Entries by Ómar

221 fjárrétt á Reykjanesskaga

A.m.k. 221 fjárrétt er þekkt á Reykjanesskaganum; í fyrrum landnámi Ingólfs. Réttirnar voru til margra nota, s.s. heimarétt, almenningsrétt, skilarétt og rúningsrétt, auk „útdráttarétta“ einstakra bæja. Margar þeirra eru heillegar, enda ekki um fornar fornleifar að ræða. Eftir að selstöðurnar lögðust af í lok 19. aldar fóru bændur að reka á fé afrétti í byrjun […]

Bæjarnöfn á Íslandi – Staður

Finnur Jónsson skrifaði um „Bæjarnöfn á Íslandi“ í Safn til sögu Íslands og íslenskra bókmennta að fornu og nýju árið 1865. Hér er fjallað um bæjarnöfn þar sem „Staður“ kemur fyrir: „Orðið »örnefni« er í daglegri ræðu haft um staðanöfn og bæjanöfn, ef bæirnir eru í eyði, en ekki er orðið haft um byggða bæi […]

Írafellsmóri

Í Lesbók Morgunblaðsins árið 1954 má lesa eftirfarandi um „Írafellsmóra“: „Írafellsmóri var alþekktur hér í Reykjavík á seinna hluta 19. aldar. Var talið að hann fylgdi Mörtu Þórðardóttur skóara í Vigfúsarkoti. Annars fylgdi hann líka Engeyingum og var því oft nefndur Engeyjarmóri. Þeir feðgar Kristinn Magnússon og Pétur kölluðu hann frænda sinn, en gættu þess […]

Dýrfinnuhellir I

Dýrfinnuhellir er skammt ofan við Grindavík, örskammt frá Skipsstígnum norðvestan við Lágafell. Þótt staðurinn sé nú flestum gleymdur lifði hann lengi vel í hugum Grindvíkinga, líkt og nokkrir aðrir staðir ofan við Plássið er tengdust komu „Tyrkjanna“. Þeir komu til Grindavíkur, skyndilega og öllum að óvörum, í byrjun sumars 1627, fyrir 379 árum síðan. Lífið […]

Náttúrunýting – mikilvægi

Þegar skoðaðar eru eldri umfjöllun um náttúruvernd og hún borin saman við raunveruleika líðandi stundar kemur margt forvitnilegt í ljós – en ekki allt jafn uppbyggilegt. Ef t.d. spurt er; hver er staða okkar mannanna gagnvart náttúrunni? er ljóst að við höfum verið að greina okkur frá henni í æ ríkari mæli. Hér er hins […]

Borgarvatn – Bjarnarvatn – Forarmýri

Haldið var upp með hlíðum Bæjarfells utan við Þormóðsdal með stefnu á Borgarvatn suðaustan í Reykjaborg. Svæðið tilheyrir Þormóðsdal og Suður-Reykjum – handan þess er Helgadalur í Mosfellsdal. Lækur rennur úr Borgarvatni í Varmá. Þaðan var gengið með Þverfelli að Bjarnarvatni. Varmá rennur úr vatninu um Húsadal. Vatnið er stórt, en fremur grunnt. Norðan við vatnið er […]

Nykur í Bjarnarvatni

Sagan um nykurinn í Bjarnarvatni, sem skrá er eftir Jóni M. Guðmundssyni, er svohljóðandi: „Á árunum um og fyrir 1930 var rekið stórbú á Reykjum í Mosfellssveit og því fylgdi allmikið mannahald, bæði konur og karlar. Þá var tvíbýli á jörðinni og félagsbú sem rekið var með ráðsfólki en bændurnir höfðu sín heimili sér. Á […]

Dýrfinnuhellir II

Dýrfinnuhellir er skammt ofan við Grindavík, örskammt frá Skipsstígnum norðvestan við Lágafell. Þótt staðurinn sé nú flestum gleymdur lifði hann lengi vel í hugum Grindvíkinga, líkt og nokkrir aðrir staðir ofan við Plássið er tengdust komu „Tyrkjanna“. Þeir komu til Grindavíkur, skyndilega og öllum að óvörum, í byrjun sumars 1627, fyrir 379 árum síðan. Lífið […]

Méltunnan

Í Safni til sögu Íslands og íslenskra bókmennta að fornu og nýju árið 1856 er m.a. getið um eignaskipti á jörðunum Görðum og Vífilsstöðum: „Annis 1557 og 1558 var Knútur samt hér höfuðsmaður, og á þessu síðara ári út gaf hann á Bessastöðum, dag 4. júlí, Eggerti lögmanni Hannessyni bréf fyrirSnæfellsness- og Ísafjarðarsýslum. Og á sama […]

Hvalvatn – Skinnhúfuhöfði – Arnesarhellir

Leiðin umhverfis Hvalvatn liggur með vatnsborðinu, er auðveld yfirferðar og veitir bæði fróðleik og skemmtun. Tveir litlir hellar eru á þeirri leið. Sá minni er í Skinnhúfuhöfða við vatnið austanvert. Segir þjóðsagan að þar hafi tröllkonan Skinnhúfa búið, en um afreksverk hennar fara engar sögur. Norð-austan úr miðju Hvalfelli gengur klettahöfði fram að vatninu. Í […]