Upphafið

Gengið um Hraunin.
Götur mynduðust hér á landi allt frá fyrstu fótatíð manna og búfénaðar. Enn í dag er stundum erfitt að greina á milli hvaða götur voru notaðar af hverjum, hvenær og í hvaða tilgangi. Sumar götur, sem áður voru gengnar, eru nú horfnar, margar má enn greina og enn aðrar hafa verið endurheimtar.
Á löngu tímabili hefur gróður náð að hylja slóðirnar, gróðureyðing náð að afmá þær, jarðvegur færst til, skriður og snjóflóð hlaupið yfir þær, ár og lækir breytt um farvegi, vatn runnið í þeim og breytt, eldgosaaska hulið og hraun runnið yfir þær á köflum. Þá hafa sumar leiðir lagst af vegna þess að tilgangur þeirra breyttist og aðrar orðið til af sama tilefni. Þá hafa gamlar leiðir færst til og verið farnar af mismikilli nákvæmni áður en þær voru varðaðar. Ókunnugir hafa eflaust fylgt þeim nokkuð vel og gætt að kennileitum á meðan kunnugir hafa getað stytt sér leiðir eða einfaldlega farið beint af augum ef veður leyfði og aðstæður voru hagstæðar.
Í lok 19. aldar var unnið óskipulega að lagningu vagnvega víðs vegar um landið, einkum nálægt þéttbýli, og í byrjun 20. aldar var megináherslan lögð á gerð bílvega af gefnu tilefni.
Leiðir

Fornagata í Selvogi.
Lengri aðalleiðirnar lágu milli bæja og byggðakjarna, verstöðva, verslunarmiðstöðva, þingstaða eða kirkna, hvort sem var með ströndum landsins, yfir fjallgarða, heiðar, ása og úfin eða slétt hraun. Leiðirnar voru mislangar, allt frá og til fjarlægustu landshluta eða bara út frá bæ í fjárskjólið og stekkinn. Segja má t.d. að allar leiðir hafi um tíma legið til og frá Þingvöllum.
Við þessar leiðir má víða finna misgamlar minjar, s.s. hlaðin skjól, sæluhús, bæli í hellum, vörður, bæði sem leiðarmerki og til minningar um fólk, sem varð úti á ferðum sínum. Ástæður þess gátu verið margvíslegar, bæði af eðlilegum ástæðum og óeðlilegum.

Fornagata.
Fatnaður var ekki eins góður og hann er í dag, hvort sem var til fóta og höfuðs. Veðurspár voru byggðar á öðrum kennimerkjum en nú tíðkast og ekki alltaf áreiðanlegar. Og þá var líka til fólk, líkt og í dag, sem taldi sig geta storkað veðuröflunum – stundum með uggvænlegum afleiðingum. Dæmi eru og um að fólki hafi verið úthýst frá bæjum í slæmum veðrum. Dauðsmannsvörðurnar eru margar við og hjá þessum götum, einkum á heiðum, en stundum slapp fólk lifandi þrátt fyrir miklar raunir, sbr. Prestsvörðuna ofan við Leiru.
Landið
Um allt land má finna mikilvægar þjóðleiðir frá liðnum öldum. Sumum hefur verið haldið við af áhugasömu fólki eða ferðaþjónustuaðilum. Þá hafa verið búnar til nýjar gögnuleiðir um fallega náttúrustaði. Nokkrar slíkar má finna á Reykjanesskaganum. Hafa ber í huga að mikilvægustu leiðirnar hér áður fyrr eru ekki endilega vinsælustu gönguleiðirnar í dag. Sumar gönguleiðirnar eru nýlegar, s.s. Reykjavegurinn svonefndi milli Reykjaness og Nesjavalla. Á köflum liggur hann samhliða eða nálægt fornum götum.

Óttarsstaðaselsstígur.
Greina má götur eftir fólk frá götum eftir búfénað, s.s. kindur. Þær leita gjarnan að tvennu; bithaga og skjóli. Kindagötur (fjárgötur) liggja því oft utan í hlíðum, hæðum og hólum eða í lægðum. Þar sem féð hefur unað hag sínum vel er jafnan vel gróið. Fólk hafði það að leiðarljósi að fara sem greiðfærustu leiðina og þá jafnan með það í huga að „halda hæð“. Ekki var farið upp og niður hæðir og dali að óþörfu. Spara þurfti orku og kraftar þurftu að endast um langan veg.
Ef vel er að gáð má víða sjá ryðgaðar skeifur og skeifubrot, leðurpjötlur eða bein. Ekkert af því má fjarlægja heldur láta kyrrt liggja.
Landnám Ingólfs
Greinileg ummerki eru á fjölmörgum götum eftir umferð fólks hér á landi frá upphafi landnáms, ekki síst í landnámi Ingólfs.

Hvalsnesvegur.
Víða eru gömlu þjóðleiðirnar klappaðar í misharða hraunhelluna, s.s. sjá má á Sandakra- og Skógfellaveginum eða á Hellunni (Fornugötu) vestan Hlíðarvatns. Þar hefur yngra hraun runnið yfir eldra hraun, sem gatan er í.
Gatan er ágætt dæmi um hversu mikil umferð hefur verið hér allt frá fyrstu tíð, sem reyndar gæti þess vegna hafa verið eldri en norrænt landnám segir til um.
Á Reykjanesskaganum eru þessar gömlu leiðir miklu mun fleiri en fólk gerir sér grein fyrir. Sumar eru reyndar áfangaleiðir og tengjast öðrum eða greinast út frá þeim til ýmissa staða. Sjá t.d. skrif um Grindavíkurvegi HÉR og um Reykjavíkurvegi HÉR.

Skógfellavegur.
Tegundir
Reyna má að flokka leiðirnar miðað við notagildi. Þannig lágu þjóðleiðir milli byggðalaga.
Má þar nefna Alfaraleiðina (Almenningsleiðina) milli Innnesja (Hafnarfjarðar) og Útnesja (Keflavíkur). Hún sést að mestu enn þann dag í dag frá jaðri Brunans (Kapelluhrauns) til Innri-Njarðvíkur. Selvogsvegur (Suðurfararvegur) lá milli Hafnarfjarðar og Selvogs. Hann sést vel frá Lækjarbotnum í Hafnarfirði að Strönd í Selvogi. Þessar leiðir voru mikið farnar allt til þess tíma að vegir voru gerðir fyrir sjálfrennireiðina er kom hingað til lands í byrjun 20. aldar.
Verleiðir má sjá við verin, bæði á norðan- og sunnanverðum Reykjanesskaganum. Leiðirnar Ofan við Selatanga, verstöð, sem notuð var allt til byrjun 20. aldar (síðustu áratugi frá Ísólfsskála) eru t.a.m. þrjár, hvort sem var heim til bæja (Skála og Krýsuvíkur) eða inn á þjóðleiðirnar, sem sumar hverjar voru mikilvægar skreiðarleiðir.

Árnastígur.
Byggðakjarnar á landssvæðinu, s.s. Grindavík, Garður, Hafnir og Vatnsleysuströndin voru t.d. mikilvægar verstöðvar fyrir bæði vermenn alls staðar frá á landinu og fiskflutninga, ekki síst til Skálholtsstóls, um aldir.
Leiðir á milli bæja eru jafn margar og bæirnir voru margir – og þeir voru miklu mun fleiri en fólk gerir sér í hugarlund. T.d. voru 28 bæir í Staðarhverfi, vestast Grindarvíkurhverfanna, fyrrum, en nú standa þeir þar sem tóftir, minnisvarðar um fólkið sem þar bjó, líf þess og atvinnuhætti. Frá Staðarhverfi lágu samskiptagötur til Hafna, Njarðvíkna og hinna byggðarkjarnanna í Grindavík. Þær sjást enn vel.
Selstígar lágu upp í selstöðurnar, sem voru fjölmargar í landnámi Ingólfs. Inn má t.a.m. sjá leifar af u.þ.b. 250 slíkum á landssvæðinu, ef vel er að gáð.

Gamla gatan um Siglubergsháls.
Einungis örfáar hafa verið eyðilagðar af mönnum eða forgengst af skriðum.
Kirkjugötur voru mikilvægar menningarleiðir og varla er til sú sveit eða hérað að ekki var þar kirkjustígur eða -gata. Hvalsnesleiðin milli Ytri-Njarðvíkur og Hvalsness er ágætt dæmi um slíka götu, en hún var jafnframt notuð sem þjóðleið milli byggðakjarna og sem verslunarleið. Líklega er hluti leiðarinnar sá best varðveitti hér á landi því varnargirðing Varnarliðsins hefur umlukið hann síðustu áratugina. Reyndar er kominn tími til að opna hana á ný fyrir áhugasömu göngufólk því leiðin liggur um landssvæði, sem er utan varnargirðingar flugvallarsvæðisins.
Þróun

Skipsstígur – endurbættur skv. „nútíma“ hestsvagnskröfum.
Bæði hefur leiðarkerfið þróast frá fyrstu tíð og götur verið færðar til eða lagfærðar. Þegar ferðast var á fótum, hvort sem var eigin eða annarra (hestbaki) mótuðust göturnar af sjálfu sér. Á fjölfarnari leiðum var kastað úr hluta gatnanna og leiðarmerki reist. Um tíma varð það hluti af þegnskylduvinnu eða atvinnubótavinnu.
Með tilkomu vagnsins fóru fram vegbætur á mikilvægustu leiðunum. Sjá má slíkar umbætur í Reiðskarði á Stapanum og á Skipsstíg ofan Grindavíkur, undir Lágafelli.

Varða við Hvalsnesleið (vetrargötuna).
Með tilkomu bílsins bæði mótuðust nýjar leiðir (yfir holt og mela) og eldri voru lagfærðar. Þegar t.d. leiðin milli Grindavíkur og Krýsuvíkur var gerð akfær (1932) varð hin forna þjóðleið yfir Ögmundarhraun (Ögmundarstígur) bæði breikkuð og lögð ofaníburði. Áður mátti sjá í henni djúpt far í klöppinni (sem reyndar er þar enn undir jarðveginum).
Varanlegri vegagerð kallaði á kanthleðslur, ræsi og brúargerð (t.d. Hellisbrúin undir Ingólfsfjalli), en aðstæður og landslag látið ráða för. Í dag er gjarnan farið beint að augum, ekki yfir fjöll og hálsa, heldur í gegnum hvorutveggja. Af því má sjá hversu breytingin hefur orðið mikil á tiltölulega stuttum tíma. Og án efa á margt eftir að breytast mikið á næstu áratugum. Þá má ekki gleyma fótaleiðunum gömlu.
Varðveisla

Skipsstígur.
Mikilvægt er að varðveita þessar gömlu leiðir. Varðveislan felst ekki síst í notkuninni. Með því að ganga þessar götur haldast þær sýnilegar og líkur minnka á að þær falli í gleymsku. Helstu óvinir þessara tegundir minja eru sveitarstjórnarfólk, skipulagsaðilar og verktakar. Við nýtt hverfi í Sandgerði var t.d. ekkert tillit tekið til þess að Sandgerðisvegurinn gamli liggur um svæðið og enn mjög greinileg. Grindvíkingar ákváðu hins vegar að hafa göngustíg í gegnum Hópshverfið nýja þegar þeir skipulögðu svæðið og leyfðu Skógfellaleiðinni þannig að halda sér í bæinn. Dæmi eru um, t.d. í Reykjavík, að hús hafi verið byggð á gamlar þjóðleiðir, en fólki ekki orðið svefnsamt í þeim vegna mikillar umferðar fólks að næturlagi.
Gamlar götur njóta verndar skv. 3. gr. minjalaga (Lög um menningarminjar) 80/2012:

Skógfellavegur.
Fornminjar
Fornminjar samkvæmt lögum þessum eru annars vegar forngripir og hins vegar fornleifar.
Forngripir eru lausamunir 100 ára og eldri sem menn hafa notað eða mannaverk eru á og fundist hafa í eða á jörðu eða jökli, í vatni eða sjó. Skip og bátar frá því fyrir 1950 teljast til forngripa. Til forngripa teljast einnig leifar af líkömum manna og hræjum dýra sem finnast í fornleifum, svo sem fornum haugum, dysjum og leiðum.
Fornleifar teljast hvers kyns mannvistarleifar, á landi, í jörðu, í jökli, sjó eða vatni, sem menn hafa gert eða mannaverk eru á og eru 100 ára og eldri, svo sem:
-búsetulandslag, skrúðgarðar og kirkjugarðar, byggðaleifar, bæjarstæði og bæjarleifar ásamt tilheyrandi leifum mannvirkja og öskuhauga, húsaleifar hvers kyns, svo sem leifar kirkna, bænhúsa, klaustra, þingstaða og búða, leifar af verbúðum, naustum og verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum og skútum,
-vinnustaðir þar sem aflað var fanga, svo sem leifar af seljum, verstöðvum, bólum, mógröfum, kolagröfum og rauðablæstri,
-tún- og akurgerði, leifar rétta, áveitumannvirki og aðrar ræktunarminjar, svo og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita,

Varða við gamla Þingvallaveginn – með vegvísi til norðurs.
-vegir og götur, leifar af stíflum, leifar af brúm og öðrum samgöngumannvirkjum, vöð, varir, leifar hafnarmannvirkja og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra,
-virki og skansar og leifar af öðrum varnarmannvirkjum,
-þingstaðir, meintir hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð,
-áletranir, myndir eða önnur verksummerki af manna völdum í hellum eða skútum, á klettum, klöppum eða jarðföstum steinum og minningarmörk í kirkjugörðum,
-haugar, dysjar og aðrir greftrunarstaðir úr heiðnum eða kristnum sið,
-skipsflök eða hlutar þeirra.
Hættur
Versti óvinur hinna gömlu leiða, auk þess fyrst er minnst á, er virðingarleysi núlifandi. Utanvegaakstur hefur víða spillt hluta leiðanna, nýrri vegir hafa af misgáningi verið lagðir yfir þær (t.d. hinn nýi Suðurstrandavegur um Siglubergsháls (sjá mynd), stórvirkum vinnutækjum hefur verið ekið eftir og yfir leiðirnar, rusli hefur verið hent á þær, námur settar þvert á leiðirnar og trjám plantað í þær. Með svolítilli hugsun mætti koma í veg fyrir þessa eyðileggingu, auk þess sem þeir aðilar, sem vernda eiga þessar fornu minjar, hluta af menningararfleifð okkar, mættu að taka hlutverk sig alvarlegar.

Gamli Þingvallavegurinn – ræsi og varða. framundan.
Á Reykjanesskaganum býr yfir helmingur þjóðarinnar, auk þess sem langflestir útlendir ferðamenn, sem koma hingað til lands, fara um svæðið. Landssvæðið býður upp á ótrúlega útivistarmöguleika, hvort sem er að ganga hinar gömlu leiðir, langar eða stuttar, skoða landmótun á flekaskilum, jarðmótunina frá upphafi með a.m.k. 15 hraun frá sögulegum tíma, ganga um hina fjölmörgu hraunhella, berja litskrúð hverasvæðanna augum, leita og skoða minjar er lýsa búsetu- og atvinnusögu landsins frá upphafi mannsins hér á landi eða bara virða fyrir sér alla þá ómótstæðilegu náttúru- og blómafegurð, sem boðið er upp á. Gjaldið er ekkert, en sú skylda hvílir á hverjum og einum að sýna landinu virðingu.

Reykjanesskaginn vestanverður – fornar leiðir.
(Reyndar hefur reynsla síðustu ára sýnt að það sem er ókeypis virðist lítt áhugavert. Hlutirnir virðast því hafa þurft að kosta sitt til þess glæða áhugann. Svona er nú mannskepnan margslungin – og mótsagnakennd. Hún virðist taka hoppukastala sérsdagsins, ef hann er í boði, fram yfir hin raunverulegu menningarverðmæti hverdagsins og framtíðarinnar).
Þið hin hugsandi: Hvers vegna ekki að aka í 15 mín. og nýta 1-5 tíma til göngu í stað þess að aka í 1-5 klst og hafa síðan einungis tíma til að ganga í 15 mín. Og það á svo mikilvægum tímum aðhalds og ráðdeildar hér á landi.
Að sjálfsögðu er hér ekki um að ræða tæmandi fróðleik eða lýsingu á þessu viðfangsefni, einungs það sem fyrst kemur upp í hugann í stuttu spjalli. Áhugasömu fólki er boðið vel að njóta.

Ögmundardys austast við Ögmundarstíg.
Reykjanes — hvað? – Björn Stefánsson
Í Morgunblaðinu árið 1985 birtist stutt grein eftir Björn Stefánsson undir yfirskriftinni „Reykjanes – hvað?„:
Mynd sem fylgdi greininni.
„Í fjölmiðlum 22. og 23. maí birtist frétt um samanburð verðlags í matvöruverzlunum í Reykjavík og utan Reykjavíkur. Var tekið sérstaklega fram, að verðlag í verzlunum á Reykjanesi væri nánast það sama og í höfuðborginni, en þóeilítið hærra. Af fréttinni mátti ráða, að átt væri við Reykjanes í Gullbringusýslu.
Það er ekki nýtt, að skírskotað sé til íbúa Reykjaness í fréttum, ýmist í sambandi við skoðanakannanir, lífsgæðakapphlaupið, kosningar eða annað, og virðist þá heildarvægi Reyknesinga í þjóðmálum allmikið. Sízt vil ég gera lítið úr atgervi Reyknesinga, en bendi fréttamönnum og öðrum á, að á Reykjanesi er engin verzlun.
Viti og vitavarðarhús á Reykjanesi.
Þar eru ekki heldur skráðir aðrir íbúar með fasta búsetu en vitavörðurinn og hans fjölskylda. Eitt atvinnufyrirtæki er þó starfrækt þar, Sjóefnavinnslan hf. Vonandi á hún eftir að skila góðum arði í þjóðarbúið, þrátt fyrir afskipti hæstvirts iðnaðarráðherra.
Reykjanes er sem sé aðeins lítið nes, sem skagar suðvestur úr stórum skaga, Reykjanesskaga. Skaginn er stígvélslaga, og myndar Reykjanes aftasta hluta hælsins. Ég viðurkenni fúslega, að það er óþjált í munni og langt á prenti að tala um Reykjanesskagaíbúa, enda óþarft.
Frá örófi alda hafa byggðir sunnan Hafnarfjarðar og Kapelluhrauns („sunnan“ er gömul málvenja um þá byggð, sem er vestar eða utar á skaganum) verið nefndar Suðurnes og íbúar þeirra Suðurnesjamenn. Er þörf að breyta því? Ólína Andrésdóttir hefur gert það nafn ódauðlegt með stefinu „Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn … “ í kvæði sínu Útnesjamenn.
Unnið við nýja Keflavíkurveginn, fyrrum Suðurnesjaveg.
Ég skora því á þá, sem þurfa að skírskota til íbúa Suðurnesja, hvort heldur sem notenda, þolenda eða háttvirtra kjósenda, að nefna þá sínu rétta nafni, Suðurnesjamenn.
Og við skulum ekki aðeins hætta að tala um Suðurnesjamenn sem Reyknesinga, heldur einnig slá stóru striki yfir Reykjanesbraut, og nefna hana hér eftir með réttu Suðurnesjabraut.“ – Höfundur er skrifstofumaður í Keflavík.
Þulan um Geirfuglasker
Ólína Andrésdóttir (1935-1858).
Mörg þekkja hið geðþekka lag Sigvalda Kaldalóns við texta Ólínu Andrésdóttur um Suðurnesjamenn sem sóttu fast sjóinn. Þar eru þó einungis sungin örfá erindi og Geirfuglaskerið kemur lítið við sögu.
Kvæðið er gjarnan látið bera titilinn Suðurnesjamenn og er jafnan flokkað með sjómannalögum. Meginefni bragsins hefur því algjörlega farist fyrir. Kvæði Ólínu ber yfirskriftina Þula og geymir formála sem skýrir tilurð hennar og hvað hún hverfist í raun um. Hér á eftir má lesa þuluna í fullri lengd ásamt formálanum:
Formáli
Geirfuglasker var út af Reykjanesi í Gullbringusýslu. Var öldum saman sótt í skerið, bæði fugl og egg. Geirfuglasker sökk í jarðskjálftum, er gengu yfir Reykjanesskaga árið 1830. Síra Þorkell Stefánsson, prestur á Hvalsnesi (1655-1696) orti kvæði um Geirfuglasker, sem nú er að líkindum glatað. En stefið er enn til, og út af því er þula þessi ort.
Þula
Jeg get ekki gefið mig í Geirfuglasker,
eggið brýtur báran, því brimið er.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.
Unnur bauð þeim faðm sinn svo ferleg og há;
kunnu þeir að beita hana
brögðum sínum þá.
Kunnu þeir að stýra, og styrk var þeirra mund;
bárum ristu byrðingarnir
ólífisund.
Áttu þar á óðalsjörðum auðkýfingar bú;
rjeðu þeir þar ríkjum,
sem rofin eru nú.
Reistu þeir og gáfu þar Guði sínum hús.
Þá var hver á blessaða
bænrækni fús.
Kirkja stóð í Vogi, sem veglegust var,
helguð sankti Máríu
og hennar nafnið bar.
Hún var gefin Maríu, og henni gafst því margt,
gull og eir og silfur
og glóandi skart.
Köldu reis úr hafinu klettaeyja ber.
Gefið var henni nafnið
Geirfuglasker.
Gefið var henni nafnið af Geirfugli þeim,
sem átti þar sinn bjarta,
bárum lukta heim.
Þar átti hann vígi sín, voldug og stór;
umhverfis var brimgarður,
ófærusjór.
Eins frá liðnu öldunum annáll sýnir mjer,
að gefin voru Máríukirkju
Geirfuglasker.
Gull að sækja í greipar þeim geigvæna mar
ekki nema ofurmennum
ætlandi var.
Ekki nema ofurmenni ætluðu sjer
að brjótast gegnum garðinn
kringum Geirfuglasker.
Sem betur þektu brimið en bókara ment;
loftið og sjóinn
þeir lásu meir en prent.
Görpum þótti gífurlega geigvæn sú för,
en betri samt en björg að sækja
í Bátsenda vör.
Betri samt en björg að sækja Bátsendum að;
ræningjarnir dönsku
rjeðu þeim stað.
Eggjar mest sú þrautin, sem þiggur launin tvenn;
þeir voru ekki hræddir,
Máríu menn.
Þeir voru ekki hræddir, þeir þekktu hennar mátt
og báðu hana að blessa sjer
bæði stórt og smátt.
Við þeim blasti Vogabáran víðfeðm og blá;
sæmd eru hverjum sjómanni
sigurlaun há.
Sóttu þeir í eyjuna egg og fugla fans;
sökkhlöðnum byrðingi
sigldu þeir til lands.
Farin var þá ferðin til fjár og sæmdar mörg;
færðu þeir í hungraðra
heimkynni björg.
Sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn.
Ekki var að spauga með þá
Útnesjamenn.
Ekki er að spauga með íslenskt sjómanns blóð,
ólgandi sem hafið
og eldfjallaglóð,
Ásækið sem logi og áræðið sem brim,
hræðist hvorki brotsjó
nje bálviðra glym.
Svona voru þeir gömlu, og sæmd var að þeim,
sem komnir eru í eilífðar-
höfnina heim.
Lögðu þeir í brimgarðinn lítilli skel,
þó ættu þeir ekki í bátum sínum
útlenda vjel.
Áttu þeir í brjóstum sínum áræði og þor;
flestum mun nú ókleift
að feta þeirra spor.
Nú eru þau sokkin í sæ, þessi sker;
enginn geirfugl heldur
til í heiminum er.
En sjómönnunum sunnlensku með siglandi fley
reist hafa þau bautastein,
sem brothætt mun ei.
Þjóðin geymir söguna öld eftir öld;
minning hennar lýsir
eins og kyndill um kvöld.“
Heimild:
-Morgunblaðið, 120 tbl. 31.05.1985, Reykjanes – hvað?, Björn Stefánsson, bls. 15.
-https://skald.is/greinar/435-thula-um-geirfuglasker
Geirfuglasker.
M-hátíð á Suðurnesjum – Jón Böðvarsson
Í Faxa árið 1992 er fjallað um erindi Jóns Böðvarssonar á svonefndri „M-hátíð á Suðurnesjum„:
Dr. Bjarni Sæmundsson frá Grindavík líkti korti af Íslandi við ferlíki sem glennir gin með lafandi tungu mót úthafinu til vesturs: „Vestfjarðakjálkinn er efri skolturinn, Snæfellsnesið tungan, en Suðurkjálkinn neðri skolturinn.“ Suðurkjálka nefndi hann þennan landshluta sem nú er almennt kallaður Reykjanesskagi.
„Herra menntamálaráðherra, ágætu Suðumesjamenn og aðrir gestir.
Við Íslendingar erum minnug þjóð og fastheldin á hið forna, höfum vel varðveitt tungu og menningu og haldið í vanaskorðum skiptingu lands í sveitarfélög á grunni hefðgróins bændasamfélags – og undramörg örnefni hafa haldið velli frá því Landnáma var skráð til þessa dags.
Ekki þarf lengi um að litast í sögunni til þess að sjá að Suðurkjálkinn okkar hefur sérstöðu í mörgum greinum. Þannig hefur ekki geymst fornt heiti á svæðinu sunnan Straums, sem við köllum nú Suðurnes.
Íslandskort.
Landslag, sem við þekkjum nú, er frábrugðið því sem almennt tíðkast í byggðum á landi hér. Úfin hraun og gróðursnauð þekja mestallan skagann þannig að landbúnað geta menn vart stundað. Í stað sveitabæja umlukta túnum í dal eða á víðri sléttu með tignarfjöll að baki vom fámenn þorp á sjávarbökkum þar sem brim barði og ber kletta – en úti fyrir voru auðug fiskimið.
Hér hefur flest breyst í alda rás: atvinnuhættir, efnahagur og einnig landslag. Athuganir á örnefnum, fornleifum og jarðvegi benda sterklega til þess að mikil akuryrkja hafi verið stunduð á Rosmhvalanesi á fyrstu öldum Íslandsbyggðar en landbrot og kólnandi veðurfar hafi smám saman kippt fótum undan þeirri atvinnugrein.
Ólafur Ásgeirsson (1947-2014).
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður segir: „Freistandi er að œtla að þar hafi í fyrstu myndast hjáleiguþéttbýli akuryrkjubœnda. Höfuðbólin hafi haldið velli og úr þeim síðan myndast á 14. öld sjávarþorp þar sem búðir mynduðu smáþorp á hverjum bœ. Íbúar hjáleigu- og búðaþorpanna urðu að ganga til allra verka á ökrum húsbœnda sinna til lands og sjávar. Þeir veittu herrum sínum mikla auðlegð og oft skjóttekinn gróða, en máttu sjálfir heyja harða lífsbaráttu við erfið skilyrði. Þeir bjuggu við léleg vatnsból, sandfok og uppblástur, og lifðu við hungurmörkin. Þannig birtist hér á landi lénsskipulagið, hið efnahagslega lénsveldi, þar sem stórbœndur áttu ábúendur hjáleigubyggðarinnar með húð og hári. Seldi bóndi jörð sína fylgdu hjáleigubœndurnir með í kaupunum eins og hver annar fénaður. “
Sjóróður.
Er fram liðu stundir varð sjávarútvegur mikilvægari atvinnugrein en landbúnaður þar sem búfjárrækt var örðug vegna hrjósturs eða landþrengsla. Verstöðvar undir Jökli á Snæfellsnesi, Vestmannaeyjar og Suðurkjálkinn okkar voru mikilvægustu byggðir af því tagi. Búðsetumenn sátu á landlitlum eða landlausum kotum og öll afkoma þess fólks valt á aflabrögðum. Góð hefði hún oft orðið ef allur arður hefði runnið til þeirra sem aflann sóttu úr sjó – en landeigendur utan svæðis báru úr býtum drjúgan hlut. Fyrir siðaskipti áttu Skálholtsstóll og Veiðeyjarklaustur flestar jarðeignir suður með sjó en í kjölfar siðbótar urðu eigendaskipti. Danakonungur dró til sín kirkjueignir svo að um langt skeið hvarf auður úr landi sem áður rann óskiptur til annarra héraða.
Róður – Bjarni Jónsson.
Þjóðsögur og aðrar sagnir greina frá ferðum manna norðan, vestan og sunnan úr sveitum til sjóróðra hér – er heim héldu að vertíðum loknum með hluti sína. Líklega hafa þeir aðkomumenn stundum verið fleiri en búendur hér er bátum stýrðu.
Fleiri sóttu í auðlegðina úti fyrir ströndum. Hingað komu Englendingar og Þjóðverjar til skreiðarkaupa. Víkur og vogar urðu hafskipahafnir. Um þær mundir hefur efnahagur hér verið góður og um skeið voru Hafnarfjörður og Grindavík höfuðslöðvar keppinauta sem börðust um fiskinn sem íbúar hér og aðkomumenn drógu á land. Eftir að útlendir kaupmenn voru burt hraktir urðu Grindavík, Básendar og Keflavík þær hafnir hérlendis sem danskir einokunarkaupmenn töldu eftirsóknarverðastar.
Jón Trausti/Guðmundur Magnússon (1873-1918).
En svo ógnvekjandi þótti skaginn að flestir vildu fremur gista hann sem gestir en setjast að og margir – erlendir menn sem innlendir – er aldur ólu í frjósömum héruðum hafa undrast mannlífsgrósku á slíkum hrjósturlendum. Hinn ágæti rithöfundur Jón Trausti lýsti þeirri skoðun að Guð hafi verið reiður er hann skóp Reykjanesskagann. Annar merkur höfundur líkti þessum neðra skolti við voldugan öldubrjót sem varið hefur Faxaflóabyggðir í rás alda.
Skáldið og heimsmaðurinn Grímur Thomsen var um skeið þingmaður Gullbringu- og Kjósarsýslu. Hann átti ríkan þátt í að reistur var Reykjanesvitinn sem lýsti farmönnum leið til landsins. Mörg kvæði hans eru þjóðkunn – en á þessari stundu finnst mér hæfa að rifja upp eitt, sem lítt er þekkl, en fjallar um náttúruumbrot – og víðan skilning má í leggja því að land er hér í líkri mótun og byggðin og sagan.
Hvers í djúpum bullar brunni
beljar sjór á hrauna flesi,
sjóða jafnvel svalar unnir
suður undan Reykjanesi;
skelf eru kröppu skinnaköstin,
skelfir móti vindi röstin.
Undir bruna áin rennur
út í mar hjá Valahnjúki,
undir hrönnum eldur brennur
eigi er kyn þó drjúgum rjúki;
hafs í ólgu og hvera eimi
hvirflast bólgið öfugslreymi.
Óþreytandi elds er kraftur,
ár og síð í djúpi starfar,
stinga sjer og upp þar aftur
eyjar koma líkt og skarfar,
skerin geta Fugla farið
fyrr en máski nokkurn varir.
Saga Keflavíkur.
Saga Suðurnesja á fyrri öldum er bæði atburðarík og margþætt en ekki er nú unnt að rekja sérstök dæmi. Henni hefur til skamms tíma verið lítill gaumur gefinn. Undanfarin ár hafa sveitarfélög þó söðlað um og sýna nú í verki áhuga á að bæta úr. Sandgerði, Keflavík, Grindavík og Njarðvík hafa samið við sagnfræðinga um söguritun og fyrir aldamót má vænta þess að greinargóð rit um þessa staði verði tiltæk öllum sem fræðast vilja um forna viðburði á Suðumesjum.
Gjörbylting varð smám saman en einkum á heimsstyrjarldarárunum síðari vegna flugvallargerðar og hernaðarumsvifa. Mikil eftirspurn varð eftir vinnuafli og fólk hvaðanæva af landinu settist hér að, – fólk sem átti hér engar ættarrætur. Oft er því haldið fram að eins konar gullgrafaraandrúmslofti hafi þá ríkt. Tekjuöflun varð keppikeflið æðsta og fólk leitaðist við að vinna sem lengst dag hvern. Frístundum varði það til þess að reisa sér hús og koma undir sig fótum – meirihlutinn aðkomufólk í nýju umhverfi en sama gerðu innfæddir menn á heimaslóðum. Efnahagur varð góður og atvinnulífmargþætt. Sveiflur í sjávarútvegi hafa síðan haft minni áhrif en áður.
Merkileg er sú framvinda sem hér hefur orðið á öldinni sem senn rennur skeið sitt á enda. Hnignunarskeið var frá aldamótum til 1940. Margt olli en gegndarlaus ásókn erlendra fiskiskipa sem toguðu uppi í landsteinum var einna þyngst á metum. Slíkt var þá umkomuleysi og aðstöðuskortur fátækra Suðurnesjamanna að þeir neyddust til þess að kaupa fisk sem erlendir togarar veiddu skammt frá ströndum.
Reykjanes – Gunnuhver.
Við þessar uppbygginaraðstæður er eðlilegt að félagslíf hafi verið fáskrúðugt – en fleira tafði menningarlega kjölfeslu. Herstöðin, sem mesta vinnu veitti, og nálægð við höfuðborgarsvæðið áttu drjúgan þátt en fleira getur skýrt að heilbrigður byggðametnaður óx ekki að sama skapi og íbúafjöldinn. En þetta breyttist og furðulegt má telja hve rótfastir landnemamir hafa orðið á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er síðan aðstreymisbylgjan lækkaði risið. Afkomendur þeirra eru enn tengdari Suðurnesjum. Þorpin smáu hafa breyst í myndarlega og sívaxandi bæi. Þeim má líkja við kolbíta sem úr öskustó hafa risið og láta sífellt meira til sín taka.
Kaupstaðir hér hafa náð þeim árangri að standa jafnfætis gömlum og grónum þéttbýlisstöðum sem atvinnu- og menningarlegar heildir – eða heild. – Vaxi samkennd og sjálfsbjargarþróttur Suðumesjamanna með líkum hætti næstu ár og hina síðustu áratugi verður hér um aldamót næstfjölmennasta sveitarfélag á Íslandi – eitt, framsækið og öflugt.
Ég hóf mál mitt á því að lýsa landslagi sem áður vakti ógn í brjóstum. Hreint loft og hrjóstur eru nú eftirsóknarvert umhverfi í mengunarspilltri veröld þar sem þegar er farið að selja súrefnishylki þeim sem ekki geta með öðru móti andað að sér í regntærum blæ eða stormi. Jarðhiti, sem áður sauð svalar unnir, er í nútímasamfélagi landgæði jafn eftirsóknarverð og grónar grundir voru á liðinni tíð.
Hvalsnesleið á Suðurnesjum – varða.
Áðan nefndi ég Suðurkjálkann öldubrjót en einnig má kalla hann slökkpall Íslendinga út í víða veröld og lendingarstað á leið heim aftur. Allir vita að svo hefur verið síðan flugsamgöngur hófust milli landa en svo var einnig mörgum öldum fyrr.
Suðumesjamenn. Verið öldubrjótar þegar erlendar bylgjur berast hér að ströndum. Bárur brotna á sandi og grjóti en bera með sér á land og skilja eftir reka af ýmsu tagi sem áður kom landsmönnum að miklu gagni. Takið á sama hátt á móti menningarstraumum utan úr heimi. Dragið á land gilda trjáboli, smíðið úr kjörgripi en látið ekki öldur ganga á land og brjóta strandlengjuna.
Suðurnesjamenn. Munið þá ábyrgð sent fylgir því að búa á stökkpalli og lengdingarstað. Gerið umhverfið þannig að þeir sem utan fara geymi góðar minningar í brjóstum er laða heim aftur – umhverfi sem hrífur gesti sem að utan koma og eignast ef til vill aðeins eina minningu um Ísland.
Hér er framtíð okkar. Gleðilega M-hátíð.“ – Jón Böðvarsson
Heimild:
-Faxi, 5. tbl. 01.09.1992, M-hátíð á Suðurnesjum, Jón Böðvarsson, bls. 134-135.
Suðurnes – kort.
Brunatorfur (Brunntorfur-Brundtorfur)
Það er stundum gaman að velta fyrir sér örnefnum og tilurð þeirra, brenglunum og misvísunum er verða til með tímanum. Eitt dæmið er örnefnið „Brunntorfur„.
Fornasel (Brunnsel ) – vatnssæðið.
Eftir að Nýjahraun rann á tímabilinu frá 1151 til 1180 var það á meðal íbúana í Hraunum jafnan nefnt „Bruninn“. Síðar, eftir að mannvistarleifar fundust neðst í hrauninu við hina fornu Alfaraleið og Kristján Eldjárn, ásamt öðrum, grófu þær upp um 1950 og túlkuðu sem kapellu, var hraunið nefnt Kapelluhraun.
Þegar skoðaðar eru seinni tíma örnefnalýsingar má m.a. sjá eftirfarandi:
Í örnefnalýsingu Ara Gíslasonar um Straum segir; „Stórhæðir taka svo við þegar kemur upp fyrir Straumssel, þar til austurs efst er Fremstihöfði. Ofan við Straumsel heitir Gamlaþúfa og í henni er gren sem heitir Gömluþúfugren. Þar austur af er holt sem heitir Hafurbjarnarholt, á því vestarlega voru merki móti Straumi. Svo er þar ofar Fremstihöfði, þá snúum við við á Brunntorfur, þaðan í Gjásel. Norður af því eru Hrauntungur.“
Brunatorfur – loftmynd.
Í örnefnalýsingu Gísla Sigurðssonar um Straum er ekki minnst á Brunntorfur.
Í örnefnalýsingu Gísla um Þorbjarnarstaði segir hins vegar; „Um Brúnaskarð eystra liggur alfaraleiðin upp á Kapelluhraun, en svo nefnist neðsti hluti Nýjahrauns, sem ofar kallast Bruninn og enn ofar Háibruni. Áður hefur verið getið um mosatekju í Kapelluhraun.
Landamerkjalínan liggur úr Þórðarvík suður og upp um Leynidali og síðan áfram upp austurbrún Brunans. Alfaraleiðin lá suðvestur eftir Brunanum. Nær miðju var Kapellan, húsnefna hlaðin úr grjóti uppi á hól. Var hún 2×2 metrar að ummáli, og sneru dyr í vestur. Kapella þessi var helguð heilagri Barböru, sem var verndari ferðamanna og gegn hvers konar háska af eldsvoða.
Gerði í Brunatorfum.
Síðan liggur leiðin áfram, þar til komið er í Brunaskarð vestra. Við hvort skarð eru vörður, er nefnast Stóravarðan eystri og Stóravarðan vestri. Hér nokkru sunnar er Fjárborgin á tungu út úr brunanum. Hún stendur enn, og er innanmál hennar um 7 m. Suður og upp frá Brunanum eru Brundtorfur. Þar var hrútum hleypt til ánna forðum daga. Þar voru Brundtorfuvörður og Brundtorfuhellir. Einnig var þetta svæði kallað Brunntorfur, Brunntorfuvörður og Brunntorfuhellir. Hér vestnorðvestur var Gjásel, sel frá Þorbjarnarstöðum.“
Í örnefnalýsingu Guðlaugs Rúnars Guðmundssonar fyrir Hafnarfjörð segir; „Brunntorfur (Brundtorfur) eru sunnan við Gjásel og vestan Snókalanda.“
Hér fer höfundur svolítið villu vega; Svæðið sunnan Gjásels er Hafurbjarnaholt í Almenningi. Hins vegar eru Brunatorfur réttilega sagðar vestan Snókalanda.
Brunatorfuskjól.
Eftir að Bjarni Bjarnason, skólastjóri og ábúandi Straums, ánafnaði Skógrækt ríkisins hluta Straumslands og með nýjum skógræktarlögum árið 1955 var skógræktarstjóra heimilt, að fengnu samþykki ráðherra, að leigja einstaklingum, félögum eða stofnunum lönd á erfðafestu innan girðingar Skógræktarinnar gegn því að leigutakar gróðursettu barrskóg í landinu samkvæmt fyrirmælum skógræktarstjóra og samningi við leigutaka. Allur skógur í landinu skyldi verða eign leigutaka en meðferð hans og grisjun háð fyrirmælum skógræktarstjóra.
„Brundtorfuhellir.“
Fljótlega eftir að lögin tóku gildi, hófust ræktunartilraunir á afmörkuðu svæði í Straumi, og um eða upp úr 1960 gerðu fjórir félagar samning við Skógræktina um leigu á landi til skógræktar í „Brunntorfum“. Það er hins vegar ekki að sjá að þeir hafi nokkru sinni leitt hugan að nafngiftinni, enda uppteknir af skógræktinni.
Segja má það sama um þá tvo fyrrnefndu. Í fyrsta lagi er enginn brunnur í nefndum „Brunntorfum“ og í öðru lagði var „hrútum aldrei hleypt til ánna þar forðum daga“. Það stóð reyndar til á tímabili, í kringum 1900, en sú varð hins vegar aldrei raunin.
„Bruninn“ hét hraunið sannanlega sem rann þarna fyrrum. Því er öllu skilmerkilegra, að öllu framangreindu sögðu, að nefna mosagrónar gróðurtorfurnar þar í austanverðum Almenningi „Brunatorfur„.
Brunatorfur (Brunntorfur) – kort.
FERLIR – yfirlit
Fornleifar á Reykjanesskaga
FERLIR hefur að undanförnu birt fróðleiksgreinar um fjölda einstakra tegunda minjastaða, auk einstakra náttúruminja, á Reykjanesskaganum, s.s..:
Selatangar – uppdráttur ÓSÁ.
22 verbúðir
29 nafngreind greni
33 slysstaðir flugvéla á stríðsárunum (utan flugvalla)
98 fornar hlaðnar refagildrur
128 letursteinar
142 fjárborgir
204 nafngreindar vörður ( með sögulegt samhengi)
224 fjárréttir
248 brunnar
443 sel og selstöður
532 þjóðleiðir og götur (utan selsstíga)
653 hraunhellar og skjól
—- að ekki sé nú talað um öll hraungosin sem hafa orðið á Skaganum frá upphagi byggðar til nútíma.
Aðgengi að þessum fróðleik, sem safnað hefur verið saman á síðasta aldarfjórðungi, er öllum aðgengilegt án nokkurs kostnaðar. Allar hafa þessar minjar verið hnitsettar og færðar í sérstaka skrá til varðveislu.
Njótið um hátíðarnar – ykkur að kostnaðarlausu…
Í hellinum Ferlir í Brennisteinsfjöllum.
Jólin
Fyrir 3000 árum síðan kunnu menn að fylgjast með himninum og vissu á hvaða degi vetrarsólstöður lentu á hverju ári.
Kálfatjarnarkirkja á jóladagsmorgun með upprisu sólarinnar í bakgrunni.
Á miðöldum tóku svo nefndir valdamanna, „kirkjunnar þjónar við því mikilvæga hlutverki að ákvarða dagsetningu vetrarhátíðarinnar, skálduðu upp sögur í kringum Jesús nokkurn Jósepsson, sem eflaust var mælskur og heillandi maður á sínum tíma, en kunnu þá ekki að stilla af dagatalið miðað við sólarganginn, enda slík vísindi ekki þá á valdi annarra en hinna hæfustu manna.“ Nefndirnar gátu á þeim tíma ekki orðið sammála um dagsetningarnar og því urðu þær allnokkrar – misgæfulegar.
Vetrarsólstöður – dagurinn verður 15 sekúndum lengri á Þorláksmessu, og tveimur og hálfri mínútu lengri á gamlársdag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson.
Nú er aftur leyfilegt að tímasetja vetrarsólstöður eins og þær voru í raun, en við höldum ekki uppá þær sem skyldi (einhverra hluta vegna). Menn dýrka enn Jesús um jól og fagna nýju ári um áramót og þykir hvort tveggja merkilegt en horfa framhjá því hversu stórkostlegt það er að við getum í dag mælt nákvæmlega möndulhalla jarðar og stöðu hennar á braut í kringum sólina og vitum uppá sekúndu hvenær vetrarsólstöður eru. Þetta er í raun allt miklu merkilegra en eldgamall tilbúningur, sem flestir fylgja þó , einhverra hluta vegna, enn þann dag í dag.
Hafnarfjörður í aðdraganda „jólanna“.
Framangreint segir sína sögu um hversu nútímamaðurinn er móttækilegur fyrir sjálfgefnum og athugasemdalausum tillögum hversdaglífsins frá einum tíma til annars.
Fyrir okkur, afkomendur heiðingjanna; landnámsmanna og -mæðra, væri miklu mun eðlilegra að halda jólin þann 21. desember ár hvert í stað þess 25. s.m.
Samt sem áður og þrátt fyrir allt, hvað svo sem öllum álitum líður – Gleðileg jól.
Vetrarsólhvörfum fagnað að jólasið.
Gamlar leiðir á Reykjanesskaga
Upphafið
Gengið um Hraunin.
Götur mynduðust hér á landi allt frá fyrstu fótatíð manna og búfénaðar. Enn í dag er stundum erfitt að greina á milli hvaða götur voru notaðar af hverjum, hvenær og í hvaða tilgangi. Sumar götur, sem áður voru gengnar, eru nú horfnar, margar má enn greina og enn aðrar hafa verið endurheimtar.
Á löngu tímabili hefur gróður náð að hylja slóðirnar, gróðureyðing náð að afmá þær, jarðvegur færst til, skriður og snjóflóð hlaupið yfir þær, ár og lækir breytt um farvegi, vatn runnið í þeim og breytt, eldgosaaska hulið og hraun runnið yfir þær á köflum. Þá hafa sumar leiðir lagst af vegna þess að tilgangur þeirra breyttist og aðrar orðið til af sama tilefni. Þá hafa gamlar leiðir færst til og verið farnar af mismikilli nákvæmni áður en þær voru varðaðar. Ókunnugir hafa eflaust fylgt þeim nokkuð vel og gætt að kennileitum á meðan kunnugir hafa getað stytt sér leiðir eða einfaldlega farið beint af augum ef veður leyfði og aðstæður voru hagstæðar.
Í lok 19. aldar var unnið óskipulega að lagningu vagnvega víðs vegar um landið, einkum nálægt þéttbýli, og í byrjun 20. aldar var megináherslan lögð á gerð bílvega af gefnu tilefni.
Leiðir
Fornagata í Selvogi.
Lengri aðalleiðirnar lágu milli bæja og byggðakjarna, verstöðva, verslunarmiðstöðva, þingstaða eða kirkna, hvort sem var með ströndum landsins, yfir fjallgarða, heiðar, ása og úfin eða slétt hraun. Leiðirnar voru mislangar, allt frá og til fjarlægustu landshluta eða bara út frá bæ í fjárskjólið og stekkinn. Segja má t.d. að allar leiðir hafi um tíma legið til og frá Þingvöllum.
Við þessar leiðir má víða finna misgamlar minjar, s.s. hlaðin skjól, sæluhús, bæli í hellum, vörður, bæði sem leiðarmerki og til minningar um fólk, sem varð úti á ferðum sínum. Ástæður þess gátu verið margvíslegar, bæði af eðlilegum ástæðum og óeðlilegum.
Fornagata.
Fatnaður var ekki eins góður og hann er í dag, hvort sem var til fóta og höfuðs. Veðurspár voru byggðar á öðrum kennimerkjum en nú tíðkast og ekki alltaf áreiðanlegar. Og þá var líka til fólk, líkt og í dag, sem taldi sig geta storkað veðuröflunum – stundum með uggvænlegum afleiðingum. Dæmi eru og um að fólki hafi verið úthýst frá bæjum í slæmum veðrum. Dauðsmannsvörðurnar eru margar við og hjá þessum götum, einkum á heiðum, en stundum slapp fólk lifandi þrátt fyrir miklar raunir, sbr. Prestsvörðuna ofan við Leiru.
Landið
Um allt land má finna mikilvægar þjóðleiðir frá liðnum öldum. Sumum hefur verið haldið við af áhugasömu fólki eða ferðaþjónustuaðilum. Þá hafa verið búnar til nýjar gögnuleiðir um fallega náttúrustaði. Nokkrar slíkar má finna á Reykjanesskaganum. Hafa ber í huga að mikilvægustu leiðirnar hér áður fyrr eru ekki endilega vinsælustu gönguleiðirnar í dag. Sumar gönguleiðirnar eru nýlegar, s.s. Reykjavegurinn svonefndi milli Reykjaness og Nesjavalla. Á köflum liggur hann samhliða eða nálægt fornum götum.
Óttarsstaðaselsstígur.
Greina má götur eftir fólk frá götum eftir búfénað, s.s. kindur. Þær leita gjarnan að tvennu; bithaga og skjóli. Kindagötur (fjárgötur) liggja því oft utan í hlíðum, hæðum og hólum eða í lægðum. Þar sem féð hefur unað hag sínum vel er jafnan vel gróið. Fólk hafði það að leiðarljósi að fara sem greiðfærustu leiðina og þá jafnan með það í huga að „halda hæð“. Ekki var farið upp og niður hæðir og dali að óþörfu. Spara þurfti orku og kraftar þurftu að endast um langan veg.
Ef vel er að gáð má víða sjá ryðgaðar skeifur og skeifubrot, leðurpjötlur eða bein. Ekkert af því má fjarlægja heldur láta kyrrt liggja.
Landnám Ingólfs
Greinileg ummerki eru á fjölmörgum götum eftir umferð fólks hér á landi frá upphafi landnáms, ekki síst í landnámi Ingólfs.
Hvalsnesvegur.
Víða eru gömlu þjóðleiðirnar klappaðar í misharða hraunhelluna, s.s. sjá má á Sandakra- og Skógfellaveginum eða á Hellunni (Fornugötu) vestan Hlíðarvatns. Þar hefur yngra hraun runnið yfir eldra hraun, sem gatan er í.
Gatan er ágætt dæmi um hversu mikil umferð hefur verið hér allt frá fyrstu tíð, sem reyndar gæti þess vegna hafa verið eldri en norrænt landnám segir til um.
Á Reykjanesskaganum eru þessar gömlu leiðir miklu mun fleiri en fólk gerir sér grein fyrir. Sumar eru reyndar áfangaleiðir og tengjast öðrum eða greinast út frá þeim til ýmissa staða. Sjá t.d. skrif um Grindavíkurvegi HÉR og um Reykjavíkurvegi HÉR.
Skógfellavegur.
Tegundir
Reyna má að flokka leiðirnar miðað við notagildi. Þannig lágu þjóðleiðir milli byggðalaga.
Má þar nefna Alfaraleiðina (Almenningsleiðina) milli Innnesja (Hafnarfjarðar) og Útnesja (Keflavíkur). Hún sést að mestu enn þann dag í dag frá jaðri Brunans (Kapelluhrauns) til Innri-Njarðvíkur. Selvogsvegur (Suðurfararvegur) lá milli Hafnarfjarðar og Selvogs. Hann sést vel frá Lækjarbotnum í Hafnarfirði að Strönd í Selvogi. Þessar leiðir voru mikið farnar allt til þess tíma að vegir voru gerðir fyrir sjálfrennireiðina er kom hingað til lands í byrjun 20. aldar.
Verleiðir má sjá við verin, bæði á norðan- og sunnanverðum Reykjanesskaganum. Leiðirnar Ofan við Selatanga, verstöð, sem notuð var allt til byrjun 20. aldar (síðustu áratugi frá Ísólfsskála) eru t.a.m. þrjár, hvort sem var heim til bæja (Skála og Krýsuvíkur) eða inn á þjóðleiðirnar, sem sumar hverjar voru mikilvægar skreiðarleiðir.
Árnastígur.
Byggðakjarnar á landssvæðinu, s.s. Grindavík, Garður, Hafnir og Vatnsleysuströndin voru t.d. mikilvægar verstöðvar fyrir bæði vermenn alls staðar frá á landinu og fiskflutninga, ekki síst til Skálholtsstóls, um aldir.
Leiðir á milli bæja eru jafn margar og bæirnir voru margir – og þeir voru miklu mun fleiri en fólk gerir sér í hugarlund. T.d. voru 28 bæir í Staðarhverfi, vestast Grindarvíkurhverfanna, fyrrum, en nú standa þeir þar sem tóftir, minnisvarðar um fólkið sem þar bjó, líf þess og atvinnuhætti. Frá Staðarhverfi lágu samskiptagötur til Hafna, Njarðvíkna og hinna byggðarkjarnanna í Grindavík. Þær sjást enn vel.
Selstígar lágu upp í selstöðurnar, sem voru fjölmargar í landnámi Ingólfs. Inn má t.a.m. sjá leifar af u.þ.b. 250 slíkum á landssvæðinu, ef vel er að gáð.
Gamla gatan um Siglubergsháls.
Einungis örfáar hafa verið eyðilagðar af mönnum eða forgengst af skriðum.
Kirkjugötur voru mikilvægar menningarleiðir og varla er til sú sveit eða hérað að ekki var þar kirkjustígur eða -gata. Hvalsnesleiðin milli Ytri-Njarðvíkur og Hvalsness er ágætt dæmi um slíka götu, en hún var jafnframt notuð sem þjóðleið milli byggðakjarna og sem verslunarleið. Líklega er hluti leiðarinnar sá best varðveitti hér á landi því varnargirðing Varnarliðsins hefur umlukið hann síðustu áratugina. Reyndar er kominn tími til að opna hana á ný fyrir áhugasömu göngufólk því leiðin liggur um landssvæði, sem er utan varnargirðingar flugvallarsvæðisins.
Þróun
Skipsstígur – endurbættur skv. „nútíma“ hestsvagnskröfum.
Bæði hefur leiðarkerfið þróast frá fyrstu tíð og götur verið færðar til eða lagfærðar. Þegar ferðast var á fótum, hvort sem var eigin eða annarra (hestbaki) mótuðust göturnar af sjálfu sér. Á fjölfarnari leiðum var kastað úr hluta gatnanna og leiðarmerki reist. Um tíma varð það hluti af þegnskylduvinnu eða atvinnubótavinnu.
Með tilkomu vagnsins fóru fram vegbætur á mikilvægustu leiðunum. Sjá má slíkar umbætur í Reiðskarði á Stapanum og á Skipsstíg ofan Grindavíkur, undir Lágafelli.
Varða við Hvalsnesleið (vetrargötuna).
Með tilkomu bílsins bæði mótuðust nýjar leiðir (yfir holt og mela) og eldri voru lagfærðar. Þegar t.d. leiðin milli Grindavíkur og Krýsuvíkur var gerð akfær (1932) varð hin forna þjóðleið yfir Ögmundarhraun (Ögmundarstígur) bæði breikkuð og lögð ofaníburði. Áður mátti sjá í henni djúpt far í klöppinni (sem reyndar er þar enn undir jarðveginum).
Varanlegri vegagerð kallaði á kanthleðslur, ræsi og brúargerð (t.d. Hellisbrúin undir Ingólfsfjalli), en aðstæður og landslag látið ráða för. Í dag er gjarnan farið beint að augum, ekki yfir fjöll og hálsa, heldur í gegnum hvorutveggja. Af því má sjá hversu breytingin hefur orðið mikil á tiltölulega stuttum tíma. Og án efa á margt eftir að breytast mikið á næstu áratugum. Þá má ekki gleyma fótaleiðunum gömlu.
Varðveisla
Skipsstígur.
Mikilvægt er að varðveita þessar gömlu leiðir. Varðveislan felst ekki síst í notkuninni. Með því að ganga þessar götur haldast þær sýnilegar og líkur minnka á að þær falli í gleymsku. Helstu óvinir þessara tegundir minja eru sveitarstjórnarfólk, skipulagsaðilar og verktakar. Við nýtt hverfi í Sandgerði var t.d. ekkert tillit tekið til þess að Sandgerðisvegurinn gamli liggur um svæðið og enn mjög greinileg. Grindvíkingar ákváðu hins vegar að hafa göngustíg í gegnum Hópshverfið nýja þegar þeir skipulögðu svæðið og leyfðu Skógfellaleiðinni þannig að halda sér í bæinn. Dæmi eru um, t.d. í Reykjavík, að hús hafi verið byggð á gamlar þjóðleiðir, en fólki ekki orðið svefnsamt í þeim vegna mikillar umferðar fólks að næturlagi.
Gamlar götur njóta verndar skv. 3. gr. minjalaga (Lög um menningarminjar) 80/2012:
Skógfellavegur.
Fornminjar
Fornminjar samkvæmt lögum þessum eru annars vegar forngripir og hins vegar fornleifar.
Forngripir eru lausamunir 100 ára og eldri sem menn hafa notað eða mannaverk eru á og fundist hafa í eða á jörðu eða jökli, í vatni eða sjó. Skip og bátar frá því fyrir 1950 teljast til forngripa. Til forngripa teljast einnig leifar af líkömum manna og hræjum dýra sem finnast í fornleifum, svo sem fornum haugum, dysjum og leiðum.
Fornleifar teljast hvers kyns mannvistarleifar, á landi, í jörðu, í jökli, sjó eða vatni, sem menn hafa gert eða mannaverk eru á og eru 100 ára og eldri, svo sem:
-búsetulandslag, skrúðgarðar og kirkjugarðar, byggðaleifar, bæjarstæði og bæjarleifar ásamt tilheyrandi leifum mannvirkja og öskuhauga, húsaleifar hvers kyns, svo sem leifar kirkna, bænhúsa, klaustra, þingstaða og búða, leifar af verbúðum, naustum og verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum og skútum,
-vinnustaðir þar sem aflað var fanga, svo sem leifar af seljum, verstöðvum, bólum, mógröfum, kolagröfum og rauðablæstri,
-tún- og akurgerði, leifar rétta, áveitumannvirki og aðrar ræktunarminjar, svo og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita,
Varða við gamla Þingvallaveginn – með vegvísi til norðurs.
-vegir og götur, leifar af stíflum, leifar af brúm og öðrum samgöngumannvirkjum, vöð, varir, leifar hafnarmannvirkja og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra,
-virki og skansar og leifar af öðrum varnarmannvirkjum,
-þingstaðir, meintir hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð,
-áletranir, myndir eða önnur verksummerki af manna völdum í hellum eða skútum, á klettum, klöppum eða jarðföstum steinum og minningarmörk í kirkjugörðum,
-haugar, dysjar og aðrir greftrunarstaðir úr heiðnum eða kristnum sið,
-skipsflök eða hlutar þeirra.
Hættur
Versti óvinur hinna gömlu leiða, auk þess fyrst er minnst á, er virðingarleysi núlifandi. Utanvegaakstur hefur víða spillt hluta leiðanna, nýrri vegir hafa af misgáningi verið lagðir yfir þær (t.d. hinn nýi Suðurstrandavegur um Siglubergsháls (sjá mynd), stórvirkum vinnutækjum hefur verið ekið eftir og yfir leiðirnar, rusli hefur verið hent á þær, námur settar þvert á leiðirnar og trjám plantað í þær. Með svolítilli hugsun mætti koma í veg fyrir þessa eyðileggingu, auk þess sem þeir aðilar, sem vernda eiga þessar fornu minjar, hluta af menningararfleifð okkar, mættu að taka hlutverk sig alvarlegar.
Gamli Þingvallavegurinn – ræsi og varða. framundan.
Á Reykjanesskaganum býr yfir helmingur þjóðarinnar, auk þess sem langflestir útlendir ferðamenn, sem koma hingað til lands, fara um svæðið. Landssvæðið býður upp á ótrúlega útivistarmöguleika, hvort sem er að ganga hinar gömlu leiðir, langar eða stuttar, skoða landmótun á flekaskilum, jarðmótunina frá upphafi með a.m.k. 15 hraun frá sögulegum tíma, ganga um hina fjölmörgu hraunhella, berja litskrúð hverasvæðanna augum, leita og skoða minjar er lýsa búsetu- og atvinnusögu landsins frá upphafi mannsins hér á landi eða bara virða fyrir sér alla þá ómótstæðilegu náttúru- og blómafegurð, sem boðið er upp á. Gjaldið er ekkert, en sú skylda hvílir á hverjum og einum að sýna landinu virðingu.
Reykjanesskaginn vestanverður – fornar leiðir.
(Reyndar hefur reynsla síðustu ára sýnt að það sem er ókeypis virðist lítt áhugavert. Hlutirnir virðast því hafa þurft að kosta sitt til þess glæða áhugann. Svona er nú mannskepnan margslungin – og mótsagnakennd. Hún virðist taka hoppukastala sérsdagsins, ef hann er í boði, fram yfir hin raunverulegu menningarverðmæti hverdagsins og framtíðarinnar).
Þið hin hugsandi: Hvers vegna ekki að aka í 15 mín. og nýta 1-5 tíma til göngu í stað þess að aka í 1-5 klst og hafa síðan einungis tíma til að ganga í 15 mín. Og það á svo mikilvægum tímum aðhalds og ráðdeildar hér á landi.
Að sjálfsögðu er hér ekki um að ræða tæmandi fróðleik eða lýsingu á þessu viðfangsefni, einungs það sem fyrst kemur upp í hugann í stuttu spjalli. Áhugasömu fólki er boðið vel að njóta.
Ögmundardys austast við Ögmundarstíg.
Sel og selstöður á Reykjanesskaga
Árið 2007 skrifaði Ómar Smári Ármannsson BA-ritgerð í fornleifafræði við Háskóla Íslands um „Sel og selstöður vestan Esju„.
Vífilsstaðasel – tilgáta – ÓSÁ.
Viðfangsefni ritgerðarinnar var að safna heimildum um sel og selstöður á landssvæði vestanverðu fyrrum landnáms Ingólfs; frá vesturhlíðum Esju út að Reykjanestá, vestast á Reykjanesskaganum, bera þær saman, kanna fjölda þeirra, leita þær uppi og merkja inn á uppdrátt, lýsa gerð mannvirkja í seljum á svæðinu og jafnframt að reyna að ákvarða aldur þeirra út frá heimildunum, einkum Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín frá árinu 17032 svo og helstu útlitseinkennum.
Dæmigerð selhús – tilgáta ÓSÁ.
Selin og selminjar, sem fjallað er um í ritgerðinni, eru ein tegund sérstakra búskaparminja á afmörkuðu svæði. Ritheimildirnar eru notaðar til að fá vísbendingar um aldur og staðsetningu seljanna. Minjarnar voru leitaðar uppi eftir heimildunum, örnefndum og eldra fólks minni, og reynt að meta hugsanlegar breytingar í gerð þeirra eftir aldri. Við leitina, sem stóð í u.þ.b. 6 ár, voru uppgötvuð sel og líklegar selminjar, sem hvergi er getið um í heimildum. Upplýsingar fengnar á vettvangi hafa hjálpað til við að skýra skráðar heimildir og bæta við þær sem fyrir voru. Auk þess hefur með vinnunni fengist nokkuð heildstæð mynd af þessari tegund búskaparminja á landssvæðinu.
Gjásel – uppdráttur ÓSÁ.
Upplýsingarnar voru færðar inn á skrá gpsstaðsetningarhnitum. Skráin fylgir ritgerðinni. Byrjað er á að lýsa tilteknum seljum á Reykjanesskaganum og tilheyrandi mannvirkjum, staðsetningu, gerð og ástandi eins og það var í byrjun 21. aldar. Bornar eru saman upplýsingar úr Jarðabók Páls Vídalíns og Árna Magnússonar árið 1703 um þekkt sel og reynt verður að ráða í aldur þeirra með hliðsjón af ummerkjum á vettvangi og skráðum heimildum. Einnig er reynt að áætla hvenær seljabúskapur lagðist af á svæðinu og af hvaða ástæðum.
Höfundur telur líklegt að í öllu landnámi Ingólfs megi finna leifar eftir 443 sel og/eða selstöður – á svæðinu í vestur frá Botnsá, Ölfusvatni og Ölfusárósum að Reykjanestá.
Uppdráttur af selminjunum á Selsvöllum – uppdráttur ÓSÁ.
Á þessu svæði, vestan Esjuhlíða, fundust heimildir, vísbendingar og ummerki á 152 stöðum er geymt geta selminjar.
Í Jarðabókinni 1703 er þetta svæðið sem skilgreint er sem Grindavíkurhreppur, Hafnahreppur, Rosmhvalaneshreppur, Vatnsleysustrandarhreppur, Álftaneshreppur, Seltjarnarneshreppur, Mosfellssveit og Kjalarneshreppur í Gullbringu- og Kjósarsýslu, auk Ölves (Ölfuss) og Selvogs í Árnessýslu. Selin geta hafa verið í notkun frá fyrstu tíð landnáms hér á landi fram til aldamótanna 1900. Þau spanna því u.þ.b. 1000 ára tímabil í búskaparsögu svæðisins. Einungis eitt sel hefur verið rannsakað og aldursgreint. Skoðuð verða lítillega skrif Hitzlers4 um sel hér á landi, einkum þau sem hægt er að heimfæra upp á seljabúskap á Reykjanesskaganum, en hafa ber í huga að Hitzler skoðaði þau sel ekki sérstaklega. Einnig verður tekið mið af skrifum Guðrúnar Sveinbjarnardóttur um sel, umfjöllun Guðrúnar Ólafsdóttur um Grindavíkurselin og Sesselju Guðmundsdóttur um Vatnsleysustrandarselin.
Þróun selja – Hér má sjá hvernig húsakostur í seljum á Reykjanesskaganum hefur þróast í gegnum tíðina, allt frá kúaseljum í fjársel. Elstu húsin voru einföld, lítil og óregluleg; tóku mið af landfræðilegum aðstæðum, en breyttust smám saman yfir í reglulegri og heilstæðari þrískiptar byggingar: eldhús, búr og baðstofu. Svo virðist sem byggingarlagið hafi tekið að nokkru leyti mið af gerð bæjarbygginga á hverjum tíma og þróun þeirra.
Ekki verður komist hjá því að fjalla lítillega um skilgreiningar á selminjunum sem fornleifar með hliðsjón af gildandi lögum og reglugerðum. Selminjar hafa bæði sögulegt gildi og eru áþreifanlegur vitnisburður um lífshætti og atvinnu fólks á svæðinu um aldir. Uppdrættir af minjum og minjasvæðum og ljósmyndir eru eftir höfundinn. Tilgangurinn með hvorutveggja er fyrst og fremst sá að reyna að fá yfirsýn um selminjarnar á hverjum stað, útlit þeirra og ástand. Teknar hafa verið 17.000 ljósmyndir og gerðir 100 uppdrættir af einstökum minjum eða minjasvæðum á Reykjanesskaganum. Í ritgerðinni er ýmist fjallað um sel eða selstöður. Skilgreiningin er sú að með seli er átt við staðinn þar sem selstaðan var. Á einum stað getur hafa verið selstaða frá fleiri en einum bæ, s.s. í Knarrarnesseli (3 selstöður), Gjáseli (3 selstöður), á Selsvöllum (6 selstöður), í Selgjá (11 selstöður) og Auðnaseli (3 selstöður).
Selvogsheiði – minjar. Uppdráttur ÓSÁ.
Í yfirliti um sel og selstöður í VI. kafla er listi yfir selin í númeraröð og í viðauka aftast fylgir heildarlisti yfir selin í stafrófsröð. Í þeim lista koma fram staðsetningar m.v. Jarðabókina 1703, hvort þau hafi fundist, hnit einstakra selja og hvaða bæ það tilheyrði skv. heimildum. Listinn, líkt og yfirlitið, gefur jafnframt upplýsingar um hvort tiltekið sel hafi verið þekkt, að önnur selstaða hafi verið á sama stað, selið hafi eyðst af völdum náttúrunnar eða verið eytt af mannavöldum eða vafi geti leikið á að um sel hafi verið að ræða. Jafnframt er tiltekið ef sel gæti hafa verið kolasel og hvaða sel urðu loks að bæjum. Seljaorðalisti fylgir aftan við heimildarskrána, en í honum er hægt að sjá hvar fjallað er um einstök sel í ritgerðinni. Í viðauka fylgir ritgerðinni kort af svæðinu þar sem öll selin vestan Esju eru merkt inn á með viðkomandi númeri.
Viðfangsefni ritgerðarinnar er að safna heimildum um sel og selstöður á landssvæðinu frá vesturhlíðum Esju út að Reykjanestá, vestast á Reykjanesskaganum, bera þær saman, kanna fjölda þeirra, leita þær uppi og merkja inn á uppdrátt, lýsa gerð mannvirkja í seljum á svæðinu og jafnframt að reyna að ákvarða aldur þeirra út frá heimildunum, einkum Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín frá árinu 17032 svo og helstu útlitseinkennum.
Þórkötlustaðasel við Vigdísarvelli – uppdráttur ÓSÁ.
Selin og selminjar, sem fjallað er um í ritgerðinni, eru ein tegund búskaparminja á afmörkuðu svæði. Ritheimildirnar eru notaðar til að fá vísbendingar um aldur og staðsetningu seljanna. Skráðar heimildir voru um þriðjung seljanna, þriðjungur fannst eftir munnlegum heimildum fólks er þekkti til á sérhverjum stað og þriðjungur fannst við leitir, annað hvort vegna vísbendandi örnefna, s.s. Sellækur, Selholt og Selhæðir, eða líklegra staðsetninga m.t.t. búskaparhátta fyrrum.
Dæmigerður selsstígur.
Minjarnar voru leitaðar uppi eftir heimildunum og reynt að meta hugsanlegar breytingar í gerð þeirra eftir aldri. Við leitina, sem stóð í u.þ.b. 6 ár, voru uppgötvuð sel og líklegar selminjar, sem ekki er getið um í heimildum. Upplýsingar fengnar á vettvangi hafa hjálpað til við að skýra skráðar heimildir og bæta við þær sem fyrir voru. Auk þess hefur með vinnunni fengist nokkuð heildstæð mynd af þessari tegund búskaparminja á landssvæðinu. Upplýsingarnar voru færðar inn á skrá gpsstaðsetningarhnitum. Skráin fylgir ritgerðinni. Byrjað verður á því að lýsa seljum á Reykjanesskaganum og tilheyrandi mannvirkjum, staðsetningu, gerð og ástandi eins og það var í byrjun 21. aldar. Bornar eru saman upplýsingar úr Jarðabók Páls Vídalíns og Árna Magnússonar árið 1703 um þekkt sel og reynt verður að ráða í aldur þeirra með hliðsjón af ummerkjum á vettvangi og skráðum heimildum. Einnig verður reynt að áætla hvenær seljabúskapur lagðist af á svæðinu og af hvaða ástæðum.
Bjarnastaðaból – uppdráttur ÓSÁ.
Höfundur telur líklegt að í öllu umfjölluðu landnámi Ingólfs megi finna leifar eftir fleirri en 443 sel og/eða selstöður – þ.e. á svæðinu í vestur frá Botnsá, Ölfusvatni og Ölfusárósum að Reykjanestá. Flestar höfðu þær þegar verið staðfestar áður en ritgerðin var samin. Á þessu svæði, vestan Esjuhlíða, fundust heimildir, vísbendingar og ummerki um sel og selstöður hins vegar á 152 stöðum. Í Jarðabókinni 1703 er þetta svæðið sem skilgreint er sem Grindavíkurhreppur, Hafnahreppur, Rosmhvalaneshreppur, Vatnsleysustrandarhreppur, Álftaneshreppur, Seltjarnarneshreppur, Mosfellssveit og Kjalarneshreppur í Gullbringu- og Kjósarsýslu, auk Ölves (Ölfuss) og Selvogs í Árnessýslu. Selin geta hafa verið í notkun frá fyrstu tíð landnáms hér á landi fram til aldamótanna 1900. Þau spanna því u.þ.b. 1000 ára tímabil í búskaparsögu svæðisins. Einungis eitt sel hefur verið rannsakað og aldursgreint.
Baðsvallasel – uppdráttur ÓSÁ.
Skoðuð verða lítillega skrif Hitzlers um sel hér á landi, einkum þau sem hægt er að heimfæra upp á seljabúskap á Reykjanesskaganum, en hafa ber í huga að Hitzler skoðaði þau sel ekki sérstaklega. Einnig verður tekið mið af skrifum Guðrúnar Sveinbjarnardóttur um sel, umfjöllun Guðrúnar Ólafsdóttur um Grindavíkurselin og Sesselju Guðmundsdóttur um Vatnsleysustrandarselin. Ekki verður komist hjá því að fjalla lítillega um skilgreiningar á selminjunum sem fornleifar með hliðsjón af gildandi lögum og reglugerðum. Selminjar hafa bæði sögulegt gildi og eru áþreifanlegur vitnisburður um lífshætti og atvinnu fólks á svæðinu um aldir. Uppdrættir af minjum og minjasvæðum og ljósmyndir eru eftir höfundinn. Tilgangurinn með hvorutveggja er fyrst og fremst sá að reyna að fá yfirsýn um selminjarnar á hverjum stað, útlit þeirra og ástand. Teknar hafa verið 17.000 ljósmyndir og gerðir u.þ.b. 200 uppdrættir af einstökum minjum eða minjasvæðum á Reykjanesskaganum.
Spákonuvatn, Sesseljupollur og Keilir á Reykjanesskaga.
Í ritgerðinni er ýmist fjallað um sel eða selstöður. Skilgreiningin er sú að með seli er átt við staðinn þar sem selstaðan var. Á einum stað getur hafa verið selstaða frá fleiri en einum bæ, s.s. í Knarrarnesseli (3 selstöður), Gjáseli (3 selstöður), á Selsvöllum (6 selstöður), í Selgjá (11 selstöður), og Auðnaseli (3 selstöður). Í yfirliti um sel og selstöður í VI. kafla er listi yfir selin í númeraröð og í viðauka aftast fylgir heildarlisti yfir selin í stafrófsröð. Í þeim lista koma fram staðsetningar m.v. Jarðabókina 1703, hvort þau hafi fundist, hnit einstakra selja og hvaða bæ það tilheyrði skv. heimildum.
Sogasel í Sogaselsgíg – Uppdráttur ÓSÁ.
Listinn, líkt og yfirlitið, gefur jafnframt upplýsingar um hvort tiltekið sel hafi verið þekkt, að önnur selstaða hafi verið á sama stað, selið hafi eyðst af völdum náttúrunnar eða verið eytt af mannavöldum eða vafi geti leikið á að um sel hafi verið að ræða. Jafnframt er tiltekið ef sel gæti hafa verið annars konar nytjastaður en til fjár og kúa, s.s. til kola-, fugla- refa, sem og hvaða sel urðu síðar að bæjum. Seljaorðalisti fylgir aftan við heimildarskrána, en í honum er hægt að sjá hvar fjallað er um einstök sel í ritgerðinni. Í viðauka fylgir ritgerðinni kort af svæðinu þar sem öll selin eru merkt inn á með viðkomandi númeri.
Hér má sjá ritgerðina – file:///D:/My%20Passport/Myndir%20-%20afrit/Sel%20vestan%20Esju%20-%20BA-ritgerd/Sel%20og%20selstodur-OmarSmariArmannsson-laest.pdf
Hér má sjá yfirlit yfir nokkur þekkt sel og selstöður á Reykjanesskaganum – fyrrum lannámi Ingólfs –
Jónsmessa að vetri – upprisa ljóssins
Jónsmessan er fæðingarhátíð Jóhannesar skírara enda eru Jón og Jóhannes tvö afbrigði sama nafns í íslensku. Í gömlum ritum er Jóhannes skírari oft nefndur Jón eða Jóan skírari eða baptisti. Dagsetningu Jónsmessu má rekja til ákvörðunar Rómarkirkjunnar að haldið skyldi upp á fæðingardaga Jesú Krists og Jóhannesar skírara á fornum sólstöðuhátíðum, á stysta og lengsta degi ársins á norðurhveli jarðar. Samkvæmt Nýja testamentinu fæddist Jóhannes um það bil sex mánuðum á undan Jesú. Jónsmessuhátíðir voru bæði að sumri og að vetri.
Dögg.
Að Jesús sé fæddur í svartasta skammdeginu þegar sólarganginn tekur að lengja, er auðvitað þrungið merkingu og táknar þá von sem Jesús færir mannkyninu samkvæmt kristinni guðfræði. Því passaði það fullkomlega að fæðing Jóhannesar skyldi tímasett þegar sólargangur væri sem lengstur.
Þegar júlíanska tímatalinu var komið á í Rómaveldi á 1. öld f. Kr., héldu Rómverjar upp á 24. júní sem lengsta dag ársins; Jónsmessu að sumri. Það tímatal lá til grundvallar ákvörðun Rómarkirkjunnar nokkrum öldum síðar að messudag Jóhannesar skírara bæri upp á þann dag. Menn gerðu sér þá ekki grein fyrir því að sumarsólhvörf höfðu færst fram um þrjá daga miðað við stjarnfræðilegar sólstöður. Jónsmessu ber því ekki upp á lengsta dag ársins fremur en jólin á stysta dag ársins.
Óskasteinn úr Esjunni.
Ýmis þjóðtrú tengist Jónsmessu. Alþekkt er trúin á að döggin sem fellur á Jónsmessunótt ætti að vera svo heilnæm að menn læknuðust af kláða og átján öðrum óhreinindum í holdi við aðvelta sér allsberir upp úr dögginni. Á Jónsmessunótt átti einna helst að vera unnt að finna svokallaða náttúrusteina, t.d. óskasteina, lífsteina og hulinhjálmsstein.
Árni Björnsson fjallar ítarlega um sögu Jónsmessunar, hér á landi sem erlendis, í bók sinni Saga daganna. Fróðleiksfúsum er bent á að kynna sér skrif Árna en hér verður stiklað á stóru í umfjöllun hans.
Sólin hækkar á lofti.
„Jónsmessan er 24. júní. Hún leysti af hólmi forna sólhvarfahátíð í Róm, og virðist einnig á Norðurlöndum hafa komið í stað slíkrar veislu. Suður í Evrópu var Jónsmessan talin miðsumarsnótt og var mikil alþýðuhátíð með brennum, dansi og svokölluðum nornamessum. Hérlendis var hátíðahald mun minna en í grannlöndunum.
Kann að hafa ráðið nokkru að á þjóðveldisöld lenti dagurinn á miðjum alþingistímanum. Á fyrra hluta 20. aldar byrjuðu nokkur félög að halda útihátíð á Jónsmessu en nánd við þjóðhátíðardaginn 17. júní hefur dregið úr slíku tilstandi eftir 1944. Jónsmessunótt, aðfaranótt 24. júní, er þó ein af fjórum mögnuðustu nóttum ársins, og fylgir ýmis þjóðtrú, meðal annars að kýr tali og selir fari úr hömum sínum. Þessa nótt á einnig að vera gott að leita töfragrasa og náttúrusteina, og Jónsmessudöggin þykir heilnæm til lækninga ef menn velta sér í henni allsberir. Jónsmessa var ekki numin úr tölu helgidaga fyrr en 1770.
Hestar á Jónsmessu.
Jónsmessunóttin, aðfaranótt 24. júní, er ein þeirra fjögurra nátta í íslenskri þjóðtrú sem taldar eru hvað magnaðastar og þá geta alls kyns dularfullir hlutir gerst. Hinar næturnar eru allar í skammdeginu: Jólanótt, nýársnótt og þrettándanótt. Sagt er að á Jónsmessunótt fljóti upp ýmiss konar náttúrusteinar sem geta komið að góðu gagni. Þá má einnig finna ýmis nýtileg grös.
Samkvæmt íslenskri þjóðtrú er heilsusamlegt að velta sér upp úr dögginni á Jónsmessunótt.
Það er algengur hugsunarháttur í þjóðtrú að sé farið út fyrir það sem myndar einhverja heild skapist hættuástand; alls kyns öfl, bæði góð og ill, leysist úr læðingi eða hlutir öðlist sérstaka eiginleika. Þetta á til dæmis við þegar einu ferli lýkur og annað tekur við. Þegar einum degi lýkur og annar hefst, klukkan tólf á miðnætti, fara hin myrku öfl á stjá; hið sama gerist þegar árinu lýkur, á nýársnótt og þegar sólin nær hápunkti á hringferli sínum á Jónsmessunni.
Á Jónsmessu.
Eitt af því sem magnast upp og öðlast sérstakan lækningamátt á Jónsmessunóttinni er döggin. Þess vegna er það gömul trú að mjög heilnæmt sé að velta sér nakinn upp úr dögginni þessa nótt. Geri menn það batna þeim allir sjúkdómar og þeim verður ekki misdægurt næsta árið á eftir.
Jónsmessa hefur alla tíð haft á sér aðra mynd á Íslandi en sunnar í Evrópu. Í Evrópu er hún miðsumarshátíð, samanber leikrit Shakespeares, A Midsummer Night’s Dream sem á íslensku nefnist Draumur á Jónsmessunótt. Þar tíðkuðust svallveislur miklar, brennur og dansleikir sem gjarnan tengdust ýmsum yfirnáttúrlegum verum, nornum og djöflum.
Myrkrið að víkja fyrir dagsbirtunni.
Skiljanlega leist mörgum kirkjumanninum illa á slíka hegðun á helgum degi. Marteinn Lúter sveiflaðist til dæmis milli þeirrar skoðunar að gleði alþýðunnar ætti rétt á sér og að hegðun hennar líktist mest hjáguðadýrkun. Þrátt fyrir viðleitni kirkjunnar manna er enn haldið upp á Jónsmessu með brennum, dansi og drykkju, en hátíðarhaldið hefur vissulega orðið hóflegra í löndum Evrópu eftir því sem aldirnar liðu.
Náttúrufar, atvinnuhættir og samfélagsforsendur hafa komið í veg fyrir að Jónsmessuhátíðin skipaði sama sess á Íslandi og annars staðar. Jónsmessan er ekki um miðsumar samkvæmt gamla íslenska tímatalinu, sumarið er ekki hálfnað fyrr en um miðjan júlí. Á þjóðveldisöld hófst Alþingi dagana kringum 24. júní og því ekki tími fyrir almenn hátíðahöld kringum landið. Síðar seinkaði setningu Alþingis, líklega vegna kólnandi veðurfars sem tafði fyrir öllum vorverkum og kom enn frekar í veg fyrir að menn gætu gert sér glaðan dag á Jónsmessu.
Jónsmessubrenna – fagnað hækkandi sól og lengingu dagsins.
Strjálbýli landsins gerði samkomur allar erfiðar og vegna skógleysis voru litlar forsendur fyrir því að halda miklar brennur á þessum tíma með tilheyrandi söng og dansi.
Bjartar nætur hafa líka átt sinn þátt í því að máttur góðra sem illra vætta hefur þótt í lágmarki kringum Jónsmessu og því lítil ástæða til að þóknast þeim með dýrkun hverskonar sem einkenndist af svalli í Evrópu. Jónsmessunótt þykir þó enn með mögnuðustu nóttum ársins en þá yfirleitt tengd náttúrutrú ýmiss konar. Jónsmessunæturdöggin á að vera heilnæm, hvort sem fólk veltir sér upp úr henni nakið eða lætur sér nægja að ganga í henni berfætt. Jónsmessunótt er einnig góður tími til að finna steina með ýmsar heilsusamlegar náttúrur og til að tína grös til lækninga – sú venja gæti átt sér vísindalega stoð því efnasamsetning jurta er auðvitað breytileg eftir árstíma.
Hækkandi sól.
Nú á dögum ættu aðstæður að vera hátíðahöldum á Jónsmessu meira í vil en fyrr á tímum. Hlýrra veðurfar gerir það að verkum að vorverkum bænda er gjarnan lokið fyrir Jónsmessu og heyskapartíð ekki enn hafin. Það sem helst hefur staðið gleðskap á Jónsmessu fyrir þrifum er hve nálæg hún er þjóðhátíðardeginum 17. júní. En á móti kemur að sífellt fleiri kynnast Jónsmessuhátíðum erlendis, og betri efnahagur og styttri vinnutími eykur eftirspurn eftir skemmtunum þannig að krafan um gleðskap á Jónsmessu kann að styrkjast á næstu árum og áratugum.“
Jónsmessuhátíð á Þorbirni.
Ein af þeim vinsælu Jónsmessugöngum, sem fest hafa sig í sessi undanfarin ár, er för upp á Þorbjarnarfell ofan við Grindavík. Þátttataka hefur jafnan verið mjög góð.
Tilkoma nafnsins Þorbjörn hefur jafnan verið á reiki. Ein tilgátan er sú að fellið hafi fyrrum heitið Forn-Björn eftir Hafur-Birni þeim er þjóðsagan lýsir og skjaldarmerki Grindvíkinga síðar byggist á. Önnur er sú að þegar komið var til Grindavíkur fyrrum um Skipsstíg mátti sjá höfuð (sést reyndar enn í dag) halla sér utan á norðvestanvert fellið. Höfuðið tilheyrði nefndum Þorbirni, eða Hafur-Birni.
Heimildir:
-Árni Björnsson, Saga daganna, Mál og menning, Reykjavík 1993.
-http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=5382.
Selur.
Verbúðir á Reykjanesskaga
22 verbúðarstaðir voru um tíma á Reykjanesskaganum, sumir höfðu nokkrar búðir, s.s. í Þorlákshöfn og í Herdísarvík.
Verbúðir – Bjarni Jónsson.
Verbúðirnar á Suðvesturlandi tengjast mikilvægum hluta af sögu og efnahagssögu Íslands, sérstaklega í kringum sjávarútveginn. Þær voru miðstöðvar útræðis, þar sem sjómenn dvöldu í vertíðum. Þær voru nauðsynlegar til að hýsa þann mikla fjölda manna sem streymdi til verstöðvanna.
Verbúðirnar voru jafnan staðsettar þar sem góð fiskimið og lendingarskilyrði voru, svo sem á Reykjanesskaganum, og einnig í kringum Faxaflóa og Snæfellsnes (sem er stundum talið hluti af Vesturlandi, en tengist sterklega Suðvesturlandi í sögu útræðis).
Verbúð á sunnanverðum Reykjanesskaga.
Verbúðirnar við Grandagarð í Reykjavík eru dæmi um nýlegri verbúðir sem voru friðlýstar sem húsaröð og bera vitni um þróun sjávarútvegar og húsnæðismála í höfuðborginni.
Upprunalegar verbúðir voru oft einfaldar byggingar, hlaðnar úr grjóti eða úr torfi og grjóti, til að standast álag vetrarveðra og þjóna sem einföld gisting fyrir sjómennina. Búðarleifarnar eru í dag mikilvægur hluti af menningarsögu Íslands og hafa gildi sem slíkar. Þær minna á lífshætti og harða lífsbaráttu sjómanna fyrri tíma.
Lending – Bjarni Jónsson.
Þróun sjávarútvegs, með vélbátum og stærri skipum, ásamt breyttum lífsháttum, hefur leitt til þess að hlutverk gamalla verbúða hefur breyst mikið. Margar þeirra eru nú einungis rústir, minjar um liðna tíð, á meðan aðrar hafa verið endurbyggðar eða friðlýstar.
Selatangar er einstaklega áhugaverður og mikilvægur sögustaður á suðurströnd Reykjanesskaga, mitt á milli Grindavíkur og Krýsuvíkur. Þar er að finna leifar af einni heillegustu og best varðveittu gömlu verstöð Íslands, sem ber vitni um harðbýlt líf sjómanna áður fyrr.
Vísa er til sem nefnir allt að 82 sjómenn við róðra frá verinu á Selatöngum á sínum tíma. Útræði lagðist að mestu niður á Selatöngum eftir árið 1880, en síðast var róið þaðan um 1912.
Verbúðin var stór og mikilvæg verstöð sem notuð var frá miðöldum fram á upphaf 20. aldar. Verstöðin var einkum rekin á vegum Krýsuvíkurbónda, en menn frá víðar að, þar á meðal Skálholtsbiskupi og Ísólfsskála, reru þaðan á vertíðum.
Rústirnar á Selatöngum eru friðlýstar minjar. Þar má finna a.m.k. búðatóftir sem sýna hvar sjómenn sváfu á hlaðnum bálkum (svefnstæðum). Þessar hleðslur eru einstaklega áhugaverðar minjar um húsnæði og aðbúnað vermanna.
Auk verbúðanna eru á svæðinu fjöldi minja um fiskverkun, svo sem fiskbyrgi (til að þurrka og geyma fisk) og fiskigarðar.
Árabátur neðan verbúðar.
Sjómenn í landlegum nýttu sér einnig hraunhella í Katlahrauni til ýmissa verka og hlaðið var fyrir op sumra þeirra. Sem dæmi eru nefndir Mölunarkór (þar sem var kvörn) og Sögunarkór (þar sem rekaviður var sagaður og úr honumm unnir ýmsir nytjahlutir).
Selatangar eru einnig þekktar fyrir sagnir um draug sem kallaður var Tanga-Tómas. Hann var sagður gera mönnum ýmsar smáglettur og reimleiki varð svo mikill á seinni hluta 19. aldar að það var talið ein ástæðan fyrir því að verstöðin lagðist af.
Selatangar – uppdráttur ÓSÁ.
Auk þess sem Selatangar bjóða upp á stórbrotið umhverfi og ógleymanlega innsýn inn í sögu sjávarútvegs á Íslandi er þar m.a. að finna grjóthlaðnar refaildrur, fjárskjól, fornar reka- og skreiðarleiðir. Elstu minjarnar eru frá því á 19. öld, en sjórinn hefur brotið jafnt og þétt af grýttri ströndinni og þar með tekið til sín eldri minjar.
„Sumarvertíðin byrjarði almennilegast um páskatíma til Þingmaríumessu,“ sem er 2. júlí, og var vertíðin því um þrír mánuðir. Vetrarvertíðin var frá kyndilmessu 2. febr. til lokadags 11. maí. Skipin voru af fimm stærðum: þriggja manna, fjögurra manna, fimm manna för (bæði stór og lítil), sexæringar og áttæringar. Ekki er vitað hversu margir menn voru í raun í skipunum og þess ber að geta að á seinni hluta 19. aldar réru yfirleitt sex menn í fjögurra manna förum. Þá eru og ótaldar þjónustur sem getið er um að sumir hafi hjá sér og hafa sennilega séð um eldamennsku, viðgerðir á fatnaði og þess háttar.
Selatangar – sjóbúð (tilgáta).
Í verbúðunum snérist allt um fiskveiðar og sjávarútveg fer ekki hjá því að fjölmargir Íslendingar hafi þekkt verbúðalíf af eigin raun. Vistarverurnar kölluðust einu nafni „verbúðir“. Orðabók Menningarsjóðs skilgreinir þetta orð sem „sjóbúð, bústað í verstöð, skýli handa vermönnum“.
Heiti búðanna voru margvísleg en oftast voru þær kenndar við bæina sem bátarnir voru frá eða formenn þeirra sbr. Hjallabúð í Þorláksöfn eða Krýsuvíkurbúð í Herdísarvík.
Talið er víst að verbúðir hafi þekkst á Íslandi frá upphafi útgerðar. Sjávarútvegur hefur alla tíð verið nátengdur íslensku bændasamfélagi sem án stuðnings frá sjónum gat illa eða ekki þrifist.
Kotbúskapur þjóðarinnar leiddi af sér mikinn straum manna í verstöðvar víðs vegar um land en þó einkum á Suður- og Vesturlandi. Þess voru fjölmörg dæmi að bændur réðu sig á vertíð þar sem fjöldi búa var kostarýr og því engin tök á að framfleyta meðalfjölskyldu á búskapnum einum saman. Fólkið í sveitunum hafði því náin kynni af lífi og starfi manna í verstöðvunum – enda fýsti margan manninn að komast úr einangrun dalabæjanna í margmennið við sjóinn og taka þátt í ævintýrum tengdum fiskveiðunum.
Ýmiss konar hefðir og venjur urðu til í kringum verbúðarlífið. Í fornum heimildum segir frá því að jafnskjótt og sjómaður kom í verið innti hann formann sinn eftir því hver ætti að vera rúmlagsmaður hans. Að því búnu var farið að laga til í bálknum eða rúminu og koma fyrir skrínum og öðru lauslegu. Það var kallað að búða sig. Þar sem rúmstæðin voru bálkar urðu menn að fá eitthvað til mýktar ofan á grjótið og var þá oftast notast við hey. Í Þorlákshöfn var gömul hefð að skipseigandi legði til heyið í fyrsta skipti sem sest var að í nýrri verbúð. Þess voru einnig dæmi að marálmur og hefilspænir væru notaðir í þessu skyni. í Grindavík bar við að skeljasandur væri látinn ofan á grjótið og þar ofan á þang eða marálmur.
Þorlákshöfn 1911 – verbúðir.
Þó var ekki laust við að menn kysu fremur lyng þar sem fló vildi sækja í þangið og hálminn. Í Vogum á Vatnsleysuströnd var vani á haustin að sækja marga hestburði af lyngi í þessum tilgangi. Þar sem rúm voru með snærisbotnum höfðu menn hærusekk með heyi og einstaka formaður var með dýnu. Ofan á lyngið, þangið eða heyið, lögðu menn gjarnan strigapoka eða jafnvel gæruskinn og þar yfir rekkjuvoð. Flestir höfðu brekán sem yfirbreiðslu en sumir höfðu fiðursæng eða ofið teppi sem ábreiðu. Ekki var óþekkt að vermenn fengju fiðursængur að láni og var þá leigan 2 krónur yfir vertíðina (1900). Flestir vermenn höfðu með sér kodda en undir honum var fötum komið fyrir.
Verbúð – bátar í vör.
Síðasta verkið við að búða sig var að koma mötuskrínunum fyrir í bálknum. Þá var önnur höfð í bríkarstað en hin í höfuðlagsstað. Sjóklæðin, sem voru skinnklæði, héngu á stoðum á milli bálkanna.
Venjulega svaf formaður í bálknum næst dyrum til vinstri en einnig kom fyrir að hann væri í kórrúmi. Hálfdrættingur svaf oftast í kórrúmi en stundum við þriðja mann í bálki. Í verstöðvum vestra svaf hann oftast hjá formanni. Sú venja skapaðist gjarnan að þeir sem voru á sama skipi fleiri en eina vertíð, héldu áfram að vera rúmlagsmenn.
Grindavík – verbúð við Járngerðarstaði; uppdráttur.
Verbúðaskyldur voru nokkrar og skipaði formaður fyrir í byrjun vertíðar hvernig þeim skyldi háttað. Rúmlagsmenn áttu einn dag í senn að sjá um að sækja vatn, hita kaffi og sópa búðina. Þeir sem sváfu næst fyrir innan formann áttu að byrja og síðan koll af kolli sólarsinnis. Þannig var þessu háttað víðast hvar en þó kom fyrir að kaffihaldari væri skipaður yfir alla vertíðina. Þá bar vermönnum að afla eldiviðar og sjá um matseldun og sama manni var falið að annast blöndukútinn þar sem drykkur var hafður með á sjó.
Verbúð í Þorlákshöfn.
Í verbúðinni á Járngerðarstöðum var hengilampi og olíuhylkið sem var úr blikki var ætíð kallað „beholder“. Þetta var tíu línu brennari en slík viðmiðun fór eftir vídd kveikpípunnar. Til þess að sjá um lampann var skipaður sérstakur ljósameistari sem hafði það hlutverk að bæta olíu á lampann og halda glasi hans hreinu. Þetta hlutverk var jafnan í höndum miðrúmsmanns þar sem lampinn var gjarnan staðsettur fyrir miðri verbúð.
Þess er einnig getið að í flestum verbúðum hafi verið kirna sem tók u.þ.b. tuttugu lítra. Hún var sameiginlegt næturgagn allra búðarmanna og stóð á miðju gólfi um nætur. Þetta þarfaþing var kallað kerald eða kjásarhald og það var skylda hvers búðarmanns að sjá um kjárarhaldið eina viku á vertíðinni. Átti hann m.a. að losa það og þrífa dag hvern og sjá til þess að það væri á sínum stað á kvöldin og væri ekki til vansa ef einhver kæmi ókunnugur í búðina.
Þorlákshöfn – verbúðir.
Hér á undan hefur lítillega verið getið um verbúðir, eða sjóbúðir eins og þær voru gjarnan kallaðar, sem voru algengar víða um land fyrir og um aldamótin. Þegar líða tók á 20. öldina fór þessum verbúðum fækkandi en þess í stað fengu vermenn, og annað að komufólk sem vann við sjávarútveg, inni í sérstökum húsum eða verbúðum sem rekin voru af útgerðaraðilum. Þar erum við komin að þeirri tegund verbúða sem flestir kannast við. Sem fyrr voru þessar verbúðir – og eru enn – afar misjafnar að gæðum og nokkuð ljóst er að allar verbúðir, sem eru í notkun í dag, uppfylli lágmarks skilyrði hvað varðar hreinlæti og annan aðbúnað innandyra.
Sjómaður.
Í verbúð Lofts Loftssonar í Sandgerði dvöldu á árunum 1917-1919 nokkrir sjómenn af Álftanesi. Þetta voru svokallaðir haustmenn sem réru á áttæringi í birtingu á hverjum morgni. Þeir höfðu með sér skrínukost í stórum koffortum sem voru full af alls kyns góðgæti. Þetta voru hressir og góðir karlar; flestir fjölskyldumenn sem héldu að heiman til þess að sækja björg í bú.
Hinn íslenski sjómaður var klæddur skinnstakk, brók og sjóskóm. Sjóklæðin voru gjarnan borin lifrarlýsi til þess að hrinda burtu vatni. Þeir voru ræstir eldsnemma á morgnana, róið á miðin í misjöfnum veðrum, fiskað og síðan róið í land. Stundum þurfi að seila fiskinn og draga að landi í stað þess að kasta honum á skiptivöll. Ávallt var unnið fram á kvöld, þ.e. er ekki voru landlegur. Þær voru gjarnan notaðar til að hlúa og gera við nauðsynleg mannvirki, s.s. hlaða fiskigarða og þurrkbyrgi.
Sjómenn voru jafnan svo þreyttir að þeir reyndu að nota vel þær fáu stundir sem gáfust til þess að sofa. Þetta var ekkert annað en púl og alltaf hlakkaði sérhver sjómaðurinn mikið til lokadagsins. Þá var hann fljótur að hypja sig í burtu.
Herdísarvík – verbúðir.
Auk Selatanga má nefna Þorlákshafnarbúðina, verbúðirnar í og við Herdísarvík, í Húshólma, við Nótarhól hjá Ísólfsskála, Skálholtsbúðina í Járngerðarstaðahverfi Grindavík, Hvyrflabúðina í Staðarhverfi ofan við Merki, í Höfnum, á Stafnesi, í Sandgerði, í Garði, í Keflavík, í Njarðvíkum, við Voga, við Kálfatjörn, við Hvaleyri, við Garða, á Álftanesi, í Reykjavík, við Blikastaði, við Brautarholt og Hvamm í Kjós.
Heimild:
-Fiskifréttir, 47. tbl. 15.12.1989, Verbúðarlíf á Íslandi fyrr og nú, Sigurjón Björnsson, bls. 16-17.
Selatangar – búðir Krýsuvíkurbænda.