Gufuskálar

Í Faxa 1999 fjallar Skúli Magnússon um „Gufuskála í Leiru“ þar sem hann reynir að geta sér til um nafngiftina:

Gufuskálar

Gufuskálar – lind.

„Í Landnámu er alþekkt sögn um Ketil gufu, sem flæktist á milli staða við Faxaflóa og á Vesturlandi, sem hafa gufu að forlið í nafni.
Ekki er ljóst hvað vakað hefur fyrir skrásetjurum Landnámabókar með sögninni. Helst virðist svo að þeir séu að reyna að skýra tilurð staðarnafnanna með þessum forlið, með manns eða auknefninu gufu. Þar af leiðandi er mjög varasamt að treysta nokkuð á sannleiksgildi sagnarinnar og eins lfklegt að Ketill gufa hafi aldrei í Leiruna stigið fæti. Raunar tengjast KATLAR eldamennsku og GUFU en hvort í sögninni leynist um leið orðaleikur eða kímni fullyrði ég ekkert um. Þó má vera að hér sé á ferðinni gamansemi Landnámu skrásetjara.

Gufuskálar

Gufuskálar – tóftir ofan við Gufuskálavörina.

Þórhallur Vilmundarson hefur, sem kunnugt er, fyrir löngu sýnt fram á, að mörg nöfn landnámsmanna, sem menn töldu að hefðu verið til, væru tilbúin, dregin af staðháttum, en staðir ekki nefndir eftir mönnum jafnmikið og talið var. Leitaði Þórhallur þar annarra skýringa, m. a. í staðháttum í náttúrufari. Ef ég man rétt taldi hann gufuforliðinn í nafninu Gufuskálum, dreginn af sjóroki og ágjöf.
Einu sinni, þegar við Ólafur frá Litla-Hólmi, vorum á ferð úti í Leiru, lögðum við leið okkar niður að Gufuskálum. Fórum við þar niður í fjöru og þar sýndi Ólafur mér hvar allvolgt eða heitt vatn vall undan klöppunum niður í fjöruna. Gat hann þess að fyrrum hefði verið þveginn eða skolaður þvottur þarna. Þó var vatnið ekki svo heitt að úr því ryki. Þetta er hins vegar á fárra vitorði og hefur ef til vill alltaf verið sökum þess, að heita vatnið er neðan flóðmarks og fer á kaf á flóði.

Gufuskálar

Gufuskálar – hleðslur ofan við Gufuskálavör.

Þetta leiðir hugann að nafninu Gufuskálum og hvernig umhorfs var þar fyrrum. Var þar við landnám, 870-900, svo mikill hiti að úr vatninu rauk? Varð heitt vatn þama ef til vill til þess að fommenn komu sér þar snemma upp verbúð eða viðlegu til fiskjar? Er ef til vill kjarni sannleiks í sögn Landnámu um að Steinunn gamla hafi haft þar útræði? Ekki er ólíklegt að á Gufuskálum hafi verið búið fyrr en til að mynda á Hólmi í Leiru, vegna hitans, hafi hann verið meiri á þeirrí tíð.

Gufuskálar

Gufuskálar og Vesturkot í Leiru – túnakort 1919.

Í öllu eldiviðarleysinu fyrrum, einkum þegar leið fram um landnám, var sírennandi heitt vatn, sem von er, almesta nauðsyn á köldum vetrum, ekki síst í verstöð þar sem kaldir og hraktir menn tóku oft lendingu.
Aldrei hefur það verið kannað, svo ég viti, hvort og hve mikið af heitu vatni mætti finna á Gufuskálum. Ef til vill gæfi slík rannsókn einhverja vísbendingu um hvernig ástand þar var í vatnsmálum við upphaf landnáms.“ – Skúli Magnússon

Gufuskála er getið í gömlum heimildum:

Gufuskálar

Gufuskálar – óskilgreindar tóftir á hól.

Jarðarinnar er getið á skrá um rekaskipti á Rosmhvalanesi frá um 1270: „…vt j tyslinga stein Gvfvskalar eigv þadann vt til midvarar j midskala…“ DI II, 77.
Þá er hennar getið í afgjaldareikningi Eggerts fógeta Hannessonar frá 1552 og í jarðaskiptabréfi hirðstjóra fyrir hönd konungs við Skálholtsstól frá 1563, DI XIV, 420, 156.

Gufuskálar

Gufuskálar – uppdráttur ÓSÁ.

Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín frá 1703 nefnir tvær nafnlausar hjáleigur á jörðinni. JÁM III, 99. 1703: „Fóðrast kann iii kýr. … Skóg til kolgjörðar hefur jörðin í almenníngum. Torfrista og stúnga engin nema í grýttri jörðu valla nýtandi. Eldiviðartak lítið af fjöruþángi. Lýngrif lítilfjörlegt. Fjörugrasatekja nokkur. Rekavon nær engin. Heimræði árið um kríng… Lendíng slæm um stórstraum. Tún eru grýtt og uppblásin til þriðjúnga. Engjar eru öngvar. Hagar eru mjög litlir vetur og sumar. Vatnsból í lakasta máta og þrýtur bæði sumur og vetur.“ JÁM III, 98-99.
1703, jarðardýrleiki óviss. Konungseign. JÁM III, 98-99. 1847, 33 1/3 hdr. Konungseign. JJ,88. Jarðarinnar er getið í Þórðarbók Landnámu: „Gufi hét annarr son Ketils. Hann vildi byggja í Nesi en Ingólfr rak hann á brutt þaðan; þá fór hann á Rosmhvalanes og vildi byggja á Gufuskálum…“ ÍF I, 66 nm og í Sturlubók Landnámu: „Ketill tók Rosmhvalnes; sat hann enn fyrsta vetr at Gufuskálum“ ÍF I, 166. Þá er hennar getið í Egilssögu: „Ketill gufa kom til Íslands, þá er land var mjök byggt; hann var inn fyrsta vetr at Gufuskálum á Rosmhvalanesi.“ ÍF II, 240.
Túnakort 1919: Gufuskálar: Tún 2,8 teigar, kálgarðar 930 m2. Vesturkot: Tún 0,9 teigar, kálgarðar 900 m2.

Heimild:
-Faxi, 3. tbl. 01.10.1999, Gufuskálar í Leiru, Skúli Magnússon, bls. 63.
Gufuskálar.

Höfði

Leiðtogafundurinn í Höfða var fundur milli Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtoga Sovétríkjanna sem haldinn var í Höfða 11. til 12. október 1986.

Höfði

Höfði – skipulagsuppdráttur vegna öryggisgæslu fundarins í Höfða 1986.

Tilgangur fundsins var undirbúa fund leiðtoganna í Washington ári síðar en þar átti að ræða um takmörkun á vígbúnaði og deilu- og mannréttindamál.

Um tíma kom til greina að halda fundinn á Hótel Sögu eða jafnvel Kjarvalsstöðum en þar hittust Pompidou forseti Frakklands og Nixon forseti Bandaríkjanna árið 1973.

Viðbúnaður
Mikil öryggisviðbúnaður var við komu leiðtogana, sem dæmi má nefna að skotheldar bifreiðar voru fluttar til landsins, hús í nágrenni við Höfða voru rýmd á meðan á fundinum stóð og var eftirlit með farþegum til landsins hert en fundurinn var ákveðin með aðeins 10 daga fyrirvara. Í fylgdarliði leiðtogana voru alls um 400 manns en einnig heimsóttu um 1.000 blaðamenn landið vegna fundarins.

Höfði – Niðurstaða

Höfði

Uppdráttur vegna öryggisgæslunnar við Ægisgarð vegna leiðtogafundarins 1986.

Fundinum var slitið án niðurstöðu en þrátt fyrir það er talið að hann hafi gegnt gífurlega mikilvægu hlutverki í þróun afvopnunarmála og verið mikilvægur þáttur í undirritun INF-sáttmálans í desember 1987.

Leiðtogafundurinn frægi í Reykjavík var haldinn 11.-12. október 1986. Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mikhaíl Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, funduðu í Höfða og Íslandi var kastað inn í hringiðu nútímans. Heimssögulega markar leiðtogafundurinn líka upphafið á endalokum kalda stríðsins.

Leiðtogafundurinn í Höfða árið 1986 var ákveðinn með örskömmum fyrirvara. Fæstir sem um aðdragandann hafa fjallað í tilefni þessx að 40 ára eru liðin frá fundinum virðast hafa hina minnstu hugmynd um hvað gekk þá á, en fleiri virðast hafa gert sér grein fyrir árangrinum – sem slíkum.

Meðfylgjandi öryggisgæsluuppdrættir á helstu stöðum leiðtoganna gerði ÓSÁ. Hafa ber í huga að öll undirbúningsvinnan var gerð fyrir tilkomu tölvutækninnar…

Heimild:
-https://is.wikipedia.org/wiki/Lei%C3%B0togafundurinn_%C3%AD_H%C3%B6f%C3%B0a
-https://www.mbl.is/mogginn/bladid/innskraning/?redirect=%2Fmogginn%2Fbladid%2Fgrein%2F1921993%2F%3Ft%3D811948899&page_name=grein&grein_id=1921993

Höfði

Öryggisgæsluuppdráttur í kringum Hótel Sögu í aðdraganda leiðtogafundarins 1986.

Krýsuvíkurtorfan

Í Þjóðviljann 1955 skrifar Elías Guðmundsson „Minningar frá Krýsuvík – Skúla Árnasonar, héraðslæknis minnzt„:
„Fyrrverandi héraðslæknis, Skúla Árnasonar, er lézt að heimili dóttur sinnar og tengdasonar hér í bænum 17. sept. sl., var getið í blöðum bæjarins um og eftir útför hans í stuttum eftirmælagreinum, skráðum af menntamönnum er þekktu hann persónulega.
Skúli ÁrnasonÍ greinum þessum er Skúla lýst sem lærdómsmanni og lækni, einnig að nokkru sem bónda og dýravini, er fór sömu mjúku líknarhöndunum um manninn og málleysingjann, lá aldrei á liði sínu en gerði ætíð sitt bezta. Af því að svo undarlega vill nú til að engin af þessum Skúlagreinum á neitt skylt við venjulegt líkræðulof né eftirmælaöfgar, eins og öllum kunnugum er ljóst þá hlýtur sú spurning óhjákvæmilega að vakna, hvað þar var, sem gerði Skúla þannig. Svona góðan, svona sannan og raunverulega mikinn mann. Ég fullyrði að það var ekki presturinn sem kenndi honum undir skóla, ekki menntaskólinn hér í Reykjavík né læknaskólinn og ekki heldur sú stofnun er hann hlaut framhaldskennslu í erlendis og hef ég þó ekki neina löngun tii að kasta hinni minnstu rýrð á neinn af þessum fjórum framangreindu aðilum. Heiðurinn og þökkina fyrir það hvernig Skúli var ber engum öðrum en foreldrum hans og heimili þeirra. Þar dvaldi hann öll sín bernsku- og uppvaxtarár. Þarna mótaðist maðurinn.
Krýsuvík
Hús og heimili foreldranna voru meðal annars hans búnaðarskóli, eins og verkin sönnuðu síðar meir og sýndu ríkulega ávexti af.
Þegar litið er um öxl 60-80 ár aftur í tímann, til bernsku-, unglings- og námsára Skúla læknis er það tvennt sem ekki verður hjá komizt að athuga.

Klofningar

Klofningar í Krýsuvíkurhrauni.

Það er hinn stórfenglegi búferlaflutningur sýslumannsins Árna Gíslasonar, föður Skúla, frá Kirkjubæjarklaustri á Síðu í Skaftafellssýslu, til Krýsuvíkur í Gullbringusýslu, og svo hið dæmafáa illæri, fjárfellir og þar af leiðandi hvers konar hörmungar er þá gengu yfir landið árum saman.

Búferlaflutningur Árna Gíslasonar frá Klaustri að Krýsuvík fór fram á tveim árum, 1879 og 1880. Fyrra vorið, þ.e. 1879, fluttist nokkuð af heimilisfólkinu, aflaði heyja og fleira um sumarið, en svo um haustið var féð rekið, 1265 fjár, á stað að austan en eitthvað týndi það nú tölunni á leiðinni sem von var til, því margar og illar eru torfærur á þeirri löngu leið. Þá voru ekki brýrnar komnar. Næsta vor, þ.e. 1880, fluttist svo það sem eftir var af fólkinu, stórgripir allir og búslóð. Síðastur frá Klaustri og í einskonar sérfylkingu fór sýslumaður sjálfur ásamt þáverandi síðari konu sinni, Elínu Árnadóttur ættaðri frá Dyrhólum í Mýrdal, og þeim tveim börnum þeirra er til fullorðinsára komust, Ragnheiði og Skúla, en þau voru bæði fermd saman í Prestbakkakirkju á Síðu rétt áður en lagt var af stað að austan.

Krýsuvík

Krýsuvík, Arnarfell t.v. og Bæjarfell t.h.

Þáttur nýfermda drengsins, Skúla, í þessu ferðalagi var sá að hann rak stóðhross föður síns, eitthvað innan við tuttugu að tölu, flest ung. Þó voru í þessum hópi tvær nokkuð gamlar hryssur, báðar fylfullar og verður þeirra að nokkru getið síðar. Þrátt fyrir dugnað sinn og kappgirni virðist roskni sýslumaðurinn hafa tekið þetta ferðalag vestur um Suðurlandsundirlendið fremur rólega. Gistingastaði hans alla hirði ég ekki að telja, en skal þó geta þriggja þeirra, en á þeim hverjum um sig sat hann einn dag um kyrt, hvíldi fólk sitt og hesta og gisti tvær nætur.

Geitahlíð

Geitahlíð og Stóra-Eldborg t.h.

Á vali þessara gististaða má sjá það að hann hefur einkum gist frændur og venzlafólk, en ekki valið sérstaklega úr þá staði er mesta höfðu björg í búi.

Krýsuvík

Krýsuvík 1909 – sett inn í ljósmynd frá 2026.

Þeir þrír staðir er Árni dvaldi á daglangt á vesturleiðinni voru þessir: Dyrhólar í Mýrdal, æskuheimili frú Elínar, Breiðabólstaður í Fljótshlíð, hjá séra Skúla bróður sínum, en þriðji og síðasti gististaðurinn var kot eitt vestarlega og neðan til í Flóanum, í grennd við Eyrarbakka, nafn á því man ég ekki, en þar bjó frændkona hans fátæk. Í þeim litla flutningi er Árni hafði með sér í þessari ferð, er var lítið annað en nauðsynlegt nesti var kistill einn er hann geymdi í peninga sína. Kistilinn, sem vitanlega var læstur, opnaði hann einu sinni í ferðinni, en það var áður en hann fór úr kotinu frá fátæku frændkonunni. Ekki opnaði hann kistilinn svo mikið að neinn sæi ofan í hann, en þó nógu mikið til þess að hann kom hægri hendi sinni inn undir lokið, en undan lokinu kom svo hnefinn fullur af silfurpeningum, þeim er þá giltu hér sem gjaldmiðill. Þetta lagði hann á borðið hjá fátæku frænkunni að skilnaði, mælt í hnefum en ekki talið.

Stóra-Eldborg

Stóra-Eldborg ofan Klofninga.

Annarri fátækri frændkonu, systurdóttur sinni, þarna í Eyrarbakkanágrenninu, þurfti Árni að líta eftir um leið og hann fór vestur um. Gjafir til hennar veit ég ekki um, en af henni tók hann sex ára gamlan dreng með sér til Krýsuvíkur, ól hann upp og kom til manns.

Stefánshöfði

Grindavík – minnismerki; Stefánshöfði til minningar um Stefán Stefánsson í Krýsuvík.

Piltur þessi var Stefán Stefánsson og var á fullorðinsárum oft nefndur túlkur. Á þessari löngu ferð Árna Gíslasonar og fjölskyldu hans, var lokaáfanginn að sjálfsögðu hin 16 km langa bæjarleið, sem er á milli Herdísarvíkur og Krýsuvíkur. Að sjálfsögðu eru landamerkin milli þessara jarða þarna á milli bæjanna og eru þau um leið sýslumörkin á milli Árnessýslu að austan en Gullbringusýslu að vestan.
Þegar komið er spölkorn vestur fyrir sýslumörkin, þ.e. inn í Krýsuvíkurland, þá er fyrsta verulega gróna landið á þeirri leið svonefndir Klofningar, en þar fækkaði tveimur í hrossarekstrinum hjá Árna. Fylfullu hryssurnar voru orðnar æði þunglamalegar svo hann skildi þær eftir þar í Klofningunum, næsta dag fór hann svo og vitjaði þeirra, var þá sitt folaldið komið hjá hvorri.

Krýsuvík

Krýsuvík – tóft.

Þegar nú að þarna var komið til hins fyrirheitna lands, Krýsuvíkur, virðist svo sem Árni hafi fundið einhverja þörf hjá sér til þess að beina huga konu sinna og barna að öðru en heimilisástæðunum og búskaparafkomunni og er mér sagt að hann hafi þá kastað fram eftirfarandi stöku: „Vorið blíða lífgar lýð lengist óðum dagur. Gyllir fríða Geitarhlíð geislinn sólar fagur„.
Geitarhlíð heitir fjall eitt fagurt, skammt til austurs frá Krýsuvík, sem hér er um kveðið. Hvort vísan er ort fyrsta kvöld Árna í Krýsuvík, veit ég ekki með vissu, en hitt er víst að hún er ort á vorkvöldi í Krýsuvík og að Árni er höfundurinn.

Krýsuvíkurkirkja

Krýsuvíkurkirkja var einföld timburkirkja í Krýsuvík. Hún var byggð árið 1857, endurbyggð árið 1964 og fór þá í vörslu þjóðminjavarðar og komst við það á lista yfir friðuð hús. Altaristafla kirkjunar var málverk eftir Svein Björnsson, listmálara.
Krýsuvíkurkirkja var notuð sem sóknarkirkja allt fram undir 1910. Hún var aflögð 1917 og notuð til íbúðar frá 1929, en síðan aftur breytt í kirkju 1963-64 fyrir tilstuðlan Björns Jóhannessonar, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar í Hafnarfirði, en Hafnarfjarðarbær færði Þjóðminjasafninu húsið til varðveislu haustið 1964.
Kirkja mun hafa risið í Krýsuvík í upphafi kristni hér á landi í Kirkjulág í Húshólma áður en Ögmundarhaun rann um miðja 12. öld. Eftir þann atburð var kirkjan færð ofar í landið. Kirkjuna sem brann smíðaði Beinteinn Stefánsson hjáleigubóndi í Krýsuvík úr rekatrjám 1857. Byggð lagðist af í Krýsuvík í byrjun síðustu aldar og 1929 var Krýsuvíkurkirkja aflögð sem helgidómur. Magnús Ólafsson, sem síðastur bjó í Krýsuvíkurbænum, dvaldist í kirkjunni um árabil sem góður hirðir er gætti kinda.
Viðamiklar viðgerðir hófust árið 1986 og hún þá færð til upprunalegrar gerðar. Útveggir voru með tjargaðri listasúð og bárujárn á þaki. Engir gamlir kirkjumunir höfðu varðveist og voru kirkjubekkir, altari og prédikunarstóll af nýlegri og einfaldri gerð.
Hún brann til kaldra kola aðfaranótt 2. janúar 2010.

Árni Gíslason var skemmtilegur tækifærisvísnahöfundur. Stökur hans oft svipmiklar. Kímnigáfu var Árni gæddur og henni góðri. Þann eiginleika tók Skúli í arf. Báðir fóru þeir feðgar vel með skophneigð sína.

Vogaheiði

Yrðlingur við greni.

Það er hverjum manni auðskilið mál að búferlaflutningur Árna Gíslasonar hlaut óhjákvæmilega að draga á eftir sér marga illa dilka. Fyrst og fremst það að flytja mikinn fjölda sauðfjár úr góðu sauðfjárplássi í annað miklu lakara, en það hefur engum manni tekizt án þess að verða fyrir stórtjóni, þegar svo þar ofan á bætist það ólán að þurfa fyrstu árin að mæta einhverjum þeim verstu harðinda- og fellisvetrum sem komið hafa. Svo var nú bráðapestin á einu leitinu, mjög mögnuð orðin hér um suðurkjálkann þá og hið óhagvana fé að austan mjög næmt fyrir henni. Þá má geta tófubitvargsins er þá var svo magnaður hér um Reykjanesskagann að slíks eru engin dæmi. Fyrsta vorið sem Árni átti fé sitt í Krýsuvík fundust tíu tófugreni í Krýsuvíkurlandareign og er þó ekki trúlegt að öll kurl hafi komið til grafar, svo margar eru holurnar í Krýsuvíkurhraununum…

Klofningar

Klofningar – greni.

Þegar við Skúli heitinn læknir ræddum um þessa tíma og þá erfiðleika er við var að stríða, heyrðist mér ævinlega á honum að hann hefði talið tófupláguna versta. Til skilningsauka á þessum málum vil ég greina hér frá tveimur atvikum er Skúli sagði mér frá persónulegum viðskiptum sínum við tófur.

Krýsuvík

Krýsuvík – Fagraskjól.

Þetta umtalaða vor er fjölskyldan flutti til Krýsuvíkur, skeði það að áliðnu vori að Skúli var að smala í áðurnefndum Klofningum, en er leið hans lá yfir laut eina grasigróna verður hann var tófuyrðlinga nokkurra í grasinu þar í lautinni. Það varð fangaráð Skúla að hann fór úr utanyfirbuxunum, batt með snærisspottum utanum skálmarnar neðst, tíndi svo yrðlingana, sem reyndust vera 9 talsins, upp í buxurnar og labbaði svo með feng þennan á bakinu heim að Krýsuvík.

Litla-Hraun

Hlaðið refskyttuskjól í Krýsuvíkurheiði.

Þegar Skúli kemur í hlaðið mætir hann Guðmundi Hannessyni bónda á Ísólfsskála, er þá var að koma neðan af svokallaðri Skriðu, frá því að vinna gren þar.
Guðmundur þessi var orðlögð ágætisskytta, en er hann hafði heyrt sögu Skúla úr Klofningunum, varð hann æfareiður honum fyrir það að hafa tekið yrðlingana. Taldi Guðmundur það tiltæki Skúla geta valdið því að hann næði ekki tófunni. En hvað um það, þrátt fyrir reiði Guðmundar leggja þeir báðir af stað austur eins og leið liggur, allt þar til er þeir finna hina áður umgetnu laut, þar sem Skúli fann yrðlingana. En er þeir félagar höfðu hreiðrað um sig og legið um klukkutíma í hraungjótu einni að austanverðu við lautina, sjá þeir allt í einu tvær tófur á hraunbrúninni vestan lautarinnar, en þá varð Guðmundi að orði: „Þurftu þær nú að koma báðar í einu, bölvaðar“. Lét hann samt fjúka þarna á þær og báðar lágu.

Kleifarvatn

Kleifarvatn.

Annað atvik, sem ég vil geta gerðist 6-7 árum síðar; var Skúli þá kominn í Latínuskólann en dvaldi að venju heima í Krýsuvík í jólafríinu.

Refur

Refur í Klofningum.

Var það þá venja hans utan sjálfra hátíðisdaganna, þegar veður leyfði það, að ganga með byssu um Krýsuvíkurland, skjóta rjúpur og eitra fyrir tófuna. Í einum slíkum leiðangri var það eitt sinn að hann rakst á för eftir eina kind rétt hjá Kleifarvatni. Snjóföl var svo að vel sáust förin og rakti Skúli þau vestur með Sveifluhálsinum sunnanverðum, allt vestur í svonefnda Seltóu þar sér hann kindina er reyndist þá vera einn af sauðum föður hans. En þannig var þá ástatt með þennan sauð að tófa ein hafði að miklu leyti hringað sig utan um hálsinn á honum og var að sjúga úr honum blóðið. Að hrista tófuna af sér hafði sauðnum ekki tekizt. Þegar nú að Skúli kemur þarna á vettvang þá verður það úrræði hans að skjóta tófuna þarna á hálsinum á sauðnum og þá auðvitað kindina um leið. Útigenginn, ljónstyggur fjallasauðurinn kunni ekki betra ráð að þýðast.

Krýsuvík 1887

Krýsuvík 1887.

Sumarið 1894 er ég var 10 ára gamall dvaldi ég í Krýsuvík, en þá um vorið lauk Skúli læknanámi og kom vitanlega að þyí loknu heim að Krýsuvík. Dagur einn snemma í ágústmánuði er mér minnisstæður frá því sumri.

Krýsuvík 1998

Krýsuvíkurbærinn 1887. Lengst til hægri er sýslumaðurinn í Gullbringusýslu, Árni Gíslason, sem bjó seinni hluta ævi sinnar í Krýsuvík.

Það var verið að breiða nokkuð hrakta há á svonefndum Ræningjahóli í sunnanverðu túninu um tíuleytið árdegis, sást þá koma ríðandi maður á rauðum hesti, allmikill í sæti, að austan. Þegar til kom þá reyndist þetta að vera hinn góðkunni myndarbóndi Þórður á Vogsósum og hafði hann með að fara bréf frá Magnúsi Stephensen landshöfðingja, hvar Skúli var beðinn um að taka að sér þjónustu læknisembættis í Grímsneshéraði í Árnessýslu. Við þessari beiðni varð Skúli og lagði af stað austur að tveim dögum liðnum. Ég kann naumast að lýsa því hver áhrif þetta „Skúla-mál“ hafði á Krýsuvíkurheimilið. Allir söknuðu Skúla og hryggðust við burtför hans, en glöddust þó af því hve fljótt hann fékk þarna álitlegt embætti. Söknuður þess að missa Skúla var heimilisfólkinu bættur með því að lesa því að minnsta kosti kafla úr bréfum hans, er bárust að austan, ég held með hverri ferð sem féll.

Krýsuvík

Legsteinn Árna Gíslasonar að baki Krýsuvíkurkirkju.

Þegar þess er gætt að frú Elín Árnadóttir, móðir Skúla, var ein sú allra bezta kona sem ég hefi þekkt, og Árni Gíslason, faðir hans, sá maður sem hann var og ég hefi lítilsháttar reynt að lýsa hér, þegar þess er ennfremur gætt að Skúli erfði í ríkum mæli alla beztu kosti beggja foreldranna, þá hlaut vel að fara.
Ég hefi engan gamlan mann þekkt sem hefur átt kost á að vera umvafinn jafn mörgum og ástríkum kærleiksföðmum og Skúli læknir.“ – Elías Guðmundsson.

Í Íslenskum æviskrám segir um Árna Gíslason; sýslumaður í Krýsuvík, 1820–1898, sonur Gísla í Vesturhópshólum og bróðir sr. Skúla á Breiðabólstað: „Sýslumaður í Skaftafellssýslum 1852-1879 en bjó síðast í Krýsuvík 1880 til dauðadags. Hafði um tíma hæsta lausafjártíund allra búandi manna á Íslandi. Talinn dugandi embættismaður og vinsæll í héraði, einkennilegur í lund og háttum, gamansamur og hagmæltur“.

Heimild:
-Þjóðviljinn, 5. tbl. 08.01.1955, Minningar frá Krýsuvík – Skúla Árnasonar, héraðslæknis minnzt, – Elías Guðmundsson, bls. 7 og 8.
-Ísl. æviskrár I, bls. 44.

Krýsuvík

Krýsuvík 1881. Gömul teikning sett inn á nýja ljósmynd (ÓSÁ).

Reykjanes

Léo M. Jónsson í Höfnum skrifaði grein í Faxa árið 2008, sem hann nefndi „Ökuferð um Hafnahrepp„. Í henni fjallar Léo m.a. um staðhætti, örnefni og sagnir á „Hinu eiginlega Reykjanesi“ og nágrenni:

Leó M. Jónsson

Leó M. Jónsson (1942-2011).

„Þegar haldið er lengra suður eftir veginum er komið á hæð þar sem vegurinn sveigir til austurs. Beint af augum er gamalt eldfjall, Sýrfell, en á milli þess og Reykjanessvita, sem stendur á hinu 50 m háa Vatnsfelli, í suðvestri, en fellið heitir eftir stórri tjörn sem er við það, eru Rauðhólar og Sýrfellsdrög. Vitinn er 28 m a hæð og því 78 m yfir sjávarmáli. Mannvirkin norðvestan við Rauðhóla er Sjóefnavinnslan (oft ranglega nefnd Saltverksmiðjan). Einnig blasir við nýreist Reykjanesvirkjun. Hér blasir hið raunverulega Reykjanes við augum sem Reykjanesskaginnerkenndurvið. Sérkennilegi hnjúkurinn með u-laga skarði í, sem sést héðan vestan vitans, nefnist Valahnjúkur. Lengst til hægri sést strýtan á móbergsdrangi sem nefnist Karl en hann stendur í sjónum skammt suður af vestasta tanga Reykjanessins sem nefnist Önglabrjótsnef og teygir sig út í sjóinn í átt til Eldeyjar. Þjóðsagan segir að tröllkarl og kerling, sem bjuggu í Eldey hafi vaðið til lands og haldið á kú að leiða til nauts. Tókst ekki betur til en svo að vegna tafa dagaði þau uppi og urðu að steini. Karlinn stendur þarna enn úti í sjó en Kerling, hátt eldvarp, sem stóð sunnar uppi á landi, brotnaði niður fyrir löngu.

Eldey

Eldey

Eldey.

Eldey er sérkennileg 77 m há þverhnípt klettsey sem liggur tæpa 15 km frá landi og er talin m.a. vera mesta súlubyggð Evrópu (alfriðuð). Milli Eldeyjar og Reykjaness er Húllið – fjölfarin siglingaleið.

Stóra-Sandvík

Stóra-Sandvík. Mynd EG.

Vegarslóði á hægri hönd liggur niður í Stóru-Sandvík og að gamla Reykjanessveginum þar sem heitir Skjótastaðir en það er hár höfði norðan við víkina og mun þar hafa verið byggð fyrr á öldum. Annar vegarslóði liggur í Stóru-Sandvík niðri í dalverpinu framundan. Frá útskoti (6,7) við enda beygjunnar til austurs sést ofan í Stóru-Sandvík vaxna melgresi. Handan hennar í suðri tekur við talsvert hraun, kolsvart og sviðið með foksand í flákum. Stamparnir þrír, sem blasa við framundan handan víkurinnar, eru sérkennilegir eldgígar og eftir þeim nefnist hraunið Stampahraun og nær fram í sjó. (Hér voru reist háspennumöstur, þrátt fyrir að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir jarðstreng frá virkjuninni að Sýrfelli. Sú breyting er vondur vitnisburður um menningarstig Suðurnesjamanna að mati höfundar!).

Eldey

Eldey.

Eldgígarnir tveir sem sjást suðvestar, lengra til hægri og utar á nesinu, nefnast Eldborgir. Eins og við er að búast eru þessir upptyppingar notaðir sem mið til staðsetningar fiskiskipa úti á Eldeyjarbanka.
Sú Eldborganna sem sést af grynnra vatni nefnist Eldborg grynnri og stendur sunnar og nær sjó. Eldborg dýpri nefnist sú sem sést af dýpra vatni. Er hún stærri og stendur vestar. Þar heitir Eldborgahraun. Fjær til norðausturs eru mikil ummerki eldsumbrota. Eru það nefnd Eldvörp. Hafnamenn nefna það einnig í daglegu tali hörzl, þ.e. ójöfnur. Stamparnir, Eldborgirnar og aðrar eldstöðvar, eru eins og misstórir hnútar á svörtu bandi í landslaginu og setja ógnþrunginn svip á umhverfið, jafnvel svo að sumt fólk verður hrætt og þorir ekki að dvelja lengi á svæðinu af ótta við eldgos – enda er hér eldur undir, sem sést m.a. á hverasvæðinu, gufuaflsvirkjuninni og blásandi borholum austan Reykjanesvita.

Mönguselsgjá

Stóra-Sandvík

Stóra-Sandvík og gjárnar ofanverðar.

Þar sem vegurinn sveigir aftur til suðurs gengur stór gjá upp frá sjó og inn í landið. Hún nefnist Mönguselsgjá og liggur nyrst upp úr Stóru-Sandvík. Gjáin er ein af mörgum sem mynda sprungubelti.

Reykjanes

Reykjanes – Brú milli heimsálfa yfir Mönguselsgjá.

Jarðskorpan gliðnar hér á miklum hrygg og jarðeldasvæði sem liggur í miðju Atlantshafi frá suðri til norðurs. Landsig sést greinilega þegar horft er um öxl til Mönguselsgjár eftir að komið er upp á Stampahraun. Yfir Mönguselsgjá (ekki Tjaldstaðagjá sem er stærri og sunnar) hafa lafafrakkamenn, úr Keflavík, byggt brú til að drýgja tekjur sínar af erlendum ferðamönnum með því að telja þeim trú um að þarna séu meginlandaflekar Ameríku og Evrópu að reka hvor frá öðrum. Greinarhöfundur er einn þeirra Hafnabúa sem hafa skömm á tiltækinu og líta á þetta sem pretti – í skásta falli fiflagang og Suðurnesjamönnum til vansæmdar enda hafa jarðvísindamenn bent á og staðfest að landrekið kemur ekki fram á þessum stað heldur miklu austar (nánar tiltekið austur í Hreppum).

Tjörn gerð af mannavöldum

Stóra-Sandvík

Stóra-Sandvík – tjörnin manngerða.

Nú komum við að syðri troðningnum sem liggur niður í Stóru-Sandvík. Hér var melgresi sáð um 1950 til að hefta sandfok. Eins og sjá má hefur það tekist vel. Tjörnin sem prýðir svæðið og laðar að sjó og vaðfugla í stórum flokkum, myndaðist ekki fyrr en melgresið hafði stöðvað fokið. Hún er því gerð af mannavöldum! Afleiðingar hrikalegra náttúruhamfara blasa við í Stampahrauni í suðvestri og Eldvörpum í austri.

Geirfuglasker

Geirfuglasker.

Ævagamlar heimildir segja að árið 1000 hafi mest allt Reykjanes sokkið í sjó og Geirfuglasker komið upp. Þá átti landið að hafa legið langt út fyrir Eldey í norðvestur en Eldey og drangar við hana hafi áður verið fjöll á Reykjanesskaganum. Til að girða fyrir misskilning skal aftur ítrekað að Reykjanesskagi og Reykjanes er tvennt ólíkt þótt skaginn dragi nafn af þessu litla nesi yst á honum.

Heimildir um landskjálfta

Stampar

Stampar.

Annálar greina frá eldsumbrotum með stuttum hléum á og úti fyrir Reykjanesi á 12. og 13. öld. Samkvæmt þeim hefur gosið á Reykjanesi árið 1118, og a.m.k. 13 sinnum á 13. öld. Sagt er að sumum eldgosum hafi fylgt miklir landskjálftar og þess getið að svartamyrkur hafi verið um annars hábjartan dag (1226) og að Reykjanesið hafi brunnið (1210 og 1211). Í hamförum á fyrri hluta 13. aldar er talið að byggð hafi eyðst á Reykjanesi en merki um hana sjást m.a. við Skjótastaði norðan Stóru-Sandvíkur.

Stampar

Stampahraun í mótun.

Í annál er þess getið að 18 manns hafi farist á Reykjanesi í landskjálfta og eldi árið 1118. Næsta lítið er vitað um sögu Hafna á 14. og fram á síðari hluta 16. aldar eins og margra annarra staða á landinu, m.a. vegna þess að kirkjubækur, sem geymdar voru í Viðey, eyðilögðust í bruna. Þó munu vera til heimildir um mikinn landsskjálfta 1389 og að 1390 hafi hálft Reykjanesið brunnið. Til mun vera heimild um að eldur hafi komið upp í hafi fyrir Reykjanesi 1420 og að þá hafi skotið upp landi. Einnig er getið um eld fyrir Reykjanesi 1422 og aftur 1584.

Stampar

Stampar í Stampahrauni á Reykjanesi.

Í annál er greint frá eldi í „Grindavíkurfjöllum“ árið 1661 og hafi sést oft, fyrir og eftir jól, á Norðurlandi. Til er heimild um að árið 1706 hafi komið upp eldur í sjó fyrir Reykjanesi og einnig 1783 fyrir sunnan Geirfuglasker. Kom þá upp land sem sökk aftur (Nýey). Síðasta gos sem minnst er á í annálum, á eða fyrir Reykjanesi, á að hafa verið árið 1830 en þá sigu Geirfuglasker í sjó. Síðustu eldsumbrot sem heyrst hefur um fyrir Reykjanesi eiga að hafa átt sér stað í kringum 1930. Á þá að hafa gosið á sjávarbotni nálægt Eldey. (Athygli er vakin á því að í ljósi niðurstaðna jarðfræðirannsókna á svæðinu, m.a. á vegum HÍ, hafa tímasetningar eldsumbrota verið endurskoðaðar 2005).

Forsetahóll

Reykjanes

Reykjanes. Forsetahóllinn efst til vinstri.

Á mótum vegar að Reykjanessvita eru um 11 km frá syðri hraðahindruninni í Kirkjuvogshverfi. Vegurinn liggur fyrst í vestur að Sjóefnaverksmiðjunni, síðan í norðvestur fram hjá gúanóverksmiðju en skammt þaðan er vinkilbeygja til vinstri á veginum að vitanum og út að Valahnjúki.

Gunnuhver

Gráa lónið á Reykjanesi.

Þessar verksmiðjur eru hér vegna jarðhita sem fæst úr borholum en þær eru með öflugustu borholum landsins um og yfir 10 megavött hver. Spölkorn frá kröppu beygjunni er grasi vaxinn hóll eða fell á vinstri hönd sem nefnist Litlafell og einnig Forsetahóll (en þennan hól gáfu bræðurnir Ketill og Oddur Ólafssynir frá Kalmanstjörn forsetaembættinu í tíð Sveins Björnssonar, að hans raði (en ekki Hafnamenn sem þakklæti fyrir veg út á Reykjanes eins og ég hafði áður haldið fram og haft ákveðna heimildarmenn að) – til að forsetinn gæti aðstoðað þá við að fá ruddan slóða út á Reykjanes – sjá bréf Marons heitins Vilhjálmssonar frá Merkinesi sem birt er hér aftan við greinina). Suðaustan við Litlafell, í hvarfi frá veginum, er mjög fallegt stórt blátt (grátt) lón. Sé gengið upp á Litlafell blasir lónið við og hverasvæði upp af því, að sunnanverðu.

Reykjanes

Reykjanes – Forsetahóll.

Ekið er um hlað vitavarðarhússins (þar er snyrtiaðstaða fyrir ferðafólk) og áfram út að Valahnjúki. Við strönd Reykjaness og báðu megin nessins hafa orðið mörg og mikil sjóslys á þessari öld. (Greinarhöfundur hefur skrifað sögu Björgunarsveitarinnar Eldeyjar í Höfnum. Þar er m.a. fjallað nokkuð ítarlega um stærri sjóslys á þessu svæði. Greinin er einnig birt á vefsíðu höfundar www.leoemm.com).

Clam

Clam á strandsstað.

Við Reykjanes strandaði m.a. eitt af stærstu skipum sem strandað hefur við Ísland, olíuskipið Clam. Það var 28. febrúar 1950. Skipið varð vélarvana eftir að hafa rekið upp í fjöru í Reykjavík og á leið til útlanda dregið af dráttarbáti, sem það slitnaði frá í ofsaveðri. Um borð voru 50 skipverjar. Hvers vegna 50 manns voru um borð í vélarvana skipi sem draga átti til útlanda af dráttarbáti bíður sagnfræðinga að rannsaka. Þarna fórust 27 manns en 23 tókst að bjarga.

Niðurlag

Reykjanes

Brú milli heimsálfa yfir Mönguselsgjá.

Mörkin á milli gamla Hafnahrepps (nú Reykjanessbæjar) og Grindavíkur liggja á Reykjanesi í línu frá tindi Sýrfells í þúfu í Valbjargargjá strax sunnan Valahnjúks og þaðan í kamb Valahnjúksmalar. (Eftir þinglýstu skjali nr. 240479 dags. 16/1/79).

Álfar

Álfur á Reykjanesi.

Ástæða er til að geta þess að í þessari grein er stuðst við upplýsingar staðfróðra heimamanna í Höfnum um örnefni. Mest munar þar um örnefnasafn og lýsingu Hinriks í Merkinesi á staðháttum í gamla Hafnahreppi sem hann vann fyrir Örnefnastofnun 1978. Á nokkrum stöðum eru önnur heiti notuð á sumura kortum Landmælinga ríkisins en í þessari grein. Þau eru eftirfarandi: Á korti stendur Valahnjúkar. Í Höfnum er aðeins talað um einn Valahnjúk. Á korti eru 5 Stampar sagðir í Stampahrauni. Í Höfnum eru 3 gígar næst vegi nr. 425 nefndir Stampar. Þeir tveir sem eru sunnar á nesinu nefnast Eldborg grynnri og Eldborg dýpri og þar er Eldborgahraun. Á korti stendur Eldvarpahraun. Í Höfnum er talað um Eldvörp á þeim stað. Norðarlega upp af Hafnabergi er hóll sem nefndur er Berghóll á korti. Í Höfnum heitir þessi hóll Bjarghóll (hann er við Sigið (á Siginu) þar sem sigið var í bjargið).

Valahnúkur

Valahnúkar og Valahnúkamöl.

Á korti er hluti strandarinnar undir Valahnjúki nefnd Miðgarðamöl. Í Höfnum heitir þessi staður Valahnjúksmöl (eins og er á a.m.k. einu kortanna í mkv. 1:100.000). Gjáin sem gengur upp úr Stóru Sandvík (sú sem hefur verið brúuð við hlið vegarins!) nefnist Mönguselsgjá eftir Möngu frá Kalmanstjörn sem var selsstúlka fyrrum en ummerki selsins er að finna austarlega í gjánni. Þessi gjá hefur ranglega verið nefnd Tjaldstæðagjá í fréttatilkynningum frá Ferðamálaskrifstofu Reykjanesbæjar. Sú gjá nefnist réttu nafni Tjaldstaðagjá. Hún er breiðari en Mönguselsgjá og liggur spölkorn sunnar.“

Með greininni fylgir bréf frá Ron (maron) frá Cooktown í Ástralíu:

Bréf frá Astralíu: Cooktown 15.3.04
Blessaður Leó!

Reykjanes

Reykjanes – Forsetahóll.

Þú ert kannski hálfundrandi á að fá bréf á íslensku frá Ástralíu. Í eina tíð hét ég Maron í Merkinesi, fæddur þar og uppalinn.
Ástæðan fyrir þessu bréfkorni er Leiðarlýsing þín um Hafnir. Ég er þér sammála um flest eins og t.d. „skrímslið“ en hugmynd þín um Forsetahólinn er alröng. Mundu að ég þekkti Kedda Ólafs (Ketil Ólafsson frá Kalmanstjörn) frá barnæsku. Sagan er sú – beint frá Kedda – að hann var búinn að klára allan sandinn í Hundadalnum og vantaði leið suður eftir. Hann (Keddi) og Oddur voru búnir að ræða við Vegamálastjóra, ýmsa ráðherra og embættismenn um akfæra braut svo hægt væri að koma liði og tækjum nálægt strandstað en ekkert gekk; þeir vísuðu hver á annan, eins og embættismanna er vandi, þangað til hraut út úr Kedda:

Reykjanesviti

Reykjanes – Forsetahóll. Steyptir hliðarstólpar fremst.

„Andskotinn, – við verðum víst að tala við forsetann sjálfan“! Oddur þagði smástund og svaraði svo: „Já, við erum búnir að tala við alla aðra.“ Þeir tóku strikið út á Álftanes og knúðu dyra á Bessastöðum. Sveinn Björnsson tók vingjarnlega á móti þeim og hlustaði á mál þeirra. (Oddur var talsmaðurinn). Forsetinn íhugaði málið um stund en sagði svo: „Já, þetta er greinilega ábyrgðarmál en sjálfur get ég ekkert gert, ég er bara forseti. Skiljið þetta eftir hjá mér og ég skal athuga hvort ég eigi ekki hönk upp í bakið á einhverjum þessarra svokölluðu ráðamanna.“

Reykjanes

Reykjanes – kort frá 1908.

Stuttur tími leið þangað til forsetinn hringdi í Odd á Reykjalundi og sagði honum „það er engin leið að fá neitt af viti frá þessum pólitískusum, einfaldasta bakferlið er að þið gefið forsetaembættinu sumarbústaðarland á Reykjanesi.“ Bræðurair voru til í það og gáfu hólinn, sem nú er kallaður „Forsetahóll“. Það var góður slóði frá Kistu til vitans en hin hraunin þurfti að ryðja. Eftir að embættið hafði þegið gjöfina gat Sveinn forseti farið fram á að slóðinn yrði ruddur. Vegurinn kom nokkrum árum seinna og vann ég við hann, þrettán ára að aldri, en það er allt önnur saga.
Sem sagt, forseti fékk hólinn í gegn um „bakdyramakk“ en fékk hann ekki í þakklætisskyni.
Kveðjur,
Ron:

Heimild:
-Faxi, 1. tbl. 01.02.2008, Ökuferð um Hafnarhrepp – Leó M. Jónsson, bls. 9-11.

Reykjanes

Reykjanes.

Víkingaskip

Í Náttúrufræðingnum 1983 fjallar Jón Jónsson, jarðfræðingur, um „Aldur Afstapahrauns milli Kúagerðis og Mávahlíða„:

Afstapahraun
„Áður hef ég leitt nokkur rök að því (Jón Jónsson 1978) að nafnið á þessu hrauni sé afbökun úr Arnstapa — enda er hitt nafnið lítt skiljanlegt.
Ekkert hefur verið vitað með vissu um aldur þessa hrauns. Þorvaldur Thoroddsen (1925, bls. 187) segir raunar að það sé „in aller Wahrscheinlich nach bei Ausbrúcken in historischer Zeit hervorgebrochen“, en ekki fer hann í þessu eftir öðru en unglegu útliti hraunsins.
Afstapahraun
Í norðanverðu hrauninu eru nokkrir óbrennishólmar og eftir að athuganir meðfram vesturbrún hraunsins höfðu ekki borið árangur, leituðum við Sigmundur Einarsson jarðfræðingur fyrir okkur nyrst í einum þessara hólma.

Afstapahraun

Afstapahraun og nágrenni – Jarðfræðikort ISOR.

Eftir að hafa grafið á nokkrum stöðum við hraunröndina töldum við okkur hafa fundið landnámslagið, sem liggur inn undir hraunið. Þar eð ég var ekki fyllilega ánægður með sniðið fór ég aftur á staðinn og gróf lengra inn undir hraunið. Þar fann ég landnámslagið mjög greinilegt með þess einkennum, ljóst að neðan en dökkt að ofan. Þetta má vel greina á ljósmyndinni (5. mynd) ef hún prentast sæmilega. Þar með er ljóst að Afstapahraun er runnið á sögulegum tíma. Ekki heppnaðist að finna gróðurleifar nothæfar til aldursákvörðunar.“

Afstapahraun

Í Afstapahrauni.

Í Andvara 1884 segir Þorvaldur frá Afstapahrauni í riterð sinni „Ferðir á suðurlandi sumarið 1883„:

Afstapahraun

Afstapahraun á Jarðfræðikorti Jóns Jónssonar.

„Afstapahraun hefir runnið alveg niður í sjó hjá Kúagerði og armur úr því nærtöluvert til vesturs; mestur hluti þessa hrauns hefir komið frá Trölladyngju, og þó virðist töluvert hafa komið úr gígunum við Máfahlíðar. Upp úr Afstapahrauni ofauverðu stendur einstakt móbergsfell, sem heitir Snókafell. Strandahraun eru þau hraun, sem liggja fyrir vestan Afstapahraun, on hinn eiginlegi Almenningur er á milli Afstapahrauns og Kapelluhrauns.“

Afstapahraunið er víðast hvar illt yfirferðar, einkum að austan-, sunnan- og norðanverðu. Að vestanverðu er það jafnara og greiðara yfirferðar, einkum er kemur norður fyrir Rauðhóla. Tóurnar eru óbrennishólmar í miðju hrauninu – sjá HÉR.

Heimildir:
-Náttúrufræðingurinn, 1.-4. tbl. 01.05.1983, Eldgos á sögulegum tíma á Reykjanesskaga, Jón Jónsson, bls. 134.
-Andvari, 1. tbl. 01.01.1884, Ferðir á suðurlandi sumarið 1883 – Þorvaldur Thoroddsen, bls. 50-51.

Afstapahraun

Astapahraun – örnefni og minjar.

Hvalreki

Nýlega rak dauðan hval, hrefnutarf,  á Álftanesfjöru norðan Breiðabólstaðar. Slíkur hvalreki er ekkert einsdæmi hér á landi, enda þurfti fljótlega í upphafi byggðar að setja sérstakar reglur um eignarhald um hvalreköld.
Í hinni fornu lögbók Jónsbók er langur bálkur, rekabálkur, um hvali og hvalnytjar. Þar er m.a. kveðið á um að ef hval rekur á land er hann eign landeiganda, en ef í honum er hvaljárn eða spjót og rekur á land beri að skipta honum milli landeiganda, eiganda járnsins og fátækra.

Hvalreki

Hvalreki á Seltjarnarnesi 1955.

Hvalreki við strendur Íslands var býsna algengur á árum áður og þótti í þá daga mikill happafengur. Algengar voru frásagnir af hvalreka sem björguðu heilu sveitunum frá hungri. Um hvalreka innan netlaga var fjallað í 54. landbrigðisþætti Grágásar, þar kom fram að landeigandi ætti reka fyrir landi sínu, þar á meðal hval.

Hvalreki

Hvalreki fyrrum.

Í Jónsbók er að finna sambærilegt ákvæði um hvalreka og verða hér rakin þau ákvæði sem enn gilda í íslenskum rétti. Í áðurnefndum 1. kapítula rekabálks Jónsbókar kemur fram að „hver maður á reka allan fyrir landi sínu, viðar og hvala, sela og fiska, fugla og þara nema með lögum sé frá komið“.

Á Vísindavef Háskóla Íslands var spurt: „Er Jónsbók enn í gildi í íslenskum lögum?“:

Grágás

Texti í Grágás.

„Stutta svarið við þessari spurningu er: Rúmur tíundi hluti lögbókarinnar frá 1281, sem nefnd hefur verið Jónsbók, er enn í lagasafni Íslands.

Íslendingar gengust Noregskonungi á hönd á árunum 1262-4. Þjóðveldislögin giltu þá í landinu, það er Grágás. Konungur vildi skipta þeim lögum út fyrir eigin lögbók. Hann fékk lögleiddar tvær lögbækur með skömmu millibili. Fyrri lögbókin var nefnd Járnsíða og þótti ekki góð og gilti bara í um 10 ár. Betur tókst til með síðari lögbók konungs, sem lögleidd var á Alþingi árið 1281. Fljótlega var farið að nefna hana Jónsbók eftir aðalhöfundi hennar, Jóni lögmanni Einarssyni. Jónsbók var meginréttarheimild á Íslandi í meira en 400 ár.

Upprunalega lögbókin, sem konungur lagði fyrir Alþingi árið 1281, er ekki lengur til en hún hefur varðveist í mörgum afskriftum.

Hvalreki

Hvalreki við Garðskaga.

Reyndar er engin íslensk miðaldabók til í eins mörgum handritum og Jónsbók. Til eru 224 heil eða heilleg handrit af Jónsbók og 62 handritabrot. Elsta handritið er frá því fyrir 1300 (AM 134 4to) en fallegasta handritið er frá 1363 og er nefnt Skarðsbók (AM 350 fol.). Myndprentuð eftirgerð af Skarðsbók var gerð í tilefni 700 ára afmælis Jónsbókar árið 1981.

Jónsbók

Blaðsíða úr Jónsbók í myndprentaðri útgáfu Skarðsbókar frá 1981.

Jónsbók var fyrsta bókin sem prentuð var á Íslandi, sem ekki var Guðsorðabók. Það var gert árið 1578 í Hólaprentsmiðju. Jónsbók hefur verið prentuð nokkrum sinnum síðan það er 1578, 1580, 1591 (Núpufellsbók, ekki er vitað hvenær hún var prentuð en talið er að það hafi verið einhvern tímann á bilinu 1582 til 1620), 1707, 1709, 1763 (dönsk þýðing Egils Þórhallssonar (1734-1789)), 1858 (Akureyrarútgáfan), 1885 (Gustav Storm í bókinni Norges gamle love), 1904 (fræðileg útgáfa), 1934 (ljósprentuð 1578 útgáfan), 1981 (Skarðsbók myndprentuð) og 2004 (fræðileg útgáfa).

Í bréfi Magnúsar konungs, sem fylgdi Jónsbók, segir að bókinni sé skipt í 10 bálka. Hverjum bálki er svo skipt í marga kafla. Mjög snemma eða strax í Skarðsbók (1363) fór að bera á ýmiskonar ruglingi í bálka- og kaflaskiptingunni, sem ýmist erfðist í næstu útgáfur eða var leiðrétt og þá mismunandi eftir útgáfum eða skrifað var upp eftir öðrum handritum en Skarðsbók.

Skarðsbók

Skarðsbók Landnámu.

Í það minnsta riðlaðist skipan bókarinnar og er því ekki að öllu leyti samræmi á milli Jónsbókarútgáfna hvað þetta varðar. Ekki er þó um stórvægilegan mun að ræða. Sem dæmi má nefna að Jónsbók frá 2004 er skipt í 13 bálka og 260 kafla en í Jónsbókarútgáfunni frá 1904 eru bálkarnir 10 og kaflarnir 251.
Eftir að einveldið komst á árið 1662 hvarf fljótlega síðasti snefill af löggjafarvaldi Alþingis til konungs. Enn meiri þáttaskil urðu þegar Kristján konungur fimmti setti lögbók fyrir Danmörku árið 1683 og fyrir Noreg árið 1687. Þessar lögbækur nefnast Dönsku og Norsku lög og var hvorugri ætlað að gilda á Íslandi.

Á átjándu öld setti konungur nokkrar óljósar tilskipanir um gildi Norsku laga á Íslandi. Oft og tíðum var ekki kveðið nákvæmar að orði en það, að ákvæðin og heilu bálkarnir ættu að gilda eins og átt gæti við á Íslandi.

Hvalreki

Hvalreki við Eiðisgranda.

Kastað var höndum til þessa verks vegna þess að lögbók átti fljótlega að taka gildi á Íslandi. Meinið var, að það gerðist aldrei. Stafaði af þessu hinn mesti glundroði og má segja að á 18. öldinni hafi næsta fáir kunnað skil á því, hvað væru í rauninni gildandi lög í landinu. Það leiddi til þess að dómar voru oft og tíðum byggðir á dönskum og norskum lögum, sem hvorki höfðu verið sett fyrir Ísland né birt hér.

Hvalreki

Hvalreki við Kálfatjörn.

Hafði strax upp úr 1700 fjarað svo mjög undan Jónsbók, að Árni Magnússon (1663-1730) snupraði Björn Þorleifsson (1663-1710) Hólabiskup fyrir að láta prenta hana árið 1707. Árni segir í bréfi til biskups, að hann hefði ráðið frá því að bókin yrði prentuð og segir að margt í bókinni sé undarlegt og stór hluti hennar sé liðinn undir lok. Árni vildi samt fá eintak handa sjálfum sér og þá frekar tvö en eitt úr því að biskup var hvort sem er búinn að prenta bókina. Magnús Stephensen (1762-1833), dómstjóri Landsyfirréttar, lyfti grettistaki við að leysa úr réttaróvissunni. Þegar hann lést árið 1833 var réttaróvissunni að miklu leyti eytt.

Hvalreki

Hvalreki við Þorlákshöfn.

Árið 1945 voru hlutar af 56 köflum Jónsbókar í lagasafninu. Árið 1983 voru kaflarnir 47 og hefur þeim ekki fækkað síðan þá. Jónsbókarákvæðin frá 1281 munu vera alveg einstök í lagasafni nú á dögum og minna á langa sögu Alþingis sem löggjafarstofnunar.

Hvalreki

Hvalreki í Skötubót við Þorlákshöfn.

Flestir kaflar Jónsbókar í lagasafninu eru úr Búnaðarbálki (Landsleigubálki) og Rekabálki. Rekabálkur fjallar um hvalreka og rekavið. Sum Jónsbókarákvæðin, sem tilgreind eru í lagasafninu, eiga uppruna sinn í íslenska Þjóðveldinu það er eru komin úr Grágás. Það eru því til lagaákvæði í lagasafni Íslands sem hafa verið í gildi frá upphafi Íslandsbyggðar eða að minnsta kosti frá stofnun allsherjarríkis og Alþingis árið 930.
Nokkuð oft hefur verið vísað til Jónsbókarákvæða í Hæstaréttardómum. Venjulega er það í málum sem snerta ágreining um eignarrétt yfir landi eða um rétt til ýmiskonar landnytja, svo sem veiði, beitar og reka.“

Hvalreki

Hvalreki við Grindavík.

Í „Landsyfirréttardómum og hæstaréttardómum í íslenskum málum“ frá 1895 er dómur um hvalreka. Málið höfðuðu bændur á Járngerðarstöðum gegn Oddi V. Gíslasyni, presti á Stað:

„Hinn 26. ágústmánaðar 1890 fannst dauður hvalur á floti fyrir utan Grindavík, og var hann af þeim sem fundu hann róinn í land á Járngerðarstöðum; hvalurinn var óskemmdur og 25 álnir að lengd milli skurða.

Hvalreki

Hvalreki í Vogum.

Afrýjendurnir, sem eru fyrirsvarsbændur á Járngerðarstöðum, ljetu skera hvalinn og skiptu honum í 3 hluti jafna: uppróðrarhlut til flutningsmanna, landshlut og skurðarhlut. Var þannig farið með hvalinn sem flutningshval eptir fyrirmælunum í 7. kap. J.bókar Rb. Hinn stefndi, sem hefur haldið því fram, að hvalurinn væri rekahvalur, taldi skipti þessi ólögmæt, og áleit, að það bæri að skipta hvalnum þannig: 1/3 hluta til uppróðrarmanna, en af hinum 2/3 hlutunum einum fjórðungi til Skálholts- og Staðarkirkju til jafnra skipta, ein um fjórðungi í skurðarhlut milli allra grasbýlismanna í Grindavík og tveim fjórðungunum til allra (7) jarðanna í Grindavík sem landhlut til jafnra skipta. Hinn stefndi höfðaði þá mál gegn áfrýjendunum út af hvalskiptum þessum og var það dæmt í aukarjetti Kjósar- og Gullbringusýslu 7. febr. 1892 á þá leið, að áfrýjendurnir skyldu allir fyrir einn og einn fyrir alla greiða hinum stefnda sjera Oddi Gíslasyni fyrir hönd kirkjunnar á Stað í Grindavík 1/8 — einn áttunda — úr 2/3 — tveim þriðju — hlutum hins umrædda hvals.

Oddur. Gíslason

Séra Oddur Vigfús Gíslason (1836–1911).

Og hinum sama sem ábúanda á Stað 1/7 — einn sjöunda — hluta af 2/4 hlutum af hinum sömu 2 þriðjungum hvalsins, allt eptir mati óvilhallra manna; með sama dómi voru áfrýjendurnir dæmdir til að greiða 100 kr. í málskostnað og nokkur ummæli málsfærslumanns þeirra í varnarskjölum hans fyrir aukarjettinum voru dæmd dauð og ómerk. Að öðru leyti voru áfrýjendurnir sýknaðir fyrir aukarjettinum.

Nefndum aukarjettardómi Kjósar- og Gullbringusýslu hafa þeir Einar Jónsson, Sæmundur Jónsson, Eiríkur Ketilsson og Magnús Maguússon skotið til yfirdómsins með stefnu, útgefinni 9. júlí f.á., og krafizt þess, að dómurinn verði úr gildi felldur, að þeir verði algjörlega sýknaðir af öllum kærum og kröfum sjera Odds Gíslasonar, og að hann verði dæmdur til að greiða þeim allan sakarkostnað fyrir báðum rjettum með nægilegri uppbæð.

Hvalreki

Hvalreki á Álftanesi 2021.

Hinn stefndi, sjera Oddur Gíslason, sem hefur haft gjafsókn í hjeraði og gjafvörn fyrir yfirdómi og skipaðan talsmann, hefur af sinni hálfu krafizt pess, að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur, og að áfrýjendurnir verði allir fyrir einn og einn fyrir alla dæmdir til að greiða honum málskostnað fyrir yfirdómi að skaðlausu, svo og, að hinum skipaða málflutningsmanni verði tildæmd hæfileg málsvarnarlaun.

Hvalreki

Hvalreki við Granda.

Hinn stefndi hefur eigi fundið neitt að því, að finnendum hvalsins var úthlutaður 1/3 hluti hans í uppróðrarhlut, en að öðru leyti hefur hann byggt kröfur sínar til hluta úr honum á ákvæðum í Wilchinsmáldaga, er segja svo: „að Staðarkirkja eigi 1/8 í hvalreka öllum í Grindavík milli Rangagjögurs og Valagnúpa“, og að því leyti hann sem ábúandi Staðar gjörir kröfur til landhutar, byggir hann það á venju, er á að vera sönnuð með ýmsum hvalrekavitnisburðum, uppskrifuðum árið 1657, en gefnum 1603 og 1627.

Strandarkirkja

Hvalreka var von í vondum veðrum.

Einnig á vitnisburðum um, hvernig hafi verið farið með hvalreka í Grindavík 1860 og 1878, en vitnisburðir þessir fara í þá átt, að landhlut af hval, sem rekur í Grindavík, sje skipt milli allra jarða þar, sem eru 7 að tölu. Ákvæðin í Wilchinsmáldaga, svo og hinir tilvitnuðu vitnisburðir, ræða að eins um rekahval, en áfrýjendurnir hafa stöðuglega haldið því fram, að hjer sje um flutningshval að ræða, er heimilt hafi verið að róa upp á Járngerðarstaðaland, og skipta þar á þann hátt, sem þeir gjörðu. Aptur á móti hefur hinn stefndi leitazt við að sanna það, að hvalurinn hafi fundizt í rekhelgi (fiskhelgi) Grindavíkur, og skýrir hann svo frá, að allar jarðir í Grindavík hafi sameiginlegan rjett, að því er rekhelgi snertir.

Hvalreki

Hvalreki í Vogum.

Hinn stefndi heldur því fram, að hvalurinn hafi fundizt á þessum miðum: Djúpmið: Hásteinar mitt á milli Húsatópta og Sýrfells; Hásteinar um Tóptatúnshala; Austurmið, grunnmið: Varðan Sigga í Skotta — og hefur hann látið mæla vegalengdina frá miði þessu til næsta lands, Þórkötlustaðaness, og reyndist vegalengdin 4—500 faðmar (c: 353 mælisköpt á 4 álnir = 1412 ál.). Þá hefur dómarinn eptir beiðni hins stefnda útnefnt 2 menn til þess að athuga, hvort flattur þorskur sæist á bátsborði frá landi í 500 faðma fjarlægð, og hafa þeir gjört tilraun um það, og staðfest með eiði fyrir rjetti, að þeir bafi sjeð fisk á borði í 540 faðma fjarlægð.

Járngerðarstaðir

Járngerðarstaðir fyrrum.

Mælingum þessum hafa áfrýjendurnir mótmælt, og sjerstaklega hafa þeir haldið því fram, að mið þau, sem mælt hefur verið frá, sjeu eigi hin rjettu mið, þar sem hvalurinn fannst. Um þetta hefur hinn stefndi látið fram fara vitnaleiðslu, og hafa 4 vitni, einmitt menn þeir, sem reru hvalinn í land, gefið vitnisburð þar að lútandi. Eitt vitnið skýrði svo frá, að „er þeir komu fyrst að hvalnum, hafi varðan verið vestan til á miðja Vatnsheiði og djúpt af grunnbrún“; annað vitnið tjáist ekkert vita um það; þriðja vitnið segir, að hvalurinn hafi verið á grunnbrún, er þeir fyrst komu að honum, og 4. vitnið ber, að varðan hafi verið austarlega á Vatnsheiði. Með þessum vitnisburðum er það eigi sannað, að hvalurinn hali fundizt á miðum þeim, sem hinn stefndi hefur látið mæla frá vegalengd til lands.

Hvalreki

Hvalreki við Garðskaga.

Hinn stefndi — en á honum virðist sönnunarbyrðin hvíla í þessu efni — hefur þannig eigi sannað það, að hvalurinn hafi fundizt í rekhelgi eða fiskhelgi — enda verða hinar framkvæmdu mælingar eigi álitnar lögmæt sönnun gegn áfrýjendunum, sem eigi voru kvaddir til að vera við þær — og virðist það því rjett, að farið hefur verið með hvalinn sem flutningshval, en í hinum framlögðu skýrslum er hvorki kirkju nje Stað í Grindavík eignaður hluti í hvölum þeim, sem fluttir eru á fjörur annara jarða í Grindavík (c: í flutningum). Það ber því að sýkna áfrýjendurna fyrir kærum og kröfum hins stefnda í þessu máli. Málskostnaður fyrir báðum rjettum þykir eiga að falla niður. Sem gjafsóknarmál hefur málið verið rekið forsvaranlega í hjeraði, og fyrir yfirdómi hefur málsvörnin verið lögmæt.

Járngerðarstaðir

Járngerðarstaðir 2025.

Því dæmist rjett að vera: Afrýjendurnir, Einar Jónsson, Sæmundur Jónsson, Eiríkur Ketilsson og Magnús Magnússon eiga að vera sýknir fyrir kærum og kröfum stefnda sjera Odds Gíslasonar í þessu máli. Málskostnaður falli niður.“

Heimildir:
-Jónsbók, rekabálkur, kap. 1.
-https://www.visindavefur.is/svar.php?id=31477
-Landsyfirréttardómar og hæstaréttardómar í íslenskum málum 01.01.1895, Hvalreki, nr. 28/1892, bls. 324-328.

Hvalreki

Hvalreki á Álftanesi 2021.

Elliðaárdalur

Í Morgunblaðinu 2016 er fjallað um bókina „Elliðaárdalur – Perla Reykjavíkur„:

Elliðaárdalur„Elliðaárdalur er stærsta græna svæðið innan Reykjavíkur, hluti af umhverfi og menningarsögu borgarinnar og eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarinnar. Í nýrri bók um Elliðaárdalinn, Elliðaárdalur – Perla Reykjavíkur, er fjallað um gróðurfar, fuglalíf og fjölbreytilega jarðfræði dalsins og einnig sögustaði og friðlýstar minjar.
Í eftirfarandi kafla úr bókinni er í máli og myndum gerð grein fyrir ýmsum minjum frá stríðsárunum síðari.

Stríðsminjar í Elliðaárdal
ElliðaárdalurÍ síðari heimsstyrjöldinni, 1940-1945, var kömpum, þ.e. braggaþyrpingum setuliðsins, komið upp nánast alls staðar í borgarlandinu þar sem því varð við komið. Þar á meðal voru nokkrir í Elliðaárdal.

Kampar og stríðsminjar í landi Ártúns

Camp Ártún

Camp Ártún 1942.

Fimm herkampar voru í landi Ártúns, þar af þrír á því landi sem nú er undir borgarvernd og einn í jaðri þess.

Hernám

Morgunblaðið 11. maí 1940.

Tveir kampar voru sitt hvorum megin við bæjarhólinn.
Camp Alabaster (Camp Pershing) var skammt frá Elliðaárstöð. Þar voru aðalstöðvar breska setuliðsins eftir að þær voru fluttar úr Menntaskólanum í Reykjavík við Lækjargötu. Alabaster var nafn á hernaðaráætlun Breta við töku Íslands. Þann 13. maí 1942 flutti bandaríska setuliðið hluta af aðalstöðvum sínum eða „Iceland Base Command HQ“ í þennan kamp. Breyttu þeir nafni hans í Camp Pershing.
Camp Battle var norðan við Camp Alabaster/Pershing, hinum megin við bæjarhól Ártúns.

Camp ÁrtúnCamp Hickham var í Ártúnsbrekku, þar sem jarðhýsin eru nú, reistur af bandaríska setuliðinu. Camp Fenton Street var á þeim slóðum sem bílaumboðið BL er nú.
Þann 22. apríl 1942 tóku Bandaríkjamenn við yfirstjórn hers bandamanna á Íslandi úr höndum Breta. Af því tilefni fór herforingi Breta af landi brott en við yfirstjórn breska hersins hér tók fylkisforingi og voru aðalstöðvar hans í Camp Fenton Street.

Camp Pershing

Camp Pershing 1942.

Auk þessa var einn kampur á Ártúnshöfða (Camp Ártún) og tveir kampar voru vestan við Elliðaár, á móts við Ártún (Camp Pony og Camp New Mercur).

Camp Fenton

Camp Fenton 1959.

Eins og nærri má geta höfðu kamparnir mikil áhrif á líf fólksins á svæðinu. Til að mynda var öryggisgæsla svo ströng að jafnvel börnin þurftu vegabréf til að komast heim til sín. Eftirminnilegt þótti að Elliðaárstöðin var máluð í felulitunum á stríðsárunum, ekki hvít eins og alltaf. En svo var raunar um ýmis önnur mannvirki einnig.
Þegar setuliðið hvarf af landi brott í stríðslok fluttust íslenskar fjölskyldur inn í Camp Fenton Street og fékk hann þá nafnið Elliðaárhverfi. En nú hafa nær öll hernaðarmannvirki verið fjarlægð úr landi Ártúns. Einu ummerkin eru í Ártúnsbrekkunni. Annars vegar er það dæld eftir sandpokavígi sem nú er að mestu fallið saman. Hin ummerkin eru undir yfirborði jarðar, neðanjarðarbyrgi, sem búið er að hylja munnann á með jarðvegi.

Camp Baldurshagi

Camp Baldurshagi

Camp Baldurshagi – þar sem Fákssvæðið varð síðar. Horft í átt að Breiðholti.

Hann var þar sem nú er skeiðvöllur hestamannafélagsins Fáks á Víðivöllum. Þetta var stór kampur með um 100 bröggum sem breska setuliðið reisti.

Braggar

Braggahverfi í Reykjavík.

Fyrst voru þarna breskir hermenn úr Duke of Wellington hersveitinni. Síðar, þegar landgönguliðar bandaríska sjóhersins komu til landsins, 7. júlí 1941, fengu þeir þar inni. Bretarnir fluttust þá að Geithálsi þar sem þeir reistu nýjan kamp. Ummerkin sem nú sjást eftir Camp Baldurshaga eru leifar af braggagólfum og sökklum. Ennfremur var eitt húsið úr kampinum flutt í Seláshverfi og gert að íbúðarhúsi. Nafnið á kampinum er raunar villandi því að hinn upphaflegi Baldurshagi er við Suðurlandsveg.
Meðal íbúa í Camp Baldurshaga árið 1941 var Ralph Hannam, sem eftir stríðið settist að í Elliðaárdal.

Skotbyrgi
BreiðholtshvarfÍ Breiðholtshvarfi, ofan við Árbæjarlón, er steypt skotbyrgi af þeirri gerð sem algeng var á stríðsárunum og finnast enn m.a. í Öskjuhlíð. Þetta er steinkassi, um 3 m á hvern veg, og hefur verið skotrauf framan á honum. Þakplata byrgisins er steypt og hefur lítið látið á sjá. Veggir eru hins vegar hlaðnir úr holsteini og eru þeir farnir að molna nokkuð.“

Heimild:
-Morgunblaðið, 294. tbl. 15.01.2016, Elliðaárdalur – Perla Reykjavíkur, bls. 62.

Eliðaárdalur

Elliðaárdalur.

Vífilsstaðir

Í Fornleifaskráningu í Garðabæ árið 2009 er ma.a. fjallað um „Vífilsstaði“:
1547-1548: Í Fornbréfasafni er Vífilsstaða tvisvar getið í Fógetareikningum af konungsjörðum í Borgarfirði, Viðeyjarklaustursjörðum og öðrum konungsjörðum í Kjalarnesþingi. „Jtem met Weuelstedom ij legekior. xij for. landskyldt en guelde. ij lege vj forenger smör dt. her ij foder iiij lamb oc aff foder 4 lam oc ij landskyldt en 4 ar gamle ko dt.“ DI, XII, 113.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – gerði.

1549-1550: Í fógetareikningum af konungsjörðum í Borgarfirði, Viðeyjarklaustursjörðum og öðrum konungsjörðum í Kjalarnesþingi er greint frá Vífilsstöðum. „Jtem mett Wiüelstedom ij kiör xij foer landskiöld jc n lege vij förenger smör etc. oc j lege til geffuit for en geldmelckeko oc j landsskyldt en vj ar gamel ko etc.“ DI, XII, 154.
1550: Í afgjaldarreikningum Kristjáns skrifara, svo og sjávarútgerðarbók.“Jtem mett Wiiüelstedom ij kiör xij foer landskyldt jc ij lege vij förenger smör etc. oc j lege tilgeffurt for en geeldmelckeko oc j landskyldt en sex ar gamel ko etc.“ DI, XII, 174.
1552: Í fógetareiknungum yfir ofangreindar jarðir. „Jtem mett Wiuelstedom iiij kör. vj faar. landskyld jc. ij leger j vett smör. dt. och ij landskyld j iij aars gamel ko. dt.“ DI, XII, 400.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – aðhald.

1553. Í hlutabók og sjávarútgerðarreikningi Eggerts hirðstjóra. „Jtem Ion Pouelsson aff Vijuelsted viij alne vattmell.“ DI, XII, 577.
1558: „Kirkjujörðin Hlið lögð til Bessastaða, en til Garða í staðinn Viðeyjarklausturjörðin Vífilsstaðir.“ DI, XIII, 317.
1565: Bygging jarða Garðakirkju. ,,Wifilstader Jone Pälssyne fyrer malnytu kugillde og mannslän. med jördunne ij kugillde.“ DI, XIV, 437.
1703: Garðakirkjueign. JÁM, III, 224.
1847: Jarðardýrleiki ekki tilgreindur. JJ,92.
1974: Búrekstur lagðist niður á Vífilsstöðum. GRG, 45.
Túnakort 1919: Tún allt sléttað, stærð ekki gefin upp.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – gamli bærinn 1910.

„Býli í Garðahreppi, fyrrum Álftaneshreppi. Þar hefur verið sjúkrahús (Berklahæli) frá 1910…Vífilsstaðabærinn stóð nær því í miðju túni vestanverðu. Rústir nú.“ segir í örnefnaskrá Vífilsstaða. Rústir Vífilsstaðabæjarins eru horfnar en þó er nokkuð auðvelt að átta sig á staðsetningu bæjarins út frá afstöðu hans gagnvart spítalanum samkvæmt túnakorti frá 1919. Á túnakortinu er jafnframt sýndur kálgarður, austan og sunnan við bæinn sem enn sjást leifar af. Fjarlægð bæjarstæðisins vestsuðvestur frá spítalanum er um 150 m. Austan við kálgarðsleifarnar er lítill timburkofi.
Rústir bæjarins hafa nú verið sléttaðar og eru nú í túni. Ekki er hægt að tala um eiginlegan bæjarhól.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – túnakort 1918.

Kálgarður er sýndur á túnakorti, fast austan og sunnan við gamla bæinn. Leifar austur- og suðurveggja hans sjást enn allgreinilega. Fjarlægð norðurenda austurveggjar að spítalanum, er um 140 m. Þýfður óræktarmói innan túns. Skógarlundur er austan og norðaustan við kálgarðinn.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – loftmynd 1954. Hér sést gamla bæjarstæðið neðst t.h.

Kálgarðurinn er grjóthlaðinn og er hleðsluhæð mest um 0,5 m. Lengd austurveggjar er um 25 m en suðurveggurinn er um 20 m að lengd. Austurveggurinn er mun greinilegri en suðurveggurinn.

Útihús er sýnt á túnakorti frá 1919. Er það nú horfið. Nú er slétt grasflöt á þessum stað.

Útihús er sýnt á túnakorti frá 1919 um 140 m norðvestur af spítalanum. Virðist það vera á svipuðum slóðum og útihús sem nú standa. Ekki er ljóst hvort um sama útihús er að ræða.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir 1908.

„Býli í Garðahreppi, fyrrum Álftaneshreppi. Þar hefur verið sjúkrahús (Berklahæli) frá 1910…“ segir í örnefnaskrá Vífilsstaða. Spítalinn er sýndur á túnakorti frá 1919 og stendur hann enn.
[Reyndar er getið um Vífilsstaði í Landnámu, sbr. : (Sturlubók) – 8. kafli: „Vífli gaf Ingólfur frelsi, og byggði hann að Vífilstóftum; við hann er kennt Vífilsfell; þar bjó (hann) lengi, varð skilríkur maður„.]
Í Jarðabók Árna og Páls segir: „Torfrista og stúnga nægileg.“ Óljóst er hvar torf hefur verið rist þegar Jarðabókin var tekin saman á 18. öld, en ekki er þó ólíklegt að það hafi verið í Vatnsmýri eða Vetrarmýri.
Vetrarmýri er um 330 m NNA við Vífilsstaði, milli Vífilsstaða og Hnoðraholts, en Vatnsmýri er um 100-150 m SSA við Vífilsstaði. Vetrarmýri er nú búið að breyta í golfvöll, en Vatnsmýri er deig og þýfð mýri, gróin grasi og mosa.
Vífilsstaðir

Vífilsstaðir 1909 – hornsteinn lagður að Vífilsstaðaspítala.„Garður af torfi og grjóti lá umhverfis túnið, norðan, austan og sunnan Engjarnar að neðan og lækurinn,“ segir í örnefnaskrá. Vífilsstaðatúngarður er nú að mestu horfinn utan þess að sjá má slitrur af honum meðfram austurjaðri gamla túnsins.
Vestan við garðinn er trjálundur, en austan við hann er þýfður grasmói.
Garðurinn er mikið siginn. Torf er einungs allra nyrst annars yfirleitt um að ræða grjótnibbur í reglulegri röð. Heildarlengd garðlagsins er um 85 m. Hleðsluhæð hans er mest nyrst, um 0,4-0,5 m og er hann jafnframt breiðastur þar eða um 1,3 m neðst.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – garðar. Gamla bæjarstæðið ofar.

„Brú yfir lækinn niður undan bænum.“ segir í örnefnaskrá. Steinsteypt brú er yfir lækinn beint niður undan gamla bæjarstæðinu. Upphlaðnar traðir eru frá brúnni til norðausturs.
Þýfðir og grasigrónir lækjarbakkar. Lækurinn er nokkuð breiður fyrir ofan (austan) brúnna, en þrengri við og fyrir neðan hana.
Brúin er um 1,6 m á breidd og um 3,3 m á lengd. Sjá má greinilegar hleðslur í bakkanum beggja vegna brúarinnar. Ekkert handrið er á brúnni. Þar sem brúin er steinsteypt þá er hún líklega frá svipuðum tíma og spítalinn og telst því ekki til fornleifa. Spítalinn og þau mannvirki sem honum tilheyra eru þó í sjálfu sér menjar um þá mikilsverðu starfsemi sem rekin hefur verið á Vífilsstöðum frá upphafi 20. aldar. Því fær brúin að fljóta með hér.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Suðurtraðir.

Suðurtraðir „lágu heiman frá bænum niður að lækjarbrúnni.“ samkvæmt örnefnaskrá. Traðir þessar sem eru upphlaðnar, má enn sjá á kafla frá brúnni, norðan lækjarins. Þær eru einnig sýndar á túnakorti frá 1919. Þar sem traðirnar sjást ennþá, liggja þær um þýfðan grasmóa. En eftir það tekur við slétt tún. Traðirnar liggja í norðaustur frá brúnni um 50 m, en beygja eftir það til austurs og eru þær greinilegar á um 40 m kafla eftir það. Samkvæmt túnakortinu beygja þær síðan aftur til norðausturs eftir þetta allt að aðalveginum að Vífilsstöðum. Er líklegt að þessi síðastnefndi hluti sé sá sem kallaður er Norðurtraðir og er sá hluti alveg horfinn. Hleðsluhæð traðanna er líklega mest um 0,5 m og breidd þeirra um 3 m.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Jónshellnastígur.

Í örnefnaskrá segir: „Norðurtraðir: Var eiginlega troðningur af Alfaraveginum heim að bæ.“ Norðurtraðir eru horfnar með öllu. Á túnakorti eru sýndar samfelldar traðir sem liggja frá aðalveginum að spítalanum meðfram austanverðum kálgarðinum sem er austan og sunnan við bæjarstæðið. Eftir það beygja liggja þær fyrir sunnan kálgarðinn á kafla en beygja síðan til suðvesturs eftir það. Er þessi síðasti hluti líklega sá sem nefnist Suðurtraðir í örnefnaskrá.

Í örnefnaskrá segir: „Stígur þessi liggur frá Brúnni suður að Hellunum.“ Þessi stígur er enn allgreinilegur og auðvelt að fylgja honum að Jónshellum („Hellunum“). Stígurinn liggur í gegnum hraunbreiðu. Um er að ræða mjóan troðning sem hlykkjast í gegnum hraunið.

Í örnefnaskrá segir: „Vatnsbólið var í læknum niður undan bænum við Brúna. Þýfðir og grasigrónir lækjarbakkar. Lækurinn er nokkuð breiður fyrir ofan (austan) brúnna, en þrengri við og fyrir neðan hana.

Finnsstaðir

Finnsstaðir – Finnstekkur.

Í örnefnaskrá segir: „Finnsstekkur: Stekkur var þarna í eina tíð við voginn.“ Finnsstekkur er um 1 km austnorðaustur frá Vífilsstaðaspítala. Hann er rétt norðan við veginn að Elliðavatni, undir „suðvestur horni“ Smalaholts. Reiðvegur liggur hjá tóftinni. Á grasi- og lyngi grónum hjalla við brekkurætur. Tóftin er um 14×6 m stór. Hún skiptist í tvö hólf, rétt og lambakró. Er lambakróin byggð við réttina að suðaustanverðu, bæði hólfin norðvestur-suðaustur. Ekki eru greinilegar dyr á milli hólfanna. Dyr eru hins vegar allgreinilegar á norðvestur enda réttarinnar hólfsins. Réttin er um 11×6 m að stærð og lambakróin um 4x3m. Hleðsluhæð er mest um 1 m. Hleðslur eru yfirleitt grónar þótt sjáist í hleðslugrjót hér og þar.

Finnsstaðir

Finnsstaðir /Finnsstekkur.

Í örnefnaskrá: „Í gömlum skjölum segir að þarna [við Finnstekk] hafi verið hjáleiga.“ Engar aðrar minjar eru sjáanlegar við Finnstekk og er mögulegt að hann sé byggður upp úr tóftum hjáleigunnar. Fær hjáleigan sömu hnit og stekkurinn. Örnefnaskrá SP talar um Finnstekk og Finnstaði sem einn og sama staðinn: „Milli Skyggnisholts og Smalaholts eru rústir á lágum hól, sem nefnast Finnsstekkur eða Finnsstaðir.“

„Hér í norður, bak við Smalholt, er Rjúpnahlíð og þá Rjúpnadalur og svo Rjúpnahæð með Rjúpnahæðarvörðu sem héðan liggur landamerkjalínan í í miðja Kjóavelli, en þar var Kjóavallavarða,“ segir í örnefnaskrá GS. Varðan hefur áður verið á Rjúpnahæð um 200 m norðan við Elliðavatnsveg. Á Rjúpnahæð er nú sendistöð fyrir höfuðborgarsvæðið.

Vífilsstaðavatn

Vatnsgeymir við Vífilsstaðavatn.

Í örnefnaskrá segir: „Hann [vatnsgeymirinn] er upp í hlíðinni upp frá vatnsósnum, byggður 1910. Vatnið svo leitt heim í Vífilsstaðahælið.“ Vatnsgeymirinn er um 190 m NA við Grímssetu, fast við göngustíg sem liggur upp að henni. Geymirinn er í norðaustanverðri Vífilsstaðahlíð í lúpínu- og mosagrónu umhverfi og stórt basaltgrjót stendur upp úr gróðrinum hér og þar.
Steinsteyptur tankur, hringlaga sívalningur grafinn í jörðu. Tankurinn er ríflega 4 m í þvermál og stendur 1,2 m upp úr jörðinni.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – fjárhús.

Nokkuð ógreinileg tóft er rúmlega 3 km suður af Vífilsstöðum og um 550 m SV af Vífilsstaðaseli. Tóftin, sem líkast til er af beitarhúsi, er fast austan við göngustíg sem liggur N-S milli skógar og hrauns. Gras, mosa- og skógivaxinn mói. Birkihríslur vaxa inni í tóftinni. Tóftin er 12 m löng, 5 m breið og snýr N-S. Veggjahæð er 0,6-0,8 m en breidd 1-1,5 m. Tóftin er eitt hólf og inngangur er ekki greinanlegur. Engar grjóthleðslur eru sjáanlegar í tóftinni og er hún algróin grasi og mosa.

Urriðakot

Sauðahellir Urriðakots undir Vífilsstaðahlíð.

„Flatahraun nær norður á móts við Kolanef. Í Vífilsstaðahlíð. Í Flatahrauni hefur verið gróðursett talsvert [af] furu og greni. Í norðaustur frá rústum beitarhússins í norðausturbrún hraunsins gegnt Kolanefi í Vífilsstaðahlíð við Kolanefnsflöt … Er lítill hellir, sem nefnist Sauðahellir. Veit op hans að hlíðinni, og eru hlaðnir kampar báðum megin við innganginn. Við hann var sauðum frá Urriðakoti gefið á gadd (á jörðinni) allt frá því að heimildamaður man fyrst eftir sér til 1933. Heyið var borið heiman frá Urriðakoti í poka á bakinu“, segir í örnefnaskrá SP. „Sauðahellir: Allgóður hellir í hraunbrúninni inn með Vífilsstaðahlíð undir Kolanefi,“ segir í Skrá yfir örnefni og fiskimið í Álftaneshreppi. Skammt sunnar og hinu megin við göngustíg er skilti sem á stendur „Almennar Tryggingar H/F lét gróðursetja þennan lund vorið 1958“.
Heiðmörk

Fjárborg og fjárhús í Heiðmörk.

„Réttarflatir: Þar eru við Hraunbrúnina undir hlíðinni, vel grónar…Réttir: Rústir gamalla rétta eru þarna við hraunbrúnina,“ segir í Skrá yfir örnefni og fiskimið í Álftanesi. „Á flötum niður undan Svínahlíð norður með var Stekkurinn í svonefndu Stekkatúni og þar norðar voru Réttarflatir og þar Réttir, rétt við brún Svínahrauns,“ segir í örnefnaskrá GS. Réttirnar voru um 100 m NNV af stekknum í Stekkatúni og rúmlega 200 m norðaustur af Maríuhellum. Þar sem réttin var áður er nú malbikaður vegur og bílastæði.

Hnoðraholt

Hnoðraholt – skotbyrgi.

Skotbyrgi frá síðari heimsstyrjöldinni er á svonefndu Hnoðraholti um 1 km norðnorðaustur frá Vífilsstaðaspítala og um 90-100 m suðaustur af íbúðarhúsinu við Háholt 1.
Melholt sem að mestu er vaxið þéttum lúpínubreiðum. Gott útsýni er frá byrginu, einkum í norður og vestur. Byrgið er 3,5 x 3,5 m að stærð og er það hálf niðurgrafið, en um 1,20 m standa upp úr jörðu (og annað eins er niðurgrafið). Byrgið er steinsteypt með um 9 cm breiðum og 20 cm háum skotraufum, tveim á vestnorðvesturhlið, og einni á norðaustur og suðvestur hlið. Inngangur er niður í byrgið á austsuðausturhlið.

Hnoðraholt

Hnoðri á Hnoðraholti.

Varða er á dálitlu klapparholti norðvestan til á hábungu Hnoðraholts, um 370 m norðaustur frá skotbyrginu. Gott útsýni til allra átta, einkum þó norður og vestur. Varðan er um 80 sm á hæð og um 1 x 1 m að flatarmáli, en mjókkar upp. Varðan er fremur hroðvirknislega hlaðin.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir/Heiðmörk – beitarhús.

Í örnefnaskrá segir: „Vífilsstaðabeitarhús: Í Hraunbrúninni er fjárhústótt, jötustallar.“ Tóftin er um 280 m SSA af Sauðahellinum nyrðri og rúmlega 50 m SV við veg undir Vífilsstaðahlíð. Beitarhúsið er um 2,5 km SSA af bæ. Rúmlega 3 m austur af tóftinni er rúst fjárborgar og um 10 m vestan við er garðbrot.
Umhverfis tóftina er úfið mosavaxið hraun, en fyrir framan tóftina og fjárborgina er hraunið vel grasivaxið á smá bletti, sem er eflaust leyfar túnbleðils. Tóftin er tvö hólf, hið stærra er austanmegin og er að líkindum fjárhús en hið minna kann að vera hlaða. Hún er hlaðin úr þurri hraungrýtishleðslu, úr hraunhellum sem sumar hverjar kunna að hafa verið klappaðar til. Utanmál tóftarinnar er 10,5 x 7,5 og snýr hún N-S. Hleðsluhæð er mest um 1,5 m, en víðast kringum 1 m og mesti fjöldi umfara er 7-8. Tóftin er gróin mosa, grasi og lyngi og er austurveggur mest yfirgróinn. Óvíst er hvort veggirnir hafi verið einangraðir að utan með torfi.

Heiðmörk

Fjárborg í Heiðmörk.

Í örnefnaskrá: „Þarna hefur átt að gera fjárborg. Aðeins undirstaðan.“ Fjárborgin er rúmlega 3 m austur af Vífilsstaðabeitarhúsi, rúmlega 50 m SV af vegi undir Vífilsstaðahlíð og um 20 m frá göngustíg sem liggur samhliða veginum. Umhverfis borgina er úfið mosavaxið hraun, en fyrir framan hana og Vífilsstaðabeitarhús er hraunið vel grasivaxið á smá bletti, sem er eflaust leyfar túnbleðils. Borgin er vel yfirgróin mosa og lyngi og að NA-verðu vex á henni birki.
Vífilsstaðahlíð

Fjárborg og fjárhús frá Urriðakoti undir Vífilsstaðahlíð.

Í örnefnaskrá: „Hann [Vífilsstaðaselsstígur] mun hafa legið heiman frá bæ, undir Svínahlíð og með Vífilsstaðahlíð skáhalt upp eftir Ljóskollulág upp á hálsinn að Selinu austan Víkurholta.“ Heiman frá Vífilsstaðabæ að Ljóskollulág hafa Vífilsstaðaselstígur og Gjáréttargötur verið sami slóðinn, þaðan hafa þeir greinst og Vífilsstaðaselsstígur sveigt austur að Vífilsstaðaseli. Í dag er malaborinn göngustígur meðfram Vífilsstaðahlíð, en upp eftir Ljóskollulág er erfitt að greina gömlu leiðina sökum skógræktar og
annars gróðurs, en þó vottar fyrir gróinni götu, um 0,5 m breiðri sem liggur upp holtið í ANA.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Víkurholtsvarða.

Í örnefnaskrá segir: ,,Víkurholt: Tvö klapparholt uppi á Hálsinum ofan til við Eyjólfshvamm. Víkurholt Nyrðra: Nyrðra holtið, sem var hærra, kallað svo. Víkurholtsvarða Nyrðri: Allstór varða uppi á klapparholtinu.“. Víkurholtsvarða nyrðri er landamerkjavarða. Hún er uppi á háu holti, um 200 m NA af Víkurholtsvörðu syðri, um 790 m ASA af Vífilsstaðabeitarhúsi og um 640 m SSA af Vífilsstaðaseli.
Í örnefnaskrá: Allstór varða uppi á Klapparholtinu. Er þá komið í suðurmarkalínu.“ Víkurholtsvarða syðri er á vesturbrún Víkurholts, um 200 m SV af Víkurholtsvörðu nyðri, um 700 m SA af Vífilsstaðabeitarhúsi og um 610 m S af Vífilsstaðaseli. Víkurholtsvarða syðri er landamerkjavarða. Varðan er á klettabrún, gróinni grasi, lyngi, lúpínu og á stöku stað.
Víkurholtsvarðan syðri er grjóthlaðin, um 1,5 m á hæð og 2 m að ummáli. Varðan er ógróin.

Vífilsstaðir

Flóttamannavegur við Camp Russel á Urriðaholti.

„Úr Suðurtraðarhliði lá Urriðakotsstígurinn …En neðan frá Urriðakotsstíg lá svokölluð Norðlingagata upp á hálsinn og áfram austan í holtinu, þá leið sem nú liggur Flóttavegurinn, Vatnsendavegur eða Elliðavatnsvegur“, segir í örnefnaskrá Urriðakots GS. „Vífilsstaðastígur: Lá úr Urriðakotsholti yfir hraunið undir Dyngjuhól neðan Svínahlíðar að ósnum og þaðan að Vífilsstöðum.
Nordlingagata: Stígur þessi var einnig kallaður svo,“ segir í Skrá yfir örnefni og fiskimið í Álftanesi. „Norðlingagata (Norðlingastígur) var gatan kölluð sem lá undir Flóðahjalla sunnan frá Oddsmýrarlæk. Gatan lá sunnan frá Norðlingahálsi, sunnan við Flóðahjalla, milli Klifs og Sandahlíðar að Vífilsstaðahlíð,“ segir í Örnefni og leiðir í landi Garðabæjar. Á þeim slóðum sem Vífilsstaðastígur er sagður vera er nú malbikaður vegur (Elliðavatnsvegur eða Flóttavegur), en ekkert sást til gamalla gatan við
vettvangsskoðun.

Vífilsstaðir

Gunnhildur – Grímsseta.

„Norðurendi hennar (Vífilsstaðahlíðar) kallast Hlíðarhorn og þar uppi er varða, sem kölluð var Grímssetur, en í seinni tíð er farið að nefna hana Gunnhildi, en það gæti verið komið af ensku „Gunhill“ byssuhæð, því að nálagt vörðunni er steypt skotbyrgi frá hernámsárunum,“ segir í örnefnaskrá SP. Byrgið er á norðurbrún hæðar vestan við Vífilsstaðavatn, um 50 m vestan við vörðuna Grímssetu og u.þ.b. 1 km suður af Vífilsstöðum. Mikið af stóru grjóti er í kringum byrgið og fast uppvið það, en fjær eru lúpínubreiður. Skotbyrgið er steypt ofan í sand-og malarundirlag.
Byrgið er niðurgrafið og stendur um 0,5 – 1 m upp úr jörðinni. Það er 5 m á lengd og 4 m á breidd og snýr A-V. Skotraufin vísar til norðvesturs og er á horni byrgisins. Niðurgrafinn inngangur er á austurhlið. Hann er um 1 m djúpur, steinsteyptur og 2 x 1 m að flatarmáli A-V. Umhverfis innganginn er hlaðinn veggur úr hraungrýti. Hann er um 1 m hár og samanstendur af 7 umförum og er steypt á milli þeirra. Mikið af grjóti er inni í byrginu.

Gunnhildur

Gunnhildur á Vífilsstaðahlíð.

„Allstór varða og gömul upp á holtinu. Gunnhildur: Svo var Grímsseta kölluð af vistfólki Hælisins,“ segir í Skrá yfir örnefni og fiskimið í Álftaneshreppi. Norðurendi hennar (Vífilsstaðahlíðar) kallast Hlíðarhorn og þar uppi er varða, sem kölluð var Grímssetur, en í seinni tíð er farið að nefna hana Gunnhildi, en það gæti verið komið af ensku „Gunhill“ byssuhæð, því að nálagt vörðunni er steypt skotbyrgi frá hernámsárunum,“ segir í örnefnaskrá SP. Grímsseta er um 50 m NA af steyptu skotbyrgi úr Síðari heimsstyrjöld. Varðan er fremst á norðurbrún holtsins vestan við Vífilsstaðavatn og sést til hennar langar leiðir.
Allt í kringum vörðuna er landið gróið mosa, grasi og lúpínu, en víða stendur stórgrýti upp úr gróðrinum.
Grímsseta er haganlega hlaðin úr fremur stóru grjóti, 1,8 – 2 m á hæð og þakin skófum. Þvermál hennar er 4 x 3 m. Efsti hluti vörðunnar er hruninn og er því stór grjóthrúga sunnan við hana.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Vífilsstaðasel.

„Það lá í grunnu dalverpi vestur af Vatnsás. Þar eru allmiklar rústir. Hefur verið vel hýst,“ segir í Skrá yfir örnefni og fiskimið í Álfaneshreppi. „Ef farið er…upp á Vífilsstaðahlíð, þar sem Einarsnef gengur fram og haldið til norðausturs, þar sem Ísallínan liggur, er fljótlega komið á klapparás suðaustan háspennulínunnar, sem Selás nefnist. Suðvestan undir ásnum er grasi gróin[n] slakki á móts við mastur nr. 29 í Ísallínu. Suðaustast í slakkanum eru rústir Vífilsstaðasels,“ segir í örnefnaskrá SP. Vífilsstaðasel er hátt í 3 km suður af bæ. Vífilsstaðasel er um 550 m NA af Vífilsstaðabeitarhúsi, 40 m VSV af kvíum 045 og um 100-150 m sunnan við línuveg.

Vífilsstaðasel

Vífilsstaðasel – uppdráttur ÓSÁ.

Í örnefnaskrá: ,,Hann [Vatnsendavegur] liggur um Vífilsstaðaland, yfir hraunið hjá Dyngjuhól, um Svínahlíð yfir lækinn á brú við Ósinn. Upp í Skygnisholt, um Finnsstekk og upp á Vífilsstaðaháls þaðan um Rjúpnadal og ofan Vatnsenda á Suðurlandsveginn við Rauðavatn. Vegur þessi var upphaflega kallaður Flóttavegur.“ Gatan kallast Elliðavatnsvegur þar sem hún liggur um land Garðabæjar og er enn nýtt sem akvegur.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Dyngjuhóll.

„Suður af hellunum rétt sunnan við Heiðmerkurveginn er stór hraunhóll, sem áður var með einni vörðu, en nú með mörgum. Hann kallaði Urriðakotsfólkið Dyngjuhól, en Vífilsstaðafólkið Hádegishól, og var hann eyktarmark þaðan“, segir í örnefnaskrá SP. Hóllinn er um 1350 m SSV af Vífilsstöðum og er bein sjónlína þar á milli. Um 10-15 m hár hóll úr hraungrýti, vaxinn mosa, birkikjarri og berjalyngi.
Á Hádegisholti eru a m k 9 vörður, allar hlaðnar úr hraungrýti. Engin þeirra er hærri en 0,6 m eða meira en 1,5 m í þvermál.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Maríuhellar.

„Í Svínahrauni rétt norðaustan við vegamót Flóttavegar [Elliðavatnsvegar] og Heiðmerkurvegar eru Maríuhellar. Þeir eru tveir og eru á mörkum Urriðakots og Vífilsstaða. Hellarnir voru fyrrum notaðir sem fjárhellar. Nyrðri hellirinn var notaður frá Vífilsstöðum, en hinn frá Urriðakoti. Þessir hellar eru oftast kallaðir Vífilsstaðahellar“, segir í örnefnaskrá SP.

Vífilsstaðahellir

Vífilsstaðahellir.

Maríuhellar eru skammt norðan við Heiðmerkurveg þar sem hann liggur þvert á Elliðavatnsveg og eru merktir með skilti. Hellarnir eru rúmlega 150 m NNV af Hádegisholti og 1,2 km SSV af Vífilsstöðum.
Maríuhellar eru tveir náttúrulegir hellar í Vífilsstaðahrauni. Í fyrndinni hefur verið um einn helli, eða hraunrás, að ræða, en þak hans er að hluta fallið svo úr verða tveir hellar andspænis hvor öðrum, sinn hvoru megin við hrunið. Hraunið er að nokkru leyti mosa- og grasivaxið.
Um 25 m N-S eru milli munna hellanna tveggja. Nyrðri hellirinn er um 20 m langur NV-SA, 12 m breiður og um 3 m hár. Stærri munni hellisins er við suðausturendann og vísar að syðri hellinum, en jafnframt er mjög lítið op við norðvesturendann. Syðri hellirinn er um 20-25 m langur N-S, 10 m breiður og um 3-4 m hár. Í þaki syðri hellisins er 2×1 m stórt gat og grjóthrun á gólfi hans fyrir neðan. Hrunið skiptir syðrihellinum í tvö hólf. Engar hleðslur er að finna innan í Maríuhellum.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Maríuhellar – kort.

„Stekkatúnið: Svo voru Máríuvellir einnig kallaðir. Stekkur frá V[ífilsstöðum],“ segir í Skrá yfir örnefni og fiskimið í Álftaneshreppi. „Í hraunjaðrinum fast uppi við Vífilsstað[a]hlíð beint vestur af Grímssetri er lítil flöt og kallast sá hluti hennar, sem nær er hlíðinni, Maríuvellir, en hlutinn, sem er nær hrauninu, Stekkjartún. Í Stekkjartúni var rétt eða rústir af rétt. Þegar Flóttavegurinn [nú Elliðavatnsvegur], sem liggur um norðurjaðar flatarinnar, var lagður, var réttin rifin,“ segir í örnefnaskrá SP. „Á flötum niður undan Svínahlíð norður með var Stekkurinn í svonefndu Stekkatúni og þar norðar voru Réttarflatir og þar Réttir, rétt við brún Svínahrauns,“ segir í örnefnaskrá GS. Rúst stekksins á Maríuvöllum er um 10 m vestur af rótum Svínahlíðar, rúmlega 1,1 km SSV af bæ og um 250 m norðaustur af Hádegisholti.
Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Guðnýjarstapi.

„Norðan í háholtinu er varða, sem heitir Guðnýjarstapi,“ segir í örnefnaskrá AG. „Norðan í háholtinu var varða, Guðnýjarstapi…Nú er allt Hofstaðaholtið komið undir byggingar,“ segir í örnefnaskrá SP. „…eftirfarandi lýsing passar betur „Norðan í holtinu er Guðnýjarstapi, klapparhóll með grasþúfu. Guðnýjarstapi er nú inn á lóð Holtsbúðar 87,““ segir í örnefnaskrá EBB (viðauka við skrá SP).
Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Guðnýjarstapi.

„Norðan í háholtinu er varða, sem heitir Guðnýjarstapi. Einnig er varða, hlaðin af sjúklingum, á holtinu. Sú varða heitir Hallbera,“ segir í örnefnaskrá AG. „Nú er allt Hofstaðaholtið komið undir byggingar,“ segir í örnefnaskrá SP. „Hallbera varða austan í Hofsstaðaholti hvarf, þegar byggð reis á holtinu. Hún stóð, þar sem lóð Gígjulundur 6 er nú,“ segir í örnefnaskrá EBB (viðauka við skrá SP). Varðan var um 610 m SSA við Vífilsstaði.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Arnarsetursvarðan.

„Arnarsetur (-> Arnarbæli, Arnarstapi) er hæð norður af Hjallabrún og landamerki fyrir Vatnsendajörðina…Í beinni stefnu til suðurs frá Kjóavöllum og þar sem hæst ber til að sjá er klapparborg sem ber nafnið Arnarsetur,“ segir í Örnefni og leiðir í landi Garðabæjar. Landamerkjavarðan á Arnarseti er um 1,5 km ANA af Vífilsstaðaseli. Varðan er uppi á hárri hæð í grýttu landslagi.
Varðan er um 1,2 m há og 3 x 2 m að flatarmáli NA-SV og er nokkuð strýtulaga. Hún sést langt að. Neðri hluti vörðunnar er grasivaxinn en að ofan má greina mjög óreglulega hleðslu og stendur þar tréprik upp úr, sem bendir til að bætt hafi verið við vörðuna fyrir skömmu síðan.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – Draugahellir.

„Ofanvert við Maríuhella var svo Draugahellir,“ segir í örnefnaskrá GS. „Draugahellir er á svæði skátanna, þarf að síga í hellinn. Hann er stór og hár. Opið þröngt. Maður kemur fyrst niður á syllu (með vasaljós meðferðis). Nú hafa skátarnir sett upp borð í honum. Hellirinn er ekki langt frá Heiðmerkurveginum,“ segir í örnefnaskrá EBB. Draugahellir er um 15 m norður af Maríuhellum og um 200 m norður af Hádegishól. Hellisopið sést ekki frá vegi þó það sé um 40 m ANA af gatnamótum Heiðmerkurvegar og Elliðavatnsvegar.
Hraunhellir sem snýr NA-SV og tilheyrir eflaust sama kerfi og Maríuhellar. Munni hans er um 0,5×0,5 m.
Örnefnið Draugahellir bendir til að þjóðsaga kunni að vera til um hellinn, þó skrásetjari hafi ekki fundið heimildir þar að lútandi.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – fjósið.

„Norðan Vífilsstaða liggur stórt mýrasvæði, Vetrarmýri. Í suðvesturhorni þess er Bjarnakriki. Þar er talið að verið hafi á tímabili reimleikar miklir,“ segir í örnefnaskrá GS. „Suðvesturhorn Vetrarmýrar við fjósið á Vífilsstöðum heitir Bjarnakriki. Þar þótti reimt og var sagt, að óeðlilegur skepnudauði hefði verið í fjósinu fyrst eftir að það var tekið í notkun, svo að sóknarpresturinn var fenginn til að vígja fjósið. Tók þá fyrir reimleikana,“ segir í örnefnaskrá SP.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir – fjósið ofan Bjarnarkrika.

„Bjarnarkriki í túni Vífilsstaða er horfinn undir Reykjanesbraut, þar var sleða- og skíðabrekka ofan í krikann,“ segir í örnefnaskrá EBB (viðauka við skrá SP). Bjarnarkriki er um 180 m NNV við Vífilsstaði.
Reykjanesbraut liggur yfir Bjarnarkrika og norðaustan við götuna er nú golfvöllur.

Heimild:
-Fornleifaskráning í Garðabæ, Fornleifastofnun Íslands 2009.

Vífilsstaðir

Vífilsstaðir.

Heiðin há

Í Andvara 1884 er frásögn Þorvaldar Thoroddsens af ferð hans á Heiðina há ásamt séra Ólafi, presti á Vogsósum, undir fyrirsögninni „Ferðir á Suðurlandi sumarið 1883„:

Heiðin há

Heiðin há – gígurinn (loftmynd).

„Upp af Selvogsheiði er fjarskamikil hraunhunga, sem kölluð er »Heiðin há«. Þangað fórum við með sjera Ólafi frá Vogsósum.

Réttargjá

Varða á Réttargjá.

Heiðin há er 2030 fet á hæð, goysimikil flatvaxin eldfjallsbunga, lík í lögun og Skjaldbreiður; hún er hlaðin upp úr óteljandi, gömlum hraunlögum suður af Bláfellshlíðum; hallast hún jafnt og þjett niður að Selvogsheiði (3°), og eru margar og langar gjár í lægðinni, þar sem þær mætast. Efst er Hrossagjá; hún er styzt, og er utan í heiðarhlíðinni sjálfri; þar næst Strandargjá, mjög löng, nær frá Svörtubjörgum upp undir Geitafell; svo er Rjettargjá ; hún byrjar í slakkanum milli heiðanna, og nær upp í Geitafell; og syðst er Götugjá (eða Nesgjá); hún nær frá sjó yfir hlíðina á Selvogsheiði upp í Lambafellshraun fyrir noðan og austan Geitafell; neðri (syðri) brúnin, sem er utan í Heiðinni há, er lægri, svo landið hefir auðsjáanlega sigið í slakkanum milli heiðanna.

Heiðin há

Heiðin há – gjár.

Þegar við fórum upp á »Heiðina há«, fórum við upp Grindaskarðaveg upp að Hvalhnúk, og riðum svo þar upp á sjálfa heiðarbunguna. Efst á heiðinni markar fyrir gígnum, sem öll þau fjarskalegu hraun hafa komið úr, sem mynduðu heiðina. Gígurinn er nú fullur af hrauni, en hefir verið afarstór, sem sjá má af leifum þeim, sem eptir standa af gígröndinni; það eru dálitlir hraunhnúkar, sem standa í kring; gígurinn hefir verið allt að 100 faðmar að þvermáli; sunnanverðu við þenna gíg er að auki 2 eða 3 bollar miklu minni, hálffullir af hrauni. Sjálf er heiðin mjög stór um sig; eintóm gömul hraun, með holum og gjótum og hallast lítið, 2°, til vosturs, og 3° til austurs.

Heiðin há

Heiðin há – jarðfræðikort Ísor.

Heiðasljetturnar milli »Heiðarinnar há» og Brennisteinsfjalla eru einn storkinn hraunsjór; hafa þessi hraun flest fallið ofan úr austurhallanum á Brennisteinsfjöllunum, því þar eru stórir gígir svo tugum skiptir allt norður fyrir Grindaskörð: Úr þessum hraunum hafa straumarnir komið, er fjellu niður hjá Stakkavík og Herdísarvík. Gömlu hraunin í Selvogi, sem víðast eru nú mjög sandorpin, eru flest komin úr Selvogsheiði, og saman við þau hafa að ofan runnið hraun úr Heiðinni há. Austan við Heiðina há, milli hennar og Meitla og Geitafells að austan, tekur við vestri armurinn af Lambafellshrauni. Við fengum bezta veður, og útsjónin var ágætlega fögur; landið lá eins og uppdráttur fyrir fótum vorum, allt austur í Eyjafjöll og norður yfir Faxaflóa.

Heiððin há

Heiðin há – jarðfræðikort.

Sunnanlandsundirlendið allt og stórárnar sáust einkar vel, eins og grænn dúkur með silfruðum hríslum; Vestmannaeyjar lyptust upp af hyllingunni, og Snæfellsjökull norðan við flóann blasti við eins fagur og hann er vanur; langt upp á landi rís Skjaldbreiður við himinn, og jöklarnir með hvítleitum bjarma. Norðan við Heiðina há eru Bláfjöll, eða rjettara sagt; norðurbrún hennar styðst upp að Bláfjöllum. Það er mikill og langur fjallgarður og hár (um 2200 fet); frá þeim gengur hálsarani suður lægðina milli Heiðarinnar há og Brennisteinsfjalla, sem heitir Ásar; Hvalhnúkur er einn af þeim ásum.“

Ólafur Þorvaldsson skrifaði um „Grindarskarðsveginn“ í Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1943. Frásögn hans tekur við þar sem lýsing Þorvaldar sleppti:

Heiðin há

Í Heiðinni há  – Bláfjöll fjær.

„Þegar lagt er upp úr Stóra-Leirdal, er strax farið upp allbrattan háls, með nokkrum aðdraganda austur af. Er þetta Hvalskarð.
Suðvestur af Hvalskarði er Hvalhnjúkur, mjór og allhár, en frekar þunnur. Ekki þætti mér ólíklegt, að nafnið sé dregið af lögun hnjúksins, svo mjög minnir hann á bak stórhvelis að allri lögun. Annars segir þjóðsagan, að tröllkona norðan af fjalli hafi farið til fanga í Selvog og komið þar á hvalfjöru og haft þaðan með sér það, sem hún treysti sér til að komast með, en til hennar sást og hún elt. Varð henni allerfið undankoman, og náðist hún í skarði því, sem síðan er nefnt Hvalskarð og hnjúkurinn þar suður af Hvalhnjúkur, sem fyrr er getið.

eiðin há

Efst í Heiðinni há.

Þegar austur úr Hvalskarði er komið, taka við Hvalskarðsbrekkur til vinstri handar, en Lágahraun, með háum, strjálum hólum, til hægri handar. Hvalskarðsbrekkur liggja í suður- og suðvesturdrögum víðáttumikillar heiðarbungu, er nefnist Heiðin há. Ekki er mikill gróður uppi á Heiðinni há. Grámosi er þar fyrirferðarmestur, og liggur hann yfir hálfbrenndum grjóturðum.

Fjallið eina

Fjallið eina.

Mishæðalaus má heiðin teljast, en dregst að toppi á alla vegu, og heitir efsti toppur hennar Kerlingarhnjúkur og er 62 6 m hár. Útsýni í björtu er allmikið og oft fagurt af heiðartoppnum, en þó sést ekki það fegursta, sem Heiðin há hefur að bjóða, — en menn vita aðeins af því kringum sig — það er nafn heiðarinnar, það er einkennilega fagurt, í senn fornlegt og skáldlegt. Að velja einmitt þetta nafn, en ekki t.d. Háaheiði eða eitthvað þvílíkt, lýsir því, hvað sá, sem skírði, hefur verið mikill snillingur í nafngiftum á örnefni, og sennilegt er, að fleiri fögur og sérkennileg örnefnaheiti um þessar slóðir eigi til sama manns að telja. Má þar nefna Fjallið eina, sem sver sig greinilega í sömu ætt.

Þegar Hvalskarðsbrekkum sleppir og komið er nokkuð austur með heiðarbrekkunum, er stór, stakur hraunhóll vestur við veginn, Þorvaldshóll. Litlu austar, þegar brekkunum sleppir, eða þær lækka svo, að útsýn opnast til norðausturs, blasir við í þeirri átt allstórt fell, Urðarfell.“

Sjá einnig HÉR.

Heimildir:
-Andvari, 1. tbl. 01.01.1884, Ferðir á Suðurlandi sumarið 1883, Þorvaldur Thoroddsen, bls. 23-24.
-Árbók Hins íslenska fornleifafélags 01.01.1943, Grindaskarðavegur – Ólafur Þorvaldsson, bls. 102-103.

Heiðin há

Kerlingarhnúkur – Geitafell fjær.

Selhóll

Sigmundur Einarsson, Haukur Jóhannesson og Árný Erla Sveinbjörnsdóttir reyndu að ráða gátuna í skrifum þeirra um „Aldur Eldra- og Yngra Hellnahrauns“ í ritinu Jökli árið 1991:

Hellnahraun

Jarðfræðikort ÍSOR. Eldra Hellnahraun er merkt SKÚ (blátt; Skúlatúnshraun/Stórabollahraun).

„Samkvœmt annálum urðu eldgos í Trölladyngjum á Reykjanesskaga árin 1151 og 1188. Líkur benda til að 1151 hafi Ögmundarhraun í Krýsuvík og Kapelluhraun sunnan Hafnarfjarðar runnið er umbrotahrina varð í eldstöðvakerfi Trölladyngju. Hrinunni lauk líklega 1188 með myndun Mávahlíðahrauns. Umbrotahrinan í heild er nefnd Krýsuvíkureldar. Gossprungan er ekki samfelld en milli enda hennar eru um 25 km. Flatarmál hraunanna er 36,5 km2 og rúmmálið er áœtlað um 0,22 km3. Vegið meðaltal fimm geislakolsgreininga gefur 68,3% líkur á að hraunin hafi runnið á einhverju tímabilanna 1026-1045 (12%), 1052-1065 (35%), 1089-1125 (35%) og 1138-1153 (18%).
Traðarfjöll
Hellnahraun sunnan Hafnarfjarðar er í rauninni tvö hraun og eru bœði komin frá eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla. Yngra hraunið er sama hraun og Jón Jónsson (1977) hefur nefnt Tvíbollahraun. Það er að öllum líkindum runnið ísömu goshrinu og hraun sem Jón Jónsson (1978a) hefurnefnt Breiðdalshraun.
Vegið meðaltalfjögurra geislakolsgreininga á sýnum undan Yngra Hellnahrauni, Breiðdalshrauni og Tvíbollahrauni (tvö sýni) gefur 68,3% líkur á að hraunin hafi runnið annaðhvort á árabilinu 894-923 eða, sem er mun líklegra, á árunum 938-983.

Hellnahraun

Eldra-Hellnahraun (svart), Yngra-Hellnahraun (grátt), Óbrinnihólabruni (ljósgrár) og Kapelluhraun (blátt). Fært inn á nútíma loftmynd.

Helluhraunið sunnan og vestan við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði heitir Hellnahraun (Guðmundur Kjartansson hefur nefnt hraunið Hvaleyrarhraun þar sem hann minnist á það í sínum greinum og það nafn hefur hraunið fengið á kortum Landmælinga Íslands. Í fyrri grein okkar um Krýsuvíkurelda er hraunið einnig nefnt Flatahraun).

Móðhola

Móðhola í Hvaleyrarhrauni (Eldra-Hellnahrauni).

Flestir jarðfræðingar sem um það hafa fjallað hafa álitið hraunið mjög gamalt, án þess þó að færa fyrir því haldbær rök. Hraunið er dæmigert helluhraun, með ávölum sprungnum hraunkollum, að mestu gróðurlaust nema í gjótum og bollum og þess sjást engin merki að það hafi nokkum tíma verið gróið að marki. Allt var á huldu um aldur hraunsins þar til sumarið 1986, en þá tókst okkur að finna nothæft jarðvegssnið sem liggur inn undir hraunið, norðvestan við Stórhöfða. Þar kom í ljós að Landnámslagið liggur inn undir hraunið. Áður töldum við að Hellnahraun hefði runnið í sama gosi og Kapelluhraun og einnig að Hellnahraun og hraunið frá Óbrinnishólum væru eitt og sama hraunið (sbr. Kristján Sæmundsson og Sigmundur Einarsson 1980).

Hellnahraun

Mannvirki í Óbrinnishólahrauni. Sjá má í Eldra-Hellnahraun fjær.

Við nánari könnun á Óbrinnishólum sumarið 1989 kom í ljós að athuganir Jóns Jónssonar (1974) á þeim standa óhaggaðar. Þá var aðeins eftir að kanna mót Hellnahrauns og Obrinnishólahrauns nánar, en á jarðfræðikorti Jóns Jónssonar (1978a) er Hellnahraunið talið eldra. Könnunin leiddi í ljós að vestur af Stórhöfða hefur Hellnahraunið augsýnilega runnið út yfir hraunið frá Óbrinnishólum og er því örugglega yngra. Að fenginni þessari niðurstöðu þótti ljóst að Hellnahraun hlaut að hafa komið upp nærri nyrsta hluta Undirhlíða. Þar er þó engum eldstöðvum til að dreifa nema Gvendarselsgígunum en hraunið frá þeim hefur greinilega runnið út yfir Hellnahraunið. Hægt er að ímynda sér að gígarnir hafi horfið undir Gvendarselshraun en sú skýring er ekki sennileg í ljósi þess hversu þunnt Gvendarselshraunið er. Einnig má hugsa sér að Hellnahraun hafi komið úr sjálfum Gvendarselsgígum í byrjun goss en sú skýring verður að teljast langsótt.

Stóri-Bolli

Stóri-Bolli, Kóngsfellsgígur, í Kóngsfelli.

Eftir allmiklar vangaveltur um uppruna Hellnahrauns fannst, eins og stundum vill verða, einföld og augljós skýring. Hraunið er einfaldlega ekki komið úr eldstöðvakerfi Trölladyngju, heldur eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla. Sunnan undir Helgafelli er allmikill helluhraunsfláki. Næst Helgafelli liggur ofan á honum tiltölulega mjór taumur af yngra helluhrauni sem hverfur inn undir Gvendarselshraun.

Jón Jónsson

Jarðfræðikort Jóns Jónssonar – eldgos og hraun á Reykjanesskaga.

Jón Jónsson (1977) hefur fjallað um hraun þetta og telur það komið úr Tvíbollum í Grindaskörðum. Ekki verður annað séð en að Hellnahraun sé framhald Tvíbollahrauns til vesturs. Í Krýsuvíkureldum flæddi hraunið frá Gvendarselsgígum yfir hluta hrauntaumsins þannig að samhengið rofnaði og hefur það villt mönnum sýn. Hellnahraun er auk þess einsdæmi á Reykjanesskaga að því leyti að það hefur runnið þvert yfir eitt eldstöðvakerfi og langleiðina yfir í það næsta, þ.e.a.s. hraunið kemur upp í eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla, rennur þvert yfir eldstöðvakerfi Trölladyngju og þar sem það liggur næst sjó við Hvaleyrarholt er það í aðeins um 5 km fjarlægð frá austustu sprungunum sem þekktar eru í eldstöðvakerfi Reykjaness.

Tvíbolli

Tvíbolli (Miðbolli).

Þegar Hellnahraunið var kannað nánar sumarið 1991 kom ýmislegt nýtt í ljós. Sem fyrr segir liggur Hellnahraunið út á hraunið frá Óbrinnishólum vestur af Stórhöfða. Við könnun á neðri hluta hraunsins reyndist aldursafstaðan þveröfug, þ.e. Óbrinnishólahraunið hefur runnið út yfir Hellnahraun. Þegar betur er að gáð reynist Hellnahraun samanstanda af tveimur hraunum sem hér á eftir verða nefnd Yngra og Eldra Hellnahraun. Hraunin eru ákaflega lík í ytri ásýnd og var nokkrum erfiðleikum bundið að greina þau að, en það tókst. Aldur Eldra Hellnahraunsins er ekki þekktur að öðru leyti en því að það er eldra en hraunið frá Óbrinnishólum og yngra en Búrfellshraunið. Eftir útliti að dæma er það þó vart eldra en 3000-1000 ára. Hraunið er líkt og Yngra Hellnahraunið komið frá eldstöðvum í eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla og hefur runnið svipaða leið í átt til sjávar

Aldur Yngra Hellnahraunsins

Hellnahraun

Eldra-Hellnahraun í sjó fram sunnan Hvaleyrar.

Jón Jónsson (1977) fann Landnámslagið undir Tvíbollahrauni og einnig kolaðarjurtaleifar sem hann lét aldursgreina. Taldi Jón hraunið hafa runnið á fyrstu árum Íslandsbyggðar. Árið 1988 tókum við sýni af koluðum jurtaleifum á sama stað og Jón hafði tekið sín sýni, við suðvesturhorn Helgafells. Einnig var tekið sýni af koluðum jurtaleifum undan Yngra Hellnahrauninu, í rústum af gömlum gervigíg, Rauðhól, skammt frá mótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar.

Fagridalur

Gengið upp úr Fagradal um Breiðdalshraun.

Frá eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla hefur á sögulegum tíma runnið annar helluhraunstaumur, sem minnir mjög á Yngra Hellnahraunið. Hraunið kom upp sunnan við Kistufell í Brennisteinsfjöllum, rann til norðvesturs eftir Lönguhlíðarfjöllum og síðan fram af þeim niður í Fagradal og Breiðdal við Undirhlíðar. Þetta hraun hefur Jón Jónsson (1978a) nefnt Breiðdalshraun. Aldursgreining, sem Jón lét gera, bendir sterklega til að það hafi runnið í sömu goshrinu og Yngra Hellnahraun.

Kapelluhraun

Kapelluhraun – hrauntröð.

Geislakolsgreiningar hafa verið gerðar á hraunum sem talin eru mynduð í sama gosi eða goshrinu og Yngra Hellnahraun. Greiningar á Breiðdalshrauni og Tvíbollahrauni eru ættaðar frá Jóni Jónssyni (1977, 1978a), en okkar sýni, sem tekið var undan Tvíbollahrauni á sama stað og sýni Jóns, er kennt við Helgafell. Sýnin frá Helgafelli og Rauðhól voru meðhöndluð til geislakolsmælingar á Raunvísindastofnun Háskólans, en sjálf mælingin fór fram á tandemhraðli Árósaháskóla. Líklegast hafa öll þessi hraun runnið á sama tíma á 9. eða 10. öld.“

Heimild:
-Jökull, 1. tbl. 01.12.1991, Krýsuvíkureldar II; Kapelluhraun og gátan um aldur Hellnahrauns, Sigmundur Einarsson, Haukur Jóhannesson, Árný Erla Sveinbjörnsdóttir, bls. 61-74.

Hellnahraun

Yngra-Hellnahraun ofan Hafnarfjarðar.