Skógarkoti til fjárgeymslu. Hann var mörgum hellum betri að því leyti, að hann var talsvert hár, en blautur var hann þar, sem gólfið var lægst. Lægð lítil er við vesturenda Hellishæðar; fyrir vestan hana er Litla-Hellishæð, dálítill hóll með vörðubroti; sunnan undir henni, niður á Brún, er klettahóll, sem heitir Þorkelsklettur. Norðvestur frá Litlu-Hellishæð er stór, sundurtættur klappahóll, sem heitir Ketilhöfðaklettur.“
Þetta verður að teljast sérstaklega merkur fundur, bæði vegna þess að líklega hefur enginn núlifandi maður áður litið tóftirnar augum og auk þess verður staðsetningin að teljast merkilegt innlegg í sögu búsetu á Þingvöllum fyrr á öldum. Selstaðan er á mjög fallegum stað með tilkomumiklu útsýni yfir Þingvallahraunið. Um er að ræða heilstaðan selsklasa með baðstofu og búri og hliðstæðu eldhúsi. Mikið hefur verið lagt í að gera vatnsbólið nýtilegt með ganghleðslum umleikis.

Sigurðarsel

Sigurðarsel – umvafið gróðri.

Tvískiptur hlaðinn stekkur er skammt norðan við selið. Ekki er ólíklegt að sauðaskjólið í Hellishæð hafi tengst selstöðunni fyrrum.
Annars hylur birkiskógur minjarnar svo önnur en vel þjálfuð leitaraugu eiga mjög erfitt að koma auga á þær, sem betur fer.
Ferðin um Þingvallahraunið var farin með félögum í Sjálfboðasamtökum um náttúruvernd, sumum skemmtilegri en aðrir.
Frábært veður. Gangan tók 4 klst og 4 mín.

Heimildir m.a.:
-Jarðabókin 1703, Þingvellir.
-Árbók Hins íslenska fornleifafélags, örnefni í Þingvallahrauni, bls. 147-149.

Sigurðarsel

Sigurðarsel.

Hellisgerði

Árið 1909 fékk Ungmennafélagið 17. júní í Hafnarfirði lofun fyrir landi til skógræktar í nánd við bæinn í Víðistöðum. Ræktunin gekk vel fyrstu árin.
Árið 1922 var Hellisgerði gert að skrúðgarði Hafnfirðinga.

Sléttuhlíð

Sléttuhlíð – fyrsti bústaðurinn 1925.

Árið 1925 úthlutaði fasteignanefnd Hafnarfjarðar fyrstu lóðunum fyrir sumarbústað á svæðinu, þeim Jóni G. Vigfússyni og Magnúsi Böðvarssyni. Þeir hófu skógrækt í Sléttuhlíð 1926.
Árið 1946 var Skógræktarfélags Hafnarfjarðar stofnað.

Nú, árið 2026, eiga Hafnfirðingar bæði sérstaka og einstaka möguleika á að skapa eitt fallegasta útivistar- og skógræktarsvæði í byggð á landinu. Aðstæðurnar eru til staðar. Það sem þarf til, auk áhuga og vilja bæjarfulltrúa, er einungis að tengja saman Víðistaðasvæðið og Eyrarhraunssvæðið með undirgöngum á Hjallabraut gegnt Skátaheimilinu, að undangenginni skipulagningu samtengdu svæðanna.

Víðistaðir

Víðistaðir og Eyrarhraun með undirgöng á Hjallabraut.

Samtengd svæðin gætu auðveldlega, ef vel er að verki er staðið, trompað Lystigarðinn á Akureyri sem og aðrar slíkar dásemdir í bæjum landsins, s.s. Grasagarðinn í Laugardal. Framkvæmdin verður að teljast ódýr m.v. möguleikana, s.s. með stígagerð, plöntun og skipulagningu skjóllauta. Um er að ræða sérstaklega skjólsælan reit þegar sólin skín í norðanáttinni frá Reykjavíkursvæðinu.
Hellisgerði, barn síns tíma, mun eftir sem áður standa fyrir sínu, enda sýnishorn af því er koma gæti.

Í deiliskipulagi Víðistaða og Eyrahrauns í Hafnarfirði segir m.a.:

Eyrarhraun

Eyrarhraun austanvert.

„Skipulagssvæðið afmarkast í austri af Herjólfsbraut og vestari mörkum íbúðarbyggõar við Sævang að Flókagötu“.

Markmið deiliskipulagsins:
Meginmarkmið deiliskipulagsins hafa verið skilgreind sem eftirfarandi:
• að leggja sérstaka áherslu á umferðaröryggi og greið tengsl við íbúðar-, skóla- og þjónustusvæði.

Eyrarhraun

Í Eyrarhrauni.

• að gera tillögur að þróun íbúða- og þjónustu/stofnanakjarna innan skipulagssvæðisins, m.a. með tilliti til umhverfisverndar og útivistar, svo og þeirra fornminja eða eldri mannvistarleifa, sem á svæðinu kunna að vera.
• að móta tillögur að framtíðarskipulagi innan svæðis Hrafnistu, m.a. með tilliti til framkominna hugmynda um uppbyggingu á lóð dvalarheimilisins og í nágrenni þess.

Eyrarhraun

Eyrarhraun.

• að nýta og gera heilsteyptara það svæði sem þegar hefur verið tekið til ráðstöfunar innan marka fyrirhugaðs deiliskipulags; að viðhalda byggðarmynstri eldri byggðar á svæðinu, virða byggingarstíl fyrirliggjandi húsa og gæta þess að nýbyggingar og breytingar á eldri húsum falli vel að umhvefi sínu.

Eyrarhraun

Í Eyrarhrauni.

• að uppbygging svæðisins verði hagkvæm í útfærslu og að því megi skipta upp í minni framkvæmdaáfanga, sem hver um sig verði sjálfstæð eining innan stærri heildar.
• að auka gróður og ræktun eftir því sem aðstæður leyfa við skjólmyndun, fegrun og útivist.

Framangreind hugleiðing FERLIRsfélaga er vel umhugsunarinnar virði þegar horft er til vænlegrar nýtingar á annars ónýttu hraunssvæði bæjarins.

Eyrarhraun

Eyrarhraun að vestanverðu.

Þorbjarnastaðir

Nýtti, sem FERLIRsfélagi, góðviðrið í morgun að rölta í rólegheitum um slóðir forferðranna í Hraunum.

Þorbjarnarstaðir

Þorbjarnarstaðir í Hraunum – tóftir.

Á Þorbjarnastöðum bjuggu skömmu eftir aldarmótin 1900 langamma mín, Ingveldur Jónsdóttir, dóttir Jóns Guðmundssonar hreppstjóra á Setbergi, og Þorkell Guðnason frá Guðnabæ í Selvogi. Hann var langdvölum við sjósókn, en Ingveldur stjórnaði búrekstrinum af röksemi. Þau, hjúin, eignuðust samt sem áður ellefu börn, þ.á.m.a. Ingveldi Þorkelsdóttur, ömmu mína, síðar bústýru í Teigi í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík (byggður 1934).

Teigur

Teigur og Klöpp – Þorbjarnarfell í bakgrunni.

Hún, með elskulegum manni sínum, Árna Guðmundssyni frá Klöpp í sama hverfi eignuðust einnig ellefu börn, þ.á.m. föður minn, Inga Ármann Árnason. Án hans, sem og ekki síst móður minnar, Fjólu Eiðsdóttur frá Raufarhöfn, og allra hinna fyrrum væri ég ekki að skrifa þessa lýsingu. Fjóla var dóttir Eiðs Eiríkssonar frá Gasgeira á Melrakkasléttu og Járnbráar Kristrúnar Sveinbjörnsdóttur frá Klifshaga í Öxnarfirði. Í dag hafa afkomendurnir því miður lítinn áhuga á fortíð sinni. Þeir virðast hafa meiri áhuga á sjálfum sér og nánustu líkamspörtum – ef marka má samfélagsmiðlana.

Þorbjarnarstaðir

Þorbjarnarstaðir – brunnur.

Rifjaði upp á röltinu lýsingar á hinu og þessu í umhverfinu með vísan til opinberra skráninga og viðtala við afkomendur fólksins í gegnum tíðina.

Teigur

Teigur – ættartré.

Niðurstaðan varð m.a. sú að örnefni eru ekki bara örnefni. Þau eiga það til að breytast, bæði mann fram af manni sem og á milli manna í gegnum tíðina. Örnefni skráð á einum tíma, af tilteknum aðila, eftir öðrum slíkum geta haft gildi sem slík þá stundina, en þau þurfa hvorki að vera hin einu réttu né endanleg. Þegar fjallað er opinberlega um örnefni á tilteknu landssvæði má telja víst að ekki verða allir sammála. Þá reynir gjarnan á skynsemina að greina á milli þess sem er og var…

Standandi við tóftir Þorbjarnarstaða, síðasta torfbæjarins í Hraunum í Garðahreppi til 1967, síðar Hafnarfirði, nú í umsjá og eigu bæjarfélagsins (væntanlega í umsjá Byggðasafnsins), horfandi á leifarnar frá því bærinn lagðist í eyði 1939, er bæði margs og margra að minnast…

Þorbjarnarstaðir

Þorbjarnarstaðir – Miðdegisvarðan; Hádegisvarðan frá Straumi.

Seltúnssel

Ætlunin var að ganga um gömlu brennisteinsnámurnar í Baðstofu ofan við Krýsuvík og leita ummerkja eftir námumenn á svæðinu, en brennisteinn var unninn þar fyrrum líkt og ofan við Seltún skammt norðar.
Þaðan átti að Leirhver í Baðstofuhalda upp á austurbrúnirnar sunnan Hnakks (Baðstofu) á Sveifluhálsi, milli Hettu (379 m.y.s.) og Hatts. Frá hvorutveggju er hið ágætasta útsýni yfir undirlendið, allt til sjávar. Í leiðinni átti að kanna með hugsanlegar götur innar á hálsinum, milli Hettu og Arnarnípu; Hettustígs, Smérklofastígs og Ketilsstígs.. Eins og svo oft áður leiddi ferðin til óvæntrar uppgötvunar.
Byrjað var þó að rifja upp vísuna góðu:
„Í Krýsuvík er Hetta, Hnakkur og Hattur. Kært er mér þetta, kem þangað aftur og aftur…“
En hvort er réttara að skrifa Krýsuvík eða Krísuvík? Báðar útgáfur af þessu orði koma fyrir í fræðiritum og bókum.

Húshólmi

Húshólmi – skáli í gömlu Krýsuvík, áður grunn vík, þar sem nú er Húshólmi.

„Í Landnámu (Íslensk fornrit I:392 og víðar) og fornbréfum er nafnið ritað Krýsuvík. Uppruni þess er óviss. Alexander Jóhannesson taldi að forliður nafnsins gæti verið Crisa, fornháþýskt kvenmannsnafn (Über den Namen Krýsuvík. Mittelungen der Islandfreunde 1929, bls. 36-37). Líklegra er þó að nafnið sé dregið af germanskri rót sem merkir ‘beygja’ og hafi vísað til lögunar víkurinnar (Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók, bls. 510 og 512). „Krísa“ merkir vandræði, en „Krýsa“ merkir skora eða grunn vík. Því virðist eðlilegra að rita örnefnið með „ý“.

Við Baðstofu

Engin vík heitir nú Krýsuvík þar sem Ögmundarhraun rann yfir bæinn Gömlu-Krýsuvík og í víkina. Miðað við elsta rithátt nafnsins í Landnámu þykir mér því réttara að skrifa Krýsuvík. Þjóðsagan um Krýsu eða Krýsi og Herdísi í Þjóðsögum Jóns Árnasonar (2. útg. I:459-461) er vafalítið til orðin út frá nöfnum víkanna.“
Önnur eðlilegri skýring er á nafngiftinni, em hún er sú að ‘krys’ merki í fornnorrænu grunna skoru og þá gjarnan í ask. Krýsuvík hin forna hefur því verið grunn vík og við hana hafa landnámsmenn tekið sér bólfestu ef marka má hinar fornu minjar, sem þar má enn sjá.
Í þjóðsögunni um Krýsu og Herdísi segir: „
Þórir haustmyrkur nam Selvog og Krýsuvík. Það hefir verið seint á landnámstíð, því fjölbyggt hefir verið orðið syðra eftir þeirri sögn að fátækt fólk hafi flakkað í Selvog bæði utan með sjó og sunnan yfir fjall.
Brennisteinn í BaðstofuÞað þótti Þóri illt og setti því grindarhlið læst í Grindaskarð, en annað í skarð það sem farið er úr Grindavík upp á Siglubergsháls. Þar af skulu þessi örnefni vera dregin: Grindaskarð og Grindavík.
Það er naumast annað en getgáta að Krýsa og Herdís hafi verið dætur Þóris haustmyrkurs; þó hefir það verið sagt.
Krýsa bjó í Krýsuvík, en Herdís á Herdísarvík. Þær deildu um landamerki milli sín. Vildi Krýsa eiga Geitahlíð alla og væru landamerki í stóran stein er stendur í hrauninu fyrir austan hlíðarhornið. Herdís vildi eiga út á Deildarháls. Hann er nokkuð vestar en undir miðri Geitahlíð og hefir spúð eldi því í honum er gígur ekki alllítill, og úr honum hefir runnið hraun það er Klofningur heitir eða Klofningar. Þar hittust þær og deildu þar til báðar heittust, og eru dysjar þeirra á hrygg nokkrum undir hlíðinni skammt fyrir austan hálsinn. Má geta til að Herdís hafi gengið þangað undan, því henni veitti miður þó hvorug hefði vel.
SveltirÞangað til hafði veiði mikil verið í Kleifarvatni í Krýsuvíkurlandi og tjörnin í Herdísarvík stararflóð og silungapollur í miðjunni.
Herdís mælti svo um að allur silungur í Kleifarvatni skyldi verða loðsilungur óætur.
Þá lagði Krýsa það á að tjörnin í Herdísarvík skyldi éta sig út og eyða úr sér störinni og brjóta bæinn, en allur silungur skyldi verða að hornsílum. Það skyldi og fylgja að tvær skipshafnir skyldu í henni drukkna.
Þetta gekk allt eftir. Bærinn Herdísarvík stóð áður undir Búrkletti, en tjörnin gróf undan honum grundvöllinn svo hann varð að flytja úr stað og einn vetur sem oftar var tjörnin lögð með ís, þá komu sjómenn frá skipum (þau voru tvö) og gengu tjörnina, en ísinn brast og allir drukknuðu. Og enn er varazt að ganga hana þó hún sé lögð. Svo fór um landamerkin sem Krýsa vildi og heitir nú kletturinn Sýslusteinn.

Herdís og Krýsa

Kerlingadysjar Herdísar (Dísu) og Krýsu, auk smalans.

Skammt fyrir austan Kerlingar (dys Krýsu og Herdísar) eru tveir steinar sem líka hafa verið nefndir Sýslusteinar, en eru auðsjáanlega hrapaðir úr hlíðinni á seinni tímum.“
Í annarri sögu segir að: „
Herdís og Krýs hétu konur tvær í fyrri daga; þær bjuggu í víkum þeim í Gullbringusýslu sem við þær eru kenndar síðan, Krýs í Krýsuvík, en Herdís í Herdísarvík.

Krýsuvík

Krýsuvík – minjar brennisteinsvinnslu undir Baðstofu.

Þar er vatn eitt uppi á heiðunum sem þá var veiði í. Þóttust báðar kerlingarnar eiga veiðina í vatninu og notuðu hana hvor um sig eftir megni.
Einu sinni mættust þær á leiðinni til vatnsins í hrauninu milli víkanna; þar deildu þær út af veiðinni og heituðust og urðu loks sín að hvorum steini. Standa þar steinarnir sinn hvorumegin við götuna í hrauninu, og heitir hinn syðri Herdís en hinn nyrðri Krýs.“

Búseta í Krýsuvík undir Bæjarfelli, var frá 12. öld þegar talið er að bærinn hafi verið fluttur frá Húshólma, til ársins 1942.

Seltúnssel

Seltúnssel – nátthagi.

Krýsuvík var talin höfuðból, enda stærsta jörð á Reykjanesskaga. Jörðin náði að sjó frá Selatöngum austur að sýslumörkum. Byggðin náði hámarki á miðöldum en 1860 var t.a.m. búskapur á 13 býlum. Eftir aldamótin 1900 fór fólki að fækka og kotin fóru í eyði. Það eina sem minnir á höfuðbólið Krýsuvík og hjáleigurnar er Krýsuvíkurkirkja sem stendur á bæjarhólnum. Umhverfis hólinn eru tóftir Norðurkots, Snorrakots, Suðurkots, Lækjar og Hnausa.
Lækur undir HattiÞar sem gengið var um Baðstofu og hlíðarnar ofanverðar mátti hvarvetna sjá mikinn jarðhita, enda gáfu ummerkin slíkt greinilega til kynna. Brennisteinn var og víða á hverasavæðunum.
Krýsuvíkursvæðið nær yfir jarðhitasvæðin á Austurengjum, Krýsuvík, í Köldunámum, Trölladyngju, og við Sandfell. Fjögur þau fyrst töldu sýna sig samfelld í viðnámsmælingum, en Sandfellssvæðið er laust frá. Meginsvæðið er hringlaga um 50 km2 að flatarmáli innan 10 ohmm jafnlínu. Sandfellssvæðið er mælt á sama hátt um 4 km2. Sveifluháls og Vesturháls með Trölladyngju eru móbergshryggir samsettir úr mörgum goseiningum og ná mest í 300-400 m hæð. Nútímahraun þekja allt sléttlendi vestan við hálsana og á milli þeirra. Upptök þeirra eru í gossprungum beggja megin við og utan í Vesturhálsi og Trölladyngju. Gossprungur eru einnig austan í Sveifluhálsi og sprengigígar á öldunum vestan hans, en hraunmagn úr öllum er lítið.
Gosvirknin hjaðnar þaðan til NA og verður af lægð þar sem Kleifarvatn er. Jarðmyndanir milli Sveifluháls og Austurengja eru eldri en vestur í hálsunum og á hraunasvæðunum. Efnismiklar móbergsmyndanir úr öðru eldstöðvakerfi eru austan við Kleifarvatn og öldurnar þar suður af.

Krýsuvík

Krýsuvík – Dyngja sunnan Kleifarvatns.

Hveravirknin á ofannefndum fjórum jarðhitasvæðum er að ýmsu leyti ólík.
Í Krýsuvík er hveravirknin samfelldust í Hveradölum og við Seltún og nokkuð upp á hálsinn, með gufu- og leirhverum. Þar er nokkuð um brennisteinshveri og miklar gipsútfellingar. Hverir eru einnig í Grænavatni. Frá Grænavatni og Gestsstaðavatni liggja gossprungur með fleiri gígum til norðurs, og stefnir önnur upp í Hveradali, en hin á hverina við Seltún. Hæstur hiti í borholum er í Hveradölum um 230°C. Dýpst hefur verið borað um 1200 m. Hiti er nærri suðuferli niður á ~300 m dýpi, en þar neðan við kólnar. En engar mælingar eru til úr borholum neðan 400 m.
Litadýrðin er mikil á jarðhitasvæðinuÁ Austurengjum er jarðhitinn aðallega á einni rák sem nær frá Austurengjahver norður í Kleifarvatn. Töluverð ummyndun sést í bergi alllangt út frá beggja megin. Auk jarðhitans eru á þessari hitarák nokkrir sprengigígar sem gosið hafa gjalli og smáhraunum með úrkastinu. Sá stærsti er um 100 m í þvermál skammt norðaustur af Stóra-Lambafelli og mikil gjalldreif austur frá honum. Gígar þessir eru frá því snemma á nútíma. Ein 600 m djúp borhola er við Kleifarvatn um 150 m vestan við hverarákina. Hæstur hiti í henni er um 160°C. Síðsumars 1924 lifnaði Austurengjahver við jarðskjálfta, var áður lítilfjörlegur. Stórir hverasprengigígar eru norðurfrá honum en eldri, sem bendir til að grunnt sé á jarðhitakerfi nærri suðu líkt og í Krýsuvík.

Köldunámur

Köldunámur.

Köldunámur heita vestan í Sveifluhálsi langt norður frá jarðhitanum í Krýsuvík. Þar skammt vestur af eru gufuaugu í hraunbolla og nokkur brennisteinn (Leynihver), en í hlíðinni köld jarðhitaskella. Gipsmulningur sést sem bendir til að þar hafi einhvern tíma verið brennisteinshverir.

Seltún

Brennisteinsnámuvinnslusvæðið við Seltún 1976.

Krýsuvíkursvæðið er stórt háhitasvæði með mörgum gufu- og leirhverum. Jarðhitasvæðið skiptist í tvennt: Sveifluháls og Trölladyngju. Jarðhitavatnið er lítið salt og hefur hitinn mælst 230-260°C sem er mjög ákjósanlegur hiti til gufuframleiðslu (Halldór Ármannsson o.fl. 1996).
Þeir félagar Eggert og Bjarni voru á ferð um Krýsuvík árið 1756 og var þá unnin brennisteinn í Krýsuvík.  Bændur höfðu í gegnum aldirnar grafið upp brennistein og selt ferðamönnum milliliðalaust. Árið 1753 var komið upp húsi í Krýsuvík til að vinna brennistein að undirlagi Skúla Magnússonar landfógeta og Bjarna Pálssonar landlæknis. Nokkur ágóði varð af brennisteinsvinnslunni.
Árið 1858 keypti Bretinn Joseph William Horft niður á SeltúnshverasvæðiðBushby brennisteinsnámurnar í Krýsuvík.  Kostnaðurinn varð þó of mikill og var bara unnin brennisteinn í tvö sumur eftir það. Eftir það tóku ýmsir námurnar á leigu en síðastur þeirra var Bretinn T. G. Paterson og bróðir hans W. G. S. Paterson sem tóku námurnar á leigu árið 1876. Þeir stofnuðu Brennisteinsfélag Krýsuvíkur en á þessum tíma var orðið lítið af brennisteini ofanjarðar þar sem auðvelt var að ná í hann. Bora þurfti því eftir brennisteininum. Árið 1880 er talið að allri námuvinnslu hafi verið lokið og sama ár var uppboð á ýmsum eigum félagsins. Vinnsla brennisteins í Krýsuvík stóð því yfir í hartnær tvær aldir (Sveinn Þórðarson, 1998). 

Gengið var niður með læk milli Hnakks og Hatts. Þar framar var hið ágætasta útsýni yfir Seltún og Vesturngjar.
SeltúnshverasvæðiðÁrið 1941 fékk Hafnarfjarðarbær afsal fyrir jörðinni Krýsuvík ásamt hitaréttindum. Sama ár voru boraðar þrjár tilraunaholur við sunnanvert Kleifarvatn.  Ætlunin var að komast að því hvort þar mætti fá gufu til að framleiða rafmagn fyrir Hafnarfjarðarbæ. Það varð þó ekki raunin því ekki fékkst nægt vatn eða gufa úr holunum. Hafnfirðingar gáfust þó ekki upp og árin 1945 og 1946 var ráðist í nýjar boranir. Tilgangurinn var sem fyrr að fá gufu til að framleiða rafmagn en einnig að virkja jarðhitann til upphitunar gróður- og íbúðarhúsa á jörðinni. Í þetta skiptið gekk aðeins betur og fékkst meiri gufa en í borununum árið 1941.

Seltún

Seltún – orkuvinnsla.

Gufan var nýtt til upphitunar í Krýsuvík en ekki var ráðist í gerð jarðgufustöðvar eins og staðið hafði til og streymdi því gufan út í loftið, engum til gagns. Enn sem komið er hefur ekki orðið neitt úr framkvæmdum um nýtingu jarðhitans í Krýsuvík til rafmagnsframleiðslu og upphitunar en það er þó ekki ólíklegt að jarðhitinn á svæðinu verði nýttur í framtíðinni til upphitunar á höfuðborgarsvæðinu eða iðnaðarframleiðslu. Orkustofnun hefur einnig látið bora rannsóknarholur og gert víðtækar rannsóknir á svæðinu í gegnum tíðina (Sveinn Þórðarson, 1998).
Fimmtudaginn 25. október 1999 varð mikil gufusprenging á hverasvæðinu við Seltún. Svartur gufubólstur steig til himins og stór gígur myndaðist þar sem sprengingin hafði orðið. Grjót og drulla dreifðust fleiri hundruð metra frá gígnum. Kaffiskúr sem stóð í um 100 metra fjarlægð frá gígnum eyðilagðist í sprengingunni, rúður brotnuðu og stór steinn féll niður í gegnum þakið á skúrnum. Gígurinn mældist um 43 metrar í þvermáli en drullan dreifðist 700 metra til norðurs frá holunni.
KlettafellÁstæðu sprengingarinnar má  rekja til gamallar rannsóknarholu sem Rafveita Hafnarfjarðar lét bora árið 1949. Þegar borað hafði verið niður á 229 metra dýpi þeyttist bormeitillinn og borvírinn upp úr holunni. Þá var lokað fyrir holuna en haldið var áfram að mæla afl og afköst holunnar. Gufan úr rannsóknarholunni var talin nægja til 3 MW raforkuframleiðslu en raforkuvinnslan varð aldrei að veruleika. Holan hefur blásið líkt og hver upp í gegnum steypta pallinn í kringum holuna síðustu 20 árin. Í október 1999 var talið að holan hefði sofnað en líklegra er að hún hafi stíflast af útfellingum. Töluverður þrýstingur hefur þá byggst upp og er talið að þrýstingurinn hafi náð 10-20 bör. Eftir sprenginguna hætti öll gufuvirkni í gígnum en ekki er ólíklegt að virknin komi upp á nýjan leik seinna meir.
Í hlíðum HettuHverasvæðin eru síbreytileg. Barth (1950) segir að einn hveranna þar hafi gosið 3-4 metra háum gosum af leirkenndu vatni árið 1936. Hann segir flesta hverina vera súra með pH gildi um 4. Þó séu þar einhverjir basískir hverir sem streyma út í lækinn sem rennur út í Kleifarvatn. 

Austurengjahver, áður nefndur Nýihver, er syðstur svokallaðra Austurengjahvera. Sonder (1941) mældi 118°C í hvernum, sem á þeim tíma var gufuhver en telst í dag vatnshver (Barth 1950). Austurengjahver er talin hafa myndast í jarðskjálftum árið 1924. Rennsli er ekki mikið frá hvernum og mest gufa sem stígur upp frá honum.  Aðrir þekktir hverir við Seltún er Pínir og Svunta. Pínir var öflugur gufuhver þar til fyrir nokkrum árum síðan að hann breyttist í hitaskellu (Björn Hróarsson o.fl. 1991).

Brennisteinsvinnsla

Brennisteinsvinnsla við Seltún.

J. Wright, einn leiðangursmanna í Íslandsleiðangri Stanleys árið 1789, segir þetta um hverina í Krýsuvík: „Við komum að hverunum kl. 7. Í fimm eða sex þeirra var dökkblár grautur mismunandi þykkur, og spýttu þeir honum upp í verulega hæð.  Hinn stærsti þeirra er ein hin ljótasta og ægilegasta sjón, sem maður fær augum litið. Þetta er stór, ef til vill botnlaus ketill meira en 30 feta langur og 20 feta breiður, bókstaflega barmafullur af sjóðandi brennisteini, sem kastast upp í 10-12 feta hæð við suðuna. Auk þess hávaða, sem suðan veldur, heyrðist annað hljóð, sem virtist koma neðan úr jörðinni, líkast þungum fossnið. Það eykur á óhugnað þessa staðar, að geysilegir hvítir gufumekkir streyma sífellt fram og líkt og veltast yfir klettana sem liggja að baki og allir eru tættir í sundur. Eins og við hverina, sem við skoðuðum í gær, er hér gnótt af hreinum, kristölluðum brennisteini.“
Gata austan við ArnarvatnÍ seinni tíð hafa náttúru- og umhverfisverndarsjónarmið verið að ryðja sér til rúms innan raða þeirra sem taka þátt í virkjun jarðvarma.  Lengst af hafa slík sjónarmið ekki verið reifuð sérstaklega en nýtingin hefur reyndar ekki verið umfangsmikil fram á síðustu áratugi. Eyðilegging hvera hefur þó átt sér stað bæði vegna nýtingar eða af öðrum ástæðum.  Í Náttúruverndarkönnun árið 1979-1980 í Borgarfirði reyndust nærri helmingur hvera hafa verið eyðilagður og var þó heitt vatn langt umfram þarfir íbúa á svæðinu (Tryggvi Þórðarson 1981). Nýting vatnsins var algengasta orsökin fyrir eyðileggingunni, sem fólst oftast í því að steypt hafði verið yfir hverina. Mjög algengt var einnig að náttúrulegar laugar og volgrur höfðu verið eyðilagðar með skurðgreftri og framræslu. Sú nýting jarðhitasvæða sem nú er ráðgerð  í landinu er talsvert umfangsmeiri en sú sem stunduð var í Borgarfirði og því er mun nauðsynlegra að náttúru- og umhverfisvernd séu höfð að leiðarljósi við alla áætlunargerð og framkvæmdir. Ljóst er þó að þekkingn á nýtingu jarðhitans er orðin miklu meiri en þekkingin á verndarmöguleikum og umhverfisáhrifum slíkra framkvæmda. Ástæðan er sú að miklu fé hefur verið varið í undirbúning jarðorkunýtingar en tiltölulega litlu í rannsóknir á umhverfisáhrifum á hverina og lífríki þeirra.

Isor

Jarðfræðikort ISOR af Suðvesturlandi.

Ísland er ungt land jarðfræðilega séð. Elsta berg á yfirborði landsins er 14-16 milljónir ára gamalt en til samanburðar er jörðin um 4500 milljónir ára. Virkt gosbelti liggur eftir flekaskilunum endilöngum. Gosefni hafa síðan hlaðist upp og eru yngstu jarðlögin næst núverandi rekbeltum en þau elstu liggja yst á Austfjörðum og á Vestfjörðum.
Jarðvirkni á Íslandi er mikil og landmótun hröð. Þetta má helst skýra með legu landsins á Atlantshafshryggnum sem teygir sig úr Norður-Íshafinu suður fyrir Afríku. Á hryggnum er hár hiti úr jörðu sem stýrir eldvirkninni og nefnist þetta svæði á Íslandi virka gosbeltið einnig kallað eldvirka beltið. Atlantshafshryggurinn liggur á mörkun tveggja fleka (sjá landrekskenninguna) sem rekur í sundur til vesturs og austurs.  Þessar plötur eru nefndar Evrópuplatan og Norður-Ameríkuplatan. Plöturnar eru um 100-200 km þykkar og mörg þúsund kílómetar að breidd. Jarðvirkni á Íslandi, svo sem eldgos og jarðskjálftar, er afleiðing þessa landreks.

EinirSums staðar á hryggnum, á svokölluðum heitum reitum, eru mikið uppstreymi kviku og jarðvarmi mikill. Fræðimenn hallast að þeirri kenningu að undir reitunum myndist möttulstrókar vegna mikils varmaflæðis frá kjarnanum til jarðskorpunnar. Heitur reitur liggur undir Íslandi en talið er að um 20-30 heitir reitir séu dreifðir um jörðina, óháð flekamörkum. Eldvirkni á heitum reitum er oftast meiri en umhverfis hann og því liggur Ísland 2000 metrum ofansjávar meðan hryggurinn rétt hjá er á 2000-3000 metra dýpi. Ísland væri allt öðruvísi í lögun ef heiti reiturinn einn hefði valdið gosum, Ísland myndi þá líkjast meira Hawaii.  Ísland hefði að sama skapi sjálfsagt ekki myndast ef einungis hefði verið um að ræða gos vegna plötureks. Ísland er einsdæmi á Atlantshafshryggnum að því leyti að saman fara plötuskil og heitur reitur sem bætir við efni þannig að landið er ofansjávar. Til eru eyjar nálægt úthafshryggjum en engin er nákvæmlega á honum miðjum, líkt og Ísland er eða jafnstór.
Lækur neðan HnakksÖll okkar vitneskja um innri gerð jarðarinnar fáum við með óbeinum hætti því nærri ómögulegt er að nálgast þessar upplýsingar á beinan hátt. Með mælingum á hraða jarðskjálftabylgna hafa menn komist að því að jörðin er lagskipt. Innst er kjarni, utan um kjarnann kemur möttullinn og yst höfum við jarðskorpuna. Kjarninn samanstendur að mestu úr járni og inniheldur 1/3 af massa jarðar þrátt fyrir að hann sé aðeins 1/5 af rúmmáli jarðar. Skýringin á því er mikill hiti og þrýstingur í kjarnanum sem þjappar saman massanum. Kjarninn inniheldur mikið af geislavirkum efnum. Þessi efni gefa frá sér hita þegar þau brotna niður, og sá hiti berst hægt í gegnum jörðina og upp á yfirborðið og hjálpar til við plötuhreyfingar.

Jörðin

Möttull jarðar.

Efsti hluti möttulsins og jarðskorpan kallast stinnhvolf og skiptist í fleka eða plötur. Þessar plötur (sjá landrekskenningin) eru á hreyfingu vegna hitans sem berst frá kjarnanum og möttlinum við niðurbrot geislavirkra efna. Mest af kvikunni sem berst frá möttlinum storknar neðanjarðar en hluti hennar kemur upp á yfirborðið og þá verða eldgos. Dreifing jarðskjálfta og eldvirkni er þar af leiðandi mest þar sem flekamót eru. Hiti vex með dýpi í jörðinni. Það stafar af niðurbroti geislavirkra efna frá möttlinum og kjarnanum.

Hverasvæði undir Hnakk

Hitastig er mismunandi í efstu lögum jarðskorpunnar og er hann hæstur á virkum eldfjallastöðvum. Ástæðan er að kvika berst upp í jarðskorpuna og hitar hana upp. Jarðskorpan öll samanstendur af risastórum plötum eða flekum. Plöturnar eru úr föstu efni, sem fljóta ofan á seigu efni í möttli jarðar. Iðustraumar í möttlinum valda því að plöturnar eru á stöðugu reki og því er hreyfingin nefnd landrek. Þar sem flekarnir færast í sundur, eins og á Íslandi, þar er uppstreymi í möttlinum og ný jarðskorpa myndast stöðugt. Þar sem flekar rekast á eyðist jarðskorpan þegar hún hverfur ofan í jörðina og bráðnar. Sannanir fyrir plötuhreyfingunum hafa vísindamenn meðal annars fengið með að bera saman steinategundir mismunandi heimsálfa. Vísindamenn fundu meðal annars að ákveðnar steinaraðir á strönd Brasilíu birtust aftur í Afríku á nákvæmlega þeim stað þar sem gera mætti ráð fyrir að þær væru ef þessi tvö meginlönd hefðu verið föst saman.
Jarðvirkni í heiminum er mest þar sem plötur mætast og þar finnum við aðal skjálfta- og eldsumbrotasvæði Vetrarblómjarðar. Á Íslandi skapar landrekið stöðugt nýja jarðskorpu í gosbeltum landsins. Í virka gosbeltinu, sem liggur á plötuskilunum, eru öll virk eldfjöll á Íslandi staðsett. Virka gosbeltið nær frá Reykjanesi til norðausturs þvert yfir landið. Plöturnar færast í sundur um að meðaltali 1 sm á ári þannig að bergið sem einu sinni myndaðist þar er að finna á Austfjörðum og Vestfjörðum. Þar má finna elsta berg á Íslandi en það yngsta næst plötuskilunum.
Krýsuvík komst eftir króka- og klækjaleiðum í eigu Hafnarfjarðarbæjar. Um 1930 var erfitt að stunda búskap í kringum Hafnarfjörð, bæjarbúar voru sjálfum sér ekki nógir um neyslumjólk og beitiland vantaði fyrir sauðfé. Ekki fékkst aukið ræktarland úr Garðakirkjulandi og var þá farið að svipast um eftir öðrum jörðum nærri bænum. Krýsuvík þótti álitlegust og ritaði bæjarstjórn Hafnarfjarðar Einari Benediktssyni bréf í janúar 1933 og spurðist fyrir um hvort jarðeignir hans í Krýsuvík eða Herdísarvík væru fáanlegar til kaups.
VinnuskólinnTveimur árum síðar átti bærinn kost á að kaupa Krýsuvík fyrir 50.000 krónur og tók jörðina á leigu á fardögum 1935 til eins árs, með það í huga að kaupa hana síðan með gögnum og gæðum. Með lögum nr. 11, 1. febrúar 1936 var ríkissjóði heimilað að taka eignarnámi lönd í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar og lönd sem liggja að Hafnarfirði. Eftir það upphófst mikið málaþras um væntanleg kaup bæjarins á jörðum Krýsuvíkur og Stóra-Nýjabæjar og afnotaréttinn. Gekk á þessu í nokkur ár þar til lögunum var breytt og tóku lög nr. 101, gildi 14. maí 1940. Þar sagði að Gullbringusýsla skyldi fá í sinn hlut lítt ræktanlegt beitiland jarðanna Krýsuvíkur og Stóra-Nýjabæjar til sumarbeitar fyrir sauðfé samkvæmt skiptagerð frá 1. maí 1939, en Hafnarfjarðarkaupstaður fengi jarðirnar að öðru leyti með öllum gögnum og hlunnindum, sem þeim fylgdu og fylgja bæri, að undanteknum námuréttindum. Hinn 20. febrúar 1941 gaf Dóms- og kirkjumálaráðuneytið út afsal fyrir Krýsuvík til Hafnarfjarðar.

Krýsuvíkurvegur

Krýsuvíkurvegur ofan Kleifarvatns 1937. Ljósm. Emil Jónsson.

Árið 1935 var ákveðið að leggja Suðurlandsbraut um Krýsuvík til að fá snjóléttan vetrarveg milli Árnessýslu og Reykjavíkur. Árið 1945 var lagningu vegar fyrir Kleifarvatn lokið og árið eftir hófst borun eftir jarðhita í Krýsuvík. Gróðurhús voru reist og tekin í notkun í mars 1949 ásamt húsi fyrir starfsfólk. Tveimur árum síðar hófst bygging bústjórahúss og 130 gripa fjóss sem aldrei var lokið því 1950 var framkvæmdafé á þrotum. Þá hafði ræst úr mjólkurskorti bæjarbúa með bættum samgöngum við Suðurland. Framkvæmdir hófust að nýju í Krýsuvík 1954 er 15 hektarar voru teknir í fulla ræktun. Keypt voru 100 gimbralömb og flest varð féð um 650 áður en þessum rekstri var hætt nokkrum árum síðar. Gróðrarstöðin og búskapurinn gengu ekki vel og illa hélst á starfsfólki. Var búrekstri af hálfu bæjarins hætt í Krýsuvík 1960. Eftir það voru húsin leigð til einstaklinga sem ráku þar ýmiskonar starfsemi, þar á meðal gróðurhús, svínabú og refabú svo fátt eitt sé talið.

Sundlaugin

Árið 1953 kom Hafnarfjarðarbær á fót vinnuskóla í Krýsuvík fyrir drengi á aldrinum 10-13 ára. Dvöldust um 40-50 drengir í Krýsuvík frá júníbyrjun til ágústloka, en komu heim til sín aðra hverja helgi. Bjuggu þeir í íbúðarhúsi því sem reist hafði verið fyrir starfsfólk gróðrarstöðvarinnar. Drengirnir stunduðu ýmis störf meðan á sumardvölinni stóð, fóru í leiki, stunduðu íþróttir og fóru í gönguferðir um nágrennið. Árið 1960 var tekið við drengjum frá 8-12 ára og dvölinni skipt upp í tvö fimm vikna holl. Voru rúmlega 50 piltar í hvoru holli og var nú meiri áhersla lögð á léttari störf og leiki ýmiskonar. Lauk þessari starfsemi árið 1964.

 

Sundlaug vinnuskóladrengjanna milli Bleikhóls og Irpuhóls

Eitt af því sem drengirnir gerðu, og enn má sjá merki um, er sundlaug á sandinum millum Bleikhóls og Irpuhóls. Þar er mikill jarðvarmi rétt undir yfirborðshimnunni. Drengirnir stungu niður skóflu á söndunum og úr varð uppspretta af heitu vatni. Þeir leiddu vatn úr henni spölkorn til austurs eftir að hafa grafið þar myndarlega vatnsþró. Í fyrstu reyndu þeir að koma fyrir trébrettum á botninum, en þau vildu fljóta upp. Þá var ákveðið að sleppa tréverkinu og láta sandinn ráða. Dýptin á „lauginni“ var um 120 cm. Að og frá vinnusvæðinu sungu þeir „Krýsuvíkursönginn“ svo hátt að enn má heyra hann hljóma í hlíðum fjallanna:

Vasklega að verki göngum
vinir með gleðisöngvum
karlmennskan lokkar löngum
lífsglaðan hug.

Ræktum og byggjum, bætum,
brosandi þrautum mætum,
vonleysi, þrefi og þrætum,
þeytum á bug….

Kempur í kappasveit,
í Krýsuvík vinnum heit,
að duga og treysta vort drenglyndi og þor.
Vorhugans verkin kalla
verkglaða drengi snjalla.
Sindrar um sali fjalla
sólskin og vor.“

[Höfundur; Hörður Zóphaníasson].

Á heimleiðNú hefur bæði safnast sandur í gryfjuna og slý þekur yfirborðið. Enn má þó sjá rörið, en eitthvað virðist heitavatnið hafa kólnað síðan þá var (1962).
Bústjórahúsið var reist árið 1948 fyrir Jens Hólmgeirsson sem átti að stjórna kúabúinu í Krýsuvík. Hann flutti aldrei í húsið og aldrei kom til þess að kýr yrðu bundnar á bása í fjósinu. Árið 1952 sagði Jens stöðu sinni lausri og eftir það var húsið notað í stuttan tíma fyrir stjórnendur vinnuskólans í Krýsuvík. Árin liðu, húsið grotnaði niður og var mjög illa farið þegar Sveinn Björnsson listmálari fékk það til afnota 1974. Hann gerði húsið upp, flutti þangað málaratrönur, pensla, liti og húsbúnað og kom sér upp vistlegri vinnustofu.

Sveinn Björnsson

Sveinn Björnsson.

Sveinn hafði tekið þátt í að reisa þaksperrurnar á fjósinu í Krýsuvík á sínum tíma og þekkti því staðhætti. Þarna starfaði hann að list sinni þar til hann lést 1997. Húsið ber þess merki að þar hefur listamaður verið að störfum. Sveinn skreytti loft, veggi og hurðir hússins og lagði tröppurnar litskrúðugum teppabútum. Nú kallast bláa húsið með rauða þakinu ekki lengur ústjórahúsið heldur Sveinshús eftir listmálaranum og rannsóknarlögreglumanninum Sveini Björnssyni, sem sá til þess að húsið endaði ekki sem gapandi tóft, heldur öðlaðist virðulegan sess sem listasetur.

Eins og nafnið gefur til kynna var Stóri-Skógarhvammur vaxinn gömlum birki- og víðiskógi þegar Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fékk svæðið til umsjónar og ræktunar 1958.

Krýsuvík

Krýsuvík – Seltúnssel sett inn á mynd.

Byrjað var á að girða 56 ha spildu sumarið 1958 en árið eftir hófst plöntun trjágróðurs af fullum krafti. Samið var við Hafnarfjarðarbæ um að piltar í vinnuskólanum í Krýsuvík önnuðust ræktunarstarfið undir stjórn Hauks Helgasonar forstöðumanns vinnuskólans. Þegar Vinnuskólinn í Krýsuvík var lagður niður haustið 1964 var formlegu ræktunarstarfi lokið í Stóra-Skógarhvammi. Skógurinn hefur fengið að aðlagast landsháttum undanfarna fjóra áratugi og hefur nánast verið sjálfbær þennan tíma.

Ketilsstígur

Ketilsstígur.

Götu var fylgt með hlíðum sunnan og austan Arnarvatns. Þá var komið áleiðis niður á Seltún sunnan Hatts. Líklegt má telja að örnefnið Seltún hafi ekki komið til ef engu. FERLIR hefur löngum, á öðrum leiðum, gengið um Seltúnssvæðið í leit að ástæðu nafngiftarinnar; selinu. Á einu Krýsuvíkurkorti er selið sýnt norðvestan við gatnamótin að hverasvæðinu. Það er í sjálfu sér ágætt, nema þar eru bara engar tóftir. Smátóft er þó á gróðurtorfu sunnan við aðalhverasvæðið. Hún gæti hafa tilheyrt námumönnum.

Seltún

Seltúnsselið sést á þessari mynd Sigfúsar Eymundssonar frá 1884 – myndin er tekin frá Lambafelli að Seltúni. Selið er á miðri mynd.

Og þá gerðist það, sem svo oft gerist þegar leitað er aftur og aftur; skyndilega kom í ljós tóft með þremur rýmum.

Seltúnssel

Seltúnssel – tóft.

Tóftin er greinilega mjög gömul, snýr dyrum mót norðri. Grjót eru í veggjum að hluta. Sjá má beina veggi og lögun tóftarinnar þrátt fyrir þýfið.

Seltún

Seltúnssel – tilgáta.

Að baki hennar eru leifar af hringlaga gerði, sem gert hefur verið úr torfi, trúlega kúagerði. Líklegt má telja að hér sé komið selið í Seltúni. Ketilsstígurinn hefur fyrrum legið framhjá selinu.
Frábært veður. Gangan tók 3 klst og 3 mín.

Heimildir:
-Ari Trausti Guðmundsson, 1982: Ágrip af jarðfræði Íslands handa skólum og almenningi. Reykjavík, Bókaútgáfan Örn og Örlygur, 186 bls.
-Ari Trausti Guðmundsson, 1986: Íslandseldar. Reykjavík, Vaka-Helgafell, 168 bls.
-Axel Björnsson, 1990: Jarðhitarannsóknir, yfirlit um eðli jarðhitasvæða, jarðhitaleit og  vinnslu jarðvarma. Orkustofnun, OS-90020/JHD-04, 50 bls.
-Ingvar Birgir Friðleifsson, 1979: Geothermal activity in Iceland. Jökull, 29, 47-56.
-Náttúra Íslands, 2. útgáfa, 1981. Reykjavík, Almenna bókafélagið, 475 bls.
-Tryggvi Þórðarson. 1981. Varmalindir: Hvítársíða, Hálsasveit og innanverður Reykholtsdalur: Náttúruverndarkönnun. Reykjavík. Náttúruverndarráð. Fjölrit nr. 10., 77 bls.
-Barth, Tom. F. W., 1950: Volcanic Geology: Hot Springs and Geysers of Iceland. Washington, Carnegie Institution of Washington, 174 bls.
-Björn Hróarsson og Sigurður Sveinn Jónsson, 1991: Hverir á Íslandi. Reykjavík, Mál og menning, 160 bls.
-Íslandsleiðangur Stanleys 1789: Ferðabók, 1979. Steindór Steindórsson frá Hlöðum íslenskaði, Örn og Örlygur, 352 bls.
-Halldór Ármannsson og Sverrir Þórhallsson, 1996: Krísuvík, Yfirlit um fyrri rannsóknir og nýtingarmöguleika ásamt tillögum um viðbótarrannsóknir. Orkustofnun, OS-96012/JHD-06 B. 25 bls.
-Sveinn Þórðarson, 1998: Auður úr iðrum jarðar. Ásgeir Ásgeirsson (ritstj), Safn til Iðnsögu Íslendinga XII. bindi (ritröð). Reykjavík, Hið íslenzka bókmenntafélag, 656 bls.
http://visindavefur.is/svar.php?id=6532

Krýsuvík