Hellisgerði

Við innganginn í Hellisgerði í Hafnarfirði er skilti með eftirfarandi upplýsingum:

Hellisgerði

Fjarðarhellir í Hellisgerði.

“Sögu Hellisgerði má rekja aftur til miðvikudagsins 15. mars árið 1922. Þá hélt Guðmundur Einarsson framkvæmdarstjóri trésmiðjunnar Dvergs framsögu á fundi er hann nefndi “Getur félagið Magni haft áhrif á útlit Hafnarfjarðar?”

Hellisgerði

Hellisgerði 2024.

Í framsögunni svaraði hann spurningunni játandi með að koma upp skemmti- og blómagarði sem yrði Magna til sóma og bænum til mikillar prýði. Í kjölfarið var stofnuð nefnd innan félagsins sem hafði það hlutverk að finna heppilegan stað fyrir garðinn. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hið svokallaða “Hellisgerði” á milli Reykjavíkurvegar og Kirkjuvegar værið kjörið fyrir garðinn. Þar var vísir að trjálundi en C. Zimsen verslunarstjóri hafði látið girða af svæði í kringum Fjarðarhelli um aldamótin.

Hellisgerði

Hellisgerði.

Haustið 1922 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar að láta félaginu í té hið umbeðna garðstæði endurgjaldslaust. Það skilyrði fylgdi þó samþykkt bæjarstjórnar að skemmtigarðurinn yrði opinn almenningi á sunnudögum á sumrin og að ef eigi yrði búið að griða svæðið af og hefja ræktun þar innan tveggja ára, missti félagið rétt sinn til landsons. Vorið eftir var búið að girða Hellisgerði af og þann 24 júní var haldin þar útiskemmtun sem hafði þann tilgang að afla fjár til starfseminnar og kynna fyrir bæjarbúum. Við það tækifæri afhenti Magnús Jónsson bæjarfógeti Málfundafélaginu Magna Hellisgerði fyrir hönd bæjarfélagsins og óskaði þeim velfarnaðar í starfinu. Skemmtunin þótti takast svo vel að ákveðið var að halda Jónsmessuhátíð árlega til fjáröflunar. Til skemmtunar voru ræðuhöld, lúðrablástur, söngur og dvöl í gerðinu sjálfu.

Síðasta Jónsmessuhátíðin í Hellisgerði var haldin árið 1960.

Hellisgerði

Hellisgerði.

Í Skipulagsskrá fyrir garðinn kemur fram að tilgangur hans var fyrst og fremst þvíþættur. Í fyrsta lagi að vera skemmtigarður, þar sem bæjarbúar áttu kost á að njóta ánægju og hvúldar í tómstundum sínum. Í öðru lagi að vekja áhuga bæjarbúa á blóma- og trjárækt og í þriðja lagi að geyma óraskaðar minjar um hið sérkennilega bæjarstæði Hafnarfjarðar.

Hellisgerði

Í Hellisgerði.

Vorið 1924 hófst ræktun í Hellisgerði og var þá Ingvar Gunnarsson kennari ráðinn forstöðumaður. Upphafleg stærð garðsins var um 4000 m2 en árið 1960 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar að láta Magna í té 6000 m2 land til viðbótar við Hellisgerði. Óhætt er að segja að enginn enn maður hafi ráðið eins miklu um útlit og rekstur Hellisgerðis frá upphafi og Ingvar Gunnarsson en að honum látum var Sigvaldi Jónsson garðyrkjumaður ráðinn forstöðumaður en eftirmaður hans vera Svavar Kjærnested. Eftir að starfsemi Magna og Garðráðs lagðist niður hefur umsjón og eftirlit Hellisgerðis verið í höndum garðyrkjustjóra Hafnarfjarðarbæjar.”

Hellisgerði

Hellisgerði.